Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2013, mánudaginn 3. júní 2013 kl. 09:08, var haldinn 20. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Kristín Soffía Jónsdóttir, Sóley Tómasdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson og Gísli Marteinn Baldursson.
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Björn Axelsson, Ólafur Bjarnason, Haraldur Sigurðsson, Marta Grettisdóttir og Helena Stefánsdóttir.
Fundarritari var Örn Sigurðsson

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 Mál nr. SN110200
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík

Lögð fram drög að tillögu að aðalskipulagi Reykjavíkur dags. í apríl 2013 samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum (Þéttbýlisuppdráttur og Kjalarnes) og greinargerð, ( Borgin við Sundin, Skapandi borg, Vistvænni samgöngur, Græna borgin, Borg fyrir fólk, Miðborgin, Landnotkunarákvæði, Inngangur) ásamt umhverfisskýrslu og öðrum fylgigögnum. Einnig er lögð fram umsögn Siglingastofnunar dags. 8. maí 2013, umsögn Kópavogsbæjar dags. 10. maí 2013, bréf skipulagsstofnunar dags. 22. maí 2013 og umsögn sveitarfélagsins Ölfuss dags. 30. maí 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir og ábendingar: Landsnet hf. dags. 21. maí 2013, stjórn Miðborgarinnar okkar dags. 29. maí 2013, Samtök ferðaþjónustunnar, dags. 30. maí 2013, Hollvinasamtök Elliðaárdalsins, dags. 30. maí 2013, Isavia, dags. 30. maí 2013, Samtök um betri byggð, dags. 29. maí 2013, Landsnet hf., dags. 21. maí 2013, sveitarfélagið Ölfus, dags. 30. maí 2013, heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 31. maí 2013. Jafnframt er lagður fram listi yfir breytingar/viðbætur við fyrirliggjandi tillögu - efnislegar breytingar og aðrar lagfæringar dags. 3. júní 2013, kort sem sýnir afmörkun götusvæða í miðborginni, til útreiknings á kvótum við skilgreindar götuhliðar, sbr. ákvæði miðborgarstefnu, minnisblað frá Minjasafni Reykjavíkur um flokkun verndarsvæði, varðandi framfylgd Borgarverndarstefnu og samantekt á athugasemdum eftir íbúafundi vorið 2012.

Hjálmar Sveinsson tók sæti á fundinum kl. 9:40 og Hildur Sverrisdóttir tók sæti á fundinum kl. 10:15.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 (apríl 2013, að viðbættum framlögðum breytingum og lagfæringum) sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 - ásamt umhverfisskýrslu sbr. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, verði send Skipulagsstofnun til athugunar og í kjölfar þess auglýst.
Vísað til borgarráðs.

Tillagan var samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson sat hjá.

Umhverfis- og skipulagsráð bókuðu: Endurskoðun aðalskipulags hófst árið 2006 og hefur verið unnið í tíð margra meirihluta í borgarstjórn. Umhverfis- og skipulagsráð vill þakka kjörnum fulltrúum og starfsfólki umhverfis og skipulagssviðs sem hefur unnið að endurskoðuninni fyrir metnaðarfull og fagleg vinnubrögð.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11:17

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð

Páll Hjalti Hjaltason

Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman

Karl Sigurðsson Kristín Soffía Jónsdóttir

Sóley Tómasdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson

Gísli Marteinn Baldursson Hildur Sverrisdóttir