Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 3. desember kl. 9.05, var haldinn 157. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Brynjar Fransson, Svandís Svavarsdóttir, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason, Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Bragi Bergsson, Margrét Þormar, Björn Axelsson og Guðfinna Ósk Erlingsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 28. nóvember 2008.

2. Grettisgata 8, breyting á deiliskipulagi (01.182.1) Mál nr. SN080571
Egill Ólafsson, Grettisgata 8, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga T.ark teiknistofunnar ehf. dags. 28. ágúst 2008 að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 8 við Grettisgötu. Í breytingunni felst að leyfð er hækkun á bakhúsi úr einni hæð í eina hæð og ris. Auk þess er leyfð hækkun á nýtingarhlutfalli lóðarinnar samkv. meðfylgjandi uppdrætti dags. 26. nóvember 2002 og breytt 28. ágúst 2008.
Tillagan var grenndarkynnt frá 24. september til og með 22. október 2008. Athugasemd barst frá Arnari Steini Friðbjarnarsyni og Helenu Stefánsdóttur, Grettisgötu 6a, dags. 22. okt. 2008. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra miðborgar og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 1. desember 2008 og umsögn húsafriðunarnefndar dags. 25. nóvember 2008.

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra. með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

3. Grandagarður 1-13, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN080713
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Faxaflóahafa dags. 19. nóvember 2008 að breytingu á deiliskipulagi við Grandagarð vegna Grandagarðs 1-13. Í breytingunni felst að skilgreind eru lóðamörk fyrir lóðirnar 1, 1a, 1b, 3, 5, 7, 9, 11 og 13 ætlaðar fyrir verslun og þjónustustarfsemi samkv. meðfylgjandi uppdrætti Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. í október 2008.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Fiskislóð 2-8 og 10 og Grandagarði 2.

4. Háskóli Íslands, deiliskipulag vestan Suðurgötu (01.6) Mál nr. SN080717
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Háskóla Íslands dags. 25. nóvember 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu. Í breytingunni felst að á reit A3 verður hámarksbyggingarmagn aukið nýtingarhlutfalli á lóð hækkað og hámarkshæð byggingar er aukið auk þess er gert ráð fyrir þakgarði ofnan á húsið með tilheyrandi útgangi samkv. meðfylgjandi uppdrætti Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 15. nóvember 2008.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók sæti á fundinum kl. 9:15

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

5. Baldursgötureitur 1, deiliskipulag, reitur 1.186.3 (01.186.3) Mál nr. SN070031
Teiknistofan Tröð ehf, Hávallagötu 21, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Teiknistofunnar Traðar samkv. meðfylgjandi uppdráttum dags. 15. september 2008. Reiturinn afmarkast af Freyjugötu, Baldursgötu, Þórsgötu og Njarðargötu. Tillagan var auglýst frá 8. október til og með 19. nóvember 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir:
Lára V. Júlíusdóttir og Þorsteinn Haraldsson. eig. Freyjugötu 17, dags. 16. nóv. 2008, Helga Lára Þorsteinsdóttir, Freyjugötu 17b dags. 17. nóv., Harpa Þórsdóttir og Kári Sölmundarson, Þórsgötu 18a dags.17. nóv., Sigurbjörn Þorkelsson og Aðalheiður Magnúsdóttir, eig. Freyjugötu 17, dags. 18. nóv., Nína Magnúsdóttir, Þórsgötu 14 dags.18. nóv., Guðríður Jóhannesdóttir, Þórsgötu 16, dags. 18. nóv., Lilja Gunnarsdóttir og Eyjólfur Ingi Ásgeirsson, Þórsgötu 19, dags. 19. nóv., Helgi Gunnarsson f.h. Baldurgötu ehf. (Baldursgata 32 og 34), dags. 19. nóv. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 2. desember 2008.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir tók sæti á fundinum kl.9:40

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

6. Blikastaðavegur 2-8, breyting á deiliskipulagsskilmálum(02.4) Mál nr. SN080674
Stekkjarbrekkur ehf, Smáratorgi 3, 201 Kópavogur
Arnar Hallsson, Kaplaskjólsvegur 65, 107 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 7. nóvember 2008 var lagt fram erindi lóðarhafa dags. 4. nóvember 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2-8 við Blikastaðveg. Í erindinu felst að breyta skilmálum deiliskipulagsins vegna stærðar eininga. Erindinu var vísað til umsagnar hjá umhverfisstjóra skipulags- og byggingarsviðs og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn umhverfisstjóra skipulags- og byggingarsviðs dags. 26. nóvember 2008.
Frestað.
Samþykkt að kynna erindið og fyrirliggjandi umsögn um það fyrir bæjaryfirvöldum í Mosfellsbæ.

7. Miðborg, þróunaráætlun, breyting (01.1) Mál nr. SN970068
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 21. nóvember 2008 að breytingu á Þróunaráætlun miðborgar og Aðalskipulagi Reykjavíkur
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN039255
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 516 frá 2. desember 2008.

(C) Fyrirspurnir

9. Gissurargata 3, (fsp) aukið byggingarmagn (05.113.7) Mál nr. SN080669
Sigurður Ólafsson, Tómasarhagi 18, 107 Reykjavík
Arkþing ehf, Bolholti 8, 105 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 31. október 2008 var lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um aukið byggingarmagn á lóðinni nr. 3 við Gissurargötu samkv. meðfylgjandi uppdráttum Arkþings dags. 30. október 2008. Einnig er lagt bréf umsækjenda dags. 24. nóvember 2008.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað í samræmi við erindið. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

(D) Ýmis mál

10. Hólmsheiði við Suðurlandsveg, (04.4) Mál nr. SN080725
geymsluplan OR vegna Hellisheiðaræðar framkvæmdaleyfi
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 25. nóvember 2008 um framkvæmdaleyfi fyrir bráðabirgðageymsluplani undir pípur og búnað vegna lagningar Hellisheiðaræðar samkv. meðfylgjandi uppdrætti Landslags, dags. 17. nóvember 2008. Einnig lagt fram bréf Framkvæmdastjórnar um vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins dags. 20. nóvember 2008.
Samþykkt með vísan til e-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

11. Fannafold 115-119, málskot (02.854) Mál nr. SN080714
Sigurður Már A Sigurgeirsson, Fannafold 115, 112 Reykjavík
Lagt fram málskot Sigurðar M. Sigurgeirssonar dags. 20. nóvember 2008 vegna afgreiðslu afgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. ágúst 2008 þar sem umsókn hans um leyfi til að breyta 2 grasblettum í bílastæði fyrir alls fjóra bíla var hafnað.
einig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 27. nóvember 2008.
Ráðið staðfestir fyrri afgreiðslu erindisins með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

12. Miklabraut/Kringlumýrarbraut, samráðshópur (01.2) Mál nr. SN080287
Lögð fram niðurstaða samráðshóps um framkvæmdir við Miklubraut -Kringlumýrarbraut dags. 5. nóvember 2008.
Ólafur Bjarnason samgöngustjóri kynnti niðurstöðu samráðshóps.

13. Skerjalandið, nýting Skerjalandsins Mál nr. SN080723
Björn Kristinsson, Hjarðarhagi 29, 107 Reykjavík
Lagðar fram mismunandi útfærslur Björns Kristinssonar verkfræðings dags. 22. október 2008 á nýtingu Skerjalandsins.
Vísað til skoðunar í stýrihóp um endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur.

14. Skipulagsráð, verkefni + Arkitekta Mál nr. SN080638
Lagt fram bréf +Arkitekta dags. 1. október 2008 varðandi verkefni á vegum stofunnar. Einnig lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarsviðs dags. 24. nóvember 2008.
Minnisblað skipulags- og byggingarsviðs samþykkt.

15. Kynning upplýsingagagna, Mál nr. BN039231
Lagt fram til kynningar, tvær þjónustulýsingar byggingarfulltrúa, leiðbeiningarbæklingur um útfyllingu byggingarleyfisumsókna og dreifibréf til arkitekta.
Kynnt.

16. Hraunbær 51-67, (04.331.702) Mál nr. BN039210
Lagt fram bréf (vegna Hraunbær nr. 59)
Lagt fram tölvubréf Egils Ólafssonar dags. 28. október 2008. Einnig lagt fram að nýju minnisblað byggingarfulltrúa dags. 16. nóvember 2008 vegna opins bréfs byggingarleyfishafa frá 27. október sl. vegna byggingarleyfis í húsi nr. 59 á lóðinni nr. 51-67 við Hraunbæ.
Visað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu hjá skipulags- og byggingarsviði.

17. Sólheimar 23, (01.433.401) Mál nr. BN039258
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 27. nóvember 2008 vegna stöðvunar framkvæmda á lóð nr. 23 við Sólheima sbr. ákvæði 1. mgr. 56. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt

18. Skipulagsráð, fyrirspurn vegna Strætó bs. Mál nr. SN080726
Lagt fram svar skrifstofustjóra Framkvæmda- og eignasviðs dags. í nóvember 2008 vegna flutnings Strætó frá Borgartúni 41 að Hesthálsi 14.

19. Erindisbréf, stefnumörkun Mál nr. SN080710
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 3. desember 2008 að erindisbréfi vegna starfa vinnuhóps vegna gerðar borgar- og húsverndarstefnu á vegum sviðsins, starfsárið 2008-2009.
Samþykkt.

20. Barmahlíð 54, kæra, umsögn, úrskurður (01.710.1) Mál nr. SN080519
Ómar R. Valdimarsson, Barmahlíð 54, 105 Reykjavík
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 27. nóvember 2008 vegna kæru á ákvörðun ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 15. júlí 2008 um synjun byggingarleyfis fyrir brú af svölum íbúðar að Barmahlíð 54 í Reykjavík yfir á þak bílskúrs og gerð þaksvala þar, með stiga niður í garð á nefndri lóð. Jafnframt er kærð sú ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 17. júlí 2008 að leggja fyrir kæranda að fjarlægja handrið og göngubrú af bílgeymsluþaki fyrrgreindrar fasteignar og tréstiga við suðurgafl bílgeymslunnar og jafnframt að steypa í og múrhúða op á svalahandriði fyrstu hæðar innan 30 daga að viðlögðum dagsektum.
Úrskurðarorð:
Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 15. júlí 2008, sem staðfest var í borgarráði hinn 17. júlí s.á., um að synja byggingarleyfisumsókn fyrir brú af svölum íbúðar að Barmahlíð 54 í Reykjavík yfir á þak bílskúrs og gerð þaksvala þar, með stiga niður í garð á nefndri lóð.

Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun borgarráðs frá 17. júlí 2008 um að leggja fyrir kæranda að fjarlægja og færa til fyrra horfs tilgreind mannvirki innan 30 daga, að viðlögðum dagsektum sem í ákvörðuninni greinir, en réttaráhrifum ákvörðunarinnar er frestað frá 29. júlí 2008 til 27. nóvember 2008.

21. Ingólfsstræti 21B, kæra, umsögn, úrskurður (01.180.2) Mál nr. SN060168
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 19. nóvember 2008 vegna kæru á ákvörðun skipulagsráðs frá 25. janúar 2006 um að afturkalla samþykkt byggingarfulltrúa frá 22. febrúar 2005 og synja um samþykkt byggingarleyfis fyrir áður gerðum geymsluskúr á lóðinni nr 21b við Ingólfsstræti.
Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 25. janúar 2006, sem staðfest var í borgarráði 26. sama mánaðar, um að afturkalla samþykkt byggingarfulltrúa frá 22. febrúar 2005 og synja um samþykkt byggingarleyfis fyrir áður gerðum geymsluskúr á lóðinni nr. 21b við Ingólfsstræti.

22. Skúlagata 13, breyting á deiliskipulagi (01.154) Mál nr. SN080687
Nýborg ehf, Súlunesi 19, 210 Garðabær
Gunnlaugur Johnson, Nesbali 74, 170 Seltjarnarnes
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Skúlagötu 13.

23. Landakot, breyting á deiliskipulagi (01.160.1) Mál nr. SN080534
Kaþólska kirkjan á Íslandi, Pósthólf 490, 121 Reykjavík
Silja Traustadóttir, Lynghagi 4, 107 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytingar á deiliskipulagi fyrir Landakot.

24. Alþingisreitur, breyting á deiliskipulagi (01.141.1) Mál nr. SN080659
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Batteríið ehf, Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfjörður
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Alþingisreit.

25. Heiðargerði 76, breyting á deiliskipulagi Heiðargerðisreits Mál nr. SN040110
Hús og skipulag ehf, Bolholti 8, 105 Reykjavík
Guðmundur Ó. Eggertsson, Heiðargerði 76, 108 Reykjavík
Lögð fram tölvubréf Marteins Mássonar hrl. dags. 28. október og 24. nóvember 2008 þar sem óskað er eftir að umsókn umbjóðenda hans um breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits verði tekin upp að nýju.
Ráðið beinir því til umsækjanda að leggja fram að nýju samhljóða umsókn um breytingu á deiliskipulagi til að unnt sé að vísa henni til grenndarkynningu að nýju.

26. Bergstaðastræti 18, sala byggingarréttar fyrir flutningshús(01.184.0)Mál nr. SN080712
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lögð fram bókun framkvæmda- og eignaráðs frá 10. nóvember 2008 þar sem tillaga skrifstofustjóra framkvæmda- og eignasviðs, dags. 6. s.m., varðandi sölu byggingarréttar fyrir flutningshús á Bergstaðastræti 18 er samþykkt með þeim fyrirvara að gerð verði breyting á deiliskipulagi á umræddu svæði. Málinu er vísað til skipulagsráðs.
Frestað.

Fundi slitið kl. 11.40.

Júlíus Vífill Ingvarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Brynjar Fransson Svandís Svavarsdóttir
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2008, þriðjudaginn 2. desember kl. 10.15 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 516. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Björn Kristleifsson, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Bakkastaðir 45 (02.421.103) 178891 Mál nr. BN039069
Grágrýti ehf, Bakkastöðum 47, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til ógildingar á byggingarleyfi BN038837, sem staðfest var í borgarráði þann 11. september 2008, á lóðinni nr. 45 við Bakkastaði.
Ástæða þessa er frestun á fyrirhugðaðri framkvæmd um óákveðin tíma vegna ótryggs efnahagsástands
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellir ekki úr gildi byggingarleyfi BN038837 frá 9. september 2008 vegna sökkla sem ekki voru rifnir. Lóðarhafi er ábyrgur fyrir frágangi lóðarinnar og ber að hafa eftirlit með henni þar til framkvæmdir verða leyfðar að nýju. Sérstaklega skal hugað að ekki myndist vatnsuppistöður á lóðinni né þar sé fallhætta.

2. Baldursgata 32 (01.186.321) 102274 Mál nr. BN039234
Baldursgata ehf, Fensölum 6, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til niðurrifs vegna bruna einbýlishúsið á lóð nr. 32 við Baldurgötu.
Niðurrif: Fastanr. 200-7689, mhl. 01, merkt 0101 Íbúð 201 ferm.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Bankastræti 5 (01.170.008) 101326 Mál nr. BN038871
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta eldhólfum milli hæða og breytingum á flóttaleiðum í verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóðinni nr. 5 við Bankastræti.
Gjald 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Bergstaðastræti 22 (01.184.012) 102007 Mál nr. BN039102
Fríða Bragadóttir, Bakkastígur 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja þak og breyta skipulagi innandyra í einbýlishúsi á lóð nr. 22 við Bergstaðastræti.
Meðfylgjandi er lóðarlýsing dags. 26.maí 1925. Umsögn Minjasafns Reykjavikur dags 01.des. 2008 og Húsafriðunarnefndar dags. 25. ágúst 2008 fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Enda verði haft fullt samráð um úrfærslur við Húsafriðunrnefnd og Minjasafn Reykjavíkur samanber umsagnir þeirra.

5. Bitruháls 1 (04.303.001) 111018 Mál nr. BN039248
Auðhumla svf, Austurvegi 65, 800 Selfoss
Sótt er um leyfi til að innrétta ostapökkun og endurbæta eldhúsaðstöðu í matshluta 01, innrétta véla- og trésmíðaverkstæði í Mhl. 03, móttaka verður stækkuð og nýjum innkeyrsluhurðum komið fyrir í atvinnuhúsinu á lóð nr. 1 við Bitruháls.
Samþykki frá burðarvirkjarhönnuði um sögun á dyragati dags 10.nóvember 2008.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjöld kr. 7.300 +XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bræðraborgarstígur 24A (01.134.405) 100375 Mál nr. BN038232
Droplaug Ólafsdóttir, Bræðraborgarstíg 24a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á suðausturþekju og byggja svalir á suðvesturgafl íbúðarhússins nr. 24A við Bræðraborgarstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. maí 2008 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 15. maí 2008 fylgja erindinu.
Sömuleiðis samþykki meðeiganda ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008.
Grenndarkynning stóð frá 1. ágúst til og með 1. september 2008. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 20,7 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Efstaland 26 (01.850.101) 108756 Mál nr. BN039250
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á þriðju hæð og til að sameina eignarhluta 0302 og 0301 í atvinnuhúsi á lóð nr. 26 við Efstaland.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

8. Gamli flugturnin, viðbygging Mál nr. BN039227
Flugstoðir ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa viðbyggingu við gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli.
Erindi fylgir bréf frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur dags. 3. nóvember 2008.
Niðurrif: Mhl. 10 merkt 0101 skýli 176 ferm?
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Gera betur grein fyrir erindinu.

9. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN039238
Álar ehf, Verbúð 8,Geirsgötu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta fiskbúð í verbúð nr. 7 á lóð nr. 3a -7c við Geirsgötu.
Meðfylgjandi er bréf frá hönnuði dags. 25. nóvember 2008 og bréf frá eiganda dags. 24. nóvember 2008
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Háaleitisbraut 68 (01.727.301) 107329 Mál nr. BN039119
Húsfélagið Háaleitisbraut 68,eh, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta samþykktum byggingaráfanga sbr. erindi BN038993 dags. 7.10.2008 í tvennt , þannig verði 1. áfangi tilheyrandi Landsvirkjun byggður nú, en 2. áfangi síðar, við hús á lóð nr. 68 við Háaleitisbraut.
Stærðir: 1. áfangi 38,2 ferm., 166,41 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 12.148
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

11. Hlíðarfótur 81C (Silfurstaðir ) (00.000.000) 106930 Mál nr. BN039228
Flugstoðir ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa húsið á lóð nr. 81c við Hlíðarfót.
Erindi fylgir bréf frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur dags. 3. nóvember 2008.
Niðurrif: Fastanr. 202-9687, mhl. 27 merkt 0101 Silfurstaðir byggt 1944, stærð 98 ferm.
Gjald kr.7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

12. Hólmsheiði fjáreig.fé (05.8--.-96) 113450 Mál nr. BN038217
Unnsteinn Tómasson, Vallartröð 5, 200 Kópavogur
Hilmar Þ Sigurþórsson, Arnarhöfði 10, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt tveggja hæða hesthús fyrir 17 hesta með lagnakjallara á lóðinni nr. 22 við B-Götu við Hólmsheiði.
Stærð 1. hæð 158,8 ferm., 2. hæð 42,1 ferm. samtals 200,9 ferm., 906,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 66.181
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

13. Hraunbær 115 (04.333.401) 212993 Mál nr. BN039236
Faghús ehf,Reykjavík, Akralind 6, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi fyrir minni háttar breytingum á innra fyrirkomulagi sem orðið hafa á byggingartíma heilsugæslustöðvar, erindi BN036598 dags. 16. október 2007, á lóð nr. 115 við Hraunbæ.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

14. Hrefnugata 3 (01.247.207) 103358 Mál nr. BN039168
Fjalar Kristjánsson, Öldugata 24, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr og rishæð ásamt breytingum inni á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3 við Hrefnugötu.
Kaupsamningur um byggingarrétt með lausnarskilyrði dags. 29. feb. 2008 fylgir málinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. nóvember 2008 og umsögn skipulagsstjóra dags. 27. nóvember 2008 fylgja erindinu.
Stækkun: Bílskúr 39,7 ferm 90,9 rúmm. Rishæð 56,6 ferm. 151,4 rúmm. Samtals: 96,3 ferm. 242,3 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 17.688
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Jafnframt er vísað til umsagnar skipulagsstjóra frá 27. nóv. 2008.

15. Hringbraut 12 (01.622.101) 209170 Mál nr. BN036517
Olíufélagið ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Sótt er um breytingu á áður samþykktum teikningum (erindi BN034425) þar sem skilti á húsi eru lagfærð, gerð grein fyrir skiltastandi (6,9 m hár og 2,5 m breiður) staðsettur á suðaustur horni lóðar við Hringbraut ásamt minniháttar breytingum á innréttingum, brunamerkingum og brunatexta í lýsingu fyrir þjónustumiðstöð Olíufélagsins (N1) á lóð nr. 12 við Hringbraut.
Ljósmyndir hönnuðar af skiltum dags. 8 ágúst - 20. júlí 2007 fylgja erindi. Bréf brunahönnuðar dags. 19. júlí 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar Vegagerðarinnar vegna rafrænna skilta.

16. Hringbraut 50 (01.162.401) 101314 Mál nr. BN039241
Grund,elli- og hjúkrunarheimili, Hringbraut 50, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 2. hæðar með því að fækka og stækka hluta íbúðarherbergjanna í elliheimilinu Grund á lóðinni nr. 50 við Hringbraut.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar, dags. 30 okt.2008
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

17. Hverfisgata 52 (01.172.101) 101439 Mál nr. BN037730
Guðjón Þór Pétursson, Hverfisgata 52, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem önnur hæðin er breytt frá verslun í íbúð og minnháttar breytingar í kjallara í verslunar og íbúðarhúsnæðinu á lóð nr. 52 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda.

18. Ingólfsstræti 20 (01.180.111) 101687 Mál nr. BN038604
Sigríður Erla Gunnarsdóttir, Ingólfsstræti 20, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa bílskúr og byggja í staðinn viðbyggingu með kjallara, hæð og risi og setja nýja kvisti á rishæðina á einbýlishúsi á lóð nr. 20 við Ingólfsstræti.
Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 11. ágúst 2008 fylgir erindinu. Einnig fylgir ný umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 25. ágúst og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 21. sama mánaðar 2008.
Tillagan var grenndarkynnt frá 1. ágúst til og með 1. október 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Guðspekifélag Íslands dags. 17. september 2008.
Núv. hús 167,4 ferm., 481,2 rúmm., stækkun 59,9 ferm., 159,9 rúmm., samtals eftir stækkun 227,3 ferm., 641,1 rúmm. Stærð skúrs, sem verður rifinn er 21 ferm., 63 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 11.673
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Kárastígur 1 (01.182.308) 101905 Mál nr. BN039106
Kaffismiðja Íslands ehf, Kárastíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta rýmisnúmerum, notkun á innra rými og húsnæði á 1. hæð í kaffihúsi og kaffibrennslu og leyfi fyrir uppsetningu reykrörs frá 1. hæð upp fyrir þak húss á lóð nr. 1 við Kárastíg.
Meðfylgjandi er yfirlýsing eigenda hússins. Einnig teikning verkfræðings, sem sýnir loftræsingu.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

20. Klettagarðar 23 (01.324.501) 199101 Mál nr. BN039157
John Lindsay hf, Skipholti 33, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi með því að setja upp vegg í lagerrými, breyta móttöku og fundarherbergi í skrifstofu- og lagerhúsi á lóð nr. 23 við Klettagarða sbr. byggingarleyfi BN034670.
Gjald kr.7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Laugavegur 170-172 (01.250.201) 103431 Mál nr. BN039242
Mænir ehf, Lyngási 11, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að klæða austurgafl með hvítum sléttum álplötum verslunarhússins á lóð nr. 170 - 172 við Laugaveg.
Bréf frá burðavirkjahönnuði um ástand gafls dags. 26. nóvember 2008 fylgir erindi.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

22. Lækjarmelur 8 (34.533.509) 213997 Mál nr. BN039249
Suðursteinn ehf, Krókhálsi 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi BN036807 samþykkt 24.okt. 2007, með því að breyta stigum og færa snyrtingu af 2. hæð niður á 1. hæð geymsluhúsnæðis á lóð nr. 8 við Lækjarmel.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Naustabryggja 13-15 (04.023.603) 191185 Mál nr. BN039229
Naustabryggja 13-15,húsfélag, Naustabryggju 13-15, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum sem felst í að breyta verslunarrými 0103 í íbúð, breyta gluggum, setja þakglugga á rishæð, íbúð 0104 breytt svo að hjólastólafólk getur notað hana og loka milli hæða rýmis
0506, 0505 og 0406, 0405 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 13-15 við Naustabryggju.
Stækkun: Flatarmál þakrýmis XXX ferm.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

24. Njálsgata 4B (01.182.204) 101856 Mál nr. BN039148
Austur-Indíafélagið ehf, Hverfisgötu 56, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera #GLstúdíóíbúð#GL í kjallara og breyta 1.hæð og 2. hæð í eina íbúð í húsi á lóð nr. 4B við Njálsgötu.
Virðingargjörð dags. 17. júlí 2008, tengiskýrsla dags. 22. ágúst 1956 og íbúðarskoðun dags. 20.nóv. 2008 fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Ekki er unnt að samþykkja íbúð í kjallara sbr. skoðunarskýrslu, né afmörkun hennar sem séreignarhluta.

25. Njálsgata 8C (01.182.208) 101860 Mál nr. BN039191
Anna Lára Lárusdóttir, Bergstaðastræti 26b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjölga þakgluggum og gera íbúð nr. 0201 að gististað í fl. 2 sbr. fyrirspurn BN039085 sem fékk jákvæða umfjöllun dags. 4.11.08 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 C við Njálsgötu.
Bréf umsækjanda og samþykki meðeigenda fylgir fyrirspurn. Sömuleiðis teikningar af gluggum sem sýna björgunarop í mkv. 1:20
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Seljavegur 2 (01.130.105) 100117 Mál nr. BN038916
Seljavegur ehf, Hamraborg 12, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að innrétta verslunarhúsnæði sem apótek, færa útidyr í vegg, loka bakdyrum og hurð yfir í mhl.02 og loka innistiga upp á 2. hæð í mhl. 01 á 1. hæð í húsi á lóð nr. 2 við Seljaveg.
Meðfylgjandi er skiltabókhald dags. 14.10. 2008, yfirlýsing sumra eigenda vegna tilflutnings hurðar í útvegg og skiltabókhalds sömuleiðis er meðfylgjandi fundargerð húsfundar í húsfélaginu Seljavegi 2 dags. 20.11. 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Í umsókninni fellst flutningur á útidyrum á 1. hæð. Dyrnar eru fluttar til þess að bæta aðgengi að lyfjaverslun.
Með hliðsjón af því að hér er aðeins um flutning á dyrunum að ræða telur byggingarfulltrúi að um minniháttar breytingu sé að ræða og því þurfi ekki samþykki allra eigenda, sbr. A-lið í gr. 41 í fjöleignarhúsalögum nr. 26/1998, heldur nægji einfaldur meirihluti til samþykktarinnar sbr. D-lið fyrrnefndrar greinar. Á þeirri forsendu er málið samþykkt.

27. Sogavegur 3 (01.810.-98) 107820 Mál nr. BN039246
Þorp ehf, Bolholti 4, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi úr söluturni í fiskbúð breyta útliti og koma fyrir skjólveggjum og skiltum á verslunarhúsi á lóð nr. 3 við Sogarveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

28. Spöngin 43 (02.378.501) 215349 Mál nr. BN039145
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt þjónustu- og menningarhús á tveim hæðum með kjallara með léttri miðbyggingu, tengt þjónustu- og öryggisíbúðum við Fróðengi 1-11. Í kjallara er félagsstarf aldraðra, starfsmannaaðstaða, geymslur, tæknirými og sorp. Á 1. hæð er móttaka, veitingasalur með eldhúsi, borgarbókasafn, lögregla, samkomusalir, kapella ásamt aðstöðu og félagsstarf aldraðra. Á 2. hæð er félagsþjónusta, öldrunarþjónusta og sjúkraþjálfun.
Allt í húsi á lóð nr. 43 við Spöngina.
Stærðir: Kjallari 654,5 ferm., bílakjallari 3.749,3 ferm.,1. hæð 2972,6 ferm., 2. hæð 1740,1 ferm.
Samtals 9.116,2 ferm., 36.078,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 2.633.745
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

29. Tjarnargata 12 (01.141.306) 100909 Mál nr. BN039237
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um ýmsar breytingar á nýsamþykktu erindi, BN038133 dags. 21. október 2008, ásamt því að sótt er um leyfi til að rífa bakhús norðan við leikhúsið á lóð nr. 12 við Tjarnargötu.
Erindi fylgir greinargerð dags. 21. nóvember 2008, þar sem tíundaðar eru helstu breytingar.
Stærð niðurrifs: xx ferm., rúmm.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Tjarnargata 16 (01.141.303) 100907 Mál nr. BN039146
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, Hverfisgata 59, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi og notkun úr atvinnuhúsnæði í íbúð á 1. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 16 við Tjarnargötu.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

31. Vatnsmýrarvegur 22 (01.62-.-98) 106650 Mál nr. BN039261
Ríkisspítalar, Pósthólf 5260, 125 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa húsið #GLBólstað#GL á lóðinni nr. 22 við Vatnsmýrarveg, um er að ræðar gamalt steinsteypt hús ásamt útihúsi.
Niðurrif matshl. 01 fastan. 202-8983 stærð 167,9 ferm. byggt árið 1923 og matshl. 02 fastan. 202-8984 stærð 22 ferm. byggt árið 1924.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

32. Vesturgata 25 (01.136.002) 100505 Mál nr. BN039222
Baldur E Jensson, Hringbraut 50, 107 Reykjavík
Eyjólfur Baldursson, Bjarmaland 24, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningar, núverandi ástand með áorðnum breytingum frá upphafi, af íbúðarhúsi á lóð nr. 25 við Vesturgötu.
Meðfylgjandi er bréf frá arkitekt.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda á umsóknarblaði.

33. Vesturgata 4 (01.132.107) 100215 Mál nr. BN039045
Avion Aircraft Trading hf, Grófinni 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að síkka glugga og setja handrið á kvist á norðvesturhlið húss á lóð nr. 4 við Vesturgötu.
Umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 1 des. 2008 og Húsafriðunarnefndar dags. 13. nóv. 2008
Samþykki meðeigenda af húseign fylgir dagsett 16.10.2008
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Vogaland 1 (01.880.006) 108847 Mál nr. BN039247
Björn Traustason, Vogaland 1, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, m. a. hefur verið innréttuð aukaíbúð í kjallara og komið fyrir nýjum glugga þar, byggt yfir hluta svala og fyrirkomulagi bílastæða breytt og fjölgað í þrjú við einbýlishúsið á lóð nr. 1 við Vogaland.
Áður gerð stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

35. Þingholtsstræti 31 (01.183.604) 101988 Mál nr. BN039073
Torfi Tulinius, Þingholtsstræti 31, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum og nýrri skráningartöflu á grunni þeirra fyrir einbýlishús á lóð nr. 31 við Þingholtsstræti.
Meðfylgjandi er ódagsett bréf húseiganda.
Stærðir 275,2 ferm., 802,3 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Ýmis mál

36. Fannafold 158 (02.852.606) 110017 Mál nr. BN039252
Byggingarfulltrúi leggur til að eystri hluti parhúss á lóðinni Fannafold 158 verði tölusettur sem Fannafold 158A.
Landnr. 110017, mhl. 01-0101, fastanr. 204-1506.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

37. Sólvallagata 79 (01.138.101) 100717 Mál nr. BN039251
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta stærðum lóðanna Sólvallagata 79 og lóðar við Hringbraut (ótölusett) eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti dags. 14. nóvember 2008.
Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin við Hringbraut verði skráð nr. 122.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

38. Fiskislóð 34-38 (01.087.305) 215981 Mál nr. BN039240
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist fyrir að stækka og breyta áður samþykktri teikningum BN037809 samþykkt 6. maí 2008 af fiskverkunarhúsi á lóð nr.34-38 við Fiskislóð.
Stækkun: 432 ferm og 2814 rúmm.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

39. Fífusel 2-18 (04.970.601) 113158 Mál nr. BN039235
Mihajlo Zivojinovic, Kjarrhólmi 12, 200 Kópavogur
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir ósamþykktri íbúð merkt 0002 á jarðhæð fjölbýlishússins nr. 12 á lóð nr. 2-18 við Fífusel.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi samanber einnig umfjöllun frá 12. des. 2006.

40. Karfavogur 46 (01.444.002) 105516 Mál nr. BN039254
Kristján Kristjánsson, Karfavogur 46, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr og vinnustofu, ásamt því að koma fyrir upphækkaðri verönd eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af tvíbýlishúsinu á lóð nr. 46 við Karfavog.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

41. Laugarnesvegur 68 (01.346.003) 104056 Mál nr. BN039243
Guðrún Anna Kjartansdóttir, Kaplaskjólsvegur 55, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að loka svölum með glerlokun úr perlugleri á 1. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 68 við Laugarnesveg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgir viðeigandi samþykki meðeigenda.

42. Njörvasund 5 (01.413.108) 105090 Mál nr. BN039233
Þóra Pétursdóttir, Drekavellir 26, 221 Hafnarfjörður
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir áður gerðri kjallaraíbúð í íbúðarhúsinu á lóð nr. 5 við Njörvasund.
Erindi fylgir bréf umsækjenda og virðingargjörð dags. 20. febrúar 1960
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

43. Skúlagata 64-80 (01.222.212) 102874 Mál nr. BN039213
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi lyftu við suðursvalir til að bæta aðgengi að íbúðum fjölbýlishúss á lóð nr. 64 - 66 við Skúlagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. nóvember 2008 fylgir erindinu.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi samanber bókun skipulagsstjóra frá 28. nóv. 2008.

44. Vegamótastígur 4 (01.171.404) 101413 Mál nr. BN039239
Ölstofa Kormáks og Skjaldar ehf, Lindargötu 25, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist fyrir útiveitingar með sæti fyrir 12 manns við veitingastað á lóð nr.4 við Vegamótastíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

45. Veltusund 1 Mál nr. BN039245
Hilmar Þór Hilmarsson, Búland 23, 108 Reykjavík
Sigrún Halldóra Einarsdóttir, Fellahvarf 21, 203 Kópavogur
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja upp krá/ölstofu í kjallara með lofthæð 2,30 metrar og skráð stærð 55,3 ferm í atvinnuhúsi Veltusundi 1 á lóð nr. 4 við Hafnarstræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 12.20

Magnús Sædal Svavarsson
Sigrún Reynisdóttir Björn Kristleifsson
Þórður Búason Jón Hafberg Björnsson
Eva Geirsdóttir