Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 391

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 14. október, kl. 9:01 var haldinn 391. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Friðjón R. Friðjónsson, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Þorvaldur Daníelsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Ásdís Ásmundsdóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Guðni Guðmundsson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Hreinn Ólafsson, Líf Geirfinnud. Gunnlaugsdóttir, Matthías Bernhöj Daðason, Ragnheiður Sigvaldadóttir, Tómas G. Gíslason og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram í trúnaðarbók fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagssviðs fyrir árin 2027 - 2030, drög að gjaldskrá fyrir umhverfis- og skipulagssvið árið 2027, drög að greinargerð umhverfis- og skipulagssviðs með fjárhagsáætlun 2027 og drög að rekstraryfirliti aðal- og eignasjóðs fyrir árið 2027. Einnig er lögð fram tillaga að úthlutun fjárheimilda árið 2027, forsendur fjárhagsáætlunar 2027 - 2030 og tíma- og verkáætlun fjárhagsáætlunar 2027.
    Umhverfis- og skipulagsráð staðfestir að drög að starfs- og fjárhagsáætlun séu í samræmi við ákvarðanir fagráðs um áherslur og forgangsröðun og markaða stefnu í málaflokknum.

    -    Kl. 9:53 víkur Þorvaldur Daníelsson af fundi og Magnea Gná Jóhannsdóttir tekur sæti á fundinum.

    -    Kl. 9:55 víkja Hreinn Ólafsson, Ásdís Ásmundsdóttir, Guðni Guðmundsson, Matthías Bernhöj Daðason, Ragnheiður Sigvaldadóttir, Líf Geirfinnud. Gunnlaugsdóttir og Tómas G. Gíslason af fundi.

    -    Kl. 9:56 víkur Ari Edwald af fundi og Kristín K. Waage Kolbeinsdóttir tekur sæti á fundinum. USK26030339

    Bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. september 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Lágmúla 2. Skipulagssvæðið liggur að Kringlumýrarbraut til vesturs, Suðurlandsbraut til norðurs og Lágmúla til austurs. Til suðurs liggja mörk nýs deiliskipulags að lóðamörkum Lágmúla 2A (borhola í eigu Veitna) og Lágmúla 4, sem og að borgarlandi til suðvesturs af lóð. Viðfangsefni deiliskipulagsins er að ákvarða byggingarreiti á lóð og útlista nánar skilyrði og skilmála uppbyggingar. Einnig er lagt fram samgöngumat VSÓ ráðgjafar, dags. september 2026. Innkomnar athugasemdir og umsagnir vegna skipulagslýsingar kynnt.

    Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080285

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna áformum um að breyta vannýttu bílastæði við Lágmúla í fallega, blandaða byggð í nálægð við atvinnu, þjónustu og fyrirhugaða Borgarlínu. Verkefnið á rætur í alþjóðlegri loftslagssamkeppni C40 þar sem lögð var áhersla á kolefnishlutleysi, félagslega blöndun og gæði borgarumhverfis. Mikilvægt er að þau markmið endurspeglist í endanlegu skipulagi, meðal annars með fjölbreyttum búsetukostum, grænum svæðum og öruggum göngu- og hjólatengingum.
     

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á kortlagningu ástands gangstétta í borgarlandi og skipulagi viðhalds.

    Anna Kristín Sigursteinsdóttir og Gísli Rúnar Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 10:52 víkur Birkir Ingibjartsson af fundi og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir tekur sæti á fundinum. USK26090394

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Þakkað er fyrir góða kynningu á ástandi gangstétta og þeirri kortlagningu sem unnin hefur verið. Mikilvægt er að tryggja markvisst og reglubundið viðhald gangstétta og að unnið sé kerfisbundið að úrbótum þar sem þörfin er mest. Sérstaklega þarf að huga að gangstéttum sem liggja innan eignarlands og skoða með hvaða hætti megi tryggja fullnægjandi viðhald þeirra. Einnig er mikilvægt að upplýsa almenning um viðhald sem lokið er á stéttum borgarinnar. 
     

  4. Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, að nýju deiliskipulagi fyrir Loftleiðareit. Skipulagssvæðið afmarkast af Hlíðarfæti í norðri, Nauthólsvegi í austri og lóðamörkum aðliggjandi lóða í vestri (Reykjavíkurflugvöllur) og suðri (Isavia). Fyrirhugað er að þróa reitinn sem lífsgæðakjarna með blandaðri notkun íbúðarbyggðar, leik- og grunnskóla, hjúkrunarheimilis, hótelstarfsemi, verslunar og þjónustu. Lýsingin var kynnt frá 8. maí 2026 til og með 5. júní 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Innkomnar athugasemdir og umsagnir vegna skipulagslýsingar kynnt.

    Óskar Örn Arnórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040244

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Stutt er að áfram verði unnið að deiliskipulagi Loftleiðareits með það að markmiði að skapa lífsgæðakjarna með fjölbreyttri búsetu og þjónustu. Athugasemdir Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Isavia um hávaða, loftmengun og nálægð við flugvallarstarfsemi eru teknar alvarlega, sérstaklega með tilliti til barna og aldraðra. Við áframhaldandi vinnu verði sýnt fram á hvernig tryggja megi viðunandi umhverfisgæði og brugðist við athugasemdum umsagnaraðila með nauðsynlegum breytingum og skýrum skilmálum áður en endanleg afstaða er tekin til deiliskipulagstillögu.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar eru jákvæðir gagnvart uppbyggingu lífsgæðakjarna á Loftleiðareit. Þar gefst tækifæri til að skapa fjölbreytt búsetuúrræði fyrir eldra fólk, hjúkrunarrými og þjónustu í nálægð við Borgarlínu, í nálægð við frábær útivistarsvæði og vaxandi byggð við Öskjuhlíð. Sérstaklega er ánægjulegt að gert sé ráð fyrir 30% hagkvæmum og vistvænum íbúðum og 5% félagslegu húsnæði. Athugasemdir Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Isavia um hljóðvist, loftmengun og flugöryggi þarf að taka alvarlega. Heilsa og öryggi barna, eldra fólks og annarra íbúa verða að vera tryggð. Borgarstjórn samþykkti 1. apríl 2025 að beita sér fyrir flutningi einkaþotna og almenns kennslu- og þyrluflugs frá Reykjavíkurflugvelli, samhliða því að tryggja áætlunar- og sjúkraflug. Mikilvægt er að fylgja þeirri samþykkt eftir og meta sérstaklega hvort slíkar breytingar geti dregið nægilega úr hávaða og loftmengun til að uppfylla viðmið fyrir fyrirhugaða byggð. Jafnframt þarf að meta möguleg áhrif nýrra bygginga á flugöryggi. Fulltrúar Samfylkingarinnar vilja sjá þetta mikilvæga verkefni verða að veruleika, enda verði sýnt fram á að kröfur um lýðheilsu og flugöryggi séu uppfylltar.
     

    Fylgigögn

  5. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn TÓ arkitekta ehf., dags. 5. mars 2026, um breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta notkun hússins þannig að heimilt verði að reka þar hótel með allt að 90 herbergjum. Breytingin felur einnig í sér heimild til hækkunar hússins um eina inndregna hæð ásamt heimild til að grafa frá húsinu austanverðu til að sækja birtu ofan í kjallara, samkvæmt uppdr. TÓ arkitekta, dags. 14. apríl 2026, br. eftir auglýsingu. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 1. apríl 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. september 2026.
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2026.
    Vísað til borgarráðs.

    Óskar Örn Arnórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030120

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihlutinn samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1, Valhallar, með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu. Tillagan felur meðal annars í sér að heimila hótelstarfsemi með allt að 90 herbergjum, hækkun hússins um eina inndregna hæð og breytingar vegna nýtingar kjallara. Fyrirhuguð hótelstarfsemi samræmist Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040, enda er lóðin á miðsvæði M2b þar sem meðal annars er gert ráð fyrir hótelum, veitingastöðum, skrifstofum og annarri þjónustustarfsemi. Við meðferð málsins hafa komið fram athugasemdir sem lúta meðal annars að eignarhlutdeild á sameiginlegri lóð, þinglýstum samningum og réttindum tengdum bílastæðum. Meirihlutinn áréttar að með samþykkt deiliskipulagsins er ekki tekin afstaða til þess einkaréttarlega ágreinings sem uppi er milli aðila um eignarrétt eða afnotarétt af bílastæðum eða önnur réttindi á lóðinni. Deiliskipulagsáætlun getur ekki ráðstafað eða hróflað við slíkum eignarréttindum og verður ágreiningur um þau leystur milli viðkomandi aðila eða, eftir atvikum, fyrir dómstólum. Afgreiðsla ráðsins byggir því á skipulagslegum forsendum málsins og felur ekki í sér úrlausn Reykjavíkurborgar um einkaréttarleg réttindi einstakra eigenda eða samlóðarhafa.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar eru jákvæðir gagnvart því að Valhöll við Háaleitisbraut fái nýtt hlutverk. Það er skynsamlegt að nýta betur lóð og húsnæði sem þegar stendur og þróa byggðina áfram. Við gerum ekki athugasemd við eina inndregna hæð, enda verði byggingarlistarlegt gildi hússins varðveitt. Sérstaklega fögnum við því að jarðhæðin eigi að vera opin almenningi með verslun eða þjónustu sem glæðir götuna lífi. Bílastæðamál ættu ekki ein og sér að stöðva verkefnið. Á Valhallarreitnum er gert ráð fyrir 74 íbúðum með 66 stæðum í bílakjöllurum og 49 stæðum á yfirborði. Samgöngumatið áætlar mesta samtímaþörf á yfirborði um 35 stæði. Mikilvægt er þó að skýra hvernig samnýtingu stæðanna verður háttað, tryggja réttindi samlóðarhafa og útfæra örugga aðkomu hópbifreiða og vöruflutninga.
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 6. október 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  8. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 28. september 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að fara í heildstæða rýni á umferðaröryggi við leikskóla og grunnskóla í Reykjavík. Við rýnina verði stuðst við fyrirliggjandi gögn um umferðaröryggi, þar á meðal umferðaröryggisáætlanir, fyrirliggjandi forgangsröðun framkvæmda, válista og aðrar greiningar sem unnar hafa verið á vegum borgarinnar, auk ábendinga og kvartana sem borist hafa frá íbúum og skólasamfélaginu.

    Greinargerð fylgir tillögu.

    Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga umhverfis- og skipulagsráðs:

    Umhverfis- og skipulagsráð leggur til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að fara í heildstæða rýni á umferðaröryggi við leikskóla og grunnskóla í Reykjavík. Við rýnina verði stuðst við fyrirliggjandi gögn um umferðaröryggi, þar á meðal umferðaröryggisáætlanir, fyrirliggjandi forgangsröðun framkvæmda, válista og aðrar greiningar sem unnar hafa verið á vegum borgarinnar, auk ábendinga og kvartana sem borist hafa frá íbúum og skólasamfélaginu. Niðurstöður rýninnar ásamt aðgerðalista verði lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsráð eigi síðar en 1. mars 2027. Brýnum öryggisúrbótum sem þegar hafa verið skilgreindar verði ekki frestað vegna rýninnar.

    Breytingartillaga samþykkt.
    Tillagan er samþykkt svo breytt. Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK26100170

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Fulltrúar meirihlutans fagna því að ráðist verði í heildstæða rýni á umferðaröryggi við leik- og grunnskóla í Reykjavík. Mikilvægt er að byggt verði á fyrirliggjandi gögnum, greiningum og ábendingum skólasamfélagsins þannig að skýr yfirsýn fáist yfir stöðu mála og hægt verði að forgangsraða aðgerðum þar sem þörfin er mest. Meirihlutinn leggur áherslu á að vinnan skili skýrum tillögum að úrbótum og að markmiðið sé að bregðast við þeim stöðum þar sem foreldrar og forráðamenn treysta umferðaraðstæðum ekki nægilega vel til að börn geti ferðast sjálfstætt og á öruggan hátt til og frá skóla.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Öll börn í Reykjavík eiga að geta ferðast örugg til og frá skóla, óháð því í hvaða hverfi þau búa. Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja heildstæða rýni á umferðaröryggi við leik- og grunnskóla borgarinnar. Mikil vinna hefur þegar verið unnin á þessu sviði og fyrir liggja greiningar, válistar og ábendingar foreldra og skólasamfélagsins. Mikilvægt er að ný úttekt skili raunverulegum úrbótum en verði ekki enn eitt skjalið í skúffunni. Við leggjum áherslu á að rýnin nái til skólaleiða barna í heild og helstu leiða þeirra til íþrótta og frístunda, en takmarkist ekki við næsta nágrenni skólanna. Sérstaklega þarf að huga að öruggum göngu- og hjólaleiðum, gatnamótum og gönguþverunum, ökuhraða, lýsingu, aðgengi fyrir alla og vetrarþjónustu. Óskað er eftir skýrri tímasetningu, forgangsraðaðri framkvæmdaáætlun og kostnaðarmati. Þar sem hættulegar aðstæður eru þegar þekktar eiga úrbætur ekki að bíða eftir frekari greiningum.
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Lagt er til að umhverfis- og skipulagssviði, í samstarfi við skóla- og frístundasvið, verði falið að skoða mögulegar útfærslur á sérmerktum skammtímastæðum, sleppistæðum, í nágrenni við leikskólann að Bríetartúni 11. Sviðið leggi í kjölfarið fram tillögu fyrir umhverfis- og skipulagsráð um útfærslu stæðanna, staðsetningu þeirra og viðeigandi merkingar, með það að markmiði að auðvelda foreldrum og forsjáraðilum að koma með og sækja börn í leikskólann með öruggum og greiðum hætti.

    Greinargerð fylgir tillögu.
    Samþykkt. Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK26100165

    Fylgigögn

  11. Samþykkt að taka inn með afbrigðum svohljóðandi tillögu áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Lagt er til að umhverfis- og skipulagssviði, í samráði við skóla- og frístundasvið, verði falið að skoða útfærslur á sérmerktum skammtímastæðum og sleppistæðum við og í nágrenni við skólabyggingar þar sem þau vantar. Í kjölfarið verði tillaga um útfærslu stæðanna og framkvæmdaáætlun lögð fyrir umhverfis- og skipulagsráð. Tillögunni er ætlað að koma til móts við umönnunaraðila barna sem koma og sækja börn í bíl, í leik- og grunnskóla og frístundum.

    Samþykkt. USK26100235

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Fulltrúa Vinstrisins er þakkað fyrir góða viðbót við tillögu okkar um bætt stæðismál við leikskólann í Bríetartúni. Meirihlutinn tekur undir að mikilvægt er að sambærilegar úrbætur verði jafnframt skoðaðar við aðrar leik- og skólabyggingar þar sem þörf er á.
     

  12. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um að fá kynningu á Maskínukönnun sem var gerð árið 2025 um sorphirðu í Reykjavík sbr. 18. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 7. október 2026.
    Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs. USK26100125

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að hefja undirbúning að endurskoðun aðgerðarbundinnar Umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára. Skulu viðhöfð ný vinnubrögð þar sem lýðræðislegum aðferðum er beitt við gerð hennar með aukinni aðkomu íbúa í hverfum. Áfram verði einnig unnið með sérfræðingum á sviði umferðaröryggismála og annars fagfólks. Þá verði leitað samráðs fulltrúa Vegagerðarinnar, Lögreglunnar, Samgöngustofu og hagsmunasamtaka eins og við á. Að vinnu lokinni skal umferðaröryggisáætlunin send í samráðsgátt til umsagnar. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að vísa tillögunni til skrifstofu samgöngustjóra sem heldur utan um útfærslu og umgjörð verkefnisins og leitar liðsinnis annarra viðeigandi sviða og starfsfólks eins og þurfa þykir. Skal fyrirkomulag og útfærsla vinnunnar kynnt ráðinu í síðasta lagi í upphafi næsta árs og endurskoðunin unnin á árinu 2027.

    Frestað. USK26100231
     

Fundi slitið kl. 12:35

Friðjón R. Friðjónsson Bjarnveig Birta Bjarnadóttir

Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson

Sigrún Ásta Einarsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2026