Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 30. september, kl. 9:05 var haldinn 389. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Brynjar Þór Jónasson, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Björgvin Rafn Sigurðarson.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á ECT verkefni sem snýr að rannsókn á ferðavenjum og hvaða áhrif bílastæði neðanjarðar og ofanjarðar hafa. M.a. voru tekin viðtöl við uppbyggingaraðila og íbúa auk LCA greininga (lífsferilsgreininga).
Hrönn Hrafnsdóttir, Böðvar Þórisson, Ásrún Óskarsdóttir, Christopher John Kane, Herdís Sigurgrímsdóttir og Herdís Tómasdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:11 víkur Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi. USK24120075
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir umfangsmikla vinnu við ECT-rannsóknarverkefnið og telur niðurstöður þess mikilvægt innlegg í áframhaldandi stefnumótun Reykjavíkurborgar í bílastæða- og samgöngumálum. Verkefnið dregur skýrt fram að tengsl bílastæða, ferðavenja og uppbyggingar eru margþætt og að ólíkar lausnir geta hentað eftir staðsetningu og aðstæðum. Framboð, staðsetning og útfærsla bílastæða hefur áhrif á ferðavenjur, landnotkun, uppbyggingu og kolefnisspor og því mikilvægt að horfa heildstætt á þessa þætti. Sérstaka athygli vekja niðurstöður viðtala við fasteignaþróunaraðila og aðra fagaðila á fasteignamarkaði. Þar kemur skýrt fram að aðgengi að bílastæðum er enn talið skipta verulegu máli fyrir söluvænleika nýrra íbúða. Jafnframt kemur fram gagnrýni á að bílastæðaviðmið borgarinnar hafi verið of ströng miðað við núverandi bílaeign og framboð annarra raunhæfra samgöngukosta. Á sama tíma sýna niðurstöðurnar að staðsetning eða aðgengi að bílastæðum ein og sér tryggir ekki breytingar á ferðavenjum. Aðgengi að öruggum göngu- og hjólastígum ásamt góðum almenningssamgöngum er lykilforsenda þess að fólk breyti ferðamáta sínum. Meirihlutinn telur niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að Reykjavíkurborg beiti sveigjanlegri nálgun við ákvörðun bílastæða í nýrri uppbyggingu.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir góða kynningu. Í henni komu fram mikilvæg gögn sem nýtast við að taka skynsamlegar ákvarðanir um samgöngur í Reykjavík. Sérstaklega var gagnlegt að sjá hvernig aðrar borgir sem einnig liggja mjög norðarlega í Evrópu hafa náð að fækka bílferðum með því að bæta göngu- og hjólaleiðir og almenningssamgöngur. Áherslan þar hefur verið á að fólk noti aðra samgöngumáta en bílinn í daglegum ferðum sínum til og frá vinnu, bæði með stuðningi við starfsfólk sem velur aðra ferðamáta en bílinn og með gjaldtöku fyrir bílastæði við vinnustaði. Kynningin undirstrikaði að samgöngur framtíðarinnar snúast um að skapa raunverulegt val með öruggum göngu- og hjólaleiðum, öflugum almenningssamgöngum og fjölbreyttum bílastæðalausnum. Þetta er lærdómur sem gæti nýst til að draga úr umferðaröngþveiti á álagstímum í Reykjavík. Við leggjum jafnframt áherslu á að borgin taki áfram þátt í evrópskum samstarfsverkefnum af þessu tagi. Verkefnið er að fullu fjármagnað úr erlendum sjóðum og færir borginni verðmætar rannsóknir og þekkingu sem nýtast við stefnumótun og upplýsta ákvarðanatöku.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Reykjavíkurborg hefur sett sér metnaðarfull og nauðsynleg markmið um kolefnishlutleysi og þarf að vinna að þeim á öllum sviðum borgarsamfélagsins. Hins vegar kemur stærsta kolefnisspor borgarinnar frá samgöngum og það er mikið verk fyrir höndum að ná því niður. Það er því gríðarlega mikilvægt að nýta sér þau frábæru rannsóknargögn sem kynnt voru ráðinu í dag til heildstæðrar stefnumótunar um hvernig við breytum ferðavenjum, skipuleggjum sjálfbæra og umhverfisvæna byggð og aukum hlutdeild virkra ferðamáta enn frekar. Nú nýlega hafa Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn beinlínis lagt fram tillögur og samþykkt þær sem vinna gegn loftslagsmarkmiðum Reykjavíkur og Aðalskipulagi. Tillögurnar munu leiða af sér aukna bílaumferð með tilheyrandi öngþveiti og mengun í borginni. Slíkar ákvarðanir eru ekki í þágu samfélagsins, framtíðar kynslóða og umhverfisins og munu draga dilk á eftir sér. Það verður torsótt að vinda ofan af vondum ákvörðunum þessara flokka fái þær að koma til framkvæmda en það er ekki of seint að endurskoða þær. Borgarfulltrúi Vinstrisins hvetur fulltrúa D,C og B til þess.
Fylgigögn
- ECT_Travel Habits Board Game_sept2026
- ECT_Recommendations for policy-making on changing travel habits_sept2026
- ECT_Mobility hubs and carbon footprint of parking solutions_sept2026
- ECT_Policy formulation on changing travel behaviour_sept2026
- ECT_parking_solutions_of_the_future_community_attitudes_sept2026
- ECT_Ferðavenjuspilið_sept2026
- ECT_Ráðleggingar um stefnumótun um breyttar ferðavenjur_sept2026
- ECT_Bílastæðahús sem samgöngumiðja og kolefnisspor bílastæðalausna_sept2026
- ECT_Bílastæði framtíðar_viðhorf samfélagsins_sept2026
- ECT_Stefnumótun um breyttar ferðavenjur_Greining á stefnum_sept2026
- Kynning
-
Fram fer kynning á flotastýringu á stöðvalausum rafhlaupa- og hjólaleigum í borgarlandi Reykjavíkur.
Gian-Luca Tellenbach tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK21120013
-
Fram fer kynning á útfærslum á beygjuakreinum á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls.
Azhar Saeed tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. Hörður Bjarnason, Guðrún Birta Hafsteinsdóttir og Nils Schwarzkopp taka sæti á fundinum. USK26080435
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Miðflokksins um beygjuakreinar á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls dags. 13. júlí 2026. og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 24. september 2026.
Fulltrúi Miðflokksins dregur tillöguna tilbaka. MSS26070009Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Miðflokksins:
Þær athuganir sem lagðar hafa verið fram í þessu máli sýna að breytingar sem gerðar voru á síðasta ári skorti vandaðan undirbúning. Meðal annars var ekki horft til samspils við beygjuafreinar og nálæg gatnamót og horft framhjá ábendingum um miklar umferðartafir, sem hafa raungerst með miklu tjóni fyrir þá sem ferðast um svæðið með bílum. Í framhaldi af athugunum og umræðum hefur komið fram betri tillaga að lausn á þeim umferðarvanda sem við er að etja, heldur en felst í tillögu Miðflokksins frá því í júlí s.l. Er eldri tillaga Miðflokksins því dregin til baka. Ný tillaga sem Miðflokkurinn á aðild að með meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks gerir meðal annars ráð fyrir endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, sem fjarlægt var við síðustu breytingar á gatnamótunum. Einnig lengingu vinstribeygjuakreinar frá Bæjarhálsi, lengingu akreinar sunnan gatnamótanna og breyttri akreinaskipan frá Streng. Þá er einnig gert ráð fyrir að kannaður verði fýsileiki undirganga undir Höfðabakka, rétt norðan við gatnamótin, til að tengja göngu - og hjólastíga beggja vegna götunnar, en þarna er mikilvæg gatnamót í stígakerfi borgarinnar til framtíðar. Miðflokkurinn leggur mikla áherslu á mikilvægi þessarar framkvæmdar fyrir umferð í austurbyggðum borgarinnar og telur brýnt að þær komist til framkvæmda ekki síðar en næsta vor.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks , Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur til að hafinn verði undirbúningur úrbóta á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls samkvæmt sviðsmynd 2 í greiningu COWI sem lögð var fyrir umhverfis - og skipulagsráð. Þar er meðal annars gert ráð fyrir lengingu vinstribeygjuakreinar frá Bæjarhálsi, lengingu akreinar sunnan gatnamótanna og breyttri akreinaskipan frá Streng. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, sem fjarlægt var við síðustu breytingar á gatnamótunum. Þá verði einnig kannaður fýsileiki undirganga undir Höfðabakka rétt norðan við gatnamótin til að tengja göngu - og hjólastíga beggja vegna götunnar. Áður en endanleg ákvörðun um framkvæmdir verður tekin verði lagt fyrir ráðið kostnaðarmat, áætlaður framkvæmdatími og möguleg tímasetning framkvæmda, auk upplýsinga um hvort og með hvaða hætti þurfi að bjóða verkið út.
Greinargerð fylgir tillögu
Frestað. USK26060301
-
Fram fer kynning á útboði á flotgufum í borgarlandinu.
Rebekka Guðmundsdóttir og Salóme Rósa Þorkelsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120141
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur áherslu á að borgarbúar fái aukin tækifæri til að nýta sjóinn og strandlengjuna í kringum Reykjavík til útivistar, samveru og afþreyingar. Bað- og sánamenning hefur farið vaxandi og stuðlar sú þróun að því að efla mannlíf við sjóinn og skapa nýjar leiðir fyrir borgarbúa til að njóta náttúrunnar allt árið um kring. Meirihlutinn fagnar því að nú sé stigið næsta skref í verkefninu Haftengd upplifun með því að bjóða út aðstöðu fyrir flotgufur. Mikilvægt er að hafa í huga kostnað borgarinnar vegna verkefnisins. Verkefnið er spennandi liður í því að nýta strandlengju Reykjavíkur betur í þágu borgarbúa og skapa fjölbreyttari tækifæri til útivistar og afþreyingar við sjóinn. Jafnframt er ánægjulegt að með útboðinu skapist tækifæri fyrir einkaaðila til að þróa nýja þjónustu og standa að rekstri hennar. Meirihlutinn hlakkar til að sjá verkefnið verða að veruleika, strandlengju borgarinnar verða enn aðgengilegri og líflegri og ekki síður til að mæta sjálfur í sánuna þegar þar að kemur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Hér er um spennandi verkefni að ræða sem eykur mannlíf og bætir lýðheilsu. Jafnframt eykur framtakið haftengda upplifun og undirstrikar sérstöðu Reykjavíkur sem borg sem er umlukin sjó. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja þó áherslu á að verkefnið verði útfært með jöfnuð í huga. Útboðsskilmálar þurfa að tryggja almennt aðgengi, hóflegt verðlag og öryggi. Verkefnið er vel heppnað ef sem flestir geta notið þess án tillits til efnahags eða annarra þátta.
-
Fram fer kynning á hvílustæðum, götugögnum og bílastæðum í miðborg Reykjavíkur.
Rebekka Guðmundsdóttir og Salome Rósa Þorkelsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26060100
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar því að 15 bílastæði í miðborginni sem meðal annars hafa verið nýtt undir götugögn og aðra tímabundna starfsemi yfir sumarmánuðina verði nú opnuð á ný fyrir lagningu bíla. Með því nýtist borgarlandið betur yfir vetrarmánuðina, stæðin verða á ný tekjuaflandi fyrir borgina og um leið eykst aðgengi fyrir gesti sem vilja sækja verslun, veitingastaði, menningu og aðra fjölbreytta þjónustu í miðborginni. Öflug og blómleg miðborg þarf að vera aðgengileg allt árið um kring og mikilvægt er að nýta þau bílastæði sem þegar eru til staðar þegar ekki er þörf fyrir þau undir aðra starfsemi. Meirihlutinn telur þetta gott dæmi um sveigjanlega og skynsamlega nýtingu borgarrýmis sem tekur mið af ólíkum þörfum eftir árstíðum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á að hvílustæði og hjólastæði í miðborginni séu fyrst og fremst metin sem svæði sem eigi að færa aftur undir bílastæði. Miðborg Reykjavíkur á að vera lifandi og skemmtileg. Í þessum aðgerðum hafa verið fjarlægðir hjólabogar af nokkrum stöðum í miðborginni sem er mjög óheppilegt. Góðir staðir til að geyma hjól og læsa með öruggum hætti er nauðsynlegt og kemur líka í veg fyrir að fólk læsi hjólum við ljósastaura eða umferðarmerki. Það skýtur einnig skökku við að hér séu útiborð veitingastaða og hjólaborð fjarlægð til að endurheimta 15 bílastæði á sama tíma og borgin er að fara í átak til að auka nýtingu bílastæðahúsa í miðborginni þar sem þau eru vannýtt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Hún er dapurleg sýnin sem Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur hafa um fagurt og gefandi borgarlíf og hvernig eigi að gera borgarumhverfið mannvænt og skemmtilegt. Nú fjarlægja þessir flokkar ótal viðverurými í miðborginni sem hafa lífgað upp á umhverfið og gefið fólk tækifæri til félagstengsla. Aftur verður komið fyrir bílastæðum með tilheyrandi aukningu bílaumferðar og mannlífið er fjarlægt. Eins eru fjarlægðir ótal hjólabogar sem sendir afar köld skilaboð til hjólreiðamanna og þeirra sem kjósa virka ferðamáta til sinna ferða um borgina. Þetta er gríðarleg afturför og hugmyndir þessara flokka um endurreisn Reykjavíkur sem bílaborgar stríðir gegn allri þeirri framþróun og stefnu sem lífvænlegustu og bestu borgir heimsins hafa markað sér.
-
Fram fer kynning á gátlista borgarhönnunarstefnu Reykjavíkur.
Rebekka Guðmundsdóttir frá skrifstofu borgarhönnunar tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23110270
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir góða og áhugaverða kynningu. Það er ánægjulegt að sjá að með gátlista borgarhönnunarstefnunnar sé komið hagnýtt verkfæri sem getur bæði einfaldað vinnu við skipulagsmál og eykur aukið hennar, bæði fyrir uppbyggingaraðila og starfsfólk Reykjavíkurborgar. Gátlistinn styður við samræmdari vinnubrögð, aukið gagnsæi og markvissari eftirfylgni með þeim metnaðarfullu markmiðum sem Reykjavíkurborg hefur sett sér um gæði byggðar, mannvæna hönnun og sjálfbærni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Borgarhönnunarstefnan, sem samþykkt var með breiðri pólitískri samstöðu, setur fram mikilvæga sýn um mannvæna, sjálfbæra og vandaða borgarþróun. Virkilega jákvætt er að sjá hvernig stefnan sem sett var í tíð Samfylkingarinnar í meirihluta breytist í praktísk verkefni sem bæta skipulag, gera það mannvænna og í takt við það sem fólk er að kalla eftir.
Fylgigögn
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn TÓ arkitekta ehf., dags. 5. mars 2026, um breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta notkun hússins þannig að heimilt verði að reka þar hótel með allt að 90 herbergjum. Breytingin felur einnig í sér heimild til hækkunar hússins um eina inndregna hæð ásamt heimild til að grafa frá húsinu austanverðu til að sækja birtu ofan í kjallara, samkvæmt uppdr. TÓ arkitekta, dags. 14. apríl 2026, br. eftir auglýsingu. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 1. apríl 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. september 2026.
Frestað. USK26030120
-
Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 17. september 2026, um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun deiliskipulags við Suðurlandsbraut. Tillagan var afgreidd á fundi borgarstjórnar, sbr. 31. liður, dags. 2. júní 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulags- og byggingarfulltrúa. MSS26060029
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 22. september 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 22. september 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir Sorpu bs. nr. 531, dags. 24. ágúst 2026 og nr. 532, dags. 11. september 2026. USK23010167
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar, sbr. 18. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 23. september 2026.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu. USK26090373
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:41
Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Friðjón R. Friðjónsson
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 30. september 2026