Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 12. ágúst, kl. 9.04, var haldinn 180. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Brynjar Fransson, Stefán Þór Björnsson, Sóley Tómasdóttir, Stefán Benediktsson, Guðrún Erla Geirsdóttir og Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Bjarnason, Þórhildur Lilja Ólafsdóttir og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Lilja Grétarsdóttir, Margrét Þormar, Margrét Leifsdóttir, Þórarinn Þórarinsson og Ágústa Sveinbjörnsdóttir.
Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 17, 24, og 30. júlí og 7. ágúst 2009.

2. Eirhöfði 8 - Breiðhöfði 15, breyting á deiliskipulagi(04.030.1) Mál nr. SN090208
Kemis ehf, Pósthólf 9351, 129 Reykjavík
Viðar Steinn Árnason, Grenigrund 12, 200 Kópavogur
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Kemis ehf. dags. 4. júní 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðanna Eirhöfða 8 og Breiðhöfða 15. Í breytingunni felst að nýjum byggingarreit er bætt við austan við núverandi byggingu á lóðinni samkvæmt uppdrætti Viðars Steins Árnasonar dags. 4. júní 2009. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. júní til og með 13. júlí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Lárus Sigurðsson f.h. Eldshöfða 18 ehf og Snæland Grímsson ehf, dags. 10. júlí 2009. Lögð fram svör BM Vallá dags. 21. júlí og Kemis dags. 27. júlí 2009 við athugasemd. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. júlí 2009.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12 gr. samþykktar um skipulagsráð og umsagnar skipulagsstjóra.

3. Mjóstræti 4, breyting á deiliskipulagi (01.136.5) Mál nr. SN090234
Kristinn E Hrafnsson, Mjóstræti 4, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynning er lagt fram að nýju erindi lóðarhafa mótt. 25. júní varðandi breytingu á deiliskipulagi Grjótaþorps vegna lóðarinnar nr. 4 við Mjóstræti. Í breytingunni felst að byggja skúr á lóðinni samkvæmt uppdrætti dags. 22. júní 2009. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. júlí til og með 5. ágúst 2009. Athugasemdir bárust frá Gesti Ólafssyni dags. 9. júlí 2009. Erindið var lagt fram á fundi skipulagsstjóra þann 17. júlí 2009 og vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 22. júlí 2009.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12 gr. samþykktar um skipulagsráð og umsagnar skipulagsstjóra.

4. Sæmundargata 2, (01.603) Mál nr. SN090280
breyting á deiliskipulagi Háskóla Íslands
Hornsteinar arkitektar ehf, Ingólfsstræti 5,5.hæð, 101 Reykjavík
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Hornsteina f.h. Háskóla Íslands, dags. 6. ágúst 2009, um breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands austan Suðurgötu skv. uppdrætti sama, dags. 4. ágúst 2009. Sótt er um staðsetningu á pressugámi við bílastæði vestan aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.

5. Húsahverfi svæði C, (02.84) Mál nr. SN090006
breyting á skilmálum vegna húsagerðar E8 og E9
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. janúar 2009 breytt 2. júní 2009 að breytingu á skilmálum deiliskipulags #GLHúsahverfi Grafarvogur III svæði C#GL, vegna húsagerðarinnar E8 og E9. Breytingin felst í því að hækkun heimildar vegna hámarks byggingarmagns og heimildum til útbygginga er breytt. Tillagan var auglýst frá 2. febrúar til og með 16. mars 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Lex Lögmannstofa f.h. eigenda að Suðurhúsum 2, dags. 17. febrúar 2009 og 12. mars, Björn Z. Ásgrímsson og Jónína Sóley Ólafsdóttir, dags. 16. mars 2009. . Einnig er lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarsviðs dags. 10. ágúst 2009 og ný tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 10. ágúst 2009 að breytingu á skilmálum deiliskipulags #GLHúsahverfi Grafarvogur III svæði C#GL, vegna húsagerðarinnar E8 og E9.
Með vísan til minnisblaðs skipulags- og byggingarsviðs er ákveðið að auglýsa að nýju breytta tillögu að breytingu á deiliskipulagi #GLHúsahverfi Grafarvogur III, svæði C.#GL Jafnframt er samþykkt að kynna breytta tillögu fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.
Vísað til borgarráðs.

6. Háskóli Íslands, sunnan Brynjólfsgötu, (01.552) Mál nr. SN090249
breyting á deiliskipulagi reits A1 vestan Suðurgötu
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Ingjalds Hannibalssonar f.h. Háskóla Íslands, dags. 26. júní 2009 ásamt uppdrætti Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 30. apríl 2009 vegna breytinga á deiliskipulagi Háskóla Íslands, reits A1 vestan Suðurgötu og sunnan Brynjólfsgötu, vegna aukningar á byggingarmagni.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, jafnframt var samþykkt að senda tillöguna til umsagnar Umhverfis- og samgöngusviðs á auglýsingartímanum.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs Sóley Tómasdóttir óskaði bókað: Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýsingu tillögunnar á þessu stigi með hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu að auglýsingu lokinni.

7. Fróðengi 1-11, Spöngin 43, (02.376) Mál nr. SN090259
breyting á deiliskipulagi vegna bílastæða
THG Arkitektar ehf, Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Lagt fram minnisblað THG, dags. 16. júní 2009 ásamt uppdrætti, dags. 29. júní 2009, varðandi breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar við Fróðengi vegna Fróðengi 1-11 og Spangar 43 vegna bílastæða. Einnig lögð fram úttekt THG á bílastæðanotkun hjúkrunarheimila, dags. 9. des. 2008. Erindi var lagt fram á fundi skipulagsstjóra þann 17. júlí 2009 og vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra svæðisins. Erindi er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að auglýsa tillöguna þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í þeim tilgangi að auka hlutverk gróðurs og landslagshönnunar á bílastæðalóðum.
Vísað til borgarráðs.

8. Ofanleiti 14, breyting á deiliskipulagi (01.746.2) Mál nr. SN090095
Guðni Pálsson, Litlabæjarvör 4, 225 Álftanes
Hamborgarabúlla Tómasar ehf, Pósthólf 131, 121 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Guðna Pálssonar f.h. Hamborgarabúllu Tómasar ehf., dags. 10. mars 2009, um breytingu á deiliskipulagi Kringlubæjar vegna lóðar nr. 14 við Ofanleiti samkvæmt uppdrætti, dags. 6. mars 2009. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt nýjum uppdrætti mótt. 26. mars 2009. Tillagan var auglýst frá 13. maí til og með 6. júlí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Húsfélagið að Neðstaleiti 1 og Neðstaleiti 3 dags. 26. júní og 6. júlí 2009. Einnig er lagt fram bréf GP-arkitekta fh. lóðarhafa dags. 4. ágúst 2009 og umsögn skipulagsstjóra dags. 10. ágúst 2009.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12 gr. samþykktar um skipulagsráð og umsagnar skipulagsstjóra.

(B) Byggingarmál

9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerðir Mál nr. BN040282
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 547 frá 21. júlí 2009, 548 frá 28. júli 2009 og nr. 549 frá 11. ágúst 2009.

10. Alþingisreitur, flutningur á húsi ofl. (01.141.106) Mál nr. BN039779
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að flytja hús af sökkli sínum á lóð nr. 12 við Vonarstræti yfir á nýjan, hærri sökkul á fornleifauppgreftri við Kirkjustræti nr. 4, Mhl. 03, að endurbyggja Skjaldbreið á lóð nr. 8 við Kirkjustræti Mhl. 04, til að byggja steinsteypta nýbyggingu Mhl.07 á milli þessara tveggja húsa og tengja öll húsin ásamt Kirkjustræti 8B og 10 við þjónustubyggingu Alþingis á Alþingisreit.
Jafnframt er erindi BN039619 dregið til baka.
Erindi fylgir fyrirspurn BN039505 dags. 24. febrúar 2009, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 2. mars 2009, Húsafriðunarnefndar dags. 3. mars 2009 og skýrsla um brunavarnir dags. 6. janúar 2009.
Meðfylgjandi er Fornleifaverndar ríkisins dags. 14. apríl 2009, einnig ný umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 26. mars 2009, einnig bréf hönnuða dags. 17. apríl 2009 og brunaskýrsla útgáfa 2 dags. 20. apríl 2009.
Stærðir nýbyggingar, Mhl. 07: Kjallari 381,5 ferm., 1. hæð 212 ferm., 2. hæð 287,1 ferm., 3. hæð 162,7 ferm.
Samtals 1.043,3 ferm., 3.844,8 rúmm.
Gjald kr: 7.700 + 296.050
Frestað.

11. Brávallagata 8, þrennar svalir (01.162.328) Mál nr. BN036240
Margrét Rós Gunnarsdóttir, Brávallagata 8, 101 Reykjavík
Matthildur Sigurgeirsdóttir, Brávallagata 8, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júní 2009 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja úr stáli svalir við austurhlið 1. 2. og 3. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 8 við Brávallagötu. Með umsókninni fylgir bréf dagsett 15.07.08 frá arkitekt þar sem óskað er eftir að málið verði grenndarkynnt. Einnig fylgir bréf eigenda Brávallagötu 10 dags. 5. ágúst 2008.Tillagan var grenndarkynnt frá 18. júní til og með 16. júlí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir:
Áslaug Sigurðardóttir og Pétur H. Stefánsson, dags. 15. júlí 2009.
Erindi var lagt fyrir fund skipulagsstjóra þann 17. júlí 2009 og vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 24. júlí 2009
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs Sóley Tómasdóttir vék af fundi við afgreiðslu erindisins.

12. Miðtún 21, endurnýjun á byggingaleyfi BN0035421(01.221.418) Mál nr. BN039963
Hilmar Hafsteinsson, Miðtún 21, 105 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. maí 2009 þar sem sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN035421 samþ. 30. apríl 2007, sem felst í að byggja nýja rishæð, skyggni yfir útitröppur og fyrir minni háttar áður gerðum breytingum á innra skipulagi kjallara einbýlishússins á lóðinni nr. 21 við Miðtún. Einnig er sótt um að koma fyrir auka bílastæði á lóð. Tillagan var grenndarkynnt frá 3. júní til og með 4. júlí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Elín Ástráðsdóttir fh. íbúa Miðtúni 36 dags. 12. júní 2009.Stækkun: 46,2 ferm., 116,7 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 8.986.
Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 16. júlí 2009.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa

(D) Ýmis mál

13. Skipulagsráð, viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs Mál nr. SN090282
Lögð fram viðbragðsáætlun skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar dags. 5. ágúst 2009 vegna inflúensufaraldurs.
Kynnt.

14. Grundarstígur 10, bréf frá íbúa Mál nr. SN090278
Hallgrímur Magnússon, Grundarstígur 17, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf frá íbúa Grundarstígs 17 dags. 26. júlí 2009 vegna afgreiðslu skipulagsstjóra við afgreiðslu umsóknar um breytingar á húsinu nr. 10 við Grundarstíg. Einnig lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarsviðs dags. 6. ágúst 2009.

15. Kjalarnes, Hringvegur, Mál nr. SN090260
framkvæmdaleyfi fyrir undirgöng við Grundarhverfi
Vegagerðin, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík
Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar, dags. 10. júlí 2009, um framkvæmdaleyfi til að gera undirgöng fyrir gangandi umferð undir Hringveg við Grundarhverfi, Kjalarnesi.
Samþykkt með vísan til c-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

16. Reykjavíkurflugvöllur, skipulagsreglur (01.6) Mál nr. SN090121
Flugstoðir ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Landslög ehf, Köllunarklettsvegi 2, 104 Reykjavík
Lagt fram bréf Flugmálastjórnar dags. 13. júlí 2009, ásamt umsögn um athugasemdir og ábendingar sem bárust vegna auglýsingar skipulagsreglna fyrir Reykjavíkurflugvöll.

17. Grandagarður 15-99, bréf Húsafriðunarnefndar(01.115.001) Mál nr. BN040293
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 4. þ.m. þar sem tilkynnt er um friðun verbúðanna við Grandagarð 15-99. Friðunin tekur til ytra byrðis verbúðanna. Bréfinu fylgir afrit af friðunarskjali menntamálaráðherra dags. 26. mars 2009 og tilkynning menntamálaráðuneytisins um friðun dags. 29. júlí 2009.

18. Jakasel 33, bréf byggingarfulltrúa (04.994.206) Mál nr. BN040291
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 7. þ.m. til eigenda hússins nr. 33 við Jakasel vegna stöðvunar óleyfisframkvæmda á lóðinni Jakasel 33.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt

19. Grensásvegur 50, bréf byggingarfulltrúa (01.802.509) Mál nr. BN040292
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 27. apríl 2009 vegna gáms á lóð nr. 50 við Grensásveg. Eigandi gámsins hefur ekki orðið við fyrirmælum byggingarfulltrúa um að fjarlæga gáminn. Hann hefur heldur ekki andmælt þeim áformum sem fram koma í bréfinu. Lagt er til við skipulagsráð að samþykkja þá tillögu sem fram kemur í bréfinu.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt

20. Úlfarsárdalur, breyting á deiliskipulagi (02.6) Mál nr. SN090133
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. júli 2009 um samþykkt borgarráðs dags. 16. júlí 2009 á breytingu á deiliskipulagi vegna sameiginlegra aðkomu- og bílastæðalóða við Gefjunar-, Iðunnar-, og Friggjarbrunn í Úlfarsárdal.

Fundi slitið kl. 11.05

Júlíus Vífill Ingvarsson
Ragnar Sær Ragnarsson Brynjar Fransson
Stefán Þór Björnsson Sóley Tómasdóttir
Stefán Benediktsson Guðrún Erla Geirsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 11. ágúst kl. 10.30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 549. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Hjálmar Andrés Jónsson og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Akurgerði 35 (01.813.201) 107888 Mál nr. BN040223
Kolbeinn Ágústsson, Akurgerði 35, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvisti á báðar hliðar parhússins nr. 35 við Akurgerði.
Erindi fylgir fsp. BN040223 dags. 21. apríl 2009.
Stækkun húss: 6,1 ferm., 10,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 824
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Akurgerði 37 (01.813.202) 107889 Mál nr. BN040275
Jón Ásgeir Einarsson, Akurgerði 37, 108 Reykjavík
Sólveig Gyða Jónsdóttir, Akurgerði 37, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr og til að byggja kvisti á báðar hliðar parhússins nr. 37 við Akurgerði.
Erindi fylgir fsp. BN040223 dags. 21. apríl 2009.
Stækkun húss: 6,1 ferm., 10,7 rúmm.
Bílskúr: 28 ferm. og 71,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.322
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Austurberg 28-38 (04.670.7--) 112108 Mál nr. BN040102
Austurberg 38,húsfélag, Austurbergi 38, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp svalaskýli úr perlugleri með 2-4 mm raufum á milli glerflata á 2. og 3. hæð fjölbýlishússins nr. 38 á lóð nr. 28-38 við Austurberg.
Samþykki meðeigenda dags. 23. apríl 2009 fylgir erindi ásamt úttektarskýrslu hönnuðar á brunavörnum dags. 18. júní 2009.
Stærðir: 105,5 ferm., 269,0 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 20.713
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Austurberg 5 (04.663.701) 112063 Mál nr. BN040140
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum af viðbyggingu við Fjölbrautarskólann í Breiðholti á lóð nr. 5 við Austurberg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

5. Austurstræti 7 (01.140.206) 100830 Mál nr. BN040284
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um lítils háttar breytingar og tilfærslur á björgunaropum á nýsamþykktu erindi BN039832 á veitingahúsinu á lóð nr. 7 við Austurstræti.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

6. Baldursgata 19 (01.184.508) 102113 Mál nr. BN040240
Gunnar Klingbeil, Baldursgata 19, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir þakglugga á norðvesturþekju tvíbýlishússins á lóð nr. 19 við Baldursgötu.
Erindi fylgir jákvæð fsp. dags. 14. júlí 2009 og bréf frá umsækjanda dags. 23. júlí 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

7. Bauganes 29 (01.673.009) 106826 Mál nr. BN040096
Sigvaldi Snær Kaldalóns, Bauganes 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum til að byggja sólstofu úr timbri og gleri við einbýlishúsið á lóð nr. 29 við Bauganes.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 17. júlí fylgir erindinu.
Stækkun 12 ferm., 32 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 2.464
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

8. Bjarnarstígur 12 (01.182.219) 101871 Mál nr. BN039938
Guðmundur Þórður Agnarsson, Rjúpnasalir 10, 201 Kópavogur
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi innanhúss þar sem gerð er grein fyrir þremur íbúðum og til að koma fyrir svölum á suðurhlið rishæðar þríbýlishússins á lóð nr. 12 við Bjarnarstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. ágúst fylgir erindinu. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. júlí til og með 5. ágúst 2009. Engar athugasemdir bárust.Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN040112
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofur á 16. hæð í atvinnuhúsinu Höfðatún 2 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Brekkustígur 3 (01.134.206) 100333 Mál nr. BN034131
Sigurgeir Steingrímsson, Mosfell, 270 Mosfellsbær
Ragnheiður Jónsdóttir, Mosfell, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðum breytingum s.s. breytingum á innra skipulagi, tekinn er út lítill gluggi í stigarými, og rifinn garðskúr og byggður nýr við húsið á lóðinni nr. 3 við Brekkustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 7. ágúst 2009 fylgir erindinu. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. júlí til og með 4. ágúst 2009. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: 10,9 ferm., 27,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.702
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um samruna eigna til þess að byggingarleyfið öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Dugguvogur 8-10 (01.454.002) 105618 Mál nr. BN040059
Rúnar Svavarsson ehf, Hléskógum 22, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta 9 íbúðir með vinnustofum á 2. hæð mhl. 02 og koma fyrir aðgangsdyrum á austurvegg 1. hæðar atvinnuhússins nr. 10 á lóð nr. 8-10 við Dugguvog.
Samþykki meðeigenda dags. 4. mars 2008 fylgir ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. ágúst 2009 og umsögn skipulagsstjóra dags. 7. ágúst 2009
Gjald kr. 7.700
Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 7. ágúst 2009.

12. Efstaland 26 (01.850.101) 108756 Mál nr. BN040255
Eldofninn ehf, Brúnalandi 19, 108 Reykjavík
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II í rými 0201 verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóð nr. 26 við Efstaland.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Umsækjandi hafi samband við matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlitsins.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra til athugunar á grenndaráhrifum veitingastaðarins.

13. Eggertsgata 6-10 (00.000.000) 106682 Mál nr. BN040261
Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi Sæmundar, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta út svalahandriðum á fjölbýlishúsum á lóð nr. 6, 8 og 10 við Eggertsgötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

14. Eyjarslóð 7 (01.110.504) 100022 Mál nr. BN040204
Árni Benediktsson, Hringbraut 77, 107 Reykjavík
Eiríkur Óskarsson, Danmörk, Vald ehf, Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og til að útbúa nýja aðkomu að 2. hæð eignarhluta 0201 í atvinnuhúsinu á lóð nr. 7 við Eyjarslóð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. júlí 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Fiskislóð 39 (01.086.601) 209697 Mál nr. BN040198
Formprent ehf, Hverfisgötu 78, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi innanhúss, endurskoða brunahönnun og breyta útliti á húsi á lóð nr. 39 við Fiskislóð sbr. erindi BN037441
Meðfylgjandi er tölvupóstur skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna dags. 20. júlí 2009. Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 24. júlí 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Flókagata 19 (01.244.409) 103202 Mál nr. BN040227
Jón G Hálfdanarson, Flókagata 19, 105 Reykjavík
Kristín Steinsdóttir, Flókagata 19, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og til að stækka svalir í rishæð þríbýlishússins á lóð nr. 19 við Flókagötu.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 20. júlí 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Flókagata 8 (01.247.118) 103350 Mál nr. BN040242
Gestur Gunnarsson, Flókagata 8, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja og breyta erindi BN027492, endurnýjað sem BN031090 1. mars 2005, þar sem veitt var leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á lóð nr. 8 við Flókagötu.
Breytingin felst í að útveggir verði einangraðir að utan.
Bílskúr: 26,9 ferm. og 82,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.337
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Fossagata 9 (01.636.606) 106723 Mál nr. BN040258
Hallmundur Hallgrímsson, Fossagata 9, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja til suðurs og norðurs við einbýlishúsið á lóð nr. 9 við Fossagötu.
Erindi fylgir jákv. fsp. dags. 30. apríl 2007.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 101 og 102 dags. 27. júlí 2009.

19. Fossaleynir 1 (02.456.101) 190899 Mál nr. BN040285
Borgarhöllin hf, Ránargötu 18, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að ljúka framkvæmdum með nýjum verktaka og byggingarstjóra á hluta lóðar sbr. erindi BN036460 við Egilshöll á lóð nr. 1 við Fossaleyni.
Gjald kr 7.700
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættis byggingarfultrúa er í gildi byggingarleyfi nr. BN036460. Um nýjan byggingarstjóra gilda ákvæði gr. 36 í byggingarreglugerð nr. 441/1998.
Ekki hefur verið sýnt fram á þörf á nýju byggingarleyfi.

20. Gnoðarvogur 84 (01.473.003) 105739 Mál nr. BN040234
Alexander H Depuydt, Gnoðarvogur 84, 104 Reykjavík
Ástríður E Guðmundsdóttir, Gnoðarvogur 84, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að grafa frá suðurhlið og byggja sólstofu við íbúð í kjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 84 við Gnoðarvog.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt og jákv. fsp. BN039545 dags. 10. mars 2009.
Stækkun: 11,3 ferm., 29,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.248
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 01 og 02 dags. 06. 2009.

21. Grjótháls 1-3 (04.302.401) 111016 Mál nr. BN040104
Grjót eignarhaldsfélag ehf, Nesbala 17, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um leyfi til að koma fyrir nýju millilofti sem mun hýsa vinnusal og ýmsar innanhússbreytingar á 3. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 1-3 við Grjótháls.
Bréf frá hönnuði dags. 23. júní 2009 og bréf um brunavarnir húss fylgja erindinu.
Milliloft: 340,1 ferm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Grænahlíð 14 (01.715.008) 107266 Mál nr. BN040192
Jana Friðfinnsdóttir, Flókagata 63, 105 Reykjavík
Einar Þór Bogason, Flókagata 63, 105 Reykjavík
Edda Jóna Gylfadóttir, Grænahlíð 14, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta skipulagi 3. hæðar innanhúss og færa rými milli eignarhluta í fjölbýlishúsi á lóð nr. 14 við Grænuhlíð.
Gjald kr 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

23. Hafnarstræti 23 (01.118.505) 100101 Mál nr. BN040237
Domingos Tavares Ferreira, Ystasel 27, 109 Reykjavík
Sótt er um stöðuleyfi fyrir matsöluvagn á bílastæði á lóð norðan við Strætóhúsið við Lækjartorg nr. 23 við Hafnarstræti.
Umsögn Bílastæðasjóðs dags. 4. ágúst 2009 fylgir erindinu og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. júlí 2009.
Gjald kr. 7.700
Synjað.
Með vísan til umsagnar bílastæðasjóðs.

24. Heiðarás 13 (04.373.203) 111372 Mál nr. BN040249
Gunnar Valdimar Árnason, Heiðarás 13, 110 Reykjavík
Rut Gunnarsdóttir, Heiðarás 13, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að lengja stoðvegg og til að breyta byggingarefni útitrappa í steinsteypu, sjá erindi BN038525 samþ. 21. október 2008, við einbýlishúsið á lóð nr. 13 við Heiðarás.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Heiðargerði 16 (01.802.003) 107640 Mál nr. BN040177
Hermann Þór Baldursson, Heiðargerði 16, 108 Reykjavík
Harpa Ingvadóttir, Heiðargerði 16, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa útbyggingu, byggja við og stækka úr steinsteypu sbr. erindi BN038225 einbýlishús á lóð nr. 16 við Heiðargerði.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 17. júlí fylgir erindinu.
Stærðir: Niðurrif 16,9 ferm., 52,4 rúmm.
Stækkun kjallari 27,5 ferm., 1. hæð 29,2 ferm.,
Samtals 56,7 ferm., 153,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 11.827
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Hjallavegur 30 (01.354.208) 104286 Mál nr. BN040160
Hannes Tómasson, Hjallavegur 30, 104 Reykjavík
Guðmundur Óli Gunnarsson, Hjallavegur 30, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðu bíslagi og til að byggja sólskála á jarðhæð og svalir ofan á við tvíbýlishúsið á lóð nr. 30 við Hjallaveg.
Erindi fylgir jákv. fsp. dags. 30. júní 2009.
Áður gerð stækkun: 9,8 ferm., 36 rúmm.
Sólstofa: 11,3 ferm, 27 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.851
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Hjallavegur 8 (01.353.110) 104228 Mál nr. BN039756
Hermann Þór Geirsson, Hjallavegur 8, 104 Reykjavík
Katla Einarsdóttir, Hjallavegur 8, 104 Reykjavík
Ólafur Gunnarsson, Hjallavegur 8, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi, þar sem gerð er grein fyrir tveimur áður gerðum íbúðum í kjallara og útgröfnu rými í norðausturhorni kjallara ásamt því að sótt er um leyfi til að grafa frá hluta kjallara og gera hurð út í garð.
Jafnframt er erindi BN029098 dregið til baka.
Erindi fylgir virðingargjörð dags. 4. febrúar 1981, þinglýst afsal dags. 18. mars 1993 vegna eignar 0001, bréf hönnuðar dags. 7. apríl 2009 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa (eign merkt 201-7714-01-0001, þ.v.s. eign 0002 í þessu erindi) dags. 8. janúar 2004.
Ný íbúðarskoðun á báðum íbúðum dags. 7. maí 2009 fylgir einnig.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Holtavegur 8-10 (01.408.101) 104960 Mál nr. BN040254
Landic Property Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um þegar gerðar breytingar innanhúss, sem felast í tilfærslu eininga, í verslunarhúsi á lóð nr. 10 við Holtaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

29. Höfðabakki 1 (04.070.001) 110677 Mál nr. BN039738
Guðmundur H Sigurðsson, Tunguvegur 17, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum í veitingasölu í fl. 1 (veitingar til meðtöku) á 1. hæð í húsi á lóð nr. 1 við Höfðabakka.
Meðfylgjandi er A - afrit af leyfisbréfi, sem er í gildi, dags. 28.6. 2005, B - bréf frá rekstraraðila dags. 22.4. 2009, C - staðfesting eiganda og nágranna um aðgengi og flóttaleið dags. 22.4. 2009, D - staðfesting um að ljós sé í lagi, dags 10.4. 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

30. Kirkjustétt 24 (04.135.203) 187939 Mál nr. BN040186
Sigurður Hálfdán Leifsson, Kirkjustétt 24, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu yfir svalir á einbýlishúsið á lóð nr. 24 við Kirkjustétt.
Jákvæð fyrirspurn BN040055 dags. 23. júní 2009 fylgir erindinu svo og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28. júlí 2009.
Stækkun: 18 ferm. 46,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.565
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Kjalarnes, Mógilsá Landspilda 125736 (00.056.005) 125736 Mál nr. BN039887
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir, Kársnesbraut 64, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt sumarhús að hluta til á tveimur hæðum, aðalhús (Mhl.01) og gestahús (Mhl.02) tengd saman með yfirbyggðri verönd í landi Mógilsár á Kjalarnesi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. júní 2009 fylgir erindinu.
Stærð Mhl.01: 1. hæð 58,7 ferm., 2. hæð 77,5 ferm.
Mhl.02: 1. hæð 14,6 ferm., 2. hæð 70,7 ferm.
Samtals 206,9 ferm., 769,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 59.221
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Jafnframt er vakin athygli umsækjenda á bókun skipulagsstjóra frá 5. júní sl. varðandi þörf á breytingu deiliskipulags.

32. Langholtsvegur 178 (01.445.102) 105555 Mál nr. BN040253
Sigurður Jónasson, Langholtsvegur 178, 104 Reykjavík
Elsa Hrönn Búadóttir, Langholtsvegur 178, 104 Reykjavík
Sótt er um reyndarteikningar skv. uppmælingu af tvíbýlishúsinu á lóð 178 við Langholtsveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Langholtsvegur109-111 (01.414.001) 105094 Mál nr. BN040199
Húsfélagið Langholtsvegi 109, Lanholtsvegi 109, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða gafl og millibyggingu með álplötuklæðningu á atvinnuhúsinu á lóð nr. 109 og 111 við Langholtsveg.
Bréf burðarvirkishönnuðar dags. 23.07.09 fylgir málinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Laugalækur 2-8 (01.347.006) 104096 Mál nr. BN040266
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 7. júlí 2009 var samþykkt að innrétta ísbúð í húsi nr. 8 á lóð nr. 2-8 við Laugalæk. Þar átti líka að samþykkja matvöruverslun í húsi nr. 6 á sömu lóð eins og sýnt er á teikningum.
Gjald kr. 7.700
Leiðrétting Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Þinglýsa skal breyttum eignaskiptasamningi (þ.e. hlutfalli í lóð) fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

35. Laugavegur 26 (01.172.205) 101460 Mál nr. BN040061
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Nordic Visitor - Iceland ehf, Laugavegi 26, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi 5. hæðar skrifstofur í verslunarhúsi á lóð nr. 26 við Laugarveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

36. Laugavegur 28 (01.172.206) 101461 Mál nr. BN040287
Tvívík ehf, Hólatorgi 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina í eina eign íbúðar- og atvinnuhúsið, þar sem nú er rekið farfuglaheimili, á lóð nr. 28 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

37. Lágmúli 5 (01.261.301) 103507 Mál nr. BN040257
Húsfélagið Lágmúla 5, Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp auglýsingaskilti á og við hús á lóð nr. 5 við Lágmúla.
Gjald kr 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Leifsgata 26 (01.195.302) 102616 Mál nr. BN040245
Skúli Húnn Hilmarsson, Leifsgata 26, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN029216 dags. 30. júní 2004 þar sem veitt var leyfi til að breyta þakgluggum og stækka kvisti á rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 26 við Leifsgötu.
Stærð: Stækkun kvistir 14,2 ferm. og 28,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.187
Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda, að þeim fengnum verður málið sent skipulagsstjóra til grenndarkynningar.

39. Logafold 75 (02.875.706) 110410 Mál nr. BN040228
Sigrún Hannesdóttir, Logafold 75, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum og hurðum einbýlishússins á lóð nr. 75 við Logafold.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

40. Marargata 5 (01.137.302) 100662 Mál nr. BN040238
Ingibjörg Rannv Guðlaugsdóttir, Marargata 5, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN020257 dags. 21. desember 1999, þar sem veitt var leyfi til að byggja svalir úr stáli við fyrstu, aðra og þriðju hæð, eldri steinsteyptar svalir við þriðju hæð fjarlægðar ásamt ýmsum áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi fyrstu og þriðju hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Marargötu.
Breytingarnar eru þegar gerðar.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

41. Marargata 7 (01.137.301) 100661 Mál nr. BN040280
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, Marargata 7, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera stigagat milli 1. hæðar og kjallara og sameina þannig tvær íbúðir í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 7 við Marargötu.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 4. ágúst 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Njálsgata 84 (01.191.108) 102494 Mál nr. BN040232
Jón Kaldal, Njálsgata 84, 101 Reykjavík
Ragna Sæmundsdóttir, Njálsgata 84, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta þakhæð og byggja yfir svalir á 3. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 84 við Njálsgötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 14. og 20. júlí 2009 og jákv. fsp. BN040144 dags. 14. júlí 2009.
Stækkun: 11 ferm., 27,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.094
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Norðlingabraut 5 (04.734.603) 198279 Mál nr. BN040259
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir mælistöð til að mæla brennisteinsvetni í lofti og 10 metra háu mastri til veðurmælinga til bráðabirgða í eitt ár á lóð nr. 5 við Norðlingabraut.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

44. Silfurteigur 2 (01.362.201) 104591 Mál nr. BN040095
Vilhjálmur G Vilhjálmsson, Silfurteigur 2, 105 Reykjavík
Sesselja Ósk Vignisdóttir, Silfurteigur 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að færa til eldhús milli herbergja og saga úr burðarvegg í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Silfurteig
Bréf frá eiganda dags 20. mars 2009, 17. júní 2009 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 21. janúar 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Sjafnarbrunnur 11-19 (05.053.803) 206138 Mál nr. BN040273
Valtýr Trausti Harðarson, Látrasel 5, 109 Reykjavík
Sótt er um að fella úr gildi byggingarleyfi BN037345 sem gefið var út þann 9. maí 2008 til þess að byggja staðsteypt fimm íbúða raðhús á tveimur hæðum múrhúðað og klætt timburklæðningu að hluta, íbúðirnar eru með innbyggðum bílgeymslum á neðri hæð á lóðinni nr 11 - 19 við Sjafnarbrunn.
Stærðir: 1. hæð 590,8 ferm, 2. hæð 520,4 ferm. samtals 1.111,2 ferm., 3.740,5 rúmm.
Gjald kr. 310.500 kr úttektargjöld.
Málinu fylgir bréf Valtýrs T. Harðarsonar dags. 30. júlí 2009.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
samþykkt að fella byggingarleyfi BN037345 úr gildi og endurgreiða úttektargjöld að upphæð kr. 310.500 ásamt lágmarksgatnagerðargjaldi, enda hafi gjöldin ekki þegar verið endurgreidd.

46. Skaftahlíð 1-3 (01.273.009) 103618 Mál nr. BN040260
Stefán A Halldórsson, Skaftahlíð 1, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja laufskála í garði samhliða endurnýjun skjólgirðingar og færslu á hliði við parhúsið á lóð nr. 1-3 við Skaftahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt og bréf hönnuðar dags, 27. júlí 2009.
Gjald kr. 7.700.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

47. Skipholt 70 (01.255.208) 103493 Mál nr. BN040179
Þorp ehf, Bolholti 4, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp sjálfvirkt slökkvikerfi í háfi á matsölustað og fleiri breytingar í atvinnuhúsinu á lóð nr. 70 við Skipholt.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Skólavörðustígur 11 (01.182.011) 101817 Mál nr. BN040202
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð þar sem verður bókaverslun og kaffisala og í kjallara þar sem verður starfsmannarými og geymslur í húsi á lóð nr. 11 við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. júlí 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Erindið var samþykkt 29. júlí 2009.

49. Skólavörðustígur 44 (01.181.406) 101796 Mál nr. BN040156
Böðvar Björnsson, Skólavörðustígur 44, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka sólstofu yfir alla útbygginguna á suðaustur hlið húss á lóð nr. 44 við Skólavörðustíg
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 17. júlí 2009 fylgir erindinu.
Stækkun: 4,7 ferm., 11,1 rúmm
Gjald kr. 7.700 + 855
Frestað.
Ítrekuð er bókun frá 21. júlí 2009 um að málinu hafi verið vísað til skipulagsvinnu á svæðinu.

50. Skútuvogur 10-12 (01.426.001) 105174 Mál nr. BN040207
Sp fasteignafélag hf, Skútuvogi 12H, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta húsvarðaríbúð í rými 0103 á x. hæð í mhl. 03 í atvinnuhúsinu nr. 12 á lóð nr. 10-12 við Skútuvog.
Erindi fylgir samþykki sumra meðlóðarhafa dags. 8. september 2008 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. júli 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Smárarimi 52 (02.526.303) 109368 Mál nr. BN040295
Ásta Jensdóttir, Smárarimi 52, 112 Reykjavík
Jón Geir Eysteinsson, Smárarimi 52, 112 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu á lóðinni nr. 52 við Smárarima erindi BN039783.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

52. Sólheimar 29-35 (01.433.503) 105283 Mál nr. BN040196
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa tengigang sem samþykktur var 2. febrúar 2005 breyta innveggjum á 1. hæð og loka hurðaropi á 2. hæð í húsi á lóð nr. 35 við Sólheima.
Niðurrif 21,6 ferm., 73,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

53. Spilda úr Vallá 216976 (00.078.004) 216976 Mál nr. BN040270
Silfurskin ehf, Vallá, 116 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir sökklum á lóð nr. 1 á Vallá á Kjalarnesi. Erindi Bn039944.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna úttgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

54. Stýrimannastígur 10 (01.135.406) 100484 Mál nr. BN040057
Yngvi Daníel Óttarsson, Stýrimannastígur 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa núverandi bílskúr 02 0101 og geymslu 03 0101og byggja í staðinn staðsteypta bílageymslu suðvestanvert á lóð nr. 10 við Stýrimannastíg
Jákvæð fyrirspurn BN38483 fylgir erindinu.
Rafrænn tölvupóstur frá eiganda Stýrimannastígs 12 fylgir erindinu og samþykki eiganda Bárugötu 29 á teikningu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 7. ágúst 2009 fylgir erindinu. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. júlí til og með 5. ágúst 2009. Engar athugasemdir bárust.
Niðurrif: Bílskúr 22,1 ferm og geymsla 24,5 ferm.
Stækkun: Bílgeymsla 63,1 ferm og 192 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 14.784
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

55. Suðurgata Háskóli Ísl (01.60-.-99) 106638 Mál nr. BN040197
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Sótt er um breytingu á fyrirkomulagi innanhúss á 2. hæð í Háskólatorgi á lóð nr. 4 við Sæmundargötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

56. Sölvhólsgata 13-15 (01.150.303) 100970 Mál nr. BN040191
Listaháskóli Íslands, Skipholti 1, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir bráðabirgðahúsi úr timbri fyrir Listaháskóla Íslands á lóð nr. 13 við Sölvhólsgötu.
Stærðir 68,1 ferm., 232,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 17.872
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

57. Urðarstígur 12 (01.186.402) 102277 Mál nr. BN040236
Jósef Halldórsson, Urðarstígur 12, 101 Reykjavík
Sólveig Arnarsdóttir, Urðarstígur 12, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við til suðurs, til að hækka hús, byggja kvisti á báðar hliðar og svalir til suðurs á einbýlishúsið á lóð nr. 12 við Urðarstíg.
Stækkun: 77,6 ferm., 200,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 15.408
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

58. Varmadalur 4 (00.080.003) 202099 Mál nr. BN039920
Jón Sverrir Jónsson, Varmadalur 2, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja stálgrindarskemmu klædda með yleiningum í Varmadal 4 í Reykjavík. Grenndarkyning stóð frá 19. júlí til 17. júlí 2009. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi eru bréf hönnuðar dags. 11. maí 2009 og 11. júní 2009. Einnig fylgir umsögn Brunamálastofnunar um samlokueiningar dags. 22. maí 2009.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. júlí 2009 fylgir erindinu.
Stærðir: 334 ferm., 1.612,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 12.414
Frestað.Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

59. Þingholtsstræti 17 (01.180.103) 101679 Mál nr. BN040247
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Kastalagerði 11, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta vinnustofu á jarðhæð í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 17 við Þingholtsstræti.
Gjöld 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

60. Bakkastígur 13 (01.116.201) 100062 Mál nr. BN040023
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Faxaflóahafnir sf., óska eftir því að lóðin Bakkastígur 8, landnúmer 100062 verði felld úr skrám.
Lóðin er: 1.126 ferm. Tekið undir lóð með staðgr. 1.116.210/R10 -459 ferm. B. Tekið undir lóð með staðgr. 1.116.308 -475 ferm. S. Tekið undir lóð með staðgr. 1.116.501/R5 -192 ferm. Lóðin verður 0 ferm. og verður felld úr skrám.
Málinu fylgir bréf Faxaflóahafna dags. 29. júní 2009, ásamt yfirlitsblaði, sjá meðfylgjandi bréfi.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

61. Hverfisgata 60 og 60A (01.172.106) 101444 Mál nr. BN040290
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltúa til að breyta mörkum lóðanna Hverfisgötu 60 og Hverfisgötu 60A eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar dags. 28. júlí 2009. Við breytinguna minnkar lóðin Hverfisgata 60 um 69 ferm. eða úr 274,3 ferm. í 206 ferm. og lóðin Hverfisgata 60A minnkar um 9 ferm. eða úr 261,3 ferm. í 256 ferm. Það sem tekið er af lóðunum hverfur undir óútvísað land í byggð, landnr. 218177, óútvísað land í byggð stækkar því um 69 + 9 = 78 ferm. Sbr. deiliskipulag sem samþykkt var í Borgarráði 17. mars 2003. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild stjórnartíðinda 28. maí 2003.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

62. Barðavogur 40 (01.442.106) 105493 Mál nr. BN040241
Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson, Barðavogur 40, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að gera hurð út úr kjallara og að útbúa bílastæði við suðausturgafl fjölbýlishússins á lóð nr. 40 við Barðavog.
Jákvætt vegna nýrra dyra enda verði sótt um byggingarleyfi.
Nei vegna fjölgunar bílastæða.

63. Beykihlíð 1 (01.780.001) 107496 Mál nr. BN040243
Arnar Arnarsson, Birkihlíð 48, 105 Reykjavík
Nada Sigríður Dokic, Birkihlíð 48, 105 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi þrjá þakglugga á bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 1 við Beykihlíð.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

64. Blikastaðavegur 2-8 (02.496.101) 204782 Mál nr. BN040268
Karim Atli Djermoun, Naustabryggja 26, 110 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi tímabundið upp go-kart bílabraut á bílastæði fyrir utan ónotuð rými í Korputorgi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.
Málinu fylgir tölvupóstur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 6. ágúst 2009.
Jákvætt.
Með vísan til meðfylgjandi tölvupóst Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er ekki gerð athugasemd við rekstur brautarinnar til 30. september 2009.
Enda gefi Heilbrigðiseftirlit út starfsleyfi til þess tíma.

65. Eddufell 2-8 (04.683.009) 112308 Mál nr. BN040233
Magnús Þorleifsson, Hólabraut 13, 630 Hrísey
Spurt er hvort setja megi söfnunarkassa fyrir Rauða krossinn og Háskóla Íslands í rými 0201 í húsi á lóð nr. 2 við Eddufell.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. júlí 2009 fylgir erindinu.
Frestað.
Skila verður nánari útskýringu vegna málsins.

66. Grensásvegur 16A (01.295.407) 103854 Mál nr. BN040276
Aðalsteinn Viðar Júlíusson, Stuðlasel 18, 109 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi fjögur 6 ferm. skilti utan á hús á lóð nr. 16A við Grensásveg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og gera grein fyrir heildarskiltamagni á lóð og hverrar tegundar fyrirhuguð skilti eru.

67. Haukdælabraut 120-122 (05.113.304) 214829 Mál nr. BN040256
Pálmar ehf, Bleikjukvísl 12, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum parhús á lóð nr. 120-122 við Haukdælabraut.
Jákvætt.
Er í samræmi við deiliskipulag nema skjólveggir sem betur þarf að gera grein fyrir.
Sækja verður um byggingarleyfi.

68. Haukdælabraut 96 (05.114.102) 214817 Mál nr. BN040262
Rúnar Lárusson, Bjarkarás 27a, 210 Garðabær
Spurt er hvort leyft yrði að byggja einbýlishús eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum á lóð nr. 96 við Haukdælabraut.
Frestað.
Samræmist ekki deiliskipulagi fer út fyrir byggingarreit.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

69. Hraunbær 36-60 (04.334.301) 111075 Mál nr. BN040239
Grétar Þór Nielsen Þórsson, Hraunbær 58, 110 Reykjavík
Spurt er hvort steina megi austurhlið fjölbýlishússins nr. 58 á lóð nr. 36 - 60 við Hraunbæ.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

70. Hvassaleiti 127-135 (01.726.101) 107323 Mál nr. BN040271
Jóhann Ottó Wathne, Hvassaleiti 131, 103 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi stiga af svölum og ofan í garð á húsi nr. 131 í raðhúsalengju nr. 127 - 135 við Hvassaleyti.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi samþykki meðeigenda.

71. Hæðargarður 48 (01.819.104) 108243 Mál nr. BN040267
Laila Björnsdóttir Nielsen, Hofakur 7, 210 Garðabær
Spurt er hvort breikka megi svalahurð, setja handrið fyrir hurðina og sleppa svölunum, fjarlægja léttan vegg milli herbergja og gera gat í burðarvegg í fjölbýlishúsi á lóð nr. 48 við Hæðargarð.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi samþykki meðeigenda og yfirlýsing burðarvirkishönnuðar.

72. Kvisthagi 3 (01.543.309) 106447 Mál nr. BN040283
María Þorleifsdóttir, Kvisthagi 3, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft verði að stytta þakbrún yfir svölum á suðurhlið fjölbýlishússins á lóðinni nr. 3 við Kvisthaga.
Neikvætt.
Samræmist ekki heildarútliti hússins.

73. Leifsgata 6 (01.195.202) 102594 Mál nr. BN040251
Baldur Thorlacius, Leifsgata 6, 101 Reykjavík
Spurt er hvort gera megi eins meters hátt og tveggja og hálfs meters breitt gat milli eldhúss og stofu í húsi á lóð nr. 6 við Leifsgötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi umsögn burðarvirkishönnuðar.

74. Safamýri 43 (01.281.406) 103691 Mál nr. BN040277
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Safamýri 43, 108 Reykjavík
Spurt er hvort byggingaleyfi þurfi til að klæða þakkkant með álklæðningu á íbúðarhúsi á lóð nr. 43 við Safamýri.
Sækja verður um byggingarleyfi með breyttu útliti, séruppdráttum og samþykki meðeigenda.

75. Skipholt 15 (01.242.211) 103037 Mál nr. BN040265
Kristinn Pétur Pétursson, Skipholt 15, 105 Reykjavík
Ragnheiður Bragadóttir, Skipholt 15, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja skjólveggi á þaksvölum eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 15 við Skipholt.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem fylgi samþykki meðeigenda.

76. Víðimelur 66 (01.524.006) 106003 Mál nr. BN040274
Guðberg Björnsson, Hverafold 120, 112 Reykjavík
Hlín Árnadóttir, Víðimelur 66, 107 Reykjavík
Spurt er hvort stækka megi um 120 cm hurðargat í kjallara hússins á lóð nr. 66 við Víðimel.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem fylgi umsögn burðarvirkishönnuðar

77. Víðimelur 67 (01.524.104) 106019 Mál nr. BN040269
Edda Þórsdóttir, Grettisgata 83, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka þak um 60-80 cm., að byggja nýjan kvist til suðurs og/eða vesturs og til að klæða af steyptar þakrennur á einbýlishúsinu á lóð nr. 67 við Víðimel.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 13.40

Magnús Sædal Svavarsson

Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Hjálmar A. Jónsson Eva Geirsdóttir