Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 27. maí kl. 09:08, var haldinn 175. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Brynjar Fransson, Ingvar Jónsson, Stefán Benediktsson, Guðrún Erla Geirsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Guðfinna Ósk Erlingsdóttir, Margrét Leifsdóttir, Haraldur Sigurðsson Lilja Grétarsdóttir, Margrét Þormar og Bragi Bergsson
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Logafold 1, Foldaskóli, (02.875.0) Mál nr. SN090077
breyting á deiliskipulagi vegna boltagerðis
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur, dags. 26. febrúar 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, fyrsta áfanga, vegna lóðarinnar nr. 1 við Logafold. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir boltagerði við Foldaskóla samkvæmt uppdrætti, dags. 15. janúar 2009. Tillagan var auglýst frá 18. mars til og með 4. maí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Skæringur M. Baldursson, Logafold 5 dags. 4. maí 2009 og Sigurður Kristjánsson Logafold 17, dags. 4. maí 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 15. maí 2009.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

2. Borgartúnsreitir- Norður, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN080568
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga Hornsteina dags. ágúst 2008 að nýju deiliskipulagi Borgartúnsreits norður samkvæmt meðfylgjandi deiliskipulags- og skýringarmyndum dags. ágúst 2008, breytt 17. amrs 2009. Einnig eru lagðar fram athugasemdir úr hagsmunaaðilakynningu.
Framlögð tillaga að deiliskipulagi Borgartúnsreita Norður dags. 17. mars 2009 skulu vera höfð að leiðarljósi þegar skipulagsyfirvöld fjalla um óskir um uppbygginu á deiliskipulagssvæðinu. Auglýsingu og formlegri samþykkt deiliskipulagsins er frestað tímabundið.
Vísað til borgarráðs.

3. Ingólfsgarður, breyting á deiliskipulagi (01.119) Mál nr. SN090063
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 13. mars 2009 var lagt fram erindi Faxaflóahafna dags. 13. febrúar 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir byggingarreit fyrir félagsheimili siglingaklúbbsins Brokeyjar samkvæmt uppdrætti VA arkitekta, dags. 9. janúar 2009. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra miðborgar og er nú lagt fram að nýju.
Einnig lögð fram greinargerð Siglingafélags Reykjavíkur dags. 18. maí 2009.
Kynnt
4. Teigahverfi norðan Sundlaugavegar, forsögn Mál nr. SN090100
Lögð fram drög að forsögn skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur að deiliskipulagi Teigahverfis norðan Sundlaugavegar dags. maí 2009.

Sóley Tómasdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:55

Tillaga skipulags- og byggingarsviðs að forsögn samþykkt.
Samþykkt að kynna framlagða forsögn fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

5. Túngötureitur, deiliskipulag, staðgreinireitur 1.137.4(01.137.4) Mál nr. SN080622
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 25. maí 2009 að deiliskipulagi Túngötureits. Reiturinn afmarkast af Túngötu, Bræðraborgarstíg Hávallagötu og Hofsvallagötu. Einnig er lögð fram forsögn skipulagsstjóra dags. í desember 2007 og athugasemdir úr forkynningu sem stóð yfir frá 17. des. 2007 til 8. janúar 2008 frá Áshildi Haraldsdóttur, Túngötu 44, Guðrúnu Bjarnadóttur og Ingólfi Hannessyni Hávallagötu 36, Geir Svanssyni Bræðraborgarstíg 23a, Irmu Erlingsdóttur Bræðraborgarstíg 23a, Eddu Einarsdóttur Hávallagötu 48, Haraldi Ólafssyni Hávallagötu 48, Arthur Bogasyni o.fl. Túngötu 40, Elísabetu Þórðardóttur og Einari Gunnarsyni Hávallagötu 34. Einnig er lögð fram orðsending borgarstjóra dags. 22. apríl 2008.
Samþykkt að kynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum á reitnum.
Jafnframt er samþykkt að kynna tillöguna fyrir Hverfisráði Vesturbæjar.

6. Álfsnes, Sorpa, breyting á svæðisskipulagi Mál nr. SN090188
Lögð fram matslýsing VSÓ-ráðgjöf, dags. 22. maí 2009 vegna breytinga á svæðisskipulagi á Álfsnes vegna Sorpu.
Skipulagsráð samþykkir að senda framlagða matslýsingu til Skipulagsstofnunar, sbr. 6. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

7. Álfsnes, Sorpa, breyting á aðalskipulagi Mál nr. SN090187
Lögð fram matslýsing VSÓ-ráðgjöf, dags. 22. maí 2009 vegna breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2002-2024 á Álfsnesi vegna Sorpu.
Skipulagsráð samþykkir að senda framlagða matslýsingu til Skipulagsstofnunar, sbr. 6. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

8. Húsahverfi svæði C, (02.84) Mál nr. SN090006
breyting á skilmálum vegna húsagerðar E8 og E9
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. janúar 2009 að breytingu á skilmálum deiliskipulags #GLHúsahverfi Grafarvogur III svæði C#GL, vegna húsagerðarinnar E8 og E9. Breytingin felst í því að hækkun heimildar vegna hámarks byggingarmagns og heimildum til útbygginga er breytt. Tillagan var auglýst frá 2. febrúar til og með 16. mars 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Lex Lögmannstofa f.h. eigenda að Suðurhúsum 2, dags. 17. febrúar 2009 og 12. mars, Björn Z. Ásgrímsson og Jónína Sóley Ólafsdóttir, dags. 16. mars 2009. Einnig er lagt fram minnisblað lögfræði og stjórnsýslu dags. 21. mars 2009.
Athugasemdir kynntar.
Frestað.

(B) Byggingarmál

9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN039955
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 539 frá 26. maí 2009.

10. Fjölnisvegur 10, bílskúr, kvistur og fl. (01.196.306) Mál nr. BN039746
Grímur Alfreð Garðarsson, Fjölnisvegur 10, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúr, byggja nýjan með tvöföldu bílskýli fyrir framan, til að breyta inngangi og byggja stigahús, byggja kvist og grafa frá og dýpka kjallara og innrétta herbergi í einbýlishúsinu á lóð nr. 10 við Fjölnisveg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 20. mars 2009.
Stækkun mhl. 01 10 ferm., 260 rúmm. mhl. 02 63,4 ferm., 196,6 rúmm., Samtals 73,4 ferm., 464,6 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 35,774
Samþykkti að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fjölnisvegi 7, 8, 9, 11 og 12 og Bergstaðastræti 73 og 75.

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs; Sóley Tómasdóttir og fulltrúar Samfylkingarinnar Stefán Benediktsson, og Guðrún Erla Geirsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins

11. Vesturvallagata 4, viðbygging (01.134.507) Mál nr. BN038267
Kristinn Ágúst Halldórsson, Vesturvallagata 4, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi þar sem sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á tveim hæðum úr steinsteypu og bárujárnsklæddri timburgrind með timburþaki sbr. fsp. BN036646 við núverandi hús á lóð nr. 4 við Vesturvallagötu. Grenndarkynning stóð frá 19. mars til og með 22. apríl 2009. Eftirtaldir aðilar gerðu athugasemdir: Hadda Þorsteinsdóttir, dags. 21. apríl 2009.
Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 7. maí 2009
Frestað.
Með vísan til niðurstöðu í umsögn skipulagsstjóra er ákveðið að vísa byggingarleyfisumsókninni til frekari skoðunar og úrvinnslu við undirbúning að deiliskipulagsvinnu á reitnum.

(C) Fyrirspurnir

12. Laugavegur 32, (fsp) kaffihús/bar fl.2 (01.172.213) Mál nr. BN039906
Sindri Gunnarsson, Grenimelur 35, 107 Reykjavík
Írena Sól ehf, Tryggvagötu 22, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2009 þar sem spurt er hvort opna megi kaffihús/bar í fl. II í húsnæði sem áður hýsti verslunina Noland á jarðhæð í húsi á lóð nr. 32 við Laugaveg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 25. maí 2009.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Útgáfa byggingaleyfis skal þó háð því skilyrði að tryggt sé að veitingastarfssemi verði starfrækt á daginn auk þess sem tryggt verði að útliti hússins verði ekki breytt á neinn hátt m.a. með því að byrgja fyrir glugga. Yfirlýsingu um þetta skal þinglýst á lóðina nr. 32 við Laugaveg.

13. Laugavegur 51, (fsp) kaffihús fl. III (01.173.024) Mál nr. BN039866
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2009 þar sem spurt er hvort samþykkt verði að innrétta kaffihús með opnunartíma 07-23 virka daga og 07-01í rými 0102 í húsi á lóð nr. 51 við Laugaveg.
Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 25. maí 2009.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Útgáfa byggingaleyfis skal þó háð því skilyrði að tryggt sé að veitingastarfssemi verði starfrækt á daginn auk þess sem tryggt verði að útliti hússins verði ekki breytt á neinn hátt m.a. með því að byrgja fyrir glugga. Yfirlýsingu um þetta skal þinglýst á lóðina nr. 51 við Laugaveg.
14. Mímisvegur 6, málskot (01.119.6) Mál nr. SN090160
Arkitektastofa Pálma Guðm ehf, Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík
Lagt fram málskot Pálma Guðmundssonar dags. 24. apríl 2009 vegna afgreiðslu skipulagsstjóra 20. mars 2009. Einnig er lögð fram fyrirspurn lóðarhafa dags. 2. mars 2009 og umsögn skipulagsstjóra dags. 20. mars 2009.
Fyrri afgreiðsla skipulagsstjóra staðfest með vísan til eldri umsagnar.

(D) Ýmis mál

15. Hvalfjarðarsveit, aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 Mál nr. SN090172
Landlínur ehf, Jaðri 2, 311 Borgarnes
Lagt fram til kynningar og samráðs tillaga Landlína ehf. að Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.
Ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna.

16. Skipulagsráð, tillaga., Glaðari gaflar / Gengið að göflunum Mál nr. SN090058
Lögð fram tillaga skipulagsráðs dags. 18. febrúar 2009 um glaðari gafla /gengið að göflunum. Einnig er lögð fram forsögn skipulagsstjóra að hugmyndaleit dags. 5. apríl 2009.
Samþykkt að dómnefnd hugmyndaleitar verði skipuð eftirtöldum aðilum; Júlíus Vífill Ingvarsson, Sóley Tómasdóttir, Andri Snær Magnason, Sara Riel og Theresa Himmel.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11:50.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Ragnar Sær Ragnarsson Brynjar Fransson
Ingvar Jónsson Sóley Tómasdóttir
Stefán Benediktsson Guðrún Erla Geirsdóttir
Ingvar Jónsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 26. maí kl. 9.52 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 539. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Þórður Búason, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Eva Geirsdóttir og Karólína Gunnarsdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurstræti 22 (01.140.504) 100864 Mál nr. BN039967
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til að reka niður stálþil með lóðamörkum Austurstrætis 20, Austurstrætis 22 og Lækjargötu 2, vinna jarðvinnu og steypu á botnplötu. Jafnframt er sótt um leyfi til þess að reisa plötuklædda trégirðingu á gangstétt Lækjargötu 2 og Austurstrætis 22.
Auk uppdrátta fylgir málinu bréf arkitekta dags. 20. maí 2009 og Framkvæmdaheimild nr. 200905120 dags. 25. maí 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

2. Álfab. 12-16/Þönglab. (04.603.503) 111722 Mál nr. BN039946
Aðalbakki sf, Staðarseli 6, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 2. hæðar í sjúkraþjálfunarmiðstöð í atvinnuhúsinu á lóð nr. 1 við Þönglabakka.
Jafnframt er erindi BN039727 og BN039826 dregið til baka.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Bíldshöfði 20 (04.065.101) 110673 Mál nr. BN039772
Bíldshöfði ehf, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta apótek, gleraugnaverslun og stækka matvöruverslun á 1. hæð í atvinnuhúsnæði á lóð nr. 20 við Bíldshöfða.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

4. Bjarnarstígur 12 (01.182.219) 101871 Mál nr. BN039938
Guðmundur Þórður Agnarsson, Rjúpnasalir 10, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi svo úr verði þrjár íbúðir og til að koma fyrir svölum á suðurhlið rishæðar íbúðarhússins á lóð nr. 12 við Bjarnarstíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Að þeim uppfylltum verður málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.

5. Brautarholt 1 125660 (00.018.000) 125660 Mál nr. BN039851
Bjarni Pálsson, Brautarholt 1, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka núverandi einbýlishús og byggja bílskúr á jörðinni Brautarholt 1 með landnúmer 125660 á Kjalarnesi.
Bréf frá hönnuði fylgir erindinu dags. 5. maí 2009 og 18. maí 2009
Bréf frá burðavirkishönnuði dags. 25. maí 2009
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009 fylgir erindinu.
Stækkun: Einbýlishús 90,6 ferm. 454,6 rúmm.
Bílskúr 65,2 ferm. og 203,8 rúmm.
Samtals stækkun: 155,8 ferm og 658,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 50.697
Frestað.
Ítrekuð er sú ábending sem kom fram í umsögn skipulagsstjóra að umsækjanda sé heimilt að láta vinna á eigin kostnað tillögu að breytingu á deiliskipulagi.

6. Brávallagata 8 (01.162.328) 101301 Mál nr. BN036240
Margrét Rós Gunnarsdóttir, Brávallagata 8, 101 Reykjavík
Matthildur Sigurgeirsdóttir, Brávallagata 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja úr stáli svalir við austurhlið 1. 2. og 3. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 8 við Brávallagötu. Með umsókninni fylgir bréf dagsett 15.07.08 frá arkitekt þar sem óskað er eftir að málið verði grenndarkynnt.
Einnig fylgir bréf eigenda Brávallagötu 10 dags. 5. ágúst 2008.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Að þeim uppfylltum verður málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.

7. Brekkustígur 3 (01.134.206) 100333 Mál nr. BN034131
Sigurgeir Steingrímsson, Mosfell, 270 Mosfellsbær
Ragnheiður Jónsdóttir, Mosfell, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðum breytingum s.s. breytingum á innra skipulagi, tekinn er út lítill gluggi í stigarými, og rifinn garðskúr og byggður nýr við húsið á lóðinni nr. 3 við Brekkustíg.
Stærð: 10,9 ferm., 27,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.702
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

8. Dvergshöfði 27 (04.061.403) 110622 Mál nr. BN039957
Spánís ehf, Depluhólum 7, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri hurð, áður gerðum stoðvegg og áður gerðri yfirbyggingu svala á norðurhlið og til lóðarstækkunar til að mannvirki þessi rúmist innan lóðar. Einnig er sótt um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, fjölga inngöngum á suðurhlið og til að fjölga eignum í atvinnuhúsinu á lóð nr. 27 við Dvergshöfða.
Jafnframt er erindi BN038160 dregið til baka.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 12. maí 2009 og byggingasaga húss dags. 23. febrúar 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra vegna lóðarstækkunar.

9. Elliðavatnsblettur 35 (08.1--.-64) 113454 Mál nr. BN039691
AIM ehf, Rauðási 16, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja nýtt þak og klæða að utan með lóðréttri viðarklæðningu sumarhúsið á lóðinni Elliðavatnsblettur 35.
Einnig er gerð grein fyrir bátaskýli á sömu lóð og eldra erindi BN038872 dregið til baka.
Erindi fylgir yfirlýsing frá OR dags. 10. mars 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. maí 2009.
Bátaskýli: xx ferm., xx rúmm.
Stækkun sumarhúss: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu, vantar umsögn fornleifanefndar og Orkuveitu Reykjavíkur.

10. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN039848
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað á 1. hæð og geymslur á 2. hæð og setja glugga á norðurgafl húss nr. 3B á lóð nr. 3-7C við Geirsgötu.
Sjá fyrirspurn BN039675 dags. 31.3. 2009.
Meðfylgjandi er bréf Faxaflóahafna dags. 11. maí 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Gnoðarvogur 44-46 (01.444.101) 105528 Mál nr. BN039436
Vogaver fasteignafélag ehf, Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara og 1. hæðar matshluta 02 og stækka fiskbúð í verslunarhúsinu á lóð nr. 44 - 46 við Gnoðavog.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda umhverfis- og heilbrigðisstofu.

12. Grettisgata 70 (01.191.004) 102462 Mál nr. BN038857
Helga Ingadóttir, Grettisgata 70, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja létt handrið í stað steypts handriðs sbr. fyrirspurn BN038687 á svalir risíbúðar í húsi nr. 70 við Grettisgötu.
Meðfylgjandi er skriflegt samþykki flestra eigenda. Meðfylgjandi er bréf frá hönnuði dags. 22.9. 2008
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda á umsóknarblaði.

13. Hamarshöfði 1 (04.061.306) 110615 Mál nr. BN039943
Bemar ehf, Draumahæð 5, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að innrétta húsvarðaríbúð á 2. hæð í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 1 við Hamarshöfða.
Bréf frá embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra frá 20. febrúar 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. febrúar 2009.
Gjald kr. 7.700
Synjað.
Með vísan til bréfs skipulagsstjóra frá 23. febrúar, en þar kemur fram að umsóknin samræmist ekki landnotkun samkvæmt aðalskipulagi og ákvæðum deiliskipulags.

14. Háagerði 31 (01.815.216) 107992 Mál nr. BN039921
Ragna Huldrún Þorsteinsdóttir, Háagerði 31, 108 Reykjavík
Sótt er um leyft til að byggja steinsteypta bílageymslu við raðhúsið á lóð nr. 31 við Háagerði.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 30. janúar 2009.
Fyrirspurn BN039589 dags. 10. mars 2009 jákvæð
Stærð: 32 ferm. 102,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.908
Synjað.
Er ekki í samtæmi við ákvæði deiliskipulags, en þar má mesta lengd bílskúrs vera 7 metrar og hæð 2,7 metrar.

15. Hjallasel 19-55 (04.960.301) 113076 Mál nr. BN039940
Grétar L Strange, Hjallasel 25, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu við vesturhlið parhúss nr. 25 á lóð nr. 19-55 við Hjallasel.
Stækkun: 8,7 ferm., 19,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.509
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

16. Holtsgata 14 (01.134.314) 100363 Mál nr. BN039954
Ásgeir Alexandersson, Holtsgata 14, 101 Reykjavík
Kristján Friðrik Alexandersson, Álfabyggð 6, 600 Akureyri
Sótt er um breytingu á brunahólfum milli geymsla í risi sbr. nýsamþykkt erindi BN039897 sem jafnframt er felld úr gildi.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

17. Hverfisgata 123 (01.222.117) 102853 Mál nr. BN039917
Tómas & Dúna ehf, Bergholti 2, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi fyrir að endurnýja byggingarleyfi BN035670 samþykkt 17. apríl 2007 um að breyta fyrrum fiskbúð í skyndibitastað með breyttu innra fyrirkomulagi á 1. hæð hússins á lóð nr. 123 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

18. Hverfisgata 61 (01.152.515) 101087 Mál nr. BN039928
Vatn og land ehf, Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfi BN037817 til að rífa fjölbýlishúsið á lóðinni nr. 61 við Hverfisgötu.
Niðurrif: Fastanúmer 200-3352 merkt 01 0101 íbúð 48,1 ferm., fastanúmer 200-3353 merkt 01 0201íbúð 47,5 ferm. og geymsla merkt 03 0101 58,8 ferm., fastanúmer 200-3354 merkt 02 0001 vörugeymsla 126,4 ferm., og vörugeymsla merkt 02 0102 86,4 ferm., fastanúmer 200-3355 merkt 02 0101 verslun 40 ferm. Samtals 407,2 ferm.
Var fyrst samþykkt 16.maí. 2006 og 4. mars 2008
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

19. Hverfisgata 92A (01.174.008) 101564 Mál nr. BN039927
Rauðsvík ehf, Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN037818 sem fjallar um niðurrif á einbýlishúsi úr timbri og steinsteypu á einni hæð á lóð nr. 92A við Hverfisgötu.
Fastanúmer 200-5238 01 0101.
Stærð: 100,4 ferm.
Gjald 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Í landi Fitjakots 125677 (00.026.002) 125677 Mál nr. BN039922
Jón Jóhann Jóhannsson, Ennishvarf 25, 203 Kópavogur
Ingibjörg R Þengilsdóttir, Ennishvarf 25, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja kúlulaga einbýlishús á þrem hæðum úr timbri á steyptum undirstöðum með torfþaki á lóð Perluhvamms úr landi Fitjakots á Álfsnesi.
Meðfylgjandi er bréf frá byggingarfulltrúa dags. 16. júlí 2008, yfirlýsing frá Einari Þorsteini 1. feb. 2006 og afsalsbréf 31. júlí 1995
Stærðir: Lagnakjallari 80 ferm., 1. hæð 125 ferm., 2. hæð 115,29 ferm., 3. hæð 41,29
Samtals: 362 ferm., 1.053,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 81.127
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

21. Kistufell (34.452.001) 194624 Mál nr. BN039941
Andl þjóðarráð baháía á Íslandi, Pósthólf 536, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum og að koma fyrir neyðarstiga með palli á austurhlið húss mhl. 01 á lóð með landnúmer 194624 á Kistufelli.
Stækkun: XXX ferm. XXX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Krummahólar 2 (04.645.201) 111958 Mál nr. BN039968
Krummahólar 2,húsfélag, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Sandra Guðrún Harðardóttir, Krummahólar 2, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða austurgafl með sléttum, hvítum álplötum með 50 mm einangrun í grind og endurnýja glugga á austur- suður- og vesturhliðum ásamt því að fjölga póstum í gluggum á 1., 2. og efstu hæð.
Meðfylgjandi er staðfesting burðarvirkjahönnuðar vegna ástands útveggja dags. 23. maí 2009, bréf frá aðalhönnuði dags. 23. maí 2009 og byggingarlýsing dags. 25. maí 2009
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Kúrland 11 (01.861.401) 108796 Mál nr. BN039931
Grétar Þórarinn Gunnarsson, Kúrland 11, 108 Reykjavík
Guðríður Sigurðardóttir, Kúrland 11, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja yfirbyggingu á suðurhlið húss og endurheimta svalir á raðhúsi nr. 11 við Kúrland.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda í lengjunni nr. 7, 9 og 13. dags. 12. maí 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Laugateigur 24 (01.364.306) 104636 Mál nr. BN039474
Laugateigur ehf, Rauðanesi 3, 311 Borgarnes
Símon Steingrímsson, Laugateigur 24, 105 Reykjavík
Adda Bára Sigfúsdóttir, Laugateigur 24, 105 Reykjavík
Sigfús Bjarnason, Svíþjóð, Sótt er um leyfi til að grafa frá kjallara að hluta, til að lækka gólf í kjallara að hluta, til að grafa ljósagryfjur og koma fyrir nýjum gluggum og hurðum á kjallara, til að breyta innra fyrirkomulagi og innrétta sem íbúð 1. hæð og kjallara verslunar- og íbúðarhússins nr. 24 við Laugateig.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 3.2.2009.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. febrúar 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagssstjóra dags. 20. febrúar 2009.
Stækkun: xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Laugavegur 141 (01.222.123) 102859 Mál nr. BN039763
Sverrir Guðmundsson, Laugavegur 141, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi íbúðar í kjallara í fjölbýlishúsi á lóð nr. 141 við Laugaveg.
Umsögn burðavirkishönnuðar dags. 14. apríl 2009.
Samþykki meðeigenda í húsi dags. 14. maí 2009
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Laugavegur 18 (01.171.501) 101417 Mál nr. BN038490
Kaupangur eignarhaldsfélag ehf, Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til fjölga eignarhlutum, að færa anddyrishurð og til að opna yfir í hús nr. 18B á 1. hæð hússins á lóð nr. 18 við Laugaveg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 20. apríl 2009 og skýrsla um brunavarnir frá VSI dags. 9. júní 2008.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningu.

27. Laugavegur 18B (01.171.502) 101418 Mál nr. BN038491
Laugaverk ehf, Tjarnastíg 20, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um leyfi til að opna yfir í hús nr. 18 á 1. hæð, til að gera viðeigandi breytingar á eldvörnum, og til að breyta #GLgistirými 0401#GL í íbúð 0401á 4. hæð hússins á lóð nr. 18B við Laugaveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Laugavegur 49 (01.173.026) 101513 Mál nr. BN033984
Þorbergur Halldórsson, Barðaströnd 23, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, innrétta að nýju, stækka, bæta aðgengi og gera þaksvalir við húsið á lóðinni nr. 49 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. maí 2006 og 23. júní 2006 fylgja erindinu
Málinu fylgir samþykki meðeigenda undirritað af formanni húsfélagsins, dags. 4. maí 2006, samþykki eigenda Laugavegs 49A, dags. 27. maí 2006 og bréf Sigurðar Halldórssonar arkitekts dags. 30. maí 2006.
Einnig fylgir umsögn varðandi burðarvirki frá verkfræðistofunni Vík dags. 19. maí 2009.
Stærð: Stækkun 2,8 ferm., 20,1 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 1.226
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Láland 2-8 (01.874.201) 108834 Mál nr. BN039902
Helgi Þór Ágústsson, Svíþjóð, Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu við suðurhlið einbýlishússins á lóð nr. 8 við Láland.
Fyrirspurn BN039740 jákvæð fylgir erindinu.
Stækkun: 29,5 ferm. 87,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.737
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Láland 17-23 (01.874.101) 108833 Mál nr. BN039847
Gunnar Thoroddsen, Láland 21, 108 Reykjavík
Auður Stefánsdóttir, Láland 21, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til suðurs og til að breyta innra fyrirkomulagi og útliti einbýlishússins nr. 21 á lóð nr, 17-21 við Láland.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009 fylgir erindinu.
Stækkun: 130,9 ferm., 502,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 38.669
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Látrasel 9 (04.928.410) 112791 Mál nr. BN039910
Einar Erlingsson, Látrasel 9, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri á milli íbúðarhúss og bílskúrs og nota óútgrafið rými undir íbúðarherbergi og bæta við gluggum á norður- og suðurhlið íbúðarhúss á lóð nr. 9 við Látrasel.
Fyrirspurn BN036069 sem er jákvæð fyrir minni stækkun fylgir.
Stækkun: XXX ferm og XXX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XXX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Leirur/Leiruvík (26.000.030) 125834 Mál nr. BN039930
Hermann Reynir Hermannsson, Hamravík 82, 112 Reykjavík
Berglind Hreiðarsdóttir, Leirur, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja nýtt steinsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á Leirum í Leiruvík á Álfsnesi.
Stærð: 258,5 ferm., 1082,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 83.337
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

33. Mávahlíð 38 (01.710.207) 107171 Mál nr. BN038734
Ylfa Kristín K. Árnadóttir, Mávahlíð 38, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera þaksvalir á fjölbýlishúsinu nr. 38-40 á lóð nr. 38 við Mávahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 25. og 29. júlí 2008.
Gjald kr. 7.300 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

34. Mávahlíð 40 (01.710.208) 107172 Mál nr. BN038733
Guðlaug Richter, Mávahlíð 40, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera þaksvalir á fjölbýlishúsinu nr. 38-40 á lóð nr. 40 við Mávahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 25. og 29. júlí 2008.
Gjald kr. 7.300 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

35. Miðtún 21 (01.221.418) 102834 Mál nr. BN039963
Hilmar Hafsteinsson, Miðtún 21, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN035421 samþ. 30. apríl 2007, sem felst í að byggja nýja rishæð, skyggni yfir útitröppur og fyrir minni háttar áður gerðum breytingum á innra skipulagi kjallara einbýlishússins á lóðinni nr. 21 við Miðtún. Einnig er sótt um að koma fyrir auka bílastæði á lóð.
Grenndarkynning stóð yfir frá 28. febrúar til og með 28. mars 2007. Athugasemdabréf barst frá Erlu Rúriksdóttur Miðtúni 19, mótt. 5. mars 2007.
Stækkun: 46,2 ferm., 116,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.986
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra þar sem það var áður grenndarkynnt fyrir tveimur árum.

36. Nesvegur 49 (01.531.101) 106142 Mál nr. BN039932
Nanna Gunnarsdóttir, Nesvegur 49, 107 Reykjavík
Vigfús Ingvarsson, Nesvegur 49, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. og 2. hæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 49 við Nesveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Rafstöðvarvegur 23 (04.257.401) 110961 Mál nr. BN039903
Kristján Pétur Guðnason, Rafstöðvarvegur 23, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa íbúðarhús og til að byggja nýtt steinsteypt íbúðarhús á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 23 við Rafstöðvarveg.
Meðfylgjandi er bréf húseigenda dags. 13. maí 2009
Niðurrif: 152,2 ferm., 526,2 rúmm.
Nýbygging: 1. hæð íbúð 101,9 ferm., bílgeymsla 38,9 ferm., 2. hæð 144,4 ferm.
Samtals 285,2 ferm. 1.023,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 78.778
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Með vísan til athugasemda skipulagsstjóra á umsóknarblaði er ekki gerð athugasemd við að umsækjandi láti vinna breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað sem grenndarkynnt verður ef berst.

38. Rofabær 34 (04.360.201) 111256 Mál nr. BN039933
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp boltagerði norðanmegin á lóð Árbæjarskóla nr. 34 við Rofabæ.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

39. Skildinganes 20 (01.671.301) 106780 Mál nr. BN039846
Ásgeir Torfason, Lúxemborg, Jensína Matthíasdóttir, Lúxemborg, Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu með flötu þaki einbýlishús á tveim hæðum með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 20 við Skildinganes.
Stærð: 1. hæð 294,4 ferm. 837,5 rúmm.
2. hæð íbúð 215,6 ferm., bílgeymsla 50,1 ferm.,
Samtals 2. hæð 265,7 ferm., 1.091,5 rúmm.
Samtals allt húsið 560,1 ferm. og 1.993,1rúmm.
Gjöld kr. 7.700 + 153.469
Frestað.
Aðeins eru leyfð tvö bílastæði á lóð.

40. Skúlagata 21 (01.154.202) 179254 Mál nr. BN039850
Brunamálastofnun, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Sætún ehf, Fossaleyni 21, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fella út eldvarnarhurð og breyta brunamerkingum í skrifstofuhúsinu á lóð nr. 21 við Skúlagötu.
Meðfylgjandi er bréf frá Brunamálastofnun dags. 18. maí 2009
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

41. Skúlagata 42-46 (01.154.403) 101133 Mál nr. BN039945
Skúlagata 42,húsfélag, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta skipulagi og akstursleiðum við fjölbýlishúsin á lóð nr. 42-46 við Skúlagötu.
Erindinu fylgir jákvæð fyrirspurn BN039180
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Smáragata 14 (01.197.408) 102743 Mál nr. BN039956
Guðmundur Ingi Hauksson, Smáragata 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera stigagat milli íbúðar á 1. hæð og kjallara í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 14 við Smáragötu.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags, 20. maí 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Spilda úr Vallá 216976 (00.078.004) 216976 Mál nr. BN039944
Silfurskin ehf, Vallá, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja vinnuherbergi, geymslur og bílgeymslu úr steinsteypu með torfi á þaki við sölugallerí og verslun á lóð nr. 1 á Vallá á Kjalarnesi.
Stærðir: Stækkun 1. hæð 231,1 ferm., 733,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 56.503
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

44. Stigahlíð 64 (01.733.304) 107393 Mál nr. BN039852
Þóra Björk Schram, Aflagrandi 19, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta tveim gluggum ásamt breytingum innanhúss, þar á meðal stiga milli hæða, í einbýlishúsi á lóð nr. 64 við Stigahlíð.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

45. Tryggvagata 4-6 (01.132.011) 100201 Mál nr. BN039853
Tryggvagata 4-6,húsfélag, Tryggvagötu 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja veggklæðningu úr sléttri álklæðningu og 50 mm steinullareinangrun undir klæðningu á suðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 4-6 við Tryggvagötu
Umsögn burðavirkishönnuðar dags. 18. maí 2009
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

46. Tunguháls 17 (04.327.003) 111053 Mál nr. BN039743
Múr- og málningarþjón Höfn ehf, Dvergshöfða 27, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja milliloft, nýja glugga og flóttastiga á norðurhlið atvinnuhússins á lóð nr. 17 við Tunguháls
Stækkun: 240,6 ferm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

47. Tunguháls 6 (04.328.101) 111062 Mál nr. BN039856
Íslensk-ameríska verslfél ehf, Pósthólf 10200, 130 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum af húsi á lóð nr. 6 við Tunguháls.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

48. Úthlíð 3 (01.270.108) 103570 Mál nr. BN039925
Gunnar Thorberg Sigurðsson, Úthlíð 3, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum stækkunum á kvistum á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 3 við Úthlíð.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt.
Áður gerð stækkun kvista: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Vitastígur 10 (01.173.117) 101534 Mál nr. BN039884
Rositsa Slavcheva Guðfinnsson, Ránargata 10, 101 Reykjavík
Stofa ehf, Ránargötu 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðu loftræsiröri frá eldhúsi á 1. hæð í húsi á lóð nr. 10 við Vitastíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Vitastígur Iðnskóli (01.192.001) 102508 Mál nr. BN039347
Tækniskólinn ehf, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík
Ríkissjóður Íslands, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 1. hæð, setja glugga á jarðhæð, breyta innanhúss og koma fyrir lyftu sbr. fyrirspurn BN039221 dags. 25.11.2008 í vesturenda viðbyggingar og í tengibyggingu Tækniskólans á Skólavörðuholti á lóð við Vitastíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

51. Þjónustum./Esjurætur (34.16-.-99) 206450 Mál nr. BN039929
Pjetur Einar Árnason, Flyðrugrandi 12, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir veitingahúsi í flokki 2 og breyta eldhúss- og starfsmannaaðstöðu í þjónustumiðstöðinni við Esjurætur.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Þórsgata 10 (01.184.205) 102027 Mál nr. BN039939
Alda Lóa Leifsdóttir, Þórsgata 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. og 3. hæð framhúss, til að fjarlægja milliloft og byggja steinsteypta viðbyggingu við bakhús á lóð nr. 10 við Þórsgötu.
Jafnframt er erindi BN039748 dregið til baka.
Niðurrif milliloft: 10,5 ferm.
Viðbygging: 12,4 ferm., 53,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.150
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Æsufell 4 (04.681.001) 112291 Mál nr. BN039915
Halldór Sigurðsson, Æsufell 2, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir stúdíó-íbúðum nr, 0207, 0307, 0407, 0507, 0607 og 0707 á 2. - 7. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Æsufell.
Meðfylgjandi er bréf frá hönnuði dags. 4. maí 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

54. Skúlagata 64-80 (01.222.212) 102874 Mál nr. BN039972
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðarinnar Skúlagata 64-80, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 25. maí 2009. Stærð lóðarinnar breytist úr 2590 ferm í 2527 ferm. Deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í skipulagsráði 12. júlí 2006 og í borgarráði 20. júlí 2006 og var birt í B-deild Stjórnartíðinda 8. ágúst 2006.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

55. Aflagrandi 17 (01.522.402) 105982 Mál nr. BN039942
Lárus Þórarinn Árnason, Aflagrandi 17, 107 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi þakglugga á risherbergi í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 17 við Aflagranda.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. einnig athugasemdir byggingarfulltrúa á fyrirspurnarblaði.

56. Austurstræti 16 (01.140.501) 100861 Mál nr. BN039936
Toppmál ehf, Naustabryggju 27, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir borðum til útiveitinga Pósthússtrætismegin á lóð nr.16 við
Austurstræti.
Frestað.
Til unnt sé að taka afstöðu til erindisins þarf að gera grein fyrir og sýna fjölda og staðsetningu borða.

57. Bólstaðarhlíð 40-44 (01.275.001) 103651 Mál nr. BN039918
Wilhelmus Johannes M. van Rooij, Bólstaðarhlíð 44, 105 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi bílskúr við íbúð nr. 301 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 44 við Bólstaðarhlíð.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

58. Brekkustígur 7 (01.134.203) 100330 Mál nr. BN039919
Ólafur Jónsson, Leifsgata 23, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir garðskúr eins og sýnt er á teikningum af einbýlishúsinu á lóð nr. 7 við Brekkustíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

59. Grundarstígur 2A (01.183.304) 101956 Mál nr. BN039934
Verslunin Þingholt ehf, Grundarstíg 2a, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að rífa bakhús á einni hæð, sem síðar verður endurbyggt, við fjölbýlishúsið á lóð nr. 2a við Grundarstíg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

60. Hafnarstræti 1-3 (01.140.005) 100817 Mál nr. BN039909
Merlot ehf, Hafnarstræti 1-3, 101 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi tjald á jarðhæð við inngang veitingahúss á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

61. Lambasel 14 (04.998.109) 200761 Mál nr. BN039924
Þorsteinn Óli Hannesson, Lambasel 14, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 14,3 ferm. glerskála á suðvesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 14 við Lambasel.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

62. Laugarásvegur 13 (01.380.110) 104735 Mál nr. BN039937
Guðný Bjarnadóttir, Laugarásvegur 13, 104 Reykjavík
Helga Þórarinsdóttir, Laugarásvegur 13, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr í líkingu við samþykkta byggingarnefndarteikninu frá 1956 af húsi á lóð nr. 13 við Laugarásveg
Eignaskiptayfirlýsing fyrir Laugarásveg 13 fylgir fyrirspurninni
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

63. Ránargata 10 (01.136.019) 100522 Mál nr. BN039650
Arnar Fells Gunnarsson, Ránargata 10, 101 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir íbúð á þakhæð hússins á lóðinni nr. 10 við Ránargötu.
Erindinu fylgir bréf frá eiganda dags 17. mars 2008. Íbúðarskoðun dags 28.feb. 2009
Samþykki meðlóðarhafa dags. mars 2009 og umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 18. maí 2009.
Fyrirspurn BN033997 dags. 24. júní 2006
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

64. Selásbraut 98 (04.385.901) 111527 Mál nr. BN039904
Bergur Jónsson, Álfhólahjáleiga, 861 Hvolsvöllur
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta svölum með því að breikka þær og lengja og loka með gleri sem nær niður að jörðu á suðvestur hlið atvinnuhússins á lóð nr. 98 við Selásbraut 98.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

65. Síðumúli 34 (01.295.201) 103840 Mál nr. BN039935
Steinnes sf, Síðumúla 34, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja nýja, stærri þakhæð og innrétta tvær íbúðir í stað einnar í atvinnuhúsinu á lóð nr. 34 við Síðumúla.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

66. Sóleyjarimi 1-7 (02.536.102) 199443 Mál nr. BN039908
Ólafía Egilsdóttir, Sóleyjarimi 3, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft verði að loka svölum á fjölbýlishúsi á lóð nr. 1, 3, 5 og 7 við Sóleyjarima.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði.
Sækja þarf um byggingarleyfi sem samþykki meðeigenda fylgi, sbr. húsfund.

67. Vættaborgir 67-69 (02.343.204) 175916 Mál nr. BN039907
Aldís Ingimarsdóttir, Vættaborgir 69, 112 Reykjavík
Lára Viðarsdóttir, Vættaborgir 67, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta skipulagi til að byggja yfir svalir á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 67 - 69.
við Vættarborgir.
Samþykki sumra í fjölbýlishúsunum á lóðum 37 til og með 99 fylgir fyrirspurninni
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

68. Þórsgata 15 (01.181.107) 101744 Mál nr. BN039914
Símon Sigurðsson, Þórsgata 15, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir stálgrindarsvölum á suðurhlið 3. hæðar íbúðarhússins á lóð nr. 15 við Þórsgötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 12.28.

Magnús Sædal Svavarsson
Björn Kristleifsson Bjarni Þór Jónsson
Þórður Búason Eva Geirsdóttir
Karólína Gunnarsdóttir