Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 376

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 15. apríl, kl. 9:02 var haldinn 376. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Erlingur Sigvaldason, Friðjón R. Friðjónsson, Magnús Davíð Norðdahl, Stefán Pálsson og áheyrnarfulltrúinn Einar Sveinbjörn Guðmundsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir, Sunna Stefánsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 14. apríl 2026 þar sem tilkynnist að Marta Guðjónsdóttir verði áheyrnarfulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði og Kjartan Magnússon verði varaáheyrnarfulltrúi. MSS22060046
     

    Fylgigögn

  2. Lagt fram afgreiðslubréf forsætisnefndar dags. 7. apríl 2026 og verklagsreglur, fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum dags. 27. mars 2026. MSS23090170
     

    Fylgigögn

  3. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir göturými Suðurlandsbrautar frá gatnamótum við Skeiðarvog og til vesturs að gatnamótum við Lágmúla. Tillagan er hluti af 1. lotu Borgarlínu og er í samræmi við markmið og stefnu landsskipulagsstefnu, svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2040, Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 og rammahluta Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 - Fyrsta lota Borgarlínu: Ártún - Fossvogsbrú. Samkvæmt tillögunni fer Borgarlínan um Suðurlandsbraut á tveimur miðjusettum sérakreinum (almenningssamgangna) og er gert ráð fyrir göngu- og hjólastígum beggja vegna göturýmisins og gróðri á svæðum inn á milli. Þrjár Borgarlínustöðvar verða á svæðinu, við Glæsibæ, Laugardalshöll og Lágmúla, samkvæmt uppdráttum Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026, og greinargerð Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026. Einnig er lagt fram minnisblað Borgarlínunnar, dags. 16. október 2023, um vinstri beygjur við gatnamót Álfheima/Suðurlandsbrautar, samantekt Borgarlínunnar, dags. 31. mars 2026, um umferð á Suðurlandsbraut og bílastæðagreining VSB verkfræðistofu, dags. 2. apríl 2025 og samantekt, dags. 16. janúar 2026. Tillagan var auglýst frá 29. janúar 2026 til og með 12. mars 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. mars 2026.
    Frestað.

    Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir, Lilja G. Karlsdóttir, Ólöf Kristjánsdóttir, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Ólöf Söebeck og Helga Rún Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 9:49 víkur Sunna Stefánsdóttir af fundi. USK24090201
     

  4. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir hluta Bústaðavegar frá skipulagsmörkum Hverfisskipulags Hlíðarhverfis, Hlíðar 3.2, til vesturs að skipulagsmörkum Kringlubæjar II áfanga til norðurs og að afmörkun deiliskipulags Efstaleitis, RÚV reits, til austurs og til suðurs eru skipulagsmörk svæðisins afmörkuð sunnan við núverandi stígakerfi. Í tillögunni sem lögð er til felst að komið er fyrir nýrri biðstöð strætó sunnan megin við Bústaðaveg við Efstaleiti ásamt því að núverandi biðstöð norðan megin við Bústaðaveg verður hluti af þessu deiliskipulagi. Aðreinar sunnan megin við Bústaðaveg frá Kringlumýrarbraut eru framlengdar inn á Bústaðaveg fram að umferðarljósum við Efstaleiti og gerð er ný gönguþverun yfir Bústaðaveg við núverandi umferðarljós hjá Efstaleiti, samkvæmt uppdr. COWI, dags. 8. apríl 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Helga Rún Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030076
     

    Fylgigögn

  5. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu deiliskipulagi II. áfanga Kringlubæjar. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á skipulagsmörkum til samræmis við skipulagsmörk Hverfisskipulags Hlíðahverfis, Hlíðar 3.2, sem staðfest var 11. júlí 2024 og tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Bústaðaveg við Efstaleiti, samkvæmt uppdr. COWI, dags. 8. apríl 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Helga Rún Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040036
     

  6. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á skilmálum deiliskipulags Hólmsheiðar, athafnasvæðis. Í breytingunni sem lögð er til felst minnkun á byggingarmagni þriggja lóða; Lóð C, D og E, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. mars 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Íris Reynisdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020368
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í mars 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Ofanleiti 2. Lóðin liggur að íbúðabyggð, sunnan og vestan megin, Kringlureit norðan megin og samfélagsþjónustu eða Verzlunarskóla Íslands til austurs á lóð Ofanleiti 1. Markmiðið deiliskipulagsgerðar er að auka framboð íbúða með það að leiðarljósi að ný byggð falli vel að núverandi umhverfi. Auk þess er markmiðið að horfa í söguna, nýta innviði og byggja vistvænt húsnæði.
    Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.

    Hildur Ýr Ottósdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020454
     

    Fylgigögn

  8. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Freys Frostasonar, dags. 4. júlí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti. Í breytingunni sem lögð er til felst m.a. breytt notkun þannig að leyfðar verði íbúðir á efri hæðum þar sem áður voru skrifstofur, ásamt því að áfram verði heimilt að hafa skrifstofur og/eða veitingarými á efri hæðum eftir atvikum. Einnig verði heimilt að breyta útliti húsanna og setja svalir svo húsnæði uppfylli skilyrði fyrir íbúðir og skyggni yfir útisvæði veitingastaða að Austurvelli. Heimilt verði að breyta núverandi kvistum ásamt því að bæta við kvistum á húsin nr. 12 og 12A, samkvæmt uppdr. THG arkitekta, dags. 19. desember 2025. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 11. júlí 2024, og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. desember 2025. Tillagan var auglýst frá 5. febrúar 2026 til og með 19. mars 2026. Athugasemdir bárust. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. mars 2026.
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Hildur Ýr Ottósdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24070045

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður framlagða deiliskipulagsbreytingu um að heimila íbúðir á efri hæðum við Austurstræti. Mikilvægt er þó að tryggja að samspil íbúa og núverandi starfsemi verði í sátt við umhverfið, enda er um að ræða svæði þar sem umfangsmikil veitinga- og skemmtanastarfsemi fer fram. Reynslan sýnir að skipulag af þessu tagi getur skapað árekstra ef ekki er vel staðið að undirbúningi. Því er brýnt að hljóðvist verði tryggð með fullnægjandi hætti og jafnframt að loftgæði í íbúðum verði þannig að ekki sé nauðsynlegt að opna glugga eða hurðir, til að lágmarka líkur á ónæði og ágreiningi í framtíðinni.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:

    Fulltrúi Framsóknar samþykkir þær deiliskipulagsbreytinguna um að leyfa íbúðir. Það skal þó benda á að tryggja verði að samspil íbúa í framtíðinni verði í sátt við núverandi umhverfi. Margir veitinga- og skemmtistaðir eru starfandi á neðri hæðum þessa húsnæðis og borgin hefur því miður reynslu á því, miðsvæðis í borginni, að skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði. Því vill fulltrúi Framsóknar árétta mikilvægi þess að tryggja hljóðvist í fyrirhuguðum íbúðum með þeim hætti að það ekki komi til árekstra milli íbúa og rekstraraðila.

    Lögð fram svohljóðandi bókun Viðreisnar:

    Um flottan stað fyrir íbúðir að ræða og ættu kaupendum að vera ljóst að þau eru ekki að velja sér stað þar sem hægt er að búast við rólegheitum í hjarta miðbæjarins.
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram umsókn Selsins Fasteignafélags ehf., dags. 29. desember 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla. Í tillögunni sem lögð er til er gert ráð fyrir auknu byggingarmagni vegna flóttaleiða og lyftu. Einnig verða aðlöguð leiksvæði á pöllum, annars vegar á þaki bakhúss vegna flóttaleiða og lyftu og svo yfir núverandi lóð að hluta, og eykst byggingarmagn vegna þeirra þar sem þau mynda B-rými á lóð. Notkun byggingar verður grunnskóli í notkunarflokki 1, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Noland, dags. 20. mars 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 20. mars 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25120362
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram umsókn Gunnars Bjarnasonar ehf., dags. 20. desember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness 1. áfanga vegna fjögurra lóða á reit A1. Í breytingunni sem lögð er til felst að sameina lóðirnar A1.1-A1.4, núverandi spennistöð verður færð inn á nýja lóð eða inn í núverandi hús á reit A1.2, byggingarreitur bílakjallara nær undir alla lóðina, heildarbyggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt en byggingarmagn neðanjarðar eykst, íbúðir verða heimilaðar á öllum hæðum, en mögulegt verður að vera með atvinnustarfsemi á jarðhæð, og heimilt verður að gera þaksvalir ásamt því að öll bílastæði verða í bílakjallara og á móti hverju deilibílastæði verði hægt að falla frá 5 bílastæðum einkabíla, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Praxis arkitektúr, dags. 19. desember 2024. Einnig er lagt fram samkomulag lóðarhafa og Reykjavíkurborgar, dags. 18. mars 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Drífa Árnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 11:02 víkur Hjördís Sóley Sigurðardóttir af fundi.
    -    Kl. 11:05 víkur Einar Sveinbjörn Guðmundsson af fundi. USK24120211

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður að tillagan verði auglýst til að kalla fram athugasemdir hagaðila og fá betri mynd af áhrifum hennar. Jafnframt er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu bílastæðamála í hverfinu, sem þegar eru undir miklum þrýstingi. Forsendur um fækkun bílastæða í kjallara á grundvelli deilibíla eru óraunhæfar og geta leitt til aukins álags á nærliggjandi götur. Þá bendir fulltrúinn á að nauðsyn gæti verið að tryggja bílastæði ofanjarðar, sérstaklega fyrir hreyfihamlaða og gesti,. Þá er rétt að taka fram að fara verður í einu og öllu eftir gildandi reglugerðum um aðgengi fólks með skerta hreyfigetu.
     

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf götunafnanefndar Reykjavíkurborgar, dags. 23. mars 2026, þar sem lögð er fram tillaga að heiti á nýrri götu á athafnasvæði á Hólmsheiði, áfanga 2, sbr. deiliskipulag svæðisins sem samþykkt var í borgarstjórn 8. september 2025. Götunafnanefnd leggur til að heiti götunnar verði Draupnismörk.
    Samþykkt.
    Vísað til borgarráðs.

    -    Kl. 11:06 víkur Glóey Helgudóttir Finnsdóttir af fundi og Jóhanna Kristrún Birgisdóttir tekur sæti á fundinum og jafnframt við fundarritun. USK25120303
     

    Fylgigögn

  12. Fært úr trúnaðarbók, samantekt valnefndar um tillögur sem bárust vegna hugmyndaleitar rammaskipulagsgerðar fyrir svæði Halla og nágrenni í Úlfarsárdal.

    Kjartan Magnússon, óháður fulltrúi lagði fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um umfangsmikla uppbyggingu íbúahverfis í Höllum og nágrenni einkennast af ofurþéttingu og taka ekki mið af raunverulegum forsendum í Úlfarsárdal og Grafarholti. Samkvæmt fyrra skipulagi var gert ráð fyrir um 1.100 íbúðum á svæðinu. Borgarstjóri hefur tilkynnt að hafinn sé undirbúningur sé hafinn að uppbyggingu allt að fjögur þúsund íbúða hverfis á umræddu svæði í samstarfi við innviðafélag. Til samanburðar eru um 4.500 íbúðir í Árbæjarhverfi og um 8.000 í Grafarvogshverfi. Núverandi innviðir í hverfinu bera ekki þá fjölgun íbúa sem fyrirhuguð samkvæmt yfirlýsingu borgarstjóra. Heildstæð framtíðarsýn hefur ekki verið kynnt hvernig staðið verður að samgöngum, skólahaldi, heilsugæslu og öðrum lífsgæðum í þessu stóra hverfi. Ljóst er að með slíkri ofurþéttingu verður umferðarskipulagi í Grafarholti og Úlfarsárdal stefnt í fullkomið uppnám. Þá er ljóst að miðað við almennar skipulagsforsendur vinstri meirihlutans í borgarstjórn, verður mikill skortur á bílastæðum hverfinu og líklegt að íbúar þeirra leiti í næstu hverfi í því skyni. Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja áherslu á að skipulag í Höllum verði unnið í víðtæku samráði við íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal. Miðað verði við hóflegt byggingarmagn og að innviðir byggðir upp samhliða íbúabyggð. Áhersla verði lögð á gott umferðarskipulag og næg bílastæði fyrir íbúa. Heildstætt mat verði gert á umferðaröryggi, hljóðvist og loftgæðum. USK25080243
     

    Fylgigögn

  13. Lögð fram fundargerð afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2026, 31. mars 2026 og 7. apríl 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  14. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 24. mars 2026, 31. mars 2026 og 8. apríl 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  15. Lögð fram svohljóðandi tillaga umhverfis- og skipulagsráðs:

    Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að fela skrifstofu umhverfisgæða að búa til verklag utan um þá meginreglu að ekki skal nota plöntuvarnarefni og illgresiseyða nema í algerum undantekningartilfellum þegar aðrar leiðir eru ekki færar. Slíka notkun þarf að rökstyðja vandlega skriflega til skrifstofustjóra umhverfisgæða og skal upplýsingum um það safnað saman og skal skrifstofustjóri jafnframt samþykkja fyrirfram hverja notkun. Skal upplýsa umhverfis- og skipulagsráð með reglulegum hætti þegar slíka tilvik koma upp og skulu upplýsingarnar liggja fyrir í grænu bókhaldi sviðsins sem skal kynna fyrir ráðinu árlega.

    Samþykkt.
    Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða. USK26040113

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður markmið tillögunnar um að draga úr notkun plöntuvarnarefna og illgresiseyða, enda mikilvægt að beita slíkum efnum af varfærni og aðeins þegar nauðsyn krefur. Jafnframt er ástæða til að gæta að því að fyrirhugað verklag leiði ekki til óþarfa skrifræðis og flækjustigs í rekstri. Mikilvægt er að treysta faglegu mati sérfræðinga á hverjum tíma og tryggja að ákvarðanir séu bæði skilvirkar og byggðar á bestu þekkingu.
     

  16. Fram fer kynning á drögum að stefnu og áætlun um gönguvæna Reykjavík.
    Vísað til borgarráðs.

    Carl Henrik Larsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24110133

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:

    Frábær vinna þarna að baki, er sérstaklega gott að sjá að viðhald verði bætt og að vefsjá verði aðgengileg borgarbúum í rauntíma til þess að borgarbúar fái yfirsýn yfir nærumhverfi sitt og geti bent á það sem vantar á framkvæmdalistann og séð árangurinn. Gönguvænni borg er betri borg.
     

  17. Fram fer kynning um Naustina og fyrirhugaðar framkvæmdir á því svæði.

    Halldóra Traustadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040106
     

    Fylgigögn

  18. Lögð fram tillaga fulltrúa í ungmennaráði Grafarvogs um að unglingum í 9. og 10. bekk bjóðist hlutastörf yfir vetrartímann. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar, sbr. 9 liður, dags. 10. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 17. mars 2026.
    Tillögunni er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

    Sjöfn Sveinsdóttir og Ása Kristín Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum þessum lið með rafrænum hætti. Þorvaldur Guðjónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26020047

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:

    Fulltrúar samstarfsflokkanna telja að orku og fjármagni borgarinnar væri betur varið með því að efla starfsemi Vinnuskólans á hefðbundnum starfstíma sínum en að færa verksvið hans inn á veturinn. Minnt er á að nám er vinna og rannsóknir sýna að of mikil aukavinna getur bitnað á námsárangri ungmenna og tekið tíma frá dýrmætu frístundastarfi.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:

    Þarna eru tækifæri til að efla mannauð og styrkja samfélagshugsun, það plumma ekki öll börn sig í skipulögðu íþróttastarfi, það er möguleiki að margir finni sína ástríðu á nákvæmlega vettvangi þar sem að þau finna sér hlutastörf. Fulltrúi Viðreisnar dregur í efa faglega mat Vinnuskólans í Reykjavík að börn eigi frekar að einbeita sér að námi heldur en að vinna hlutastörf, það þurfi að líta á þetta með opnum hug. Tillagan mun vonandi eiga farsælan veg innan Skóla- og frístundaráðs.
     

    Fylgigögn

  19. Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um matvöruverslun á Bauhaus-reit. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar, sbr. 3 liður, dags. 20. janúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
    Tillögunni er vísað frá. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar greiða atkvæði gegn frávísun. MSS24110023

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar harma að tillögu um matvöruverslun á Bauhaus-reit hafi verið vísað frá í umhverfis- og skipulagsráði. Tillagan svarar skýru ákalli íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals um bætt aðgengi að dagvöruverslun. Mikilvægt er að skipulag borgarinnar taki mið af raunverulegum þörfum íbúa og að skapað verði svigrúm fyrir verslun sem getur boðið hagstætt verð og fjölbreytt úrval. Það vekur vonbrigði að tillögu sem þessari skuli ekki hafa verið gefinn raunhæfur farvegur til frekari skoðunar.
     

    Fylgigögn

  20. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um endurskoðun á meðhöndlun lífræns úrgangs, sbr. 19. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 3. desember 2025.
    Vísað inn í vinnu tæknimanna sveitarfélaganna og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. USK25120044
     

    Fylgigögn

  21. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. janúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2601008, dags. 16. janúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingafulltrúans í Reykjavík um veitingu byggingarleyfis dagsett 2. desember 2025 fyrir breytingum á rishæð við Bragagötu 26a. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 15. febrúar 2026. USK26010302
     

    Fylgigögn

  22. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602024, dags. 22. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúi um útgáfu á byggingarleyfi, samþykktu 2. desember 2025, einnig hverfisskipulag Árbæjar, auglýst 31. október 2019. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. mars 2026. USK26020398
     

    Fylgigögn

  23. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602025, dags. 22. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa um útgáfu á byggingarleyfi, samþykktu 2. desember 2025, einnig hverfisskipulag Árbæjar, auglýst 31. október 2019. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. mars 2026. USK26020399
     

    Fylgigögn

  24. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603011, dags. 20. mars 2026, vegna framkvæmda á jörðinni Hrafnhólar. USK26030395
     

    Fylgigögn

  25. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 19. mars 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar frá vegamótum við Bæjarháls að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá. USK23060119
     

    Fylgigögn

  26. Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 19. mars 2026, vegna samþykktar borgarstjórnar frá 17. mars 2026, á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluta 6.3 og skilmálaeiningu 6.3.27, vegna lóðar við Austurberg/Hraunberg. USK25040246
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:23

Hjálmar Sveinsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Andrea Helgadóttir Erlingur Sigvaldason

Friðjón R. Friðjónsson Magnús Davíð Norðdahl

Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 15. apríl 2026