Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 19. nóvember kl. 09.08, var haldinn 155. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Stefán Þór Björnsson, Svandís Svavarsdóttir, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Haraldur Sigurðsson, Margrét Þormar, Jóhannes Kjarval, Örn Þór Halldórsson, Margrét Leifsdóttir og Gunnhildur S Gunnarsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 14. nóvember 2008.

2. Skúlagata 13. (01.154) Mál nr. SN080687
breyting á deiliskipulagi
Nýborg ehf, Súlunesi 19, 210 Garðabær
Gunnlaugur Johnson, Nesbali 74, 170 Seltjarnarnes
Lögð fram umsókn Nýborgar ehf fasteignafélags dags. 11. nóvember 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 13 við Skúlagötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til austurs og suðurs, einnig er sótt um vöruaðkomu af Sæbraut samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti Gunnlaugs Ó. Johnson dags. 26. ágúst 2008. Einnig er lögð fram eldri umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 10. júní 2008.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:13

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu. Jafnframt er samþykkt að upplýsa hagsmunaaðila í nágrenninu um tillöguna sérstaklega.
Vísað til borgarráðs.

3. Hólmsheiði, Fisfélag Reykjavíkur, (05.18) Mál nr. SN080691
breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Lögð fram drög að matsskýrslu dags. 14. nóvember 2008 vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Samþykkt að senda matslýsingu til umsagnar á Skipulagsstofnun, sbr. 6. gr laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

4. Lokastígsreitir 2, 3 og 4, forsögn Mál nr. SN080688
Lögð fram drög að forsögn að deiliskipulagi Lokastígsreita 2, 3 og 4 dags. í nóvember 2008
Tillaga skipulags- og byggingarsviðs að forsögn samþykkt.
Samþykkt að kynna framlagða forsögn fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

5. Landakot, breyting á deiliskipulagi (01.160.1) Mál nr. SN080534
Kaþólska kirkjan á Íslandi, Pósthólf 490, 121 Reykjavík
Silja Traustadóttir, Lynghagi 4, 107 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kaþólsku kirkjunnar dags.um breytingu á deiliskipulagi Landakotsreits vegna lóðar Landakotskirkju samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Silju Traustadóttur arkitekts dags. 12. ágúst 2008 vegna byggingarreits fyrir opið Maríugerði. Maríugerði er opið hringlaga svæði sem fellt verður niður fyrir jarðvegsyfirborð um tvö þrep og gert úr steinsteyptum súlum og bogum að austan, norðan og vestan en syðri hluti verður hlaðinn úr náttúrusteini utan á steinsteypta hvelfingu. Gerðið er að mestu opið til himins og lýst upp með mildri raflýsingu. Tillagan var auglýst frá19. september 2008 til og með 31. október 2008. Athugasemd barst frá Stefáni Stefánssyni, dags. 30.október 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. nóvember 2008.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra með fjórum atkvæðum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins Júlíusi Vífli Ingvarssyni , Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og fulltrúum Framsóknarflokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Stefáni Þór Björnssyni.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs; Svandís Svavarsdóttur og fulltrúi Samfylkingarinnar Björk Vilhelmsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins. Fulltrúi Samfylkingarinnar Stefán Benediktsson greiddi atkvæði á móti tillögunni og óskaði bókað: “Einkenni bygginga Guðjóns Samúelsson er að þær bera oft umhverfi sitt yfirliði á sinn hátt sbr. Þjóðleikhúsið, Háskóli Íslands og Landakotskirkja. Þetta þýðir að mannvirki sem sett eru niður nærri þeim trufla útlit þeirra. Fyrirhugað Maríugerði er að mínu mati of nærri kirkjunni”.

6. Bíldshöfði 20, breyting á deiliskipulagi (04.065.1) Mál nr. SN080590
Smáragarður ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur
ASK Arkitektar ehf, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 19. september 2008 var lögð fram umsókn Smáragarðs ehf. dags. 15. september 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 20 við Bíldshöfða. Í breytingunni er gert ráð fyrir 9. hæða viðbyggingu ásamt kjallara samkv. meðfylgjandi uppdrætti ASK arkitekta dags. 5. september 2008. Einnig er lögð fram eldri umsögn umhverfis- og samgöngusviðs dags. 4. júní 2008 og eldri umsögn skipulagsstjóra dags. 20 ágúst 2008. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra Höfðahverfis og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 26. september 2008. Einnig eru lagðir fram nýjir uppdrættir ASK arkitekta mótt. 24. október 2008.
Kynnt.

7. Alþingisreitur, breyting á deiliskipulagi (01.141.1) Mál nr. SN080659
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Batteríið ehf, Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfjörður
Lögð fram umsókn Alþingis dags. 22. október 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi Alþingisreits. Í breytingunni felst að færa götuhlið nýbyggingar Kirkjustrætis 6 út í sömu línu og eldri hús. Einnig er sótt um að rýmka byggingarreit fyrir göngubrú samkv. meðfylgjandi uppdrætti Batterísins dags. 22. október 2008.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN039211
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 514 frá 18. nóvember 2008.

9. Freyjubrunnur 29, stækkun og breyting 4. hæð (02.695.503) Mál nr. BN039155
Fasteignafélagið Hlíð ehf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. nóvember 2008 þar sem sótt er um leyfi til að stækka og breyta efstu hæð fjölbýlishúss úr steyptum einingum á lóð nr. 29 við Freyjubrunn.
Stærðir: Stækkun 41,9 ferm., 315,9 rúmm.
Eftir stækkun samtals 874,3 ferm., 2.909 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 23.060
Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

10. Ingólfsstræti 20, (01.180.111) Mál nr. BN038604
rífa bílskúr, byggja viðbyggingu með kjallara hæð og risi. einnig er sótt um nýja kvisti á rishæð
Sigríður Erla Gunnarsdóttir, Ingólfsstræti 20, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. ágúst 2008 þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúr og byggja í staðinn viðbyggingu með kjallara, hæð og risi og setja nýja kvisti á rishæðina á einbýlishúsi á lóð nr. 20 við Ingólfsstræti. Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 11. ágúst 2008 fylgir erindinu.
Erindið var tekið fyrir á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 22. ágúst 2008. Eftirfarandi var bókað: ,,Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Þingholtsstræti nr. 21 og 23 og Ingólfsstræti nr. 18, 21, 22, og 23 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 11. ágúst 2008.#GL Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt beiðni Guðspekifélags Íslands dags. 29. ágúst 2008 þar sem óskað er eftir framlengingu grenndarkynningar. Tillagan var grenndarkynnt frá 1. ágúst til og með 1. október 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Guðspekifélag Íslands dags. 17. september 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 11. nóvember 2008.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að byggingarleyfi verði gefið út þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

(C) Fyrirspurnir

11. Háskóli Íslands, Vísindagarðar, (01.63) Mál nr. SN070730
(fsp) heildaruppbygging lóðar
Lögð fram fyrirspurnartillaga Ask arkitekta, dags. 8. október 2008, að heildaruppbyggingu lóðar Vísindagarða ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. nóvember 2008.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir gerði skipulagsráði grein fyrir að hún væri fulltrúi Menntamálaráðherra í Háskólaráði. Ráðið gerði ekki athugasemd við það.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir vék af fundi kl. 11:45 þá höfðu allir liðir fundarins verið afgreiddir nema liður 11.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Stefán Þór Björnsson viku af fundi kl. 11:55 þá höfðu allir liðir fundarins verið afgreiddir nema liður 11.
Kynnt.
(D) Ýmis mál

12. Suðurhús 4, dómur Hæstaréttar (02.848.8) Mál nr. SN080698
Lagður fram dómur Hæstaréttar dags. 6. nóvember 2008 þar sem dæmt er í máli Arngunnar Jónsdóttur og Helga Rafnssyni gegn Reykjavíkurborg.
Dómsorð: Viðurkennt er að útgáfa byggingarleyfisins af hálfu stefndu Reykjavíkurborgar til stefnda Björns Andrésar Bjarnasonar 28. júlí 2006 hafi verið ólögmætt.

13. Njálsgata 74, heimili fyrir heimilislausa (01.191.1) Mál nr. SN080697
Lögð fram tillaga velferðarráðs frá 12. nóvember 2008 þar sem lagt er til að staðsetning heimilis fyrir heimilislausa að Njálsgötu 74 verði óbreytt í ljósi þeirrar reynslu sem fengin er. Einnig lögð fram starfsskýrsla dags. 5. nóvember 2008.

14. Götu- og torgsala, Götu- og torgsala Mál nr. SN080682
Lögð fram til kynningar samþykkt Borgarstjórnar frá 4. nóvember 2008 um götu- og torgsölu í Reykjavík

15. Hraunbær 51-67, Lagt fram bréf (nr. 59) (04.331.702) Mál nr. BN039210
Lagt fram minnisblað byggingarfulltrúa dags. 16. nóvember 2008 vegna opins bréfs byggingarleyfishafa frá 27. október sl. vegna byggingarleyfis í húsi nr. 59 á lóðinni nr. 51-67 við Hraunbæ.
Minnisblað byggingarfulltrúa samþykkt.

16. Götuheiti - Tillaga um ný götuheiti, Mál nr. BN039172
Lögð fram að nýju tillaga nafnanefndar frá 10. þ.m. um götu- og torgaheiti á Slippasvæði.
Tillaga nafnanefndar samþykkt.

17. Klapparstígsreitur 1.182.0, kæra, umsögn (01.182.0) Mál nr. SN070503
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 12. nóvember 2008 vegna kæru á samþykkt skipulagsráðs á tillögu að deiliskipulagi fyrir reit 1.182.0.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

Fundi slitið kl. 12.00.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Svandís Svavarsdóttir Stefán Benediktsson
Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2008, þriðjudaginn 18. nóvember kl. 10:00 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 514. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Björn Kristleifsson, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 6 (01.136.502) 100592 Mál nr. BN039195
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til undirbúnings breytinga á hluta verslunar og skrifstofuhúsanna í hótel á lóðum nr 6 og 8 við Aðalstræti.
Erindi fylgja bréf hönnuðar dags. 11. nóvember 2008, fundargerð dags. 10. nóvember 2008, samkomulag milli Arkís fasteignir efh. og Landic Ísland ehf. dags. 17. október 2008, yfirlýsing um leigusamning dags. 11. nóvember 2008, samþykki um tengingu milli fasteigna að Aðalstræti 4, 6 og 8 dags. 7. nóvember 2008, umboð frá TM til Landic Properties dags. 12. nóvember 2008 og yfirlýsing eiganda Miðbæjarhótel/Centerhotels dags. 11. nóvember 2008.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vantar samþykki eins meðeiganda.

2. Aðalstræti 6 (01.136.502) 100592 Mál nr. BN039194
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa #GLHéðinshús#GL, eignarhluta sem merktur er 0104 á baklóð og til að lækka jarðveg þar undir til samræmis við aðliggjandi rými hótelsins á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Erindi fylgja bréf hönnuðar dags. 11. nóvember 2008, fundargerð dags. 10. nóvember 2008, samkomulag milli Arkís fasteignir efh. og Landic Ísland ehf. dags. 17. október 2008, yfirlýsing um leigusamning dags. 11. nóvember 2008, samþykki um tengingu milli fasteigna að Aðalstræti 4, 6 og 8 dags. 7. nóvember 2008, umboð frá TM til Landic Properties dags. 12. nóvember 2008 og yfirlýsing eiganda Miðbæjarhótel/Centerhotels og yfirlýsing ANS ehf. vegna undirbúningsframkvæmda dags. 11. nóvember 2008.
Niðurrif 0104 186,7 ferm., og 452,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vantar samþykki eins meðeiganda.

3. Austurbakki 2 (01.119.801) 209357 Mál nr. BN038981
Eignarhaldsfélagið Portus hf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Sótt er um breytingu á spennistöð við austurhlið tónlistar- og ráðstefnuhússins (sbr. erindi BN37260 og breytingu BN37608) að neðanjarðar bílahúsi á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Bréf hönnuðar dags. 22. sept. 2008, minnisblað varðandi útblástur frá varaaflstöð dags. 5. des. 2007 og tölvupóstur Umhverfissviðs Reykjavíkur frá 7. des. 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Spennistöð (matshluti 03) neðri kjallari 134,6 ferm., kjallari 294,4 ferm., samtals 429 ferm., 1715,2 rúmm.
Gjald kr. 7300 + 125.209
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Álfabakki 7 (04.602.801) 111717 Mál nr. BN039036
Olíuverslun Íslands hf, Pósthólf 310, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja eldsneytisbirgðageyma og til að innrétta kjallara sem geymslur og starfsmannaaðstöðu í bensínstöð á lóð nr. 7 við Álfabakka.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

5. Ármúli 3 (01.261.201) 103506 Mál nr. BN038630
Exista Properties ehf, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir ID skilti á lóð Ármúla 3
Skiltið verður á horni Ármúla og Hallarmúla. Einnig er sótt um að endurnýja skilti á húsinu.
Stærðir ID 12 ferm. Önnur skilti 64,2 samtals á lóð 76,2 ferm.
Umsögn gatna- og eignaumsýslu og Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 12. nóvember 2008 fylgja erindinu.
Gjald kr 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Enda er ekki um neina tegund af flettiskiltum að ræða.

6. Bankastræti 5 (01.170.008) 101326 Mál nr. BN038871
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta eldhólfum milli hæða og breytingum á flóttaleiðum í verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóðinni nr. 5 við Bankastræti.
Gjald 7.300
Frestað.
Enn er vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

7. Barónsstígur 5 (01.154.412) 101139 Mál nr. BN039181
Húsfélagið Barónsstíg 5, Pósthólf 683, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að færa geymslu 0103 og færð er inn á afstöðumynd gildandi umferðarkvöð á lóð fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Barónsstíg.
Erindi fylgir samþykki eigenda áritað á uppdrátt dags. 11. nóvember 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

8. Blönduhlíð 23 (01.713.016) 107227 Mál nr. BN038703
Arnar Þorkell Jóhannsson, Blönduhlíð 23, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum, innan sem utan, á risíbúð í íbúðarhúsi á lóð nr. 23 við Blönduhlíð.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda 6.3. 2008 og staðfesting burðarvirkjahönnuðar dags. 3.11. 2008
Stækkun xx
Gjald kr. 7.300 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Brattagata 3A (01.136.536) 100625 Mál nr. BN039178
Tómthús ehf, Lynghaga 3, 107 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 11.10.2002 sbr. erindi BN025563 samþykkt 8.10. 2002 um að fá leyfi til að breyta vinnuskúr í sérgeymslur, stækka kvisti á norðurþekju, byggja svalir og nýjan kvist á suðurþekju og innrétta nýja íbúð á þakhæð hússins á lóð nr. 3A við Bröttugötu.
Þessi skjöl fylgdu fyrra máli, brunatæknileg úttekt VSI dags. 28. júní 2002 . Umsögn Árbæjarsafns dags. 8. júlí 2002 og umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 8. júlí 2002 . Virðingargjörð dags. 1. nóvember 1941.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 20. ágúst 2002.
Stærð: Stækkun kvistir 3,6 ferm., 13,5 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 +986
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. B-Tröð 7 (04.765.307) 112477 Mál nr. BN039091
Erla Jóhannsdóttir, Fellahvarf 27, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að stækka hesthús í Víðidal með því að lyfta hluta af þaki hússins á lóð nr.7 við B-Tröð.
Samþykki meðeiganda húss fylgir dags. 21.okt 2008
Stækkun: 73,5 ferm og 313,6 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 22.893
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

11. Bæjarflöt 1-3 (02.576.001) 172493 Mál nr. BN039101
Matarkistan ehf, Skólastræti 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta 59 ferm. rými, sem samþykkt er sem skrifstofa á 2. hæð, í veitingaeldhús í atvinnuhúsi á lóð nr. 1 við Bæjarflöt
Erindi fylgir fyrirspurn BN038964, sem var svarað jákvætt 30. sept. 2008. Samþykki fyrir breytingum frá eigendum dags. 15.okt. 2008 .
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

12. C-Tröð 3 (04.765.403) 112485 Mál nr. BN039159
Barði Ágústsson, Silungakvísl 27, 110 Reykjavík
Benedikt Sveinsson, Sóltún 7, 105 Reykjavík
Guðmundur Már Stefánsson, Strandarhöfuð, 861 Hvolsvöllur
Þórður Clausen Þórðarson, Vatnsendablettur 247, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að stækka hesthús í Víðidal með því að lyfta hluta af þaki hússins á lóð nr.3 við C-Tröð.
Stækkun: 135,1 ferm og 435 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 31.755
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

13. Engjavegur 6 (00.000.000) 104719 Mál nr. BN039185
Íslensk getspá sf, Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi skrifstofum og fundaherbergi í endurhæfingarstöð með meðferðarrými og tækjarsal á 2. hæð í húsi á lóð nr. 6 við Engjaveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Eskihlíð 24-26 (01.705.801) 107114 Mál nr. BN039186
Georg Georgsson, Birkihlíð 28, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta þaki áður samþykktrar sólstofu sbr. erindi BN038520 dags. 8. júlí 2008 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 24 - 26 við Eskihlíð.
Gjald kr 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

15. Fiskislóð 11-13 (01.089.103) 209663 Mál nr. BN038305
Fasteignafélagið Fisk 11-13 ehf, Fagrahvammi 8, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að byggja flóttastiga, skyggni yfir inngang, milligólf yfir anddyri og afgreiðslu 1. hæðar og til að innrétta með geymslueiningum og tilheyrandi millipöllum og stigum nýsamþykkt, BN035034 dags. 12. desember 2006, atvinnuhús á lóðinni nr. 11-13 við Fiskislóð.
Meðfylgjandi er brunahönnun frá EFLA dags. 10. nóvember 2008, yfirlýsing burðarvirkishönnuðar dags. 3. apríl 2008 og tölvupóstur frá FMR dags. 3. apríl 2008.
Stækkun 131,3 ferm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Fyrir útgáfu á byggingarleyfi skal þinglýst yfirlýsingu þess efnis að samþykktin gildi fyrir núverandi notkun hússins sem geymsluhúsnæði. Verði núverandi notkun breytt ber að sækja um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun sem verði innan marka ákvæða deiliskipulags um nýtingarhlutfall.

16. Flugvöllur 106748 (01.66-.-99) 106748 Mál nr. BN039176
Flugstoðir ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja glugga í elsta hluta Flugturnsins með trégluggum með veðurvörn úr áli og klára að klæða utan með hvítri sléttri steniklæðningu á álgrind í Flugturninum á Reykjavíkurflugvelli.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Gnoðarvogur 64 (01.444.205) 105538 Mál nr. BN039193
Gunnar Björnsson, Langholtsvegur 116b, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir minni háttar breytingum á skráningarnúmerum vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 64 við Gnoðarvog.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Grettisgata 54 (01.190.109) 102384 Mál nr. BN039174
Benoný Benónýsson, Flúðasel 63, 109 Reykjavík
Þórður Daníel Ólafsson, Urðarstígur 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir þakglugga yfir stiga, fyrir breyttu fyrirkomulagi innan húss og að fá samþykkta #GLósamþykkta#GL íbúð í risi fjölbýlishússins á lóð nr. 54 við Grettisgötu.
Erindi fylgir skoðunarskýrsla Byggingarfulltrúa dags. 20 febrúar 2008.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Gvendargeisli 13 (05.133.601) 200752 Mál nr. BN039184
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innanhús með því að setja vask í leikstofu, hurð í listasmiðju, vegg í hvíldarherbergi og flytja til leikfangageymslu í leikskóla á lóð nr. 13 við Gvendargeisla.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Hallveigarstígur 1 (01.171.208) 101389 Mál nr. BN039109
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta inngangi í verslun á 1. hæð sbr. nýsamþykkt erindi BN038899 dags. 14.10.2008, en inngangur verður eingöngu á suðurhlið , en útgangur á vesturhlið í húsi á lóð nr. 1 við Hallveigarstíg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

21. Hamar úr Úlfarsfellsl 125515 (97.003.110) 125515 Mál nr. BN039152
Skipulagssjóður Reykjavborgar, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa og fjarlægja svínahús úr steinsteypu og timbri á lóð Hamars í Úlfarsfellslandi.
Stærð niðurrifs: fastanúmer 208-4971 mhl. 04 merkt 0101 svínahús 693,7 ferm., 1.236 rúmm.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

22. Hamar úr Úlfarsfellsl 125515 (97.003.110) 125515 Mál nr. BN039150
Skipulagssjóður Reykjavborgar, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa og fjarlægja svínahús úr steinsteypu og timbri á lóð Hamars úr Úlfarsfellslandi.
Stærð niðurrifs: fastanúmer 208-4972 mhl. 05 merkt 0101, svínahús 818,1 ferm., 2.410 rúmm.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

23. Hamar úr Úlfarsfellsl 125515 (97.003.110) 125515 Mál nr. BN039151
Skipulagssjóður Reykjavborgar, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa og fjarlægja íbúðarhús og bílskúr úr steinsteypu og timbri á lóð Hamars í Úlfarsfellslandi.
Stærð niðurrifs: fastanúmer 208-4968 mhl. 01 merkt 0101 íbúðarhús 163,7 ferm., 505 rúmm., og fastanúmer 208-4970 mhl. 03 merkt 0101 bílskúr 72,5 ferm., 217,5 rúmm.
Samtals niðurrif 236,2 ferm.,
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

24. Hátún 14 (01.234.002) 212123 Mál nr. BN039096
Íþróttafélag fatlaðra Reykjavík, Pósthólf 5214, 125 Reykjavík
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa áhaldageymslu og 60 m bogfimivöll með fjögurra metra hárri öryggisgirðingu við enda vallar og 170 cm á hliðum á lóð nr. 14 við Hátún.
Meðfylgjandi er bréf frá arkitekt dags. 4. nóvember 2008 með vísan í erlendar reglur.
Stærð: 17,6 ferm., 45,7 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 3.336
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Heiðargerði 38 (01.802.103) 107652 Mál nr. BN039182
Alla Dóra Smith, Heiðargerði 38, 108 Reykjavík
Einar Ingimarsson, Heiðargerði 38, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að lengja kvist um 55 cm, breyta skipulagi efri hæðar, bæta við tveim þakgluggum og lokuðu eldstæði sbr. nýsamþykkt erindi BN039182 dags. 14.ágúst 2007, í einbýlishúsi á lóð nr 38 við Heiðargerði.
Stærðir: Stækkun á kvist 0,3 ferm. 1,2 rúmm. Leiðrétting -1,1ferm. og -3,4 rúmm. Samtals -0,8 ferm og -2,2 rúmm.
Samtals eftir breytingu: 141,9 ferm., 385,5 rúmm.
Gjald kr 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Hlíðarendi 2-6 (01.628.801) 106642 Mál nr. BN039164
Knattspyrnufélagið Valur, Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík
Sótt er um tímabundið leyfi fyrir flóðlýsingar við nýgerðan gervigrasvöll. Um er að ræða tíu 12 m möstur sem raða sér kringum völlinn á svæði knattspyrnufélagsins Vals á lóð nr. 2-6 við Hlíðarenda.
Gjald 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Hraunbær 85-99 (04.331.502) 111068 Mál nr. BN028051
Victor Rafn Viktorsson, Hraunbær 93, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu úr timbri sem stækkun á stofu að suðurhlið hússins nr. 93 á lóðinni nr. 85-99 við Hraunbæ.
Samþykki húseigenda liggur fyrir fyrir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008 fylgir erindinu.
Stærð: Viðbygging 16,3 ferm. og 48,9 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 3.570
Frestað.
Með vísan til bókunar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008.

28. Hrefnugata 3 (01.247.207) 103358 Mál nr. BN039168
Fjalar Kristjánsson, Öldugata 24, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr og rishæð ásamt breytingum inni á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3 við Hrefnugötu.
Kaupsamningur um byggingarrétt með lausnarskilyrði dags. 29. feb. 2008 fylgir málinu.
Stækkun: Bílskúr 39,7 ferm 90,9 rúmm. Rishæð 56,6 ferm. 151,4 rúmm. Samtals: 96,3 ferm. 242,3 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 17.688
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

29. Hverfisgata 52 (01.172.101) 101439 Mál nr. BN037730
Guðjón Þór Pétursson, Hverfisgata 52, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem önnur hæðin er breytt frá verslun í íbúð og minnháttar breytingar í kjallara í verslunar og íbúðarhúsnæðinu á lóð nr. 52 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Klettagarðar 23 (01.324.501) 199101 Mál nr. BN039157
John Lindsay hf, Skipholti 33, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi með því að setja upp vegg í lagerrými, breyta móttöku og fundarherbergi í skrifstofu- og lagerhúsi á lóð nr. 23 við Klettagarða.
Gjald kr.7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

31. Kristnibraut 65-67 (04.115.402) 187992 Mál nr. BN039113
Búseti svf,húsnæðissamvinnufél, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja glerskerm fyrir svalaganga á annari og þriðju hæð svo og glerskerm og glerþak yfir svalaganga á 4.hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 65-67 við Kristnibraut.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

32. Langholtsvegur 164 (01.441.306) 105460 Mál nr. BN039138
Kristinn Sigurðsson, Langholtsvegur 164, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa núverandi steyptar svalir og byggja svalir úr timbri á tvíbýlishúsi á lóð nr. 164 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

33. Laugavegur 60 (01.173.115) 101532 Mál nr. BN039124
B.R.A.S.S ehf, Laugavegi 60a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta indverskan veitingastað á þremur hæðum í atvinnuhúsinu á lóð nr. 60 við Laugaveg.
Með erindinu fylgir fyrirspurn BN038986.
Samþykki eiganda húseignarinnar fylgir ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008 og umsögn skipulagsstjóra dags. 14. nóvember 2008.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Mýrarás 15 (04.376.108) 111448 Mál nr. BN038846
Guðbjörg Astrid Skúladóttir, Mýrarás 15, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála við einbýlishúsið á lóð nr. 15 við Mýrarás.
Stækkun: 24,9 ferm., 57,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 4.198
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Njálsgata 8C (01.182.208) 101860 Mál nr. BN039191
Anna Lára Lárusdóttir, Bergstaðastræti 26b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjölga þakgluggum og gera íbúð nr. 0201 að gististað í fl. 2 sbr. fyrirspurn BN039085 sem fékk jákvæða umfjöllun dags. 4.11.08 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 C við Njálsgötu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Rauðalækur 16 (01.343.308) 104007 Mál nr. BN039183
Kristín Þórhalla Þórisdóttir, Rauðalækur 16, 105 Reykjavík
Ína Björk Hannesdóttir, Rauðalækur 16, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bæta við glugga sbr. fyrirspurn BN038999 sem fékk jákvæða umsögn 7.10. 2008, á suðurhlið 2. hæðar fjölbýlishúss á lóð nr. 16 við Rauðalæk.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

37. Ránargata 6 (01.136.015) 100518 Mál nr. BN039162
Hulda Björk Georgsdóttir, Ránargata 6, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á erindi BN035419 samþ. 20. febrúar 2007 þar sem veitt var leyfi til að gera sólpall og hurð út í garð á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 6 við Ránargötu.
Samþykki meðlóðarhafa og lóðarhafa aðliggjandi lóða árituð á uppdrátt fylgja erindi
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

38. Reykás 30 (04.383.401) 180379 Mál nr. BN039166
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta skráningu í nýsamþykktu erindi BN038838 dags. 7. okt. 2008 á vatnsgeymi og dæluhúsi á lóð nr. 30 við Reykás.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

39. Reykjavegur 15 (01.372.101) 199516 Mál nr. BN039040
KSÍ ehf, Laugardalsvelli, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á byggingartíma stúkubyggingars sbr. BN033182 samþ. 1. mars 2006, á lóð nr. 15 við Reykjaveg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar v/ eldhúss á 2. hæð dags. 21. október 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

40. Sigluvogur 8 (01.414.113) 105108 Mál nr. BN039192
Guðmundur Ingi Jónsson, Sigluvogur 8, 104 Reykjavík
Sótt er um leyft til að breyta innra skipulagi, byggja við til norðurs og stækka bílskúr við einbýlishúsið á lóð nr. 8 við Sigluvog.
Málinu fylgir fyrirspurn BN03884 dags. 30.sept. 2008,
einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. september 2008, ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. september 2008.
Stækkun: kjallari XXX ferm. og XXX rúmm. 1. hæð XXX ferm. og XXX rúmm. Rishæð XXX ferm. og XXX rúmm. Bílgeymsla XXX ferm. og XXX rúmm. Samt. XXX ferm. og XXX rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + XXX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

41. Sigtún 41 (01.365.111) 104678 Mál nr. BN038926
Ásgeir Jónsson, Sigtún 41, 105 Reykjavík
Sótt eru um leyfi til að byggja bílskúr og endurnýja þak og hækka það um 38 cm upp fyrir steyptar þakrennur, breyta kvistum á suðurhlið og setja einn stóran kvist á norðurhlið tvíbýlishúss á lóð nr. 41 við Sigtún.
Meðfylgjandi er fyrirspurn nr. BN038702 og samþykki eigenda kjallara. Meðfylgjandi er teikning af bílskúr sömu stærðar, sem var samþykktur 1975.
Stækkun: Þakhæðar 8,1ferm. 69,2 rúmm.
Bílskúr 26,7 ferm. 69,4 rúmm. Samt. 34,8 ferm. 138,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 10.118
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

42. Smáragata 3 (01.197.215) 102730 Mál nr. BN039143
Agla ehf, Brekkubyggð 69, 210 Garðabær
Emilía Sjöfn Kristinsdóttir, Smáragata 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og til að byggja einnar hæðar viðbyggingu við bílskúr og tveggja hæða viðbyggingu við fjölbýlishúsið á lóð nr. 3 við Smáragötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008 fylgir erindinu.
Erindi fylgir virðingargjörð dags. 1. febrúar 1943.
Stækkun: 103,9 ferm., 358,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 26.178
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

43. Stigahlíð 45-47 (01.712.101) 107208 Mál nr. BN039208
HH, eignarhaldsfélag ehf, Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka Kjúklingastaðinn Suðurver, breyta innra fyrirkomulagi og gera nýjan stiga milli kjallara og 1. hæðar í stað þess sem fyrir er í verslunarhúsi á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Gera grein fyrir skráningu hússins.

44. Urðarbrunnur 94 (05.054.304) 205800 Mál nr. BN039105
Marías Sveinsson, Langholtsvegur 132, 104 Reykjavík
Gyða Guðmundsdóttir, Langholtsvegur 132, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu úr forsteyptum einingum á lóð nr. 94 við Urðarbrunn.
Stærð: 1. hæð íbúð 103,9 ferm., bílgeymsla 30,6 ferm., 2. hæð íbúð 136,1 ferm.
Samtals: 270,6 ferm., 814,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 59,480
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Málið var samþykkt 13. nóvember 2008.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

45. Úlfarsfellsland, Þrastarlundur Mál nr. BN039201
Pólís-Inn ehf, Skipholti 50c, 105 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir sökklum í Úlfarsfellslandi - Þrastarlundi umsókn BN035296.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

46. Vatnagarðar 12 (01.337.802) 103916 Mál nr. BN038387
Halldór Gústafsson, Stigahlíð 97, 105 Reykjavík
Mótorverk ehf, Stigahlíð 97, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta frá samþykktum teikningum dags. 13.sept.2005, fjarlægja bílskýli, stækka reyklosunarop, breyta hurðum og gluggum til samræmis við reynd, lagfæra aðstöðu starfsmanna og milliloft í atvinnuhúsi á lóð nr. 12 við Vatnagarða.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Vegbrekkur 17-23 (05.866.501) 216597 Mál nr. BN039098
Hestamannafélagið Fákur, Vatnsendav Víðivöllum, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja hesthús á einni hæð með kjallara og kaffistofu á 2. hæð úr steinsteypu, einangra að utan og klæða með bárujárni, þak er bárujárnsklætt timburþak, á lóð nr 23 við Vegbrekku.
Stærð: Kjallari 107,7 ferm. 1. hæð 264,9 ferm. Milliloft 178,4 ferm. Samtals 551,0 ferm. Samtals rúmmáls 1.689,9 rúmm.
Gjöld kr.7.300 +123.363
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

48. Þorláksgeisli 1-3 (05.136.101) 190203 Mál nr. BN039188
Þorláksgeisli 1-3,húsfélag, Þorláksgeisla 1-3, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli með færanlegum glerflekum með perlugleri á 15 svalir á fjölbýlishúsi á lóð nr. 1-3 við Þorláksgeisla.
Meðfylgjandi er ástandsskýrsla um eldvarnir dags. 28.5. 2008
Stærðir samtals 165,7 ferm., 465,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 33.952
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

49. Meistari - veggfóðrara- og dúklagningameistar Mál nr. BN039200
Páll Jóhann Guðbergsson, Stóragerði 34, 108 Reykjavík
Ofanritaður sækir um leyfi til þess að starfa sem veggfóðrara- og dúklagningameistari í lögsagnarumsæmi Reykjavíkur með vísan til bréfs umhverfisráðuneytisins frá 25. nóvember 2005.
Málinu fylgir afrit af meistarabréfi útgefnu 23. febrúar 1978 og yfirlýsing Arnars Ásmundssonar, dags. 1. apríl 2008.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Sem staðbundin viðurkenning með vísan til bréfs umhverfisráðuneytisins dags. 25. nóvember 2006.

Fyrirspurnir

50. Laugavegur 60 (01.173.115) 101532 Mál nr. BN039175
Pétur Heiðar Egilsson, Breiðvangur 2, 220 Hafnarfjörður
Rosita Yufan Zhang, Breiðvangur 2, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyfi fáist fyrir skyndibitastað á jarðhæð á ca 100 ferm. svæði í húsi á lóð nr. 60 við Laugarveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

51. Miðtún 90 Mál nr. BN039167
Davíð Freyr Jónsson, Reynivellir 3, 700 Egilsstaðir
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir #GLósamþykktri#GL íbúð í risi íbúðarhússins á lóð nr. 90 við Miðtún.
Nei.
Sbr. íbúðarskoðun dags. 28. maí 2002 og fyrri afgreiðslu málsins en þar kemur meðal annars fram að mikið vantar á að lofthæð íbúðar sé nægjanleg og lægsta ganghæð í stiga er 195 sm.

52. Njálsgata 33A (01.190.028) 102365 Mál nr. BN038582
Unnur Guðjónsdóttir, Svíþjóð, Spurt er hvort fjarlægja megi eldvarnarvegg milli íbúða nr. 33 og 33 A í húsi á lóð nr. 33 við Njálsgötu.
Meðfylgjandi er tölvupóstur frá meðeigenda dags. 16. nóv. 2008 þar sem neitað er sameiningu lóðarinnar.
Nei.
Samanber tölvupóst meðeigenda þar sem sameingu lóðarinnar er neitað. En samþykki meðeigenda er alger forsenda þess að unnt sé að taka jákvætt í erindið sbr. ákvæði fjöleignahúsalaga nr. 26/1994.

53. Sóltún 6 (01.233.501) 211565 Mál nr. BN039190
Waldorfleikskólinn Sólstafir, Grundarstíg 19, 101 Reykjavík
Spurt er hvort nýbygging skv. meðfylgjandi frumdrögum standist skipulagsákvæði og aðrar reglugerðir fyrir leik- og grunnskóla á lóð nr. 6 við Sóltún.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og að teknu tilliti til athugasemda og umsagnar á fyrirspurnarblaði.

Fundi slitið kl. 12:10.

Magnús Sædal Svavarsson
Björn Kristeifsson Sigrún Reynisdóttir
Jón Hafberg Björnsson Þórður Búason
Eva Geirsdóttir