Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 380

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 24. júní, kl. 9:05 var haldinn 380. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir, Silvá Kærnested, Elísabet Dröfn Erlingsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 4. júní 2026 um kosningu sjö fulltrúa í umhverfis- og skipulagsráð til fjögurra ára og sjö til vara ásamt formannskjör. MSS26060015
     

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 10. júní 2026 þar sem samþykkt er að Ari Edwald taki sæti í umhverfis- og skipulagsráði í stað Páls Edwalds og að Lárus Blöndal Sigurðsson taki sæti varamanns í ráðinu í stað Ara. MSS26060015
     

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 18. júní 2026 þar sem tilkynnt er að Harpa Sif Eyjólfsdóttir taki sæti varafulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði í stað Stein Olav Romslo. MSS26060015
     

    Fylgigögn

  4. Fram fer kosning varaformanns í umhverfis- og skipulagsráði fyrir tímabilið 2026 - 2030.
    Samþykkt að Friðjón R. Friðjónsson verði varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs. MSS26060015
     

  5. Lagt fram fundadagatal umhverfis- og skipulagsráð fyrir júní til desember 2026. USK26060196
     

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á stöðu við þróun hringrásargarðs á Álfsnesi, þróunaráætlun og sviðsmyndir um þróun landnotkunar (drög).
    Kynnt.
    Vísað til borgarráðs.

    Jón Heiðar Ríkharðsson, Berglind Hallgrímsdóttir, Jóhanna Helgadóttir, Margrét Lára Baldursdóttir og Haraldur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK24060310

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Þakkað er fyrir kynningu á stöðu þróunar hringrásargarðs á Álfsnesi, þróunaráætlun svæðisins og þeim sviðsmyndum um framtíðarlandnotkun sem kynntar voru á fundinum. Ljóst er að um er að ræða eitt mikilvægasta þróunarsvæði Reykjavíkur til framtíðar þegar kemur að atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun. Veruleg tækifæri felast í að efla nýsköpun, auðlindanýtingu og fjölbreytta atvinnustarfsemi á svæðinu til hagsbóta fyrir Reykjavík og höfuðborgarsvæðið allt. Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að framtíðarþróun Álfsness og annarrar atvinnustarfsemi í austurhluta borgarinnar er nátengd uppbyggingu öflugra samgönguinnviða. Sundabraut er lykilforsenda áframhaldandi atvinnuuppbyggingar í Reykjavík og mun gjörbreyta aðgengi að svæðinu, styrkja tengingar við hafnar- og atvinnusvæði borgarinnar, bæta flutningsleiðir um höfuðborgarsvæðið og opna möguleika á skipulagningu íbúabyggðar á svæðinu. Í ljósi þess er fullt tilefni til að hvetja ríkisvaldið til að halda áfram af fullum þunga við undirbúning og framkvæmd Sundabrautar með hagsmuni Reykvíkinga í huga enda er verkefnið ekki aðeins mikilvægt samgöngumál heldur einnig eitt mikilvægasta atvinnu- og þróunarmál Reykjavíkur til framtíðar.
     

    Fylgigögn

  7. Lagt fram árshlutauppgjör umhverfis- og skipulagssviðs frá janúar - mars 2026.

    Hreinn Ólafsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030339
     

    Fylgigögn

  8. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 5. maí 2026, 12. maí 2026, 19. maí 2026, 27. maí 2026, 2. maí 2026, 9. maí 2026 og 16. maí 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  9. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa dags. 5. maí 2026, 12. maí 2026, 19. maí 2026, 27. maí 2026, 2. maí 2026, 9. maí 2026 og 16. maí 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram lýsing Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, skipulagsgerðar og drög að tillögu Borgarspítalareits, Geðsviðs LSH í Fossvogi (S13 og ÍB21). Stækkun svæðis fyrir samfélagsþjónustu dags. ódags. Lagt er til að lýsingin verði kynnt og leitað umsagna þeirra aðila sem taldir eru upp í henni.
    Samþykkt er að kynna lýsingu að aðalskipulagi í samræmi við 1. - 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, Kópavogsbæ, Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Seltjarnarneskaupstað, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Umhverfis- og orkustofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Minjastofnun, Borgarsögusafni, Veitum, Íbúasamtökum í Háaleitis- og Bústaðahverfum, LSH-Landspítala og kynna hana fyrir almenningi.
    Vísað til borgarráðs.

    Margrét Lára Baldursdóttir, Haraldur Sigurðsson og Sigríður Maack taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26060293

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks styðja að unnið verði áfram að skipulagsgerð og aðalskipulagsbreytingu fyrir nýtt geðsvið Landspítala og telur mikilvægt að geðþjónusta Landspítala fái nútímalega aðstöðu í grænu og batamiðuðu umhverfi, í samræmi við markmið lýsingarinnar. Jafnframt er áréttað að með fyrirhugaðri breytingu er horfið frá fyrri áformum um íbúðauppbyggingu á hluta Borgarspítalareitsins sem byggðu á fyrri samningum og viljayfirlýsingum milli ríkisins og Reykjavíkurborgar. Mikilvægt er því að áður en endanleg tillaga að aðalskipulagsbreytingu verður lögð fram liggi fyrir samningur milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um afnot og úthlutun landsins til Landspítala, auk skýrrar niðurstöðu um hvernig brugðist verði við þeirri húsnæðisuppbyggingu sem fellur niður vegna breytingarinnar.


    Lögð fram svohljóðandi bókun Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja mikilvæga og löngu tímabæra uppbyggingu nýs geðsviðs Landspítalans á grundvelli nútímalegra viðhorfa um batamiðað meðferðarumhverfi. Sú staðreynd að 5,4 hektara svæði, sem áður var eyrnamerkt íbúðarbyggð borgarinnar (um 200 íbúðir), sé tekið undir starfsemi spítalans kallar þó á ríka hagsmunagæslu af hálfu Reykjavíkurborgar. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að nýr samningur milli borgar og ríkis um úthlutun landsins liggi fyrir og tryggi hagsmuni borgarbúa áður en gengið verður frá aðalskipulagstillögu til lögformlegrar auglýsingar. Jafnframt verður að liggja fyrir hvar skipuleggja eigi þessar 200 íbúðir í Reykjavík í staðinn. Tekið er undir orð embættis skipulagsfulltrúa um áskoranir við fyrirhugaða uppbyggingu á lóðinni þar sem áherslur um batamiðað húsnæði takast á við sjónarmið um að gæta þurfi að áhrifum á nærliggjandi byggð og ásýnd Borgarspítalans. Mikilvægt er að mörkuð verði heildræn sýn um framtíðaruppbyggingu lóðarinnar í heild sinni. Að lokum er vakin athygli á því að opinberar spár gera ráð fyrir tvöföldun á göngudeildarkomum til ársins 2040, en gögn ráðuneytisins sýna líka 22% raunvöxt í réttargeðlækningum milli ára sem spálíkön virðast ganga framhjá. Brýnt er að deiliskipulagsferlið taki mið af þessum rauntölum, tryggi hljóðvist, skýra lausn á staðsetningu þyrlupalls og fullnægjandi samráð við íbúa hverfisins.
     

    Fylgigögn

  11. Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju umsókn Nýs Landspítala ohf., dags. 21. júlí 2025, ásamt skipulagslýsingu, dags. september 2025, vegna breytingar á deiliskipulagi Landspítalans Fossvogi (Borgarspítalans). Skipulagssvæðið afmarkast af Háaleitisbraut til vesturs, suðurjaðri Borgarspítalans til norðurs, núverandi íbúðabyggð við Markarveg og Kjarrveg til suðurs og Álftalandi til austurs. Breytingin sem lögð er til felur í sér að skipuleggja reitinn sunnan og austan núverandi Borgarsjúkrahúss / Landspítala í Fossvogi undir nýtt geðsvið LSH með áherslu á fremstu gæði varðandi allan aðbúnað og upplifun fólks við útfærslu sérhæfðs geðsjúkrahúss fyrir starfsmenn, sjúklinga og gesti þeirra. Samkvæmt húsrýmisáætlun Nýs Landspítala NLSH er gert ráð fyrir um 24.000 fermetra nýbyggingu í fyrsta áfanga með möguleika á seinni tíma stækkun. Gert er ráð fyrir að stærri þjónustueiningar og byggingahlutar verði með sér inngarða og svæði til endurhæfingar, mest á tveimur hæðum. Útfærsla nýbyggingar, lóðar og næsta umhverfis verður hluti af batamiðaðri meðferð sjúklinga. Í kjölfar lýsingar mun deiliskipulagsgerð byggja á samþykktum áætlunum og stefnum: Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030; Aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar í loftslagsmálum árin 2021-2025 og Græna planinu, stefnu Reykjavíkurborgar til 2030. Einnig er lögð fram skýrsla starfshóps um framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala, dags. í mars 2023, forathugun Nýs Landspítala vegna nýs húsnæðis fyrir geðþjónustu Landspítala, dags. í september 2024, bréf stýrihóp til borgarstjóra um skipulag framkvæmda við Landspítala og önnur sérhæfð sjúkrahús, dags. 25. nóvember 2024, áfangaskýrsla Eflu vegna kostnaðarmats fyrir mögulegar staðsetningar, dags. 10. september 2025, og frumgreining umhverfis- og skipulagssviðs á lóð, dags. í febrúar 2026. Lýsingin var kynnt frá 25. september 2025 til og með 23. október 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust.
    Athugasemdir og umsagnir kynntar.

    Sigríður Maack, Haraldur Sigurðsson og Margrét Lára Baldursdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25070268

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja mikilvæga og löngu tímabæra uppbyggingu nýs geðsviðs Landspítalans á grundvelli nútímalegra viðhorfa um batamiðað meðferðarumhverfi. Sú staðreynd að 5,4 hektara svæði, sem áður var eyrnamerkt íbúðarbyggð borgarinnar (um 200 íbúðir), sé tekið undir starfsemi spítalans kallar þó á ríka hagsmunagæslu af hálfu Reykjavíkurborgar. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að nýr samningur milli borgar og ríkis um úthlutun landsins liggi fyrir og tryggi hagsmuni borgarbúa áður en gengið verður frá aðalskipulagstillögu til lögformlegrar auglýsingar. Jafnframt verður að liggja fyrir hvar skipuleggja eigi þessar 200 íbúðir í Reykjavík í staðinn. Tekið er undir orð embættis skipulagsfulltrúa um áskoranir við fyrirhugaða uppbyggingu á lóðinni þar sem áherslur um batamiðað húsnæði takast á við sjónarmið um að gæta þurfi að áhrifum á nærliggjandi byggð og ásýnd Borgarspítalans. Mikilvægt er að mörkuð verði heildræn sýn um framtíðaruppbyggingu lóðarinnar í heild sinni. Að lokum er vakin athygli á því að opinberar spár gera ráð fyrir tvöföldun á göngudeildarkomum til ársins 2040, en gögn ráðuneytisins sýna líka 22% raunvöxt í réttargeðlækningum milli ára sem spálíkön virðast ganga framhjá. Brýnt er að deiliskipulagsferlið taki mið af þessum rauntölum, tryggi hljóðvist, skýra lausn á staðsetningu þyrlupalls og fullnægjandi samráð við íbúa hverfisins.

    Fylgigögn

  12. Fram fer kynning á breyttu verklagi öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa.

    -    Kl. 10:46 víkur Silvá Kjærnested af fundi. USK26060257
     

    Fylgigögn

  13. Lögð fram umsókn SB18 ehf., dags. 13. ágúst 2025, um breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar - Ármúla vegna lóðar nr. 18 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að hækka fyrirhugað, óbyggt bakhús um eina hæð. Í dag er tveggja hæða bílastæðahús þar sem þegar skipulagt bakhús verður. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi, sem tók gildi árið 2017, er einungis heimiluð ein hæð bílastæða undir bakhúsinu. Hækkunin felst í því að halda þessum tveimur bílastæðahæðum, sem nú eru til staðar, og byggja 4 hæðir ofan á bílastæðahúsið. Þannig er ekki verið að auka við byggingarmagn nýtanlegra fermetra heldur einungis verið að halda í þau bílastæði sem eru á lóðinni í dag. Starfsemi í húsinu verður í takt við heimildir í deiliskipulagi, sem getur þá verið hótel, skrifstofur og þjónusta á jarðhæð, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta, dags. 1. júní 2026. Einnig er lagt fram minnisblað ASK Arkitekta um samgöngumat, dags. 15. júní 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Hildur Ýr Ottósdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080113
     

    Fylgigögn

  14. Lögð fram umsókn Skurnar ehf., dags. 25. febrúar 2025, um gerð nýs deiliskipulags fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Skipulagssvæðið nær yfir allt Sætún II á Kjalarnesi sem afmarkast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Með deiliskipulaginu verður skilgreindur byggingarreitur og uppbyggingar- og starfsemisheimildir en annar hluti jarðarinn er óbreytt landnotkun, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf., dags. 28. júní 2026. Einnig er lögð fram greinargerð og skipulagsskilmálar TAG teiknistofu ehf., dags. 8. júní 2026. Jafnframt er lögð fram matsskyldufyrirspurn, dags. í febrúar 2026, og ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um matsskyldu, dags. 11. maí 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs. USK26060025
    15.    Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjöldi barna á leikskólanum fer úr 150 í 200, byggingarreitur B1 er stækkaður þannig að megi koma fyrir hjóla-, vagna- og útigeymslum innan reitsins en byggingarmagn helst óbreytt. Auk þess er bíla- og hjólastæðum fjölgað, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 22. maí 2026. Einnig er lagt fram Samgöngumat Verkís, ódags. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26050052
     

    Fylgigögn

  15. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjöldi barna á leikskólanum fer úr 150 í 200, byggingarreitur B1 er stækkaður þannig að megi koma fyrir hjóla-, vagna- og útigeymslum innan reitsins en byggingarmagn helst óbreytt. Auk þess er bíla- og hjólastæðum fjölgað, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 22. maí 2026. Einnig er lagt fram Samgöngumat Verkís, ódags. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.

  16. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir göturými Suðurlandsbrautar frá gatnamótum við Skeiðarvog og til vesturs að gatnamótum við Lágmúla. Tillagan er hluti af 1. lotu Borgarlínu og er í samræmi við markmið og stefnu landsskipulagsstefnu, svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2040, Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 og rammahluta Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 - Fyrsta lota Borgarlínu: Ártún - Fossvogsbrú. Samkvæmt tillögunni fer Borgarlínan um Suðurlandsbraut á tveimur miðjusettum sérakreinum (almenningssamgangna) og er gert ráð fyrir göngu- og hjólastígum beggja vegna göturýmisins og gróðri á svæðum inn á milli. Þrjár Borgarlínustöðvar verða á svæðinu, við Glæsibæ, Laugardalshöll og Lágmúla, samkvæmt uppdráttum Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026, og greinargerð Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026. Einnig er lagt fram minnisblað Borgarlínunnar, dags. 16. október 2023, um vinstri beygjur við gatnamót Álfheima/Suðurlandsbrautar, samantekt Borgarlínunnar, dags. 31. mars 2026, um umferð á Suðurlandsbraut og bílastæðagreining VSB verkfræðistofu, dags. 2. apríl 2025 og samantekt, dags. 16. janúar 2026. Tillagan var auglýst frá 29. janúar 2026 til og með 12. mars 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. mars 2026.
    Tillögunni er synjað með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar. 

    Vísað til borgarráðs. USK24090201

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks telur ekki forsendur til að samþykkja fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu fyrir Suðurlandsbraut sem hluta af 1. lotu Borgarlínu. Tillagan þrengir að atvinnustarfsemi á svæðinu og byggir á forsendum samgönguuppbyggingar sem verður tekin til endurskoðunar á næstu vikum og mánuðum. Suðurlandsbraut gegnir lykilhlutverki í samgöngukerfi Reykjavíkur og mikilvægt er að breytingar á göturýminu taki mið af heildarhagsmunum borgarbúa, umferðarflæði, atvinnustarfsemi og aðgengi. Því telur meirihlutinn rétt að endurmeta fyrirhugaðar framkvæmdir á þessum kafla í samhengi við endurskoðun Samgöngusáttmálans og framtíðarsýn nýrrar borgarstjórnar um þróun samgangna í Reykjavík áður en teknar eru ákvarðanir sem hafa varanleg áhrif á einn mikilvægasta samgönguás borgarinnar. Rétt er að taka fram að mikilvægt er að rösklega verði unnið við nýtt deiliskipulag svo það tefji ekki aðra uppbyggingu á svæðinu s.s Þjóðarhöll og fleiri verkefni.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:


    Fulltrúar Samfylkingarinnar harma að tillaga að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar hafi verið felld. Með því er bráðnauðsynlegum samgöngubótum stefnt í uppnám og innleiðing Borgarlínu tafin verulega með því að setja hönnunarferlið á Suðurlandsbraut aftur á byrjunarreit. Eðlilegri farvegur hefði verið að taka þær athugasemdir sem fram komu í auglýsingu deiliskipulagsins til skoðunar og aðlaga tillöguna útfrá þeim sjónarmiðum sem þar komu fram án þess að stefna markmiðum verkefnisins í tvísýnu. Úr því sem komið er leggja fulltrúar Samfylkingarinnar áherslu á að nýta tímann vel. Mikilvægt er að hlusta á raddir hagaðila við Suðurlandsbraut og íbúa í nágrenninu og finna útfærslur sem koma sem best til móts við ólík sjónarmið, en tryggja á sama tíma að heildarsýn og framgangur Borgarlínu haldist í takt við fyrri áform. Til að mæta áhyggjum rekstraraðila og ná fram meiri sátt um breytingu Suðurlandsbrautar og þeim framkvæmdum sem þeim fylgja leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að samhliða nýju deiliskipulagi verði lögð fram skýr og áfangaskipt framkvæmdaáætlun. Eins verði skoðað að skilgreina nánar áfangaskiptingu um umbreytingu göturýmisins sunnan götunnar þannig að tryggt verði að göngu- og hjólastígar og aukin gróður og umhverfisgæði verði þar enn tryggð í skipulagi götunnar þó uppbygging þeirra geti mögulega byggst upp í seinni áföngum framkvæmdarinnar.
     

    Fylgigögn

  17. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda samgöngustjóra dags. 15. maí 2026 og 8. júní 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
     

    Fylgigögn

  18. Fram fer kynning um ljósastýringu og umferðarflæði í Reykjavík.

    Nils Schwarzkopp tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26060302

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis og skipulagsráði þakka fyrir þá vinnu sem unnin hefur verið við uppfærslu og þróun umferðarljósakerfis Reykjavíkur. Fulltrúar flokkanna leggja áherslu á að áfram verði unnið markvisst að endurnýjun búnaðar, innleiðingu nýrrar tækni og gagnadrifinni stýringu umferðar með það að markmiði að bæta öryggi, draga úr töfum og auka skilvirkni samgöngukerfisins í heild. Mikilvægt að Reykjavíkurborg nýti ávallt nýjustu tækni og vísindi á sviði umferðarstýringar til að greiða fyrir umferð allra vegfarenda, hvort sem um er að ræða gangandi, hjólandi, notendur almenningssamgangna eða akandi. Þá er mikilvægt að þessi verkefni verði áfram í forgangi enda eru skilvirkar umferðarljósastýringar lykilþáttur í öruggu og vel starfandi borgarsamfélagi.
     

    Fylgigögn

  19. Fram fer kynning á ábendingar Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar á verklagi í kjölfar úttektar á Álfabakka 2.

    Lilja Sigurbjörg Harðardóttir og Líf Geirfinnudóttir Gunnlaugsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26060304
     

    Fylgigögn

  20. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði að yfirfara fyrirhugaða uppbyggingu og þéttingu byggðar við Starengi og Hverafold í Grafarvogi. Sviðið leggi fram tillögur um breytingar á skipulagi sem taka mið af sjónarmiðum íbúa, áhrifum á nærumhverfi og þjónustugetu hverfisins.

    Frestað. USK26060300
     

  21. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 18. júní 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnarfundar dags. 16. júní 2025 um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík. Tillagan var afgreidd á fundi borgarstjórnar, sbr. 3 liður, dags. 16. júní 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.

    -    Kl. 12:38 víkur Ólöf Örvarsdóttir af fundi.

    Samþykkt að vísa til umsagnar umhverfis- og skipulagssvið. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26060100

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Tillaga nýs meirihluta um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík er um margt ágæt þó sum atriði tillögunnar orki tvímælis og taki á atriðum sem nýlega hefur þegar verið samþykkt að taka til endurskoðunar, t.a.m. er varðar gjaldskyldu bílastæða í miðborginni. Að sleppa hámarksfjölda bílastæða á nýbyggingarreitum lausum mun skapa óvissu í skipulagsgerð og ekki einfalda þá þegar flóknu vinnu sem deiliskipulagsvinna getur oft verið. Liður nr. 4 í tillögunni vekur ugg um að nýr meirihluti ætli að taka til baka þær breytingar í miðborginni þar sem mannlífinu hefur verið gefið aukið pláss. Mikilvægt er að tryggja göngugötur áfram í sessi og að áætlanir um stækkun gönguvænna svæða haldi.
     

    Fylgigögn

  22. Lögð fram tillaga áheyrnarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur um endurskoðun götunafna við Nýja Landspítalann. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 43 liður, dags. 7. maí 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
    Tillagan er felld með 6 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26050030
     

    Fylgigögn

  23. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur um bílastæði fyrir hreyfihamlaða við Ráðhúsið, sbr. 35. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 6. maí 2026.
    Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins USK26050061
     

    Fylgigögn

  24. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sbr. 26. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 12. júní 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu eignastýringar, dags. 8. maí 2026. USK24060160
     

    Fylgigögn

  25. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um stöðu 1. lotu Borgarlínu, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 15. júní 2026. USK26040323
     

    Fylgigögn

  26. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. júní 2026 ásamt kæru nr. UUA2605013, dags. 23. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingaryfirvalda um að kæranda beri að fjarlægja grindverk á verönd hans að Lindargötu 12 í Reykjavík. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 16. júní 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er þeirri kröfu kæranda að fresta réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 27. apríl 2026 um að fjarlægja skuli viðbyggingu á baklóð 1. hæðar íbúða 0101 og 0102 að Lindargötu 12. USK26060131
     

    Fylgigögn

  27. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 21. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605010, dags. 20. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík, synjun frá 21. apríl 2026 í máli USK26030138 um kröfu kærenda um að smáhýsi (sánaklefi) á nágrannalóð að Vogalandi 7 á lóðarmörkum Vogalands 7 og Vogalands 9, Reykjavík verði fjarlægt og ákvörðun byggingarfulltrúans um að aðhafast ekki frekar vegna staðsetningar smáhýsisins. USK26050352
     

    Fylgigögn

  28. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605018, dags. 28. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík dagsett 27. apríl sl. um að kæranda verði gert að færa fasteign sína að Deplahólum 7 til fyrra horfs og til samræmis við fyrirliggjandi og gildandi samþykkta uppdrætti og veittur til þess 60 daga frestur eða sæta annars dagsektum. USK26050472
     

    Fylgigögn

  29. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604003, dags. 8. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur dagsett 26. mars 2026 um að samþykkja byggingaráform að Grensásvegi 46. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. USK26040081
     

    Fylgigögn

  30. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604003, dags. 8. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur dagsett 26. mars 2026 um að samþykkja byggingaráform að Grensásvegi 46. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. USK26040087
     

    Fylgigögn

  31. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605001, dags. 4. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar dagsett 31. mars 2026 um að samþykkja leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2026. USK26050042
     

    Fylgigögn

  32. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605002, dags. 4. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar dagsett 31. mars 2026 um að samþykkja leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2026. USK26050053
     

    Fylgigögn

  33. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604016, dags. 28. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur á fundi 25. mars 2026 þar sem samþykkt var umsókn Samhjálpar um rekstur kaffistofu að Grensásvegi 46. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 7. maí 2026. USK26040428
     

    Fylgigögn

  34. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 15. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA260500, dags. 15. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur frá 28. ágúst 2025 um breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðarinnar nr. 3A við Bauganes. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 29. maí 2026. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK26050263
     

    Fylgigögn

  35. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605009, dags. 20. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík, dagsett 5. maí 2026, þ.s. kærendum er gert að fjarlægja girðingu og smáhýsi af lóðinni Nýlendugötu 32. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 29. maí 2026. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 5. maí 2026 um að fjarlægja skuli mannvirki sem standi utan lóðamarka Nýlendugötu 32 og á borgarlandi í óleyfi. USK26050331
     

    Fylgigögn

  36. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602015, dags. 6. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 13.8. 2025, að veita byggingarheimild fyrir breytingu á notkun bílskúranna og útliti þeirra að Hjarðarhaga 13. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. mars 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 3. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. október 2024 um að samþykkja byggingarheimild fyrir breyttri notkun og útliti bílskúrs á lóð fjölbýlishúss nr. 13 við Hjarðarhaga. USK26020126
     

    Fylgigögn

  37. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602025, dags. 22. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa um útgáfu á byggingarleyfi, samþykktu 2. desember 2025, einnig hverfisskipulag Árbæjar, auglýst 31. október 2019. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. mars 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. maí 2026. Úrskurðarorð: Vísað er frá úrskurðarnefndinni kröfu um ógildingu hverfisskipulags fyrir Ártúnsholt, Árbæ og Selás. Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 2. desember 2025 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir tveimur færanlegum kennslustofum auk tengibyggingar á lóð nr. 17 við Hlaðbæ. USK26020399
     

    Fylgigögn

  38. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602024, dags. 22. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúi um útgáfu á byggingarleyfi, samþykktu 2. desember 2025, einnig hverfisskipulag Árbæjar, auglýst 31. október 2019. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. mars 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. maí 2026. Úrskurðarorð: Vísað er frá úrskurðarnefndinni kröfu um ógildingu hverfisskipulags fyrir Ártúnsholt, Árbæ og Selás. Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 2. desember 2025 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir tveimur færanlegum kennslustofum auk tengibyggingar á lóð nr. 17 við Hlaðbæ. USK26020398
     

    Fylgigögn

  39. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603011, dags. 20. mars 2026, vegna framkvæmda á jörðinni Hrafnhólar. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 20. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 11. maí 2026. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK26030395
     

    Fylgigögn

  40. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603008, dags. 17. mars 2026, þar sem óskað er eftir að neitun Reykjavíkurborgar samkvæmt bréfi byggingarfulltrúa, skjal 1, verði hafnað og leyft verða að byggja við einbýlishús sem nú þegar er á lóð Rafstöðvarvegar 41. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 11. maí 2026. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK26030370
     

    Fylgigögn

  41. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 21. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 2 vegna lóðanna nr. 8 við Kleppsmýrarveg og nr. 2 við Bátavog. USK26020405
     

    Fylgigögn

  42. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 21. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir að Samþykkt. Ægisíðu 104, Leikskólinn Ægisborg. USK26040352
     

    Fylgigögn

  43. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 21. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð nr. 3 við Langavatnsvegi. USK25080143
     

    Fylgigögn

  44. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 21. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði árið 2026. USK26010220
     

    Fylgigögn

  45. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 7. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti. USK24070045
     

    Fylgigögn

  46. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 7. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðanna nr. 33, 35 og 37 við Fiskislóð. USK25110116
     

    Fylgigögn

  47. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 7. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð. USK25100348
     

    Fylgigögn

  48. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 7. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Leirtjörn vestur, 1. áfanga. USK24060028
     

    Fylgigögn

  49. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 7. maí 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir Ártúnshöfða svæði 2C, Þórðarhöfða. USK25110152
     

    Fylgigögn

  50. Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 22. apríl 2026, vegna samþykktar borgarstjórnar frá 21. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla. USK26030101
     

    Fylgigögn

  51. Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 22. apríl 2026, vegna samþykktar borgarstjórnar frá 21. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 18-28 og Ármúla 15-27. USK26030100
     

    Fylgigögn

  52. Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 22. apríl 2026, vegna samþykktar borgarstjórnar frá 21. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 30-34 og Ármúla 29-31 (Orkureitur). USK26030099
     

    Fylgigögn

  53. Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 22. apríl 2026, vegna samþykktar borgarstjórnar frá 21. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits. USK26030103
     

    Fylgigögn

  54. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    1. Hversu stór hluti af sumar- og vetrarþjónustu borgarinnar (annars vegar snjóhreinsun/hálkueyðing gatna og stíga, og hins vegar viðhald grænna svæða, grassláttur og umhirða garða) er unninn af starfsmönnum borgarinnar á hverfastöðvum og hversu miklu hefur verið útvistað til einkaaðila eða verktaka? Óskað er eftir útlistun á verkefnum sumar -og vetrarþjónustu borgarinnar og hver fer með framkvæmd verkefnanna. 2. Hvaða verkferlar og gæðakröfur gilda um eftirlit með verkum sem útvistað er til verktaka, og hvernig er brugðist við ef þjónustan stenst ekki væntingar eða samninga (t.d. varðandi viðbragðstíma í snjómokstri)? 3. Liggur fyrir nýlegt mat eða greining á því hvort hagkvæmara og skilvirkara sé að reka þessa þjónustu með eigin vinnuafli og tækjabúnaði eða með útvistun í gegnum opinber útboð? USK26060369

    -    Kl. 12:49 víkja Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundi.
     

Fundi slitið kl. 12:59

Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald

Birkir Ingibjartsson Friðjón R. Friðjónsson

Pétur Hafliði Marteinsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 24. júní 2026