Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 5

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2013, miðvikudaginn 6. febrúar kl. 09.15, var haldinn 5. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir.
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Ólafur Bjarnason, og Marta Grettisdóttir. Fundarritari var Örn Sigurðsson

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 1. febrúar 2013.

- Torfi Hjartarson tók sæti á fundinum kl. 9.17

(C) Fyrirspurnir

3. Bergstaðastræti 13, (fsp) viðbygging (01.180.3) Mál nr. SN120567
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, Bergstaðastræti 13, 101 Reykjavík
VA arkitektar ehf, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Guðrúnar Jóhönnu Guðmundsdóttur dags. 17. desember 2012 um að byggja viðbyggingu yfir hluta verandar íbúðar 0402 í húsinu á lóðinni nr. 13 við Bergstaðarstræti, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 13. desember 2012.
Margrét Þormar verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson og fulltrúi Samfylkingarinnar Kristín Soffía Jónsdóttir og og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir greiddu atkvæði með að fyrirspyrjandi láti vinna breytingu á deiliskipulagi, sem síðan verði grenndarkynnt skv. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fulltrúi Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfi Hjartarson sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

(E) Umhverfis- og samgöngumál

4. Sorpa bs., samningur við Endurvinnsluna Mál nr. US130046
Kynntar samningaumleitanir að samningi Sorpu bs. við Endurvinnsluna.
Björn Halldórsson framkv. stj. Sorpu bs. kynnti.
Karl Sigurðsson vék af fundi kl. 10:25

(A) Skipulagsmál

5. Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024 Mál nr. SN130019
Kópavogsbær, Fannborg 2, 200 Kópavogur
Á fundi skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2013 var lagt fram bréf skipulagsstjóra Kópavogsbæjar dags. 27. desember 2012 um kynningu á tillögu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 ásamt greinargerð. Einnig er lögð fram umsögn verkefnastjóra aðalskipulags Reykjavíkur dags. 4. febrúar 2013.
Haraldur Sigurðsson tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna þegar hún verður auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.

6. Grandavegur 44, breyting á deiliskipulag (01.520.4) Mál nr. SN130055
Kynnt tillaga að breyttu deiliskipulagi Lýsisreits vegna lóðarinnar nr. 44 við Grandaveg. Í breytingunni felst niðurfelling á hjúkrunarheimili og fjölgun íbúða á svæðinu samkvæmt uppdr. Gláma/Kím ehf. dags. 14. janúar 2013.
Ágústa Sveinbjörnsdóttir og Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnastjórar ásamt Magnúsi Inga Erlingssyni lögmanni tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

- Karl Sigurðsson tók að nýju sæti á fundinum kl. 11.25.

(B) Byggingarmál

7. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 717 frá 5. febrúar 2013.

(E) Umhverfis- og samgöngumál

8. Vatnsvernd fyrir höfuðborgarsvæðið, heildarendurskoðun Mál nr. US130033
Lögð fram verklýsing dags. desember 2012 fyrir heildarendurskoðun á vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 21. janúar 2013.
Árný Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Umsögn heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 21. janúar 2013 samþykkt.

(D) Ýmis mál

9. Laugarnesvegur 56, málskot (01.346.1) Mál nr. SN130044
Búseti húsnæðissamvinnufélag, Síðumúla 10, 108 Reykjavík
Lagt fram málskot Búseta dags. 22. janúar 2013 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsstjóra frá varðandi leyfilegt byggingarmagn, fjölda íbúða og bílastæðamál á lóðinni nr. 56 við Laugarnesveg.
Fyrri afgreiðsla skipulagsstjóra frá 28. september 2012 staðfest.

(E) Umhverfis- og samgöngumál

10. Vesturbæjarlaug, Framkvæmdir 2013, nýtt pottasvæði Mál nr. US130038
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Kynnt fyrirkomulag, frumkostnaðaráætlun og áætlaður framkvæmdatími vegna Vesturbæjarsundlaugar. Einnig er lagt fram bréf mannvirkjadeildar umhverfis- og samgöngusviðs dags. 18. desember 2012.
Ámundi V. Brynjólfsson skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds og Rúnar Gunnarsson deildarstjóri tóku sæti á fundinum undir þessum lið.
Frestað.

11. Hundagerði, framkvæmdir á árinu 2012 Mál nr. US130030
Kynntar framkvæmdir við þrjú ný hundagerði í Reykjavík sem sett voru upp til að mæta óskum íbúa. Gerðin eru öll um 600 fermetrar að stærð með 1,2 metra hárri girðingu umhverfis og við þau hefur verið komið fyrir bekkjum og ruslastömpum. Gerðið í neðra Breiðholti er sunnan við Arnarbakka og austan Breiðholtsbrautar; í Laugardal er gerðið staðsett milli Engjavegar og Suðurlandsbrautar og í miðborginni er það við Vatnsmýrarveg rétt hjá Umferðarmiðstöðinni (BSÍ).
Ámundi V. Brynjólfsson skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Kynnt.

12. Gatna og umhverfismál, framkvæmdir Mál nr. US130043
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Kynnt áætlun um framkvæmdir gatna og umhverfismála 2013.
Ámundi V. Brynjólfsson skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Kynnt.

13. Sæmundargata - Hringbraut, framkvæmdir Mál nr. US130029
Lagt fram bréf samgöngustjóra dags. 18. janúar 2013 varðandi umbætur á Sæmundargötu, gönguleið yfir Hringbraut og 30km afmörkun á svæði Háskóla Íslands skv. meðfylgjandi uppdrætti dags. í febrúar 2013.
Stefán Finnsson verkfræðingur tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Frestað.

14. Snorrabraut, þrenging til bráðabirgða Mál nr. US130032
Lagt fram bréf Umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngudeild dags. 21. janúar 2013 ásamt tillögu að aðgerðum á Snorrabraut.
Stefán Finnsson verkfræðingur tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Júlíusar Vífils Ingvarssonar, svohljóðandi: Lagt er til að leitað verði álits Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs á tillögu um að þrengja Snorrabraut einkum með tilliti til neyðaraksturs
Samþykkt

Tillaga umhverfis- og samgöngusviðs samþykkt með átta atkvæðum fulltrúa Besta flokksins Páls Hjaltasonar, Elsu Hrafnhildar Yeoman og Karls Sigurðssonar, fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmars Sveinssonar og Kristínar Soffíu Jónsdóttur og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfa Hjartarsonar, ásamt fulltrúum Sjálfstæðisflokksins Gísla Marteini Baldurssyni og Hildar Sverrisdóttur.,

Fulltrúi sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson sat hjá og lagði fram eftirfarandi bókun:
#GLMikilvægt er að auka umferðaröryggi á Snorrabraut. Heildarendurskoðun og endurnýjun götunnar er nauðsynleg aðgerð sem ber að setja í forgang þar sem öryggi vegfarenda akandi, gangandi og hjólandi verði tryggt sem best. Þær götuþrengingar og hraðahindranir sem hér er verið að leggja til munu með margvíslegum hætti torvelda akstur um götuna. Það út af fyrir sig eykur óöryggi gangandi og hjólandi sem þvera hana. Gögn sem lögð hafa verið fram á fundi ráðsins styðja ekki að hraðakstur sé stundaður á Snorrabraut og því eðlilegt að skoða hvort aðrar aðstæður eins og lýsing eða upplýsingaskilti skapi hættu í umferðinni. Hraða umferðar má stýra með ýmsum hætti. Skal sérstaklega bent á hraðamyndavélar í því sambandi og ýmsar leiðir til að koma upplýsingum til vegfarenda eftir rafrænum leiðum. Með þeim hætti má halda niðri umferðarhraða án þess að trufla flæði umferðar þannig að ökumenn haldi athygli og fylgist betur með umhverfi sínu. Vel má hugsa sér að lækka umferðarhraða Snorrabrautar niður í 40 km á klukkustund.#GL
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir lögð fram eftirfarandi bókun #GLSnorrabrautin er stórhættuleg gangandi vegfarendum og löngu tímabært er að gripið verði til aðgerða. Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur skorað á Reykjavíkurborg að bæta öryggi gangandi vegfarenda, enda hafa tvö banaslys orðið á götunni á síðustu 8 árum, og næstum 5#PR alvarlegra slysa og dauðaslysa þar sem ekið var á gangandi vegfarendur á árunum 1996-2011 urðu á Snorrabraut. Því er ekki boðlegt að draga aðgerðir lengur og því greiðum við atkvæði með tillögunni. Við áréttum þó að þessar tillögur eru aðeins bráðabirgðatillögur til að koma í veg fyrir fleiri alvarleg slys. Nauðsynlegt er að farið verði í löngu boðaðar aðgerðir um heildarhönnun götunnar, þar sem gróðursett verða tré, hjólastígar lagðir og gangstéttir breikkaðar. Rannsóknir erlendis frá sýna að þannig næst allt í senn: Rólegri umferð, aukið öryggi gangandi og hjólandi og góð afkastageta götunnar#GL
Fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson, fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Kristín Soffía Jónsdóttir og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfi Hjartarson lögðu fram eftirfarandi bókun. #GLSnorrabraut er ein af hættulegustu götum borgarinnar. Rannsóknir sýna að alvarleg slys og dauðaslys þar eru hlutfallslega algengari þar en á öðrum götum. Við teljum brýnt að ekki verði lengur dregið að grípa til ráðstafana sem auka öryggi gangandi vegfarenda. Við fögnum þeim aðgerðum sem sérfræðingar á umhverfis og skipulagssviði leggja nú fram, enda teljum við að þær séu vel útfærðar. Þær eru liður í því að gera borgargöturnar öruggari fyrir gangandi vegfarendur án þess að dregið sé úr eðlilegu flæði bílaumferðar.#GL

15. Reykjavegur Suðurlandsbraut, hjólastígur. Mál nr. US130042
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram tillaga Landslags að hjóla- og göngustíg dags. í janúar 2013 yfir Reykjaveg við Suðurlandsbraut. Einnig lagt fram minnisblað VSB Verkfræðistofu dags. 25. janúar 2013.
Stefán Finnsson verkfræðingur tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt

16. Laugavegur, Bréf íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur Mál nr. US130047
Íbúasamtök Miðborgar, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur dags. 23. janúar 2013 varðandi tillögu þeirra að breyttri skipan umferðarmála við Laugarveg.
Vísað til meðferðar hjá umhverfis- og skipulagssviði, samgöngudeild.

17. Gönguljós í borginni, Mál nr. US130004
græntími fyrir fótgangandi á umferðarljósagatnamótum
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. janúar 2013 ásamt minnispunktum Vinnustofunnar Þverá ehf. dags. 15. janúar 2013 varðandi græntíma fyrir fótgangandi á umferðarljósagatnamótum.
Frestað.

18. Óðinstorg, Óðinstorg í samkeppni (01.18) Mál nr. SN130042
Lögð fram tillaga að hönnunarsamkeppni um Óðinstorg.
Samþykkt.

19. Rauðalækur, Lokun fyrir gegnumakstri eða hægaksturs/vistgata. Mál nr. US130035
Rætt um tvær tillögur að lokun Rauðalækjar, önnur tillagan feli í sér íbúatorg sem loki götunni fyrir bílaumferð um miðju en hin hægakstursgötu með þrengingum og fegrun götunnar.
Umhverfis- og skipulagsráð beinir því til umhverfis- og skipulagssviðs að í ljósi 2 ja ára reynslu af lokun götunnar verði tvær útfærslur að endurhönnun Rauðalækjar verði kynntar fyrir ráðinu.

20. Nordic Built, Tillaga ásamt greinargerð Mál nr. SN130043
Lögð fram tillaga ásamt greinargerð dags. janúar 2013 að aðild að Nordic Built.
Samþykkt.

21. Náttúruskólinn, Ársskýrsla Náttúruskólans 2012 Mál nr. US130036
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram ársskýrsla Náttúruskólans 2012.

22. Reykjavíkurtjörn, skýrsla 2012 Mál nr. US130037
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram skýrsla um ástand fuglastofna Tjarnarinnar 2012 dags. í febrúar 2012.

(D) Ýmis mál

23. Betri Reykjavík, Slipparóló leikvöllur og kaffihús í skipi í miðborginniMál nr. SN130030
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram efsta hugmynd í skipulagsflokki á Betri Reykjavík frá 31. desember 2012 #GLSlipparóló leikvöllur og kaffihús í skipi í miðborginni #GL ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2013.
Frestað

24. Betri Reykjavík, Jólalokun á Bankastræti og Laugavegi rétt fyrir jólMál nr. US130007
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram ein af fimm efstu hugmyndum frá Betri Reykjavík frá 30. nóvember 2012 #GLJólalokun á Bankastræti og Laugavegi rétt fyrir jól#GL ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 18. janúar 2013.
Frestað

25. Betri Reykjavík, Carpooling verði ekki hallærislegt Mál nr. US130011
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram ein af fimm efstu hugmyndum frá Betri Reykjavík frá 30. nóvember 2012#GLCarpooling verði ekki hallærislegt #GL ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 18. janúar 2013.
Frestað

26. Erindisbréf, Sundhöll Reykjavíkur Mál nr. US130044
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lagt fram erindisbréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 28. janúar 2013 varðandi skipan í starfshóp vegna samkeppni um viðbyggingu við Sundhöll Reykjavíkur.
Samþykkt.

27. Umhverfis- og skipulagsráð, innkaupaskýrsla Mál nr. US130045
Lagt fram yfirlit yfir viðskipti umhverfis- og skipulagssviðs við innkaupadeild í janúar 2013.

28. Nesjavallaleið 9, fangelsi, kæra 3/2013 (05.8) Mál nr. SN130068
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 30. janúar 2013 ásamt kæru, dags. 28. janúar 2013, vegna ákvörðunar skipulagsráðs Reykjavíkur frá 19. desember 2012 um breytt deiliskipulag á Hólmsheiði vegna fangelsislóðar að Nesjavallaleið 9.
Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.

29. Nesjavallaleið 9, fangelsi, kæra 4/2013 (05.8) Mál nr. SN130067
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 30. janúar 2013 ásamt kæru, dags. 28. janúar 2013, vegna ákvarðana byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 15. janúar 2013 um stækkun lóðar nr. 9 við Nesjavallaleið og frá 22. janúar 2013 um að samþykkja leyfi til að byggja fangelsi úr steinsteypu á Hólmsheiði á nefndri lóð.
Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.

30. Grundarstígur 10, kæra, umsögn, úrskurður (01.183.3) Mál nr. SN120433
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 3. sept. 2012, þar sem kærð er útgáfa byggingarleyfis þann 14. mars 2012 vegna samþykktar umsóknar þann 3. janúar 2012 um leyfi til að byggja við kjallara sal úr steinsteypu, steypa vegg á lóðamörkum að Grundarstíg 8, setja op og hlið í vegg að Skálholtsstíg og breyta nýtingu í blandaða atvinnustarfsemi á lóð nr. 10 við Grundarstíg. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 7. sept. 2012. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 24. janúar 2013. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá nefndinni.

31. 1.172.0 Brynjureitur, breytt deiliskipulag (01.172.0) Mál nr. SN120140
Laugavegsreitir ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 25. janúar 2013 um samþykkti borgarráðs 24. janúar 2013 á breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.172.0, Brynjureit.

32. Einholt-Þverholt, nýtt deiliskipulag (01.244.3) Mál nr. SN120167
ASK Arkitektar ehf., Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 25. janúar 2013 um samþykkti borgarráðs 24. janúar 2013 á nýju deiliskipulagi fyrir Einholt-Þverholt.

Fundi slitið kl. 15.15.

Fundargerð lesin yfir og undirrituð

Páll Hjalti Hjaltason
Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Karl Sigurðsson Kristín Soffía Jónsdóttir
Torfi Hjartarson Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Hildur Sverrisdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2013, þriðjudaginn 5. febrúar kl. 10.30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 717. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björn Stefán Hallsson, Sigrún Reynisdóttir, Harri Ormarsson, Eva Geirsdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Sigurður Pálmi Ásbergsson, Óskar Torfi Þorvaldsson og Björn Kristleifsson.
Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Bankastræti 6 (01.170.204) 101332 Mál nr. BN045520
Eldhraun ehf, Bankastræti 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir stiga milli 1. og 2. hæðar og til að innrétta tvær íbúðir á 3. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 6 við Bankastræti.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Borgartún 33 (01.219.101) 102777 Mál nr. BN045441
Reginn A1 ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að hækka lyftuhús upp á 4. hæð, til að koma fyrir flóttastiga á bakhlið í stað svala og til að breyta innra skipulagi og innrétta mötuneyti á 4. hæð verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 33 við Borgartún.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um samruna eigna eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN045135
Höfðatorg ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu af bílakjallara B1 og B2 og sótt um að bílastæðakrafa verði lækkuð úr 1/35 í 1/50 í B1 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Einnig er sótt um leyfi fyrir breyttu innra fyrirkomulagi í rými 0101 í sama húsi.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Umsækjandi geri grein fyrir því hvaða forsendur liggi til grundvaldar umsókninni varðandi fækkun bílastæða frá því sem samþykkt er. Byggingarfulltrúi leiti jafnframt álits Skipulagsstofnunar.

4. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN045491
Höfðatorg ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofurými fyrir 178 starfsstöðum í bæði lokuðum og opnum skrifstofurýmum og framreiðslueldhús fyrir stafsmenn í rými 0402 og 0501 í Höfðatún 2 Höfðatorg H1 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Brynjólfsgata 1 Mál nr. BN045408
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta byggingu, þrjár hæðir og kjallara, einangrað að innan og klætt utan að hluta með standandi viðarklæðingu, ásamt tengigangi undir Suðurgötu að Háskólatorgi, fyrir stofnun Vigdísar Finnbogadóttur á lóð nr. 1 við Brynjólfsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn samgöngudeildar dags. 28. janúar 2013.
Stærð mhl. 01: Kjallari, bílgeymsla 564 ferm., kennslurými 915,7 ferm., 1. hæð kennslurými 738,8 ferm., 2. hæð kennslurými 865,7 ferm., 3. hæð skrifstofur 874,3 ferm. Mhl. 01 samtals 3.958,5 ferm., 18.102,8 rúmm.
Stærð mhl. 02: 172,8 ferm., 653 rúmm.
Samtals: 4.131,3 ferm., 18.755,8 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 1.688.022
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Fákafen 11 (01.463.402) 105679 Mál nr. BN045508
ÞEJ fasteignir ehf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN045141 þar sem neyðarútgangur frá kjallara er færður í húsinu á lóð nr. 11 við Fákafen.
Bréf frá hönnuði dags. 6. nóv. 2012 fylgir.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

7. Fákafen 11 (01.463.402) 105679 Mál nr. BN045507
ÞEJ fasteignir ehf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN045196 þar sem neyðarútgangur í kjallara 0002 er færður til í húsinu á lóð nr. 11 við Fákafen.
Bréf frá hönnuð dags. 6. nóv. 2012 fylgir.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

8. Grandagarður 16 (01.114.301) 100040 Mál nr. BN045482
Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum sbr. BN044029 þar sem kemur fram breyting í stigahúsi 0101 ásamt breytingum í innri rýmum á 2. hæð hússins á lóð nr. 16 við Grandargarð.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Grensásvegur 12 (01.295.406) 103853 Mál nr. BN045513
Arion banki hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Sjens ehf., Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN040671 dags.12. jan. 2010 og BN036756 dags. 13. nóv. 2007 sem er um að innrétta 2. og 3. hæðina og bakhús undir hótel ásamt svölum á 3. hæðina með fellistiga á norðurhlið og flóttahringstiga á vesturhlið fyrir 2. og 3. hæðina í atvinnuhúsnæðinu á lóðinni nr. 12 við Grensásveg.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Hallveigarstígur 8 (01.180.205) 101693 Mál nr. BN045274
Vigdís Hjaltadóttir, Hallveigarstígur 8, 101 Reykjavík
Steingrímur Gunnarsson, Austurbrún 4, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja kvist á norðausturþekju og koma fyrir tveimur kvistum og svölum á suðvesturþekju hússins á lóðinni nr. 8 við Hallveigarstíg.
Samþykki eigenda Hallveigarstígs 6, 10 og 10A (á teikn. og í tölvupósti dags. 27. janúar 2013) fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun kvistir 18,9 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 1.701
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Háagerði 12 (01.817.107) 108143 Mál nr. BN045504
Snorri Þorgeir Ingvarsson, Háagerði 12, 108 Reykjavík
Þórdís Ingadóttir, Háagerði 12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða viðbyggingu við austurhlið og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 12 við Háagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 22. maí 2012.
Erindi fylgir fsp. dags. 25. september 2012.
Stækkun: 41,5 ferm., 137,9 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 12.411
Frestað.
Milli funda.

12. Hlíðarendi 2-6 (01.628.801) 106642 Mál nr. BN045376
Knattspyrnufélagið Valur, Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu sem tengja fjósið gömlu íbúðarhúsi og og gamla íþróttahúsinu, innrétta 11 gistieiningar í tengibyggingunni, innrétta minjasafn í Fjósinu og sameiginlega setustofu í gamla íbúðarhúsinu á lóð nr. 2-6 við Hlíðarenda.
Erindi fylgir brunahönnun frá verkfræðistofunni Eflu dags. 5. júlí 2011, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 21. febrúar 2011. útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2013.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 8.500 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Hverfisgata 18 (01.171.005) 101351 Mál nr. BN045505
Hverfiseignir ehf, Pósthólf 414, 121 Reykjavík
Linda Mjöll ehf, Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík
Sótt er um stöðuleyfi dagana 6., 7. og 8. júní 2013 fyrir 180 ferm. tjald húðflúrmeistara á bílastæði á baklóð húss á lóð nr. 18 við Hverfisgötu.
Meðfylgjandi er brunavarnarskýrsla dags. 22.1. 2013
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Í landi Fitjakots 125677 (00.026.002) 125677 Mál nr. BN045511
Jón Jóhann Jóhannsson, Búðavað 10, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta þegar samþykktu húsi á þann veg að kúluhluta úr timbri og gleri sé sleppt og íbúð er innréttuð í steyptum hluta hússins með steyptri þakplötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. janúar 2013 fylgir erindinu.
Stærðir, frávik frá samþykktum áformum dags. 15.5. 2012.
Matshluti 01, íbúð, var 297,7 ferm., 780 rúmm., minnkun 194,3 ferm., 474,9 rúmm., verður 103,4 ferm. 305,1 rúmm.
Matshl. 02, bílskýli, óbreytt, 96,5 ferm., 376,3 rúmm.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Krókháls 4 (04.326.002) 111047 Mál nr. BN045151
G. Th. Eggertsson ehf., Krókhálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem rými 0102 hefur verið skipt upp í 0102 og 0103, rými 0102 verður nýtt sem vörugeymsla og 0103 verður notað fyrir matvælavinnslu með frystigeymslurými í húsinu á lóð nr. 4 við Krókháls.
Leyfi matvælastofnunar gildir frá 13. nóv. 2012 og bréf frá eiganda dags. 16. jan. 2013 og umsögn burðavirkishönnuðar ódags. Tölvupóstur frá Matvælastofnun dags. 4 feb. 2013 fylgir
Gjald kr. 8.500 + 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

16. Lambhagavegur 23A (02.684.102) 220865 Mál nr. BN045500
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á byggingarlýsingu frá nýsamþykktu erindi BN045092 sem felast í breyttum byggingarefnum spennistöðvar Orkuveitu Reykjavíkur á lóð nr. 23A við Lambhagaveg.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Laugavegur 20-20A (01.171.503) 101419 Mál nr. BN045516
Grandavör ehf, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta brunahólfun í kjallara hússins á lóðinni nr. 20A við Laugaveg.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Laugavegur 15 (01.171.112) 101378 Mál nr. BN045384
Frank Óskar Chatham Pitt, Kópavogsbraut 100, 200 Kópavogur
Menningar/framfarasj Ludv Storr, Laugavegi 15, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta íbúðum á 2. 3. og 4. hæð í gistiheimili fyrir 37 gesti, innrétta móttöku og starfsmannaaðstöðu í kjallara og gerð er grein fyrir núverandi fyrirkomulagi kjallara og 1. hæðar í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 15 við Laugaveg.
Jafnframt er erindi BN045360 dregið til baka.
Erindi fylgir umboð til hönnuðar dags. 5. desember 2012 og yfirlýsing um burðarþol dags. 18. desember 2012.
Gjald kr. 8.500 + 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
19. Laugavegur 164 (01.242.101) 103031 Mál nr. BN045438
Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja yfir þaksvalir, setja valmaþak, einangra og klæða að utan með málmklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta skjalasafn í iðnaðarhúsi á lóð nr. 164 við Laugaveg.
Erindi fylgir minnisblað frá Almennu verkfræðistofunni um ástand steyptra veggja dags. 23. janúar 2013.
Stækkun: 35 ferm., 1.932,1 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 173.889
Frestað.
Til frekari samráðs við hönnuði.

20. Laugavegur 20B (01.171.504) 101420 Mál nr. BN045406
Stórval ehf, Pósthólf 188, 121 Reykjavík
Gló Laugavegi ehf., Engjateigi 17-19, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir svölum og flóttaleið á vesturhlið annarrar hæðar, síkka glugga á vestur- og suðurhlið, breyta innra fyrirkomulagi og endurinnrétta veitingastað í veitingaflokki II á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 20B við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. janúar 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2013. Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. janúar 2013 fylgir erindinu. Bréf hönnuðar dags. 25. janúar 2013 fylgir erindinu.
Greinargerð um brunavarnir dags. 16. janúar 2013 fylgir erindinu.
Samþykki eigenda Laugavegar 20A (á teikn. og í tölvupósti dags. 25. janúar 2013) fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Njálsgata 23 (01.182.125) 101839 Mál nr. BN045468
Ananda Marga Pracaraka Samgha, Efstasundi 26, 104 Reykjavík
F-16 ehf, Efstasundi 26, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta jógamiðstöð og breyta póstum lítillega á 2. hæð í húsinu Frakkastíg 16 á lóð nr. 23 við Njálsgötu.
Jafnframt eru erindi BN044449 og BN045153 felld úr gildi.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 4. febrúar 2013 og Minjastofnunar Íslands dags. 1. febrúar 2013.
Stærð: Kjallari 73,2 ferm., 1. hæð 94,6 ferm., 2. hæð 91,1 ferm.
Samtals 258,9 ferm., 923,2 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 83.088
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Enda verði tekið mið af leiðbeiningum Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands við smíði glugga.

22. Pósthússtræti 11 (01.140.515) 100874 Mál nr. BN045518
VH fjárfesting ehf., Skjólbraut 7, 200 Kópavogur
Hótel Borg ehf, Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til endurnýjunar á baraðstöðu í veitingasal á 1. hæð Hótels Borgar á lóð nr. 9-11 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

23. Safamýri 81 (01.284.301) 103726 Mál nr. BN045495
Kristín Ingvarsdóttir, Strandvegur 13, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að breyta innri skipan þannig að stækkað verður gat á burðarveg og eldhúsi breytt á 2. hæð í húsinu á lóð nr. 81 við Safamýri.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. jan. 2013 og samþykki meðeigenda dags. 16 jan. 2013 fylgir.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Skeifan 11 (01.462.101) 195597 Mál nr. BN045498
Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna lokaúttektar sbr. BN045310 þar sem kemur fram breyting á eldvörnum, nýir gluggi, nýtt tröppuþrep og nýir handlisti fyrir stiga í rýminu 0105 í húsinu nr. 11D á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Skildingatangi 1 (01.675.101) 106899 Mál nr. BN045523
Gunnar I Hafsteinsson, Skildinganes 58, 101 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu, grunnlögnum og undirstöðum hússins á lóðinni nr. 1 við Skildingatanga sbr. erindi BN045243.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

26. Skipasund 34 (01.357.111) 104422 Mál nr. BN045464
Arnar Halldórsson, Skipasund 34, 104 Reykjavík
Vegna eignaskiptasamnings er sótt um samþykki fyrir núverandi innra fyrirkomulagi tvíbýlishússins á lóðinni nr. 34 við Skipasund.
Samþykki meðeigenda dags. 23. janúar 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Skógarhlíð 10 (01.703.401) 107073 Mál nr. BN045524
Landleiðir ehf, Akralind 4, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta notkun fyrstu og annarrar hæðar í gistiskála í flokki V með 14 herbergum fyrir 51 gesti í húsinu á lóð nr. 10 við Skógarhlíð.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Sóltún 1 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN045533
Landey ehf., Hátúni 2B, 105 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu, aðstöðusköpunar, sökkla, grunnlagna og uppsteypu kjallara K-1 og K0 ásamt plötu yfir K0 fyrir Mánatún 7, 9 og 11, sbr. BN045300 sem samþykkt var þann 04.12 2012 og var endurnýjun á erindi BN036568 sem samþykkt var 15.01 2008.
Hönnunargögn vegna þessa hluta framkvæmdarinnar sem takmarkað byggingarleyfi nær til liggja fyrir. Meðfylgjandi eru yfirlitsmyndir yfir áfangaskipti fyrir stigahúsin Mánatún 7, 9 og 11.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

29. Sólvallagata 18 (01.160.212) 101160 Mál nr. BN045330
Örn Arnþórsson, Laugarnesvegur 87, 105 Reykjavík
Vegna eignaskiptayfirlýsingar er sótt um samþykki fyrir áður gerðri viðbyggingu (kolageymslu) að norðausturhlið kjallara og jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðri íbúð á þriðju hæð (rishæð) hússins á lóðinni nr. 18 við Sólvallagötu.
Nýjar skráningartöflur fyrir matshl. 01 (hús) og 02 (bílskúr) fylgja erindinu.
Virðingargjörð dags. 21.6.1929 fylgir erindinu. Afsal dags. 20. júlí 1962 fylgir erindinu.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 21. janúar 2013 fylgir erindinu.
Samþykki meðeigenda (á teikn.) fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun kjallari 4,9 ferm. og 8,9 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 9.000 + 801
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

30. Stakkholt 2-4 (01.241.103) 103018 Mál nr. BN045197
Arcus ehf, Fossaleyni 16, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt íbúðar- og atvinnuhús einangrað að utan og klætt áli. Húsið skiptist í sex matshluta, fimm mishá stigahús með 139 2-4 herbergja íbúðum, verslunar- og þjónusturýmum og bílakjallara fyrir 144 bíla á tveimur hæðum og verður nr. 2A, 2B, 4A, 4B og 3A og 3B á lóð nr. 2-4 við Stakkholt.
Stærðir:
Mhl.01, bílakjallari: 4.387,7 ferm.
Mhl.02, íbúðir: 4.412,2 ferm.
Mhl.03, íbúðir: 2.326,4 ferm.
Mhl.04, íbúðir: 3.767,0 ferm.
Mhl.05, íbúðir: 1.760,2 ferm.
Mhl.06, íbúðir: 2.275,7 ferm.
Heildarstærð húss, mhl. 02-06: 14.541,5 ferm., 44.516,4 rúmm.
Bílgeymsla, mhl. 01: 4.387,7 ferm., 13.682,9 rúmm.
Samtals mhl. 01-06: 18.929,2 ferm., 58.199,3 rúmm.
B-rými, svalir og svalagangar: 972,5 ferm., 2.766 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 9.000 + 5.486.877
Samtals 12.120 ferm., 41.430 rúmm.
Gjöld kr. 8.500 + 9.000 + 3.521.550
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Tryggvagata 22 (01.140.004) 100816 Mál nr. BN045526
Harlem ehf., Tryggvagötu 22, 101 Reykjavík
Eik fasteignafélag hf., Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara og 1. hæðar þar sem komið er fyrir salerni, inndregin verönd sem samþykkt var 31. maí verði minnkuð og komið verður fyrir búningsherbergi þar sem sviðið var og það flutt til í húsinu á lóð nr. 22 við Tryggvagötu.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Úlfarsbraut 116 (02.698.606) 205753 Mál nr. BN045409
Leigufélagið Bestla ehf., Boðaþingi 4, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi þannig að fjölgað er herbergjum og stækkaðir gluggar í 0101,0103,0201,0203,0301 og 0303 á norður og suðurhlið, sbr. erindi BN036570, fjölbýlishússins á lóð nr. 116 við Úlfarsbraut.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Varmadalur 125767 (00.080.002) 125767 Mál nr. BN045405
Haraldur Jónsson, Varmadalur 3, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja verkfæraskýli úr timbri og bárujárni norðan við íbúðarhúsið á lóðinni Varmadalur 3.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 fylgir erindinu.
Stærð: Verkfæraskýli, matshl. 04, 62,5 ferm. og 169,0 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 14.365
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Vegamótastígur 4 (01.171.404) 101413 Mál nr. BN045207
Ölstofa Kormáks og Skjaldar ehf, Lindargötu 25, 101 Reykjavík
Vegamótastígur 4 hf, Huldubraut 32, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðu útisvæði framan við veitingahús í flokki III á lóð nr. 4 við Vegamótastíg.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

35. Vesturvallagata 4 (01.134.507) 100391 Mál nr. BN038267
Kristinn Ágúst Halldórsson, Meistaravellir 13, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á tveim hæðum úr steinsteypu og bárujárnsklæddri timburgrind með timburþaki sbr. fsp. BN036646 við núverandi hús á lóð nr. 4 við Vesturvallagötu.
Stærðir: fyrir stækkun 53,7 ferm., 108,8 rúmm.
Stækkun: 122,7 ferm., 395,3 rúmm.
Eftir stækkun: 176,4 ferm., 504,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 9.000 + 35.577
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

36. Reynimelur 61 (01.524.303) 106038 Mál nr. BN045541
Frank M. Halldórsson og Betsy Halldórsson óska eftir að umsókn þeirra
BN044604 á lóðinni nr. 61 við Reynimel verði dregin til baka.
Bréf frá Frank og Betsy fylgir erindinu.

37. Stakkholt 2-4 (01.241.103) 103018 Mál nr. BN045539
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að sameina tvær lóðir,
annarsvegar Stakkholt 3 (staðgr. 1.241.017, landnr. 103012) sem er eignarlóð og hinsvegar Stakkholt 2-4 (staðgr. 1.241.103, landnr.103018) sem er leigulóð, í eina lóð eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar dags. 4. 2. 2013, og sem verði númeruð samkvæmt ákvörðun byggingarfulltrúa.
Lóðin Stakkholt 3 (staðgr. 1.241.017, landnr. 103012) er talin 2670 m², lóðin reynist 2671 m², teknir 2671 m² af lóðinni og lagðir við Stakkholti 2-4, lóðin Stakkholt 3 (staðgr. 1.241.017, landnr. 103012) verður 0 m² og verður afmáð úr skrám.
Lóðin Stakkholt 2-4 (staðgr. 1.241.103, landnr.103018) er 3877m², 2671 m² af lóðinni Stakkholt 3 bætt við lóðina, sameinuð lóð verður 6548 m² og verður númeruð samkvæmt ákvörðun byggingarfulltrúa, sameinaða lóðin verður því annars vegar 2671 m² eignarlóð og hinsvegar 3877 m² leigulóð.
Sjá samþykkt borgarráðs 20. 07. 2006 og auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, dags. 08. 08. 2006.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Fyrirspurnir

38. Austurstræti 16 (01.140.501) 100861 Mál nr. BN045512
Freyr Frostason, Brúnastekkur 10, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að starfrækja veitingahús á fyrstu hæð og hótel á efri hæðum hússins á lóðinni nr. 16 við Austurstræti.
Bréf hönnuðar dags. 24. janúar 2013 fylgir erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

39. Brautarholt 29 (01.251.001) 103432 Mál nr. BN045492
Sjómannaheimilið Örkin, Brautarholti 29, 105 Reykjavík
Spurt er hvort left yrði að byggja þriggja hæða viðbyggingu með 23 gistiherbergjum að suðurhlið Færeyska sjómannaheimilisins á lóðinni nr. 29 við Brautarholt.
Stærð viðbyggingar er u.þ.b. 760 fermetrar.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

40. Dalbraut 1 (01.350.006) 104124 Mál nr. BN045519
Dario Valter De Sousa, Hraunbær 107, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta veitingaverslun í rými ? í húsinu á lóð nr. 1 við Dalbraut.
Frestað.
Gera þar betur grein fyrir erindi.

41. Eddufell 2-8 (04.683.009) 112308 Mál nr. BN045527
Kristján Magnússon, Klukkuberg 26, 221 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyft yrði að starfrækja krá í veitingaflokki III í húsinu nr. 4 á lóðinni nr. 2-8 við Eddufell.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

42. Eyjarslóð 1 (01.111.502) 100028 Mál nr. BN045487
Hjól atvinnulífsins ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka um eina hæð til samræmis við hús nr. 3, húsið á lóðinni nr. 1 við Eyjarslóð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

43. Háaleitisbraut 29-35 (01.291.202) 103767 Mál nr. BN045494
Daniela Ilea Gunnarsson, Háaleitisbraut 35, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta nuddstofu í kjallara og á 1. hæð raðhúss nr. 35 á lóð nr. 29-35 við Háaleitisbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 fylgir erindinu.
Afgreitt
Fyrirspyrjandi hafi samband við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar.

44. Laugarnesvegur 34 (01.360.401) 104527 Mál nr. BN045528
Hanna Valdís Guðmundsdóttir, Laugarnesvegur 34, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja viðbyggingu við bílskúr húss á lóð nr. 34 við Laugarnesveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

45. Sogavegur 119 (01.823.011) 108342 Mál nr. BN045485
Friðrik Karl Weisshappel, Sogavegur 119, 108 Reykjavík
Jóhanna Norðdahl, Sogavegur 119, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja tæplega fimmtíu fermetra bílskúr á lóð nr. 119 við Sogaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

46. Súðarvogur 26 (01.454.109) 105626 Mál nr. BN045480
Einar Ásgeirsson, Sunnuvegur 11, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu að vesturhlið og jafnframt breyta í fjórar íbúðir annarri og þriðju hæð verslunar- og iðnaðarhússins á lóðinni nr. 26 við Súðarvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2013.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa frá 31. janúar 2013.

Fundi slitið kl. 12.15.

Björn Stefán Hallsson

Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Harri Ormarsson Jón Hafberg Björnsson
Sigurður Pálmi Ásbergsson Óskar Torfi Þorvaldsson
Eva Geirsdóttir