Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 1. júlí, kl. 9:02 var haldinn 381. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á undirbúningi Sæbrautarstokks, mati á umhverfisáhrifum og tillögu að deiliskipulagi.
Sólveig Sigurðardóttir, Þröstur Guðmundsson og Kristján Árni Kristjánsson taka sæti á fundinum undir þessu lið. USK23100034
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði þakka góða kynningu á Sæbrautarstokki og telja að verkefnið geti orðið mikilvægt framfaraskref fyrir samgöngur og borgarumhverfi Reykjavíkur. Stokkurinn getur bætt umferðaröryggi og flæði með mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg og Skeiðarvog, styrkt tengingar fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur og skapað um leið nýtt borgarrými með gróðri og útivist ofan á stokknum. Jafnframt getur framkvæmdin dregið úr hávaða og bætt loftgæði í nærliggjandi byggð auk þess að skapa forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu í Vogabyggð og Ártúnshöfða. Mikilvægt er að áfram verði unnið markvisst að því að lágmarka áhrif framkvæmda á íbúa og atvinnustarfsemi á framkvæmdatíma og að vöktun loftgæða, hljóðvistar og annarra umhverfisáhrifa verði tryggð frá upphafi til loka verkefnisins. Þá er mikilvægt að gætt verði sérstaklega að vernd listaverka Gerðar Helgadóttur í samstarfi við Gerðarsafn. Meirihlutinn leggur áherslu á að við áframhaldandi undirbúning verði verkefnið útfært með hagkvæmni, skýru kostnaðareftirliti og þeim sveigjanleika sem nauðsynlegur er við endurskoðun forgangsröðunar samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna þeim mikilvægu áföngum sem hér eru kynntir í undirbúningi Sæbrautarstokksins. Verkefnið er lykilskref í átt að nútímalegri höfuðborg; það fjarlægir mengun og umferðarhávaða úr bakgörðum íbúa, tryggir forgang almenningssamgangna og virkra ferðamáta á yfirborðinu og sameinar Vogabyggð við ströndina með dýrmætu grænu almenningsrými. Jafnframt því sem verkefninu er fagnað, leggjum við ríka áherslu á að endanleg hönnun og deiliskipulag verði fullkomlega samstillt við komandi legu Sundabrautar. Það er rekstrarleg og skipulagsleg áhætta að læsa hönnun Sæbrautar án þess að fyrir liggi nákvæmlega hvernig tengingum Sundabrautar inn í borgarkerfið verður háttað. Við áframhaldandi þróun og hönnun framkvæmdarinnar þarf að skoða betur gatnamótin við Kleppsmýrarveg þannig að þau fái yfirbragð borgargötu fremur en að þau hafi ásýnd landfrekra mislægra gatnamóta. Að lokum er tekið undir áhyggjur um framtíð listaverks Gerðar Helgadóttur. Vinna þarf að verndun verksins í samráði við Gerðarsafn.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Ekki verður við unað á frekari töfum á samgöngubótum fyrir fjölbreytta ferðamáta og almenningssamgöngur eða óbreytt ástand á samgönguinnviðum og akvegum eins og meirihlutinn hefur boðað. Deiliskipulag Sæbrautarstokks er nú í auglýsingu og búið er að gera grein fyrir mótvægisaðgerðum til að minnka rask sem verður á framkvæmdatíma hans s.s. hljóð- og loftmengun, umferðartöfum og mikilvægi á verndun menningarminja. Vanda þarf til verka við að framfylgja þeim. Framkvæmdin við Sæbrautarstokk er áætluð til næstu fjögurra ára og helst hún í hendur við aðrar aðliggjandi og brýnar framkvæmdir fyrir fyrsta áfanga Borgarlínu. Nú hafa Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur hætt við fyrirliggjandi framkvæmdir fyrir Borgarlínu á Suðurlandsbraut sem tefur framgang samgöngubóta á höfuðborgarsvæðinu. Það er von fulltrúa Vinstrisins að ekki verði eins farið með Sæbrautarstokkinn þegar hann kemur úr auglýsingu enda er markmið hans að draga úr neikvæðum áhrifum umferðar og bæta tengingar og öryggi fyrir fjölbreytta ferðamáta og er eitt af hryggjarstykkjunum í að innleiða skilvirkar, áreiðanlegar og umhverfisvænar almenningssamgöngur sem mikill fjárhagslegur og félagslegur ábati hlýst af. Það er dapurlegt hvernig núverandi stjórnvöld í Reykjavík standa gegn framförum og almannahagsmunum með hugmyndafræði sinni og ákvörðunum sínum.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á vinningstillögu vegna rammaskipulagsgerðar fyrir svæði Halla og nágrenni í Úlfarsárdal.
Jóhanna Helgadóttir, Vilhjálmur Leví Einarsson, Berglind Hallgrímsdóttir, Drífa Árnadóttir og Haraldur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080243
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði þakka fyrir góða kynningu á vinningstillögu hugmyndaleitar. Ljóst er að um er að ræða mikilvægt tækifæri til að byggja upp nýtt, blandað og fjölskylduvænt íbúðarhverfi sem styrkir Grafarholt og Úlfarsárdal og nýtir sérstöðu svæðisins með góðu samspili byggðar og náttúru. Fram undan er mikilvægt samráðsferli þar sem útfæra þarf tillöguna nánar. Þar þarf meðal annars að skoða byggðamynstur, þéttleika, húsagerðir, íbúðasamsetningu, þjónustu í hverfinu og samgöngur með það að markmiði að skapa fjölbreytt og aðlaðandi hverfi sem mætir þörfum fjölskyldna, styrkir þjónustu í austurhluta borgarinnar og fellur vel að nærumhverfi sínu. Mikilvægt er að skipulag þessa nýja hverfis verði unnið í samráði við íbúa, atvinnurekendur og aðra þjónustuaðila á svæðinu. Jafnframt þarf að huga að því að innviðir fylgi uppbyggingu hverfisins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Skipulagstillagan úr hugmyndasamkeppni fyrir uppbyggingu að Höllum byggir á skýrri hugmyndafræði með sterkum vísunum í eldri hverfi Reykjavíkur svo sem Vesturbæ, Hlíðar, Fossvog og Álfheima útfrá íbúðaþéttleika og -gerðum. Tillagan gerir ráð fyrir að byggðin fléttist saman við græn svæði hverfisins og er í miklu návígi við frábær útivistarsvæði í nágrenni Halla, svo sem Úlfarsárdal og Úlfarsfell. Mikilvægt er að ný byggð á svæðinu fái góða tenginu við öflugar almenningssamgöngur og styðji við möguleika á öflugri nærþjónustu fyrir alla byggðina í Úlfarsárdal. Samhliða þarf að greina ítarlega áætlaðan bílafjöldi í hinu nýja hverfi og meta í samgöngumati hvaða áhrif fjölgun þeirra mun hafa á umferð og álag á stofnbrautum borgarinnar á álagstímum. Nýr meirihluti er hvattur til að nálgast þróun á skipulagi við uppbyggingu Halla með jákvæðum hug og láta sjálfa tillöguna leiða fram hvaða fjölda íbúða er möguleiki á að byggja á svæðinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Meirihlutinn hefur boðað endurskoðun á skipulagi nýs hverfis og uppbyggingu húsnæðis í Höllum og hefur hann borið fyrir sig í opinberri umræðu að þéttleikinn sé of mikill og hann þarfnist endurskoðunar. Það stenst enga skoðun og var vinningstillagan vandlega útfærð með tilliti til þess sem svæðið getur borið og þeirra innviða sem hverfið í Úlfarsárdal hefur kallað eftir. Núverandi skipulag gerir ráð fyrir fjölbreyttu íbúðaformi; litlum og stærri fjölbýlishúsum, sérbýlum, raðhúsum og punkthúsum. Í samanburði við önnur hverfi t.d. í Vesturbæ sem er þéttbýlasta hverfi borgarinnar með 5.170 íbúa á hvern ferkílómetra þá má benda á að Grafarholt/Úlfarsárdalur er eitt strjálbýlasta hverfið með 392 íbúa á hvern ferkílómetra. Með uppbyggingu í Höllum kemst meira jafnvægi á milli hverfa í Reykjavík og yrði fyrirhuguð og núverandi uppbygging þar til mikilla bóta. Brýnt er að halda rétt á spöðum svo ekki verði frekari tafir á uppbyggingu og framboð á húsnæði í Reykjavík eins og virðist ætla að stefna í með núverandi flokka við stjórnvölinn.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning í trúnaði á hugmyndum á drögum að breyttu fyrirkomulagi áskrifta og gjaldskrár bílahúsa Reykjavíkurborgar.
Matthías Bernhöj Daðason tekur sæti á fundinum. USK26060383
-
Fram fer kynning á umgjörð fargufa í borgarlandi.
Rebekka Guðmundsdóttir frá skrifstofu borgarhönnunar tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120141
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði fagna því að nú sé kominn skýr ferill fyrir áhugasama aðila um rekstur fargufa í borginni en eins og við þekkjum er gríðarlegur áhugi meðal almennings á slíkri þjónustu. Tryggja þarf að þeir aðilar sem í dag eru með rekstur fargufa í Reykjavík fái leiðbeiningar og hefur það m.a. verið gert með greinargóðum upplýsingum á reykjavik.is.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á tillögu að merki og útliti örstöðva (e.mobility points) í Reykjavík.
Rebekka Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23110199
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakka fyrir góða kynningu. Deilimarkaður með rafskútur og bíla hefur rutt sér til rúms í Reykjavík á síðustu árum og aukið valkosti fólks í samgöngum. Því hafa þó fylgt áskoranir um hvar leggja skuli rafskútum og deilibílum, einkum á fjölförnum leiðum. Mikilvægt er að koma með lausnir varðandi lagningu rafskúta í borgarlandinu, þó þannig að rafskútur verði áfram aðgengilegur og notendavænn ferðamáti. Huga þarf að því að fjöldi stæða mæti eftirspurn og að stæðin verði dreifð vítt um borgina á þeim svæðum þar sem áætlað er að koma þeim upp.
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. júní 2026, að aðgerðaáætlun gegn hávaða í Reykjavík.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs. USK24090025Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir góða kynningu á aðgerðaráætlun í kjölfar kortlagningar hljóðvistar í borginni. Mikilvægt er að huga að hljóðvist í borgarlandinu og grípa til aðgerða til að draga úr hljóðmengun. Hér er þó um að ræða ófjármagnaða aðgerðaráætlun og því mikilvægt er að taka til skoðunar við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna kortlagningu hljóðvistar, enda eru hljóðvist og loftgæði meðal stærstu lýðheilsumála í nútímalegri mannlífsborg. Kortlagningin sýnir að einkabíllinn, hraði og nagladekk ásamt Reykjavíkurflugvelli eru fílarnir í herberginu; um 22.600 íbúar búa við óviðunandi hávaða og rúmlega 2.500 við beint heilsubrestsástand yfir 65 dB. Stöðugur hávaði og svifryksmengun ræna fólk lífsgæðum og valda ótímabærum dauðsföllum á hverju ári. Við áttum okkur á að þetta er arfleifð fortíðar, en við þurfum að sýna þor og breyta forgangsröðuninni. Það er óásættanlegt að hunsa ákall íbúa og vísa á lausnir eftir áratug . Skýrsla borgarinnar staðfestir að hraðalækkun um 10-20 km/klst, fækkun nagladekkja og hljóðveggir skila tafarlausum árangri og því á að grípa til þeirra strax. Setja verður heilsu og öryggi borgarbúa í fyrsta sæti. Það er okkar hlutverk.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 23. júní 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á vinnslutillögu fyrir svæðið við Köllunarklett.
Ólavía Rún Grímsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26060291
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna áformum um uppbyggingu lífsgæðakjarna við Köllunarklett sem gott dæmi um skynsamlega þéttingu og umbreytingu iðnaðarsvæðis í blandaðan borgarhluta. Samfylkingin leggur áherslu á að vandað verði til verka svo hverfið eldist vel næstu 100 árin. Í ljósi þess að íbúafjöldi á heimili fer ört lækkandi, lýsum við áhyggjum af 100 m² meðalstærð íbúða. Tryggja verður ríkan hlut minni og hagkvæmari íbúða fyrir ungt fólk og tryggja þarf forkaupsrétt Félagsbústaða á allt að 5% íbúða. Jafnframt bendum við á að vegna lágrar sólhæðar í Reykjavík eru skuggar langir. Mannlegur mælikvarði í anda 3–5 hæða byggðar tryggir skemmtilegri götumynd. Tryggja þarf við frekari þróun skipulags svæðisins að hærri byggingar, allt að 5-7 hæða á völdum stöðum, valdi ekki varanlegum skugga á torg og göngugötur. Í deiliskipulaginu þarf einnig að tryggja að skýrar kvaðir muni gilda um gróður og hönnun sem brýtur upp vind, svo skjól og örloftslag verði tryggt. Að lokum leggjum við áherslu á að aðstæður í nærliggjandi hverfi verði tekin inn í heildarsamhengi deiliskipulagsins, og þar sér í lagi fyrirhuguð uppbygging á lóð Listaháskólans. Ekki er síður mikilvægt að hugað verði að öruggum og greiðum tengingum frá þessu nýja hverfishluta yfir, undir eða um Sæbraut.
-
Fram fer kynning á niðurstöðum hugmyndaleitar fyrir Grundarhverfi og nágrenni (Kjalarnes) ásamt vinningstillögu.
Britta Magdalena Ágústsdóttir og Haraldur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 11:39 víkur Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi. USK25110324
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagna því að hafin sé vinna við framtíðarsýn fyrir Grundarhverfi og nágrenni á Kjalarnesi. Kjalarnes býr yfir miklum tækifærum til uppbyggingar sem byggir á sérstöðu svæðisins og óskum íbúa. Fjölgun íbúa getur skapað grundvöll fyrir betri þjónustu, öflugri innviði, fleiri atvinnutækifæri og sjálfbærara samfélag. Áhersla verði áfram lögð á fjölskylduvænt hverfi þar sem séreign, sérbýli og lágreist byggð verði ráðandi, samhliða fjölbreyttu húsnæðisframboði sem mætir þörfum íbúa á ólíkum æviskeiðum. Fulltrúar meirihlutans taka undir það sem fram kemur í umsögnum valnefndar að mesta framtíðartækifærið felist í að byggja á staðaranda Kjalarness fremur en að endurskapa þétt borgarhverfi. Markmiðið á að vera samfélag þar sem fólk kýs að búa til lengri tíma, eignast heimili og taki þátt í uppbyggingu hverfis sem heldur í sérstöðu sína um leið og það vex og eflist.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna faglegri hugmyndaleit fyrir Grundarhverfi sem sett var af stað á nýliðnu kjörtímabili. Vinningstillagan sýnir næmni fyrir staðaranda, landslagi og sögu svæðisins og verður spennandi að fylgjast með þróun tillögunnar á næstu misserum sem vinna þarf í góðu samráði við íbúa Kjalarness. Samfylkingin hvetur jafnframt til þess að stóra myndin í samgöngumálum verði höfð að leiðarljósi. Í hvert sinn sem ný hverfi eru skipulögð þurfum við að gæta þess að læsa ekki niður áætlanir sem gerir íbúa háðari notkun einkabíls í sínu daglega lífi með tilheyrandi aukningu á umferðarteppu. Því þurfa alltaf að liggja fyrir raunhæfar áætlun um uppbyggingu innviða og almenningssamgangna.
Fylgigögn
-
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Spöngina. Skipulagssvæðið afmarkast af Móavegi til norðurs, Borgarvegi til suðurs og Mosavegi til austurs. Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir uppbyggingu í kring um núverandi byggingar á lóðinni. Fyrirhuguð uppbygging fer aðallega undir nýjar íbúðir en einnig skrifstofur, verslanir og þjónustu. Lýsingin var kynnt frá 8. maí 2026 til og með 5. júní 2026. Umsagnir bárust. Umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar kynntar fyrir ráðinu.
Kynnt. USK25100240Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja áherslu á að markmið skipulagsvinnunnar verði fyrst og fremst að efla Spöngina sem þjónustukjarna Grafarvogs og bæta lífsgæði íbúa hverfisins. Mikilvægt er að áfram verði öflug verslun, heilbrigðisþjónusta, bókasafn og önnur nærþjónusta á svæðinu ásamt bættum almenningsrýmum og grænum svæðum. Við áframhaldandi vinnu verður sérstök áhersla lögð á að uppbyggingin taki mið af sérkennum Grafarvogs og verði í sátt við núverandi byggð. Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að skoðað verði sérstaklega hvort hluti nýs íbúðarhúsnæðis geti verið ætlaður eldri borgurum og fólki sem vill minnka við sig en áfram búa í sínu hverfi, í göngufæri við þjónustu, verslanir og heilsugæslu. Með því skapast jafnframt tækifæri fyrir fleiri ungar fjölskyldur til að festa rætur í Grafarvogi þegar stærri fjölskylduhús losna. Meirihlutinn telur mikilvægt að þróun Spangarinnar styrki samfélagið í Grafarvogi í heild en leiði ekki til óhóflegrar þéttingar eða raski þeim sérkennum sem íbúar meta mikils.
Fylgigögn
-
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í mars 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Ofanleiti 2. Lóðin liggur að íbúðabyggð, sunnan og vestan megin, Kringlureit norðan megin og samfélagsþjónustu eða Verzlunarskóla Íslands til austurs á lóð Ofanleitis 1. Markmið deiliskipulagsgerðar er að auka framboð íbúða með það að leiðarljósi að ný byggð falli vel að núverandi umhverfi. Auk þess er markmiðið að horfa í söguna, nýta innviði og byggja vistvænt húsnæði. Lýsingin var kynnt frá 24. apríl 2026 til og með 22. maí 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar kynntar fyrir ráðinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju umsókn Orra Árnasonar, dags. 26. september 2024, um breytingu á deiliskipulagi Norðurstígsreits vegna lóðarinnar nr. 7 við Ægisgötu. Í breytingunni sem lögð er til og varðar Ægisgötu 7 felst að heimilt verði að nýta húsið fyrir gististarfsemi (allt að 32 herb.) í stað fjölbýlishúss (15 íbúðir) af tegundinni hótel eða stærra gistiheimili, í flokki II- IV, fallið er frá því breyta kjallara í bílageymslu, en þar er nú gert ráð fyrir hótelherbergjum og stoðrýmum, fallið er frá að byggja inndregna hæð ofan á húsið, en heimilt verður að útbúa þakverönd sem fella skal inn í uppstólað þakið, í stað svalagangs á bakhlið framhúss er heimilt að byggja dýpri viðbyggingu, svo framarlega sem hluti jarðhæðar og kjallara bakbyggingar verði rifinn, lyftu- og stigahús skal ná upp á áður nefnda þakverönd og fallið er frá að byggja svalir á götuhlið byggingarinnar, m.a. til að varðveita upprunalegt yfirbragð hennar og byggingarmagn Ægisgötu 7 er aukið um 110 fermetra. Í breytingunni sem lögð er til og varðar Nýlendugötu 9 felst að syðri viðbygging Nýlendugötu 9 verður rifin og byggingarmagn Nýlendugötu 9 er minnkað um 20 fermetra. Auk þess eru gerðar breytingar á lóðamörkum Ægisgötu 7 og Nýlendugötu 9, samkvæmt deiliskipulags-, skýringar- og skuggavarpsuppdr. Zeppelin arkitekta, dags. 23. júní 2026. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 12. apríl 2024 og 11. júlí 2024, greinargerð Nikulásar Úlfars Mássonar arkitekts FAÍ, dags 15. september 2025, um skráningu fasteignar, samgöngumat Verkís, dags. 29. maí 2026, samantekt breytinga á samgöngumati, ódags., og yfirlit, dags. 4. júní 2026, yfir þær breytingar sem gerðar voru á tillögunni m.t.t. innkominna athugasemda. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í endurauglýsingu.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Drífa Árnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24090343
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Nú stefnir í að margir listamenn missi vinnustofur sínar og sýningarrými við Ægisgötu 7 í Fyrirbæri, þegar húsnæðinu verður breytt í hótel. Að mati fulltrúa Vinstrisins er það miður enda glæða vistaverur og vinnurými listamanna á svæðinu til muna og lífið sem þeir færa nærumhverfinu sínu ómetanlegt. Borgaryfirvöld ættu að sjá sóma sinn í að skoða hvort ekki er hægt að finna þessu listamannasamfélagi nýjan stað enda er vöntun á vinnustofum fyrir listamenn og sýningarrými sem þessu miðsvæðis.
Fylgigögn
- 12-07-2024 - Umsögn MÍ 11 júlí 2024 - Nýlendugata 9 og Ægisgata 7 - Hlíðarhús breyting á steinbæ.pdf - Orri Árnason - (Henny Hafsteinsdóttir)
- Minjastofnun umsögn-Hlíðarhús Nýlendugata 9 ums 12_4_2024
- Umsókn
- Samgöngumat-Ægisgata 7-uppfært-2026 (ID 514522) U01
- Deiliskipulag
- Samantekt breytinga í samgöngumati
- Ægisgata 7 skráning - umsögn
- 260604 Málsmeðferð NORÐURSTÍGSREITUR
- Kynning
-
Aflétt úr trúnaðarbók, kynning sem lögð var fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs, 1.liður, dags. 22. apríl 2026, um Sæbrautarstokk, mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs Sæbrautarstokks.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon lagði fram svohljóðandi bókun sem var færð í trúnaðarbók:
Mikilvægt er að staðið verði þannig að undirbúningi Sæbrautarstokks að mannvirkið beri hina miklu umferð, sem fyrirsjáanlegt er að fari um brautina til framtíðar. Við hönnun svo viðamikils mannvirkis er lágmarkskrafa að raunsæis verði gætt og það miðað við áætlaða umferð um Sæbraut til framtíðar. Þjóni göngin ekki sómasamlega því hlutverki sínu að greiða fyrir umferð, yrði miklum fjármunum kastað á glæ. Nú er áætlað að kostnaður við Sæbrautargöng muni nema um 27 milljörðum króna að því er fram kom á fundinum. Rúmlega 29 þúsund bifreiðar fóru um Sæbraut á sólarhring árið 2019. Hönnun ganganna miðast við 41 þúsund bifreiðar en árið 2040 er þó áætlað að um 49 þúsund bílar fari um hana á sólarhring að því er fram kom á fundinum. Æskilegt er að hönnun ganganna taki mið af áætlaðri umferð til framtíðar en í ljósi áðurnefndra talna vakna spurningar um hvort það sé gert. Komið hefur fram að um 2/3 hlutar ganganna verði sex akreinar (3+3) að svokölluðum blöndunarreinum meðtöldum. Í ljósi vaxandi umferðar um Sæbraut til framtíðar er rétt að metið verði sérstaklega hvort ekki sé ástæða til að öll göngin verði sex akreinar á breidd með 3+3 útfærslu. USK23100034
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir Sorpu bs. dags. 11. mars 2026, 18. mars 2026, 15. apríl 2026, 13. maí 2026 og 29. maí 2026, ásamt fylgigögnum. USK23010167
Fylgigögn
-
Fram fer í trúnaði, kynning á minnisblaði um rekstrarleyfi fyrir gististarfsemi á tilteknum svæðum miðsvæðis. skv. Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.
Vísað til borgarráðs.Auðun Helgason tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020328
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um skógrækt í borgarlandi:
Lagt er til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að koma með tillögu að því hvernig best væri að planta 50.000 trjáplöntum í borgarlandinu m.a. í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur og leik og grunnskólabörn í Reykjavík. Tillagan verði unnin í samráði við skóla- og frístundasvið og unnin með stefnu Reykjavíkurborgar um líffræðilegan fjölbreytileika að leiðarljósi. Markmiðið er að auka gróður bæði á grænum svæðum sem og inn í hverfum.
Samþykkt. Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða. USK26060427
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggja áherslu á að plantað sé fjölbreyttum trjágróðri í formi borgartrjáa og runna vítt og breytt um borgina. Trjágróður er ómissandi hluti af fallegu og heilnæmu borgarlandslagi. Fjölbreyttur trjágróður eykur líffræðilegan fjölbreytileika, bætir loftgæði, dregur úr vindi og getur stuðlað að bættri heilsu borgarbúa. Meirihlutinn leggur áherslu á að verkefnið sé unnið með stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika í huga og að trjágróðurinn njóti sín yfir allar árstíðir. Meirihlutinn leggur einnig áherslu á að plantað verði berjarunnum og jafnvel ávaxtatrjám og borgarbúum þannig gert kleift að týna ávexti og ber í borgarlandslaginu. Verkefnið er hugsað með þátttöku sem flestra borgarbúa í huga, m.a. skólabarna sem nýta má samhliða í fræðslu um umhverfismál og landgræðslu. Er því lagt upp með að skóla- og frístundasvið komi að útfærslu tillögunnar. Einnig er lagt upp með að verkefnið sé unnið í samstarfi við Skógræktina. Mikilvægt er að leggja sérstaka áherslu á ný hverfi þar sem græn svæði hafa vikið fyrir nýrri byggð.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að útfæra tillögu að breyttum stefnum og viðmiðum sem miða að því að uppbygging húsnæðis sé í takt við eftirspurn á markaði, s.s. varðandi fjölda bílastæða, íbúðastærðir og verslunar- og þjónusturými.
Samþykkt. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs. USK26060303
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur áherslu á að uppbygging húsnæðis taki mið af raunverulegri eftirspurn og þörfum íbúa. Mikilvægt er að skipulagsákvarðanir stuðli að því að byggt sé það húsnæði sem fólk vill kaupa og búa í. Því er mikilvægt að við mótun skipulags og viðmiða verði í auknum mæli leitað eftir sjónarmiðum bæði íbúa og uppbyggingaraðila, meðal annars um íbúðastærðir, fjölda bílastæða, verslunar- og þjónusturými og aðra þætti sem hafa áhrif á gæði og markaðshæfni nýrrar byggðar. Fyrr á árinu kannaði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun viðhorf fólks til búsetu og skipulagsóskir og má túlka niðurstöður þeirrar könnunar á þann veg að þær sýni að núverandi stefna í skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu endurspegli ekki óskir íbúanna og er því mikilvægt að endurskoða stefnuna. Markmiðið er að skapa sveigjanlegra skipulagsumhverfi sem gerir markaðnum betur kleift að bregðast við fjölbreyttum þörfum borgarbúa og stuðlar að öflugri og hagkvæmari húsnæðisuppbyggingu.
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, sbr. 54. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 24. júní 2026.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26060369
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. júní 2026 ásamt kæru nr. UUA2606015, dags. 16. júní 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa dagsett 19. maí sl. að synja umsókn kæranda um breytingar á húsi hans að Sóleyjargötu 27. USK26060269
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605018, dags. 28. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík dagsett 27. apríl sl. um að kæranda verði gert að færa fasteign sína að Deplahólum 7 til fyrra horfs og til samræmis við fyrirliggjandi og gildandi samþykkta uppdrætti og veittur til þess 60 daga frestur eða sæta annars dagsektum. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 23. júní 2026. USK26050472
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. júní 2026 ásamt kæru nr. UUA2605013, dags. 23. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingaryfirvalda um að kæranda beri að fjarlægja grindverk á verönd hans að Lindargötu 12 í Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 23. júní 2026. USK26060131
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604016, dags. 28. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur á fundi 25. mars 2026 þar sem samþykkt var umsókn Samhjálpar um rekstur kaffistofu að Grensásvegi 46. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 7. maí 2026. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 23. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 31. mars 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti, ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi nr. 46 við Grensásveg. USK26040428
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar árétta að mikilvægt er að finna Kaffistofu Samhjálpar stað því Reykjavík á að vera borg fyrir alla. Kaffistofan sinnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk sem á erfitt með að sjá sér fyrir nauðsynjum dagsins. Þjónustan snýst ekki aðeins um mat heldur um mannlega reisn, öryggi og hafa stað til að leita á þegar allt annað bregst. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Mikilvægt að skoðað sé nánar hvað þetta þýðir varðandi afgreiðslu sambærilegra mála í framtíðinni. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila. Markmiðið er að tryggja að þjónustan verði áfram öflug og aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda, um leið og byggt er á traustri málsmeðferð, góðum undirbúningi og virku samtali við nærumhverfið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605002, dags. 4. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar dagsett 31. mars 2026 um að samþykkja leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2026. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 23. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 31. mars 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti, ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi nr. 46 við Grensásveg. USK26050053
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar árétta að mikilvægt er að finna Kaffistofu Samhjálpar stað því Reykjavík á að vera borg fyrir alla. Kaffistofan sinnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk sem á erfitt með að sjá sér fyrir nauðsynjum dagsins. Þjónustan snýst ekki aðeins um mat heldur um mannlega reisn, öryggi og hafa stað til að leita á þegar allt annað bregst. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Mikilvægt að skoðað sé nánar hvað þetta þýðir varðandi afgreiðslu sambærilegra mála í framtíðinni. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila. Markmiðið er að tryggja að þjónustan verði áfram öflug og aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda, um leið og byggt er á traustri málsmeðferð, góðum undirbúningi og virku samtali við nærumhverfið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605001, dags. 4. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar dagsett 31. mars 2026 um að samþykkja leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2026. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 23. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 31. mars 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti, ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi nr. 46 við Grensásveg. USK26050042
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar árétta að mikilvægt er að finna Kaffistofu Samhjálpar stað því Reykjavík á að vera borg fyrir alla. Kaffistofan sinnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk sem á erfitt með að sjá sér fyrir nauðsynjum dagsins. Þjónustan snýst ekki aðeins um mat heldur um mannlega reisn, öryggi og hafa stað til að leita á þegar allt annað bregst. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Mikilvægt að skoðað sé nánar hvað þetta þýðir varðandi afgreiðslu sambærilegra mála í framtíðinni. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila. Markmiðið er að tryggja að þjónustan verði áfram öflug og aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda, um leið og byggt er á traustri málsmeðferð, góðum undirbúningi og virku samtali við nærumhverfið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604003, dags. 8. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur dagsett 26. mars 2026 um að samþykkja byggingaráform að Grensásvegi 46. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 23. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 31. mars 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti, ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi nr. 46 við Grensásveg. USK26040087
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar árétta að mikilvægt er að finna Kaffistofu Samhjálpar stað því Reykjavík á að vera borg fyrir alla. Kaffistofan sinnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk sem á erfitt með að sjá sér fyrir nauðsynjum dagsins. Þjónustan snýst ekki aðeins um mat heldur um mannlega reisn, öryggi og hafa stað til að leita á þegar allt annað bregst. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Mikilvægt að skoðað sé nánar hvað þetta þýðir varðandi afgreiðslu sambærilegra mála í framtíðinni. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila. Markmiðið er að tryggja að þjónustan verði áfram öflug og aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda, um leið og byggt er á traustri málsmeðferð, góðum undirbúningi og virku samtali við nærumhverfið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604003, dags. 8. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur dagsett 26. mars 2026 um að samþykkja byggingaráform að Grensásvegi 46. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 23. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 31. mars 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti, ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi nr. 46 við Grensásveg. USK26040081
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar árétta að mikilvægt er að finna Kaffistofu Samhjálpar stað því Reykjavík á að vera borg fyrir alla. Kaffistofan sinnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk sem á erfitt með að sjá sér fyrir nauðsynjum dagsins. Þjónustan snýst ekki aðeins um mat heldur um mannlega reisn, öryggi og hafa stað til að leita á þegar allt annað bregst. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Mikilvægt að skoðað sé nánar hvað þetta þýðir varðandi afgreiðslu sambærilegra mála í framtíðinni. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila. Markmiðið er að tryggja að þjónustan verði áfram öflug og aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda, um leið og byggt er á traustri málsmeðferð, góðum undirbúningi og virku samtali við nærumhverfið.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Óskað er eftir skriflegu svari varðandi auð og ónotuð húsnæði. Nánar tiltekið er óskað eftir eftirfarandi upplýsingum: 1. Heildarfjöldi: Hversu margar fasteignir (íbúðir, húsnæði til annarra nota, lóðir með mannvirkjum) í eigu Reykjavíkurborgar standa tómar eða eru ónotaðar í dag? 2. Tímarammi: Hversu lengi hefur hvert húsnæði staðið autt? (Gert er ráð fyrir flokkun eftir tímabilum, t.d. 0–6 mánuðir, 6–12 mánuðir, yfir 12 mánuði). 3. Ástæður: Hverjar eru helstu ástæður þess að húsnæðið nýtist ekki? (T.d. viðgerðir vegna myglu/raka, bið eftir skipulagsbreytingum, fjármagnsskortur, eða annað). 4. Aðgerðaáætlun: Hver er áætlun sviðsins til að koma þessu húsnæði í notkun og hvaða tímarammi er settur fyrir úrbætur? 5. Kostnaður: Hver er áætlaður kostnaður við að gera húsnæðið nothæft og er fjármagn tryggt til þess í núverandi fjárhagsáætlun? 6. Rökstuðningur: Mikilvægt er að tryggja sem besta nýtingu á eignasafni borgarinnar, ekki síst í ljósi húsnæðisskorts og fjárhagsþrýstings. Upplýsingar um stöðu ónotaðs húsnæðis eru nauðsynlegar til að hægt sé að meta hvort rétt sé staðið að málum og hvort frekari aðgerða sé þörf. USK26070003
- Kl. 13:05 víkja Guðmundur Benedikt Friðriksson og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir af fundi.
Fundi slitið kl. 13:19
Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald
Birkir Ingibjartsson Magnea Gná Jóhannsdóttir
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson
Sigrún Ásta Einarsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 1. júlí 2026