Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 25. nóvember, kl. 9:04 var haldinn 397. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Magnea Gná Jóhannsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjöldi barna á leikskólanum fer úr 150 í 200, byggingarreitur B1 er stækkaður þannig að megi koma fyrir hjóla-, vagna- og útigeymslum innan reitsins en byggingarmagn helst óbreytt. Auk þess er bíla- og hjólastæðum fjölgað, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 22. maí 2026. Einnig er lagt fram Samgöngumat Verkís, ódags. Tillagan var í auglýsingu frá 9. júlí 2026 til og með 20. ágúst 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Hrönn Valdimarsdóttir og Ágúst Skorri Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26050052
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar samþykkir breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A sem heimilar leikskóla fyrir allt að 200 börn. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur þó ákveðið að skólinn taki í upphafi við allt að 120 börnum. Ákvörðun um frekari fjölgun mun byggjast á þörf fyrir leikskólapláss og reynslu af starfseminni. Meirihlutinn tekur undir áhyggjur íbúa af umferð á Fossvogsvegi og leggur áherslu á örugga aðkomu barna að skólanum, hvort sem þau koma gangandi, hjólandi eða í bíl. Áður en börnum er fjölgað umfram 120 verður umferð metin á þeim tímum þegar flest börn koma í skólann og fara heim. Jafnframt verður kannað hvernig bílastæði við skólann og í nærliggjandi götum nýtast og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda metið. Við matið verður leitað til íbúa, foreldra og starfsfólks um reynslu þeirra af aðkomunni. Niðurstöðurnar verða kynntar umhverfis- og skipulagsráði og leikskóla- og daggæsluráði. Ráðist verður í þær úrbætur sem matið gefur tilefni til áður en næsti áfangi hefst.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja uppbyggingu nýs leikskóla á Fossvogsbletti en mikilvægt er að taka alvarlega áhyggjur íbúa af aukinni umferð og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Fyrirliggjandi samgöngumat sýnir að gatnakerfið getur tekið við áætlaðri umferð en bendir jafnframt á þörf fyrir sérstakar umferðaröryggisaðgerðir. Mikilvægt er að tryggja að þær verði útfærðar og framkvæmdar áður en leikskólinn tekur til starfa. Jafnframt þarf að skýra hvernig áform um að hefja starfsemi með 120 börnum samræmast skipulagsheimild fyrir allt að 200 börn og tryggja að frekari fjölgun byggist á raunverulegri þörf og mati á áhrifum á nærumhverfið.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokksins:
Kannski er kvörtun íbúa um vöntun á samráði byggð á misskilningi. Samkvæmt þessari kynningu kemur fram að þegar deiliskipulagsbreyting er auglýst gefst íbúum tækifæri til þess að gera athugasemdir. Það er samráðið sem talað er um. Líklega vita ekki allir af því.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 17. nóvember 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 17. nóvember 2026.
- Kl. 9:18 víkur Hjördís Sóley Sigurðardóttir af fundi. USK24070166
Fylgigögn
-
Fram fer kynning um samþykkt skilta í lögsögu Reykjavíkur.
Birgitta Rut Skúlad. Hjörvar tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25050098
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði fagna fyrirliggjandi uppfærslu á samþykkt um skilti í Reykjavík þar sem kveðið er á um einfaldara og skýrara regluverk, rýmri heimildir og skýrari tæknikröfur. Mikilvægt er að skýrt og aðgengilegt sé hvaða reglur gilda um uppsetningu skilta, hvort sem er í borgarlandi eða á einkalóðum, þannig að íbúar, rekstraraðilar og hönnuðir viti fyrirfram hvaða heimildir eru til staðar og hvenær þörf er á leyfisveitingu. Með einfaldara regluverki og skýrari viðmiðum er stuðlað að auknum fyrirsjáanleika, samræmdri málsmeðferð og skilvirkari þjónustu borgarinnar. Jafnframt er mikilvægt að svigrúm sé til fjölbreyttra og skapandi lausna sem styðja við atvinnustarfsemi og lifandi borgarumhverfi, samhliða því að gætt sé að ásýnd borgarinnar, öryggi vegfarenda og hagsmunum íbúa. Uppfærslan er liður í áherslum meirihlutans á einföldun regluverks, bætta þjónustu og aukinn fyrirsjáanleika í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu vetrarþjónustu í Reykjavík.
Karl Eðvaldsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26110281
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakka fyrir kynningu á vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar. Þeir þakka jafnframt starfsfólki borgarinnar og verktökum fyrir störf þeirra við snjómokstur og hálkuvarnir, oft við erfiðar aðstæður. Auk gatna þarf að sinna 506 km af stígum í efstu þjónustuflokkum. Þar af eru 90 km hjólastígar, 240 km stofnstígar og 176 km aðrir fjölfarnir stígar. Áætlaður kostnaður við vetrarþjónustuna á árinu 2026 er 1.258 milljónir króna. Samkvæmt kynningunni kostar hefðbundið útkall um 8,4 milljónir króna á dag en útkall við 10–20 cm snjókomu um 26 milljónir króna. Vetrarþjónusta krefst árvekni. Færð getur breyst hratt og aðstæður verið ólíkar eftir hverfum. Því skiptir máli að fylgjast vel með hálkumyndun og bregðast tímanlega við svo börn komist örugg í skólann, strætóleiðir haldist greiðfærar og aðgengi að sjúkrahúsum sé tryggt. Við snjómokstur þarf sérstaklega að gæta þess að snjóruðningar loki ekki göngu- og hjólaleiðum þar sem þær þvera götur. Meirihlutinn fagnar samstarfinu um vetrarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og telur mikilvægt að samræma viðvaranir til vegfarenda. Hitamyndavélar og frostmælar gætu gefið starfsfólki betri mynd af aðstæðum í einstökum hverfum. Þá er vert að kanna hvernig nýta megi gervigreind til að spá fyrir um hálku og meta hvenær og hvar þörf er á útkalli.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Verklag við vetrarþjónustu í Reykjavík er skýrt og í meginatriðum gott en það sem skiptir borgarbúa mestu máli er hvernig þjónustan skilar sér í framkvæmd. Fólk þarf að komast til vinnu, í skóla og sækja daglega þjónustu með öruggum hætti, hvort sem það gengur, hjólar, gengur, tekur strætó eða ekur bíl. Sérstaklega þarf að gæta þess að göngu- og hjólaleiðir verði ekki útundan þegar aðstæður eru erfiðar. Mikilvægt er að leggja reglulega mat á hvort tækjabúnaður, viðbragðsgeta og forgangsröðun mæti þörfum borgarbúa. Þá þarf að meta reynsluna af aukinni útvistun með tilliti til kostnaðar, þjónustugæða og viðbragðsgetu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokksins:
Með aukinni útvistun er meiri hætta á að gæði þjónustunnar minnki.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu vinnuskólans í Reykjavík.
Þorvaldur Guðjónsson, Ásdís Ásbjörnsdóttir og Gunnar Hersveinn Sigursteinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26110280
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Mikilvægt starf sem Vinnuskólinn hefur með höndum.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um endurskoðun aðgerðarbundinnar Umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára, sbr. 13. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. október 2026. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 9. nóvember 2026.
Samþykkt að vísa til frekari rýni umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar þar sem skoðað verði hvort fyrir hendi sé samráðsvettvangur innan sviðsins sem nýta megi til samráðs um umferðaröryggisáætlun. USK26100231- Kl. 11:19 víkur Guðmundur Benedikt Friðriksson af fundi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakka fyrir umsögnina og leggja til að tillögunni verði vísað til skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. Skrifstofan kanni hvort nýta megi núverandi eða sambærilegan samráðsvettvang til að fá fram sjónarmið íbúa og annarra hagaðila við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar án aukins kostnaðar fyrir borgina. Íbúar þekkja aðstæður í hverfum sínum og geta bent á staði þar sem úrbóta er þörf, meðal annars á gönguleiðum barna. Meirihlutinn leggur áherslu á að slíkar ábendingar séu metnar með hliðsjón af faglegu mati svo þær aðgerðir fái forgang sem líklegastar eru til að auka öryggi vegfarenda.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar sé í vinnslu en gildistíma fyrri áætlunar lauk árið 2023. Mikilvægt er að ný áætlun byggi á faglegri þekkingu, rannsóknum og slysagögnum en jafnframt að leitað verði markvisst eftir reynslu og þekkingu íbúa í hverfum borgarinnar. Slysatölur einar og sér gefa ekki heildarmynd af umferðaröryggi og upplifun vegfarenda. Sérstaklega þarf að huga að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og tryggja að börn geti komist sjálfstætt og örugglega í skóla og frístundastarf. Mikilvægt er að ný áætlun liggi fyrir á árinu 2027 með skýrum og mælanlegum markmiðum, tímasettum aðgerðum og reglulegri eftirfylgni.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar:
Lagt er til að Reykjavíkurborg láti vinna forhönnun og kostnaðarmat á varðveislu og endurbótum stúkunnar við Laugardalslaug, með það að meginmarkmiði að varðveita núverandi mannvirki og styrkja það með viðeigandi aðferðum. Byggt verði á fyrirliggjandi ástandsrannsóknum og áhættumati, en jafnframt lagt sjálfstætt mat á möguleika til styrkingar og endurbóta, þar á meðal með sjálfstæðu burðarvirki. Unninn verði samanburður á kostnaði, öryggi, endingartíma og umhverfisáhrifum varðveislu og endurbóta annars vegar og niðurrifs og nýbyggingar hins vegar. Samhliða verði unnin heildstæð hönnunartillaga þar sem framtíðarnotkun stúkunnar verði skilgreind og möguleikar á viðbyggingu við Sundlaugarveg kannaðir. Slík viðbygging, ein til tveggja hæða, gæti skapað ný rými, aukið notkunarmöguleika mannvirkisins og styrkt tengsl þess við nærliggjandi borgarumhverfi. Markmiðið er að tryggja að raunhæfar leiðir til varðveislu þessa merka mannvirkis hafi verið kannaðar til hlítar áður en tekin verður endanleg ákvörðun um niðurrif. Greinargerð fylgir tillögunni.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu eignastýringar. USK26110291
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir að umhverfis- og skipulagsráð fái hið fyrsta ítarlega kynningu á ástandi stúkumannvirkis Laugardalslaugar og fyrirhuguðum framkvæmdum. Óskað er eftir að fyrir ráðið verði lagðar allar fyrirliggjandi úttektir, rannsóknir og áhættumöt, ásamt upplýsingum um hvaða ákvarðanir hafa verið teknar, af hverjum og á hvaða forsendum. Sérstaklega verði gerð grein fyrir þeim valkostum sem hafa verið skoðaðir varðandi viðgerðir, styrkingu, varðveislu, breytta nýtingu og niðurrif mannvirkisins, þar á meðal nýlegum hugmyndum um sjálfstætt burðarvirki. Jafnframt verði kynntar fyrirliggjandi kostnaðaráætlanir, umhverfisáhrif, framkvæmdatímalína og næstu skref í málinu.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda- og fasteignaþjónustu. USK26110290
-
Fram fer umræða um áætlun starfsdags umhverfis- og skipulagsráðs í desember nk. USK26110288
- Kl. 11:37 víkur Brynjar Þór Jónasson af fundi.
Fundi slitið kl. 11:44
Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald
Birkir Ingibjartsson Friðjón R. Friðjónsson
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 25. nóvember 2026