Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 4. nóvember, kl. 9:04 var haldinn 394. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á kolefnisspori Reykjavíkur 2025, samfélagslegt og frá rekstri.
- Kl. 9:10 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
- Kl. 9:17 tekur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir sæti á fundinum.Hrönn Hrafnsdóttir og Stefán Þór Kristinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 9:28 víkur Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi. USK26100189
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihlutans fagna því að samkvæmt loftslagsbókhaldi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 hefur losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt BASIC+ uppgjöri dregist saman um 6% frá 2019. Sérstaklega er ánægjulegt að losun vegna samgangna hefur minnkað um 15%. Niðurstöðurnar sýna þó jafnframt að samdráttur í losun hefur gengið hægar en nauðsynlegt er til að ná metnaðarfullum loftslagsmarkmiðum borgarinnar. Þótt þróunin sé í rétta átt er ljóst að gera þarf betur til að ná fram þeim breytingum sem nauðsynlegar eru. Samgöngur eru enn stærsti einstaki losunarflokkurinn og þar liggja mikil tækifæri. Mikilvægt er að nýta tækniframfarir, hraðari orkuskipti, betri umferðarstýringu og skilvirkara samgöngukerfi til að draga áfram úr losun. Jafnframt þarf að huga að loftslagsáhrifum byggingarefna, landnotkunar og meðhöndlunar úrgangs, þar sem bókhaldið sýnir að losun vegna úrgangs hefur aukist þrátt fyrir verulega minnkun urðunar. Meirihlutinn leggur áherslu á að loftslagsaðgerðir borgarinnar byggist á traustum gögnum, skýrum árangursmælikvörðum og mati á kostnaði og ávinningi. Forgangsraða þarf þeim aðgerðum sem skila mestum mælanlegum árangri fyrir íbúa, umhverfi og fjárhag borgarinnar. Jafnframt er mikilvægt að greina áhrif orkuskipta, breyttrar umferðarhegðunar og annarra aðgerða sérstaklega, svo unnt sé að meta raunverulegan árangur stefnu og framkvæmda borgarinnar og bregðast tímanlega við ef framgangur markmiða er ekki nægjanlegur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Loftslagsbókhald Reykjavíkur fyrir árið 2025 sýnir að betur má ef duga skal ef Reykjavíkurborg vill ná markmiðum sínum fyrir árið 2030. Stærsti losunarflokkurinn er eftir sem áður samgöngur sem bera ábyrgð á um 57% af allri losun Reykjavíkur og innan þess flokks eru fólksbifreiðar um 53% af losun vegna samgangna. Þétting byggðar, aukin hlutdeild almenningssamgangna og það að gera fleirum kleift að ganga og hjóla sem mest snýst ekki bara um að búa til góða borg til að búa í heldur er það einnig mikilvægt loftslagsmál. Reykjavík á að vera borg þar sem loftslagsmál og lífsgæði haldast í hendur, þar sem öflugar almenningssamgöngur og góð þjónusta í hverfunum gera fólki kleift að velja grænni ferðamáta og Samfylking hvetur meirihlutann til að hvika hvergi frá markmiðinu um kolefnishlutleysi 2030.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Grænt bókhald, ásamt loftslagsbókhaldi borgarinnar og Grænu skrefunum, er ein undirstaða þess að Reykjavíkurborg nái markmiðum sínum um kolefnishlutleysi. Nú hefur meirihlutinn rekið það fólk sem hefur haldið utan um græna bókhaldið og Grænu skrefin og enginn hefur tekið við verkefnunum. Þá liggja engar upplýsingar fyrir um hvort þeim verkefnum verður yfirhöfuð haldið áfram. Þetta er mikið áhyggjuefni og það er dapurlegt að eina umhverfisáhersla þessa meirihluta sé að planta fimmtíu þúsund trjám. Græna bókhaldið og Grænu skrefin eru ekki einungis umhverfisverkefni heldur líka rekstrarmál og með öflugu utanumhaldi er hægt að ná umtalsverðum fjárhagslegum sparnaði, draga úr umhverfissóun og rekstrarkostnaði starfsstöðva. Niðurlagning þessara sérfræðistarfa bendir til þess að engin rýni eða mat hefur farið fram hjá þessum meirihluta á mikilvægi starfa eða þörf þeirra verkefna sem unnin eru af starfsfólki Reykjavíkurborgar og afhjúpar að innan hans virðist enginn bera umhyggju fyrir umhverfisvernd og að ná niður kolefnisspori Reykjavíkur.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að umhverfis- og skipulagssvið, undir stjórn umhverfis- og skipulagsráðs, hefji strax undirbúning að endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur. Sérstakur stýrihópur, skipaður af umhverfis- og skipulagsráði mun hafa yfirumsjón með verkinu. Endurskoðun mun m.a. fela í sér endurmat á framtíðarsýn og lengingu skipulagstímabils auk endurskoðunar á stefnuákvæðum fyrir valin svæði og málaflokka.
Greinargerð fylgir tillögu.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Haraldur Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100475
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Aðalskipulag Reykjavíkur er ein mikilvægasta stefnumótandi áætlun borgarinnar enda leggur það grunninn að því hvernig Reykjavík þróast og byggist upp til framtíðar. Þar er mörkuð stefna um húsnæðisuppbyggingu, atvinnusvæði, samgöngur, græn svæði og lífsgæði borgarbúa. Mikilvægt er að sú framtíðarsýn taki mið af breyttum þörfum samfélagsins og þeim tækifærum og áskorunum sem borgin stendur frammi fyrir. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að undirbúningur endurskoðunar aðalskipulagsins verði unninn af fagmennsku, með vönduðum greiningum, skýrri markmiðasetningu og víðtæku samráði við íbúa, hagaðila og nágrannasveitarfélög. Sérstaklega þarf að horfa til framtíðarþarfa í húsnæðismálum, þróunar byggðar og samgangna og þess hvernig tryggja megi fjölbreytta og aðlaðandi borg fyrir komandi kynslóðir. Sjálfbærni og loftslagsmál verða jafnframt mikilvægir þættir í vinnunni. Við endurskoðunina þarf að horfa til þess hvernig skipulag borgarinnar getur stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda, aukinni nýtingu vistvænna samgöngumáta og ábyrgri nýtingu lands. Jafnframt þarf að huga að aðlögun að loftslagsbreytingum, verndun grænna svæða og líffræðilegrar fjölbreytni og því hvernig skipulag getur stuðlað að heilnæmu og öruggu borgarumhverfi. Endurskoðun aðalskipulags er umfangsmikið og mikilvægt verkefni sem þarf að gefa nauðsynlegan tíma og vinna þverpólitískt og í sátt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Aðalskipulag Reykjavíkur leggur fram með hvað skýrustum hætti hver framtíðarsýn borgarinnar er hverju sinni. Núgildandi Aðalskipulag Reykjavíkur markaði á sínum tíma vatnaskil um þróun borgarinnar þar sem áratuga útþensla var loks stöðvuð. Í staðinn var sett fram stefna um að efla borgina inn á við og horfa til þess að gera fjölbreyttum ferðamátum hátt undir höfði. Voru þar markmið um betri og mannvænni borg, aukin þjónusta og bætt loft- og hljóðgæði í eldri hverfum borgarinnar höfð að leiðarljósi, auk áherslna í stóra samhenginu um kolefnishlutleysi borgarinnar. Nú liggja fyrir stór verkefni sem borgin þarf að taka til skoðunar og skilgreina hvernig þau styðja sem best við vöxt borgarinnar. Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja að undirbúningur á endurskoðun Aðalskipulags borgarinnar hefjist en leggja áherslu á að hún styrki þá stefnu sem mörkuð var um vöxt innan núverandi vaxtarmarka, uppbyggingu Borgarlínu, fjölbreytt húsnæði fyrir alla tekjuhópa, auknar kröfur um gróðursvæði og sólrík dvalarsvæði, Miklubrautargöng, Sæbrautarstokk og mat á kolefnisspori nýrra uppbyggingarsvæða. Endurskoðunin má ekki leið aftur til ótakmarkaðrar útþenslu byggðar sem kostar borgarbúa meira í innviðum, tíma, losun og það sem verst er, vondu borgarumhverfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Það er mikilvægt að borgarskipulagið sé í stöðugri þróun og endurskoðun með tilliti til breyttrar samfélagsgerðar. Þrátt fyrir fjölmargar eldri kannanir á búsetuóskum og húsnæðisþörfum Reykvíkinga hefur því miður ekki verið unnið skipulega með þær niðurstöður. Samkvæmt gögnum frá HMS hefur til dæmis ekki verið tekið nægjanlegt tillit til óska eldra fólks um það hvernig það vill búa. Þetta hefur m.a. orðið þess valdandi að húsnæðishringrásin hefur nánast stíflast. Eldri borgarar sitja fastir í stórum eignum, um það bil helmingur þeirra vill minnka við sig en finna ekkert við sitt hæfi. Vonandi verður væntanlegt samstarf við HMS og SSH til þess að hlustað verði betur á íbúa og nákvæmari kannanir gerðar fyrir alla aldurshópa og tekjuhópa. Hinn svokallaði markaður er greinilega ekki að byggja það sem fólk vill.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf., dags. 4. september 2025, um breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Sóltún. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að bæta við inndreginni 6. hæð ofan á húsið. Byggingarmagn helst óbreytt, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Yrki arkitekta ehf., dags. 20. október 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25090066
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar taka jákvætt í að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna Sóltúns 4 fari í lögbundið auglýsingarferli. Meirihlutinn leggur áherslu á að stuðla að fjölbreyttri íbúðauppbyggingu og góðri nýtingu byggingarlands á svæðum þar sem innviðir, almenningssamgöngur og þjónusta eru þegar til staðar. Fyrirliggjandi tillaga felur í sér að heimila afmarkaða, inndregna sjöttu hæð á hluta byggingarinnar án þess að heildarbyggingarmagn eða fjöldi íbúða aukist frá fyrri heimildum. Í greinargerð tillögunnar er sérstaklega fjallað um samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, aðliggjandi byggðarmynstur og áhrif fyrirhugaðrar hækkunar á nærliggjandi byggð. Með því er leitast við að bregðast við þeim annmörkum sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála benti á í fyrri afgreiðslu málsins. Meirihlutinn telur mikilvægt að tryggja vandaða uppbyggingu sem tekur mið af nærumhverfi, birtuskilyrðum, skuggavarpi og hagsmunum nágranna. Með auglýsingu tillögunnar gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en endanleg afstaða er tekin til breytingarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsókn BBL 177 ehf., dags. 28. september 2026, um breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 27 við Klettagarða. Í breytingunni sem lögð er til felst að bílastæðum verður fjölgað á lóðinni ásamt því að heimilt verði að afmarka allt að 81 rafhleðslustöðvarstæði fyrir hópbifreiðir í tengslum við rekstur á lóðinni, samkvæmt uppdr. Unit ehf., dags. 20. október 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26090426
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar fagna framkominni tillögu að breytingu á deiliskipulagi Klettagarða 27 og styðja að hún fari í lögbundið auglýsingarferli. Öflugir hleðsluinnviðir eru ein af lykilforsendum þess að hægt sé að hraða orkuskiptum í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Með fyrirhugaðri breytingu skapast svigrúm fyrir allt að 85 rafhleðslustæði fyrir hópbifreiðar á lóðinni og þar með mikilvæg aðstaða til að styðja við rafvæðingu strætisvagna og annarra hópbifreiða. Meirihlutinn leggur áherslu á að Reykjavíkurborg greiði fyrir nauðsynlegri innviðauppbyggingu með skilvirkri skipulagsvinnu og fyrirsjáanlegum afgreiðsluferlum. Það er mikilvægt að skipulagsheimildir og aðgengi að hentugum athafnasvæðum verði ekki hindrun í vegi orkuskipta heldur stuðli að hraðari innleiðingu vistvænni samgangna. Með þessari breytingu er stigið mikilvægt skref í þá átt að skapa raunhæfar forsendur fyrir áframhaldandi orkuskiptum í almenningssamgöngum, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta loftgæði í borginni.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 27. október 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 15. október 2026, þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki sérákvæði fyrir umferð: Að tvö bifreiðastæði næst vesturhluta lóðarinnar við Bríetartún 11 hafi 15 mínútna hámarkstíma milli kl. 07:30–10:00 og 15:00–16:30 mánudaga til föstudaga.
Samþykkt. USK26010083Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar samþykkt tillögu um skammtímastæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni 11. Tvö stæði verða með 15 mínútna hámarkstíma kl. 7:30–10:00 og 15:00–16:30 á virkum dögum. Breytingin auðveldar foreldrum að koma með börn sín og sækja þau í leikskólann. Þetta er mikilvægt úrbótaskref sem einfaldar daglegt líf barnafjölskyldna.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 19. október 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir Sorpu bs. dags. 16. september 2026, 28. september 2026 og 2. október 2026. USK23010167
Fylgigögn
-
Aflétt úr trúnaðarbók, niðurstaða valnefndar um úthlutun námsstyrks Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur sem lögð var fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs, 2. liður, dags. 2. september 2026. USK25110423
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar, sbr. 18. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 23. september 2026. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu dags. 18. október 2026. USK26090373
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Miðflokksins:
Borgarfulltrúi Miðflokksins þakkar fyrir veitt svar, en finnst miður að ekki skuli svarað spurningu um nýtingu brúar fyrir gangandi og hjólandi spölkorn frá þeim gatnamótum sem fjallað er um. Brúin er glæsilegt sérhæft mannvirki fyrir þessa umferðarhópa og hlýtur að hafa átt að gegna veigamiklu hlutverki fyrir þessa samgöngumáta. Það væri æskilegt að hvetja til þess að gangandi og hjólandi nýti sér þessa mikilvægu samgöngubót til aukins öryggis.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um deiliskipulagsvinnu sérstaklega ætlað eldri borgurum, sbr. 18. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 21. október 2026.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa. USK26100356Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 15. október 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina að Langavatnsvegi 3. USK25080143
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:49
Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald
Birkir Ingibjartsson Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
Friðjón R. Friðjónsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Magnea Gná Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 4. nóvember 2026