Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 19. ágúst, kl. 9:03 var haldinn 384. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Halldór Bachmann, Harpa Sif Eyjólfsdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Leiðrétt gögn frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs dags. 12. ágúst 2026, liður 2. Uppdráttur leiðréttur úr dags. 13. apríl 2026 í dags. 13. apríl 2026, breytt 26. júní 2026.
Rétt bókun er:
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs. Í breytingunni sem lögð er til felst að loka fyrir umferð Kirkjuteigs annars vegar og hins vegar Hofteigs inn á Reykjaveg og að minnka óverulega lóð Laugarnesskóla til að koma fyrir snúningssvæði við enda Hofteigs, samkvæmt uppdr. Landslags, dags. 13. apríl 2026, br. 26. júní 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. ágúst 2026.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst 2026.
Vísað til borgarráðs.Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar:
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir einróma breytingu á deiliskipulagi við Hofteig og Kirkjuteig. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar því að tryggja eigi öruggi gangandi vegfaranda í kringum Laugarnesskóla og Skólaþorpið og bendir á að mikilvægt sé að þessar breytingar komist til framkvæmdar sem fyrst þar sem að ítrekað hafa orðið árekstrar og slys á Reykjavegi þegar nemendur í Laugarnesskóla eru að ganga eða hjóla til og frá skóla. Nýlega fluttist stór hluti nemenda skólans í skólaþorpið og fleiri nemendur munu flytja þangað á næstu mánuðum og það er gott að sjá að með þessum breytingum er verið að tengja skólaþorpið betur við Teigana. Ánægjulegt er að sjá hvernig tekið hefur verið tillit til hjólandi, en mjög margir hjólandi vegfarendur nýta þessi tvö gatnamót sem um ræðir.
Lögð fram svohljóðandi bókun Samfylkingarinnar:
Öryggi gangandi vegfarenda, og ekki síst skólabarna við Laugarnesskóla, á alltaf að vera í forgangi og mikilvægt er að tryggja greitt og öruggt aðgengi gangandi og hjólandi. Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að tillagan hafi verið samþykkt. USK26040131
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 12. ágúst 2026 um að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að hámarkshraði á Rafstöðvarvegi, sunnan við rampa á Vesturlandsvegi, verði 30 km/klst. Ofangreind ráðstöfun verði merkt með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingu þar sem það á við, í samræmi við reglugerð 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra.
Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs og í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. USK26010083Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar þeirri breytingu að hámarkshraði á Rafstöðvarvegi, sunnan við rampa á Vesturlandsvegi, verði lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst. Á þessum kafla er hvorki gangstétt né stígur samsíða akbrautinni og þurfa gangandi og hjólandi vegfarendur því að fara um akbrautina sjálfa. Breytingin er því mikilvægt skref til að auka öryggi allra vegfarenda og tryggja að leyfilegur hámarkshraði taki mið af aðstæðum á hverjum stað.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna tillögunni. Á svæðum þar sem gangandi og hjólandi vegfarendur þurfa að deila akbraut með vélknúnum ökutækjum er lækkun hámarkshraða í 30 km/klst. lykilskref til að tryggja umferðaröryggi og efla vistsamlegar samgöngur. Lækkun umferðarhraða hefur margþætt áhrif; hún eykur öryggi vegfarenda en dregur ekki síður úr hljóðmengun og svifryki á þessu mikilvæga útivistarsvæði.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 12. ágúst 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
Fylgigögn
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna skilgreiningu nýrra lóða við Nauthólsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er ný lóð, Nauthólsvegur 64-66, þar sem flugstjórnarmiðstöðin og spennistöð standa í dag. Auk þess er skilgreind lóð á reit Nauthólsvegar 56-60, Nauthólsvegur 58E. Áður skilgreindir byggingarreitir innan nýrrar lóðar 64-66 haldast óbreyttir og helst heildarbyggingarmagn á reitnum/nýrri lóð óbreytt, bæði ofan- og neðanjarðar. Reitarafmörkun fyrir Nauthólsveg 54 minnkar til samræmis og breytast nýtingarhlutföll vegna breyttra lóða/reitastærða. Á nýrri lóð að Nauthólsvegi nr. 58E verður heimilt að setja upp flugvallarbúnað þ.m.t. mastur allt að 30m hátt, skv. uppdr. T.ark arkitekta, dags. 13. ágúst 2025. Tillagan var í auglýsingu frá 2. október 2025 til og með 13. nóvember 2025. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands, dags. 21. nóvember 2025. Einnig barst ábending frá Veitum, dags. október 2025. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25090065
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. Breytingin felur meðal annars í sér að skilgreindar eru lóðir fyrir starfsemi og búnað sem tengist áframhaldandi rekstri flugvallarins. Ljóst er að Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð, þar sem enn hefur ekki verið fundinn viðeigandi staðsetning á nýjum flugvelli. Því er mikilvægt að skipulag svæðisins taki mið af þessari staðreynd og skapi nauðsynlegar forsendur fyrir öruggum og hagkvæmum rekstri flugvallarins á meðan svo er. Jafnframt er mikilvægt að nauðsynleg uppbygging og viðhald innviða geti átt sér stað með eðlilegum hætti.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um skipan í götunafnanefnd fyrir tímabilið 2026 - 2030. Afgreiðslu um skipan í nefndina frestað. USK26080082
-
Fram fer kynning um Hafnarstrætisreit, Hugleiðingar um Kvosina.
Margrét Lára Baldursdóttir, Valný Aðalsteinsdóttir og Haraldur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26070174
-
Lögð fram umsögn um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis og skipulagsráðs, dags. 24. júní 2026. og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 15. júlí 2026. um lið nr. 2 í tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík sem snýr að einföldun á fyrirkomulagi rafrænna greiðslumáta í miðborg.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. MSS26060100Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði þakka fyrir þá vinnu sem lögð hefur verið í að rýna möguleika á einföldun greiðslufyrirkomulags fyrir bílastæði í Reykjavík og þær tillögur sem lagðar eru fram í umsögninni. Mikilvægt er að halda áfram að einfalda þjónustuna og gera greiðsluleiðir og upplýsingagjöf skýrari og aðgengilegri fyrir notendur. Meirihlutinn fagnar því þeirri vinnu sem þegar er hafin við endurnýjun gjaldmæla, samræmingu samninga við þjónustuaðila og bætta upplýsingagjöf.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að tillaga meirihlutans felur í raun ekki í sér nýjar aðgerðir. Umsögn fagsviðsins sýnir skýrt að Bílastæðasjóður og þjónustu- og nýsköpunarsvið voru þegar með öll þessi verkefni í virkri vinnslu. Sjálfsagt að halda áfram þessari vinnu en tillagan bætir litlu við þann faglega undirbúning sem þegar var hafinn. Þá kemur fram að Reykjavíkurborg hefur ekki reglusetningarvald til að einfalda greiðslumáta, heldur liggur það hjá innviðaráðuneytinu. Án þess að beita sér formlega gagnvart ráðuneytinu verður tillagan frekar yfirlýsing um góðan vilja en raunveruleg breyting fyrir ökumenn.
- Kl. 9:56 víkur Guðmundur Benedikt Friðriksson af fundi.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis og skipulagsráðs, dags. 24. júní 2026. og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 15. júlí 2026. um lið nr. 4 í tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík sem snýr að kortlagningu á hvar megi koma bílastæðum aftur í notkun sem eru ekki aðgengileg í miðborg.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir þá umfangsmiklu vinnu sem lögð hefur verið í kortlagningu á notkun bílastæða í miðborginni og þær tillögur og ábendingar sem lagðar eru fram. Samantektin gefur mikilvæga yfirsýn yfir þau svæði þar sem bílastæði hafa verið tekin undir aðra notkun og skapar góðan grundvöll til að meta með markvissum hætti hvar mögulegt og æskilegt er að koma bílastæðum aftur í notkun. Meirihlutinn telur jafnframt mikilvægt að áfram sé skapað svigrúm fyrir útiveitingar og annað mannlíf í miðborginni, en að nýting borgarrýmis sé sveigjanleg og taki mið af aðstæðum á hverjum stað og mismunandi þörfum eftir árstíðum. Sú vinna sem nú liggur fyrir er því mikilvægt innlegg í að ná betra jafnvægi milli aðgengis, bílastæða, atvinnustarfsemi og lifandi borgarrýmis í miðborg Reykjavíkur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs sýnir að breytingar á stæðum í miðborginni snúast ekki um gegndarlausa fækkun stæða, heldur skynsamlegri nýtingu á dýrmætu landrými fyrir alla - bæði þá sem keyra, ganga og reka þjónustu. Framtíðaraðgengi ökumanna að miðborginni liggur í bílastæðahúsum þar sem stæðum hefur fjölgað. Markmiðið á að vera það að það sé einfalt, þægilegt og fyrirsjáanlegt fyrir ökumenn að leggja í bílastæðahúsum nálægt þjónustu, frekar en að leita að stæði á götu úti. Í stað þess að klára endurskoðun á merkingum og verðskrá til að auðvelda fólki að nýta bílastæðahúsin, velur meirihlutinn að mæla gegn líflegu mannlífi og útiveitingum sem styrkja rekstur í borginni. Talið er að bílum í Reykjavík fjölgi um tæplega 70 í hverri viku. Þegar horft er til þess að íbúum Reykjavíkur á eftir að fjölga um tugi þúsunda á næstu áratugum er ábyrgðarlaust að horfa fram hjá samhengi hlutanna. Við þurfum að tryggja fjölbreytta ferðamáta og skynsamlega þéttingu svo að borgaralífið fari ekki í hnút. Það snýst ekki um að vera á móti einkabílnum, heldur um að bjóða upp á raunverulegt val um ferðamáta og tryggja að Reykjavík sé áfram góð borg að búa í og heimsækja.
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um verkferla og fyrirkomulag sumar- og vetrarþjónustu í borgarlandinu, sbr. 54. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 24. júní 2026. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssvið, skrifstofu borgarlandsins dags. 7. ágúst 2026. USK26060369
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka inn tillögu fulltrúa Miðflokksins um beygjuakreinar á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 46 liður, dags. 2. júlí 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. MSS26070009
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. júlí 2026 ásamt kæru nr. UUA2607009, dags. 8. júlí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 9. júní 2026 um að veita Reykjavíkurborg byggingarleyfi fyrir tveimur færanlegum kennslustofum á leikskólalóð við Hlaðbæ. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 6. ágúst 2026. USK26070172
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar dags. 6. maí 2026, vegna stefnu um gönguvæna borg. MSS24110133
- Kl. 10:11 víkja Ólöf Örvarsdóttir, Líf Magneudóttir, Sigrún E. Unnsteinsdóttir og Brynjar Þór Jónasson af fundi.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:22
Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald
Halldór Bachmann Harpa Sif Eyjólfsdóttir
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson
Sigrún Ásta Einarsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 19. ágúst 2026