Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 378

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 29. apríl, kl. 9:00 var haldinn 378. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Hjálmar Sveinsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl og áheyrnarfulltrúarnir Einar Sveinbjörn Guðmundsson og Marta Guðjónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á leiðbeiningum við hvaða aðstæður hægt er að heimila að hjólað sé gegn einstefnu.

    Ragnar Gauti Ingvarsson og Bjarni Rúnar Ingvarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020336
     

    Fylgigögn

  2. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 16. apríl 2026, þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki sérákvæði fyrir umferð: Að hjólandi verði undanþegin einstefnuakstri í eftirfarandi götum: Ásvallagötu, Bárugötu, Hávallagötu, Holtsgötu, Hrannarstíg, Norðurstíg, Nýlendugötu, Ránargötu, Seljavegi, Sólvallagötu, Túngötu, Vesturgötu, Vesturvallagötu, Öldugötu. Tillaga til afgreiðslu.
    Samþykkt. USK26010083

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:

    Mikilvægt er að tillagan feli ekki í sér að valdar verði götur þar sem heimild til hjólreiða gegn einstefnu verði leyfð sem krefst fækkunar bílastæða. Nóg er komið af fækkun bílastæða í borgarlandinu en fækkun þeirra hefur verið umtalsverð á síðustu árum.
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, að nýju deiliskipulagi fyrir Loftleiðareit. Skipulagssvæðið afmarkast af Hlíðarfæti í norðri, Nauthólsvegi í austri og lóðamörkum aðliggjandi lóða í vestri (Reykjavíkurflugvöllur) og suðri (Isavia). Fyrirhugað er að þróa reitinn sem lífsgæðakjarna með blandaðri notkun íbúðarbyggðar, leik- og grunnskóla, hjúkrunarheimilis, hótelstarfsemi, verslunar og þjónustu. Lagt er til að skipulagslýsing verði samþykkt í kynningu.
    Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Isavia, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Strætó bs., Veitum, Vegagerðinni og eftirtöldum deildum, skrifstofum og sviðum Reykjavíkurborgar: skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu, skrifstofu umhverfisgæða, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, skóla- og frístundasviði og kynna hana fyrir almenningi.

    Óskar Örn Arnórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040244

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins tekur jákvætt í þá vinnu sem felst í þróun lífsgæðakjarna og uppbyggingu á Loftleiðareit og telur að þar geti skapast áhugaverð blönduð byggð með fjölbreyttri þjónustu. Sérstaklega er brýnt að skýr afstaða verði tekin til bílastæðaþarfar og umferðar vegna fjölbreyttrar starfsemi á reitnum. Þá er mikilvægt að tekið sé með markvissum hætti á áhrifum flugumferðar og hávaða á íbúa og viðkvæma hópa. Einnig er æskilegt að betur verði kveðið á um vernd og varðveislu byggðar sem hefur viðurkennt menningarsögulegt gildi. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður að skipulagslýsingin verði samþykkt til kynningar til að kalla fram athugasemdir íbúa og hagaðila á svæðinu.

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:

    Ofurþéttingaráform meirihlutans eiga sér engin takmörk. Gengið er á græn svæði í borgarlandinu og nú er það grænn blettur í horni svokallaðs Loftleiðareits þar sem liggur fyrir skipulagslýsing um fyrirhugaða uppbyggingu sem er alveg ofan í Reykjavíkurflugvelli. Markmiðið með slíkri uppbyggingu á þessu svæði er að þrengja enn og aftur að Reykjavíkingurflugvelli enda gæti uppbygging á þessu svæði haft áhrif á rekstrarhæfi flugvallarins og nothæfisstuðul vallarins. Liðsmenn Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur geta ekki fallist á uppbyggingu í nágrenni eða á flugvallarsvæðinu sem skerða nothæfisstuðul og rekstrargrundvöll vallarins.
     

    Fylgigögn

  4. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Axels Kaaber, dags. 7. júlí 2025, um að gera nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar nr. 10 og 12 við Holtsgötu og 16 við Brekkustíg. Í tillögunni sem lögð er til felst uppbygging á lóð, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. TÓ arkitekta, dags. 7. maí 2025, br. 21. apríl 2026. Einnig er lagt fram minnisblað Eflu, dags. 16. ágúst 2022, og umsögn Húsafriðunarnefndar, dags. 20. júní 2006. Tillagan var auglýst frá 6. nóvember 2025 til og með 18. desember 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. apríl 2026.
    Frestað.

    Óskar Örn Arnórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25070082
     

  5. Lögð fram umsókn Nordic Office of Architect ehf., dags. 11. nóvember 2026 um nýtt deiliskipulag fyrir Ártúnshöfða svæði 2C, Þórðarhöfða. Í tillögunni sem lögð er til felst skilgreining nýrrar skólalóðar fyrir u.þ.b. 300 grunnskólabörn (1.-4. bekk) og 180 leikskólabörn. Auk skólalóðar er nýr íbúðarreitur með allt að 185 nýjum íbúðum. Fjölbreytt dvalarsvæði eru í inngarði, bílakjallari er undir reitnum og möguleiki er á starfsemi á götuhæð út að Stórhöfða, samkvæmt uppdrætti Nordic Office of Architecture, dags. 14. apríl 2026, ásamt greinargerð og skilmálum. Einnig er lögð fram hljóðvistarskýrsla COWI dags. 10. apríl 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Sólveig Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110152

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Ártúnshöfðinn er mikilvægt uppbyggingarsvæði til að vinna á húsnæðisvanda borgarinnar og mikilvægt að svæðið verði þróað áfram. Þó er rétt að taka fram að huga þarf sérstaklega að hljóðvist og birtu í ljósi þess að þarna stendur til að byggja eitt þéttasta svæði borgarinnar. Mikilvægt er að betri mynd sé gefin af hljóðvist á reitnum á næsta stigi umfjöllunar og ákvörðunar. Jafnframt er nauðsynlegt að mótuð verði skýr og raunhæf bílastæðastefna sem tekur mið af þörfum íbúa, gesta og starfsemi. Með hliðsjón af framangreindu styður fulltrúi Sjálfstæðisflokksins að tillagan verði auglýst til að kalla fram athugasemdir hagaðila á svæðinu.
     

    Fylgigögn

  6. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir Leirtjörn Vestur, 1. áfanga. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að lóðum, götum og borgarlandi verði úthlutað til þeirra aðila sem fengið hafa lóðavilyrði. Áhersla er á blágrænar ofanvatnslausnir og nálægð við náttúruna. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir 75 íbúðum, samkvæmt greinargerð Teiknistofunnar Stiku, Landmótunar og Eflu, dags. júlí 2025, og uppdráttum Teiknistofunnar Stiku, Landmótunar og Eflu, dags. 30. júní 2025. Einnig eru lagðar fram greiningar fyrir heildarsvæðið, umhverfismatsskýrsla Eflu, dags. 12. febrúar 2025, samgöngumat Eflu, dags. 9. júlí 2025, minnisblað Eflu, dags. 13. maí 2025, um hávaða frá umferð, minnisblað Eflu, dags. 4. júní 2025, um vindafar og minnisblað Landmótunar um blágrænar ofanvatnslausnir dags. 5. júní 2025. Tillagan var auglýst frá 4. september 2025 til og með 16. október 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. apríl 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. apríl 2026.
    Vísað til borgarráðs.

    Drífa Árnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24060028

    Lögð fram svohljóðandi bókun umhverfis- og skipulagsráðs:

    Umhverfis- og skipulagsráð þakkar fyrir góða kynningu á nýju deiliskipulagi Leirtjarnar Vestur. Ráðið hefur áhyggjur af PFAS mengun á svæðinu og ítrekar mikilvægi þess að gripið verði til nauðsynlegra hreinsunaraðgerða á upptakasvæði mengunarinnar á fyrrum æfingasvæði slökkviliðsins. Mikilvægt er að huga að hagsmunum íbúa svæðisins til framtíðar með hliðsjón af hugsanlegum áhrifum mengunar á heilsu þeirra.
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna- og borgarhönnunar dags. 17. apríl 2026 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að kynning á niðurstöðum kortlagningu hljóðvistar og aðgerðaáætlun verði kynnt í samráðsgátt. Verkefnið er leitt af Umhverfisstofnun og Vegagerðinni í samstarfi við sveitarfélög sem taka þátt í kortlagningunni.
    Samþykkt.

    Margrét Aðalsteinsdóttir og Bjarni Rúnar Ingvarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK24090025
     

    Fylgigögn

  8. Lögð fram fundargerð afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 21. apríl 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 20. apríl 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
     

    Fylgigögn

  10. Lögð er fram niðurstaða vinnu stýrihóps um heildarendurskoðun Mjóddar frá febrúar 2026.
    Samþykkt að vísa niðurstöðu til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu skipulags- og byggingarmála. USK25050437
     

    Fylgigögn

  11. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604003, dags. 8. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur dagsett 26. mars 2026 um að samþykkja byggingaráform að Grensásvegi 46. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. USK26040081
     

    Fylgigögn

  12. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 25. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602028, dags. 24. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingafulltrúa í Reykjavík frá 26. janúar 2026 um byggingarleyfisskyldu LED-skilta í gluggum á Hafnarstræti 20 og um að slökkt verði á skjánum á meðan byggingarleyfi liggur ekki fyrir. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 13. apríl 2026. Úrskurðarorð: Auglýsingaskjáir innan við glugga í húsinu að Hafnarstræti 20 í Reykjavík eru ekki háðir byggingarleyfi samkvæmt 9. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki. USK26020426
     

    Fylgigögn

  13. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. apríl 2026 ásamt kæru nr. UUA2604003, dags. 8. apríl 2026, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur dagsett 26. mars 2026 um að samþykkja byggingaráform að Grensásvegi 46. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. USK26040087
     

    Fylgigögn

  14. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. janúar 2026 ásamt kæru nr. 2601002, dags. 2. janúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun borgarskipulags að breyta deiliskipulagi fyrir reitinn Háteigsveg 35 án þess að ákvörðunin sé sett í lögbundið ferli. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. febrúar 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 13. apríl 2026. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK26010038
     

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um færslu eldsneytisgeyma á Reykjavíkurflugvelli, sbr. 36. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 5. mars 2025. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa dags. 21. apríl 2026.
    Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. USK25030047
     

    Fylgigögn

  16. Lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 17. apríl 2026 um Skýrsluna: Staða umferðaröryggismála í Grafarvogi nóvember 2024, Ábendingar um mögulegar úrbætur dags. ódags. sbr. 5. liður fundargerðar íbúaráðsins dags. 4. desember 2024. Íbúaráð Grafarvogs samþykkti að vísa skýrslu til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs sem vísaði skýrslunni til umsagnar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 18. desember 2024. MSS23100025
     

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um myndavélamastur á Reykjavíkurflugvelli, sbr. 37. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 5. mars 2025. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2026.
    Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. USK25030046
     

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aðflugsljós á Reykjavíkurflugvelli, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 5. mars 2025. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 20. apríl 2026.
    Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. USK25030045
     

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aukinn kraft í sorphirðu Reykjavíkur, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 16. ágúst 2023. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofa umhverfisgæða, dags. 22. apríl 2026.
    Tillagan felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK23080106
     

    Fylgigögn

  20. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Vinstri grænna um yfirlit forgangsröðunar fyrir árið 2023 á umferðaröryggi í húsagötum skv. Umferðaröryggisáætlun 2019-2023, sbr. 36. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 11. janúar 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 21. apríl 2026. USK23010145
     

    Fylgigögn

  21. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um nýja skiltareglugerð, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. apríl 2025. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 22. apríl 2026. USK25040157

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:

    Fulltrúi Framsóknar harmar það að skiltareglugerð verði ekki kláruð fyrir lok kjörtímabilsins. Þessi reglugerð hefur verið í vinnslu allt kjörtímabilið og rúmlega það. Upphaflega stóð til að þessi vinna væri lokið haustið 2023 en nú er ljóst að það verður alla vega 3 ára töf á því. Mikilvægt er að klára þessa vinnu sem allra fyrst þar sem borgaryfirvöld hafa iðulega vísað í þessa vinnu þegar verið er afgreiða umsóknir um skilti og þá sérstaklega stafræn skilti.
     

    Fylgigögn

  22. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um byggingarmagn skv. deiliskipulagi Hlíðarenda sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 11. september 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 21. apríl 2026. USK24090133
     

    Fylgigögn

  23. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokk Fólksins um húsnæðisbyggingar í Grafarvogi, sbr. 30. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 18. desember 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 21. apríl 2026. USK24120177
     

    Fylgigögn

  24. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um GAJU, sbr. 26. fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 15. mars 2023. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofa umhverfisgæða, dags. 22. apríl 2026 USK23030213
     

    Fylgigögn

  25. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um ráðstafanir til að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra samhliða innleiðingu flokkunarkerfis sorpu, sbr. 13. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 26. apríl 2023. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofa umhverfisgæða, dags. 22. apríl 2026. USK23040215
     

    Fylgigögn

  26. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um húsnæðiseiningar í slæmu ástandi sbr. 39. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 5. mars 2025. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, byggingarfulltrúa, dags. 21. apríl 2026. USK25030051

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:

    Fulltrúi Viðreisnar gerir athugasemdir við að borgin haldi engri yfirsýn yfir þær eignir sem skaðlegar eru íbúum sem og gestum borgarinnar. Válisti sem uppfærður er reglulega og ástand metið reglulega væri bót fyrir okkur öll og er það sýn fulltrúans að borgin stæði betur með slíka yfirsýn en án hennar. Slíkur listi ætti að vera samstarfsverkefni, borgarinnar, heilbrigðiseftirlits, slökkviliðs og lögreglu. Að eiga eign á slíkum lista gæti skapað viðbótar þrýsting til úrbóta. Þó til falli kostnaður við að halda yfirsýn snýst þetta um heilsu og öryggi íbúa sem og gesta sem og ásýnd borgarinnar í heild og því kostnaður sem erfitt er að vera mótfallin.
     

    Fylgigögn

  27. Lögð fram tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um bætt loftgæði. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar, sbr. 5. liður, dags. 3. mars 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.

    Lögð fram svohljóðandi meðferðartillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: Umhverfis- og skipulagsráð felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að taka saman minnisblað um þær aðgerðir sem Reykjavíkurborg getur farið í til að bæta loftgæði í borginni og hverjir væru mögulegir og/eða nauðsynlegir samstarfsaðilar. Einnig skal í minnisblaðinu taka saman yfirlit yfir það sem gert hefur verið undanfarin ár til að bæta loftgæði í borginni.

    Samþykkt. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030005
     

    Fylgigögn

  28. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar um Nóatún, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026.
    Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar. USK26040314

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:

    Ljóst er að meirihlutinn er andvígur öllum tillögum sem geta greitt fyrir umferð enda er það í takt við þá tafastefnu sem vinstri meirihlutar í borgarstjórn hafa ástundað árum saman og hyggjast ástunda áfram með því að fækka akreinum og þrengja að umferð einkabíla.
     

    Fylgigögn

  29. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar um Korpúlfsstaði, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026.
    Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. USK26040315

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:

    Mikilvægt er að bílastæðum við golfvöllinn við Korpúlfsstaði verði fjölgað enda fer iðkendum golfíþróttarinnar fjölgandi og þörf er á fleiri bílastæðum við völlinn. Það skýtur því skökku við að meirihlutinn, sem gefur sig út fyrir að standa fyrir íbúalýðræði og samráði við íbúa og hagaðila, felli tillögu þess efnis að fundinn verði hentugur staður fyrir ný bílastæði við golfvöllinn í samráði við Golfklúbb Reykjavíkur.
     

    Fylgigögn

  30. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar um Nóatún, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026.
    Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar. USK26040314

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:

    Ljóst er að meirihlutinn er andvígur öllum tillögum sem geta greitt fyrir umferð enda er það í takt við þá tafastefnu sem vinstri meirihlutar í borgarstjórn hafa ástundað árum saman og hyggjast ástunda áfram með því að fækka akreinum og þrengja að umferð einkabíla.
     

    Fylgigögn

  31. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar um viðgerð vegna holu við Hólabrekkuskóla, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26040316
     

    Fylgigögn

  32. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um stöðu 1. lotu Borgarlínu, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.

    -    Kl. 11:33 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi.
    -    Kl 11:35 víkur Magnús Davíð Norðdahl af fundi.
    -    Kl. 11:42 víkur Einar Sveinbjörn Guðmundsson af fundi. USK26040323
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:05

Líf Magneudóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Andrea Helgadóttir Friðjón R. Friðjónsson

Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 29. apríl 2026