Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 396

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 18. nóvember, kl. 9:09 var haldinn 396. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Sigrún E. Unnsteinsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Bjarni Rúnar Ingvarsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á rafrænum upplýsingaskjáum Strætó (ASHB).

    -    Kl. 9:13 taka Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Guðmundur Benedikt Friðriksson sæti á fundinum.

    Daði Áslaugarson og Emil Gauti Friðjónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25100285
     

  2. Fram fer kynning á niðurstöðum vinnustofu um Drápuhlíð og aðrar sambærilegar götur í Hlíðarhverfi.

    Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, Carl Henrik Larsson og Sturla Sigurðarson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK24100158

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakkar íbúum í Hlíðunum fyrir góða þátttöku í vinnustofu um framtíðarútfærslu Drápuhlíðar. Niðurstöður vinnustofunnar sýna glögglega mikilvægi þess að hafa íbúa með í ráðum þegar breytingar eru fyrirhugaðar í þeirra nærumhverfi. Framundan eru umfangsmiklar framkvæmdir Veitna í götunni sem skapa jafnframt tækifæri til að endurnýja og bæta göturýmið. Það er ánægjulegt að sjá hversu skýr samstaða myndaðist meðal þátttakenda um að halda í það sem vel hefur reynst, ekki síst núverandi fyrirkomulag skástæða og fjölda bílastæða, en leggja jafnframt áherslu á bætt umferðaröryggi, gangstéttir, lýsingu og aðgengi. Meirihlutinn leggur áherslu á að niðurstöður vinnustofunnar verði lagðar til grundvallar áframhaldandi hönnun götunnar í takt við það fjármagn sem liggur til grundvalla framkvæmdanna og að áfram verði haft gott samráð við íbúa. Markmiðið er að nýta framkvæmdirnar til að bæta umhverfi og þjónustu við íbúa, með lausnum sem taka mið af raunverulegum þörfum þeirra og njóta stuðnings í hverfinu.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að efnt hafi verið til vinnustofu með íbúum um framtíðarhönnun Drápuhlíðar. Slíkt samráð er til fyrirmyndar og mikilvægt að sjónarmið íbúa hafi raunveruleg áhrif á endanlega útfærslu. Niðurstöðurnar sýna jafnframt hversu vandasamt getur verið að samræma ólíka hagsmuni. Íbúar kalla eftir breiðari og betri gangstéttum, auknu umferðaröryggi, betri lýsingu, hleðsluinnviði og lægri umferðarhraða, en vilja jafnframt halda í núverandi bílastæði. Bílastæðatalningar sýna enda mjög mikla nýtingu á kvöldin og því þarf að fara varlega í fækkun stæða við núverandi aðstæður. Við áframhaldandi hönnun Drápuhlíðar þarf að leita bestu mögulegu lausnar með hliðsjón af óskum íbúa og almannahagsmunum. Þegar götur eru endurnýjaðar til næstu áratuga verður að horfa til heildarmyndarinnar. Öryggi og aðgengi allra vegfarenda vega þar þyngst, en ásýnd og gæði göturýmisins skipta einnig miklu máli. Markmið okkar á ávallt að vera að skapa fallegt, öruggt og gott borgarumhverfi fyrir alla ferðamáta.

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Fulltrúi Vinstrisins lýsir ánægju með þá vinnu sem unnin hefur verið við skipulagsmál Drápuhlíðar og útfærslu bílastæðamála þar. Vinnustofuformið sem nýtt var til að bjóða íbúum að koma að verkinu getur vafalítið orðið fyrirmynd að sambærilegri vinnu annars staðar og stuðlar að íbúalýðræði.

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins fagnar samráði við íbúa um breytingar á götum, bílastæðum og gangstéttum í Hlíðunum. Vinnustofa með íbúum var til fyrirmyndar og vonandi sést meira af slíku í framtíðinni.

    -    Kl. 10:00 víkur Friðjón R. Friðjónsson af fundi og Sigrún Ásta Einarsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti.
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 30. október 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
     

    Fylgigögn

  4. Lagt fram til afgreiðslu, drög að úthlutunarskilmálum styrktarsjóðs Reykjavíkurborgar til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar. USK26100517
    Samþykkt.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur ríka áherslu á uppbyggingu og eflingu grænna svæða í Reykjavík, meðal annars með markvissri skógrækt og þróun borgarskóga. Það er skýrt markmið nýs meirihluta að gróðursettar verði 50 þúsund trjáplöntur í borginni á kjörtímabilinu og þannig stuðlað að auknum gróðri, betra nærumhverfi og fjölbreyttari útivistarmöguleikum fyrir borgarbúa. Með reglum um styrki til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar er stigið skref í þá átt að efla samstarf borgarinnar við félagasamtök og fagaðila á sviði skógræktar og grænna innviða. Slíkt samstarf er mikilvægt til að tryggja faglega uppbyggingu borgarskóga þar sem tekið er mið af staðháttum, líffræðilegri fjölbreytni og langtímaumhirðu. Meirihlutinn telur mikilvægt að nýta þekkingu og reynslu þeirra aðila sem hafa sérhæft sig í skógrækt og uppbyggingu útivistarsvæða. Með markvissri forgangsröðun, skýrum markmiðum og öflugu samstarfi viljum við stuðla að því að græn svæði og borgarskógar verði enn mikilvægari hluti af borgarumhverfi Reykjavíkur til framtíðar.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að settur sé upp styrktarsjóður til eflingar skógræktar á landi Reykjavíkurborgar. Það er verðmætt að félagasamtök sem vilja leggja sitt af mörkum til að efla græn svæði, náttúru og útivist í borginni fái virkan stuðning af hálfu borgarinnar við að gera góða borg enn betri. Við teljum þó mikilvægt að við úthlutun styrkja verði sérstaklega horft til áhrifa skógræktar á núverandi vistkerfi og líffræðilega fjölbreytni. Vanda þarf val á svæðum og tegundum vel og gæta þess að skógrækt raski ekki öðrum náttúrugæðum að óþörfu. Mikilvægt er að skýrt sé hver beri ábyrgð á umhirðu og viðhaldi til lengri tíma og hvernig árangur verkefnanna verði metinn. Markmiðið hlýtur að vera að styrkirnir skili varanlegum ávinningi fyrir náttúruna, útivist og borgarbúa.
     

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á samræmingu skilta á opnum svæðum á höfuðborgarsvæðinu.

    Eva Ósk Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26110104

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar þeirri vinnu sem nú fer fram við að samræma merkingar og upplýsingaskilti á útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Samræmdar og skýrar merkingar bæta aðgengi, auðvelda fólki að rata og stuðla að auknu öryggi þeirra sem nýta fjölbreytt útivistarsvæði okkar. Sérstaklega er ánægjulegt að horft sé til Græna stígsins, sem tengir saman útivistarsvæði Græna trefilsins þvert á sveitarfélagamörk og skapar fjölbreytta möguleika til göngu, hjólreiða og útivistar. Skýrar og aðgengilegar merkingar á Græna stígnum eru jafnframt mikilvægt lýðheilsumál, enda geta þær hvatt fleiri borgarbúa til útiveru og reglulegrar hreyfingar. Með því að gera göngu- og hjólaleiðir sýnilegri og auðveldari í notkun stuðlum við að bættri lýðheilsu og auknum lífsgæðum borgarbúa. Meirihlutinn leggur áherslu á mikilvægi samstarfs sveitarfélaganna við að skapa heildstæða og aðlaðandi ásýnd útivistarsvæða. Með samræmdu skiltakerfi má jafnframt stuðla að hagkvæmni í hönnun, uppsetningu og viðhaldi skilta. Mikilvægt er að nýta þau tækifæri sem felast í verkefninu til að gera náttúru og útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins enn aðgengilegri fyrir íbúa og gesti.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir góða og faglega vinnu við samræmingu skilta á útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið er til fyrirmyndar og mikilvægt skref í átt að heildstæðari og vandaðri ásýnd opinna svæða. Við viljum jafnframt minna á þá miklu ábyrgð sem Reykjavíkurborg ber á hönnun, frágangi og viðhaldi borgarlandsins. Gæði og fagurfræði skipta máli, ekki aðeins fyrir ásýnd borgarinnar heldur einnig fyrir upplifun fólks og umgengni um sameiginleg svæði. Við eigum að gera ríkar kröfur til þessara þátta og varast að gefa afslátt af gæðum í nafni skammtímasparnaðar. Vel hönnuð og vel viðhaldin almenningsrými skapa bæði verðmæti og virðingu fyrir umhverfinu.
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 10. nóvember 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  8. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um hvernig eftirliti með götulýsingu og ljósastaurum í Reykjavík er háttað, sbr. 12. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins, dags. 8. nóvember 2026. USK26100007
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um reglubundin þrif á niðurföllum borgarinnar, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. nóvember 2026. USK26100013
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um hönnun og frágang hjólastíga í Reykjavík, sbr. 10. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 11. nóvember 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK26110148

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um innri leigu fasteigna í eignasjóði fyrir árin 2024, 2025 og 2026, sbr. 11. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 11. nóvember 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu eignastýringar. USK26110146

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 10:41

Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald

Birkir Ingibjartsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson

Sigrún Ásta Einarsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 18. nóvember 2026