Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 14. maí kl. 09:10, var haldinn 134. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Hanna Birna Kristjánsdóttir, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Dofri Hermannsson og áheyrnarfulltrúinn Marsibil Sæmundsdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Jóhannes Kjarval Björn Axelsson og Margrét Leifsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Lindargata 28-32. (01.152.4) Mál nr. SN070569
breyting á deiliskipulagi
Lindarbyggð ehf, Krókhálsi 5A, 110 Reykjavík
Kristinn Ragnarsson,arkit ehf, Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn KRark ehf f.h. Lindarbyggðar ehf., dags. 17. september 2007 varðandi breytt deiliskipulag lóðanna nr. 28-32 við Lindargötu skv. uppdrætti, dags. 27. september 2007. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður inn á lóð og byggingarmagn aukið. Auglýsing stóð yfir frá 27. febrúar til og með 11. apríl 2008. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Lögskil f.h. Þorsteins Steingrímssonar Lindargötu 34, dags. 10. apríl, Torfusamtökin, dags. 11. apríl, Jónas Steinarsson Klapparstíg 7, dags. 9. apríl, Kristinn Gunnarsson Klapparstíg 1, dags. 9. apríl, undirskriftalisti 13 íbúa Lindargötu 31 og 33, dags. 9. apríl, undirskriftalisti 22 íbúa Lindargötu 27, dags. 9. apríl, Lovísa Sigurðardóttir Lindargötu 27, dags. 11. apríl, Sindri Kjartansson Vatnsstíg 9, dags. 14. apríl, 22 samhljóða bréf, dags. 11. apríl 2008.
Einnig lögð fram samantekt skipulagsstjóra dags. 6. maí 2008.

Gísli Marteinn Baldursson tók sæti á fundinum kl: 9:20

Athugasemdir kynntar.
Frestað.

2. Laugardalur, Þróttur. (01.39) Mál nr. SN070035
uppbygging vallarmála
Á fundi skipulagsfulltrúa 2. febrúar 2007 var lagt fram bréf sviðsstjóra ÍTR, dags. 16. janúar 2007, varðandi erindi Knattspyrnufélagsins Þróttar, dags. 12. desember 2006 sem íþrótta- og tómstundaráð vísaði til umsagnar skipulags- og byggingarsviðs á fundi sínum 12. janúar 2007. Lagt fram að nýju ásamt bréfi Íþrótta og tómstundaráðs, dags. 23. nóvember 2007 ásamt uppdrætti dags. október 2007.
Kynnt.
Frestað.

3. Friggjarbrunnur 53, Skyggnisbraut 2-6. (02.693.1) Mál nr. SN080192
breyting á deiliskipulagi Úlfarsárdals
Trésmiðja Snorra Hjaltason hf, Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík
Kristinn Ragnarsson,arkit ehf, Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Krark f.h. TSH ehf. mótt. 14. mars 2008, um breytingu á deiliskipulagi vegna fjölgunar íbúða og ýmis frávik frá skipulagsskilmálum á lóðinni Friggjarbrunnur 53 og Skyggnisbraut 2-6. Grenndarkynningin stóð 2. apríl til og með 30. apríl 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemd: Katla H. Steed Friggjarbrunni 23-25, Kristinn Jónsson Friggjarbrunni 27, Ragnar Vilhjálmsson Friggjarbrunni 29, Auðunn Ingi Jóakimsson Friggjarbrunni 31, Auðunn Ingi Jóakimsson fh. Valgarðs Þ. Sörensen Friggjarbrunni 33, Árni J. Sigfússon Friggjarbrunni 35, Helga U. Reykdal Friggjarbrunni 37, Baldur Þór Jack Friggjarbrunni 45 og Þrándur Jensson Friggjarbrunni 43 sendu inn samhljóða bréf dags. 22. apríl 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 14. maí 2008.

Jórunn Frímannsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:30

Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð, með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

4. Friggjarbrunnur 55-57, Skyggnisbraut 8-12. (02.693.1) Mál nr. SN080087
breyting á deiliskipulagi Úlfarsárdals
Leiguliðar ehf, Fossaleynir 16, 112 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Krark ehf. f.h. Leiguliða ehf., dags. 6. feb. 2008, um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóða nr. 55-57 við Friggjarbrunn og 8-12 við Skyggnisbraut skv. uppdrætti, dags. 28. jan. 2008. Breytingin gengur út á aukið byggingarmagn og fjölgun íbúða á lóðunum.
Grenndarkynningin stóð yfir frá 31. mars til og með 28. apríl 2008. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Katla H. Steed Friggjarbrunni 23-25, Kristinn Jónsson Friggjarbrunni 27, Ragnar Vilhjálmsson Friggjarbrunni 29, Auðunn Ingi Jóakimsson Friggjarbrunni 31, Auðunn Ingi Jóakimsson fh. Valgarðs Þ. Sörensen Friggjarbrunni 33, Árni J. Sigfússon Friggjarbrunni 35, Helga U. Reykdal Friggjarbrunni 37, Baldur Þór Jack Friggjarbrunni 45 og Þrándur Jensson Friggjarbrunni 43 sendu inn samhljóða bréf dags. 22. apríl 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 14. maí 2008.

Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð, með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

5. Suðurlandsvegur. (05.8) Mál nr. SN080133
deiliskipulag settjörn
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 5. maí 2008 að deiliskipulagi settjarnar við Suðurlandsveg.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu. Jafnframt er samþykkt að vísa tillögunni til umsagnar umhverfis- og samgönguráðs og
Vísað til borgarráðs.

6. Einarsnes 48. (01.672.0) Mál nr. SN080081
breyting á deiliskipulagi
Páll Björgvinsson, Frakkastígur 17, 101 Reykjavík
Björn Júlíusson, Einarsnes 48, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Páls Björgvinssonar ark. f.h. Björns Júlíussonar, dags. 1. febrúar 2008, um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 48 við Einarsnes skv. uppdrætti, dags. 14. febrúar 2008. Einnig lagt fram bréf Björns Júlíussonar, dags. 26. febrúar 2008. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. mars til og með 11. apríl 2008. Beiðni barst frá íbúum Einarsness 46, dags. 2. apríl 2008 að athugasemdafrestur yrði lengdur. Samþykkt var að framlengja frest til að gera athugasemdir til föstudagsins 11. apríl nk. Athugasemdir bárust frá íbúum Einarsness 46 dags. 2. apríl 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 9. maí 2008
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð, með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

7. Ármúli 8. (01.290.0) Mál nr. SN080298
breyting á deiliskipulagi
EA fjárfestingafélag ehf, Ármúla 8, 108 Reykjavík
Tryggvi Tryggvason, Smáratún 9, 225 Álftanes
Lögð fram tillaga EA Fjárfestingafélag ehf. dags. 6. maí 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 8 við Ármúla. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti dags.5. maí 2008.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ármúla 6.

8. Hólmsheiði við Suðurlandsveg - athafnasvæði A3. Mál nr. SN060676
deiliskipulag
Arkís ehf, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Ark.ís að deiliskipulagi athafnasvæðis í Hólmsheiði við Suðurlandsveg, dags. í ágúst 2007. Lögð fram umsögn umhverfisráðs frá 25. september 2007. Auglýsingin stóð yfir frá 12. september til 24. október 2007. Lagðar fram athugasemdir eftirtaldra aðila: Vegagerðin, dags. 10. september 2007, Valtýr Sigurðsson f.h. Fangelsismálastofnunar, dags. 19. október 2007, Orkuveita Reykjavíkur, dags. 22. október 2007, formaður Fjáreigendafélags Reykjavíkur, dags. 23. okt. 2007, stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur, dags. 24. okt. 2007, Skógrækt ríkisins, dags. 20. okt. 2007, Veiðimálastofnun, dags. 22. okt. 2007, Kristín Kristjánsdóttir, dags. 24. okt. 2007. Eftir að athugasemdarfresti lauk barst athugasemd frá Mosfellsbæ, dags. 8. janúar 2008. Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra Framkvæmdasviðs til borgarstjóra, dags. 3. desember 2007 um fangelsislóð í Hólmsheiði, bréf stjórnar Skógræktarfélags Reykjavíkur, dags. 10. desember 2007, minnisblað umhverfisstjóra, dags. 18. des. 2007 og samantekt skipulagsstjóra dags. 13. maí 2008. Lögð fram ný tillaga Ark.ís að deiliskipulagi athafnasvæðis á Hólmsheiði við Suðurlandsveg dags. í maí 2008.
Samþykkt að fella niður áður auglýsta tillögu og auglýsa nýja tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis á Hólmsheiði. Samþykkt að tilkynna þeim aðilum sem áður gerðu athugasemdir um nýja auglýsingu á nýrri tillögu.

Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð fagnar þeirri niðurstöðu sem nú liggur fyrir í tillögu um skipulag athafnasvæðis við Hólmsheiði. Tillagan er nú lögum samkvæmt send aftur í auglýsingu, en hún hefur tekið verulegum breytingum með hliðsjón af athugasemdum Skógræktar Reykjavíkur. Skipulagsráð fagnar þeim breytingum og telur að með þeim sé vel komið til móts við sjónarmið skógræktar og græns svæðis í nábýli við athafnasvæðið.

(C) Fyrirspurnir

9. Hringbraut. Mál nr. SN070081
(fsp) flettiskilti fyrir KR
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 6.febrúar 2007 ásamt erindi frá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, dags. 14.september 2006, varðandi uppsetningu á tveimur veltiskiltum, annars vegar á mótum Hringbrautar og Njarðargötu sunnan megin og hins vegar við Hringbraut á suðaustur horni svæðis Umferðarmiðstöðvarinnar.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við staðsetningu flettiskiltis við Grandatorg. Embætti skipulagsstjóra er falið að vinna nánar að málinu í samráði við KR.

10. Starhagi 3. (01.555.3) Mál nr. SN080289
(fsp) breyting á deiliskipulagi
Ásgeir Árni Ragnarsson, Klapparstígur 7, 101 Reykjavík
Davíð Kristján Chatham Pitt, Skildinganes 11, 101 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Davíðs Kr. Pitt arkitekts fh. Ásgeirs Ragnarssonar dags. 25. apríl 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 3 við Starhaga. Í breytingunni felst að bílskúr er færður innar á lóðinni og neðar í jörð samkv. meðfylgjandi teikningu dags. 12. maí 2008.
Neikvætt. Ekki fallist á að breyta nýsamþykktu deiliskipulagi á þann hátt að heimilað verði að hækka byggingar í landi.

(D) Ýmis mál

11. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur. Mál nr. SN010070
fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur 9. maí 2008.

12. Miðborgarvakt skipulagsráðs. Mál nr. SN080307
Skipulagssýning í miðbænum
Skipulagsráð samþykkir að sérstök skipulagssýning á öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem í gangi eru í miðborginni, verði opnuð og standi opin í sumar. Skipulagsráð telur mikilvæg að gefa íbúum þannig öflugt tækifæri til að kynna sér allar tillögur og hugmyndir um uppbyggingu og umbætur í miðborginni og felur skipulagsstjóra að hefja undirbúning verkefnisins, þannig að sýningin geti opnað í júní.

13. Alþingisreitur. Mál nr. BN038241
kynning
Lagt fram til kynningar bréf Framkvæmdasýslu ríksins dags. 22. apríl 2008 þar sem lýst er fyrirhuguðum framkvæmdum á lóð Alþingis við Kirkjustræti, Tjarnargötu, Vonarstræti og Templarasundi árin 2008 - 2012.
Kynnt.

14. Bergstaðastræti 83. (01.196.4) Mál nr. SN080316
bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 13. maí 2008.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt.

15. Búrfellslína. Mál nr. SN080314
Kynning á hugmyndum að breyttu skipulagi háspennulínu.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, Árni Stefánsson og Árni Jón Elíasson fulltrúar frá Landsneti kynntu hugmyndir að breytingu á legu háspennulína.

16. Flutningshús, Nýlendureitur, Mál nr. SN070809
lóðarumsókn fyrir hús sem áður stóð við Laugaveg 74
Fríða Bragadóttir, Bakkastígur 2, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Fríðu Bragadóttur og Kristjáns S. Kristjánssonar dags. 22. apríl 2008 varðandi afgreiðslu skipulagsstjóra þann 29. febrúar 2008 á erindi hennar vegna lóðarumsóknar fyrir flutningshús. Einnig er lögð fram eldri umsögn skipulagsstjóra dags. 29. febrúar 2008.
Skipulagsráð staðfestir fyrri afgreiðslur skipulagsstjóra í málinu með vísan til þeirra forsendna sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

17. Fossvogsdalur. (01.855) Mál nr. SN070762
Uppbygging sundlaugar
Lagt fram bréf borgarráðs 29. nóvember 2007 um tilnefningu í viðræðunefndina varðandi uppbyggingu sundlaugar í Fossvogsdal. Í viðræðunefndinni eru f.h Kópavogs: bæjarstjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs. F. h Reykjavíkur: borgarstjóri, skipulagsstjóri og framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs. Einnig lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjóra, dags. 6. des. 2007 ásamt áskorun íbúa, dags. 2. desember 2007.
Vísað til meðferðar skipulagsstjóra.

18. Klapparstígur 30, (00.000.000) Mál nr. BN038275
Lagt fram bréf Festa ehf. dags. 5. maí 2008 þar sem óskað er eftir leyfi til niðurrifs hússins nr. 30 við Klapparstíg.
Kynnt.

19. Lóðarumsókn Byggingafélags námsmanna, Mál nr. SN050490
Byggingafélag námsmanna, Pósthólf 5480, 125 Reykjavík
Bréf byggingarfélags námsmanna dags. 14. apríl 2008 þar sem óskað er eftir viðræðum við Reykjavíkurborg.
Vísað til meðferðar skipulagsstjóra.

20. Miklabraut/Kringlumýrarbraut. (01.2) Mál nr. SN080287
samráðhópur
Lagt fram bréf Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 23. apríl 2008 varðandi stofnun samráðshóp um framkvæmdir á Miklubraut/ Kringlumýrarbraut.
Frestað.

21. Nönnugata 10. (01.186.5) Mál nr. SN080221
Bjarghús, breytingar
Georg Heide, Nönnugata 10a, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf eigenda að Nönnugötu 10A, dags. 26. mars 2008, varðandi breytingar á Nönnugötu 10 (Bjarghúsi). Einnig lögð fram umsögn byggingarfulltrúa dags. 7. maí 2008.
Frestað.

22. Víðimelur 32. (01.540.027) Mál nr. BN038276
lagt fram bréf
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 8. þ.m. vegna beitinga þvingunarúrræða vegna óleyfisnotkunar og lóðarfrágangs á Víðimel 32.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt.

23. Grenimelur 46. (01.524.3) Mál nr. SN080315
bréf vegna framkvæmda
Einar Þór Jónsson, Reynimelur 65, 107 Reykjavík
Lagt fram bréf Einars Þ. Jónssonar dags. 5. maí 2008 varðandi framkvæmdir við nýbyggingu á Grenimel 46.
Kynnt.

24. Hofsland I. Mál nr. SN080017
kæra, umsögn, úrskurður
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar dags. 8. maí 2008 vegan synjunar skipulagsráðs frá 1. ágúst 2007 að um leyfi til að reisa tvílyft bjálkahús sem yrði notað sem gistiheimili.
Úrskurðarorð: Synjun skipulagsrás frá 1. ágúst er felld úr gildi.

{Dofri Hermannsson og Marsibil Sæmundsdóttir véku af fundi kl: 11:00 þá átti eftir að fjalla um mál nr. 8 Hólmsheiði við Suðurlandsveg og mál nr. 15 Búrfellslína.}

Fundi slitið kl. 11:45.

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir Gísli Marteinn Baldursson
Svandís Svavarsdóttir Björk Vilhelmsdóttir