Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 16. september, kl. 9:06 var haldinn 387. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Birkir Ingibjartsson, Eyþór Máni Steinarsson, Friðjón R. Friðjónsson, Lárus Blöndal Sigurðsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Sigrún E. Unnsteinsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á verkefninu GreenInCities sem er Horizon-verkefni styrkt af ESB, markmið verkefnisins er að efla græn svæði og líffræðilegan fjölbreytileika í borgum til að auka félagslegan jöfnuð. Verkefnið hófst árið 2024 og lýkur 2027.
Þórhildur Þórhallsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Mariska Kappert, Þórólfur Jónsson og Eva Ósk Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS23070077
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks þakka fyrir góða kynningu á GreenInCities. Verkefnið er mikilvægt framlag til eflingar grænna svæða og líffræðilegs fjölbreytileika í Efra-Breiðholti, með áherslu á félagslegan jöfnuð og virka þátttöku íbúa. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hvernig umfangsmikið samráð við börn og fullorðna hefur mótað hugmyndir um ætan almenningsgarð þar sem ræktun, fræðsla, leikur og samvera fara saman. Fulltrúarnir lýsa yfir stuðningi við verkefnið og hlakka til að fylgjast með framvindu þess.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna þátttöku Reykjavíkurborgar í alþjóðlega samstarfsverkefninu GreenInCities, sem fjármagnað er af Horizon-áætlun Evrópusambandsins. Það er mikilvægt stefnumál að borgin taki virkan þátt í verkefnum sem efla græn svæði, líffræðilegan fjölbreytileika og loftslagsþol í þéttbýli, ekki síst þegar þeim innviðum er beitt markvisst til þess að auka jöfnuð íbúa og bæta líðan í nærumhverfi. Við fögnum sérstaklega að verkefnið sé framkvæmt í Efra-Breiðholti. Samstarf af þessu tagi sýnir hversu dýrmætir alþjóðlegir styrkir eru fyrir framþróun og hönnun lífvænlegra hverfa í borginni. Það lýsir hins vegar mikilli mótsögn í forgangsröðun meirihlutans að þiggja kynningu á mikilvægum alþjóðlegum styrkveitingum á sama tíma og búið er að leggja niður Rannsóknaþjónustu Reykjavíkur. Sú eining hafði einmitt þá sérþekkingu og reynslu sem þarf til að sækja og reka svona stór verkefni sem færa verulegar tekjur inn í borgarsjóð. Það er skammsýni að skera niður styrkja- og tekjuaflandi stjórnsýslustörf í nafni hagræðingar, þegar slíkt stórskaðar getu borgarinnar til að fjármagna græna umbreytingu og samfélagslegan jöfnuð til framtíðar. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að Græna plani borgarinnar verði fylgt eftir af festu og að alþjóðlegu samstarfi verði tryggt traust faglegt bakland.
Lögð fram svohljóðandi gagnbókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:Borgin mun halda áfram með umrætt verkefni, sem þegar hefur hlotið styrk, og ekki er talið að breytingar á skrifstofu borgarstjóra muni hafa áhrif á framgang þess. Jafnframt verður áfram horft til annarra tækifæra til samstarfs og styrkveitinga sem geta stutt við verkefni borgarinnar.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á útfærslum á beygjuakreinum á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls.
Frestað. USK26080435
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Miðflokksins um beygjuakreinar á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls dags. 13. júlí 2026. og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 9. september 2026.
Frestað. MSS26070009 -
Lagt fram árshlutauppgjör umhverfis- og skipulagssviðs fyrir janúar - júní 2026.
Hreinn Ólafsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030339
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar vekja athygli á að samkvæmt framlögðu árshlutauppgjöri er umhverfis- og skipulagssviðs rekið 254 milljónum króna innan fjárheimilda. Það sýnir innri aga og hagsýni stjórnenda og starfsfólks á gólfinu. Sé litið fram hjá árstíðabundinni vetrarþjónustu er grunnreksturinn í jafnvægi. Í Eignasjóði blasir hins vegar við um 2,1 milljarðs króna neikvætt bókhaldslegt frávik sem hefur þó ekki áhrif á sjóðsstreymi eða lausafjárstöðu. Að baki þessum frávikum liggja meðvitaðar og tæknilegar bókhaldsráðstafanir, t.a.m. afskriftir vegna yfirfærslu hjúkrunarheimila til ríkisins, afskriftir vegna kostnaðar við hönnun og verksamninga um verkefni sem hætt hefur við og áhrifa af verðbólgu sem veldur 1,7 milljarða hækkun fjármagnsgjalda vegna ytri efnahagsþátta og verðbóta. Afskriftirnar eru reiknaðar stærðir sem hafa engin áhrif á handbært fé, sjóðsstreymi eða bankabók borgarinnar. Það að nota tímabundinn pappírshalla til að búa til gervikrísu og réttlæta kröftugan niðurskurð í velferð og forvörnum úti í hverfunum er ámælisvert og sýnir nýja og að óþörfu harðari forgangsröðun.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á nýjum hólmum í Tjörninni - hönnun og fyrirhugaðar framkvæmdir.
Þórhildur Þórhallsdóttir og Þórólfur Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK23060226
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir góða kynningu á nýjum hólmum í Reykjavíkurtjörn. Um er að ræða mikilvægt verkefni sem stuðlar að bættu lífríki Tjarnarinnar, skapar betri skilyrði fyrir fuglalíf og annan gróður og dýralíf og stuðlar jafnframt að auknum vatnsgæðum. Tjörnin er ein af helstu náttúru- og borgarperlum Reykjavíkur og því mikilvægt að standa vörð um lífríki hennar og vinna markvisst að því að bæta vistkerfi hennar til framtíðar. Verkefnið er hluti af Icewater verkefninu og hefur hlotið styrk.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:Nýr hólmi í Tjörninni er spennandi verkefni sem mun bæta ásýnd svæðisins. Ekki síður mikilvægt er hlutverk hólmans við að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika, meðal annars með fjölbreyttari gróðri og bættum skilyrðum fyrir fuglalíf. Til framtíðar væri spennandi að ráðast í fleiri sambærileg verkefni sem bæði gætu styrkt umhverfi Tjarnarinnar og aukið líffræðilegan fjölbreytileika enn frekar. Sérstaklega mætti horfa til austurkants Tjarnarinnar við Fríkirkjuveg, þar sem tækifæri eru til að skapa meira rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, um leið og gróður og lífríki svæðisins fengi aukið vægi.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á niðurstöðu dómnefndar úr hugmyndasamkeppni kjarnasamfélaga.
Margrét Lára Baldursdóttir og Þórhildur B. Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26070298
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna metnaðarfullri og faglegri vinnu dómnefndar í hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög og styðja verkefnið. Þetta tilraunaverkefni á rætur að rekja til metnaðarfullrar sýnar á fjölbreytt búsetuform, aukið íbúalýðræði og uppbyggingu húsnæðissamvinnufélaga sem góða viðbót við húsnæðismarkaðinn. Kjarnasamfélög ýta undir aukinn jöfnuð og jafnrétti með áherslu á að mæta þörfum mismunandi hópa samfélagsins. Lykilatriði í áframhaldandi ferli er að tryggja ríkt og virkt samráð við þessa ólíku hópa við hönnun og útfærslu verkefnisins. Þá áréttum við mikilvægi þess að vandað sé til verka við alla hönnun og frágang og þess gætt að nýjar byggingar falli vel að nærumhverfi sínu. Einnig er mikilvægt að lögð sé áhersla á góða hljóðvist, hámarksnýtingu birtu og góða húsaheilsu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Í ljósi breyttrar samfélagsgerðar þar sem mikil aukning er af fólki sem býr eitt, að hluta til vegna þess að þjóðin eldist hratt er mikil þörf á að endurhugsa íbúðarhúsnæðisuppbyggingu frá grunni. Mikilvægt er að Reykjavíkurborg bregðist við þessari breyttu mynd með því að liðka fyrir alls konar búsetu- og sambýlisformum. Það sárvantar fjölbreyttara framboð sem mætir óskum allra aldurshópa og kemur í veg fyrir félagslega einangrun. Ef litið er til Norðurlanda eru alls konar búsetuform búin að festa sig þar í sessi sem hafa ekki enn sést hér á landi. Smærri íbúðir með sameiginlegum rýmum, bæði til leigu og eignar. Þetta umrædda tilraunaverkefni um kjarnasamfélag sem nú er verið að kynna er mjög lítið skref í stóru myndinni. Þarna var Reykjavíkurborg að tefla fram 2 reitum í borginni sem hentuðu illa hugmyndinni um kjarnasamfélög og gerði miklar kröfur á þátttakendur þar sem þeim er ætlað að gera áætlanir án hönnunar (sem er tækið til þess að sjá hvað reiturinn ber). Þeim var líka ætlað að koma með fullfjármagnað plan á mjög stuttum tíma. Laugavegsreiturinn hentaði betur en samt ekki vel. Enda fékk Yrsufellsreiturinn ekki neina athygli. Hentaði einfaldlega ekki. Engin tillaga barst þar. Betur má ef duga skal.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 31. ágúst 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu skipulagsfulltrúa, dags. 1. september 2026, að fegrunarviðurkenningum Reykjavíkurborgar fyrir árið 2026 vegna vandaðra lóða og endurbóta á eldri húsum. Kynning á niðurstöðum. Trúnaður ríkir um viðurkenningar þar til afhending fer fram.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Drífa Árnadóttir og Guðbrandur Benediktsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26050242
-
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. apríl 2026 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða viðbyggingu, bílskúr og baðhús í kjallara með verönd og heitum potti og stækkun á eldhúsi á 1. hæð ásamt því að gerð er grein fyrir steyptum veggjum á lóð einbýlishúss á lóð nr. 42 við Garðastræti. Tillagan var grenndarkynnt frá 3. júní 2026 til og með 2. júlí 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. september 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. september 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26010363
Fylgigögn
-
Lögð fram umsókn Mílu ehf., dags. 1. júlí 2026, um breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna nýrrar innviðalóðar fyrir farsímastaur. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkuð er ný lóð innan opins svæðis, OP30, í Norðlingaholti með aðkomu frá Bugðu, samkvæmt uppdr. Strendings, dags. 21. ágúst 2026.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26070011
Fylgigögn
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Mannverks ehf., dags. 2. desember 2025, ásamt bréfi Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Laufásvegar 19 og 21-23 og Þingholtsstrætis 34. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilað verður niðurrif áður byggðra viðbygginga á lóð auk niðurrif veggjar á lóðarmörkum við Þingholtsstræti. Byggingarreitur fyrir nýbyggingu við Þingholtsstræti er skilgreindur og heimilt verður að byggja inndregna þakhæð á hús að Laufásveg. Við breytinguna eykst nýtingarfall lóðar, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Glámu-Kím, dags. 2. desember 2026, br. 25. ágúst 2026, og skuggavarps- og sýringaruppdráttum Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025, br. 25. ágúst 2026. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 6. janúar 2026. Tillagan var auglýst frá 12. mars 2026 til og með 29. apríl 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. september 2026.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. september 2026. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120032
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks, samþykkja tillöguna með þeim breytingum sem gerðar hafa verið til að draga úr grenndaráhrifum. Áréttað er að með samþykkt deiliskipulagsins er ekki tekin afstaða til þess einkaréttarlega ágreinings sem uppi er um eignarrétt og afnotarétt að baklóð Laufásvegar 19. Áður en til framkvæmda eða niðurrifs kemur verði jafnframt gengið úr skugga um að tilskildar heimildir liggi fyrir. Þá er áréttað að kröfum Minjastofnunar Íslands um umsögn og samþykki endanlegra aðaluppdrátta fyrir Þingholtsstræti 34 og fornleifafræðilegt eftirlit með jarðraski verði fylgt við áframhaldandi afgreiðslu málsins.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 1. september 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 1. september 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis og skipulagsráðs, dags. 24. júní 2026 og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 1. september 2026 um 7. lið tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins sem snýr að endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík um að eiga samtal við hagaðila um ný sleppistæði fyrir sendla og vörudreifingu í miðborginni svo greiða megi fyrir afhendingu vara.
- Kl. 11:39 víkur Hjördís Sóley Sigurðardóttir af fundi.
Frestað. MSS26060100
-
Lagt fram yfirlit yfir kærur sem hafa borist til umhverfis- og skipulagssviðs á tímabilinu júlí og ágúst 2026. USK26090044
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. janúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2601008, dags. 16. janúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingafulltrúans í Reykjavík um veitingu byggingaleyfis dagsett 2. desember 2025 fyrir breytingum á rishæð við Bragagötu 26a. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 15. febrúar 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 2. september 2026. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK26010302
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605018, dags. 28. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík dagsett 27. apríl sl. um að kæranda verði gert að færa fasteign sína að Deplahólum 7 til fyrra horfs og til samræmis við fyrirliggjandi og gildandi samþykkta uppdrætti og veittur til þess 60 daga frestur eða sæta annars dagsektum. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 23. júní 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 2. september 2026. Úrskurðarorð: Felldur er úr gildi sá hluti hinnar kærða ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 27. apríl 2026, um að gera kærendum að færa fasteignina að Depluhólum 7 til samræmis við samþykkta uppdrætti, sem varðar veittan 60 daga frest. Að öðru leyti skal ákvörðun byggingarfulltrúa standa óröskuð. USK26050472
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. júlí 2026 ásamt kæru nr. UUA2607003, dags. 8. júlí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 um að hafna kröfu um niðurrif óleyfismannvirkis að baki Laugavegs 178. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. júlí 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 2. september 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hjólageymslu við mörk lóðar Laugavegs 178. USK26070171
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarráð, dags. 20. ágúst 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna lóðarinnar nr. 2 við Sundabakka. USK26020277
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarráð, dags. 27. ágúst 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna skilgreiningar nýrra lóða við Nauthólsveg. USK25090065
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:05
Guðný María Jóhannsdóttir Birkir Ingibjartsson
Eyþór Máni Steinarsson Friðjón R. Friðjónsson
Lárus Blöndal Sigurðsson Magnea Gná Jóhannsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 16. september 2026