Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 10. september kl. 09:05, var haldinn 146. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 10-12, 2. hæð.(Dalsmynni). Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Brynjar Fransson, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir, Svandís Svavarsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson og Marta Grettisdóttir.
Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Lilja Grétarsdóttir Margrét Þormar og Haraldur Sigurðsson. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur. Mál nr. SN010070
Fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 5. september 2008.

2. Keilugrandi 1. Mál nr. SN080506
Forsögn að deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að forsögn skipulags- og byggingarsviðs dags. í ágúst 2008 að breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 1 við Keilugranda.
Tillaga skipulags- og byggingarsviðs að forsögn samþykkt.
Samþykkt að kynna framlagða forsögn fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

3. Spöngin 3-5. (02.376) Mál nr. SN070280
Breyting á deiliskipulagi
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Ask arkitekta f.h. Félagsbústaða og Reykjavíkurborgar dags. 3. maí 2007 varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Spöngina. Tillagan var auglýst frá 18. júlí til og með 29. ágúst 2007 og bárust athugasemdir frá eftirtöldum aðilum: Steinn Sigurðsson Dísaborgum 3, dags. 28. ágúst 2007, Emil Kristjánsson Smárarima 6, dags. 29. ágúst 2007, Íbúasamtök Grafarvogs, dags. 29. ágúst 2007 og hverfisráð Grafarvogs, dags. 31. ágúst 2007. Einnig er lagt fram bréf hverfisráðs Grafarvogs dags. 21. febrúar 2008 og umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs, dags. 5. mars 2008, um skilmála deiliskipulags vegna umferðarhávaða ásamt nýrri tillögu Ask arkitekta dags. 2. júlí 2008.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:15

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu dags. 2. júlí 2008. Jafnframt er samþykkt að falla frá auglýsingu fyrri tillögu. Skipulagsstjóra er falið að upplýsa þá hagsmunaaðila sem áður gerðu athugasemdir um auglýsinguna þar sem eldri athugasemdir falla nú niður.
Vísað til borgarráðs.

4. Sóltún 2-4. Mál nr. SN060710
Breyting á deiliskipulagi Ármannsreit
Nexus Arkitektar ehf, Ægisíðu 52, 107 Reykjavík
Frumafl hf, Thorvaldsenstræti 6, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Nexus arkitekta, dags. 9. mars 2007 að breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna Sóltúns 2-4 skv. uppdráttum dags. 11. mars 2007, br. 25. febrúar 2008. Einnig eru lagðir fram minnispunktar framkvæmdastjóra Öldungs hf, mótt. 4. júní 2007. Tillagan var auglýst frá 26. mars til og með 7. maí 2008. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Sólveig Hákonardóttir Sóltúni 30 dags. 15. apríl 2008, Bryndís Torfadóttir Sóltúni 12 dags. 15. apríl 2008, Hrefna Ingadóttir Sóltúni 8 dags. 28. apríl 2008, fh. Húsfélagsins Mánatúni 2, Ásthildur Jónsdóttir og Jón Þór Jóhannsson dags. 25. apríl 2008, Jón Guðmundsson og Marta Kjartansdóttir dags. 22. apríl 2008, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir Sóltúni 12 dags. 15. apríl 2008, Jóhanna B. Magnúsdóttir Sóltúni 12 dags. 28. apríl 2008, Hróbjartur Hróbjartsson dags. 5. maí 2008 sem vísar til athugasemda dags. 14. ágúst 2007, Bragi Rúnarsson og Jónína Gissurardóttir Sóltúni 8 dags. 28. apríl 2008, Víglundur Þorsteinsson og Kristjána G. Skarphéðinsdóttir Sóltúni 12 dags. 29. apríl 2008, Sveinn Sæmundsson og Sigríður Jóhannsdóttir Sóltúni 10 dags. 15. apríl 2008, Steingerður Einarsdóttir og Sigfús Gunnarsson Sóltúni 18 dags. 2. maí 2008, Ingibjörg Kolbeinsdóttir og Sigursteinn H. Hersveinsson Sóltúni 12 dags. 28. apríl 2008, Undirskriftarlisti 10 íbúa Sóltúns 14-18 dags. 29. apríl 2008, Óskar Á. Mar og Viðar Rósmundsson Sóltúni 5 dags. 6. maí 2008, Elínborg Sveinbjarnardóttir Sóltúni 10 dags. 5. maí 2008, Guðrún H. Tulinius og Áslaug Ellen G. Yngvadóttir Sóltúni 10, dags. 28. apríl 2008, Gunnlaugur P. Steindórsson Sóltúni 10, dags, 28. apríl 2008, Íslenskir aðalverktakar Höfðabakka 9, dags. 7. maí 2008, Íris Waltersdóttir Ferrua Sóltúni 8, dags. 15. apríl 2008, Snorri Traustason f.h. lóðarhafa Sóltúni 6, dags. 6. maí 2008, Helgi Esra Pétursson Sóltúni 18, dags. 7. maí 2008 og Oddrún Jónasdóttir Uri Sóltúni 16, dags. 1. maí 2008.
Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt uppdráttum Nexus arkitekta dags. 11. júlí 2008 og breyttum uppdráttum mótt. 9. september 2008 og umsögn skipulagsstjóra dags. 10. september 2008

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

Fulltrúi Samfylkingarinnar, Björk Vilhelmsdóttir sat hjá við afgreiðslu málssins og óskaði bókað: #GLÞrátt fyrir að komið sé að hluta til á móts við athugasemdir nágranna fyrirhugaðs hjúkrunarheimilis að Sóltúni 2-4, sit ég hjá við afgreiðslu málsins. Ég tel það ekki í samræmi við nútíma stefnumótun í þjónustu við aldraða að byggja þetta stór hjúkrunarheimili, heldur að hafa þau fleiri og minni. Þá er ekki séð að þessi uppbygging muni eiga sér stað á næstu árum, þar sem þetta hjúkrunarheimili er ekki á nýkynntri framkvæmdaáætlun stjórnvalda um byggingu nýrra hjúkrunarheimila. Það skal þó einnig bókað að ég tel að hjúkrunarheimilið Sóltún hafi verið til mikillar fyrirmyndar í sinni hjúkrunar- og umönnunarþjónustu og vil ég ekki varpa rýrð á þeirra starfsemi.#GL

5. Árbæjarkirkja. (04.360) Mál nr. SN080306
breyting á deiliskipulagi
Árbæjarkirkja, Rofabæ safnaðarheim, 110 Reykjavík
VA arkitektar ehf, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn VA arkitekta dags. 13. júní 2008 f.h. Árbæjarkirkju varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar Árbæjarkirkju. Í tillögunni er gert ráð fyrir aukningu á byggingarmagni, stækkun á lóð kirkjunnar, og færslu almenningsstígs samkv. meðfylgjandi uppdráttum dags. 12. júní 2008. Tillagan var auglýst frá 2. júlí til og með 13. ágúst 2008. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Kristjáni Má Unnarssyni og Þorgerði Sigurðardóttur Hábæ 44 dags. 1. ágúst 2008, Guðrúnu Gunnarsdóttur Hábæ 41 og Steinunni Jónsdóttur Hábæ 39 dags. 12. ágúst 2008 og 6 íbúum við Hábæ dags. 7. ágúst 2008, Ómari Guðmundsyni og Ingu G. Birgissyni Hábæ 33 dags. 12. ágúst 2008 . Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 5.september 2008.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

6. Nýlendugata 24c. (01.131.1) Mál nr. SN080420
Breyting á deiliskipulagi Nýlendureits
VA arkitektar ehf, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram tillaga VA arkitekta, dags. 12. júní 2008 að breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðar nr. 24c við Nýlendugötu. Grenndarkynning stóð yfir frá 20. júní til 18. júlí 2008. Lagt fram bréf Kristins Ólafssonar hrl. dags. 11. júlí 2008 fh. eigenda að Nýlendugötu 24b þar sem óskað er eftir að athugasemdafrestur verði framlengdur og var frestur framlengdur til 1. ágúst 2008. Athugasemdir bárust frá Daða Guðbjörnssyni Brunnstíg 5, dags. 20. júní 2008, Hörpu Þórsdóttur og Lindu Hrönn Kristjánsdóttur dags. 31. júlí, eigendur að Nýlendugötu 24A/B dags. 31. júlí 2008.
Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 5. september 2008.
Frestað.

7. Hólmsheiði, jarðvegsfylling. (05.8) Mál nr. SN080570
Breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Lögð fram drög skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur dags. 29. ágúst 2008. Í breytingunni felst stækkun á svæði til jarðvegsfyllingar á Hólmsheiði samkv. meðfylgjandi uppdrætti dags. 29. ágúst 2008.
Samþykkt að kynna framlögð drög að breytingu á aðalskipulagi með vísan til 17. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 á vef skipulags- og byggingarsviðs.

8. Suður Mjódd. (04.91) Mál nr. SN070580
Breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 18. febrúar 2008 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna Suður- Mjóddar. Í tillögunni er gert ráð fyrir breyttri landnotkun og aukningu á byggingarmagni. Tillagan var auglýst frá 4. apríl til og með 9. júní 2008. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.

9. Borgartún – Skúlatún. Mál nr. SN080579
Drög að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Lögð fram drög skipulags- og byggingarsviðs dags. 5. september 2008 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna aukins byggingarmagns við Borgartún
Samþykkt að kynna framlögð drög að breytingu á aðalskipulagi með vísan til 17. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 á vef skipulags- og byggingarsviðs.

(B) Byggingarmál

10. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa. Mál nr. BN038891
Fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 504 frá 9. september 2008.

11. Laugavegur 178. (01.251.102) Mál nr. BN038621
Bílageymsla
Vallhólmi ehf, Hjallalandi 8, 108 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15.júlí 2008 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílageymslu neðanjarðar á lóðinni Laugavegur 178. Bílastæði inni 34 úti 115 samtals bílastæði á lóð 149.
Meðfylgandi er samkomulag eigenda dags. 27. júní 2008.Stærðir. 794,2 ferm; 2.382,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 173.929 Tillagan var grenndarkynnt frá 1. ágúst til og með 1. september 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir:
Ingi Már Helgason fh. Lx-fasteigna dags. 26. ágúst 2008, Ottó Eðvarðsson fh. Reykjafells hf dags. 29. ágúst 2008, Lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 5. september 2008.
Einnig lagt fram bréf frá Jóni Guðna Óskarssyni fh. OR dags. 28. ágúst þar sem vakin er athygli á kvöðum um lagnir á mæliblaði 1.252.1
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

12. Tjarnargata 12. (01.141.306) Mál nr. BN038133
Br. innanhúss, nýbygging, stækkun lóðar
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. apríl 2008 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og byggja við inn í porti ásamt því að fá lóð stækkaða í átt að Tjarnargötu fyrir stigahús nýbyggingarinnar sem er steinsteypt á tveimur hæðum með gler þaki að hluta í húsinu Tjarnarbíó á lóð nr. 12 við Tjarnargötu. Grenndarkynning stóð frá 22. maí til 19. júní 2008.
Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Gústaf Þór Tryggvason hrl. Tjarnargötu 10 d. dags 29.maí 2008, Sergiy Okhremchuk og Olha Dushynska, dags. 13. júní 2008, Guðmundur Hafsteinsson hdl., dags. 16. júní 2008.
Á fundi skipulagsstjóra 4. júlí 2008 var erindinu frestað.
Umsækjandi skal leggja fram greinargerð um brunatæknilegar lausnir vegna breytingarinnar. Nú lagt fram að nýju ásamt umsögn verkfræðistofu Snorra Ingimarssonar um brunatæknilegar lausnir dags. 14. ágúst 2008 og umsögn Rafns Guðmundssonar dgs. 2. júlí 2008 varðandi hönnun loftræstikerfis. Erindinu var vísað til umsagnar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 26. ágúst 2008.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

(D) Ýmis mál

13. Laugavegur / Vatnsstígur. Mál nr. SR080004
Kynning
Kynntar hugmyndir á reitnum

14. Suðurlandsbraut 8 og 10. (01.262.1) Mál nr. SN080569
Málskot
Einar V Tryggvason, Miðdalur, 270 Mosfellsbær
Lagt fram málskot Einars V. Tryggvasonar fh. Avion properties dags. 24. júlí 2008 vegna afgreiðslu skiplagsstjóra 6. júní 2008 á erindi vegna Suðurlandsbrautar 8 og 10. Einnig er lagt fram tölvupóstur Einars V. Tryggvasonar dags. 25. ágúst 2008 og endurbætt tillaga Einars Tryggvasonar og Avion properties dags. 1. september 2008.
Vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

15. Holtsgötureitur, Holtsgata 7b. (01.134.6) Mál nr. SN080018
Kæra, umsögn, úrskurður
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 2. september 2008 vegna kæru á samþykkt skipulagsráðs frá 4. október 2006 um að synja um breytingu á deiliskipulagi Holtsgötureits vegan lóðarinnar að Holtsgötu 7b. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á synjun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 4. október 2006 um breytingu á deiliskipulagi Holtsgötureits vegan lóðarinnar að Holtsgötu 7b.

Fundi slitið kl. 11:15.

Júlíus Vífill Ingvarsson

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Brynjar Fransson
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir
Svandís Svavarsdóttir Magnús Skúlason

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2008, þriðjudaginn 9. september kl. 10.15 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 504. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð austur Borgartúni 10-12. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Akrasel 16 (04.943.105) 113017 Mál nr. BN038864
Kristinn Eiríksson, Akrasel 16, 109 Reykjavík
Guðný Arna Sveinsdóttir, Akrasel 16, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka og breyta húsi og skipta um veðurkápu á einbýlishúsi á lóð nr. 16 við Akrasel.
Stækkun: XXX ferm., XXX rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + XXX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

2. Asparfell 2-12 (04.681.001) 112291 Mál nr. BN038812
Æsufell 2-6,húsfélag, Æsufelli 4, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjölga bílastæðum um 44 stæði við fjölbýlishús við Æsufell 2-6 á lóð nr. 2-12 við Asparfell og nr. 2-6 við Æsufell.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Austurstræti 17 (01.140.308) 100841 Mál nr. BN038880
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi í kjallara og í verslun á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 17 við Austurstæti.
Gjald 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

4. Austurstræti 22 (01.140.504) 100864 Mál nr. BN038898
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að fjarlægja í heilu lagi hlaðið eldstæði sem er það eina sem eftir stendur af húsi nr. 22 við Austurstræti þannig að hægt sé að endurnýta það við fyrirhugaða endurbyggingu hússins á lóð nr. 22 við Austurstræti.
Málinu fylgir tölvupóstur Minjasafns Reykjavíkur dags. 8. september 2008 og bréf Húsafriðunarnefndar dags. 2. september 2008.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Enda verði framkvæmd í samræmi við athugasemdir umsóknaraðila.

5. Álfabakki 10 (04.603.601) 111727 Mál nr. BN038859
Nova ehf, Lágmúla 9, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að staðsetja 3 stk. farsímaloftnet frá Nova á súlu sem nær 5 metra uppfyrir þak ásamt tækjaskáp á húsi nr. 10 við Álfabakka
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

6. Álfheimar 74 (01.434.301) 105290 Mál nr. BN038637
Sportbarinn ehf, Eikarási 9, 210 Garðabær
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi BN034960, dags. 14. nóvember 2006, þar sem sótt var um leyfi til þess að endurnýja og breyta lítillega snyrtingum í suðurenda Sportbarsins i kjallara Glæsibæjar á lóð nr. 74 við Álfheima.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

7. Bakkastaðir 45 (02.421.103) 178891 Mál nr. BN038837
Grágrýti ehf, Bakkastöðum 47, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús á einni hæð með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 45 við Bakkastaði.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Bakkastaða 43 dags. 21. ágúst 2008.
Stærð: Íbúð 313 ferm., bílgeymsla 47 ferm.
Samtals 360 ferm., 1.375 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 100.375
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

8. Bankastræti 5 (01.170.008) 101326 Mál nr. BN038871
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta eldhólfum milli hæða og breytingum á flóttaleiðum í verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóðinni nr. 5 við Bankastræti.
Gjald 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

9. Bergstaðastræti 83 (01.196.406) 102684 Mál nr. BN037075
Karl Arnar Arnarson, Bergstaðastræti 83, 101 Reykjavík
Rakel Edda Ólafsdóttir, Bergstaðastræti 83, 101 Reykjavík
Ísgraf ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á byggingarleyfi BN033647 dags. 7. mars, þar sem bílskúr er stækkaður að lóðamörkum, eldhús á 1. hæð er stækkað, byggt er undir svalir á suðurhlið, ásamt minni háttar útlitsbreytingum s. s. útitröppum og gluggapóstum, á einbýlishúsinu á lóðinni nr. 83 við Bergstaðastræti.
Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 8. febrúar 2008.
Erindið var grenndarkynnt frá 14. nóvember til og með 12. desember 2007. Athugasemdir bárust frá Guðrúnu Jónsdóttur og Páli Jakob Líndal dags. 11. desember 2007.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 5.197
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN038852
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 7. hæðar á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 7.300.
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

11. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN038881
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á áður samþykktu innra skipulagi í báðum kjöllurum, 1. og 6. hæð verslunar- og skrifstofuhússins á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

12. Bræðraborgarstígur 21B (01.137.005) 100637 Mál nr. BN038484
Þröstur Ólafsson, Bræðraborgarstíg 21b, 101 Reykjavík
Þórunn Klemensdóttir, Bræðraborgarstíg 21b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir á vesturgafli og gera herbergi þar á 2. hæð, bæta við svölum á 2. hæð á suðurhlið auk minni háttar breytinga á fyrirkomulagi innanhúss í tvílyfta einbýlishúsinu á steypta sökklinum frá 1916 á lóð nr. 21B við Bræðraborgarstíg.
Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 10. júlí 2008 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008.
Tillagan var grenndarkynnt frá 7. ágúst til og með 4. september 2008. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir: Eftir stækkun 221,7 ferm., 697,5 rúmm.
Stækkun 65,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + 4.803
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

13. Bræðraborgarstígur 24A (01.134.405) 100375 Mál nr. BN038232
Droplaug Ólafsdóttir, Bræðraborgarstíg 24a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á suðausturþekju og byggja svalir á suðvesturgafl íbúðarhússins nr. 24A við Bræðraborgarstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. maí 2008 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 15. maí 2008 fylgja erindinu.
Sömuleiðis samþykki meðeiganda ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008.
Grenndarkynning stóð frá 1. ágúst til og með 1. september 2008. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 20,7 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Efstaleiti 10-14 (01.746.801) 107453 Mál nr. BN038876
Efstaleiti 10,12,14,húsfélag, Efstaleiti 14, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum og að breyta þrem matshlutum í einn vegna eignaskiptasamnings fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 10,12 og 14 við Efstaleiti.
Meðfylgjandi er bréf frá umsækjanda með ítarlegri samantekt á þeim breytingum, sem framkvæmdar hafa verið.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vantar skráningartöflu.

15. Elliðavatnsblettur 35 (08.1--.-64) 113454 Mál nr. BN038872
AIM ehf, Rauðási 16, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir rotþró og til að breyta þaki, byggja við og endurbyggja sumarhúsið nr. 35 við Elliðavatnsblett.
Erindi fylgir tölvupóstur frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar dags. 10. apríl 2008, umsögn Fornleifaverndar ríkisins dags. 2. maí 2008 og umsögn OR dags. 5. maí 2008.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

16. Fannafold 145 (02.851.606) 109964 Mál nr. BN038868
Guðrún Björg Halldórsdóttir, Fannafold 145, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bæta við glugga á vesturgafl og til að byggja garðskála úr gleri og timbri með einangruðu þaki á steyptum undirstöðum við parhús á lóð nr. 145 við Fannafold.
Stærðir stækkun: 29,5 ferm. 86,6 rúmm.
Samtals eftir stækkun: 280,1 ferm., 979,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 6.322
Frestað.
Viðbygging samræmist ekki deiliskipulagi.

17. Fiskislóð 35 (01.086.402) 209694 Mál nr. BN038900
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Ystabjarg ehf, Fiskislóð 10, 101 Reykjavík
Sótt er um takmakað byggingarleyfi fyrir aðstöðugerð og jarðvinnu á lóðinni nr. 35 við Fiskislóð.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa.

18. Fiskislóð 37 (01.086.401) 209695 Mál nr. BN038901
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Kvikk ehf, Sunnuflöt 5, 210 Garðabær
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir aðstöðugerð og jarðvinnu á lóðinni nr. 37 við Fiskislóð.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

19. Fjólugata 21 (01.185.512) 102202 Mál nr. BN038866
Kristrún M Þórðardóttir, Fjólugata 21, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli á 2. hæð og breyta gluggum í húsi á lóð nr. 21 við Fjólugötu.
Stærðir 4 ferm., 9.8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 715
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 00 - 01 dags. 1. september 2008.

20. Flugvallarv. Keiluh. (01.751.201) 107467 Mál nr. BN038627
Aðhald ehf, Flugvallarvegi, 101 Reykjavík
Öskjuhlíð ehf, Flugvallarvegi, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjölga séreignarhlutum í Keiluhöllinni við Flugvallarveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Friggjarbrunnur 53 (02.693.103) 205831 Mál nr. BN038883
Trésmiðja Snorra Hjaltason hf, Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja 4 - 6 hæða fjölbýlishús með sextíu og einni íbúð á bílakjallara fyrir 53 bíla úr forsteyptum einingum við Skyggnisbraut 2-6 á lóð nr. 53 við Friggjarbrunn.
Stærð: Kjallari (bílageymslur) 2.096,3 ferm., 1. hæð 1.221,6 ferm., 2. hæð 1.236,7 ferm., 3.hæð 1.241,4 ferm., 4.hæð 1.241,4 ferm., 5.hæð 770,2 ferm., 6.hæð 380,5 ferm.,
Samtals: 8.188,1 ferm., 24.780,9 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 +1.809.006
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði sem ekki eru tæmandi.

22. Friggjarbrunnur 55-57 (02.693.105) 205838 Mál nr. BN038882
Leiguliðar ehf, Fossaleynir 16, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja 5 hæða fjölbýlishús með fimmtíu og einni íbúð á bílakjallara með 57 stæðum úr forsteyptum einingum við Skyggnisbraut 8-12 á lóð nr. 55 - 57 við Friggjarbrunn.
Stærð: Kjallari/bílageymslur 2.051,0 ferm., 1. hæð 1367,2 ferm., 2. hæð 1.334,8 ferm., 3. hæð 1.334,8 ferm., 4.hæð 1.023,9 ferm., 5.hæð 698,3 ferm.,
Samtals: 7.810,0 ferm., 24.105,3 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 +1.759.686,9
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði sem ekki eru tæmandi.

23. Gerðarbrunnur 17-19 (05.056.107) 211700 Mál nr. BN038888
Einar Björn Guðmundsson, Ásakór 1, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja skyggni yfir svalir að hluta, breyta stærð á glugga og frágangi svalahandriðs að hluta á nýsamþykktu húsi sbr. erindi BN038198 á lóð nr. 17-19 við Gerðarbrunn.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Gerðarbrunnur 48 (05.054.703) 206062 Mál nr. BN038867
Birgir Finnbogason, Háteigsvegur 18, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt, tvílyft einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 48 við Gerðarbrunn.
Stærð: 1. hæð íbúð 106,3 ferm., bílgeymsla 33,2 ferm., 2. hæð 131,8 ferm..
Samtals 268,6 ferm., 845,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 61.692
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Góugata 2 (01.635.810) 212086 Mál nr. BN038861
Sigfús Bjartmarsson, Bergstaðastræti 36, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta þakgluggum, lóðréttum hluta sleppt, gluggi færður, gleri breytt, í einbýlishúsi á lóð nr. 2 við Góugötu.
Meðfylgjandi er brunavarnaskýrsla vegna þakglugga dags. 15.8.2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Granaskjól 34 (01.515.405) 105852 Mál nr. BN038639
Þórður Hermann Kolbeinsson, Dverghamrar 10, 112 Reykjavík
Lovísa Sigurðardóttir, Dverghamrar 10, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka og breyta innra skipulagi einbýlishússins á lóðinni nr. 34 við Granaskjól.
Stækkun: 21,9 ferm., 80,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 5.847
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

27. Grensásvegur 1 (01.460.001) 105655 Mál nr. BN038854
Mannvit hf, Grensásvegi 1, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir staðsteyptu skrifstofuhúsnæði með tilheyrandi starfsmannaaðstöðu á fjórum hæðum auk bílgeymslu í kjallara sem er á þremur hæðum, húsið tengist núverandi skrifstofubyggingu matshluta 03, en skrifstofubygging, jafnfram er sótt um að matshluti 04 verður rifinn á lóðinni nr. 1 við Grensásveg.
Jafnframt er erindi BN038566 dregið til baka.
Takmarkað byggingarleyfi fyrir uppsteypu bílgeymslna hæðir -3 -2 -1 og jarðhæð var veitt.
Meðfylgjandi er bréf frá hönnuði dags. 14.8.2008
Stærðir: Kjallari K-2 2.555,8 ferm.,K-1 2.726,4 ferm., K-0 2.821,9 ferm.,
Samtals bílageymsla og aðrar geymslur: 8.104,1, Jarðhæð 1.792,4 ferm., 2. hæð 1.831,8 ferm. 3. hæð 1.565,9., 4. hæð 1.565,9 ferm., 5. hæð 252 ferm.
Samtals skrifstofuhæðir 7.008,0 ferm.
Samtals allt húsið 15.112,1 ferm., 53.606,2 rúmm.
Eldri byggingar á lóð 2.687,3 ferm.
Stærðir niðurrifs mhl. 04: 1.895,2 ferm., 6.159,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 3.913.252
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

28. Grettisgata 20C (01.182.116) 101832 Mál nr. BN038697
Anna María Torfadóttir, Grettisgata 20c, 101 Reykjavík
Sótt er um að byggja verönd ofan á hallandi þaki og stiga af henni ofan í garð sbr. fyrirspurn BN038606 dags. 15.7.2008 á einbýlishúsi á lóð nr. 20C við Grettisgötu.
Meðfylgjandi á einni teikningu er samþykki nágranna og einn samþykkir á tölvupósti þar sem hann er í útlöndum.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Grettisgata 36B (01.190.009) 102347 Mál nr. BN038824
Lilli María Ericsdóttir, Danmörk, Daníel Halldórsson, Klapparberg 7, 111 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum vegna gerðar eignaskiptasamnings, þar sem gerð er grein fyrir áður gerðri ósamþykktri íbúð í kjallara íbúðarhússins á lóð nr. 36B við Grettisgötu.
Erindi fylgir þinglýst yfirlýsing um eignarhald á baðaðstöðu í kjallara dags. 31. ágúst 1993, yfirlýsing um eignaskipti dags. 2. desember 1971, heimild til setu í óskiptu búi dags. 26. nóvember 1984 og virðingargjörð dags. 22. maí 1947.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Gvendargeisli 168 (05.134.701) 190285 Mál nr. BN038873
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja niður einn tengigang og sex færanlegar kennslustofur á lóð Sæmundarsels á lóð nr. 168 við Gvendargeisla
Stærðir stækkun: 395 ferm., 1.367 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 99.791
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

31. Haðaland 17-23 (01.864.102) 108811 Mál nr. BN038877
Gunnlaugur Guðmundsson, Haðaland 17, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að settja nýja gluggaeiningu með rennihurð sem færð er fram í útveggjarlínu á suðurhlið einbýlishússins nr. 17 á lóð nr 17-23 við Haðaland
Stækkun:, 4,5 ferm. og 11,9 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 869
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

32. Holtavegur 8-10 (01.408.101) 104960 Mál nr. BN038707
Landsafl ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Festing ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta kjallara fyrir geymslu á smurolíum og dekkjum, byggja nýjan brunavegg og breyta vatnsúðakerfi í húsi á lóð nr. 10 við Holtaveg.
Meðfylgjandi er eldvarnarskýrsla dags. 22.7.2008
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Hólmvað 54-70 (04.741.702) 198829 Mál nr. BN038874
Guðmundur Auðunsson, Kögursel 22, 109 Reykjavík
Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Kögursel 22, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og setja hurð á austurhlið húss nr. 70 á lóð nr. 62-70 við Hólmvað.
Undirritað bréf þinglýstra eigenda frá 01.09.08 fylgir málinu.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

34. Hraunbær 131 (04.341.201) 176342 Mál nr. BN038762
Valur Blomsterberg, Kirkjuvellir 7, 221 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi fyrir tímabundna opnun milli eignarhluta 0107 og 0108, 0109 og 0110 og milli eignarhluta 0113 og 0114 í nýsamþykktri, BN035649, bílskúrsbyggingu, Mhl. 02, á lóð nr. 131 við Hraunbæ.
Erindi fylgir bréf eiganda dags. 2. september 2008.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Byggingarfulltrúi mun leita álits FMR hvort framangreint er mögulegt vegna skráningar.

35. Kleifarsel 18 (04.975.601) 113267 Mál nr. BN038845
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta verslunarrými á 1. hæð í frístundaheimili og sérskóla og íbúðum á 2. hæð í tónlistarskóla í húsi á lóð nr. 18 við Kleifarsel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

36. Kleppsvegur 90 (01.352.203) 104184 Mál nr. BN038777
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sambýli úr steinsteypu með fimm búsetueiningum á lóð nr. 90 við Kleppsveg.
Jafnramt er sótt um leyfi til að rífa núverandi hús á lóðinni.
Stærð niðurrifs: Fastanr. 201-7600, Mhl. 01 merkt 0101 Íbúð: 40,9 ferm. Mhl. 02 merkt íbúð 0101: 120,8 ferm.
Samtals: 161,7 ferm.
Stærð nýbyggingar: 1. hæð 157,6 ferm., 2. hæð 149,4 ferm.
Samtals 307 ferm., 1.039 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 75.847
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Laufásvegur 19 (01.183.510) 197991 Mál nr. BN038521
Laufásvegur 19,húsfélag, Laufásvegi 19, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir minni háttar breytingum á innra skipulagi, að koma fyrir svölum á austurhlið og til að koma fyrir sorptunnum til bráðabirgða við inngang íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 19 við Laufásveg.
Erindi fylgir samþykki eigenda dags. 21.7. 2008.
Sömuleiðis samþykkt skipulagsráðs og byggingarfulltrúa fyrir tímabundinni staðsetningu sorpíláta úti á gangstétt ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008.
Erindið var grenndarkynnt frá 7. ágúst til og með 4. september 2008. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

38. Lækjargata 2 (01.140.506) 100866 Mál nr. BN038783
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að taka niður húsið nr. 2 við Lækjargötu vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar hússins á sömu lóð Lækjargötu 2.
Lýsing framkvæmdanna kemur fram í bréfi Minjaverndar dags. 31. júlí 2008. Umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 4. september 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn Húsafriðunarnefdnar dags. 25. ágúst 2008.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til bréfs Minjaverndar og meðfylgjandi umsagna.

39. Pósthússtræti 17 (01.140.511) 100871 Mál nr. BN038736
Eignarhaldsfél Kirkjuhvoll ehf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir/pall við austurgafl og gera dyr út á hann við veitingahúsið Skólabrú 1 á lóð nr. 17 við Pósthússtræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 27. ágúst 2008 og umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 14. ágúst 2008.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. júlí 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Stórhöfði 34-40 (04.073.101) 110547 Mál nr. BN038607
S 40 ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um stöðuleyfi fyrir tjaldskemmu, tímabundið í 24 mánuði, á lóðinni nr. 34-40 við Stórhöfða.
Skemman er klædd grænum PVC dúk á stálgrind.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008 fylgir erindinu.
Stærðir: 675 ferm., 4234,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 309.118
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

41. Stuðlaháls 2 (04.325.401) 111045 Mál nr. BN038851
Áfengis-/tóbaksverslun ríkisins, Pósthólf 10120, 130 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi kaffistofu, bæta við nýrri ræstikompu, og salernum ásamt því að fjarlæga glugga á austurhlið og gera dyr á suðurgafl á atvinnuhúsnæði á lóð nr. 2 við Stuðlaháls.
Gjöld kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

42. Stuðlasel 35 (04.923.408) 112629 Mál nr. BN038802
Reynir Þrastarson, Stuðlasel 35, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við steinsteypt einbýlishús á lóð nr. 35 við Stuðlasel.
Meðfylgjandi á teikningu er samþykki eiganda Stuðlasels 33 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008.
Stærðir: Stækkun 20,3 ferm., 72,6 rúmm.
Samtals eftir stækkun 212,7 ferm., 809,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300. + 5.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

43. Suðurlandsbraut 12 (01.263.004) 103521 Mál nr. BN038856
Faxar ehf, Kringlunni 5, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0101 í verslunar- og skrifstofuhúsinu nr. 12 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Umsækjandi hafi samband við heilbrigðiseftirlit.

44. Tunguháls 10 (04.329.201) 179475 Mál nr. BN038598
Hólmsteinn Helgason ehf, Hafnarbraut 6, 675 Raufarhöfn
Eignarhaldsfélagið B og S ehf, Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík
Vagnar og þjónusta ehf, Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir stækkun 1. hæðar og breytinga innanhúss á 2. hæð með nýjum milliloftum í húsi á lóð nr. 10 við Tunguháls.
Jafnframt er erindi nr. BN017989 dregið til baka.
Stærðir stækkun: viðbygging 204,1 ferm., milliloft 235,4 ferm., samtals 439,5 ferm., viðbygging 1.846,7 rúmm.
Samtals eftir stækkun: 6.147,2 ferm., 34.234,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 134.809
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Tunguháls 6 (04.328.101) 111062 Mál nr. BN038747
Íslensk-ameríska verslfél ehf, Pósthólf 10200, 130 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum af atvinnuhúsinu á lóð nr. 6 við Tunguháls.
Erindi fylgir brunahönnun frá Línuhönnun, síðast uppfærð 21. júlí 2007.
Stækkun (milliloft): 31,9 ferm.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

46. Urðarbrunnur 72-74 (05.054.506) 211731 Mál nr. BN038869
Baldur Guðmundsson, Katrínarlind 7, 113 Reykjavík
Davíð Júlíusson, Ólafsgeisli 89, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta þakuppbyggingu og einangrun á nýsamþykktu parhúsi sbr. erindi BN037560 á lóð nr. 72-74 við Urðarbrunn.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

47. Úlfarsbraut 114 (02.698.508) 205752 Mál nr. BN038668
Fasteignafélagið Hlíð ehf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fimm hæða fjölbýlishús með lyftu og með níu íbúðum og bílgeymslu með 9 bílastæðum á lóð nr. 114 við Úlfarsbraut..
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðlsufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008 fylgir erindinu.
Stærðir: 1.hæð bílgeymsla 204,5 ferm, íbúðageymslur og sameign 183,3 ferm.
2.hæð íbúðarhæð 351,4 ferm.
3.hæð íbúðarhæð 351,4 ferm.
4.hæð íbúðarhæð 351,4 ferm.
5.hæð íbúðarhæð 44,0 ferm.
Samtals: 1.486,0 ferm. og 4.933,7 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 306.160
Synjað.
Með vísan umsagnar skipulagsstjóra.

48. Úlfarsbraut 126 (05.056.501) 205756 Mál nr. BN038870
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að grafa og jarðvegsskipta fyrir nýbyggingum og að setja farg á gervigrasvöll, aðalvöll og æfingavelli. Sótt er um graftrarleyfi þetta á grunni fyrirspurnaruppdrátta dags. 31.8.08 vegna mannvirkja á lóð nr. 126 við Úlfarsbraut.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

49. Vesturvallagata 4 (01.134.507) 100391 Mál nr. BN038678
Kristinn Ágúst Halldórsson, Vesturvallagata 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir tvílyftri viðbyggingu þar sem neðri hæðin og tengibygging er steypt, en efri hæðin úr timbri við einbýlishús úr timbri á lóð nr. 4 við Vesturvallagötu.
Meðfylgjandi er undirskrift nágranna dags. júlí 2008, sömuleiðis bréf Skipulagsstjóra dags. 13.6.2008, einnig bréf Borgarminjavarðar dags. 26.6.2008 og Húsafriðunarnefndar dags. 16.6.2008.
Stærðir: núv. + stækkun = samt.
Gjald kr. 7.300 + stækkun x 73
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Þinglýsa skal samþykki lóðarhafa Vesturvallagötu 6 vegna fjarlægðar frá lóðarmörkum.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað er til uppdrátta 302 - 305 dags. 10. júlí og 31. ágúst 2008.

50. Þingholtsstræti 2-4 (01.170.205) 101333 Mál nr. BN038778
Íslenska eignafélagið ehf, Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja ytra byrði, dýpka kjallara og hækka ris atvinnuhússins á lóð nr. 2-4 við Þingholtsstræti.
Stækkun: 193,1 ferm., 982,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 71.723
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

51. Þingholtsstræti 29A (01.183.605) 101989 Mál nr. BN038708
Ingunn Gyða Wernersdóttir, Bjarmaland 7, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til minniháttar breytinga inni í eldra húsinu auk breytinga á gluggum og dyraopum til austurs að garði og ennfremur um leyfi fyrir byggingu bílskúrs með aðkeyrslu að Grundarstíg með baðaðstöðu, geymslum og tæknirými í kjallara og stigatengingu við 1. hæð í einbýlishúsinu Esjubergi á lóð nr. 29 A við Þingholtsstræti.
Meðfylgjandi er bréf frá hönnuðum dags. 22.7.2008. Samþykki flestra nágranna á Þingholtsstræti 29 og á Grundarstíg 12. Sömuleiðis bréf frá Húsafriðunarnefnd dags. 19.6.2008 og Minjasafni Reykjavíkur dags. 26.6.2008 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008.
Tillagan var grenndarkynnt frá 7. ágúst til og með 4. september 2208. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir fyrir stækkun 467,7 ferm., 1564 rúmm.
Stækkun íbúð 203,4 ferm., bílskúr 41,4 ferm.
Samtals stækkun 244,8 ferm., 1000,3 rúmm.
Samtals eftir stækkun 712,5 ferm., 2564,3 rúmm.
Gjald kr. 7,300 + 73,022
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Þverholt 11 (01.244.108) 180508 Mál nr. BN038659
Þverholt 11 ehf, Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta kaffihús/veitingastað á 1. hæð hússins nr. 11 við Þverholt.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 15.7.2008
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

53. Öldugata 2 (01.136.311) 100569 Mál nr. BN038885
Andl þjóðarráð baháía á Íslandi, Pósthólf 536, 121 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingleyfi, upphaflega samþykkt 8. júní 2004 þar sem sótt var um #GLleyfi til að rífa bílgeymslu við húsið nr. 2 við Öldugötu og að byggja þess í stað móttökuskála á norðurhluta lóðarinnar ásamt lyftustokki og tilheyrandi tengigangi við norðurhlið hússins. Skálinn verði byggður úr steinsteypu og stáli, klæddur með múrkerfi með svipaðri áferð og hús eða klæddur með grágrýti. Á þaki verði gras. Jafnframt verði byggður nýr kvistur í norðurþak af sömu stærð og með svipaðri áferð og kvistur í suðurþaki. Ennfremur er sótt um leyfi til að breyta notkun og innra fyrirkomulagi allra hæða hússins og koma þar fyrir fundar- og kennsluherbergjum ásamt matsal og framreiðslueldhúsi á fyrstu hæð.#GL
Greiða skal fyrir 4,7 bílastæði í flokki III, kr. 1.700.280 pr. stæði samtals kr. 6.801.120.
Niðurrif: Bílskúr 32.2 ferm. og 81 rúmm.
Stækkun: 26 ferm. og 199.5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 14.563
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Þinglýsa skal kvöð á lóð nr. 3 við Bárugötu vegna fjarlægðar frá lóðarmörkum.

Fyrirspurnir

54. Dofraborgir 15 (02.344.404) 173998 Mál nr. BN038879
Joseph Lee Lemacks, Dofraborgir 15, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka efri hæð og koma fyrir svölum eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af einbýlishúsinu á lóð nr. 15 við Dofraborgir.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi.

55. Flókagata 1 (01.243.605) 103163 Mál nr. BN038878
Þráinn ehf, Laugavegi 36, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sem kæmi í stað tjalds við norðurhlið gistiheimilisins á lóð nr. 1 við Flókagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

56. Hringbraut 44 (01.162.323) 101296 Mál nr. BN038855
Sigríður Pétursdóttir, Hringbraut 44, 107 Reykjavík
Garðar Agnarsson, Hringbraut 44, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja trésvalir með tröppum niður í garð á húsi á lóð nr.44 við Hringbraut.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi. sem grenndarkynnt verður.
Draga skal svalir frá lóðarmörkum beggja vegna. Samþykki meðeigenda fylgi.

57. Hvassaleiti 6-10 (01.722.302) 107296 Mál nr. BN038865
Sigfús Harðarson, Hvannabraut 4, 780 Höfn
Spurt er hvort leyft yrði að stækkja kjallaraíbúð inn í sameign fjölbýlishússins nr. 6 á lóð nr. 6-10 við Hvassaleiti.
Erindi fylgir kaupsamningur dags. 8. ágúst 2008 undirritaður af meðeigendum.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

58. Sigluvogur 8 (01.414.113) 105108 Mál nr. BN038884
Guðmundur Ingi Jónsson, Sigluvogur 8, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta innra skipulagi, byggja við til norðurs og stækka bílskúr við einbýlishúsið á lóð nr. 8 við Sigluvog.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

59. Skólavörðustígur 25A (00.000.000) 101894 Mál nr. BN038875
Gísli Örn Garðarsson, Bergstaðastræti 32b, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta söluskrifstofu og veitingarekstur í atvinnuhúsinu á lóð nr. 25A við Skólavörðustíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

60. Smáragata 12 (01.197.407) 102742 Mál nr. BN038886
Einar Jónsson, Smáragata 12, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr og hverjum bílskúrsrétturinn þá tilheyrir við fjölbýlishúsið á lóð nr. 12 við Smáragötu.
Vísað er til umsagna á fyrirspurnablaði.

61. Starengi 82 (02.384.503) 172449 Mál nr. BN038822
Þóra Þórsdóttir, Starengi 106, 112 Reykjavík
Elísabet Stefánsdóttir, Starengi 82, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að #GLtaka í fóstur#GL grasflatir sem liggja að lóðamörkum einbýlishúsanna á lóðum nr. 82 og 106 við Starengi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. september 2008 fylgir erindinu.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 13:10.

Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir Þórður Búason
Jón Hafberg Björnsson Eva Geirsdóttir