Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 20. maí kl. 09:10, var haldinn 174. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Brynjar Fransson, Zakaria Elías Anbari, Sóley Tómasdóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir, Stefán Benediktsson og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Bjarni Þ Jónsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Gunnhildur S Gunnarsdóttir, Margrét Þormar, Bragi Bergsson og Þórarinn Þórarinsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 8. maí og 15. maí 2009.

2. Gnoðarvogur 43, Menntaskólinn við Sund, (01.440.1) Mál nr. SN090017
breyting á deiliskipulagi Vogaskóla, Ferjuvogi 2
Menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík
Gláma,vinnustofa sf, Laugavegi 164, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Menntamálaráðuneytisins dags. 16. janúar 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogaskóla Ferjuvogi 2 vegna lóðarinnar nr. 43 við Gnoðarvog, Menntaskólans við Sund. Í breytingunni felst niðurrif núverandi húsa að hluta og nýbyggingar í þeirra stað samkv. meðfylgjandi uppdrætti Glámu Kím dags.15. janúar 2008. Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 25.febrúar 2009. Auglýsing stóð frá 23. febrúar til og með 6. apríl 2009. Eftirtaldir aðilar gerðu athugasemdir: Kristín María Sigþórsdóttir, Sara Riel og Þorgeir Guðmundsson, dags. 18. mars, Fríða Björg Eðvarðsdóttir, dags. 3. apríl og íbúasamtök Laugardals dags. 6. apríl 2009. Einnig barst ábending frá Halldóru Hreggviðsdóttur, dags. 23. mars 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 15. maí 2009.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við bókun.
Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð leggur áherslu á að vandað verði til hönnunar og útlits nýbyggingar á lóð Menntaskólans við Sund þegar hugað verður að hönnun mannvirkja á lóðinni. Ráðið beinir því til skipulagsstjóra að bæta útlitsskilmála í hinni auglýstu tillögu þar sem lögð verður sérstök áhersla á að nýbyggingin lagi sig að og taki tillit til núverandi skólahúss um leið og hún verði verðugur fulltrúi byggingarlistar síns tíma.

3. Öldusel 17, Ölduselsskóli, (04.9) Mál nr. SN090076
breyting á deiliskipulagi vegna boltagerðis
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur, dags. 26. febrúar 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis vegna lóðarinnar nr. 17 við Öldusel. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður, bílastæðum fjölgað og gert er ráð fyrir boltagerði við Ölduselsskóla skv. meðfylgjandi uppdrætti, dags, 24. febrúar 2009. Tillagan var auglýst frá 18. mars til og með 4. maí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Björgvin S. Haraldsson, dags. 3. maí 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 14. maí 2009.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra, þegar upprættir hafa verið lagfærðir.
Vísað til borgarráðs.

4. Lokastígsreitir 2, 3 og 4, forsögn Mál nr. SN080688
Að lokinni forkynningu er lögð fram að nýju forsögn að deiliskipulagi Lokastígsreita 2, 3 og 4 dags. í nóvember 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn ábendingar: Þórólfur Antonsson og Hrönn Vilhelmsdóttir dags. 3. desember 2008, íbúar við Lokastíg (engin nöfn á bréfi) dags. 15. desember 2008, Líney Símonardóttir, dags. 16. desember 2008, Bjarni Rúnar Bjarnason, dags. 16. desember 2008. Einnig er lögð fram samantekt skipulagsstjóra dags. 18. desember 2008, húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur móttekin 17. apríl 2009. Einnig er lögð fram tillaga Dennis og Hjördísar ehf. að deiliskipulagi Lokastígsreita dags. í maí 2009.

Dennis Davíð Jóhannesson og Hjördís Sigurgísladóttir, arkitektar kynntu.
Samþykkt að kynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

5. Grafarlækur-Stekkjarmóar-Djúpidalur, (04.14) Mál nr. SN090081
breyting á deiliskipulagi
Golfklúbbur Reykjavíkur, Pósthólf 12067, 132 Reykjavík
Garðar Eyland Bárðarson, Bakkastaðir 49, 112 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Golfklúbbs Reykjavíkur dags. 18. febrúar 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarlækur-Stekkjarmóar-Djúpidalur. Í breytingunni felst að gert verði ráð fyrir vélageymslu í suð-austur horni golfvallarins samkv. meðfylgjandi uppdrætti Björns Axelssonar dags. 8. febrúar 2009. Tillagan var auglýst frá 18. mars til og með 4. maí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Orkuveita Reykjavíkur dags. 24. apríl 2009 og einnig barst bréf frá hverfisráði Árbæjar, dags. 19. apríl 2009, þar sem ekki er gerð athugasemd við erindi. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 15. maí 2009.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

6. Vallarstræti og suðurhluti Ingólfstorgs, (01.140.4) Mál nr. SN070721
breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga Björns Ólafs ark., dags. 22. janúar 2008, breytt 7. mars 2008, að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna suðurhluta Ingólfstorgs, Vallarstrætis og lóðunum Thorvaldsensstræti 2, Vallarstræti 4 og Aðalstræti 7. Lagðar fram umsagnir Framkvæmdasviðs, dags. 21. janúar 2008, húsafriðunarnefndar, dags. 4. og 29. febrúar 2008, umhverfis- og samgönguráðs, dags. 14. febrúar og borgarminjavarðar dags. 27. júní 2008. Auglýsing stóð frá 30. apríl til og með 27. júní 2008. Athugasemdir bárust frá eftirfarandi aðilum: Ásgeir Valur Sigurðsson dags. 5. júní, Guðrún Sveinbjarnardóttir Skálholtsstíg 2, dags. 9. júní, Heimir Þorleifsson Skólabraut 14, mótt. 10. júní, Margrét Ragnarsdóttir Pósthússtræti 13, dags. 10. júní, Gestur Ólafsson f.h. Jóns Hermannssonar, dags. 9. júní, Gestur Ólafsson f.h. ýmissa eigenda við Ingólfstorg, dags. 9. júní, Jón Torfason dags 9. júní, Björgvin Jónsson hrl. fh. Stúdíó 4 ehf mótt. 9. júní, Þór Whitehead Barðastöðum 7, mótt. 10. júní, Sunna Ingólfsdóttir Brekkustíg 8, dags. 10. júní, Ingólfur Steinsson, dags. 10. júní, Ólafur Ólafsson, dags. 10. júní, Þórunn Valdimarsdóttir Bárugötu 5, dags. 10. júní, Björgvin Jónsson hrl. f.h. Stúdíó 4 ehf., dags. 8. júní, Árni Guðjónsson, dags. 10. júní, Edda Einarsdóttir Hávallagötu 48, dags. 11. júní, Eyjólfur Karlsson, dags. 11. júní, Gísli Ólafsson, dags. 10. júní, Þorlákur Jónsson, dags. 10. júní, Gunnar Ólason, dags. 10. júní, Helgi Þorláksson, dags. 10. júní, Norma MacCleave, dags. 10. júní, Bjargmundur Kjartansson, dags. 10. júní, Haraldur Haraldsson og Erna Ludvigsdóttir, dags. 10. júní, Kristján Karlsson, dags. 10. júní, Björn Hallgrímsson, dags. 11. júní, Sylvía Guðmundsdóttir, dags. 11. júní, Grímur Sigurðarson og Guðrún Helgadóttir, dags. 11. júní, Auður Guðjónsdóttir, mótt. 10. júní, 3 íbúar Aðalstræti 9, dags. 11. júní, Forum lögmenn f.h. eigenda fasteigna að Aðalstræti 6 og 8, dags. 11. júní, Grímur Sigurðsson, dags. 11. júní, Snorri Hilmarsson formaður Torfusamtakanna, dags. 11. júní, Þórður Magnússon, dags. 11. júní, Áshildur Haraldsdóttir dags. 11. júní, Guðný Jónsdóttir, dags. 11. júní, Davíð Sigurðarson, dags. 11. júní, María Jensen, dags. 11. júní, Guðríður Ragnarsdóttir, dags. 12. júní, Elísabet Gunnarsdóttir og Sighvatur Arnmundsson, dags. 12. júní, Guðrún Jónsdóttir, dags. 12. júní, Guðmundur Eyjólfsson, dags. 12. júní, Jórunn Helgadóttir, dags. 10. júní, Lena Hákonardóttir, dags. 14. og 10.júní, Katrín Theodórsdóttir, dags. 12. júní, Mjöll Thoroddsen og Jónína Valsdóttir, dags. 20. júní, Edda Níels, dags. 27. júní, Minjavernd, dags. 27. júní, Sunneva Hafsteinsdóttir og Halla Bogadóttir, dags. 27. júní 2008, Torfi Hjartarson dags. 27. júní. Eftir að frestur til athugasemda rann út barst athugasemd ásamt myndum frá Gísla H. Hreiðarssyni dags. 2. júlí 2008 og athugasemd frá Jóni Skafta Gestssyni dags. 14. júlí. Einnig er lögð fram umsögn Björns Ólafs arkitekts dags. 8 júlí 2008. Lagt fram bréf dags. 22. júlí frá eigendum að eignahlutum fasteignarinnar nr. 3 við Austurstræti þar sem er afturkallaðar athugasemdir sem senda voru í óleyfi fyrir þeirra hönd.
Lögð fram ný tillaga Björns Ólafs arkitekts dags. 6. apríl 2009 að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna suðurhluta Ingólfstorgs, Vallarstrætis og lóðunum Thorvaldsensstræti 2, Vallarstræti 4 og Aðalstræti 7.

Frestað.

7. Bólstaðarhlíð, lokun, breyting á deiliskipulagi (01.27) Mál nr. SN090168
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 6. maí 2009 að breyttu deiliskipulagi Bólstaðarhlíðar. Í breytingunni felst að Bólstaðarhlíðinni verður lokað á móts við Bólstaðarhlíð 38 samkvæmt uppdætti dags. 6. maí 2009.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

8. Laugavegur 50, breyting á deiliskipulagi (01.173.1) Mál nr. SN080755
Zeppelin ehf, Laugavegi 39, 101 Reykjavík
ELL-50 ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Zeppelin arkitekta f.h. Ell-50 ehf., dags. 18. des. 2008 um breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.173.1 vegna lóðarinnar nr. 50 við Laugaveg skv. uppdrætti, dags. 16. des. 2008. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 25. nóvember 2008 og nýjum uppdrætti dags. 23. febrúar 2009. Tillagan var auglýst frá 11. mars til og með 22. apríl 2009. Bréf barst frá Hverfisráði Miðborgar dags. 16. apríl, íbúasamtökum miðborgar dags 21. apríl , Hlín Gunnarsdóttur og Sigurgeir Þorbjörnsson mótt. 22. apríl, undirskrifarlisti 23. íbúa á Timburhúsareit dags. 15. apríl 2009 undirskrifarlisti 26. íbúa á Timburhúsareit dags. 15. apríl 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 8. maí 2009.

Frestað.

(B) Byggingarmál

9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN039874
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 537 frá 12. maí 2009 og nr. 538 frá 19. maí 2009.

10. Alþingisreitur, flutningur á húsi ofl. (01.141.106) Mál nr. BN039779
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að flytja hús af sökkli sínum á lóð nr. 12 við Vonarstræti yfir á nýjan, hærri sökkul á fornleifauppgreftri við Kirkjustræti nr. 4, Mhl. 03, að endurbyggja Skjaldbreið á lóð nr. 8 við Kirkjustræti Mhl. 04, til að byggja steinsteypta nýbyggingu Mhl.07 á milli þessara tveggja húsa og tengja öll húsin ásamt Kirkjustræti 8B og 10 við þjónustubyggingu Alþingis á Alþingisreit.
Jafnframt er erindi BN039619 dregið til baka.
Erindi fylgir fyrirspurn BN039505 dags. 24. febrúar 2009, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 2. mars 2009, Húsafriðunarnefndar dags. 3. mars 2009 og skýrsla um brunavarnir dags. 6. janúar 2009.
Meðfylgjandi er Fornleifaverndar ríkisins dags. 14. apríl 2009, einnig ný umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 26. mars 2009, einnig bréf hönnuða dags. 17. apríl 2009 og brunaskýrsla útgáfa 2 dags. 20. apríl 2009.
Stærðir nýbyggingar, Mhl. 07: Kjallari 381,5 ferm., 1. hæð 212 ferm., 2. hæð 287,1 ferm., 3. hæð 162,7 ferm.Samtals 1.043,3 ferm., 3.844,8 rúmm.
Gjald kr: 7.700 + 296.050
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsráð óskaði bókað:#GL Ráðið tekur undir fyrri athugasemdir byggingarfulltrúa varðandi útlit bráðabirgðabyggingar til suðurs í ljósi þess að hönnunarsamkeppni er fyrirhuguð á reitnum og ekki liggur fyrir tímasetning á uppbyggingu annars áfanga. Bakhliðin ásamt glergangi tekur ekki mið af aldri eða gerð húsanna en getur orðið sameiginleg ásýnd þeirra til suðurs um nokkra framtíð. Ráðið fer því fram á að aðaluppdrættir verði endurskoðaðir að því er þetta atriði varðar.#GL

11. Fjölnisvegur 10, bílskúr, kvistur og fl. (01.196.306) Mál nr. BN039746
Grímur Alfreð Garðarsson, Fjölnisvegur 10, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúr, byggja nýjan með tvöföldu bílskýli fyrir framan, til að breyta inngangi og byggja stigahús, byggja kvist og grafa frá og dýpka kjallara og innrétta herbergi í einbýlishúsinu á lóð nr. 10 við Fjölnisveg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 20. mars 2009.
Stækkun mhl. 01 10 ferm., 260 rúmm. mhl. 02 63,4 ferm., 196,6 rúmm., Samtals 73,4 ferm., 464,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 35,774

Frestað.

12. Laugavegur 42, veitinga- og kaffihús á 1. hæð (01.172.223) Mál nr. BN039782
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitinga- og kaffihús í flokki 2 á 1. hæð í húsi á lóð nr. 42 við Laugaveg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 7. maí 2009.
Gjald kr. 7.700

Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Útgáfa byggingaleyfis skal háð því skilyrði að tryggt sé að veitingastarfssemi verði starfrækt á daginn auk þess sem tryggt verði að útliti hússins verði ekki breytt á neinn hátt m.a. með því að byrgja fyrir glugga. Yfirlýsingu um þetta skal þinglýst á lóðina nr. 42 við Laugaveg.

(D) Ýmis mál

13. Skipulagsráð, sumarleyfi 2009 Mál nr. SN090185
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 15. maí 2009 að fyrirkomulagi funda skipulagsráðs sumarið 2009.

Samþykkt að fella niður fundi skipulagsráðs 22, 29. júlí og 5. ágúst 2009 vegna sumarleyfa.

14. Skipulagsráð, varaáheyrnarfulltrúi Mál nr. SN090177
Lagt fram bréf borgarráðs dags. 8. maí 2009 vegna tilkynningar í borgarráði 7. maí 2009 um að Gunnar Hólm Hjálmarssonan taki sæti varaáheyrnarfulltrúa í skipulagsráði í stað Ólafs F. Magnússonar.

15. Barmahlíð 54, kæra (01.710.1) Mál nr. SN090174
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 6. maí 2009 ásamt kæru, dags. 30. mars 2009, þar sem kærð er synjun byggingarfulltrúans á byggingarleyfisumsókn vegna Barmahlíðar 54.

Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

16. Heiðargerði 76, kæra (01.802.2) Mál nr. SN090179
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 7. maí 2009 ásamt kæru dags. 30. apríl 2009 þar sem kærð er synjun á umsókn um breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits.

Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

17. Njálsgata 28, kæra (01.190.2) Mál nr. SN090178
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 7. maí 2009 ásamt kæru dags. 17. apríl 2009 þar sem kærð er veiting byggingarleyfis fyrir sólpalli á lóðinni nr. 28 við Njálsgötu.

Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

18. Skógarvegur 18-22, kæra (01.793.5) Mál nr. SN090173
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 6. maí 2009 ásamt kæru, dags. 3. apríl 2009, þar sem kærð er deiliskipulagsbreyting varðandi lóðina nr. 18-22 við Skógarveg.

Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

19. Víðidalur, Fákur, kæra (04.76) Mál nr. SN090175
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 6. maí 2009 ásamt kæru, dags. 2. apríl 2009, þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi athafnasvæðis hestamannafélagsins Fáks í Víðidals

Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

20. Skipholt 17, kæra, umsögn (01.242.2) Mál nr. SN090176
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 8. maí 2009 ásamt kæru dags. 4. maí 2009 vegna niðurstöðu byggingarfulltrúa um að hafna stöðvun framkvæmda og fella úr gildi byggingarleyfi vegna framkvæmda við Skipholt nr. 17. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 11. maí 2009 vegna kæru á niðurstöðu byggingarfulltrúa um að hafna stöðvun framkvæmda og fella úr gildi byggingarleyfi vegna framkvæmda við Skipholt nr. 17.

Umsögn lögfræði- og stjórnsýslu samþykkt

21. Lambhóll við Þormóðsstaðaveg, kæra, umsögn(01.539.3) Mál nr. SN080560
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 18. september 2008 ásamt kæru þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að beita dagsektum vegna glugga á risi og nýtingar bílgeymslu hússins Lambhóls. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 8. maí 2009

Umsögn lögfræði- og stjórnsýslu samþykkt

22. Grandagarður/Geirsgata, Mál nr. SN090096
breyting á deiliskipulagi vegna verbúða
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 7.maí 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Slippasvæðis vegna verbúða við Grandagarð og Geirsgötu.

23. Hestavað 5-7, breyting á deiliskipulagi (04.733.5) Mál nr. SN090142
NorBygg ehf, Hverfisgötu 46, 101 Reykjavík
Kristinn Ragnarsson,arkit ehf, Ármúla 1, 108 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 7.maí 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna lóðarinnar að Hestavaði 5-7

24. Ofanleiti 14, breyting á deiliskipulagi (01.746.2) Mál nr. SN090095
Guðni Pálsson, Litlabæjarvör 4, 225 Álftanes
Hamborgarabúlla Tómasar ehf, Pósthólf 131, 121 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 7. maí 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina að Ofanleiti 14.

25. Viðarhöfði 2, breyting á deiliskipulagi (04.077.5) Mál nr. SN090147
Alda fasteignafélag ehf, Snorrabraut 29, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 7.maí 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða eystri vegna Viðarhöfða 2.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 12:20.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Ragnar Sær Ragnarsson Brynjar Fransson
Zakaria Elías Anbari Sóley Tómasdóttir
Guðrún Erla Geirsdóttir Stefán Benediktsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 19. maí kl. 10.10 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 538. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason og Eva Geirsdóttir
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurbakki 2 (01.119.801) 209357 Mál nr. BN038930
Eignarhaldsfélagið Portus ehf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja 1. áfanga steinsteypts tveggja hæða neðanjarðar bílahúss fyrir samtals 709 bíla upp að kjallara Tónlistar- og ráðstefnuhússins á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Bréf umsækjenda dags. 12. september 2008 og brunaskýrsla Verkfræðistofunnar Mannvit dags. sept. 2008 fylgir erindinu.
Stærð : Bílahús neðri kjallari (K2) anddyri að tónlistarhúsi og tæknirými 1181,1 ferm., kjallari (K1) 1059,2 ferm., samtals 2240,3 ferm., 14859,9 rúmm.
Bílapallar (B-rými) neðri kjallari 10670,1 og kjallari 10403 ferm., samtals 21073,1 ferm., 77699,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 6.756.814
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Áður samþykkt takmarkað byggingarleyfi BN038571 tekur mið af breyttum stærðum.

2. Álfab. 12-16/Þönglab. (04.603.503) 111722 Mál nr. BN039899
Faxar ehf, Kringlunni 5, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta fiskúð í stað skóverslunar í rými 0104 í verslunarhúsi á lóð nr. 6 við Þönglabakka
Sbr. fyrirspurn BN039603 dags. 17. mars 2009
Meðfylgjandi er samþykki eigenda dags. 13. maí 2009 og annað samþykki dags. 20. mars 2009. Meðfylgjandi er einnig tölvupóstur arkitekts dags. 18. maí 2009 um loftræsingu frá fiskvinnslu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Ásvallagata 56 (01.139.012) 100745 Mál nr. BN039499
Bjarni Brynjólfsson, Ásvallagata 56, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, stækka með viðbyggingu, setja svalahurð, garðtröppur og kjallaratröppur á einbýlishúsið á lóð nr. 56 við Ásvallagötu.
Samþykki burðavirkishönnuðar dasgs. 15. maí 2009. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. maí 2009 fylgir erindinu.
Tillagan var grenndarkynnt frá 26. mars til og með 30. apríl 2009. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 19,5 ferm. og 53,0 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 4.081
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Blesugróf 27 (01.885.104) 108866 Mál nr. BN039892
Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir þjónustu fyrir fótaaðgerðafræðing í baðherbergi í húsi sem hýsir dagvistun fyrir heilabilaða á lóð nr. 27 við Blesugróf.
Bréf frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar dags. 10. mars 2009 fylgir erindinu
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

5. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN039879
Kaffitár ehf, Stapabraut 7, 260 Njarðvík
Sótt er um leyfi til að breyta flokkun veitingastaðarins Kaffitárs úr fl. I í fl. II á jarðhæð í húsinu á lóð nr. 10-12 við Höfðatún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

6. Brautarás 1-19 (04.370.002) 111282 Mál nr. BN039867
Sigríður Halldórsdóttir, Skaftahlíð 31, 105 Reykjavík
Gunnar Ingvi Þórisson, Brautarás 5, 110 Reykjavík
Kristín Harpa Bjarnadóttir, Brautarás 7, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir á 2. hæð raðhúsanna nr. 5 og nr. 7 á lóð nr. 1-19 við Brautarás.
Stækkun hús nr. 5: xx ferm., xx rúmm.
Stækkun hús nr. 7: xx ferm., xx rúmm.
Samtals: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Brautarholt 1 125660 (00.018.000) 125660 Mál nr. BN039851
Bjarni Pálsson, Brautarholt 1, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka núverandi einbýlishús og byggja bílskúr á jörðinni Brautarholt 1 með landnúmer 125660 á Kjalarnesi.
Bréf frá hönnuði fylgir erindinu dags. 5. maí 2009.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009 fylgir erindinu.
Stækkun: Einbýlishús 90,6 ferm. 454,6 rúmm.
Bílskúr 65,2 ferm. og 203,8 rúmm.
Samtals stækkun: 155,8 ferm og 658,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 50.697
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og útskrifar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009.

8. Dalaland 1-11 2-16 (01.850.201) 108757 Mál nr. BN039622
Gréta Jóakimsdóttir, Noregur, Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli við íbúð 0301 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3 við Dalaland.
Meðfylgjandi er samþykki allra meðeigenda dags. febrúar 2009 og síðar. Einnig greinagerð um brunavarnir dags. 12. maí 2009.
Stærðir 13,5 ferm., 36,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 2.811
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Efstaland 26 (01.850.101) 108756 Mál nr. BN039886
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breyttu eignarhaldi á 2. hæð verslunarhússins á lóð nr. 26 við Efstaland.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

10. Gerðhamrar 18 (02.298.106) 109153 Mál nr. BN039901
Helgi Árnason, Gerðhamrar 18, 112 Reykjavík
Aðalbjörg Jónasdóttir, Gerðhamrar 18, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sólskála úr gleri og léttum byggingarefnum á steyptum sökkli við einbýlishús á lóð nr. 18 við Gerðhamra.
Stærðir 20 ferm., 46,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.580
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

11. Granaskjól 54-58 (01.515.304) 105843 Mál nr. BN038629
Ástvaldur Jóhannsson, Granaskjól 58, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu við suðurgafl og til að stækka eldhús til norðurs á húsi nr. 58 í raðhúsinu á lóð nr. 54-58 við Granaskjól.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa og lóðarhafa Granaskjóls 60 dags. 13. febrúar 2009.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. apríl 2009 fylgir erindinu. Tillagan var grennndarkynnt frá 4. mars til og með 1. apríl 2009. Engar athugasemdir bárust.
Viðbygging 8,3 ferm., 24,41 rúmm.
Sólskáli 16,1 ferm., 56,6 rúmm
Stækkun samtals: 24,4 ferm., 78 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 6.008
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Háteigsvegur 35-39 (01.254.201) 103469 Mál nr. BN039876
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp glervegg með hurð milli bókasafns og stigahúss og fjarlægja geymsluvegg við lesstofu og tölvuver á 4. hæð Fjöltækniskóla Íslands (Sjómannaskólinn) á lóð nr. 35-39 við Háteigsveg.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

13. Holtavegur 8-10 (01.408.101) 104960 Mál nr. BN039890
Landsafl ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 2. hæð til að koma fyrir húsgagnaverslun. Breytingar fela í sér að flytja innri vegg til og gera hurðarop í atvinnuhúsinu á lóð nr. 10 við Holtaveg.
Gjald kr.7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

14. Holtavegur 8-10 (01.408.101) 104960 Mál nr. BN039798
Landsafl ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp sölubás og til að breyta innra skipulagi í verslunarhúsinu á lóð nr. 8-10 við Holtaveg.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

15. Holtsgata 14 (01.134.314) 100363 Mál nr. BN039897
Ásgeir Alexandersson, Holtsgata 14, 101 Reykjavík
Kristján Friðrik Alexandersson, Álfabyggð 6, 600 Akureyri
Sótt er um leyfi fyrir breytingu á innveggjum og breyttum rýmisnúmerum í rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 14 við Holtsgötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

16. Hólmaslóð olíustöð 1 (01.085.001) 100001 Mál nr. BN039770
Olíudreifing ehf, Pósthólf 4230, 124 Reykjavík
Skeljungur hf, Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum af olíubirgðatönkum á Olíustöð 1 við Hólmaslóð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

17. Hólmaslóð olíustöð 4 (01.085.301) 100004 Mál nr. BN039771
Skeljungur hf, Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík
Olíudreifing ehf, Pósthólf 4230, 124 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum af olíubirgðatönkum á Olíustöð 4 við Hólmaslóð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

18. Hringbraut 83 (01.524.011) 106008 Mál nr. BN039895
Hallgrímur Óskarsson, Hringbraut 83, 107 Reykjavík
Katrín Sigurbergsdóttir, Hringbraut 83, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að grafa frá og saga hurðarop í útvegg á kjallarahæð á suðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 83 við Hringbraut.
Samþykki meðeigenda fylgir dags. 24. mars 2009, umsögn burðavirkishönnuðar dags. 15. maí 2009 og fyrirspurn BN039683 sem var jákvæð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Landspilda 125736 (00.056.005) 125736 Mál nr. BN039887
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir, Kársnesbraut 64, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt sumarhús að hluta til á tveimur hæðum, aðalhús (Mhl.01) og gestahús (Mhl.02) tengd saman með yfirbyggðri verönd í landi Mógilsár á Kjalarnesi.
Stærð Mhl.01: 1. hæð 58,7 ferm., 2. hæð 77,5 ferm.
Mhl.02: 1. hæð 14,6 ferm., 2. hæð 70,7 ferm.
Samtals 206,9 ferm., 769,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 59.221
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

20. Langholtsvegur 115 (01.414.003) 105096 Mál nr. BN039878
Snæland Grímsson ehf, Laugarnesvegi 60, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli úr málmi og perlugleri og bæta við gluggum á 2. hæð á austurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 115 við Langholtsveg.
Samþykktir flest allra eigenda eru á teikningu.
Stækkun: 16,6 fem. og 40,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.126
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

21. Laufásvegur 47 (01.185.309) 102176 Mál nr. BN039882
Sigurgeir Jónsson, Laufásvegur 47, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta útliti sólstofu á 2. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 47 við Laufásveg.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 5. maí 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

22. Laugarnesvegur 87-89 (01.340.501) 103935 Mál nr. BN039877
Laugarnesvegur 87-89,húsfélag, Laugarnesvegi 87-89, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir skjóllokun á svölum fjölbýlishússins á lóð nr. 87-89 við Laugarnesveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Laugateigur 58 (01.365.208) 104690 Mál nr. BN039869
Hávarður Emilsson, Laugateigur 58, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á erindi BN023447 dags. 29. október 2002, þar sem veitt var leyfi til að byggja nýjan kvist á norðurþaki og stækka þrjá kvisti sem fyrir eru á þaki hússins nr. 58 við Laugateig.
Stækkun þakhæðar: 24,6 ferm., 19,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.525
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Laugavegur 28 (01.172.206) 101461 Mál nr. BN039539
Tvívík ehf, Hólatorgi 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta gistiskála á 2. 3. og 4. hæð og til að koma fyrir flóttastiga frá 3. hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 28 við Laugaveg.
Erindi fylgir greinargerð umsækjenda ódagsett og brunahönnun frá EFLA dags. 11. maí 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Lágmúli 9 (01.261.303) 103509 Mál nr. BN039926
Nova ehf, Lágmúla 9, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja auglýsingaspjald tímabundið 15. maí - 1. september á suðurgafl byggingarinnar á lóð nr. 9 við Lágmúla
Synjað.
Stærð skiltisins samræmist ekki skiltareglugerð Reykjavíkurborgar og tímabundið leyfi er ekki veitt.

26. Láland 17-23 (01.874.101) 108833 Mál nr. BN039847
Gunnar Thoroddsen, Láland 21, 108 Reykjavík
Auður Stefánsdóttir, Láland 21, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til suðurs og til að breyta innra fyrirkomulagi og útliti einbýlishússins nr. 21 á lóð nr, 17-21 við Láland.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 15. maí 2009 fylgir erindinu.
Stækkun: 130,9 ferm., 502,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 38.669
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Melsel 1-9 (04.961.402) 113086 Mál nr. BN039863
Einar Júlíusson, Melsel 5, 109 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum sólskála við hús nr. 5 á lóð nr. 1-9 við Melsel.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

28. Naustanes 125737 (00.058.000) 125737 Mál nr. BN039911
Þorbjörg Gígja, Naustanes, 116 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir undirstöðum og botnplötu á jörðinni Naustanes landnr. 125737 á Kjalarnesi sbr. erindi BN039673.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

29. Pósthússtræti 11 (01.140.514) 100873 Mál nr. BN039888
101 heild ehf, Pósthólf 1072, 101 Reykjavík
Hótel Borg ehf, Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á 1. hæð vegna lokaúttektar í veitingasal Hótels Borgar á lóð nr. 11 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Reynihlíð 8-10 (01.782.805) 107551 Mál nr. BN038710
Jón Ingimarsson, Reynihlíð 8, 105 Reykjavík
Björn B Thors, Reynihlíð 10, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja núverandi svalir og setja minni svalir, setja nýja svalahurð og þakglugga og fjarlægja glugga á norðurhlið á húsi nr.10 á lóð nr. 8 - 10 við Reynihlíð.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Safamýri 55 (01.284.001) 103705 Mál nr. BN039880
Eva Mjöll Ágústsdóttir, Safamýri 55, 108 Reykjavík
Ægir Pétursson, Safamýri 55, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja hurð út úr stofu íbúðar 0001 út á sólpall í kjallara húss á lóð nr. 55 við Safamýri.
Sbr. fyrirspurn BN039739. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 19. júní 2009
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

32. Seljavegur 2 (01.130.105) 100117 Mál nr. BN039898
Seljavegur ehf, Hamraborg 12, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum af húsnæði Loftkastalans á 1. og 2. hæð íatvinnuhúsinu á lóð nr. 2 við Seljaveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Sifjarbrunnur 5 (05.055.203) 211683 Mál nr. BN039751
Páll Harðarson, Hófgerði 22, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN038107, samþykkt 6. maí 2008, þar sem glugga á herbergi er breytt í svalahurð og nýjar tröppur settar innanhúss upp að svalahurð, stoðveggir framlengdir og tjörn búin til við einbýlishúsið á lóð nr. 5 við Sifjarbrunn.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Silungakvísl 21 (04.212.705) 110790 Mál nr. BN039835
Bergþóra Njálsdóttir, Silungakvísl 21, 110 Reykjavík
Fróði Ólafsson, Silungakvísl 21, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir með tröppum niður í garð og til að gera inngang í kjallara tvíbýlishússins á lóð nr. 21 við Silungakvísl.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Smiðshöfði 3-5 (04.061.102) 110603 Mál nr. BN039889
Lýsing hf, Ármúla 3, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í mhl. 01 og 02 og að fjarlægja milliloft í mhl. 01 í atvinnuhúsinu á lóð nr. 3 - 5 við Smiðshöfða.
Minnkun: XXX ferm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Sporðagrunn 12 (01.350.203) 104131 Mál nr. BN039885
Guðmundur G Símonarson, Sporðagrunn 12, 104 Reykjavík
Höskuldur Ragnarsson, Sporðagrunn 12, 104 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN037541 dags. 18. mars 2008, þar sem veitt var leyfi til að stækka neðri hæðina til vesturs undir svalagólf ásamt svalalokun á efri hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 12 við Sporðagrunn.
Stærðir stækkunar íbúðar í kjallara 16,1 ferm., 48,3 rúmm.
Svalalokun íbúðar 1. hæðar 9,1 ferm., 21,0 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 5.336
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Stýrimannastígur 4 (01.135.208) 100457 Mál nr. BN039685
Gunnar Gunnarsson, Stýrimannastígur 4, 101 Reykjavík
Valva Árnadóttir, Stýrimannastígur 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við til austurs, kjallara úr steinsteypu, 1. hæð og ris úr trégrind klæddri með bárujárni og hækka þak um 70 cm á húsi á lóð nr. 4 við Stýrimannastíg.
Stækkun: 87,2 ferm. og 238,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 18.357
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta A1 - A3 dags. 27. apríl 2009.

38. Þingholtsstræti 30 (01.183.502) 101980 Mál nr. BN039511
Bjarni G Bjarnason, Þingholtsstræti 30, 101 Reykjavík
Þingholtsstræti 30,húsfélag, Þingholtsstræti 30, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta útliti glugga í stigagangi, breyta handriði svala úr steypu í gler og einangra þak og klæða með bárujárni svalaskála þakíbúða í fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Þingholtsstræti.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

39. Þingvað 31 (04.791.303) 201480 Mál nr. BN039868
Ívar Trausti Jósafatsson, Viðarás 26, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu, staðsteypta neðri hæð og efri hæð yfir hluta húss byggð úr stálgrind og timbri og álklædd á lóð nr. 31 við Þingvað.
Stærð: 1. hæð íbúð xx ferm., bílgeymsla xx ferm., 2. hæð 43,4 ferm.
Samtals: 279,9 ferm., 1022,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 78.748
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

40. Ægisgata 4 (01.131.110) 100168 Mál nr. BN039522
Þórður B Benediktsson, Ægisgata 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að lyfta þaki og innrétta íbúð á efstu hæð ásamt því að innrétta tvær aðrar íbúðareiningar í húsi á lóð nr. 4 við Ægisgötu.
Stækkun: 126,7 ferm., 206,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 15.885
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði varðandi sorp.

Fyrirspurnir

41. Austurberg 8-10 (04.677.402) 112265 Mál nr. BN039912
Sólveig Höskuldsdóttir, Austurberg 8, 111 Reykjavík
Spurt er hvort helluleggja megi 4 x 7 metra gangstíg frá bílskúrum að leiksvæði og hvort allir íbúðaeigendur þurfi að samþykkja þá framkvæmd.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda, enda sé nægur meirihluti eigenda samþykkur sbr. ákvæði laga um fjöleignarhús.

42. Bjarmaland 17-23 (01.854.102) 108775 Mál nr. BN039820
Magnús Arnarsson, Bjarmaland 19, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að rífa núverandi bílgeymslu og byggja stærri við einbýlishúsið nr. 19 á lóð nr. 17-23 við Bjarmaland.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. einnig umsögn skipulagsstjóra.

43. Bleikjukvísl 18 (04.235.304) 110899 Mál nr. BN039900
Hörður Sævar Erlingsson, Bleikjukvísl 18, 110 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi 20 metra langt og 190 cm hátt grindverk og hversu langt frá lóðmörkum slíkt grindverk skuli vera á lóð nr. 18 við Bleikjukvísl.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

44. Bústaðavegur 87 (01.819.209) 108263 Mál nr. BN039873
Sigrún Edda Karlsdóttir, Bústaðavegur 87, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir kofa eða gám ca 7,5 til 10 ferm. til að geyma í hjól og fleira við hús á lóð nr. 87 við Bústaðaveg.
Nei.
Varðandi gám en jákvætt að byggja geymsluskúr, enda sé um hann sótt og það gert í samræmi við samþykkt deiliskipulag.

45. Fjarðarsel 20-36 (04.972.501) 113185 Mál nr. BN039875
Sigurður Finnbogason, Fjarðarsel 36, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja sólstofu út frá kjallara og setja hurð út á lóð í raðhúsi á lóð nr. 36 við Fjarðarsel.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

46. Flugvöllur 106748 (01.66-.-99) 106748 Mál nr. BN039741
Flugstoðir ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja upp bráðabirgða stálgrindarhús, stærð 506 ferm, klætt með málmklæðningu á lóð nr. 11 á Reykjavíkurflugvelli.
Bréf frá Flugvallastjóra Reykjavíkurflugvallar dags. 6 apríl. 2009 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. maí 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 28. apríl 2009.
Neikvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 28. apríl 2009.

47. Frakkastígur 7 (01.173.030) 101517 Mál nr. BN039905
Sindri Gunnarsson, Grenimelur 35, 107 Reykjavík
Linda Mjöll ehf, Laugavegi 11, 101 Reykjavík
Spurt er hvort opna megi kaffihús/bar í fl. II í húsnæði, sem áður hýsti Tattú stofuna Reykjavík Ink, á jarðhæð í húsi á lóð nr. 7 við Frakkastíg
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

48. Friggjarbrunnur 24-26 205938 Mál nr. BN039916
Þórður Karl Einarsson, Friggjarbrunnur 26, 113 Reykjavík
Einar Gunnarsson, Friggjarbrunnur 26, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir tveimur aukaíbúðum á jarðhæð parhússins á lóð nr. 24-26 við Friggjarbrunn.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

49. Gnoðarvogur 62 (01.444.204) 105537 Mál nr. BN039788
Guðmundur Þórisson, Gnoðarvogur 62, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við efstu hæð til norðurs og til að byggja sólskála yfir svalir á suðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 62 við Gnoðarvog.
Útskrift úr gerðabók embættisfgreiðsufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstóra dags. 15. maí 2009.
Neikvætt.
Sbr. einnig umsögn skipulagsstjóra dags. 15. maí 2009.

50. Gufunes Áburðarverksm (02.220.001) 108955 Mál nr. BN039823
Kornsalan ehf, Brautarholti 10, 116 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að nýta skemmu með landnúmeri 108955 sem geymslu fyrir ósekkjaða kornvöru sem er fóðurbætir á lóð Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi.
Umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 15. maí fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. einnig umsögn Umhverfis- og samgöngusvið dag. 15. maí 2009.

51. Hábær 35 (04.353.103) 111244 Mál nr. BN039859
Tryggvi Jóhannsson, Hábær 35, 110 Reykjavík
Spurt er um hvort leyfi fáist til að byggja úr timbri og stáli 77,2 ferm. við 1. hæð núverandi einhýlishúss á lóð nr. 35 við Hábæ.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

52. Háteigsvegur 1 (01.244.203) 103187 Mál nr. BN039813
Háteigsvegur 1 ehf, Brekkutanga 1, 270 Mosfellsbær
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir stækkun til að koma fyrir hótelrekstri í atvinnuhúsinu á lóð nr. 1 við Háteigsveg.
Bréf frá Háteigsvegi 1 ehf dags. 22. apríl 2009 og bréf frá arkitekt dags. 14. feb. 2009, ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009 og umsögn skipulagsstjóra dags. 14. maí 2009.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi sbr. umsögn skipulagsstjóra.

53. Holtsg.1-3,Bræðrab.30 (01.134.609) 205011 Mál nr. BN039747
Páll Þórhallsson, Bræðraborgarstígur 30, 101 Reykjavík
Þórdís Kjartansdóttir, Bræðraborgarstígur 30, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja yfir svalir á suðvestur- og norðausturhlið og til að nýta þak sem svalir á 4. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 1-3 við Holtsgötu og 30 við Bræðraborgarstíg.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa dagsett í september 2008, þrjár ljósmyndir og eignaskiptayfirlýsing dags. 12. febrúar 2007 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009.
Nei.
Samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.

54. Hverafold 130 (02.862.706) 110264 Mál nr. BN039836
Krystian Karol Gralla, Hverafold 130, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr 35 ferm. að stærð við parhúsið á lóð nr. 130 við Hverafold.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009 fylgir erindinu.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi.

55. Hverfisgata 73 (01.153.210) 101106 Mál nr. BN039881
Bergur Eldjárn Sigurðarson, Hverfisgata 73, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir inngangi á austurhlið fjölbýlishús á lóð nr. 73 við Hverfisgötu.
Bréf frá eiganda húss dags. 7. apríl 2009.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

56. Lambhagavegur 23 (02.684.101) 189563 Mál nr. BN039802
Hafberg Þórisson, Vesturlbr Lambhagi, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja upp bráðabirgða, gróðurhús úr plastklæddri stálgrind á steyptum sökklum, stærð 32 x 44 m að grunnfleti á lóð nr. 23 við Lambhagavegi
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. maí 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

57. Laufásvegur 24 (01.183.409) 101969 Mál nr. BN039865
Sigrún Steina Valdimarsdóttir, Laufásvegur 24, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu á 2. hæð yfir hluta svala þríbýlishússins á lóð nr. 24 við Laufásveg.
Erindi fylgir bréf umsækjanda og fsp. BN038278 dags. 27. maí 2008.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

58. Laugarásvegur 5 (01.380.106) 104731 Mál nr. BN039872
Hjörtur Ólafsson, Laugarásvegur 5, 104 Reykjavík
Svandís Ingimundardóttir, Laugarásvegur 5, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft verði að framlengja steyptar svalir á 1. hæð með trépalli á húsi á lóð nr. 5 við Laugarásveg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. umsagnir á fyrirspurnarblaði.

59. Laugavegur 32 (01.172.213) 101468 Mál nr. BN039906
Sindri Gunnarsson, Grenimelur 35, 107 Reykjavík
Írena Sól ehf, Tryggvagötu 22, 101 Reykjavík
Spurt er hvort opna megi kaffihús/bar í fl. II í húsnæði sem áður hýsti verslunina Noland á jarðhæð í húsi á lóð nr. 32 við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

60. Laugavegur 51 (01.173.024) 101511 Mál nr. BN039866
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort samþykkt verði að innrétta kaffihús með opnunartíma 07-23 virka daga og 07-01í rými 0102 í húsi á lóð nr. 51 við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

61. Réttarholtsvegur 63-79 (01.834.003) 108598 Mál nr. BN039871
Ingibjörg Þórhallsdóttir, Réttarholtsvegur 77, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft verði að fjölga bílastæðum á lóð við raðhúsin á lóð nr. 63-79 við Réttarholtsveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

62. Sigluvogur 12 (01.414.115) 105110 Mál nr. BN039821
Hafþór Rúnar Gestsson, Sigluvogur 12, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja svalir á suðurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 12 við Sigluvog.
Bréf frá fyrirspyrjanda ódagsett fylgir fyrispurninni ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgeiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. maí 2009.

63. Smárarimi 79 (02.534.710) 195524 Mál nr. BN039883
Magnús Hvanndal Magnússon, Smárarimi 79, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja ofan á einbýlishúsið á lóð nr. 79 við Smárarima
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

64. Spöngin 9-31 (02.375.201) 177193 Mál nr. BN039894
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta innra skipulagi með því að koma fyrir eldhúsi með grilli og loftrás út úr vesturhlið atvinnuhúsnæðis nr. 15 á lóð nr. 9-31 við Spöngina.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

65. Sturlugata 3 (00.000.000) 106638 Mál nr. BN039776
Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja gróðurhús og útbúa matjurtagarð við Norræna húsið á lóð nr. 3 við Sturlugötu.
Meðfylgjandi eru teikningar dags. 6. maí 2009 í mkv. 1:200 og 1:100, ódags. greinargerð um matjurtir við Norræna húsið og bréf dags. 13. maí 2009.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 12.35.

Bjarni Þór Jónsson
Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Þórður Búason Jón Hafberg Björnsson
Eva Geirsdóttir