Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 16. júlí kl. 09:05, var haldinn 142. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Einar Eiríksson, Snorri Hjaltason, Hermann Valsson, Stefán Benediktsson, Dofri Hermannsson og áheyrnarfulltrúi Brynjar Fransson.
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson og Elín Ósk Helgadóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Lilja Grétarsdóttir. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur. Mál nr. SN010070
fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur 11. júlí 2008.

2. Kleppsvegur 90. (01.352.2) Mál nr. SN080290
breyting á deiliskipulagi
Gestur Ólafsson, Garðastræti 15, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram tillaga skipulags- arkitekta- og verkfræðistofunnar ehf. dags. 22. maí 2008 f.h. Félagsbústaða að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 90 við Kleppsveg. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður í samræmi við meðfylgjandi teikningar. Grenndarkynningin stóð frá 30. maí til og með 7. júlí 2008. Lagt fram bréf frá Magneu Jóhannsdóttur dags. 19. júní 2008 f.h. íbúa að Kambsvegi 2 og Kleppsvegi 88 þar sem óskað er eftir að athugasemdafrestur verði framlengdur.
Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemd: Undirskriftalisti 11 íbúa við Kambsveg 2 og Kleppsveg 82, 84, 88 og 92, dags. 26. júní 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 10. júlí 2008.
Kynnt tillaga samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra, með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

3. Lækjargata 12. (01.141.2) Mál nr. SN080082
breyting á deiliskipulagi Kvosarinnar
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík
THG Arkitektar ehf, Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. dags. 10. apríl 2007 um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 12 við Lækjargötu skv. uppdráttum teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, dags. 3. febrúar 2008, breytt 18. mars 2008. Í tillögunni er gert ráð fyrir nýbyggingu á lóðinni og sameiningu lóðanna Lækjargata 12 og Vonarstræti 4 og 4B. Einnig er lagt fram minnisblað skipulagsstjóra dags. 19. mars 2008. Tillagan var auglýst frá 21. apríl til og með 3. júní 2008.
Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Karl Steingrímsson fh. Kirkjuhvols dags. 15. maí 2008, Sigurður Sigurðarson f.h. Eignasögu ehf., dags. 23. maí 2008, Inga Sigurjónsdóttir f.h. Eignasögu ehf., dags. 2. júní 2008,Hallfríður Jakobsdóttir, Herbert Haraldsson, Hólmfríður Garðarsdóttir og Karl Sólnes Jónsson dags. 2. júní 2008, Emma Furuvik, dags. 3. júní 2008, Kári Halldór f.h. íbúasamtaka Reykjavíkur, dags. 3. júní 2008. Einnig lögð fram samantekt skipulagsstjóra dags. 5. júní 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 14. júlí 2008.
Auglýst tillaga samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

Ráðið fagnar tillögu að uppbyggingu hótels á lóðinni Lækjargötu 12 og Vonarstræti 4-4b eins og hún birtist í auglýstri tillögu um deiliskipulag á reitnum. Tillagan er vel unnin og telur ráðið að vel hafi til tekist með að koma til móts við athugasemdir nálægra íbúa með þeim breytingum sem hafa verið gerðar á tillögunni eftir auglýsingu m.a. með því að draga úr byggingarmagni á þeim hluta nýbyggingarinnar sem snýr að nálægri íbúðabyggð. Ráðið leggur sérstaka áherslu á þá mikilvægu skilmála sem er að finna í deiliskipulaginu um vandað útlit byggingarinnar á þessum áberandi stað í miðborginni auk þess sem áskilið er að götuhæð hótelsins fari að mestu leyti undir almenningsrými s.s. veitingahús og kaffihús.

4. Sóleyjarimi 13. (02.534) Mál nr. SN080428
breyting á deiliskipulagi
Laugarnes ehf - fasteignarfélag, Lækjartorgi 5, 101 Reykjavík
Arkitektastofa Pálma Guðm ehf, Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 11. júlí 2008 var lögð fram umsókn Pálma Guðmundssonar ark. f.h. Laugarnes ehf., dags. 16. júní 2008 um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 13 við Sóleyjarima skv. uppdrætti, dags. 17. júní 2008. Lögð fram ný tillaga dags. 10. júlí 2008
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu. Jafnframt er samþykkt að upplýsa hagsmunaaðila í nágrenninu um tillöguna sérstaklega.
Vísað til borgarráðs.

5. Sléttuvegur- Hrafnista. (01.79) Mál nr. SN080486
breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsstjóra 11. júlí 2008 var lögð fram umsókn Naustavarar ehf. dags. 11. júlí 2008 fh. Hrafnistu varðandi breytingu á deilskipulagi við Sléttuveg. Í breytingunni felst fækkun bílastæða neðanjarðar breyting á byggingarreit fyrir bílageymslu neðanjarðar. Fjölda innkeyrsla í bílageymslu neðanjarðar fækkað úr 4 í 2 og staðsetningu þeirra breytt. Kótasetningu íbúðabygginga er breytt lítillega frá gildandi deiliskipulagi.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.

(B) Byggingarmál

6. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Mál nr. BN038649
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 497 frá 15. júlí 2008.

7. Lambhóll V/ Þormóðsst 106111. (01.53-.-93) Mál nr. BN038518
lagt fram bréf
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa dags. 16. júní 2008 vegna óleyfisframkvæmda við Lambhól við Starhaga. Lagt fram bréf Kristjáns Kristjánssonar til byggingarfulltrúa dags. 2. júlí 2008. Lagt fram minnisblað lögfræði- og stjórnsýslu dags. 8. júlí 2008 vegna óleyfisframkvæmda við Lambhól við Starhaga.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt.

8. Barmahlíð 54. (01.710.111) Mál nr. BN038517
lagt fram bréf
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa dags. 16. júní 2008 vegna óleyfisframkvæmda á lóðinni nr. 54 við Barmahlíð. Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 14. júlí 2008 óleyfisframkvæmda á lóðinni nr. 54 við Barmahlíð.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt.

9. Lækjargata 12. (01.141.203) Mál nr. BN038650
skilti
Glitnir banki hf, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík
Lagt fram tölvubréf Glitnis dags. 13. júlí 2008 þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp tímabundnar merkingar á húsið á lóðinni nr. 12 við Lækjargötu, þar sem auglýst er Reykjavíkurmaraþon.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við erindið. Uppsetning leyfð frá 1. ágúst til 1. september.

(D) Ýmis mál

10. Laugavegur 12. (01.171.4) Mál nr. SN080458
málskot
Laugaberg hf, Burknabergi 8, 221 Hafnarfjörður
Tryggvi Þórhallsson, Drápuhlíð 13, 105 Reykjavík
Lagt fram erindi frá Tryggva Þórhallsonar hdl. dags. 27. júní 2008 varðandi afgreiðslu byggingarfulltrúa 10. júní á erindi vegna; Laugavegur 12. Lagt fram minnisblað lögfræði- og stjórnsýslu dags. 8. júlí 2008 vegna Laugavegs 12.
Samþykkt að framsenda erindið borgarráði Reykjavíkur til ákvörðunar um endurupptöku með vísan til niðurstöðu í minnisblaði lögfræði og stjórnsýslu.

Fundi slitið kl. 09:40.

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir

Gísli Marteinn Baldursson Snorri Hjaltason
Stefán Benediktsson Dofri Hermannsson
Brynjar Fransson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2008, þriðjudaginn 15. júlí kl. 10:34 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 497. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Þórður Búason, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Jón Hafberg Björnsson, Sveinbjörn Steingrímsson og Eva Geirsdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Almannadalur 9-15 (05.865.501) 209395 Mál nr. BN038611
Kristbjörg Hjaltadóttir, Suðurhlíð 35, 105 Reykjavík
Ásgeir Heiðar, Melahvarf 4, 203 Kópavogur
Rós Ingadóttir, Bakkastaðir 105, 112 Reykjavík
Hestamannafélagið Fákur, Vatnsendav Víðivöllum, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi að byggja steinsteypt hesthús, sem skiptist i fimm séreignarhluta, hver með kaffistofu á efri hæð á lóð nr. 15 við Almannadal.
Stærðir: 1. hæð 368,4 ferm., 2. hæð 196,9 ferm., samtals 565,3 ferm., 1.855,3 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 135.437
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Ármúli 3 (01.261.201) 103506 Mál nr. BN038630
Exista Properties ehf, Ármúla 3, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir ID skilti á lóð Ármúla 3
Skiltið verður á horni Ármúla og Hallarmúla. Einnig er sótt um að endurnýja skilti á húsinu.
Stærðir ID 12 ferm. Önnur skilti 64,2 samtals á lóð 76,2 ferm.
Gjald kr 7.300
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar Umhverfis-og samgöngusviðs vegna staðsetningar á skilti á horni Hallarmúla og Ármúla.

3. Árvað 3 (04.731.101) 203628 Mál nr. BN038343
Fasteignastofa Reykjavíkurborg, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa 7 færanlegar kennslustofur og 3 tengiganga við Árvað 3 Norðlingaholti.
Málinu fylgir bréf Framkvæmda- og eignasviðs dags 22. maí 2008 vegna kennslustofu með fastanr. 226-3380, mhl. 09-0101.Stærðir. 623.0 ferm 2053,9 rúmm
Gjald kr. 7.300 + 149.934
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

4. Barmahlíð 54 (01.710.111) 107151 Mál nr. BN038537
Ómar R. Valdimarsson, Barmahlíð 54, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir brú af svölum íbúðar 01-0101 yfir á þak bílskúrs og gerð þaksvala þar með stiga niður í garð við hús á lóð nr. 54 við Barmahlíð.
Sbr. fyrirspurn BN038364 dags. 10.6.2008.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. júlí 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300
Synjað.
Enn vantar samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar Í Barmahlíð 52 en það er forsenda þess að samþykkja megi málið.
Er vísað til fyrri bókana skipulags- og byggingarsviðs vegna þessa.

5. Barónsstígur 47 (01.193.101) 102532 Mál nr. BN038622
Álftavatn ehf, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir innanhússbreytingum á 2. hæð í Heilsuverndarstöðinni á lóð nr. 47 við Barónsstíg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bíldshöfði 10 (04.064.002) 110668 Mál nr. BN038105
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Lækjarhlíð ehf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu til suðurs fyrir lyftu og stiga með tilheyrandi breytingu á innra skipulagi í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 10 við Bíldshöfða.
Stærð stækkunar 48,2 ferm., 190,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 13.914
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Sérstök athygli er vakin á athugasemd skipulagsstjóra.

7. Bíldshöfði 9A (04.062.002) 176037 Mál nr. BN038129
Byggingarfélag Gylf/Gunnars hf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta skipulagi 1-7 hæðar og flóttastiga breytt á 8. hæð atvinnuhúsnæðisins á lóð nr. 9 A við Bíldshöfða.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

8. Brávallagata 26 (01.162.338) 101311 Mál nr. BN038300
Margrét Margeirsdóttir, Brávallagata 26, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr timbri við íbúð 0101 sbr. fyrirspurn BN037646 dags. 5. febrúar 2008 í húsi á lóð nr. 26 við Brávallagötu.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 11.5.2008 og bréf frá arkitekt dags. 26.5.2008, þar sem fram kemur að ekki er verið að fjalla um ósamþykkta íbúð í kjallara.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreislufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008 fylgir erindinu.
Grenndarkynning stóð frá 12. júní til og með 10. júlí 2008. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

9. Brekkustígur 7 (01.134.203) 100330 Mál nr. BN038557
Sigurður Gunnarsson, Brekkustígur 7, 101 Reykjavík
Þórdís Hauksdóttir, Brekkustígur 7, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum og skráningartöflu af íbúðarhúsinu á lóð nr. 7 við Brekkustíg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Þinglýsa skal samrunaskjali.

10. Bræðraborgarstígur 21B (01.137.005) 100637 Mál nr. BN038484
Þröstur Ólafsson, Bræðraborgarstíg 21b, 101 Reykjavík
Þórunn Klemensdóttir, Bræðraborgarstíg 21b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir á vesturgafli og gera herbergi þar á 2. hæð, bæta við svölum á 2. hæð á suðurhlið auk minni háttar breytinga á fyrirkomulagi innanhúss í tvílyfta einbýlishúsinu á steypta sökklinum frá 1916 á lóð nr. 21B við Bræðraborgarstíg.
Stærðir: Eftir stækkun 221,7 ferm., 697,5 rúmm.
Stækkun 65,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 4.803
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Bræðraborgarstígur 24A (01.134.405) 100375 Mál nr. BN038232
Droplaug Ólafsdóttir, Bræðraborgarstíg 24a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á suðausturþekju og byggja svalir á suðvesturgafl íbúðarhússins nr. 24A við Bræðraborgarstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. maí 2008 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 15. maí 2008 fylgja erindinu.
Sömuleiðis samþykki meðeiganda.
Stækkun: 20,7 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra til ákvörðuna um grenndarkynningu vísað er til nýrra uppdrátta 001 - 002 dags. 29.04.08

12. Dugguvogur 21 (01.454.121) 105637 Mál nr. BN038619
HH Verktak ehf, Þorláksgeisla 8, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja rishæð, sbr. erindi nr. 186/73 samþykkt 30. maí 1973 og teikn. samþykkt 12. feb.1953, og gera tvær íbúðir og vinnustofur listamanna í húsi á lóð nr. 21 við Dugguvog.
Stærðir fyrir stækkun 314,8 fermm., 883,2 rúmm.
Stækkun: 352,7 ferm., 969,9 rúmm.
Samtals eftir stækkun 667,5 fermm., 1.853,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 70.803
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

13. Eikjuvogur 27 (01.470.502) 105725 Mál nr. BN038523
Anna Sigríður Garðarsdóttir, Eikjuvogur 29, 104 Reykjavík
Skúli Jóhann Björnsson, Eikjuvogur 29, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 27 við Eikjuvog.
Samþykki nágranna fylgir með.
Stærð: 1. hæð íbúð 155,3 ferm., bílgeymsla 55,2 ferm., 2. hæð íbúð 164,6 ferm.
Samtals 375,1 ferm., 1330,3 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 97.112
Frestað.
Athugasemd Orkuveitu er óbreytt.

14. Flugvallarv. Keiluh. (01.751.201) 107467 Mál nr. BN038627
Aðhald ehf, Flugvallarvegi, 101 Reykjavík
Öskjuhlíð ehf, Flugvallarvegi, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjölga séreignarhlutum í Keiluhöllinni við Flugvallarveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Friggjarbrunnur 31-33 (02.693.509) 205809 Mál nr. BN038631
Iðunn Brynja Sveinsdóttir, Safamýri 43, 108 Reykjavík
Hekla Sörensen, Blönduhlíð 29, 105 Reykjavík
Sótt er um breytingar á nýsamþykktum teikningum sbr. erindi BN035708 dags. 25.9.2007 um að minnka svalir á 2. hæð, breyta gluggum lítillega, breyta lítillega innanhúss og steyptum veggjum í parhúsinu á lóð nr. 31-33 við Friggjarbrunn.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Gefjunarbrunnur 7 (02.695.203) 206007 Mál nr. BN038314
Gunnar Hannesson, Akurhvarf 14, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft, staðsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 7 við Gefjunarbrunn.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. og 20. júní 2008 fylgir erindinu.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Gefjunarbrunns 5 ódagsett
Stærð: 1. hæð íbúð 109,7 ferm., bílgeymsla 26,4 ferm., 2. hæð íbúð 130,5 ferm.
Samtals 266,6 ferm., 853,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + 62.306
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Gerðarbrunnur 2-10 (05.056.401) 206052 Mál nr. BN038633
Sólhús ehf, Tröllborgum 18, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvö staðsteypt, tvílyft hús með flötu þaki og innbyggðum bílgeymslum, annað húsið parhús ( nr. 2 - 4), hitt húsið er raðhús með þremum íbúðum (nr. 6, 8, 10), á lóðinni nr. 2-10 við Gerðarbrunn.
Stærðir: Íbúð nr. 2 xxx bílg. xxx samt. 227,9 ferm. 660,8 rúm
Stærðir: Íbúð nr. 4 xxx bílg. xxx samt 240,1 ferm. 696,1 rúm
Stærðir: Íbúð nr. 6 xxx bílg. xxx samt 240,1 ferm. 696,1 rúm
Srærðir: Íbúð nr. 8 xxx bílg. xxx samt 234,5 ferm. 623,3 rúm
Stærðir: Íbúð nr. 10xxx bílg. xxx samt 234,5 ferm. 623,3 rúm
Samtals öll húsin 1177,1 ferm., 3299,6 rúm
Gjald kr. 7300 + 240.871
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Gerðarbrunnur 36-38 (05.056.303) 206058 Mál nr. BN038432
Theódór Gylfason, Þingvað 11, 110 Reykjavík
Örn Svavarsson, Laufrimi 30, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílgeymslum á lóð nr. 36-38 við Gerðarbrunn.
Hús nr. 36: 1. hæð íbúð 125,7 ferm., 2. hæð íbúð 83,5 ferm., bílgeymsla 33,7 ferm. Samtals 242,9 ferm., 852,9 rúmm.
Hús nr. 38: Sömu stærðir.
Gjald kr. 7.300 + 124.523.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Granaskjól 54-58 (01.515.304) 105843 Mál nr. BN038629
Ástvaldur Jóhannsson, Granaskjól 58, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við húsið Granaskjól 58 sólstofu og stækka eldhús til norðurs.
Stærðir ? ferm: ? rúmm
Gjald kr. 7.300 + ??
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

20. Grensásvegur 11 (01.461.102) 105666 Mál nr. BN038477
Sætrar ehf, Gerðhömrum 27, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka geymslurými á norðurhlið kjallarahæðar í húsi á lóð nr. 11 við Grensásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. júlí 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 20. júní 2008.
Stærðir: Stækkun 68,5 ferm., og 236,2 rúmm.
Stærðir efitr stækkun: 6266,5 ferm., 24.892,3 rúmm.
Gjald kr 7.300+17.243
Synjað.
Er ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags hvað stærð varðar samanber afgreiðslu embættisins frá 8. júlí 2008.

21. Grundarás 2-18 (04.370.602) 111288 Mál nr. BN038620
Vöggur Magnússon, Grundarás 2, 110 Reykjavík
Sótt er um að grafa frá og setja hurð og glugga á kjallarahæð á vesturhlið raðhúss nr. 2 á lóð nr. 2-18 við Grundarás. Málinu fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 23. júní 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

22. Gullengi 21-27 (02.386.301) 109226 Mál nr. BN038588
Elín Guðmundardóttir, Gullengi 27, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir svalaskýli á svalir íbúðar nr. 0303 á 3. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 27 við Gullengi. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008
Stærð 6,8 ferm., 16,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 1.219
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Verkframkvæmd verði í samræmi við gr. 102 í byggingarreglugerða nr. 441/1998.

23. Hjarðarhagi 2-6 (01.552.401) 106511 Mál nr. BN038558
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja bráðabirgðainngang á austurhlið byggingar B á lóð Háskóla Íslands nr. 2-6 við Hjarðarhaga.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 24.6.2008 og annað tölvubréf arkitekts dags. 3.7.2008
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

24. Hjarðarhagi 45-47 (01.543.211) 106436 Mál nr. BN038614
Glitnir fjármögnun, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að færa loftræsiháf frá pizzaofni, fella út hurð og hafa snjóbræðslu í vörumóttökurampi í húsi á lóð nr. 45 við Hjarðarhaga.
Meðfylgjandi á teikningu er samþykki meðeigenda.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

25. Ingólfsstræti 20 (01.180.111) 101687 Mál nr. BN038604
Sigríður Erla Gunnarsdóttir, Ingólfsstræti 20, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa bílskúr og byggja í staðinn viðbyggingu með kjallara, hæð og risi og setja nýja kvisti á rishæðina á einbýlishúsi á lóð nr. 20 við Ingólfsstræti.
Núv. hús 167,4 ferm., 481,2 rúmm., stækkun 59,9 ferm., 159,9 rúmm., samtals eftir stækkun 227,3 ferm., 641,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 11.673
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

26. Krókháls 5-5G (04.323.401) 111039 Mál nr. BN037872
Njála ehf, Arnarhöfða 7, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðu innra fyrirkomulagi þriðju hæðar þar sem hæðinni er skipt í tvær einingar einnig að koma fyrir þakgluggum á atvinnuhúsnæðinu á lóðinni nr. 5 við Krókháls.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

27. Langholtsvegur 168 (01.441.308) 105462 Mál nr. BN038361
Gunnlaug Kristín Ingvadóttir, Langholtsvegur 168, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja svalir á tvíbýlishús á lóð nr. 168 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008 fylgir erindinu.
Grenndarkynning stóð frá 12. júní til og með 10. júlí 2008.
Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

28. Langholtsvegur 87 (01.410.020) 104981 Mál nr. BN038593
Gauti Kristmannsson, Langholtsvegur 87, 104 Reykjavík
Sabine Leskopf, Langholtsvegur 87, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka þakhæð og byggja nýja kvisti á fjölbýlishúsið á lóð nr. 87 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008 fylgir erindinu.
Stækkun: 5,8 ferm., 51,4 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 3.752
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

29. Laugateigur 12 (01.364.205) 104625 Mál nr. BN038536
Helga Maren Aðalsteinsdóttir, Laugateigur 12, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykkt fyrir fyrir íbúð 0001 í kjallara húss á lóð nr. 12 við Laugateig.
Íbúðarskoðun dags. 13.maí 2008 og þinglýst afsöl dags. 20. júlí 1966 og 17. febrúar 1987 fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Laugavegur 130 (01.241.003) 102998 Mál nr. BN038617
Tómas Boonchang, Bergholt 2, 270 Mosfellsbær
Sótt erum endurnýjun á byggingaleyfi á viðbyggingu fyrir Laugaveg 130 áður samþykkt 03.04.07.
Stækkun: 1. hæð 27,8 ferm., 80,3 rúmm., 3. hæð 71,2 ferm., 201,7 rúmm., ris 47,5 rúmm.
Samtals. 99.0 ferm., 349,5 ferm.
Gjald kr. 7.300 + 25.513
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Laugavegur 178 (01.251.102) 103436 Mál nr. BN038621
Vallhólmi ehf, Hjallalandi 8, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja bílageymslu neðanjarðar á lóðinni Laugavegur 178. Bílastæði inni 34 úti 115 samtals bílastæði á lóð 149.
Meðfylgandi er samkomulag eigenda dags. 27. júní 2008.Stærðir. 794,2 ferm; 2.382,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 173.929
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

32. Laugavegur 73 (01.174.023) 101570 Mál nr. BN038439
Arnar Hannes Gestsson, Birkihlíð 48, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka veitingastað í kjallara húsins Laugavegi 73 þar sem áður var óráðstafað rými. Einnig er sótt um heimild til útiveitinga í porti framan við inngang.
Gjald kr 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Vegna óska um útiveitingar er þeim þætti málsins vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

33. Lágmúli 9 (01.261.303) 103509 Mál nr. BN038487
Lágmúli 9 ehf, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra fyrirkomulagi 2. til 6. hæðar atvinnuhússins á lóð nr. 9 við Lágmúla.
Erindi fylgir brunahönnun frá Línuhönnun dags. 10. mars 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Láland 18-24 (01.874.301) 108836 Mál nr. BN038548
Alexander G Eðvardsson, Láland 24, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, breyta innra skipulagi og klæða með málmklæðningu einbýlishúsið nr. 24 á lóð nr. 18-24 við Láland.
Meðfylgjandi er samþykki meðlóðarhafa dags. 7. júlí 2008.
Stækkun 29,4 ferm., 86,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 6.329
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Mávahlíð 12 (01.702.206) 107050 Mál nr. BN038623
Rúnar Þór Þórarinsson, Mávahlíð 12, 105 Reykjavík
Sótt er um að fá samþykkta áður gerða íbúð í rishæð og jafnframt er erindi BN013153 dags. 24.9.1996 dregið til baka í fjölbýlishúsi á lóð nr. 12 við Mávahlíð.
Meðfylgjandi er vottorð frá Þjóðskrá um að í íbúðinni hefur verið búið a.m.k. frá 1952. Sömuleiðis samþykki meðeigenda frá húsfundi, þar sem málið var kynnt.
Íbúðarskoðun hefur farið fram dags. 8. júlí 2008.
Gjald kr. 7.300
Synjað.
Íbúðir uppfyllir ekki ákvæðu um áður gerðar íbúðir, m.a. hvað verðar lofthæðir, gluggastærðir og gönguhæð í stiga.
Að auki vantar svalir.

36. Nethylur 1 (04.232.601) 110853 Mál nr. BN038628
X4 ehf, Nethyl 1, 110 Reykjavík
Sótt er um að setja tvo glugga og eina hurð á suðurhlið og fella niður milliloft að hluta í atvinnuhúsi á lóð nr.1 við Nethyl.
Gjald kr. 7300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skifstofustjóra Framkvæmdasviðs með vísan til úthlutunarskilmála lóðarinnar þar sem byggingarréttur hefur aðeins verið nýttur að hluta.

37. Njálsgata 4 (01.182.202) 101854 Mál nr. BN038644
Njálsgata 4,húsfélag, Njálsgötu 4, 101 Reykjavík
Húsfélagið Njálsgötu 4 sækir um leyfi fyrir áður gerðri veggskreytingu á gafli hússins nr. 4 við Njálsgötu gerðri af Söru Riel í maí 2007.
Málinu fylgir ljósmynd af veggskreytingunni og bréf húsfélagsins.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Kjósi eigendar að mála yfir myndverkið þarf ekki að sækja um byggingarleyfi þess vegna.

38. Njörvasund 14 (01.413.002) 105066 Mál nr. BN038104
Ragnheiður Gísladóttir, Njörvasund 14, 104 Reykjavík
Einar Hannesson, Sendiráð Brussel, 150 Reykjavík
Grétar Hannesson, Mánagata 21, 105 Reykjavík
Elías Halldór Bjarnason, Njörvasund 14, 104 Reykjavík
Helga Arnalds, Njörvasund 14, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða með báruðum málmplötum og byggja svalir úr stáli við 2. hæð tvíbýlishússins á lóðinni nr. 14 við Njörvasund.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. maí 2008 fylgir erindinu, erindið var grenndarkynnt, engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

39. Seljavegur 2 (01.130.105) 100117 Mál nr. BN038554
Sjúkraþjálfun Reykjav/Garðb ehf, Seljavegi 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta sjúkraþjálfunarmiðstöð á 3. hæð í matshluta 02 í húsi á lóð nr. 2 við Seljaveg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

40. Síðumúli 10 (01.292.301) 103798 Mál nr. BN038393
Flæði ehf, Óðinsvöllum 13, 230 Keflavík
Sótt er um leyfi til að stækka að grunnfleti, bæta inn millilofti og 3. hæðinni að hluta, allt úr steinsteypu sbr. fyrirspurn BN037587 dags. 18.3.2008 og svar skipulagsstjóra dags. 17.3. varðandi atvinnuhús á lóð nr. 10 við Síðumúla
Meðfylgjandi er bréf burðarvirkjahönnuðar dags. 27.5.2008, ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008.
Grenndarkynning stóð frá 12. júní til og með 10. júlí 2008. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir: Fyrir stækkun, 478,5 ferm., 1.989,9 rúmm.
eftir stækkun, 966,6 ferm., 3.270,6 rúmm.
Stækkun, 488,1 ferm., 1.280,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 93.491
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Skeifan 2-6 (01.461.201) 105667 Mál nr. BN038075
Hús fyrir Epal ehf, Skeifunni 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta útskotsglugga á götuhlið og minnháttar breyting á innra skipulagi 2. hæðar miðað við nýlega samþykkt erindi nr. BN34525 á lóð nr. 6 við Skeifuna. Málinu fylgir endurskoðuð brunahönnun dags. 30. júní 2008.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda SHS á umsóknarblaði.

42. Skólavörðustígur 42 (01.181.405) 101795 Mál nr. BN038151
R.Guðmundsson ehf, Pósthólf 1143, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja gluggalausan kjallara undir atvinnuhúsið á lóðinni nr. 42 við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. maí 2008 fylgir erindinu.Stækkun: 158,1 ferm., 382,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + 27.901
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Smáragata 8A (01.197.404) 102739 Mál nr. BN038638
Kristrún Auður Ólafsdóttir, Smáragata 8a, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun byggingaleyfis sbr. erindi nr. BN033857 dags. 13.6.2006 fyrir svalaskýli á húsi á lóð nr. 8 A við Smáragötu.
Stærð: Svalaskýli 8,1 ferm., 20,3 rúmm.
Gjald kr. 7.300+ 14.819.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

44. Smárarimi 78 (02.526.106) 109364 Mál nr. BN038530
Hákon Hallgrímsson, Smárarimi 78, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og til að byggja einnar hæðar stækkun úr timbri og steinsteypu við einbýlishúsið og bílgeymsluna á lóð nr. 78 við Smárarima.
Stækkun íbúðar 77,7 ferm. og 302,2 rúmm.
Stækkun bílgeymslu 15,6 ferm. 87,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 27.236
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

45. Stórhöfði 34-40 (04.073.101) 110547 Mál nr. BN038607
S 40 ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um tímabundið stöðuleyfi fyrir tjaldskemmu á lóðinni Stórhöfði 34-40.
Skemman er klædd grænum PVC dúk á stálgrind.
Stærðir: 675 ferm 4234,5 rúm
Gjald kr. 7.300+ 309.118
Frestað.
Gera skal grein fyrir tímalengd staðsetningar.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

46. Suðurgata Háskóli Ísl Mál nr. BN038543
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum með lítilsháttar breytingum innanhúss í húsi fyrir skrifstofur Þjóðminjasafnsins, sem byggt var yfir Atvinnudeild Háskólans á lóð nr. 43 við Suðurgötu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Suðurlandsbraut 2 (01.261.101) 103505 Mál nr. BN038577
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir stækkun afgreiðslu í tækjasal á 2. hæð til suðurs og um leyfi til að byggja yfir verönd í suðausturhluta 1. hæðar Hótel Hilton á lóð nr. 2 við Suðurlandsbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008 fylgir erindinu.
Meðfylgjandi er einnig bréf brunnahönnuðar dags. 8.7.2008.
Stækkun: 282 ferm., 1.234 rúmm. Stærðir samtals eftir stækkun 16.356,9 ferm., 56.931,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 90.082
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

48. Sævarhöfði 2-2A (04.054.501) 110556 Mál nr. BN038599
Ingvar Helgason ehf, Pósthólf 12260, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum sem felast í breytingu á verkstæði og móttöku fyrir verkstæði í verkstæðishúsi á lóð nr. 2 A við Sævarhöfða.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Tryggvagata 16 (01.132.104) 100213 Mál nr. BN038613
AFA JCDecaux Ísland ehf, Vesturvör 30b, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi fyrir útisalerni á Laugarvegi, framan við nr. 50 og 52 og á horni Tryggvagötu og Naustins. Ljósmyndir fylgja með
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

50. Túngata 34 (01.137.308) 100668 Mál nr. BN038624
Hulda Þuríður Aðalsteinsdóttir, Ránargata 17, 101 Reykjavík
Sunnar ehf, Túngötu 36, 820 Eyrarbakki
Sótt er um staðsetnings 20 feta gáms á timabilinu 18.07.08 til 31.08.08 á götu og gangstétt fyrir framan hús á lóð nr. 34 við Túngötu.
Gjald kr. 7300
Frestað.
Leita skal umsagnar gatna- og eignaumsýslu.

51. Vegbrekkur 19A (58.665.02) 216470 Mál nr. BN036854
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja smádreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur, úr steinsteypu, á lóð nr. 19A við Vegbrekkur.
Stærðir: 5 ferm., 13,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 964
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

52. Vesturgata 64 (01.130.113) 215389 Mál nr. BN037632
Héðinsreitur ehf, Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja sjö hæða fjölbýlishús með bílgeymslu, 176 íbúðir fyrir eldri borgara og þjónusturými, staðsteypt, einangrað að utan og klætt náttúrusteini í dempuðum litum á lóð nr. 64 við Vesturgötu.
Erindinu fylgir greinargerð dags. 29. febrúar 2008, minnisblað um hljóðhönnun dags. 7. apríl 2008 og þinglýst kvöð varðandi skipulagsmál á Héðinsreit dags. 23. nóvember 2007.
Stærðir: 1. hæð 6495,2 ferm., 2. hæð 2341,9 ferm 3. hæð 3775,2 ferm., 4. hæð 3826,7 ferm., 5. hæð 4047,9 ferm., 6. hæð 4047,9 ferm., 7. hæð 4047,9 ferm.
Samtals 31673,2 ferm. og 104167,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.604.249
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Vesturhlíð 3 (01.768.501) 107478 Mál nr. BN038581
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja færanlega kennslustofu af lóð Ármúlaskóla og koma fyrir á lóð nr. 3 við Vesturhlíð.
Meðfylgjandi er bréf frá verkfræðingi Framkvæmda- og eignasviðs dags. 14.7.2008.
Stærðir 62, 21 ferm,. og 202,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300+14.804.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

Ýmis mál

54. Grandavegur - Tölusetningar. Mál nr. BN038645
Byggingarfulltrúi leggur til að lóð hjúkrunaheimilis með staðgreini nr. 1.520.401, verði tölusett sem Grandavegur 42, stærð lóðarinnar er 3230 ferm. Jafnframt að lóð fyrir fjölbýlishús með staðgreini 1.520.402 verði tölusett sem Grandavegur 44, lóðarstærð 5229 ferm
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

55. Hátún 2B (01.223.202) 102907 Mál nr. BN038641
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 1. júlí sl. var samþykkt breyting á húsinu Hátún 2B, þar var bókað að skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi, en á að vera þinglýsa skal samrunaskjali.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

56. Holtavegur 8-10 (01.408.101) 104960 Mál nr. BN038636
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 8. júli sl., var samþykkt breyting á mæliblaði á Holtagörðum 8-10, á að vera Holtavegur 8-10.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

57. Laugarnestangi 71 Mál nr. BN038646
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um afmörkun nýrra lóðar á Laugarnestanga br. mæliblaði 1.314.2, útgefið 8. júlí 2008.
Staðgreinir 1.314.202, landnúmer 216765, lóðarstærð 600 ferm. Lóðin verður tölusett sem Laugarnestangi 71.
Ekki er um fleiri breytingar á mæliblaði að ræða.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Fyrirspurnir

58. Frakkastígur 19 (01.190.229) 102432 Mál nr. BN038651
Teitur Úlfarsson, Rjúpnasalir 14, 201 Kópavogur
Spurt er hvort byggja megi ofan á útbyggingu til norðurs á húsi nr. 19 við Frakkastíg.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi að öðru leyti sjá athugasemdir á fyrirspurnarblaði.

59. Grettisgata 20C (01.182.116) 101832 Mál nr. BN038606
Anna María Torfadóttir, Grettisgata 20c, 101 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi pall ofan á útbyggingu og stiga af honum niður í garð á einbýlishúsi á lóð nr. 20 B/C við Grettisgötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og þá tekin ávörðun um hvort grenndarkynna þarf málið.

60. Hlyngerði 7 (01.806.307) 107801 Mál nr. BN038610
Jón Hallsson, Hæðargarður 33, 108 Reykjavík
Spurt er hvort aukaíbúðin á 1. hæð í Hlyngerði 7 hafi hlotið samþykki byggingaryfirvalda.
Nei.
Ekki sem sjálfstæð íbúð heldur sem hluti aðalíbúðar sbr. skipulagsskilmála hverfisins samþykktum í borgarráði 27. júlí 1972.

61. Lofnabrunnur 1-7 (04.113.503) 189851 Mál nr. BN038605
Stofnás ehf, Jónsgeisla 15, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist til að hækka grunnkóða úr H=60,9 í H=70,9 á lóð nr. 1 til 7 við Lofnarbrunn
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

62. Mávahlíð 38 (01.710.207) 107171 Mál nr. BN038632
Bergur Finnbogason, Sunnuvegur 19, 104 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi svalir á rishæð út á útbyggingu á neðri hæðum og á fjölbýlishúsi á lóð nr. 38 og 40 við Mávahlíð.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem samþykki meðeigenda þarf að fylgja, berst byggingarleyfisumsókn verður hún grenndarkynnt.

63. Pósthússtræti 9 (01.140.515) 100874 Mál nr. BN038550
THG Arkitektar ehf, Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta gluggasetningu á jarðhæð hótelsins á lóð nr. 9 við Pósthússtræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. júlí 2008 og 11. júlí fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi verði það gert skal fylgja umsókn ítarleg byggingarlýsing er taki til efnisvals, litasamsetninga og glergerðar.

64. Skeljanes 4 (01.673.106) 106833 Mál nr. BN038603
Hulda Steingrímsdóttir, Skeljanes 4, 101 Reykjavík
Spurt er um deiliskipulag og skúrabyggingar sbr. meðfylgjandi greinargerð varðandi hús á lóð 4 við Skeljanes.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

65. Sundlaugavegur 22 (01.361.006) 104555 Mál nr. BN038579
Kjartan Már Magnússon, Sundlaugavegur 22, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja gamlan bílskúr og bæta við hann geymslu og tengja bílskúrinn við 1. hæð þannig að hann nýtist sem stúdíó við hús á lóð nr. 22 við Sundlaugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 10. júlí 2008.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi eða byggðarmynstri samanber umsögn skipulagsstjóra frá 10. júlí sl.

66. Súðarvogur 7 (01.453.002) 105615 Mál nr. BN038625
Ásmundur Jóhannsson, Hraunteigur 9, 105 Reykjavík
Spurt er hvort breyta megi hluta atvinnuhúsnæði í ibúðir með vinnuaðstöðu á lóð nr. 7 við Súðarvog.
Nei.
Með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

67. Vesturgata 2 (01.140.002) 100815 Mál nr. BN038600
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort stækka megi neyðarútgang og svalir á suðurhlið húss á lóð nr. 2 við Vesturgötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

68. Þorláksgeisli 122 (04.135.805) 189610 Mál nr. BN038626
Hannes Frímann Sigurðsson, Þorláksgeisli 122, 113 Reykjavík
Spurt er hvort steypa megi nýja stoðveggi innan lóðar og á lóðamörkum við hús á lóð nr. 122 við Þorláksgeisla.
Frestað.
Gera verður nánari grein fyrir breytingum og þörf þeirra til þess að unnt sé að taka afstöðu til erindisins.

Fundi slitið kl. 13:40.

Magnús Sædal Svavarsson

Bjarni Þór Jónsson Björn Kristleifsson
Jón Hafberg Björnsson Eva Geirsdóttir
Sveinbjörn Steingrímsson Þórður Búason