Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2007, þriðjudaginn 27. febrúar kl. 10:00 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 433. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Þórður Búason, Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Reynisdóttir, Jón Magnús Halldórsson og Sigríður Kristín Þórisdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurberg 1 (04.667.801) 112096 Mál nr. BN035467
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborga, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áhorfendapöllum þar sem verða sæti fyrir 400 manns úr forsteyptum einingum og 5 m hárri netgirðingu umhverfis keppnisvellina á keppnisvelli íþróttafélagsins Leiknis á lóðinni nr. 1 við Austurberg.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Austurstræti 8-10 (01.140.404) 100847 Mál nr. BN035475
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta kjallararými (0001) úr geymslu í kennslusal fyrir Alþingi í atvinnuhúsinu á lóð nr. 8-10 við Austurstræti.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Austurv Póstur og Sím (01.140.418) 100859 Mál nr. BN035396
Símahúsið ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til endurinnrétta 1. og 6. hæð og að stækka húsið til suðurs sem nemur lyftuhúsi á gaflinum, setja glugga í norðurgafl á 6. hæð ásamt nýjum svölum til austurs og hækka hliðarveggi sem nemur 1,2 m að hluta með því að minnka hallan á þaki hússins nr. 11 við Aðalstræti.
Meðfylgjandi er brunahönnun dags. 16. febrúar 2007 og staðfesting burðarvirkishönnuðar dags. 22. febrúar 2007.
Stærðir: 28,8 ferm., 192,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 13.076
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Álfabakki 6-18 (04.603.301) 111721 Mál nr. BN035360
Landsafl hf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurinnrétta neðri og efri kjallara 1. og 2. hæð ásamt reyndarteikningu 3. hæðar, bæta við lyftu milli efri kjallara og 2. hæðar, einnig er gert grein fyrir áður gerðri stækkun í neðri og efri kjallara ásamt stækkun inná áður op í efri kjallara fyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í húsi á lóð nr. 16 við Álfabakka.
Meðfylgjandi er brunahönnun dags. 14. nóvember 2006. Einnig lagt fram bréf verkfræðistofunnar Mönduls ehf., dags. 20. febrúar 2007.
Stækkun: 79,7 ferm., 290,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 19.774
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bergstaðastræti 16-18 (01.184.010) 102005 Mál nr. BN035457
Leiguíbúðir ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi á leyfi til að endurbyggja húsið Hverfisgata 44 að Bergstaðastræti 16. Núverandi bakstigahús verður rifið og nýtt byggt í staðinn. Í húsinu verða þrjár íbúðir. Húsið er úr timbri tvær hæðir og ris á steyptum kjallara. Bréf borgarminjavarðar dagsett 18. ágúst 2006 fylgir erindinu, ásamt ljósmyndum af núverandi útliti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. september 2006 fylgir erindinu.
Stærðir 411,6 ferm., og 1169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 79.546
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

6. Bíldshöfði 2A (04.059.202) 110569 Mál nr. BN035450
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa biðskýli SVR á lóðinni nr. 2A við Bíldshöfða.
Niðurrif fastanr. 204-3002: Matshl. 01 merkt 0101, stærð 130,2 ferm.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

7. Bjarkargata 14 (01.143.110) 100958 Mál nr. BN035481
Björk Hakansson, Bjarkargata 14, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera kvisti á austur- og vesturhluta þaks og breyta innra skipulagi þakhæðar á tvíbýlishúsinu á lóðinni nr. 14 við Bjarkargötu.
Málinu fylgir skilyrt samþykki meðlóðarhafa dags. 10. júní 2006.
Stækkun: 32,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 2.196
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

8. Borgartún 6 (01.220.002) 102778 Mál nr. BN035389
Trésmiðja Snorra Hjaltason hf, Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta rýmisnúmerum í kjallara áður eldhús/geymsla í óráðstöfuðu rými nr. 0001 sem verði kaffistofa og víxla 0103 og 0104 í húsinu á lóðinni nr. 6 við Borgartún.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

9. Bragagata 26A (01.186.639) 102334 Mál nr. BN035456
Vilborg Halldórsdóttir, Bragagata 26a, 101 Reykjavík
Helgi Björnsson, Bragagata 26a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á austurgafl, koma fyrir þaksvölum og skjólgirðingu ofan á geymsluskúr og reisa skjólvegg á lóðamörkum við einbýlishúsið á lóðinni nr. 26A við Bragagötu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.

10. Brúnavegur Hrafnista (01.351.001) 104174 Mál nr. BN035488
Hrafnista,dvalarheim aldraðra, Laugarási, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu fyrir borðstofur og svalir við E - og G - álmu 1., 2. og 3. hæðar Hrafnistu, breyta snyrtingum á 3. hæð A - álmu og fækka vistrýmum úr 23 í 11 á sömu hæð sömu álmu á lóð Hrafnistu við Brúnaveg.
Stærð: Stækkun samtals 155,4 ferm., 451,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 30.688
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

11. Bræðraborgarstígur 16 (01.134.221) 100347 Mál nr. BN034973
Fasteignafélagið B-16 ehf, Tryggvagötu 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi þ.e.a.s. úr blönduðu íbúðar og atvinnuhúsnæði í atvinnuhúsnæði með tilfærslu á milliveggum og breyta nýtingu rýma á 1. - 3. hæð, einnig loka opi milli 2. og 3. hæðar í húsinu á lóðinni nr. 16 við Bræðraborgarstíg.
Eftir þessa breytingu er engin íbúð í húsinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. desember 2006 fylgir erindinu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. nóvember 2006.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Bústaðavegur 101 (01.819.317) 108282 Mál nr. BN035474
Gunnar Guðlaugsson, Bústaðavegur 99, 108 Reykjavík
Víglundur Piertew Mettinisson, Bústaðavegur 101, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu í suður á tveimur hæðum ásamt svölum á rishæð einnig að breyta anddyri til norðurs þannig að í stað burðarvirkis úr timbri frá nýlega samþykktum teikningum er viðbyggingin staðsteypt með með flötu þaki. Meðfylgjandi er samþykki nágranna dags. 7. febrúar 2007.
Stærðir: 62,8 ferm., 169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 11.546
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu. Skipulagsferli ólokið.

13. Bústaðavegur 99 (01.819.316) 108281 Mál nr. BN035501
Gunnar Guðlaugsson, Bústaðavegur 99, 108 Reykjavík
Freyja María Þorsteinsdóttir, Bústaðavegur 99, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu í suður á tveimur hæðum ásamt svölum á rishæð einnig að breyta anddyri til norðurs þannig að í stað burðarvirkis úr timbri frá nýlega samþ. teikningum er viðbyggingin staðsteypt með með flötu þaki. Meðfylgandi er samþ. nágranna dags. 7. febrúar 2007.
Stærðir: 62,8 ferm., 169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 11.546
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu. Skipulagsferli ólokið.

14. Engjateigur 7 (01.366.501) 179535 Mál nr. BN030327
Ístak hf, Engjateigi 7, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir afmörkun tölvutæknirýma í kjallara, fyrir breytingu á innra skipulagi allra hæða og breyttu fyrirkomulagi bílastæða á lóð nr. 7 við Engjateig.
Brunahönnun VSI endurskoðuð 8. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Fossaleynir 16 (02.467.401) 186199 Mál nr. BN035494
Lýsing hf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að leiðrétta nýsamþykkta fjölgun eigna þannig að áður rými 0107 verður nú að 0107 og 0110 í stað 0111ásamt leiðréttri staðsetningu milliveggjar milli 0108 og 0109 og skráningu atvinnuhússins á lóð nr. 16 við Fossaleyni.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Skoðist á staðnum.

16. Fossaleynir 2 (02.467.101) 177039 Mál nr. BN035254
Rafvirki ehf, Fossaleynir 2, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skrifstofuhluta sem aðgreinir verslun frá verkstæði með tveimur nýjum gluggum á vesturhlið ásamt samþykki fyrir hækkun óbyggðrar viðbyggingar (2. áfanga) atvinnuhússins á lóð nr. 2 við Fossaleynir.
Jafnframt er erindi 23093 dregið til baka.
Stærð: Hús var 4254 rúmm. verður 4393,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.800 + 9.479
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

17. Frakkastígur 8 (01.172.109) 101446 Mál nr. BN035371
Cavern ehf, Frakkastíg 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi og endurbóta á eldvörnum í atvinnuhúsinu á lóðinni nr. 8 við Frakkastíg.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

18. Freyjubrunnur 2-8 (02.695.802) 205737 Mál nr. BN035324
Fasteignafélagið Hlíð ehf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvílyft raðhús með innbyggðum bílgeymslum og samtals fjórum íbúðum, allt úr steinsteyptum einingum á lóð nr. 2-8 við Freyjubrunn.
Stærð: Hús nr. 2 (matshluti 01) íbúð 1. hæð 116,7 ferm., 2. hæð 84,5 ferm., bílgeymsla 26,8 ferm., samtals 228 ferm., 729,3 rúmm.
Hús nr. 4 (matshluti 02) íbúð 1. hæð 98,9 ferm., 2. hæð 66,9 ferm., bílgeymsla 26,6 ferm., samtals 192,4 ferm., 618,1 rúmm.
Hús nr. 6 (matshluti 03) er sömu stærðar og hús nr. 4 eða samtals 192,4 ferm., 618,1 rúmm.
Hús nr. 8 (matshluti 04) íbúð 1. hæð 105,4 ferm., 2. hæð 73,2 ferm., bílgeymsla 26,8 ferm., samtals 205,4 ferm., 658,8 rúmm.
Raðhús er samtals 818,2 ferm., 2624,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.800 + 178.452
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Grandagarður 9 (01.115.205) 100052 Mál nr. BN035470
Grandagarður ehf, Sæviðarsundi 96, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta matsölustað á 1. hæð hússins á lóð nr. 9 við Grandagarð.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Grettisgata 29 (01.173.135) 101552 Mál nr. BN030484
Pálmi Einarsson, Grettisgata 29, 101 Reykjavík
Anna Rut Pálmadóttir, Grettisgata 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á suðvesturhlið og kvisti á suðvestur- og norðausturhlið matshluta 02 á lóðinni nr. 29 við Grettisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Málinu fylgir samþykki meðlóðarhafa ódagsett.
Stærð: Stækkun kvistir 14,4 ferm. og 33,3 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 1.798
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

21. Gylfaflöt 9 (02.575.702) 109502 Mál nr. BN035469
Landsnet hf, Krókhálsi 5C, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta atvinnuhúsnæði til aðlögunar að rekstri fyrirtækisins Landsnet þar sem innra fyrirkomulagi er breytt og gluggum bætt. Inngangur færður til og hurðum breytt ásamt tilfærslu á sorpi og breytingu á bílstæðum á lóð nr. 9 við Gylfaflöt.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 20. febrúar 2007 og drög að brunahönnun ódagsett.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Háteigsvegur 3 (01.244.202) 103186 Mál nr. BN035328
Kvikur ehf, Háteigsvegi 1, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta efsta hluta stiga og stækka íbúð 0402 um hluta svalagangs á rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 3 við Háteigsveg.
Stærð: Stækkun samtals 13,5 ferm., 40,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 2.734
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Heiðmörk Torgeirsst. (08.1--.-63) 173440 Mál nr. BN035282
Nordmannslaget, Pósthólf 5077, 125 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir smáhýsi við sumabústað félagsins Nordmannslaget í Heiðmörk byggt úr bjálkum með torfþaki á sumabústaðarlóð í Heiðmörk.
Stærðir: 8,4 ferm., 20,9 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 1.421
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

24. Holtsgata 37 (01.133.407) 100285 Mál nr. BN034814
Holtsgata 37,húsfélag, Holtsgötu 37, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka svalir og fyrir áður gerðum breytingum á bílskúr og undirgangi fjölbýlishússins á lóðinni nr. 37 við Holtsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. október 2006 fylgir erindinu.
Samþykki meðlóðarhafa á teikningu dags. 15. apríl 2006.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Enn þarf að lagfæra skráningartöflu.

25. Hverfisgata 32A (01.171.103) 101369 Mál nr. BN035451
Skipulagssjóður Reykjavborgar, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að rífa steinbæinn á lóð nr. 32A við Hverfisgötu.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. september 2005 og minnisblað borgarminjavarðar ódags. fylgja erindinu.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 200-4441 merki 02 0101 einbýli 44,3 ferm., 139 rúmm.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vantar umsagnir Húsafriðunarnefndar ríkisins og Minjasafns Reykjavíkur.

26. Jónsgeisli 53 (04.113.403) 189846 Mál nr. BN035465
Kjartan Haukur Eggertsson, Jónsgeisli 53, 113 Reykjavík
Sótt e um leyfi til þess að stækka neðri hæð undir svalir einbýlishússins á lóð nr. 53 við Jónsgeisla.
Stærð: Stækkun 10,3 ferm., 29,9 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 2.033
Synjað.
Samræmist ekki skipulagsskilmálum, er of stórt.

27. Jónsgeisli 89 (04.113.305) 189864 Mál nr. BN033646
Almerking ehf, Heiðarseli 8, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyft steinsteypt atvinnuhús með milliloft yfir hluta allt einangrað að utan og klætt með liggjandi báruálklæðningu í állit á lóð nr. 89 við Jónsgeisla.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Atvinnuhús samtals 311,2 ferm., 1435,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.800 + 6.800 + 97.594
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skila skal vottun eininga fyrir úttekt á botnplötu.

28. Jöldugróf 16 (01.889.008) 108919 Mál nr. BN035483
Steinn Ólafsson, Jöldugróf 16, 108 Reykjavík
Alda Björgvinsdóttir, Jöldugróf 16, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr með kjallara við einbýlishúsið á lóðinni nr. 16 við Jöldugróf.
Meðfylgandi er bréf hönnuðar dags. 19.02.2007
Stærð: Bílgeymsla 1. hæð 56 ferm., kjallari 56 ferm., samtals 112 ferm., 339 rúmm.,
Gjald kr. 6.800 + 23.052
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

29. Kistumelur 10 (34.533.601) 206618 Mál nr. BN035351
Húsbílahöllin ehf, Pósthólf 374, 212 Garðabær
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyft stálgrindarhús klætt lituðum stálsamlokueiningum fyrir geymsluhúsnæði með tuttugu sjálfstæðum einingum á lóð nr. 10 við Kistumel.
Stærð: Geymsluhúsnæði samtals 1218,8 ferm., 7879,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 535.813
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Kistumelur 11 (34.533.401) 206638 Mál nr. BN035485
Minjavernd hf, Pósthólf 1358, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja þrjár sambyggðar stálgrindarskemmur sem verkstæði og geymsluhúsnæði fyrir Minjavernd allt klætt með stálsamlokueiningum ásamt geymsluskýli á suðvesturlóðamörkum lóðar nr. 11 við Kistumel.
Jafnframt er erindi 35200 dregið til baka.
Brunahönnun Línuhönnunar dags. 2. janúar 2007 og umsögn brunahönnuðar dags. 20. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Verkstæði og geymsla samtals 1248,4 ferm., 7267,1 rúmm. Geymsluskýli (B-rými) samtals 150 ferm., 622,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 536.493
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

31. Kleppsvegur 64 (01.351.001) 104174 Mál nr. BN035441
Skjól,hjúkrunarheimili, Pósthólf 4360, 124 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir að gera svalahurð út á verönd frá tengigangi 2. hæðar í Hjúkrunarheimilinu Skjól á lóðinni nr. 64 við Kleppsveg.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

32. Klettagarðar 25 (01.324.201) 207396 Mál nr. BN035179
R.S. fasteignafélag ehf, Fiskislóð 16, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi nýsamþykkts atvinnuhúss, byggja þakpall fyrir fjarskiptabúnað og siglingartæki á hluta þaks, breyta gluggum og hurðum mest á vesturhlið, breyta klæðningu og burðarvirki, lækka millipall og breyta lítillega ásamt breytingu á lóðarfrágangi lóðar nr. 25 við Klettagarða.
Jafnframt er erindi 35272 dregið til baka.
Brunahönnun VSI síðast endurskoðuð 19. desember 2006 og bréf hönnuðar dags. 2. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Samtals var hús 3255 ferm., en verður 3248,1 ferm., rúmmetrar eru óbreyttir 26080,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skila skal vottun eininga fyrir úttekt á botnplötu.

33. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN035486
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta snyrtingu í einingu 355 þar sem verður hvíldarrými fyrir foreldra með ungabörn á 3. hæð Kringlunnar á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Samantekt vegna brunamála dags. 21. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

34. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN035490
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að minnka lítillega Ævintýraland í einingu 338 og setja þar útgang frá einingu 336 að veitingarými á 3. hæð Kringlunnar á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Samantekt vegna brunamála dags. 21. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN035417
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að skipta einingu 250 í tvær einningar, einingu 250 og nýja einingu 250-1 sem verður með aðgengi að starfsmannarýmum einingar 250 á 2. hæð Kringlunnar á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Samantekt vegna brunamála dags. 13. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

36. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN035484
Penninn hf, Pósthólf 8280, 128 Reykjavík
Rekstrarfélag Kringlunnar, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta framhlið einingar 232 að göngugötu 2. hæðar Kringlunnar á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Samantekt vegna brunamála dags. 21. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Laugavegur 118 (01.240.103) 102980 Mál nr. BN035449
Félagamiðstöðin, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á nýlega samþykktum teikningum, þar sem á 1. hæð er flóttaleið, 3. hæð eru smávægilegar breytingar á innra fyrirkomulagi og á 4. hæð er breyting á flóttaleiðum í húsinu við Grettisgötu 89 á lóðinni nr. 118 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er samþykki gatna- og eignaumsýslu dags. 29. apríl 2006 og bréf hönnuðar dags. 12. febrúar 2007.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Finna skal nýja lausn á flóttaleið út á gangsétt við Rauðarárstíg.

38. Lindargata 27 (01.152.208) 101026 Mál nr. BN035354
Íslenskir aðalverktakar hf, Pósthólf 221, 235 Keflavíkurflugvöllu
Sótt er um leyfi til þess að breyta stærð geymslna og eignahaldi á geymslum í geymslukjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 27 við Lindagötu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Enn er vísað til bókunar frá 6. febrúar 2007 vegna brunavarna.

39. Lyngháls 2 (04.326.401) 111049 Mál nr. BN035476
Freyr ehf, Lynghálsi 2, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja lager og skrifstofubyggingu, áfanga 3, sem hýsir á 1. hæð stiga og lyftuhús, á 2. hæð lager og skrifstofu og á 3. hæð fundaraðstöðu. Húsið er byggt úr steinsteypu og er með átta vöruafgreiðsluhurðum fyrir stóra bíla á suðurhlið.
Stærðir: 1.542,7 ferm., 10.191,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 693.022
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Miklabraut 24 (01.701.005) 106947 Mál nr. BN035447
Bragi Guðjónsson, Miklabraut 24, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi þar sem sótt er um leyfi til þess að rífa núverandi bílskúr og byggja nýjan bílskúr steyptan í plastkubbamót á austur lóðamörkum ásamt steinsteyptum stoðvegg á austur og vestur lóðamörkum lóðar nr. 24 við Miklubraut, samkv. uppdr. HP Hönnun, dags. 18. maí 2005.
Samþykki eigenda Miklubrautar 26 og 28 dags. 20. mars 2005 og samþykki f.h. eigenda Miklubrautar 22 dags. 22. maí 2005 fylgja erindinu. Málið var í kynningu frá 8. ágúst til 5. september 2005. Athugasemdabréf bárust frá 32 íbúum við Mjóuhlíð, dags. 1. september 2005. Lögð fram umsögn Framkvæmdasviðs, dags. 7. október 2005. Einnig lögð fram samantekt skipulagsfulltrúa og svör við athugasemdum, dags. 7. október 2005.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 202-9775 bílskúr 19,5 ferm.
Nýr bílskúr 23,4 ferm., 65,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 4.454
Frestað.
Á milli funda.

41. Miklabraut 28 (01.701.007) 106949 Mál nr. BN035445
Birna Björg Berndsen, Miklabraut 28, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi þar sem sótt er um leyfi til þess að rífa núverandi bílskúr og byggja nýjan bílskúr steyptan í plastkubbamót á austur lóðamörkum ásamt steinsteyptum stoðvegg á lóð nr. 28 við Miklabraut samkv uppdr. HP Hönnun, dags. 18. maí 2005.
Samþykki eigenda Miklubrautar 24 og 26 dags. 20. mars 2005 og samþykki eigenda Miklubrautar 30 dags. 10. júní 2005 fylgja eindinu. Málið var í kynningu frá 8. ágúst til 5. september 2005. Athugasemdabréf bárust frá 32 íbúum við Mjóuhlíð, dags. 1. september 2005. Lögð fram umsögn
Framkvæmdasviðs, dags. 7. október 2005. Einnig lögð fram samantekt skipulagsfulltrúa og svör við athugasemdum, dags. 7. október 2005.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 202-9777 bílskúr 22,6 ferm.
Nýr bílskúr 23,4 ferm., 65,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 4.454
Frestað.
Á milli funda.

42. Nethylur 3-3A (04.232.602) 110854 Mál nr. BN034993
Ísold ehf, Nethyl 3-3a, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingu á innra fyrirkomulagi viðbyggingar á austurenda ásamt gluggabreytingu á norðurhlið hússins nr. 3 við Nethyl.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

43. Norðlingabraut 12 (04.731.401) 203913 Mál nr. BN035487
Eykt hf, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta hluta lagers í verslunarrými, koma fyrir lyftararými á 1. hæð, breyta brunahólfun við hringstiga frá bílageymslu o.fl ásamt breytingu á bílastæðum og fyrir uppsetningu skiltis (2x6,5 ferm.) á norðvesturhorni lóðar nr. 12 við Norðlingabraut.
Brunahönnun Línuhönnunar endurskoðuð 20. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Óðinsgata 20B (01.184.429) 102089 Mál nr. BN035382
Jón Óskarsson, Óðinsgata 20b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir við vesturhlið 1. hæðar eins og samþykktar voru 26. október 2005 nema í stað vegghengdra svala verða súlur undir svölum, stækka glugga í kjallara á austurhlið, stækka kjallaraíbúð í áður geymslurými og breyta innra skipulagi rishæðar í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 20B við Óðinsgötu.
Samþykki meðeiganda dags. 5. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

45. Pósthússtræti 11 (01.140.514) 100873 Mál nr. BN035473
Heild ehf, Furuási 10, 210 Garðabær
Hótel Borg ehf, Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innréttingum 1. hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 11 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Ránargata 12A (00.000.000) 100524 Mál nr. BN030589
Arngrímur Fannar Haraldsson, Ránargata 12a, 101 Reykjavík
Marta Emilía Valgeirsdóttir, Ránargata 12a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta gluggum og útitröppum húss nr. 12A á lóð nr. 12 við Ránargötu.
Samþykki meðeigenda dags. 25. nóvember 2004, umsögn Húsfriðunarnefndar ríkisins dags. 6. júlí 2006 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 19. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vantar samþykki eigenda kjallaraíbúðar.

47. Skeifan 17 (01.465.201) 195607 Mál nr. BN035399
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta í norðausturenda hússins flatbökustað þar sem söluvaran er sótt, innréttað er vinnusvæði og kælir ásamt tilheyrandi uppvaski og aðstöða starfsfólks á lóðinni nr. 17 við Skeifuna.
Samþykki meðeigenda dags. 16. febrúar 2007. Brunahönnun dags. 16. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

48. Skútuvogur 2 (01.420.001) 105165 Mál nr. BN035340
Klasi hf, Pósthólf 228, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta 1. og 2. hæð til samræmis við sérteikningar þar sem m.a. er bætt við fundaraðstöðu við stigahús á 2. hæð og barnahorn fært í mötuneyti atvinnuhússins á lóð nr. 2 við Skútuvog.
Umsögn brunahönnuðar dags. 30. janúar 2007 og tölvubréf hönnuðar dags. 26. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Fjarlægja skal óleyfisskilti af húsi

49. Steinagerði 12 (01.816.114) 108097 Mál nr. BN035145
Sif Björk Birgisdóttir, Steinagerði 12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á lóð nr. 12 við Steinagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Stærð: Bílskúr 37,6 ferm., 125,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.800 + 7.680
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsögn skipulagsfulltrúa.

50. Straumur 9 (04.230.001) 110845 Mál nr. BN035429
Olíufélagið ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við bensínstöð Oliufélagsins í til norðurs til stækkunar á vörumóttöku og kæli, viðbyggingin er með burðarvirki úr stáli og að utan með flísaklæðningu sambærilegri og er á byggingunni fyrir á lóðinni nr. 9 við Straum .
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Stærðir: 25,5 ferm., 88,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 5.997
Frestað.
Með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa er ekki gerð athugasemd við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað.

51. Suðurlandsbraut 58-62 (01.471.401) 198021 Mál nr. BN035491
Mörkin eignarhaldsfélag ehf, Reykjavíkurvegi 74, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til þess að breyta byggingarlýsingu, breyta bílageymslu aðallega við aðkomu, breyta svalaskýlum, svölum, gluggum og innra skipulagi fjölbýlishúsa nr. 58, 60 og 62 á lóð nr. 58-64 við Suðurlandsbraut.
Stærð: Leiðréttar stærðir kjallari 857,7 ferm., 1. hæð 2028,9 ferm., 2. hæð 2085 ferm., 3. hæð 1812,3 ferm., 1829,7 ferm., samtals 8613,6 ferm., 29012,1 rúmm., en var 8625,3 ferm., 29159 rúmm.
Svalagangar (B-rými) verður samtals 1380 ferm., xxx rúmm., en var 1209,3 ferm., 5204,1 rúmm.
Opin bílageymsla (B-rými) verður 3668,4 ferm., 14823,3 rúmm., en var 3663,3 ferm., 14802,7 rúmm.
Svalaskýli eru nú samtals 492 ferm., 1467 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Sundlaugavegur 12 (01.361.001) 104550 Mál nr. BN035430
Nordic Partners ehf, Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka og endurinnrétta fiskverslun á 1. hæð ásamt leyfi til þess að opna áður byrgð op og loka öðrum, sýnd eru fjögur bílastæði á suðurhluta lóðar ásamt gámum og ósamþykktum geymslum við fjöleignahúsið á lóð nr. 12 við Sundlaugaveg. Samþykki meðeigenda dags. 1. febrúar 2007 fylgir erindinu. Einnig lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. febrúar 2007. Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Súðarvogur 38 (01.454.402) 105640 Mál nr. BN035226
Narfi Hjartarson, Blönduhlíð 21, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta í íbúð með vinnuaðstöðu 2. hæð í atvinnuhúsinu á lóðinni nr. 38 við Súðarvog.
Málinu fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 7. janúar 2006. Málinu fylgir bréf frá eiganda dags. 15. febrúar 2007.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsráðs.

54. Sæmundargata 2 Mál nr. BN035095
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á snyrtingum 1., 2. og 3. hæðar Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, á lóð Háskólans við Suðurgötu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

55. Úlfarsbraut 30-32 (02.698.406) 205714 Mál nr. BN035471
Bjarni Tómasson, Þrastarhöfði 21, 270 Mosfellsbær
Gunnar Jón Jónasson, Hjallabrekka 26, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt parhús með innbyggðum bílgeymslum, hús er að hluta á þremur hæðum á lóð nr. 30-32 við Úlfarsbraut.
Stærð: Hús nr. 30 (matshluti 01) íbúð kjallara 45,4 ferm., 1. hæð 53 ferm., 2. hæð 51,3 ferm., bílgeymsla 26,8 ferm., samtals 176,5 ferm., 682,3 rúmm. Hús nr. 32 (matshluti 02) er sömu stærðar og hús nr. 30 eða samtals 176 ferm., 682,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 92.793
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

56. Úlfarsbraut 62-64 (02.698.602) 205723 Mál nr. BN035307
Bergþóra Björg Jósepsdóttir, Geitasandur 2, 850 Hella
Magnús Gabríel Haraldsson, Andrésbrunnur 4, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvílyft steinsteypt parhús með innbyggðum bílgeymslum á lóð nr. 62-64 við Úlfarsbraut.
Stærð: Hús nr. 62 (matshluti 01) íbúð 1. hæð 77,7 ferm., 2. hæð 105,3 ferm., bílgeymsla 27,5 ferm., samtals 210,5 ferm., 679,1 rúmm. Hús nr. 64 (matshluti 02) er sömu stærðar og nr. 62 eða samtals 210,5 ferm., 679,1 rúmm. Parhús er samtals 421 ferm., 1358,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.800 + 92.358
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

57. Úlfarsbraut 66-68 (02.698.501) 205724 Mál nr. BN035390
Sólrún Hanna Guðmundsdóttir, Hraunbær 192, 110 Reykjavík
Engilbert Olgeirsson, Nefsholt 1b, 851 Hella
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt parhús á þremur pöllum með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 66-68 við Úlfarsbraut.
Stærðir: Úlfarsbraut 66: Íbúð 183 ferm., bílgeymsla 27,5 ferm. Samtals 210,5 ferm. 679,1 rúmm.
Úlfarsbraut 68: Sömu stærðir.
Samtals 421 ferm. og 1358,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.800 + 92.358
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

58. Úlfarsbraut 70-72 (02.698.502) 205725 Mál nr. BN035479
Geir Þorsteinsson, Hafnarbraut 47a, 780 Höfn
Sigurður Finnsson, Blásalir 7, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt, tvílyft parhús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 70-72 við Úlfarsbraut.
Stærð Úlfarsbraut 70: 211,2 ferm., þar af bílgeymsla 25,1 ferm.
Úlfarsbraut 72: Sömu stærðir.
Samtals: 422,4 ferm., 1341,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 91.229
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

59. Viðarhöfði 1 (04.077.201) 110682 Mál nr. BN035388
Íslenska pökkunarfélagið ehf, Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir núverandi fyrirkomulagi (reyndarteikningu) þar sem bætt hefur verið við göngu- og innkeyrsluhurðum við húsið á lóðinni nr. 1 við Viðarhöfða.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

60. Vínlandsleið 1 (04.111.401) 197691 Mál nr. BN035489
Húsasmiðjan hf, Holtavegi 10, 104 Reykjavík
Landsbanki Íslands hf,aðalstöðv, Austurstræti 11, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta bankaútibú með tilheyrandi starfsmanna- og vinnuaðstöðu ásamt snyrtingum, ræstiklefa og geymslum í mhl. 02 í húsi Húsasmiðjunar á lóðinni nr. 1 við Vínlandsleið.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vantar umsögn brunahönnuðar.

61. Þórsgata 4 (01.184.202) 102024 Mál nr. BN035463
Guðlaugur Gunnarsson, Þórsgata 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að útbúa einkainnkeyrslu og tvö bílastæði við einbýlishúsið á lóðinni nr. 4 við Þórsgötu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Komi til kostnaðar vegna breytinga á gangstétt og kantsteini skal hann greiddur af umsækjanda.
Fyrirspurnir

62. Austurberg 16-20 (04.677.002) 112247 Mál nr. BN035409
Svafar Ingimarsson, Austurberg 16, 111 Reykjavík
Guðmundur R Guðmundsson, Holtagata 2, 520 Drangsnes
Spurt er hvort leyft yrði að loka svölum með gleri á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 16-20 við Austurberg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. einnig gr. 102 í byggingarreglugerð nr. 441/1998..

63. Baldursgata 29 (01.184.502) 102107 Mál nr. BN035492
Guðmundur V Ingvarsson, Baldursgata 29, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir svalalokun á 2. hæð í tvíbýlishúsinu á lóð nr. 29 við Baldursgötu Meðfylgjandi er samþykki hluta aðliggandi lóðarhafa dags. 24. 25. og 27. jan. 2007
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

64. Bræðraborgarstígur 7 (01.135.218) 100467 Mál nr. BN035472
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að sameina eignir 0002 og 0401 í fjöleignahúsinu á lóðinni nr. 7 við Bræðraborgarstíg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

65. Eskihlíð 24-26 (01.705.801) 107114 Mál nr. BN035499
Georg Georgsson, Birkihlíð 28, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft veði að byggja sólstofu við suðausturhlið 1. hæðar fjölbýlishúss nr. 26 á lóð nr. 24-26 við Eskihlíð.
Samþykki meðeigenda ódags. fylgir erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

66. Flókagata 27 (01.244.405) 103198 Mál nr. BN035442
Ýr Frisbæk, Flókagata 27, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja tvöfaldan bílskúr með íbúðarhæð ofan á á lóðinni nr. 27 við Flókagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

67. Glaðheimar 16 (01.435.008) 105298 Mál nr. BN035478
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Háaleitisbraut 119, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja hæð ofan á núverandi fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Glaðheima.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

68. Grettisgata 8 (01.182.107) 101823 Mál nr. BN035477
Tinna Þórdís Gunnlaugsdóttir, Grettisgata 8, 101 Reykjavík
Egill Ólafsson, Grettisgata 8, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir stækkun á bakhúsi lóðarinnar nr. 8 við Grettisgötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

69. Háagerði 87 (01.817.405) 108152 Mál nr. BN035452
Marinó Ólason, Háagerði 87, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að færa til núverandi kvist á suðurhlið, byggja nýjan kvist á norðurhlið og hækka viðbyggingu sem fyrir er við einbýlishúsið á lóðinni nr. 87 við Háagerði
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

70. Hrefnugata 7 (01.247.209) 103360 Mál nr. BN035412
María Kristín Jónsdóttir, Hrefnugata 7, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft verði að hækka þak, setja kvist á allar hliðar þaks og svalir á suðurhlið allra hæða fjölbýlishússins á lóð nr. 7 við Hrefnugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2007 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa enda verði sótt um byggingarleyfi.

71. Kambasel 58-64 (04.975.003) 113222 Mál nr. BN035460
Ólafur Gylfason, Kambasel 64, 109 Reykjavík
Unnur Hallgrímsdóttir, Kambasel 64, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að setja glugga á vesturgafl rishæðar og setja stiga upp á loft sem notað yrði fyrir geymslur og sjónvarpsherhergi fyrir endaraðhús nr. 64 á lóð nr. 58-64 við Kambasel.
Samþykki meðeigenda ódags. fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

72. Krosshamrar 13-13A (02.294.707) 109078 Mál nr. BN035500
Jóhann Egill Hólm, Krosshamrar 13a, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja um 16 ferm. sólstofu framan við stofur við vesturhlið parhúss á lóð nr. 13-13A við Krosshamra.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

73. Langholtsvegur 86 (01.430.201) 105192 Mál nr. BN035444
Jóhann Steinar Guðmundsson, Langholtsvegur 86, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka ris með kvistum á hvorri langhlið íbúðarhússins á lóð nr. 86 við Langholtsveg.
Samþykki meðeiganda ódags. fylgir erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

74. Laugavegur 46A (01.173.103) 101520 Mál nr. BN035446
Guðni Stefánsson, Laugavegur 46a, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka 1. hæð, stækka kvisti, stækka útihús og byggja flóttasvalir á hús á lóð nr. 46A við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

75. Melhagi 7 (01.542.207) 106385 Mál nr. BN035480
Halla Björg Þórhallsdóttir, Melhagi 7, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir framan við suðurkvisti fjölbýlishúss á lóðum nr. 7 og 9 við Melhaga.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður.

76. Nönnubrunnur 1 (05.053.701) 206097 Mál nr. BN035243
Verkland ehf, Smyrlahrauni 25, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir hækkun á gólfkóta hússins á lóð nr. 1 við Nönnubrunn.
Meðfylgjandi er greingerð aðalhönnuðar dags. 9. janúar 2007.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Einnig lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. febrúar 2007.
Nei.
Sbr. útskrift skipulagsfulltrúa frá 23. febrúar 2007.

77. Skipholt 50A (01.254.001) 103465 Mál nr. BN035455
Arktíka ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að fjölga íbúðum á 2. hæð úr fimm í sjö í fjöleignahúsinu á lóðinni nr. 50A við Skipholt.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

78. Úlfarsbraut 42-44 (02.698.306) 205717 Mál nr. BN035440
Sigríður Ólafsdóttir, Ránargata 42, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir og þakskegg og vegg undir hvoru tveggja út fyrir byggingarreit í líkingu við fyrirliggjandi uppdrætti af parhúsi á lóð nr. 42-44 við Úlfarsbraut.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

79. Vesturberg 195 (04.660.807) 112031 Mál nr. BN035458
R.Guðmundsson ehf, Pósthólf 1143, 121 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir raðhúsi í stað dælustöðvar á lóðinni nr. 195 við Vesturberg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum en bent er á að skipulagsferli er enn ólokið.

80. Vesturgata 45 (01.135.002) 100424 Mál nr. BN035443
Friðbjörg Ingimarsdóttir, Vesturgata 45, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að setja niður rotþró á baklóð vegna fyrirhugaðrar snyrtingar í bílskúr á lóð nr. 45 við Vesturgötu.
Sækja skal um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðrar snyrtingar, tengja skal frárennsli snyrtingar í holræsakerfi borgarinnar.

81. Þingvað 19 (04.773.802) 198726 Mál nr. BN035466
Steinn Guðjónsson, Smárarimi 13, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum og með innbyggðri bílgeymslu í líkingu við fyrirliggjandi uppdrætti í stað þess sem hafnar eru framkvæmdir við á lóð nr. 19 við Þingvað.
Neikvætt.
Fermetrarfjöldi húss of mikill samkvæmt skipulagi.

Fundi slitið kl. 12:53.

Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson Þórður Búason
Helga Guðmundsdóttir Sigrún Reynisdóttir
Jón Magnús Halldórsson Sigríður Kristín Þórisdóttir