Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 16. janúar kl. 09:08, var haldinn 121. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Svandís Svavarsdóttir, Stefán Benediktsson, Ásta Þorleifsdóttir, Óskar Bergsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Birgir Hlynur Sigurðsson, Ólöf Örvarsdóttir, Helga Björk Laxdal, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason, Marta Grettisdóttir og Jón Árni Halldórsson. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Þormar, Jóhannes S. Kjarval, Björn Axelsson, Bergljót Einarsdóttir og Haraldur Sigurðsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Grófartorg, Zimsen hús, breyting á deilis. Vesturgötu 2A (01.140.0)Mál nr. SN070699
Minjavernd hf, Pósthólf 1358, 121 Reykjavík
Arkitektur.is ehf, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Hjörleifs Stefánssonar ark. f.h. Minjaverndar, dags. 18. september 2007, um breytingu á deiliskipulagi Grófartorgs vegna staðsetningar Zimsenhússins á lóðinni að Vesturgötu 2A skv. uppdrætti, dags. 29. okt. 2007. Með tillögunni er m.a. gert ráð fyrir nýjum hæðarsetningum, viðbyggingum og breytingum á lóðarmörkum. Auglýsing stóð yfir frá 28. nóvember 2007 til og með 11. janúar 2008. Engar athugasemdir bárust.
Auglýst tillaga samþykkt.
Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð óskar eftir sérstakri kynningu á útliti byggingarinnar á nýjum stað og umhverfi þess verði lögð fyrir ráðið þegar sótt verður um byggingarleyfi.

2. Ingólfstorg, breyting á deiliskipulagi (01.140) Mál nr. SN070721
Lögð fram tillaga Björns Ólafs ark., dags. 26. október 2007, að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Ingólfstorgs, Vallarstrætis og lóðunum Thorvaldsensstræti 2, Vallarstræti 4 og Aðalstræti 7.
Frestað.

3. Bauganes 31A, breyting á deiliskipulagi Einarsness (01.673.0) Mál nr. SN070312
Jóhanna Jakobsdóttir, Skeljatangi 40, 270 Mosfellsbær
Berglind B Sigvaldadóttir, Miðtún 82, 105 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi lóðarhafa mótt. 22. ágúst 2007 ásamt tillögu Berglindar Sigvaldadóttir dags. 9. sept 2007 að breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðarinnar nr. 31A við Bauganes. Í breytingunni felst stækkun og færsla á byggingarreit. Grenndarkynningin stóð frá 1. til og með 29. október 2007. Athugasemd barst frá íbúum Bauganesi 33A, dags. 29. okt. 2007. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 7. nóvember 2007 og tölvupóstur Jóhönnu Jakobsdóttur og Matthíasar R. Arngrímssonar dags. 21. nóvember 2007 og 11. janúar 2008.
Kynnt tillaga samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð og til þeirra röksemda sem fram koma í bréfi lóðarhafa dags. 11. janúar 2008.

4. Holtavegur 10, auglýsingaskilti, breyting á deiliskipulagi(01.408.1)Mál nr. SN070472
Landic Property hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
THG Arkitektar ehf, Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn teiknistofu Halldórs Guðmundssonar f.h. fasteignafélagsins Stoða, dags. 3. ágúst 2007, um breytingu á deiliskipulagi Holtavegar. Í tillögunni felst að komið verði fyrir auglýsingaskiltum á húsi og lóð nr. 10 við Holtaveg skv. uppdrætti, dags. 31. júlí 2007. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 31. ágúst 2007. Tillagan var auglýst frá 12. október til og með 23. nóvember 2007. Athugasemd barst frá Fanney Evu Vilbergsdóttur Kleppsvegi 140, dags. 23. nóvember 2007 ásamt undirskriftalista 78 íbúa í nágrenninu. Lögð fram umsögn skipulagsstjóra um athugasemdir, dags. 10. desember 2007.
Auglýst tillaga samþykkt með vísan til röksemda sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra en með þeim breytingum að skilti verði staðsett þannig að efri brún þeirra sé neðar eða jöfn vegghæðum, sbr. staðsetning skiltis Hagkaupa. Ekki eru gerðar athugasemdir við skiltamagn.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Hanna Birna Kristjánsdóttir, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson óskuðu bókað; Samþykkt Reykjavíkurborgar um skilti er ófullkomin og úrelt. Mikilvægt er að þegar verði hafist handa við endurskoðun hennar.

5. Klettagarðar 27, breyting á deiliskipulagi (01.324.2) Mál nr. SN070797
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 21. desember 2007 var lögð fram umsókn skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna, dags. 18. des. 2007 um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 27 við Klettagarða skv. uppdrætti Arkís, dags. 26. nóv. 2007. Einnig lögð fram bókun hafnarstjórnar frá 11. des. 2007. Erindinu var vísað til umfjöllunar í austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

6. Sogavegur, textabreyting á skilmálum Mál nr. SN070688
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra dags. 11. janúar 2008 að textabreytingu skilmála vegna kvista fyrir deiliskipulagssvæðið Sogavegur.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

7. Stóragerði 40-46, breyting á deiliskipulagi (01.803.1) Mál nr. SN070039
Festing ehf, Kjalarvogi 7-15, 105 Reykjavík
Trausti S Harðarson, Brekkusel 20, 109 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga Ask arkitekta, dags 17. janúar 2007 ásamt skýringaruppdráttum dags. 20.febrúar 2007 varðandi breytingu á deiliskipulagi og stækkun á afmörkun deiliskipulagssvæðis vegna lóðarinnar nr 40-46 við Stóragerði. Einnig lagðar fram hljóðstigsmælingar Línuhönnunar frá mars 2007 og bókun umhverfisráðs frá 26.03.07 ásamt umsögn umhverfissviðs um að beita fráviki II varðandi hljóðvist á reitnum. Auglýsingin stóð frá 24. okt. til og með 7. des. 2007. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Óskar Konráðsson og Ólöf Eyjólfsdóttir Viðjugerði 2, dags. 9. nóv., Margrét Guðmundsdóttir og Einar Árnason Viðjugerði 1, dags. 23. nóv., íbúar að Seljugerði 8, dags. 3. des., Erlendur Jónsson og Hanna Siggeirsdóttir Seljugerði 7, dags. 5. des., Kristín Jónsdóttir Stóragerði 33, dags. 1. og 4. des. ásamt greinargerð Arkiteó, dags. 30. nóv. og undirskriftalista 97 einstaklinga. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra, dags. 15. janúar 2008.
Auglýst tillaga samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

8. Smiðshöfði 5, breytt deiliskipulag (04.061.1) Mál nr. SN070742
Exista Properties ehf, Ármúla 3, 108 Reykjavík
Arkþing ehf, Bolholti 8, 105 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn og tillaga Arkþings ehf.. dags. 22. nóvember 2007, að breyttu deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Smiðshöfða. Í breytingunni felst að byggingarreitur á suðurhúsi er stækkaður til vesturs. Grenndarkynning stóð yfir frá 4. desember 2007 til 4. janúar 2008. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

9. Kollafjörður, Lundur F2A, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN070731
Þór Sigurjónsson, Núpalind 2, 201 Kópavogur
Á fundi skipulagsstjóra 23. nóvember 2007 var lagt fram bréf Jóhanns Arnar Sigurjónssonar, Þórs Sigurjónssonar og Nönnu Sigurjónsdóttur, dags. 19. nóvember 2007, varðandi breytingu á deiliskipulagi landi Lundar (F2A) í Kollafirði.
Frestað.

10. Kjalarnes, Vellir, endurskoðun aðalskipulags Mál nr. SN070793
Reynir Kristinsson, Vellir, 116 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 21. desember 2007 var lögð fram orðsending R07120009 frá skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. des. 2007 ásamt bréfi Reynis Kristinssonar ábúanda að Völlum frá 2. des. 2007, um endurskoðun á aðalskipulagi og þá um leið þess svæðis sem nær til Valla á Kjalarnesi. Erindinu var vísað til umfjöllunar hjá umhverfisstjóra skipulags- og byggingarsviðs og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 11. janúar 2008.
Vísað til umfjöllunar í endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur 2001-2024.

11. Aðalskipulag Reykjavíkur 2024+, endurskoðun Mál nr. SN060424
Staða endurskoðunar kynnt.
Bergljót Einarsdóttir og Haraldur Sigurðsson kynntu stöðu mála.

(B) Byggingarmál

12. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN037549
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 475 frá 15. janúar 2008.

13. Blönduhlíð 5, bílskúr (01.704.214) Mál nr. BN037303
Ásdís Auðunsdóttir, Blönduhlíð 5, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta bílgeymslu á norðvesturhorni lóðar þríbýlishússins nr. 5 við Blönduhlíð. Grenndarkynning stóð yfir frá 4. desember 2007 til 4. janúar 2008. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Magnús Óskarsson Blönduhlíð 3, dags. 18. des. 2007. Lögð fram umsögn skipulagsstjóra, dags. 12. janúar 2008.
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu á ódagsettri teikningu.
Stærðir: 36,1 ferm., 103,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 7.024
Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

14. Brúarvogur 1-3, br. á samþykkt BN036137 (01.427.201) Mál nr. BN037135
Dreifing ehf, Vatnagörðum 8, 104 Reykjavík
Skúlagata 30 ehf, Stigahlíð 60, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka bílaplan við vesturhlið ný samþykkts atvinnuhúss sbr. erindi BN036137, bæta við stiga milli 1. og 2. hæðar, breyta starfsmannaaðstöðu, færa hleðsluklefa, setja nýjan inngang inn að verslun á 1. hæð, innrétta skrifstofur á hluta 2. hæðar og breyta innra skipulagi á skrifstofurými á 3. hæð ásamt fleiri breytingum á innra skipulagi atvinnuhússins á lóð nr. 1-3 við Brúarvog.
Meðfylgjandi er bréf lóðarhafa dags. 8. desember 2007 vegna víkandi aðgerða framkvæmdanna og bréf brunahönnuðar dags. 8. nóvember 2007. Einnig lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. nóvember 2007.
Stærð: Atvinnuhúsið var samtals 6955,9 ferm. verður 6938,3 ferm., var 62190,4 rúmm. verður 64343,5 rúmm. Móttökusvæði undir bílapall (B-rými) var 1189,9 ferm. verður 2160,0 ferm., var 7282,2 rúmm. verður 12.787,2 rúmm
Gjald kr. 6.800 + 520.410
Samþykkt.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið, með því skilyrði að lóðarhafar láti útbúa yfirlýsingu þar sem fram kemur að þeim sé kunnugt um að heimildin til stækkunar á bílapalli sé tímabundin og skilyrt vegna hugsanlegrar framtíðarlegu Sundabrautar. Einnig skal koma fram að allur kostnaður við að fjarlægja mannvirkið skal vera á kostnað og á ábyrgð lóðarhafa. Yfirlýsingu þessari skal þinglýst áður en byggingarleyfi verður gefið út.

15. Fróðengi 1-11, öryggis- og þjónustuíbúðir Mál nr. BN037138
Eir,hjúkrunarheimili, Pósthólf 12096, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja öryggis- og þjónustuíbúðir sem einnar til fjögurra hæða steinsteyptar byggingar ásamt geymslukjallara, samtals sjö hús samtengd með glergöngum, 111 íbúðir, allt einangrað að utan og klætt með áli og timbri á lóð nr. 1-11 við Fróðengi.
Gerð er grein fyrir áfangaskiptingu á framkvæmd.
Bréf hönnuðar dags. 23. október 2007 og brunahönnun Línuhönnunar dags. 2. október 2007 fylgja erindinu.
Einnig fylgir minnisblað frá Línuhönnun dags. 17. desember 2007.
Stærð: 1. áfangi (matshluti 01) samtals 4.621,6 ferm., 13.206,2 rúmm. 2. áfangi (matshluti 02) samtals 1.886,9 ferm., 5.411,2 rúmm. 3. áfangi (matshluti 03) samtals 4.881 ferm., 13.930,1 rúmm. 4. áfangi (matshluti 04) samtals 2.106,4 ferm., 6.012,8 rúmm.
Samtals 13.495,9 ferm., 38.560,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 2.622.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

16. Kambsvegur 1, stækka svalir (01.353.001) Mál nr. BN035768
Gunnar Steinn Úlfarsson, Kambsvegur 1, 104 Reykjavík
Hlöðver Eggertsson, Kambsvegur 1, 104 Reykjavík
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Kambsvegur 1, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka svalir 1., 2. og 3. hæðar við austurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 1 við Kambsveg. Grenndarkynning stóð yfir frá 30. nóv. til 4. jan. 2008. Athugasemd barst frá Jóni Þorgeirssyni, dags. 8. des. 2007.
Samþykki nágranna að Kambsvegi 1A og 3 dags. 14. mars 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

(C) Fyrirspurnir

17. Almannadalur, (fsp) breyting á deiliskipulagi (05.8) Mál nr. SN080021
Hestamannafélagið Fákur, Vatnsendav Víðivöllum, 110 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Bjarna Finnssonar f.h. hestamannafélagsins Fáks, dags. 7. jan. 2008, varðandi breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar á Hólmsheiði þannig að lóðarmörk á gæðingavellinum í Almannadal verði felld niður.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, í samræmi við erindið. Málsmeðferð breytingarinnar verður ákvörðuð þegar hún berst.

18. Bergstaðastr.18 og 20, Spítalastígur 6B, (fsp) uppb. á lóðum(01.184.0)Mál nr. SN070637
Þ.G. verktakar ehf, Fossaleyni 16, 112 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra var lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. nóv. 2007 ásamt erindi ÞG verk, dags. 1. okt. 2007 varðandi uppbyggingu á lóðum nr. 18 og 20 við Bergstaðastræti. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 22. nóvember 2007 og umsögn húsafriðunarnefndar ríkisins, dags. 7. desember 2007, varðandi niðurrif húss nr. 20 við Bergstaðastræti.
Neikvætt með vísan til umsagna húsafriðunarnefndar ríkisins og umsagnar skipulagsstjóra.

19. Ystasel 37, (fsp) breyting á deiliskipulagi (04.930.3) Mál nr. SN070230
Hallsteinn Sigurðsson, Ystasel 37, 109 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Hallsteins Sigurðssonar, dags. 2. apríl 2007, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 37 við Ystasel. Í fyrirspurninni er gert ráð fyrir að skipta lóðinni í þrennt. Einnig lögð fram umsögn borgarlögmanns, dags. 18. desember 2007.
Kynnt. Frestað.

(D) Ýmis mál

20. Borgarvernd, húsvernd, stefnumótun í borgar- og húsverndarmálum Mál nr. SN070387
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. júní 2007, varðandi samþykkt borgarstjórnar frá 19. júní 2007 um að fram fari heildarendurskoðun á húsverndaráætlunum Reykjavíkur. Einnig lagðir fram minnispunktar Hjörleifs Stefánssonar ark., dags. 10. janúar 2008 varðandi stefnumótun í borgar- og húsverndarmálum.
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt kynnti.

21. Grófartorg, útilistaverk (01.140) Mál nr. SN070807
Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. janúar 2008 ásamt bréfi skrifstofustjóra menningar- og ferðamálasviðs frá 18. des. 2007, sbr. samþykkt menningar- og ferðamálaráðs 13. s.m., vegna listaverks á útisvæði austan við Ziemsen húsið á Grófartorgi. Erindinu var vísað f.h. borgarráðs til umsagnar skipulagsráðs.
Vísað til umsagnar stýrihóps um uppbyggingu Kvosarinnar.

22. Húsverndarsjóður Reykjavíkur, úthlutun styrkja 2008 Mál nr. SN080023
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra dags. 11. janúar 2008 að auglýsingu um styrki úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur.
Samþykkt.
Af hálfu skipulagsráðs voru tilnefndir í vinnuhóp Ásta Þorleifsdóttir og Áslaug Friðriksdóttir.

23. Afgreiðslufundir Skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerðir Mál nr. SN010070
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 29. júní 2007 til og með 11. janúar 2008.

24. Fálkagata 28b, úrskurður úrskurðarnefndar (01.553.0) Mál nr. SN080028
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 10. janúar 2008 vegna kæru á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að veita leyfi til að klæða húsið nr. 28b við Fálkagötu í Reykjavík að utan með timburklæðningu í stað múrhúðunar. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu samþykktar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 11. desember 2007 um að veita leyfi til að klæða húsið nr. 28b við Fálkagötu í Reykjavík að utan með timburklæðningu í stað múrhúðunar.

25. Laufásvegur 74, kæra, umsögn (01.197.3) Mál nr. SN070504
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 10. janúar 2008, vegna kæru á synjun umsóknar um gerð sólstofu á fasteigninni að Laufásvegi 74.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

26. Reitur 1.524, Melar, kæra, umsögn (01.54) Mál nr. SN060797
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 9. janúar 2008, um kæru á deiliskipulag fyrir reit 1.524, Melar.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:55.

Svandís Svavarsdóttir
Stefán Benediktsson Ásta Þorleifsdóttir
Óskar Bergsson Hanna Birna Kristjánsdóttir
Kjartan Magnússon Júlíus Vífill Ingvarsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2008, þriðjudaginn 15. janúar kl. 09:37 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 475. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Bjarni Þór Jónsson, Jón Magnús Halldórsson, Björn Kristleifsson og Eva Geirsdóttir
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Almannadalur 25-29 (05.865.201) 208504 Mál nr. BN037535
Hestamannafélagið Fákur, Vatnsendav Víðivöllum, 110 Reykjavík
Sperringur ehf, Þingási 33, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að lækka hæðarkóta hesthússins um 50 cm. og breyta úr staðsteyptu í einingahús miðað við nýlega samþykktar teikningar erindi BN036589 á lóð nr. 27 við Almannadal.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Austurberg 1 (04.667.801) 112096 Mál nr. BN037534
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborga, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sótt er um breytingu á burðarvirki miðað við áður samþykktar teikningar erindi BN 36479 þannig að á suðurhlið kemur í stað súlna steyptur veggur og í boltageymslu er lokað rými fyrir inntök hússins í félagshúsi íþróttafélags Leiknis á lóð nr. 1 við Austurberg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Austurstræti 3 (01.140.213) 100834 Mál nr. BN037538
Sjöstjarnan ehf, Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja nýjan inngang á framhlið Subway og loka 2. og 3. hæð frá 1. hæð í húsi á lóð nr. 3 við Austurstræti.
Gjald kr. 7.300.-
Frestað.
Samræma útihurðir í inngangseiningu

4. Ánanaust 1 (01.130.103) 100115 Mál nr. BN037461
Héðinsreitur ehf, Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að rífa húseignina á lóð nr. 1 við Ánanaust.
Málinu fylgir bréf umsækjanda dags. 4. janúar 2008 og tölvupóstur OR dags. 7. janúar 2008.
Niðurrif: Fastanr. 200-0259, matshl.02, merkt 0101 verslun 786,6 ferm.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin tekur ekki til niðurrifs á spennistöð.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

5. Ártún Melagerði 125654 (00.013.001) 125654 Mál nr. BN037531
Brimgarðar ehf, Sundagörðum 10, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka núverandi alifuglahús úr stálgrind á steyptum undirstöðum við Ártún - Melagerði á Kjalarnesi.
Stærðir: Stækkun 81 ferm. og 323,4 rúmm. Heildarstærð eftir stækkun 542,8 ferm. og 2138 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 23.608
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra
Að öðru leyti vísað í athugasemdir á umsóknarblaði

6. Baldursgata 33 (01.184.207) 102029 Mál nr. BN037410
Joco ehf, Skipholti 50D, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að færa til sorptunnuskýli úr húsi að norðurhlið hússins á lóðinni nr 33 við Baldursgötu.
Tölvupóstur aðalhönnuðar fylgir erindinu dags. 13. desember 2007. Stærðir stækkunar: 2,1 ferm. 5,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 394
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

7. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN037540
Höfðatorg ehf, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um að byggja glerskála nefndan G1 á teikningu með burðarvirki úr stáli byggðan ofan á efstu plötu bílakjallara og er tengdur byggingum H1 og B1og nær upp 3 hæðir á lóðinni nefnda Höfðatorg sem er lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Meðfylgandi er endurskoðuð brunahönnun dags. 8. janúar 2008
Stærðir Glerskála: 390,0 ferm. 4503,0 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 328.719
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

8. Búðavað 21-23 (04.791.806) 209912 Mál nr. BN037282
Byggingarfélagið Kjölur ehf, Móvaði 37, 110 Reykjavík
H-Bygg hf, Stórhöfða 23, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft steinsteypt parhús, múrhúðað og að hluta harðviðarklætt, með innbyggðum bílgeymslum á lóðinni nr. 21-23 við Búðavað.
Stærðir (einn Mhl): 1. hæð íbúðir 186,8 ferm, bílgeymslur 56,4 ferm., 2. hæð íbúðir 242,4 ferm.
Samtals 499,4 ferm., 1864,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 126.766
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

9. Bæjarháls 1 (04.309.601) 190769 Mál nr. BN037131
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvö opin þvottaplön og tæknirými á lóð nr. 1 við Bæjarháls.
Stærðir: 24,9 ferm, 122,7 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 8.344
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

10. Drápuhlíð 14 (01.704.207) 107087 Mál nr. BN037448
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Ríkissjóður Íslands, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir lítisháttar breytingum miðað við áður samþykkt erindi BN31024 einkum með tilfærslu á vegg milli biðstofu og afgreiðslu í heilsugæslu húsinu á lóð nr. 14 við Drápuhlíð.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

11. Dugguvogur 9-11 (01.454.115) 105632 Mál nr. BN037242
Jóhannes Kristján Guðlaugsson, Grundartangi 7, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að setja nýja útidyrahurð á 1. hæð á vesturhlið og að breyta eignarhaldi á fyrstu og annarri hæð atvinnuhúsnæðisins á lóð nr. 9-11 við Dugguvog.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 7. nóvember 2007.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

12. Fellsmúli 24-30 (01.297.101) 103858 Mál nr. BN037175
Umtak fasteignafélag ehf, Dalvegi 10-14, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi fyrir ID skilti fyrir hjólbarðaþjónustu N1á lóð nr. 24 við Fellsmúla.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Fiskislóð 2-8 (01.115.220) 180624 Mál nr. BN037451
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta matvöruverslun með tilheyrandi breytingum sem felast í því að byggja vindfang með kerrugeymslu úr gluggaprófílum og gleri ásamt því að fjarlægja milliloft og skjólvegg utan um sorpgeymslu miðað við erindi BN18931 á lóðinni nr. 2-8 við Fiskislóð.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 11. desember 2007.
Stærðir: Niðurrif millilofts 254,2 ferm. vindfang B-rými 42,7 ferm., 154,1 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 10.479
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

14. Freyjubrunnur 15-21 (02.695.411) 205730 Mál nr. BN037441
Sparisjóður Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að byggja fjögur tvílyft, steinsteypt raðhús með innbyggðum bílgeymslum á lóð nr. 15-21 við Freyjubrunn.
Hús nr. 15: 1. hæð íbúð 100,5 ferm., bílgeymsla 32,3 ferm., 2. hæð íbúð 110,4 ferm.
Hús nr. 17 og 19: íbúð 81,5 ferm., bílgeumsla 29,5 ferm., 2. hæð íbúð 104,4 ferm.
Hús nr. 21: íbúð 81,5 ferm., bílgeymsla 29,5 ferm., 2. hæð íbúð 108,4 ferm.
Samtals 893,4 ferm. og 3036 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 206.448
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Freyjubrunnur 3-5 (02.695.702) 205726 Mál nr. BN037544
Teitur Ólafur Marshall, Brekkutangi 40, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að gera kjallararými í báðum íbúðum þannig að í mhl. 01 verði gluggalaust geymslurými og í mhl. 02 verði lagnakjallari með aðgengi frá lúgu á bílgeymslugólfi í parhúsinu á lóð nr. 3-5 við Freyjubrunn.
Stærðir kjallara: Mhl. 01 fylgirými 79,6 ferm., 214,6 rúmm. Mhl. 02 notarými 106,1 ferm., 286,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 36.558
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

16. Friggjarbrunnur 13-15 (02.693.503) 205772 Mál nr. BN037009
Arinbjörn Marinósson, Danmörk, Guðrún Ósk Traustadóttir, Danmörk, Gunnar Ingi Arnarson, Maríubaugur 141, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja parhús úr forsteyptum einingum, tvær hæðir og kjallari, byggja pall og koma fyrir setlaug á lóðinni nr. 13-15 við Friggjarbrunn.
Málinu fylgir bréf hönnuðar dags. 17. desember 2007 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. janúar s.l.
Stærð húss nr. 13: Kjallari íbúð 89,8 ferm., 1. hæð íbúð 57,5 ferm., bílgeymsla 30 ferm., 2. hæð íbúð 87,5 ferm.
Hús nr. 15 sömu stærðir.
Friggjarbrunnur 13-15 samtals: 529,6 ferm., 1616,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 115.002
Synjað.
Stærð ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags.

17. Friggjarbrunnur 43-45 (02.693.506) 205813 Mál nr. BN037529
Þrándur Jensson, Hraunbær 102a, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í húsinu nr. 43 á lóðinni nr. 43-45 við Friggjarbrunn.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

18. Gerðarbrunnur 52 (05.054.705) 206064 Mál nr. BN037480
Torfi Rúnar Kristjánsson, Skálaheiði 9, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á tveim hæðum, með innbyggðri bílgeymslu, steinsteypta neðri hæð og efri hæð úr timbri klætt að utan með útigifsi, á lóðinni nr. 52 við Gerðarbrunn.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. janúar s.l. fylgir erindinu.
Stærð: 1. hæð íbúð 50,9 ferm., bílgeymsla 38,4 ferm., 2. hæð íbúð 134,3 ferm.
Samtals 270,9 ferm., 896,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 60.955
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Hesthamrar 13 (02.297.404) 109134 Mál nr. BN037498
Pétur Ingason, Hesthamrar 13, 112 Reykjavík
Magna Jónmundsdóttir, Hesthamrar 13, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa sólstofu og byggja í staðinn viðbyggingu sunnan við einbýlishúsið á lóðinni nr. 13 við Hesthamra. Útskrit úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. janúar s.l. fylgir erindinu.
Niðurrif: Sólstofa 15,7 ferm., 53,4 rúmm.
Stækkun: 30,7 ferm., 108,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 7.358
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

20. Hofteigur 8 (01.364.003) 104601 Mál nr. BN037275
Hafliði Helgason, Hofteigur 8, 105 Reykjavík
Eggert Sæmundur Rútsson, Hofteigur 8, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breyttri skráningartöflu og fasteignamerkingum í kjallara húss nr. 8 við Hofteig.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

21. Hyrjarhöfði 8 (04.060.304) 110599 Mál nr. BN037438
Húsabær ehf, Berjarima 43, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum þar sem fram koma áður gerð milliloft í öllum einingum og rými í kjallara af iðnaðarhúsnæðinu á lóðinni nr. 8 við Hyrjarhöfða.
Stærðir: Stækkun kjallari 54,7 ferm., 180,5 rúmm. milliloft í rými: 0101. 81,9 ferm., rými 0102. 18,7 ferm. og í rými 0103. 76,4 ferm. samtals stækkun milliloft 177,0 ferm.
Gjald kr. 6.800 + 12.274
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin öðlast gildi þegar gengið hefur verið frá greiðslu álagðra gjalda.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

22. Krókháls 5 (00.000.000) 111039 Mál nr. BN037524
Sótt er um leyfi til að breyta minnháttar innra fyrirkomulagi 2. hæðar í húseiningu merktri E og á 3. hæð í húseiningum merktum D og E áður innréttaðar rannsóknarstofur Íslenkrar erfðagreiningar nú almennt skrifstofurými í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 5 við Krókháls.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Lambasel 34 (04.998.509) 200780 Mál nr. BN037542
Sigurður Jónsson, Lambasel 34, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flísaklæða bílgeymslu að utan og minnháttar breytingu á innra skipulagi þannig að geymsla og þvottahús er sameinuð og snyrting felld niður í einbýlishúsinu á lóð nr. 34 við Lambasel.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Langholtsvegur 5 (01.355.004) 104317 Mál nr. BN037517
Víking ehf, Vagnhöfða 17, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta útloftun á þaki eins og fram kemur í byggingalýsingu miðað við nýlega samþykkt erindi mál BN033958 í þríbýlishúsinu á lóð nr. 5 við Langholtsveg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

25. Langholtsvegur 9 (01.355.002) 104315 Mál nr. BN037518
Víking ehf, Vagnhöfða 17, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta útloftun á þaki eins og fram kemur í byggingalýsingu miðað við nýlega samþykkt erindi mál BN02666 í þríbýlishúsinu á lóð nr. 9 við Langholtsveg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

26. Skúlagata 12 (00.000.000) 101021 Mál nr. BN037539
Jóhannes Nordal, Laugarásvegur 11, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja þakskála úr timbri og stáli, með klæðningu eins og núverandi bygging og rífa núverandi þakhýsi á þakgarði við íbúð 0302 á lóð nr. 15 við Vatnsstíg (Skúlagata 12)
Þakskáli eftir stækkun 37,9 ferm. og 104,0 rúmm. Stækkun 32,6 ferm. og 88 rúmm., niðurrif 5,3 ferm. og 16 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 6.424
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

27. Lækjarmelur 8 (34.533.503) 206643 Mál nr. BN037550
Suðursteinn ehf, Stórhöfða 15, 110 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir undirstöðum og plötu á lóðinni nr. 8 við Lækjarmel.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

28. Mánatún 1-17/Sóltún 1-3 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN036568
Íslenskir aðalverktakar hf, Pósthólf 221, 235 Keflavíkurflugvöllu
Sótt er um leyfi til þess að byggja sex til tíu hæða steinsteypt fjölbýlishús með áttatíu og níu íbúðum ásamt geymslukjallara á tveimur hæðum, allt einangrað að utan og klætt með steinflísum, álklæðningu, harðvið og zinkklæðningu, sem hús nr. 7- 17 við Mánatún sem 2. áfanga framkvæmda sbr. BN 33317 á lóð nr. 1-17 við Mánatún og 1-3 við Sóltún.
Brunahönnun Línuhönnunar dags. 10. júlí 2007, endurskoðuð 20. nóvember 2007 fylgir erindinu.
Stærð: Mánatún 7-17 (matshluti 02) neðrikjallari geymslur 535,7 ferm., kjallari geymslur 1589,5 ferm., íbúðir 1. hæð 1516,1 ferm., 2. og 3. hæð 1730,4 ferm. hvor hæð, 4.-6. hæð 1729,5 ferm. hver hæð, 7. hæð 842 ferm., 8. hæð 802,3 ferm., 9. hæð 261,9 ferm., 10. hæð 145,7 ferm., samtals 14342,5 ferm., 46915 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 3.190.220
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Norðurgrafarvegur 2 (34.535.101) 206616 Mál nr. BN037317
Blikksmiðjan Grettir ehf, Ármúla 19, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bygga iðnaðarhús á tveimur hæðum að hluta, með burðarvirki úr stáli klætt litaðri stálklæðningu á lóðinni nr. 2 við Norðurgrafarveg.
Stærðir: 1. hæð 1000,7 ferm., 2. hæð 79,4 ferm. Samtals 1080.1 ferm., 6960,1 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 473.286
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Ránargata 11 (01.136.203) 100539 Mál nr. BN037537
Stefán Cramer Hand, Ránargata 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka geymslubyggingu úr steinsteypu á baklóð hússins nr. 11 við Ránargötu.
Núverandi bakhús 14,5 ferm., stækkun 30,2 ferm., samtals 44,7 ferm., 133,9 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 9.775. mínus núverandi bygging
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

31. Sifjarbrunnur 26 (05.055.402) 206121 Mál nr. BN036832
Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Sporhamrar 6, 112 Reykjavík
Friðrik Kristinsson, Sporhamrar 6, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft, steinsteypt einbýlishús, klætt með steindum flísum og innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 26 við Sifjarbrunn.
Málinu fylgir bréf hönnuðar og samþykki lóðarhafa Sifjarbrunns 28 dags. 26. nóvember 2007.
Stærð: 1. hæð íbúð 126 ferm., 2. hæð íbúð 85,4 ferm., bílgeymsla 34,2 ferm.
Samtals 245,6 ferm. og 789,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 53.706
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Sjafnarbrunnur 11-19 (05.053.803) 206138 Mál nr. BN037345
VT Húsasmíðameistari ehf, Engjaseli 69, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fimm íbúða raðhús á tveimur hæðum múrhúðað og klætt timburklæðningu að hluta, íbúðirnar eru með innbyggðum bílgeymslum á neðri hæð.
Stærðir: 1. hæð 590,8 ferm, 2. hæð 520,4 ferm. samtals 1.111,2 ferm., 3.740,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 254.354
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Skútuvogur 1 (01.421.001) 105171 Mál nr. BN037455
Egilsson hf, Köllunarklettsvegi 10, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta 1. og 2. hæð fyrir skrifstofur og lager og breyta þrem gluggum í atvinnuhúsinu nr. 1 við Skútuvog.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda að breytingunum, staðfest af stjórn húsfélagsins.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Snorrabraut 29 (01.240.011) 102978 Mál nr. BN037348
Snorrabraut 29 ehf, Snorrabraut 29, 105 Reykjavík
Sótt er um að breyta innréttingum og starfsemi úr hárgreiðslustofu í kaffihús á 1. hæð (0102) og 2. hæð (0202) hússins nr. 29 við Snorrabraut.
Samþykki meðeigenda fylgir með.
Gjald kr. 6.800 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

35. Sporðagrunn 12 (01.350.203) 104131 Mál nr. BN037541
Höskuldur Ragnarsson, Sporðagrunn 12, 104 Reykjavík
Guðmundur G Símonarson, Sporðagrunn 12, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka neðri hæðina til vesturs undir svalagólf ásamt svalalokun á efri hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 12 við Sporðagrunn.
Meðfylgandi er samþykki meðeiganda dags. 3. janúar 2008.
Stærðir stækkunar íbúðar í kjallara 16,1 ferm., 48,3 rúmm.
Svalalokun íbúðar 1. hæðar 9,1 ferm., 21,0 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 5.059
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

36. Stóragerði 25 (01.804.002) 107724 Mál nr. BN037532
Hólmgeir Jónsson, Stóragerði 25, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta bílskúr í tvo eignarhluta við fjölbýlishúsið á lóðinni nr. 25 við Stóragerði.
Málinu fylgi samþykki meðlóðarhafa dags. 7. janúar 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

37. Tjarnargata 14 (01.141.304) 100908 Mál nr. BN037533
Kristrún Auður Viðarsdóttir, Efstasund 7, 104 Reykjavík
Marko Delic, Tjarnargata 14, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka hurðargat á 2. hæð fjölbýlishússins á lóðinni nr. 14 við Tjarnargötu.
Málinu fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28. desember 2007.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

38. Urðarbrunnur 102-104 (05.054.403) 205804 Mál nr. BN037385
Jóhannes Ragnar Jóhannesson, Drekakór 7, 203 Kópavogur
Róbert Edward Róbertsson, Þorláksgeisli 29, 113 Reykjavík
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir, Þorláksgeisli 29, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft, steinsteypt parhús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 102-104 við Urðarbrunn.
Samþykki lóðarhafa aðlægra lóða fylgir á teikningu.
Stærð húss nr. 102: 1. hæð íbúð 73,7 ferm., bílgeymsla 31,1 ferm., kjallari íbúð 94 ferm.
Hús nr. 104: Sömu stærðir.
Samtals 397,8 ferm., 1325,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 90.127
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

39. Urðarbrunnur 14 (05.056.204) 205777 Mál nr. BN037167
Halldóra Sif Gylfadóttir, Kristnibraut 89, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar einbýlishús á kjallara með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 14 við Urðarbrunn.
Málinu fylgir samþykki lóðarhafa Urðarbrunns 12 áritað á teikningar ódagsett.
Stærð: 1. hæð íbúð 95,7 ferm., bílgeymsla 34,2 ferm., kjallari íbúð 138 ferm.
Samtals 267,9 ferm., 1016,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 69.102
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Sérstök athygli er vakin á umsögn fulltrúa skipulagsstjóra.

40. Urðarbrunnur 58 (05.054.501) 205792 Mál nr. BN036833
Þórður Daníel Ólafsson, Lækjasmári 68, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft steinsteypt einbýlishús, klætt flísum og sedrusviði með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 58 við Urðarbrunn.
Stærð: 1. hæð íbúð 139 ferm., 2. hæð íbúð 92,6 ferm., bílgeymsla 40,3 ferm.
Samtals 271,9 ferm. og 871,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 59.269
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Vesturgata 54 (01.130.215) 100138 Mál nr. BN037286
Fasteignafél Suðurlandsb 22 ehf, Pósthólf 246, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breyta innra skipulagi og útliti, loka opum yfir í hús nr. 52 og innrétta þrjár íbúðir í atvinnuhúsinu á lóðinni nr. 54 við Vesturgötu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Enn vantar mæliblað.

42. Þjónustum./Esjurætur (34.16-.-99) 206450 Mál nr. BN037510
Pjetur Einar Árnason, Flyðrugrandi 12, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja þjónumiðstöð úr xxxxx á einni hæð við Mógilsá á Kjalarnesi.
Stærð: 479.2 ferm., 3386,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 247.185
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Ýmis mál

43. Brautarholt 8 (01.241.205) 103023 Mál nr. BN037546
Sótt er um leyfi til að ógilda samþykkt dags. 18. desember 2007 á teikningu dags. 15. júlí 2006 nr. 10-04 og unna af Pálma Guðmundsyni Arkitekt af annarri hæð hússins á lóð nr. 8 við Brautarholt.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Í staðinn gildir uppdráttur frá 20. nóvember 2007.

44. Rauðavatn Mál nr. BN037527
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborga, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Lögð fram beiðni Framkvæmdasviðs, dags. 4. janúar 2008, þar sem óskað er eftir því að eftirtaldar landspildur verði felldar úr skrám byggingarfulltrúa:
2. Gata v/Rauðavatn 20, landnr. 111668, stærð: 2.200 m2
Árbæjarblettur 5, landnr. 110970, stærð: 3.900 m2
Árbæjarblettur 6, landnr. 110971, stærð: 3.800 m2
Árbæjarblettur 10, landnr. 110975, stærð: 3.800 m2
Árbæjarblettur 11, landnr. 110976, stærð: 3.800 m2
Árbæjarblettur 12, landnr. 110977, stærð: 3.800 m2
Vesturlandsv. Hydrol, landnr. 108941, stærð: 20.000 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 1, landnr. 111631, stærð: 26.000 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 8, landnr. 111622, stærð: 2.400 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 12, landnr. 111624, stærð: 2.300 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 14, landnr. 111625, stærð: 3.100 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 16, landnr. 111626, stærð: 3.200 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 18, landnr. 111627, stærð: 2.300 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 19, landnr. 111609, stærð: 1.600 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 21, landnr. 111610, stærð: 1.700 m2
1. Gata v/ Rauðavatn 24, landnr. 111630, stærð: 1.900 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 9, landnr. 111638, stærð: 1.700 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 12, landnr. 111664, stærð: 2.900 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 13, landnr. 111640, stærð: 2.000 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 16, landnr. 111666, stærð: 2.900 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 19, landnr. 111643, stærð: 3.000 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 23, landnr. 111645, stærð: 2.300 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 27, landnr. 111647, stærð: 2.000 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 43, landnr. 111655, stærð: 2.600 m2
2. Gata v/ Rauðavatn 45, landnr. 111656, stærð: 2.600 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 1, landnr. 111672, stærð: 1.8000 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 2, landnr. 111682, stærð: 2.100 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 3, landnr. 111673, stærð: 2.000 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 5, landnr. 111674, stærð: 1.800 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 10, landnr. 111686, stærð: 3.000 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 13, landnr. 111678, stærð: 2.000 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 14, landnr. 111688, stærð: 2.700 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 15, landnr. 111679, stærð: 2.000 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 16, landnr. 111689, stærð: 2.800 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 17, landnr. 111680, stærð: 3.100 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 18, landnr. 111690, stærð: 2.700 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 19, landnr. 111681, stærð: 2.500 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 20, landnr. 111691, stærð: 3.000 m2
3. Gata v/ Rauðavatn 22, landnr. 111692, stærð: 2.100 m2
4. Gata v/ Rauðavatn 5, landnr. 111695, stærð: 2.300 m2
5. Gata v/ Rauðavatn 3, landnr. 111701, stærð: 2.000 m2
5. Gata v/ Rauðavatn 4, landnr. 111703, stærð: 1.900 m2
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

45. Vættaborgir 84-96 (02.342.601) 175881 Mál nr. BN037548
Ágúst Á. Þórhallsson, Vættaborgir 88, 112 Reykjavík
Vignir Þorsteinsson, Vættaborgir 84, 112 Reykjavík
Eiríkur Hallgrímsson, Vættaborgir 84, 112 Reykjavík
Skúli Bjarnason, Vættaborgir 86, 112 Reykjavík
Sigurður Ágúst Haraldsson, Vættaborgir 86, 112 Reykjavík
Ágúst Á. Þórhallsson, Vættaborgir 88, 112 Reykjavík
Rakel Þórey Gísladóttir, Vættaborgir 88, 112 Reykjavík
Davíð Aron Guðnason, Vættaborgir 90, 112 Reykjavík
Einar Sigurður Einarsson, Vættaborgir 90, 112 Reykjavík
Valgerður G Aðalsteinsdóttir, Vættaborgir 92, 112 Reykjavík
Lóa Helgadóttir, Vættaborgir 92, 112 Reykjavík
Herdís Rán Magnúsdóttir, Logafold 100, 112 Reykjavík
Þorsteinn Yngvi Guðmundsson, Logafold 100, 112 Reykjavík
Viðar Þorláksson, Berjarimi 49, 112 Reykjavík
Sigmar Björnsson, Vættaborgir 96, 112 Reykjavík
Hrefna Guðrún Sigmarsdóttir, Húsafell 1, 320 Reykholt
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa fyrir stækkun lóðar í suður.
Tillaga að breytingu lóðarmarka.
Lóðin er 3339 ferm. Bætt við lóðina úr óútvísuðu landi 199 ferm. Leiðrétting vegna fermetrabrota -1 ferm.
Lóðin verður 3537 ferm.
Samþykkt í skipulagsráði 12.12. 2007.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

46. Almannadalur 17-23 (05.865.301) 208505 Mál nr. BN037528
Bjarni Jónsson, Funafold 81, 112 Reykjavík
Spurt er hvort breyta megi gaflgluggum í einingu 0103 í húsi nr. 17 í Almannadal
Jákvætt.
Að uppfylltu skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem samþykki allra meðeigenda fylgir.

47. Efstasund 67 (01.410.112) 104995 Mál nr. BN037472
Ragnar Björnsson, Efstasund 67, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að hækka þak sambærilegt og gert hefur verið við hús nr. 75 við Efstasund á tvíbýlishúsinu á lóðinni nr. 67 við Efstasund.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði enda verði sótt um byggingarleyfi

48. Efstasund 67 (01.410.112) 104995 Mál nr. BN037474
Ragnar Björnsson, Efstasund 67, 104 Reykjavík
Spurt er hvor leyft yrði að byggja bílskúr, og þá hversu háan og úr hvaða efni á lóð nr. 67 við Efstasund.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði enda verði sótt um byggingarleyfi.

49. Flókagata 69 (01.270.019) 103562 Mál nr. BN037526
Sylvía Heiður La Voque, Flókagata 69, 105 Reykjavík
Spurt er hvort stækka megi kvisti, fjölga þeim og bæta við svölum á fjölbýlishúsi nr. 69 við Flókagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

50. Kaplaskjólsvegur27-35 (01.525.005) 106062 Mál nr. BN037505
Helgi Marinó Þórðarson, Kjartansgata 9, 105 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fyrir áður gerðri íbúð í kjallara fjölbýlishússins nr. 31 sambærilegt og samþykki íbúðar í kjallara sama húss nr. 29 frá árinu 2004 á lóð nr. 27-35 við Kaplaskjólsveg.
Virðingargjörð dags. 15. ágúst 1964 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 20. desember 2007 fylgja erindinu.
Nei.
Lofthæð of lítil. Ekki er um sambærilegt mál að ræða við íbúð í kjallara húss nr. 29 þar sem lofthæð er mun meiri og yfir lágmarki sbr. ákvæði byggingarreglugerðar.

51. Kelduland 1-21 (01.861.002) 108794 Mál nr. BN037530
Agnar Bragi Bragason, Grettisgata 34, 101 Reykjavík
Spurt er hvort nota megi teikningar og samþykki nágranna fyrir sams konar aðgerð í næsta stigagangi fyrir nýrri hurð úr stofu út í garð á 1. hæð fjölbýlishússins nr. 21 við Kelduland.
Neikvætt.
Með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

52. Köllunarklettsvegur 4 (01.329.702) 180644 Mál nr. BN037462
Doma ehf, Vagnhöfða 7, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir gistiheimili eða íbúðum samanber bréf fyrirspyrjanda dags. 5. desember 2007 í einingu 0201 matshluta 01 á lóðinni nr. 4 við Köllunarklettsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. janúar s.l. fylgir erindinu.
Nei.
Er ekki í samræmi við ákvæði aðalskipulags Reykjavíkur eða deiliskipulags

53. Lambhagavegur 2-4 (02.643.101) 210781 Mál nr. BN037553
Lambhagavegur fasteignaféla ehf, Pósthólf 670, 121 Reykjavík
Gísli Hansen Guðmundsson, Digranesheiði 26, 200 Kópavogur
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir skilti til að merkja lóð og framkvæmd rétt utan lóðamarka lóðarinnar nr. 2-4 við Lambhagaveg.
Frestað.
Vísað til skipulagsráðs.

54. Lambhagavegur 2-4 (02.643.101) 210781 Mál nr. BN037554
Lambhagavegur fasteignaféla ehf, Pósthólf 670, 121 Reykjavík
Gísli Hansen Guðmundsson, Digranesheiði 26, 200 Kópavogur
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir vinnubúðum utan lóðar vegna framkvæmda eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af lóðinni nr. 2-4 við Lambhagaveg.
Frestað.
Vísað til skipulagsráðs.

55. Laugavegur 84 (01.174.302) 101638 Mál nr. BN037508
Arnar Moubarak, Skeggjagata 16, 105 Reykjavík
Spurt er hvort stækka megi 1. hæð, setja nýjan stiga milli 1. og 2. hæðar, breyta íbúðum á 2. og 3. hæð í tvær á hvorri hæð, breyta íbúð á 4. hæð og setja nýjar svalir á 3. og 4. hæð. Færa sorptunnur.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

56. Miðtún 52 (01.235.008) 102931 Mál nr. BN037523
Ásdís Rut Guðmundsdóttir, Hraunbær 156, 110 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi kvisti á og hækka örlítið þak á
fjölbýlishúsinu á á lóð nr. 52 við Miðtún.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

57. Rjúpufell 42-48 (04.685.401) 112334 Mál nr. BN037519
Egill Hilmar Jónasson, Rjúpufell 48, 111 Reykjavík
Spurt er hvort fjarlægja megi stofuglugga og opna út á svalir í fjölbýlishúsi nr. 48 við Rjúpufell.
Nei.
Er ekki í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um svlalokanir sbr. einnig athugasemdir á fyrirspurnarblaði.

58. Unufell 21-35 (04.683.401) 112315 Mál nr. BN037520
Sigríður Ragna Hilmarsdóttir, Unufell 31, 111 Reykjavík
Spurt er hvort fjarlægja megi gler úr stofuglugga og svalahurð, þar sem búið er að klæða og yfirbyggja svalir á fjölbýlishúsi nr. 21 - 35 við Unufell
Nei.
Er ekki í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um svlalokanir, sbr. einnig athugasemdir á fyrirspurnarblaði.

59. Urðarbrunnur 120-128 205804 Mál nr. BN037536
Hafsteinn Þór Hafsteinsson, Straumsalir 2, 201 Kópavogur
Steinn Guðmundsson, Kristnibraut 77, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að fara lítillega út fyrir byggingareit eins og sýnt er á meðfylgjandi skissum af parhúsinu á lóðinni nr. 120-122 við Urðarbrunn.
Jákvætt.
Enda liggi fyrir upplýst samþykki lóðarhafa aðlægrar lóða.

60. Urðarbrunnur 128 (05.054.201) 205806 Mál nr. BN037450
Eyvindur Ívar Guðmundsson, Vesturberg 118, 111 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja einbýli á tveimur hæðum samkvæmt meðfylgandi skissum á lóðinni nr. 128 við Urðarbrunn. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. janúar s.l. fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrður enda liggi fyrir upplýst samþykki lóðarhafa nr. 124 -126 við Urðarbrunn.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 12:15.

Magnús Sædal Svavarsson
Sigrún Reynisdóttir Þórður Búason
Bjarni Þór Jónsson Jón Magnús Halldórsson
Björn Kristleifsson Eva Geirsdóttir