Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 69

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2014, miðvikudaginn 4. júní kl. 09:15 var haldinn 69. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Kristín Soffía Jónsdóttir, Torfi Hjartarson, Júlíus Vífill Ingvarsson og Óttarr Guðlaugsson.  Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn:  Björn Axelsson, Ólafur Bjarnason, Harri Ormarsson Magnús Ingi Erlendsson og Marta Grettisdóttir. Fundarritari var Örn Sigurðsson

Þetta gerðist:

(E) Umhverfis- og samgöngumál

1. Sorpa bs., fundargerðir Mál nr. US130002

Lögð fram fundargerð Sorpu bs. nr. 336 frá 26. maí 2014. 

2. Almenningssamgöngur, stefna í almenningssamgöngum Mál nr. US140110

Lagt fram bréf borgarráðs dags. 23. maí 2014 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagsráðs um stefnumörkum í almenningssamgöngustefnu Reykjavíkur. Einnig er lögð fram skýrsla starfshóps um stefnumörkun í almenningssamgöngum í Reykjavík.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs. 

(A) Skipulagsmál

3. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070

Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 23. maí 2014 og 2. júní 2014.

4. Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10 (01.11) Mál nr. SN130479

Á fundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2014 var lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags 7. maí 2014 ásamt lagfærðum uppdrætti dags. 11. desember 2013 síðast breyttur 30. apríl 2014. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2014.

Samþykkt.

Vísað til borgarráðs. 

5. Tryggvagata 13, breyting á deiliskipulagi (01.117.4) Mál nr. SN130099

Lagður fram uppdráttur Arkþings, dags. 23. maí 2014 vegna Tryggvagötu 13 þar sem stærðartölur eru leiðréttar.

Samþykkt. 

Vísað til borgarráðs. 

(B) Byggingarmál

6. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423

Fylgiskjöl með fundargerð þessari eru fundargerð nr. 780 frá 27. maí 2014 og nr. 781 frá 3. júní 2014.  

(C) Ýmis mál

7. Útilistaverk, Laugardalshöll Mál nr. SN140222

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Á fundi skipulagsfulltrúa 2. maí 2014 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 29. apríl 2014 þar sem erindi skrifstofu eigna og atvinnuþróunar varðandi uppsetningu listaverks á Laugardalshöll er vísað er til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs. Einnig eru lagðir fram uppdr. T.ark dags. í mars 2014. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa 7. maí 2014. 

Umhverfis- og skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við uppsetningu listaverks á framhlið Laugardalshallarinnar. 

8. Betri Reykjavík, skógrækt í Fossvogsdal Mál nr. US140095

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lögð fram önnur efsta hugmynd aprílmánaðar úr flokknum umhverfismál "skógrækt í Fossvogsdal" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. apríl 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8. maí 2014. 

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8. maí 2014 samþykkt. 

9. Betri Reykjavík, hjólaskautahöll í Reykjavík Mál nr. US140026

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lögð fram efsta hugmynd janúarmánaðar úr flokknum skipulagsmál "hjólaskautahöll í Reykjavík" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2014.

Frestað 

10. Almannadalur, kæra 43/2014 (05.8) Mál nr. SN140260

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 22. maí 2014 ásamt kæru, dags. 21. maí 2014 þar sem kærð er málsmeðferð og synjun skráningu lögheimilis á efri hæðum hesthúsa í Almannadal.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.

11. Arnargata 10, kæra 45/2014, umsögn (01.553.2) Mál nr. SN140272

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 28. maí 2014 ásamt kæru, dags. 28. maí 2014, þar sem kært er byggingarleyfi fyrir  viðbyggingu við Arnargötu 10. Í kærunni er gerð krafa um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 1. júní 2014.

12. Bugðulækur 17, kæra 36/2014, umsögn (01.343.3) Mál nr. SN140252

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 2. maí 2014 ásamt kæru, dags. 30. apríl 2014 vegna samþykktar byggingarfulltrúa á leyfi til að endurnýja umsókn um óleyfishandrið á lóð nr. 17 við Bugðulæk. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 20. maí 2014.

13. Gufunes, framtíðaruppbygging (02.2) Mál nr. SN140238

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 15. maí 2014 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á minnisblaði stýrishóps um framtíðaruppbyggingu Gufunessvæðis.

14. Kambavað 5, breyting á deiliskipulagi (04.733.6) Mál nr. SN140185

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 15. maí 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á  breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna lóðarinnar Kambavað 5.

15. Sundahöfn, breyting á deiliskipulagi (01.332) Mál nr. SN130525

Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. maí 2014 um samþykkt borgarráðs dags. 15. maí 2014 um breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða í Sundahöfn.

16. Verklagsreglur vegna auglýsinga á breytingu á deiliskipulagi, Mál nr. US140111

Lögð fram eftirfarandi  tillaga umhverfis- og skipulagsráðs:

Þegar þétta á byggð í grónum hverfum er mikilvægt að borgarbúar séu vel upplýstir um fyrirhuguð uppbyggingaráform, tilgang þeirra og forsögu. Lagt er því til að sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs verði falið að gera tillögu að verklagi eða innleiðingaráætlun fyrir það hvernig kynna á slík áform fyrir íbúum umfram skyldu laganna.

Vísað til sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 10 40

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð 

Páll Hjalti Hjaltason

Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman 

Karl Sigurðsson Kristín Soffía Jónsdóttir 

Torfi Hjartarson Júlíus Vífill Ingvarsson 

Óttarr Guðlaugsson 

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2014, þriðjudaginn 3. júní kl. 10:30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 781. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Sigrún Reynisdóttir, Harri Ormarsson, Björn Stefán Hallsson, Eva Geirsdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Björn Kristleifsson og Óskar Torfi Þorvaldsson. Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 7 (01.140.415) 100856 Mál nr. BN047437

Lindarvatn ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurbæta og byggja við friðuð hús við Aðal- og Vallarstræti skv. deiliskipulagi sem samþykkt var í júlí 2013 fyrir íbúðir og þjónustustarfsemi, framkvæmd þessi er fyrsti hluti uppbyggingar á Landsímareit á lóð nr. 7 við Aðalstræti.

Meðfylgjandi er bréf verkfræðings dags. 28. mars 2014, útreikningur á varmatapi dags. 25. mars 2014, greinargerð um stærðarbreytingar dags. 29.apríl 2014, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. maí 2014, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 24. maí 2014 og greinargerð vegna bílastæða dags. 26. maí 2014 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. apríl 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2014.

Viðbygging 734,3 ferm., 2.374,4 rúmm.

Stækkun samtals 743,8 ferm., 2.374,4 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

2. Austurbakki 2 (01.119.801) 209357 Mál nr. BN047626

Harpa tónlistar- og ráðste ohf., Austurbakka 2, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta fjölnotarými í kjallara K2 og K1, WE/W10-W12, mhl. 01, fyrir 120 gesti í Hörpu tónlistarhúsi á lóð nr. 2 við Austurbakka.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 29. apríl 2014 og annað dags. 16. maí 2014.

Gjald kr. 9.500 + 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Ármúli 13 (01.263.103) 186269 Mál nr. BN047332

LF2 ehf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta brunaskilum í anddyri á 1. hæð húss á lóð nr. 13 við Ármúla.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Ármúli 9 (01.263.001) 103518 Mál nr. BN047780

Hótel Ísland ehf., Holtsbúð 87, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að innrétta heilsumiðstöð þar sem fyrirhugað er að reka margþætta starfsemi á sviði heilsuverndar, endurhæfingar og skurðstofur í  húsi á lóð nr. 9 við Ármúla.

Skýrsla brunahönnuðar dags. 27. maí 2014 fylgir.

Stækkun: XX ferm., XX rúmm. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bíldshöfði 14 (04.064.102) 110670 Mál nr. BN047768

Þorp ehf, Bolholti 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi og færa leiksvæði barna í veitingahúsi í flokki II á fyrstu hæð hússins á lóð nr. 14 við Bíldshöfða.

Sjá erindi BN044509.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bíldshöfði 5A (04.055.603) 110561 Mál nr. BN047736

Brimborg ehf., Bíldshöfða 6, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á neyðarlýsingu og og smávægilegum breytingum á afgreiðslu, sjá erindi BN034282, vegna lokaúttektar á húsi á lóð nr. 5a við Bíldshöfða.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

7. Bíldshöfði 9 (04.062.001) 110629 Mál nr. BN047770

Reginn hf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

N1 hf., Dalvegi 10-14, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að koma fyrir nýjum inngangi með skyggni yfir á norðurhlið 1. hæðar á mhl. 04, koma fyrir verslun á 1. hæð og breyta innra fyrirkomulagi á 2. hæð, koma fyrir skilti  á norðvesturhluta lóðar og breyta rýmisnúmerum á 1. og 2. hæð í húsi nr. 2 við Dvergshöfða á lóð nr. 9 við Bíldshöfða.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Brautarholt 4 (01.241.203) 103021 Mál nr. BN047322

Dalfoss ehf, Sóleyjargötu 31, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til þess að byggja flóttastiga á bakhlið (suðurhlið) og innrétta gistiheimili í hluta annarrar hæðar í matshluta 02 á lóð nr. 4 við Brautarholt.

Erindi fylgir samþykki meðeiganda vegna reksturs gistiheimilis og staðsetningu brunastiga dags. 23. maí 2014.

Gjald kr. 9.500 + 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

9. Brekkustígur 10 (01.134.307) 100356 Mál nr. BN047645

Fannar Ólafsson, Brekkustígur 10, 101 Reykjavík

Margrét Unnur Sigtryggsdóttir, Brekkustígur 10, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka mæni og bæta við kvistum á íbúðarhús á lóð nr. 10 við Brekkustíg.

Stækkun: xx ferm., xx rúmm.

Gjald 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

10. Bæjarflöt 1-3 (02.576.001) 172493 Mál nr. BN047779

Bæjarflöt 4 ehf., Laugateigi 14, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjarlægja brunavarnavegg þannig að lager og þjálfunarsvæði verður í sama brunahólfi í húsinu á lóð nr. 1-3 við Bæjarflöt.  Sbr. erindið BN040502

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Dugguvogur 1B (01.452.305) 190750 Mál nr. BN047785

DENGSI ehf, Aðallandi 2, 108 Reykjavík

Dugguvogur ehf., Dugguvogi 1b, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurbyggja efri hæð suður eftir bruna þann 30.1. 2014 í sömu mynd og skv. gildandi teikningum atvinnuhúsið á lóð nr. 1B við Dugguvog.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Esjumelur 13-19 (34.534.101) 197699 Mál nr. BN047668

Bygg Ben ehf., Vesturlbr Fífilbrekku, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til 24 mánaða fyrir 2 metra hárri girðingu utan um geymslusvæði innan byggingarreits á lóð nr. 13-19 við Esjumela.

Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 27.5. 2014.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

13. Faxaskjól 26 (01.532.112) 106189 Mál nr. BN047518

Guðmundur Steingrímsson, Faxaskjól 26, 107 Reykjavík

Alexía Björg Jóhannesdóttir, Faxaskjól 26, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja kvist á vesturhlið, lengja kvist á austurhlið, byggja svalir á suður- og vesturhlið, nýjan inngang á norðurhlið, einangra og klæða að utan með timbri og breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 26 við Faxaskjól.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. maí 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2014.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málið er í grenndarkynningu.

14. Frakkastígur 5 (01.153.217) 101113 Mál nr. BN047774

Birgir Elfar Hraunfjörð, Grettisgata 56b, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna eignaskiptalýsingu af húsinu á lóð nr. 5 við Frakkastíg. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Frakkastígur 6A (01.152.513) 101085 Mál nr. BN047585

Landslagnir ehf., Lautarvegi 30, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða steinsteypta viðbyggingu í sundi norðan húss og innrétta gististað með 11 gistieiningum í flokki II á lóð nr. 6A við Frakkastíg.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 15. maí 2014.

Stækkun:  77,3 ferm., 263,5 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Frakkastígur 8 (01.172.109) 101446 Mál nr. BN047643

Blómaþing ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 1. og  2. áfanga nýbygginga á svokölluðum Frakkastígsreit, Hverfisgötu 58-60, mhl. 02, steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús með fimmtán íbúðum á efri hæðum, verslun og þjónustu á jarðhæð og bílakjallara og mhl. 03, Laugavegur 41A, fjögurra hæða fjölbýlishús með átta íbúðum á sameinaðri lóð nr. 8 við Frakkastíg.

Meðfylgjandi er greinargerð um algilda hönnun dags. 5. maí 2014, orkurammi dags. 1. maí 2014, umsögn Minjastofnunar dags. 8. maí 2013, greinargerð hönnuðar um skipulagsskilmála dags. 20. og 27. maí 2014 og bílastæðabókhald, ódagsett.

Stærð mhl.02:  3.027,3 ferm., 9.522,5 rúmm.

Stærð mhl.03:  959,5 ferm., 3.107,9

Samtals:  3.986,8 ferm., 12.630,4

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Fríkirkjuvegur 7 (01.183.415) 101975 Mál nr. BN047758

Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir nýrri brunahönnun og uppsetningu handriða við loftstokka á suðurhlið höggmyndatorgs Listasafns Íslands á lóð nr. 7 við Fríkirkjuveg.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Gerðarbrunnur 24-26 (05.056.405) 206056 Mál nr. BN047298

Gylfi Már Jónsson, Kristnibraut 87, 113 Reykjavík

Hrafn Ómar Gylfason, Kristnibraut 87, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja stoðvegg á lóðarmörkum að Úlfarsbraut, sjá erindi BN037555, og hækka um 45 cm lóðarveggi austan og vestan parhúss á lóð nr. 24-26 við Gerðarbrunn.

Umsögn skrifstofu rekstur- og umhirðu dags. 8. maí 2014, bréf frá eigendum ódagsett og samþykki á teikningu frá eiganda Gerðarbrunns 22 fylgir erindinu.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Grandagarður 8 (01.115.101) 100046 Mál nr. BN047704

Víkin - Sjóminjasafn í Re ses., Grandagarði 8, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á breytingum innanhúss, sjá erindi BN045353, sem fjallar um stiga milli 1. og 2. hæðar, lagfæra brunamerkingar, innrétta skrifstofu í vesturenda, færa kaffistofu á 2. hæð og falla frá breytingum á eldhúsi, veitinga/kaffisal og snyrtingum á 1. hæð sjóminjasafns á lóð nr. 8 við Grandagarð.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Grensásvegur 24 (01.801.214) 107635 Mál nr. BN047179

Samasem ehf, Grensásvegi 22-24, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi BN046421, breytingar felast í að innrétta aðstöðu fyrir starfsfólk í kjallara, innrétta stærri móttöku og setustofu á 1. hæð og færa handlaugar á 2. hæð í gistiheimili á lóð nr. 24 við Grensásveg.

Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 14.4. 2014 og greinargerð burðarvirkishönnuðar dags. 28.2. 2014.

Gjald kr. 9.500 + 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

21. Guðrúnartún 8 (01.216.303) 102760 Mál nr. BN047778

SRE-S10 ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi á lóð atvinnuhúsa á lóð nr. 8 við Guðrúnartún.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Háaleitisbraut 68 (01.727.301) 107329 Mál nr. BN047347

Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi á að breyta innréttingum í kjallara og fyrir áður gerðum breytingum á 2. hæð í húsinu á lóð nr. 68 við Háaleitisbraut.

Bréf frá hönnuði dags. 10. mars 2014 fylgir erindi. 

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

23. Hraunbær 102 (04.343.301) 111081 Mál nr. BN047748

Hraunbær 102 b,c,d,e,húsfélag, Hraunbæ 102c, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að klæða með báruálklæðningu suðurhlið og austurgafl, framlengja þak yfir svalir á efstu hæð og endurnýja handrið á svölum í húsinu á lóð nr. 102 B,C,d og E við Hraunbæ.

Umsögn burðarvirkishönnuðar um ástand veggja dags. 15. mars 2013 og fundargerð frá húsfélagsfundi dags. 3. apríl 2014 fylgir. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Hverfisgata 54 (01.172.102) 101440 Mál nr. BN047642

Vatn og land I ehf, Pósthólf 8033, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta flóttaleiðum og brunamerkingum á 2.hæð, felld er út björgunarleið um bakhús á lóðinni Laugavegur 41A og hún færð inn í húsið á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.

Bréf frá hönnuði dags. 5. maí 2014 og samþykki eiganda dags. 15. maí 2014  fylgir erindi.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

25. Hverfisgata 54 (01.172.102) 101440 Mál nr. BN047674

Knútur Bruun, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga innréttingum í íbúð á fjórðu hæð og sett hurð af stigapalli út á svalir í húsi á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.

Meðfylgjandi er samþykki sumra meðeigenda og bréf umsækjanda dags. 2.6. 2014.

Gjald kr. 9.500

Frestað.Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Hverfisgata 56 (01.172.103) 101441 Mál nr. BN047470

Byggingafélagið Landsbyggð ehf, Vatnsendabletti 721, 203 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. og 3. hæð á norðurhlið og innrétta gistiheimili á 2. hæð húss á lóð nr. 56 við Hverfisgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. apríl 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl 2014.

Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Höfðabakki 9 (04.075.001) 110681 Mál nr. BN047514

Reitir II ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta skóla á 2. hæð í  mhl. 04 og koma fyrir lyftu frá 1.hæð upp á 2. hæð og fjarlægja stiga úr tengiálmu sem liggur á milli 1. og 2. hæðar í húsinu á lóð nr. 9 við Höfðabakka.

Stækkun vegna lokunar stigagats : 13,5 ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Karfavogur 25 (01.441.211) 105452 Mál nr. BN047767

Daði Hannesson, Karfavogur 25, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, sjá BN045970, og lengja kvist á einbýlishúsi á lóð nr. 25 við Karfavog.

Stækkun 12,4 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Laufásvegur 20 (01.183.407) 101967 Mál nr. BN047775

Dieter Roger Debruyn, Belgía, Sótt er um leyfi til að setja átta þakglugga á vesturhlið og svalahurð til að koma fyrir frönskum svölum á rishæð hússins á lóð nr. 20 við Laufásveg.

Umsögn Minjastofnun Íslands dags. 31 maí 2014

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Laugavegur 77 (01.174.021) 101569 Mál nr. BN047733

L77 ehf., Klapparstíg 29, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindið BN046944 18. febrúar 2014 þannig að innra skipulagi er breytt  á 3. hæð, sameiginleg flóttaleið breytist og rýmisnúmerum verður breytt á 2. hæð og geymsla minnkuð í húsinu á lóð nr. 77 við Laugaveg.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Lin29-33Vat13-21Skú12 (01.152.204) 101021 Mál nr. BN047782

L37 ehf., Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að samnýta tímabundið íbúðir á tveim efstu hæðunum, 1001 og 1101, gera stiga á milli hæða, byggja milliloft með hringstiga og koma fyrir heitum potti, saunu og léttbyggðu skyggni á þakgarði efstu hæðar, sbr. samþykkt húsfélags í húsi nr. 17 við Lindargötu, mhl. 13, í fjölbýlishúsi á lóð nr. 14-16 við Skúlagötu. 

Meðfylgjandi er eldvarnaskýrsla Eflu dags. í maí 2014 og samþykktir fyrir húsfélag 101 Skuggahverfi 2-3.

Stækkun xx ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Lindargata 28 (01.152.410) 101056 Mál nr. BN047355

Laugadepla ehf., Bæjarlind 14-16, 203 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús með 21 íbúð, þrjár hæðir, kjallari og ris ásamt bakhúsi, mhl. 02, sem í eru fjórar vinnustofur í eigu íbúða í mhl. 01 á lóð nr. 28-32 við Lindargötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. mars 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2013.

Mhl. 01:  Kjallari 281,6 ferm., 1. hæð 326,8 ferm., 2. hæð 362,2 ferm., 3. hæð 362,2 ferm., 4. hæð 287,4 ferm.

Mhl. 01 samtals:  1.620,2 ferm., 5.047 rúmm.

Mhl. 02:  189,4 ferm., 698,5 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Lindargata 28 (01.152.410) 101056 Mál nr. BN047791

Laugadepla ehf., Bæjarlind 14-16, 203 Kópavogur

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir aðstöðusköpun og jarðvinnu að Lindargötu 28-32 samhliða samþykkt á erindi númer BN047355. 

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Lóuhólar 2-6 (04.642.701) 111914 Mál nr. BN047769

Reginn atvinnuhúsnæði ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að koma fyrir stiga fyrir starfsfólk milli rýma 0116 og 0201 sem þjóni auk þess sem flóttaleið fyrir starfsfólk í stað núverandi lúgu í veitingastað í flokki III í húsinu á lóð  nr. 2-6 við Lóuhóla 

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

35. Lækjargata 5 (01.180.001) 101665 Mál nr. BN047781

Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að gera á ný útidyr að Bókhlöðustíg, breyta gangstétt fyrir utan, færa aðstöðu bókasafns, lestrarsalar, bókavarðar og bæta salernisaðstöðu fyrir fatlaða, bæta við hringstiga og fjölga flóttaleiðum þar með í tvær, lagfæra klæðningar og glerja að nýju steypujárnsglugga með opnanlegum fögum og endurnýja þak með skífum á Íþöku, Bókhlöðu Menntaskólans í Reykjavík á lóð nr. 5 við Lækjargötu.

Meðfylgjandi er umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 10. maí 2014 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. maí 2014.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Vísað til umsagnar samgöngustjóra.

36. Mávahlíð 8 (01.702.204) 107048 Mál nr. BN047784

Sigurjón Bjarnason, Fellsmúli 1, 851 Hella

Sótt er um leyfi til að innrétta íbúðarrými og eldhús og byggja kvisti á norður- og suðurhlið til samræmis við kvisti á vestari helming parhúss á lóð nr. 8 við Mávahlíð.

Erindi fylgir samþykki eins meðlóðarhafa dags. 25. maí 2014 og bréf umsækjenda dags. 26. maí 2014.

Stækkun:  10,2 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

37. Melhagi 20-22 (01.542.014) 106368 Mál nr. BN047702

Lyf og heilsa hf., Síðumúla 20, 108 Reykjavík

Faxar ehf., Síðumúla 20, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í norðurhluta 1. hæðar, innrétta lyfjaverslun og útbúa nýjan inngang frá Hofsvallagötu í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 20-22 við Melhaga.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda í matshluta 01 dags. 19. maí 2014.

Jafnframt er erindi BN047202 dregið til baka.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Miklabraut 70 (01.710.002) 107117 Mál nr. BN047756

HAG Fasteignir ehf., Ferjuvaði 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka kvisti á norður- og suðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 70 við Miklubraut.

Stærðir stækkun: xx ferm. brúttó.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Mýrargata 26 (01.115.303) 100059 Mál nr. BN047742

Byggakur ehf., Klettatröð 1, 235 Keflavíkurflugvöllu

Sótt er um leyfi fyrir minniháttar breytingum á sniðum og grunnmyndum, sbr. erindi BN035993 samþ. 22. maí 2007,  fjölbýlishúss á lóð nr. 26 við Mýrargötu.

Meðfylgjandi er A3 sett af teikningum sem sýna húsið fyrir breytingar og þær merktar inn. 

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Njálsgata 12 (01.182.211) 101863 Mál nr. BN047762

Lilja Guðrún Jóhannsdóttir, Njálsgata 12, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka þak og byggja tvo kvisti á fjölbýlishús á lóð nr. 12 við Njálsgötu.

Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 12. apríl 2014.

Stækkun:  44,5 ferm., 52 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til  skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu Vísað er til uppdráttar nr. A01-02 dags. 11. apríl 2014.

41. Norðlingaholt Mál nr. BN047776

Vegagerðin, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 70 metra langa, steinsteypta göngu- og hjólabrú yfir Breiðholtsbraut milli Árbæjar og Norðlingaholts , staðgreinir 4724.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Ofanleiti 2 (01.743.101) 107427 Mál nr. BN047741

Reginn atvinnuhúsnæði ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

Sótt er leyfi til að bæta við nöfnum upphaflegra arkitekta hússins inn í haus teikninga, sbr. erindi BN046954 samþ. 14. janúar 2014, af húsi á lóð nr. 2 við Ofanleiti.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

43. Reykjavíkurvegur 35 (01.635.506) 106690 Mál nr. BN047765

Þórarinn Guðnason, Reykjavíkurvegur 35, 101 Reykjavík

Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, Reykjavíkurvegur 35, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 35 við Reykjavikurveg.

Stærð:  44,7 ferm., 166 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til  uppdráttar dags. 26. maí 2014.

44. Reykjavíkurvegur 35 (01.635.506) 106690 Mál nr. BN047552

Þórarinn Guðnason, Reykjavíkurvegur 35, 101 Reykjavík

Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, Reykjavíkurvegur 35, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka kvist á einbýlishúsi á lóð nr. 35 við Reykjavíkurveg.

Stækkun:  14,1 ferm., 49,1 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Grenndarkynningu ólokið.

45. Saltvík 125744 (00.064.000) 125744 Mál nr. BN046813

Stjörnugrís hf., Vallá, 116 Reykjavík

Sótt er um stöðuleyfi fyrir einn tuttugu feta og þrjá fjörutíu feta gáma austan við slátur- og matvinnsluhús (matshl. 15) á lóðinni Saltvík 125744.

Minnisblað um eldvarnir dags. 10. mars 2014 fylgir erindinu, sem og öryggiskröfur fyrir F-gasgeymi á lóð dags. 27.5. 2014 og greinargerð um öryggismál vegna útgáfu stöðuleyfis fyrir gáma dags. 27.5. 2014.

Gjald kr. 9.000 + 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

46. Síðumúli 32 (01.295.202) 103841 Mál nr. BN047694

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN047203 þannig að komið verður fyrir nuddaðstöðu og hreyfisal  á 3. hæð vesturenda og flóttastiga á vesturhlið frá 3. hæð niður á bílaplan hússins á lóð nr. 32 við Síðumúla.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

47. Sjafnargata 11 (01.196.008) 102636 Mál nr. BN047544

Gísli Gestsson, Birkihlíð 13, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og bæta við kaldri geymslu í vesturenda sbr. erindi BN046679 og færist við það bílskúrinn um tvo metra til austur, sbr. fyrirspurn BN047409, á lóð nr. 11 við Sjafnargötu.

Stækkun, geymsla: 8 ferm., 21,3 rúmm.

Gjald kr. 9.500 + 9.500

Frestað.

Grenndarkynningu ólokið

48. Skólavörðustígur 40 (01.181.404) 101794 Mál nr. BN047699

S40 ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í íbúð 0301 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 40 við Skólavörðustíg.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

49. Sóleyjargata 15 (01.185.401) 102185 Mál nr. BN047794

Herbjörg Alda Sigurðardóttir, Sóleyjargata 15, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að steypa nýjar svalir í stað eldri timbursvala á vesturhlið íbúðarhúss á lóð nr. 15 við Sóleyjargötu.

Samþykki meðeiganda fylgir dags. 3. júní 2014.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um samruna eigna eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

50. Sóleyjargata 29 (01.197.415) 102750 Mál nr. BN047665

NRH reyk ehf., Sóleyjargötu 29, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og notkun þannig að bætt er við baðherbergum við herbergi á 2. og 3. hæð í einbýlishúsi á lóð nr. 29 við Sóleyjargötu. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

51. Starrahólar 3 (04.646.903) 111983 Mál nr. BN047783

Símon Símonarson, Starrahólar 3, 111 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að steypa vegg við göngustíg á suðaustur mörkum lóðar ásamt sorpgeymslu og síkka glugga í kjallara einbýlishúss á lóð nr. 3 við Starrahóla.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Stuðlaháls 1 (04.326.801) 111050 Mál nr. BN047749

Vífilfell hf., Stuðlahálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir 12.000 lítra mjólkurtanki á steyptum undirstöðum með öryggisgirðingu úr stáli við austurvegg verksmiðju Vífilfells á lóð nr. 1 við Stuðlaháls.

Stærðir: 4,9 ferm., 14,3 rúmm.

Gjöld 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Suðurgata 100 (01.553.117) 106537 Mál nr. BN047493

Ingólfur Gissurarson, Suðurgata 100, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á erindi BN042688, þannig að þak er framlengt yfir bíslag, glugga í risi er breytt í hurð í húsi á lóð nr. 100 við Suðurgötu.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

54. Suðurhólar 14-18 (04.670.0--) 112099 Mál nr. BN047766

Afar ehf, Suðurhólum 14, 111 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja sólskála á suðurhlið við íbúð 0102 í fjölbýlishúsi  á lóð nr. 14-18 við Suðurhóla.

Erindi fylgja samþykki meðeigenda í húsi nr. 14 dags. 20. febrúar 2014, einnig fsp. BN046226 dags. 2. júlí 2013 og BN047057 dags. 21. janúar 2014.

Stækkun:  17,2 ferm., 44,1 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

55. Suðurlandsbraut 16 (01.263.102) 103523 Mál nr. BN047755

LF2 ehf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja tvo nýja glugga á norðurhlið 1. hæðar atvinnuhúss í Ármúla 13A á lóð nr. 16 við Suðurlandsbraut

Gjöld 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

56. Suðurlandsbraut 2 (01.261.101) 103505 Mál nr. BN047599

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og innrétta bar fyrir 50 gesti sem verður tengdur rekstri hótelsins Nordica Hilton á lóð nr. 2 við Suðurlandsbraut.

Gjald kr. 9.500 + 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

57. Súðarvogur 2 (01.450.003) 105599 Mál nr. BN047773

Gámakó hf., Súðarvogi 2, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa matshluta 02 lóð nr. 2 við Súðarvog.

Niðurrif, mhl. 02:  Fastanr. 202-3158 merkt 0101 iðnaður 286,9 ferm. og fastanr. 230-4700 merkt 0102 iðnaður 286,9 ferm.

Samtals niðurrif:  573,8 ferm., 2.618 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Þinglýsa skal yfirlýsingu um sameiningu fasteigna að niðurrifi loknu til að unnt sé að taka matshlutann af skrá.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

58. Tangabryggja 14-16 (04.023.108) 222116 Mál nr. BN047647

Hraunbraut ehf., Síðumúla 12, 108 Reykjavík

Eclipse fjárfestingar slhf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN045775 þannig að þaksvölum verður lokað með svalalokun með 95% opnun og komið verður fyrir geymslum undir stiga á 1. hæð í húsinu á lóð nr. 14 -16 við Tangabryggju.

Stækkun: 28,5 ferm., 70,8 rúmm. 

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

59. Tryggvagata 22 (01.140.004) 100816 Mál nr. BN047772

Tvíhorf sf., Grandagarði 5, 101 Reykjavík

Eik fasteignafélag hf., Sóltúni 26, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi þannig að barir á 1. hæð og í kjallara veitingastaðarins í flokki III eru færðir til og veggur sem skipti staðnum í tvö rými er fjarlægður og felliveggur settur í staðinn í húsnæðinu á lóð nr. 22 Tryggvagötu. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

60. Vallarstræti 4 (01.140.416) 100857 Mál nr. BN047440

Lindarvatn ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurbæta og byggja við friðuð hús við Aðal- og Vallarstræti skv. deiliskipulagi sem samþykkt var í júlí 2013 fyrir íbúðir og þjónustustarfsemi, framkvæmd þessi er fyrsti hluti uppbyggingar á Landsímareit á lóð nr. 7 við Aðalstræti.

Meðfylgjandi er bréf verkfræðings dags. 28. mars 2014, greinargerð um stærðarbreytingar dags. 29.apríl 2014, útreikningur á varmatapi dags. 25. mars 2014, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. maí 2014, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 24. maí 2014 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. apríl 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2014.

Niðurrif, skúr á baklóð, 12,6 ferm., 31,4 rúmm.

Niðurrif, risloft: 30 ferm.

Kjallari ónýttur?

Viðbygging: 278,1 ferm., 930,3 rúmm.

Stækkun eldra húss: 65 ferm. 217,4 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

61. Vesturgata 41 (01.135.003) 100425 Mál nr. BN047771

Jóhannes Johannessen, Vesturgata 41, 101 Reykjavík

Haraldur Johannessen, Vesturgata 41, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum vegna gerðar eignaskiptasamnings í tvíbýlishúsi á lóð nr. 41 við Vesturgötu.

Stærðarbreyting:  ??

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

62. Víðimelur 62 (01.524.003) 106000 Mál nr. BN047759

Ari Ingimundarson, Víðimelur 62, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta glugga og svalahurð sbr. erindi BN047425 samþ. 1. apríl 2014 á rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 62 við Víðimel.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

63. Garðastræti 21 (01.136.523) 100612 Mál nr. BN047804

Leiðrétt bókun vegna BN047500 sem samþykkt var þann 27.05 2014. 

Samþykkt var leyfi til að hækka um eina hæð og ris með tveimur kvistum á götuhlið og svölum á gafli, byggja svalir á bakhlið og fjölga íbúðum úr tveimur í sex í húsi á lóð nr. 21 við Garðastræti.

Stækkun:  110,9 ferm., 295,2 rúmm.

Skv. meðfylgjandi bílastæðabókhaldi með erindi skal greiða fyrir eitt stæði á hverja íbúð sem bætist við. Fjórar íbúðir bætast við og skal því greiða fyrir fjögur stæði í flokki II sem ekki verðurr komið fyrir á lóð.

64. Kvistaland 26 (01.862.301) 108800 Mál nr. BN047792

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Óskað er eftir  samþykki byggingarfulltrúans á meðfylgjandi Lóðauppdrætti, staðgr. 1.862.3, dagsettum 02. 06. 2014 vegna lóðarinnar Kvistaland 26.

Í Fasteignaskrá, Þjóðskrá Íslands er lóðin talinn 0,0m², lóðin verður 4747m², lóðin telst öll koma úr óútvísuðu borgarlandi (landnr. 221448).

Sbr. deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í borgarráði 19. 05. 2011, og á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 15. 07. 2011 og auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, dagsett 12. 08. 2011, um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

65. Laugavegur 50 (01.173.107) 101524 Mál nr. BN047803

Leiðrétt bókun vegna BN047558 sem samþykkt var þann 27.05 2014. 

Samþykkt var leyfi til þess að byggja við og hækka íbúðar- og verslunarhús á lóðinni nr. 50 við Laugaveg.

Stækkun: 315,4 ferm. og 1.296,6 rúmm. brúttó.

Bílastæðabókhald skilgreinir áður 1 stæði fyrir íbúð, 1 stæði fyrir verslun; samtals 2 stæði. 

Samþykkt stækkun og fjöldi eigna er fyrir 4 íbúðir og 1 verslun, samtals 5 stæði. 

Greiða skal því fyrir 3 bílastæði í flokki II sem ekki verður komið fyrir á lóð.

Fyrirspurnir

66. Austurstræti 12A (01.140.408) 100851 Mál nr. BN047750

Kjartan Freyr Kjartansson, Vættaborgir 23, 112 Reykjavík

Spurt er hvort koma megi fyrir 12 útiborðum og sætum fyrir 32 gesti á Vallarstræti við hús á lóð nr. 12A við Austurstræti.

Frestað.

Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

67. Framnesvegur 30 (01.133.245) 100274 Mál nr. BN047753

Jóna Björgvinsdóttir, Smáragata 5, 900 Vestmannaeyjar

Spurt er hvort leyfi fengist til að setja þakglugga á salerni á hús nr. 30 við Framnesveg. 

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

68. Friggjarbrunnur 3-5 (02.693.802) 205758 Mál nr. BN047760

Konráð Adolphsson, Friggjarbrunnur 3, 113 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að setja garðskála á efstu hæð á svölum íbúðar 0301 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 3 við Friggjarbrunn. 

Frestað.

Gera betur grein fyrir erindi.

69. Leifsgata 13 (01.195.012) 102570 Mál nr. BN047754

Trausti fasteignasala ehf., Vegmúla 4, 108 Reykjavík

Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir, Þingvað 25, 110 Reykjavík

Spurt er hvort eign 0001 sé samþykkt í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 13 við Leifsgötu.

Nei.

Ekki er samþykkt íbúð í hluta 0001 í kjallara.

70. Rauðalækur 32 (01.344.101) 104025 Mál nr. BN047751

Ólafur Einar Skúlason, Rauðalækur 32, 105 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist að síkka stofuglugga og koma fyrir hurð og hliðarglugga á kjallaraíbúð 0001 í húsinu á lóð nr. 32.

Samþykki sumra ódags. fylgir erindi

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

71. Sporhamrar 3 (02.295.601) 172484 Mál nr. BN047777

Reitir VII ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Spurt er hvort breyta megi núverandi verslunarhúsnæði og innrétta það fyrir alþjóðlegan skóla fyrir 30 nemendur á aldrinum frá 6-15 ára. 

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

72. Suðurlandsbraut 10 (01.263.003) 103520 Mál nr. BN047764

Nimit Thaiprasert, Engihjalli 1, 200 Kópavogur

Noodle Station ehf, Skólavörðustíg 21a, 101 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta í mhl. ? rými ?? veitingastað í húsinu á lóð nr. 10 við Suðurlandsbraut .

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 13:45

Björn Stefán Hallsson

Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdótti

Harri Ormarsson Jón Hafberg Björnsson Óskar Torfi Þorvaldsson Eva Geirsdóttir