Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 1. október kl. 09:08, var haldinn 149. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Brynjar Fransson, Svandís Svavarsdóttir, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Ágúst Jónsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Þormar, Jóhannes S. Kjarval, Bragi Bergsson Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Haraldur Sigurðsson. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 26. september 2008.

2. Furugerði 1, breyting á deiliskipulagi (01.807.0) Mál nr. SN080252
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Arkþing ehf, Bolholti 8, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Arkþings f.h. Félagsbústaða, dags. 10. apríl 2008, um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 1 við Furugerði skv. uppdrætti, dags. 10. apríl 2008 og breytt 22. september 2008. Breytingin felur í sér stækkun og hækkun á 9. hæð hússins og fjölgun íbúða úr 70 í 76. Auglýsingin stóð frá 14. maí til og með 25. júní 2008. Athugasemdir bárust frá eftirfarandi: Ólafur Guðmundsson og Sigríður Eyjólfsdóttir Furugerði 4, dags. 11. júní 2008, f.h. íbúa í Furugerði 7, Ásta H. Markúsdóttir og Haukur Ásmundsson, dags. 18. júní 2008. f.h. íbúa í Furugerði 9, Ásta H. Markúsdóttir og Haukur Ásmundsson, dags. 25. júní 2008, eigendur Furugerði 6, dags. 25. júní 2008, Ólöf Einarsdóttir og Bogi Þórðarson Furugerði 3, dags. 24. júní 2008, Haukur Nikulásson Furugerði 3, dags. 24. júní 2008.
Erindinu var vísað til umsagnar í austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. september 2008.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:12

3. Heiðmörk, Vatnsendakrikar, afmörkun lóðar Mál nr. SN080599
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Magnús Skúlason, Klapparstígur 1a, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 17. september 2008 varðandi afmörkun lóðar fyrir lokahús OR í Heiðmörk, Vatnsendakrikum samkv. meðfylgjandi uppdrætti Magnúsar Skúlasonar dags. 29. september 2008.
Samþykkt með vísan til d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.

Magnús Skúlason vék af fundi við afgreiðslu málsins

4. Sundahöfn, Skarfabakki, breyting á aðalskipulagi (01.332) Mál nr. SN080446
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingasviðs dags. 28. september 2008 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna Skarfabakka ásamt umhverfisskýrslu, til samþykktar í forkynningu skv. 17. gr. 1. mgr. Einnig lagðar fram umsagnir Umhverfisstofnunar dags. 29. ágúst 2008 og Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 14. ágúst 2008 og bréf siglingastofnunar dags. 7. júlí 2008.
Samþykkt að óska eftir heimild til að auglýsa framlagða tillögu með vísan til 1. mgr. 18. gr. l. nr 73/1997.
Vísað til borgarráðs.

5. Græni trefillinn Útmörk höfuðborgarsvæðisins, Mál nr. SN080612
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.2001-2024
Lögð fram drög skipulags- og byggingarssviðs dags. í september 2008 að óverulegri breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Breytin fjallar um skilgreiningar á nýtingu á græna treflinum til útivistar og skipulagðar frístundaiðju.
Samþykkt að kynna framlagða tillögu fyrir sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu með vísan til 14. gr. l. nr. 73/1997.

6. Græni trefillinn Útmörk höfuðborgarsvæðisins, Mál nr. SN080611
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024
Að lokinni forkynningu samkvæmt 1. mgr. 17. gr. l. nr 73/1997 er lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. í september 2008 varðandi breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur . Í breytingunni er skilgreind staðsetning fyrir losunarstað fyrir jarðefni á Hólmsheiði innan græna trefilsins.
Samþykkt að óska eftir heimild til að auglýsa framlagða tillögu með vísan til 1. mgr. 18. gr. l. nr 73/1997.
Vísað til borgarráðs.

7. Vesturlandsvegur-tvöföldun, Mál nr. SN080613
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024
Lögð fram matslýsing dags. í september 2008 vegna umhverfismats.
Samþykkt að óska eftir umsögn Skipulagsstofnunar um framlagða matslýsingu með vísan til 6. gr laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

8. Vesturlandsvegur-tvöföldun, Mál nr. SN080614
Aðalskipulag Reykjavík 2001-2024
Lögð fram matslýsing dags. í september 2008 vegna umhverfismats.
Samþykkt að óska eftir umsögn Skipulagsstofnunar um framlagða matslýsingu með vísan til 6. gr laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

9. Hólatorg 2, breyting á deiliskipulagi (01.160.3) Mál nr. SN080444
Katrín Lovísa Ingvadóttir, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Arkitektar Ólöf & Jón ehf, Mjóuhlíð 4, 105 Reykjavík
Páll Baldvin Baldvinsson, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn dags 27. júní 2008 um að hækka þak á stigahúsi á norðurhlið og breyta því í mænisþak, gera svalir á rishæð á vesturhlið stigahússins og endurgera svalir á 2. hæð. Meðfylgjandi eru uppdrættir dags. 1. júlí 2008. Grenndarkynningin stóð frá 11. júlí til og með 26. ágúst 2008. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Íbúum á Hávallagötu 1 dags. 24. ágúst 2007 mótt. 11. ágúst 2008, Garðari Lárussyni, Hávallagötu 3 dags. 11. ágúst; Nönnu Þorláksdóttur og Hirti Torfasyni dags. 11. ágúst og 17. ágúst 2007, Áslaugu Guðjónsdóttur Garðastræti 45 dags. 11. ágúst 2008, Sigrúnu Guðjónsdóttur Garðastræti 45 dags. 25. ágúst 2008, Garðari Garðarssyni og Sigrúnu Björnsdóttur Hávallagötu 1 dags. 17. og 25. ágúst 2008, Svava Jónsdóttir Garðastræti 45 dags. 24. ágúst 2008. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. september 2008.

Svndís Svavarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsinsKynnt tillaga samþykkt. með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð og umsagnar skipulagsstjóra.

10. Gerðuberg / Hólaberg, (04.674.3) Mál nr. SN070686
breytt deiliskipulag vegna þjónustuíbúða
VA arkitektar ehf, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga VA arkitekta dags. 18. október 2007 að breytingu á deiliskipulagi Breiðholt III austurdeild, vegna þjónustuíbúða aldraðra á lóð númer 3-5 og 7 Gerðuberg og Hólabergi 84. Tillagan var auglýst frá 4. júní til og með 16. júlí 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: 8 íbúar í Keilufelli 24, 26, 28 og 30 dags. 1. júlí 2008, íbúar í Keilufelli 26 dags.1. júlí 2008. Erindinu var vísað til umsagnar í austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagstjóra dags. 18. september 2008.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

11. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN038994
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 507 frá 30. september 2008.

12. Baldursgata 39, hótelíbúðir (01.181.211) Mál nr. BN038448
Hásteinar ehf, Laufásvegi 63, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er nú lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þ. 10. júní 2008. Sótt er um leyfi til að byggja ofan á og innrétta átta hótelíbúðir í íbúðarhúsinu á lóð nr. 39 við Baldursgötu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 20. júní 2008. Nú lagt fram að nýju ásamt nýjum uppdráttum dags. 17. júlí 2008 sem sýna skuggamyndun fyrir og eftir breytingu.
Grenndarkynningin stóð frá 1. ágúst til og með 1. september. Athugasemdir bárust frá: Kristínu Guðbjartsdóttur , Baldursgötu 37 dags. 20. ágúst, Árna Þór Árnasyni Skólavörðustíg 28 dags. 30. ágúst, Ingigerði Bjarnadóttur Lokastíg 10 dags. 31. ágúst, Jóni Erni Guðmundssyni og Eddu Vikar Guðmundsdóttur Skólavörðustíg 30 dags. 1. september, Birgi Bjarnasyni Lokastíg 10 dags. 2. september, Lísbet Sveinsdóttur og Hjördísi Einarsdóttur Skólavörðustíg 28 dags. 1.september 2008, Guðmundi J. Kjartanssyni fh. íbúa að Skólavörðustíg 26 dags. 2. september 2008. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 16. september 2008. Einnig lögð fram athugasemd Mjallar Snæsdóttur Skólavörðustíg 26a dags. 2. september en móttekin 15. september 2008.
Samþykkt að vísa erindinu til skoðunar í deiliskipulagsvinnu á reitnum. Hins vegar er brýnt við þá vinnu að gæta vel að almennum sjónarmiðum að því er varðar hóflega uppbyggingu í grónu hverfi, sátt við umhverfið, samhengi og byggðamynstur.

13. Öldugata 33, hækka og stækka (01.137.008) Mál nr. BN038741
Svava Þorbjarnardóttir, Öldugata 33, 101 Reykjavík
Þóra Björg Þórisdóttir, Öldugata 33, 101 Reykjavík
Ámundi Sigurðsson, Öldugata 33, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. ágúst 2008 þar sem sótt er um leyfi til að lyfta þaki og stækka við það tvíbýlishúsið á lóð nr. 33 við Öldugötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. ágúst til og með 17. september 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ingi Þorleifur Bjarnason Bræðraborgarstíg 15 dags. 18. september 2008. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 18. september 2008.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.

(C) Fyrirspurnir

14. Kjalarnes, Nesvík, (fsp) Aðalskipulag Reykjavíkur Mál nr. SN080609
Nesvík ehf, Brautarholti 2, 116 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Davíðs Kristjáns Pitt fh. Nesvíkur ehf og Brautarholts 7, dags. 22. september 2008 varðandi breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja íbúðar- og atvinnubyggð í landi Nesvíkur og Brautarholts 7 á Kjalarnesi, samkv. meðfylgjandi hugmynd.
Erindinu er vísað til skoðunar í vinnu við endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.

15. Kjalarnes, Varmidalur, (fsp) uppbygging Mál nr. SN060711
Landform ehf, Austurvegi 6, 800 Selfoss
Á fundi skipulagsstjóra 16. maí 2008 voru lagðir fram uppdrættir Landforms, dags. 31. mars 2008 vegna uppbyggingar á landareigninni Varmidalur á Kjalarnesi. Einnig er lögð fram eldri umsögn skipulagsfulltrúa 19. janúar 2007. Erindinu var frestað. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 18. sept 2008
Frestað.

(D) Ýmis mál

16. Laugavegur/Vatnsstígur, Kynning (01.220.0) Mál nr. SN080580
Frestað.

17. Miðborgin, Upplýsingastandar Mál nr. SN080583
Á fundi skipulagsstjóra 11. september 2008 voru lagðar fram hugmyndir skrifstofu gatna- og eignaumsýslu Reykjavíkur dags. 29. júlí 2008 varðandi staðsetningu á upplýsingastöndum í miðborginni. Einnig er lagður fram tölvupóstur forstöðumanns Höfuðborgarstofu dags. 24. júlí 2008. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra miðborgarsvæðis og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 25. september 2008.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagstjóra.

18. Vesturbær - Íþrótta og tómstundastarf, aðstaða Mál nr. SN080616
Lögð fram orðsending borgarstjóra dags. 24. september 2008 varðandi æfingaaðstöðu til íþrótta- og tómstundastarfs í Vesturbæ Reykjavíkur, einnig er lagt fram bréf Knattspyrnufélags Reykjavíkur dags. 18. september 2008.
Vísað til meðferðar skipulagsstjóra.

19. Vesturgata 54, málskot (01.130) Mál nr. SN080477
Suðurlandsbraut 22 ehf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Á fundi skipulagsráðs 13. ágúst 2008 var lagt fram málskot vegna afgreiðslu skipulagsstjóra frá 26. október 2007 á fyrirspurn um heimild til stækkunar á húseign á lóð númer 54 við Vesturgötu. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 18. september 2008.
Skipulagsráð staðfesti fyrri ákvörðun skipulagsstjóra.

20. Skipulagsráð, starfsdagur Mál nr. SN060519
Dagskrá starfsdags skipulagsráðs 24. október 2008.
Formaður lagði fram tillögu um starfsdag skipulagsráðs 24. október 2008.

Fundi slitið kl. 11:50.

Júlíus Vífill Ingvarsson

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Brynjar Fransson
Svandís Svavarsdóttir Stefán Benediktsson
Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2008, þriðjudaginn 30. september kl. 10:00 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 507. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð austur Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Björn Kristleifsson, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Ármúli 29, Suðurlands 32 (01.265.101) 103542 Mál nr. BN038909
Asian ehf, Suðurlandsbr. 32, 108 Reykjavík
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum innanhúss á 1. hæð matshlutum 01-01 og 01-02 á lóð nr. 32 við Suðurlandsbraut.
Tölvupóstur frá Eik fasteignafélagi eiganda eignarinnar um leyfi til að gera breytingar dags. 09.09.2008.
Bréf stílað 1.09.2008 um lýsingu á starfsemi.
Gjöld kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

2. Ásholt 2-42 (01.242.005) 103030 Mál nr. BN038969
Ásholt 2,húsfélag, Ásholti 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja glerskála yfir stiga við bílgeymslu fjölbýlishússins á lóð nr. 2-42 við Ásholt.
Erindi fylgir fundargerð húsfélags dags. 15. apríl 2008.
Stækkun: 10 ferm., 48 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 3.504
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 101 og 102 dags. 23.sept. 2008

3. Bankastræti 5 (01.170.008) 101326 Mál nr. BN038871
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta eldhólfum milli hæða og breytingum á flóttaleiðum í verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóðinni nr. 5 við Bankastræti.
Gjald 7.300
Frestað.
Athugasemdir eldvarnaeftirlits óbreyttar.

4. Bergstaðastræti 17B (01.184.111) 102021 Mál nr. BN038940
Júlíana Ingham, Bergstaðastræti 17b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að lækka gólf og til að breyta þakgerð á nýsamþykktu einbýlishúsi, BN035349 dags. 10. júlí 2007, á lóð nr. 17B við Bergstaðastræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. september 2008 fylgir erindinu.Stækkun: 8,3 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 606
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við málið.

5. Bjarkargata 14 (01.143.110) 100958 Mál nr. BN038817
Björk Hakansson, Bjarkargata 14, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum með nokkrum breytingum frá áður samþykktum teikningum frá 24.4. 2007 á íbúðarhúsi á lóð nr. 14 við Bjarkargötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 1. september 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

6. Blikastaðavegur 2-8 (02.496.101) 204782 Mál nr. BN038919
Stekkjarbrekkur ehf, Smáratorgi 3, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til breytinga frá samþykktum teikningum sbr. erindi BN037574, breytingarnar ná til vöruflutningabryggja utanhúss á norðurhlið og tilfærslna á veggjum og rýmum innanhúss í verslunarhúsi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

7. Borgartún 17-19 (01.217.701) 102769 Mál nr. BN038967
Kaupþing banki hf, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta merkingum á flóttaleið og lúga í svalargólfi á fjórðu hæð fjarlægð í atvinnuhúsi á lóð nr. 19 við Borgartún.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

8. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN038971
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi 2. - 5. hæðar verslunar- og skrifstofuhússins á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Jafnframt er erindi BNxxxxx dregið til baka.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Breiðhöfði 3 110566 Mál nr. BN037910
B.M.Vallá hf, Pósthólf 12440, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kjallara og hæð við atvinnuhúsið á lóðinni nr. 3 við Breiðhöfða.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. apríl 2008 og 6. júní 2008 fylgja erindinu.Stærð: Kjallari 110,3 ferm., 1. hæð 118,5 ferm.
Samtals nýbygging: 228,8 ferm., 859,9 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + 62.773
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Bræðraborgarstígur 24A (01.134.405) 100375 Mál nr. BN038232
Droplaug Ólafsdóttir, Bræðraborgarstíg 24a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á suðausturþekju og byggja svalir á suðvesturgafl íbúðarhússins nr. 24A við Bræðraborgarstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. maí 2008 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 15. maí 2008 fylgja erindinu.
Sömuleiðis samþykki meðeiganda ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008.
Grenndarkynning stóð frá 1. ágúst til og með 1. september 2008. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 20,7 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Bæjarflöt 10 (02.575.803) 178967 Mál nr. BN038965
Goð ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík
Sótt erum leyfi til að byggja millipall fyrir kaffistofu starfsmanna og búningsaðstöðu í atvinnuhúsnæði á lóð nr. 10 við Bæjarflöt.
Stækkun: 75,8 ferm.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Dalsel 11 (04.948.301) 113063 Mál nr. BN038961
Katarina Þorsteinsdóttir, Dalsel 11, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp svalaskýli með færanlegu glerkerfi með einföldu gleri, að auki setja nýjar inngangshurðir (EICS 30) að íbúðum, hjólageymslum, geymslugang og þvottahús. Svo og opnanlegt fag set efst í glugga í hvoru stigahúsi til reykræstingar í fjölbýlishúsi á lóð nr 11 og 13 við Dalsel. Undirskriftir eigenda íbúðanna að Dalseli 11 og 13 frá 20.05.2008.
Stærðir svalaskýla: 12 x 4,8 = 57,6 ferm. 12 x 13 =156,0 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 +11.388
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Elliðavatnsblettur 35 (08.1--.-64) 113454 Mál nr. BN038872
AIM ehf, Rauðási 16, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir rotþró og til að breyta þaki, byggja við og endurbyggja sumarhúsið nr. 35 við Elliðavatnsblett.
Erindi fylgir tölvupóstur frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar dags. 10. apríl 2008, umsögn Fornleifaverndar ríkisins dags. 2. maí 2008 og umsögn OR dags. 5. maí 2008 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 26. september 2008 og umsögn skipulagsstjóra dags. 26. september 2008.Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.
Hægt er að samþykkja rotþró vegna hússins en ekki stækkun þess samanber umsögn skipulagsstjóra.
Umsögn verði aðlöguð með tilliti til þessa.

14. Friggjarbrunnur 55-57 (02.693.105) 205838 Mál nr. BN038882
Leiguliðar ehf, Fossaleynir 16, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja fimm hæða fjölbýlishús með fimmtíu og einni íbúð á bílakjallara með 61 stæði úr forsteyptum einingum við Skyggnisbraut 8-12 á lóð nr. 55 - 57 við Friggjarbrunn.
Stærð: Bílageymsla 1.749,7 ferm., kjallari íbúðir 377,3, 1. hæð 1.367,2 ferm., 2. hæð 1.342,3 ferm., 3. hæð 1.342,3 ferm., 4. hæð 1.023,9 ferm., 5. hæð 698,3 ferm.,
Samtals: 7.901 ferm., 24.208,8 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 +1.759.686,9
Frestað.
Skila vottunarskjölum vegna eininga, lagfæra skráningartöflu.

15. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN038905
Kjartan Halldórsson, Asparfell 2, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja glerskála framan við veitingahúsið nr. 5 á lóð nr. 3a-7c við Geirsgötu.
Stækkun: 24,7 ferm., 58 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 4.234
Frestað.
Vantar skráningartöflu.

16. Grensásvegur 11 (01.461.102) 105666 Mál nr. BN038966
Sætrar ehf, Gerðhömrum 27, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga sbr. samþykkt erindi BN036842 dags. 13.11.2007 vegna: breytt vindfang, breytt útlit vegna vindfangs, smávægilegar breytingar á snyrtingum 1. hæðar, skyggni yfir innkeyrslu í kjallara, stoðveggur styttur og ný reyklosun, beinn stigi í stað hringstiga úr kjallara, smávægilegar breytingar á útliti austurhliðar á húsi á lóð nr. 11 við Grensásveg.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir breytingar og ódagsett bréf arkitekts.
Stærðir stækkun: 5,4 ferm., 9,3 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 679
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

17. Grettisgata 70 (01.191.004) 102462 Mál nr. BN038857
Helga Ingadóttir, Grettisgata 70, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja létt handrið í stað steypts handriðs sbr. fyrirspurn BN038687 á svalir risíbúðar í húsi nr. 70 við Grettisgötu.
Meðfylgjandi er skriflegt samþykki flestra eigenda.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda.

18. Heiðarás 13 (04.373.203) 111372 Mál nr. BN038525
Gunnar Valdimar Árnason, Heiðarás 13, 110 Reykjavík
Rut Gunnarsdóttir, Heiðarás 13, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta útigeymslu með svölum á þaki og léttum stiga niður í garð við einbýlishús á lóð nr. 13 við Heiðarás.
Meðfylgjandi er lóðarteikning. Einnig samþykki eigenda húsa við Heiðarás nr. 12, 14 og 15.
Stærðir 8,7 ferm., 20,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 1.518
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

19. Hlíðarfótur 75 (01.777.201) 180083 Mál nr. BN038962
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til stækkunar og breytinga á áður samþykktu, BN033748 dags. 9. maí 2006, veitingahúsi á lóð nr. 75 við Hlíðarfót.
Stækkun: 181,6 ferm., 1187,3 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 86.873
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Hólmsheiði fjáreig.fé (05.8--.-96) 113450 Mál nr. BN038217
Unnsteinn Tómasson, Vallartröð 5, 200 Kópavogur
Hilmar Þ Sigurþórsson, Arnarhöfði 10, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt tveggja hæða hesthús fyrir 17 hesta með lagnakjallara ásamt þró fyrir hestatað á lóðinni nr. 22 við B-Götu við Hólmsheiði.
Stærð 1. hæð 158,8 ferm., 2. hæð 42,1 ferm. samtals 200,9 ferm., 906,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 66.181
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Hraunbær 111, 111A-G (04.333.201) 193555 Mál nr. BN038216
Leigufélag Búseta ehf, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja glerskermun á svalaganga í fjölbýlishúsi á lóð nr. 111 og 111 A við Hraunbæ.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

22. Hringbraut Landsp. (01.198.901) 102752 Mál nr. BN038968
Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta lítillega stærðum og burðarvirki áður samþykktra teikninga sbr. erindi BN038195 af skrifstofu- og geymsluhúsnæði á tveim hæðum úr stáli, timbri og steinsteypu ofan á núverandi kjallara í kverk við vesturhlið norðan elsta hluta Landspítalans.
Stærðir fyrra erindi: Neðri hæð 117,3 ferm., efri hæð 117,3 ferm., samtals 234,6 ferm., 841 rúmm.
Stærðir nýtt erindi: Neðri hæð 112 ferm., efri hæð 112 ferm. samtals 224 ferm., 811,3 rúmm.
Minnkun: 10,6 ferm., 29,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 59.225
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Hverfisgata 105 (01.154.406) 101134 Mál nr. BN038972
Sigurnes hf, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Tankastöðin ehf, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Merlin ehf, Hamraborg 7, 203 Kópavogur
Gísli Hilmir Hermannsson, Holtagata 8, 420 Súðavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi íbúða á 4. hæð, bæta við einum svölum á 4. hæð, breyta handriðum setja nýja glugga á gafla. Einnig er sótt um innréttingu sérgeymsla fyrir íbúð 0402 og 0403 í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í kjallara húss á lóð nr. 105 við Hverfisgötu.
Meðfylgjandi er bréf frá arkitekt dags. 25.8.2008, einnig bréf frá stjórn húsfélagsins Hverfisgötu 105 dags. 18.7.2008 og aðalfundarboð húsfélagsins dags. 24.5.2008
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

24. Hverfisgata 46 (00.000.000) 101430 Mál nr. BN038677
Foldir fasteignaþróunarfél ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi BN031305 frá 23. ágúst 2005 þar sem sótt var um leyfi til að innrétta geymslur, þvottaherbergi og tvær skrifstofueiningar á 2. hæð með svölum í norður, gera tvær íbúðir og þaksvalir á þriðju hæð í stað atvinnustarfsemi og gera tvær íbúðir í stað einnar og þaksvalir á fjórðu hæð hússins nr. 46 við Hverfisgötu (mhl 05) á lóðinni nr. 29 við Laugaveg. Jafnframt verði þakgluggar fjarlægðir og afmarkaðir sérnotafletir á þaki bakbyggingar.
Ennfremur er sótt um leyfi til breytinga á eldvarnahurðum 1. hæðar.
Erindi BN031035 fylgdu ódags. samþykki nokkurra meðeigenda vegna hluta breytinga á þriðju hæð, samningur húseigenda að Hverfisgötu 46 dags. 20. ágúst 2005 og tölvupóstur Steindórs Guðmundssonar vegna hljóðvistar dags. 7. júní 2005.
Meðfylgjandi er tölvupóstur frá arkitekt dags. 17.9.08
Blað nr. 02 sþ. 23. ágúst 2005 fellt úr gildi.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

25. Hyrjarhöfði 8 (04.060.304) 110599 Mál nr. BN037995
Húsabær ehf, Berjarima 43, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu á tveimur hæðum, að hluta yfir austurenda núverandi húss, einnig er milliloft 0106 rifið og milliloft 0104 stækkað í atvinnuhúsinu á lóð nr. 8 við Hyrjarhöfða.
Niðurrif: Milliloft 0106, 77,9 ferm.,
Stækkun: 1. hæð 212,1 ferm., 2. hæð 401,1 ferm. milliloft 60,8 ferm.
Samtals 594,0 ferm., 2489,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 181.748
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Jónsgeisli 59 (04.113.406) 189836 Mál nr. BN038958
Heimir Ríkarðsson, Jónsgeisli 59, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja skjólgirðingu úr timbri á suðvestur horni lóðar og við götu við einbýlishús á lóð nr. 59 við Jónsgeisla.
Samþykki nágranna nr. 57 og 37 liggur fyrir á teikningu nr. 06.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 06 og 07 dags. 22. sept. 2008.

27. Klyfjasel 11 (04.997.003) 113365 Mál nr. BN038519
Eyjólfur Ingimundarson, Klyfjasel 11, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir steypta verönd með tröppum í stað timburverandar og fyrir bíslag úr álgluggaprófíl, glerjað að hluta, klætt með plötum og opið að hluta (B-rými) við aðalinngang við einbýlishús á lóð nr. 11 við Klyfjasel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 26. september 2008 fylgir erindinu.
Stærðir: Bíslag, B-rými, 17,3 ferm., 53,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 3.905
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Langholtsvegur 168 (01.441.308) 105462 Mál nr. BN038892
Gunnlaug Kristín Ingvadóttir, Langholtsvegur 168, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa bílskúr og byggja steinsteyptan bílskúr með áfastri vinnustofu og lagnarými undir við tvíbýlishúsið á lóð nr.168 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. september 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. apríl 2008Niðurrif: xx ferm., xx rúmm.
Stækkun: 60,7 ferm. 330,0 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 24.090
Synjað.
Stærð bílgeymslu er ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags, þar kemur fram að stærðin má mest vera 40. ferm.

29. Laufásvegur 73 (01.197.111) 102713 Mál nr. BN038072
Þorsteinn M Jónsson, Laufásvegur 73, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja og stækka bílskúr, lækka gólf í kjallara, byggja jarðhýsi, sem umlykur kjallara á þrjá vegu, stækka 1. hæð með anddyri til norðvesturs, stigahúsi til norðausturs, eldhúsi til suðausturs, stækka 2. hæð með nýjum svölum á þaki anddyris og á þaki eldhúss, innrétta rishæð með nýjum kvistum til suðvesturs og norðausturs í einbýlishúsi nr. 73 við Laufásveg.
Meðfylgjandi er bréf Mörkin lögmannsstofa hf. dags. 31. mars 2008 og afrit frá Úrskurðarnefnd skipulags og byggingamála staðfest 31. mars 2008.
Stærðir: Niðurrif bílgeymslu 24,05 ferm., 63,7 rúmm. stækkunar íbúð kjallari 202,5 ferm., bílgeymsla 39,1 ferm., 1. hæð 23,2 ferm., 2. hæð 8,8 ferm. ferm., Samtals 278,1 ferm. 912,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 66.590.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

30. Laugavegur 178 (01.251.102) 103436 Mál nr. BN038621
Vallhólmi ehf, Hjallalandi 8, 108 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15.júlí 2008 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílageymslu neðanjarðar á lóðinni Laugavegur 178. Bílastæði inni 34 úti 115 samtals bílastæði á lóð 149.
Meðfylgandi er samkomulag eigenda dags. 27. júní 2008.
Tillagan var grenndarkynnt frá 1. ágúst til og með 1. september 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir:
Ingi Már Helgason fh. Lx-fasteigna dags. 26. ágúst 2008, Ottó Eðvarðsson fh. Reykjafells hf dags. 29. ágúst 2008, Lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 5. september 2008.
Einnig lagt fram bréf frá Jóni Guðna Óskarssyni fh. OR dags. 28. ágúst þar sem vakin er athygli á kvöðum um lagnir á mæliblaði 1.252.1 ásamt samþykki Landic Ísland dags.23. september 2008.
Stærðir. 794,2 ferm; 2.382,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 173.929
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

31. Laugavegur 36 (01.172.218) 101473 Mál nr. BN038960
Þráinn ehf, Laugavegi 36, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja glerskála fyrir kaffigesti á baklóð Sandholtsbakarís sbr. fyrirspurn BN038922 á lóð nr. 36 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er fyrirspurn, sem fékk jákvæða umsögn.
Stærðir stækkun 25,2 ferm., 61,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 4.497
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Lyngháls 4 (04.326.402) 180304 Mál nr. BN038970
Grjótháls ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum af húsi á lóð nr. 4 við Lyngháls.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Miðtún 78 (01.235.108) 102952 Mál nr. BN038963
Þórunn Sigurfinnsdóttir, Miðtún 78, 105 Reykjavík
Erla Berglind Einarsdóttir, Öldugata 15, 220 Hafnarfjörður
Anna Berglind Jónsdóttir, Öldugata 15, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi í kjallara og á fyrstu hæð, jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðri íbúð í kjallara í íbúðarhúsi á lóð nr. 78 við Miðtún.
Virðingargjörð dagsett 12.12.1951 og íbúðarskoðun dagsett 24.07.2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Safamýri 11 (01.281.104) 103675 Mál nr. BN038792
Vala Guðbjartsdóttir, Safamýri 11, 108 Reykjavík
Sótt er um að fjarlægja glugga og setja garðdyr í staðinn á suður- og vesturhlið kjallaraíbúðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 11 við Safamýri.
Samþykki meðeigenda fjölbýlishús fylgir.
Gjald: kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

35. Sifjarbrunnur 10-16 (05.055.301) 206111 Mál nr. BN038976
ORK ehf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til stækkunar nýsamþykkts raðhúss á lóð nr. 10-16 við Sifjarbrunn, sbr. BN035860 dags. 5. júní 2008.
Stækkun: 125 ferm., 417,4 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 30.470
Frestað.
Vísað til skipulagsráðs.

36. Sigluvogur 10 (01.414.114) 105109 Mál nr. BN038821
Guðlaug Jóhannesdóttir, Drekavogur 6, 104 Reykjavík
Hreinn Laufdal, Sigluvogur 10, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir stækkun íbúðar í kjallara með útbyggingu með svölum ofan á á efri hæðum og fyrir stækkun kvista á þaki sbr. fyrirspurn BN038120 dags.6.5.2008 í húsi á lóð nr. 10 við Sigluvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. september 2008 fylgir málinu.
Stækkun kjallari 16,5 ferm., 38,7 rúmm., 2. hæð 87 rúmm. Samtals stækkun 16,5 ferm., 125,7 rúmm.
Samtals eftir stækkun allt húsið 320,9 frm., 887,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 9.176
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Skildinganes 26 (01.671.304) 106783 Mál nr. BN038945
Ögmundur Skarphéðinsson, Skildinganes 26, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka forstofu og framlengja þak, til að byggja viðbyggingar við norðvestur og suðaustur hlið, koma fyrir setlaug og til að rífa sólstofu við einbýlishúsið á lóð nr. 26 við Skildinganes.
Útskrift úr gerðabók embættisafgeiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. september 2008 fylgir erindinu.Niðurrif: xx ferm., xx rúmm.
Stækkun: Kjallari 75,7 ferm., 1. hæð xx ferm.
B-rými: xx rúmm.
Samtals: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Skúlagata 12 (00.000.000) 101021 Mál nr. BN038956
101 Skuggahverfi hf, Hátúni 2B, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta um gallaða útiveggjaklæðningu þ.e. flísalagðir fletir án þess að breyta um útlit á fjölbýlishúsinu Lindargata 31-33/Vatnstígur 13-21 á lóð nr.12 við Skúlagötu.
Greinargerð frá Verkfræðistofunni Ferill, undirskrift Snæbjörn Kristjánsson.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Sýna skal á útlitsmyndum um hvaða veggfleti er að ræða.
Skila vottun á klæðningarkerfi.

39. Skútuvogur 11 (01.427.001) Mál nr. BN038957
HJ fasteignir ehf, Skútuvogi 11, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja eina hæð með burðarvirki úr stáli, klæddu með áli, steyptri gólfplötu og timburþaki ofan á tengibyggingu ásamt breytingum innanhúss með tilfærslum á milliveggjum í atvinnuhúsi á lóð nr. 11 við Skútuvog.
Meðfylgjandi er yfirlýst samþykki eigenda Skútuvogs 11A fyrir breytingunum.
Stærðir: Stækkun 367,5 ferm., 1.442,5 rúmm.
Samtals eftir stækkun 4.379,7 ferm., 19.546,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 105.303
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

40. Snorrabraut 52 (01.191.112) 102498 Mál nr. BN038977
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi hæða með fjölgun baðherbergja og stækkun íbúðarherbergja í íbúðarhúsinu á lóð nr. 52 við Snorrabraut.
Hjálagt er bréf frá burðarvirkishönnuðar vegna sögun veggopa, svo og bréf frá hönnuði.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits vegna eldhúss á 1. hæð.

41. Sóleyjargata 15 (01.185.401) 102185 Mál nr. BN038955
Birgir Birgisson, Sóleyjargata 15, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta í tvær sjálfstæðar íbúðir íbúðarhúsinu á lóð nr. 15 við Sóleyjargötu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra vegna bílastæða á lóð.

42. Spöngin Skiptistöð við 7-9 Mál nr. BN038732
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt erum leyfi til að flytja núverandi gám (aðstöðu vagnstjóra) frá Spöng/Móaveg á nýja skiptistöð Strætó við Borgaveg.
Málinu fylgir bréf skipulagsstjóra dags. 18. ágúst 2008.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

43. Stóragerði 42-44 (01.803.101) 107721 Mál nr. BN039000
Sérverk ehf, Askalind 5, 201 Kópavogur
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir sökklum og botnplötu á lóðinni nr. 42-44 við Stóragerði.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

44. Suðurhús 5 (02.848.805) 109898 Mál nr. BN038910
Bjarnfreður H Ólafsson, Suðurhús 5, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við og stækka úr sömu byggingarefnum og núverandi hús, steypu og timbri, einbýlishús á lóð nr. 5 við Suðurhús.
Meðfylgjandi eru teikningar í A3, sem sýna breytingar.
Stærðir stækkun: 13 ferm., 59,1 rúmm.
Samtals eftir stækkun: 223 ferm., 828,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 4.314
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

45. Trönuhólar 1 (04.649.601) 112008 Mál nr. BN038488
Félagsmálaráðuneyti, Tryggvag Hafnarhúsi, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina tvo eignarhluta í einn, gera breytingar á lóðarskipulagi og byggja áhalda- og geymsluskúr mhl. 2, breyta innra skipulagi og lítillega útliti sambýlisins í húsi á lóð nr. 1 við Trönuhóla.
Stækkun mhl. 2: 18 ferm., 39 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 2.847
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Urðarbrunnur 13 (05.053.601) 205766 Mál nr. BN038995
Ævar Leó Sveinsson, Hulduborgir 3, 112 Reykjavík
Sigríður Lovísa Jónsdóttir, Hulduborgir 3, 112 Reykjavík
ASótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús á tveim hæðum með innbyggðum bílskúr á lóð nr. 13 við Urðarbrunn.
Stærðir: íbúð 1. hæð 155,8 ferm., 2. hæð 112,2 ferm.,
íbúð samtals 268 ferm., bílgeymsla 41,3 ferm.
Samtals 309,3 ferm., 1.058,9 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 77.280
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Vatnsveituv. Fákur 112470 (04.764.301) 112470 Mál nr. BN038959
Elvar Daði Eiríksson, Kleifakór 13, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja hæð ofan á hestahús á lóð nr. 3D við Faxaból Viðidal.
Stækkun: XX ferm og XX rúmm.
Gjald kr. 7.300 + XXX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Þorláksgeisli 72 (04.135.703) 189647 Mál nr. BN038894
Óttar Möller, Þorláksgeisli 72, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri breytingu á bílgeymsluhurð og til að breyta útitröppum á einbýlishúsi á lóð nr. 72 við Þorláksgeisla.
Gjald 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 01 til 03 dags. 8. sept. 2008.

49. Þórsgata 13 (01.181.108) 101745 Mál nr. BN036733
Karl Sigfússon, Þórsgata 13, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera innkeyrslu og koma fyrir tveimur bílastæðum á lóð einbýlishússins á lóð nr. 13 við Þórsgötu.
Útskrfit úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. september 2008 fylgir erindinu.Gjald kr. 6.800 + 7.300
Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra er ekki gerða athugasemd við að umsækjandi geri breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið berist slík tillaga verður hún grenndarkynnt.

Fyrirspurnir

50. Aðalstræti 8 (01.136.503) 100593 Mál nr. BN038975
Arkís ehf, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka hótel Plaza sem er með núverandi starfsemi í Aðalstræti 4 með því að opna á milli á tveimur stöðum í Aðalstæti 6 á lóð nr. 8 við Aðalstræti
Meðfylgjandi er bréf frá höfundi og fyrirspurn BN038820 sem var jákvæð
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

51. Barmahlíð 42 (01.710.105) 107145 Mál nr. BN038953
Jóhann Jóhannsson, Barmahlíð 42, 105 Reykjavík
Spurt er hvort fjarlægja megi gömlu steinsteyptu útitröppurnar og steypa aðrar nýjar með hitalögn við fjölbýlishús á lóð nr. 42-44 við Barmahlíð
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

52. Bergstaðastræti 14 (01.180.212) 101700 Mál nr. BN038952
Ellert A Ingimundarson, Brúnaland 19, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist til að innrétta veitingastað í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 14 við Bergstaðarstræti
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

53. Bæjarflöt 1-3 (02.576.001) 172493 Mál nr. BN038964
Sigurveig Káradóttir, Skólastræti 5, 101 Reykjavík
Spurt er hvort breyta megi 59 ferm. rými, sem samþykkt er sem skrifstofa á 2. hæð, í veitingaeldhús í atvinnuhúsi á lóð nr. 1 við Bæjarflöt
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem taki mið af umsögnum á fyrirspurnarblaði.

54. Framnesvegur 20B (01.133.234) 100263 Mál nr. BN038932
Matthew John Mogridge, Þýskaland, Spurt er hvort leyfi fengist fyrir að byggja svalir ofan á viðbyggingu, þakið á viðbyggingunni lækkað til að koma svölunum fyrir. Gengið út á svalirnar frá 2.hæð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. september 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 26. september 2008.
Jákvætt.
Með vísan umsagnar skipulagsstjóra frá 26. sept. 2008.

55. Frostaskjól 13 (01.515.506) 105858 Mál nr. BN038906
Sigurður Pálsson, Frostaskjól 13, 107 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi sólstofu ofan á steypt bílskúrsþak á lóð nr.13 við Frostaskjól.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. september 2008 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 24. september 2008 fylgja erininu.
Neikvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

56. Kárastígur 1 (01.182.308) 101905 Mál nr. BN038983
Kaffismiðja Íslands ehf, Kárastíg 1, 101 Reykjavík
Spurt er um hvort breyta megi verslunarhúsnæði og samliggjandi íbúð í Kaffihús í fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Kárastíg.
Jákvætt.
Hvað kaffihús varðar, ekki kemur til greina að samþykkja neinar vínveitingar á staðnum.

57. Ljósheimar 20-22 (01.437.102) 105384 Mál nr. BN038889
Gústaf Edilonsson, Ljósheimar 22, 104 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi bílskúra, sbr. fyrirspurn BN037459, skv. teikn. dags. sept.08 samsvarandi samþykktum teikningum dags. 1964 með 13 einingum fyrir tvo bíla hver við fjölbýlishús á lóð nr. 20-22 við Ljósheima.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. september 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 26. september 2008.
Jákvætt.
Enda láti fyrirspyrjandi vinna tillögu að breytingu á stærð lóðar.

58. Logafold 188 (02.871.004) 110318 Mál nr. BN038979
Björn Axelsson, Logafold 188, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við stofu eins og sýnt er á meðfylgjandi skissum af einbýlishúsinu á lóð nr. 188 við Logafold.
Jákvætt.
Með vísan til umsagnar á fyrirspurnarblaði.

59. Sigluvogur 8 (01.414.113) 105108 Mál nr. BN038884
Guðmundur Ingi Jónsson, Sigluvogur 8, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta innra skipulagi, byggja við til norðurs og stækka bílskúr við einbýlishúsið á lóð nr. 8 við Sigluvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. september 2008 fylgir málinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. september 2008.
Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 12.45.

Magnús Sædal Svavarsson
Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Þórður Búason Jón Hafberg Björnsson
Eva Geirsdóttir