Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 375
Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 25. mars, kl. 9:02 var haldinn 375. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Hjálmar Sveinsson og Stefán Pálsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Hjalti Jóhannes Guðmundsson, Sunna Stefánsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 17. mars 2026, þar sem óskað er eftir að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna umbóta í umhverfi við strætóstöðina í Mjóddinni í samræmi við meðfylgjandi forhönnunarteikningar.
Samþykkt.Árni Snær Kristjánsson og Bjarni Rúnar Ingvarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25050042
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur jákvætt að ráðist sé í umbætur á skiptistöðinni í Mjódd enda ljóst að aðstaðan er löngu orðin ófullnægjandi með tilliti til öryggis, aðgengis og vaxandi umferðar. Brýnt er að bregðast við þeim þáttum sem ekki geta beðið. Jafnframt er þó ljóst að hér er um tímabundnar aðgerðir að ræða en ekki heildstæða lausn. Mikilvægt er að þær verði ekki til þess að fresta eða veikja nauðsynlega heildarendurskipulagningu svæðisins. Mjóddin hefur alla burði til að þróast sem öflugur borgarkjarni með bættri þjónustu, byggð og mannlífi, og nauðsynlegt er að skýr framtíðarsýn og tímasett áætlun um slíka uppbyggingu liggi fyrir samhliða þessum framkvæmdum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Biðstöðin í Mjódd hefur lengi beðið upplyftingar og eru þessar áætlanir faglegar og vonast fulltrúi Viðreisnar eftir að framkvæmdir geti hafist um leið og fer að hlýna. Yfirbyggð biðskýli, gróður og lýsing veita hlýlegri ásýnd sem sannarlega var þörf á. Gaman hefði verið ef afþreyingarsvæði fyrir unga farþega hefði einnig fylgt áætluninni en vonast fulltrúinn eftir að það mál fari einnig í framkvæmd fljótlega. Þá er einnig mikilvægt að skoða vel kosti þess að tengja inn hleðslueiningar fyrir rafmagnsvagna við biðstöðvar sem og heildar upplyftingu Mjóddar sem einnig er komin verulegur tími á að taka til afgreiðslu.
Fylgigögn
-
Lagt fram í trúnaði, ársuppgjör umhverfis- og skipulagssviðs fyrir árið 2025.
Hreinn Ólafsson, Kristján Ólafur Smith, Dagný Thorarensen og Guðni Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 9:26 víkur Hjalti Jóhannes Guðmundsson af fundi. USK26030339
-
Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, fjármálaskrifstofu dags. 20. mars 2026 um betri nýtingu á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar.
Vísað til borgarráðs.Hreinn Ólafsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25040003
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 17. mars 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 18-28 og Ármúla 15-27. Í breytingunni sem lögð er til felst að skipulagsmörk eru færð og samræmd nýju deiliskipulagi Suðurlandsbrautar. Jafnframt er framsetning bílastæða samræmd þannig að nákvæm útfærsla þeirra verði ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin á síðari stigum. Að öðru leyti haldast gildandi skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdr. VSB verkfræðistofu, dags. 25. febrúar 2026.
Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir og Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030100
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun sé ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn telur alvarlegt að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda rekstraraðila við Suðurlandsbraut. Suðurlandsbraut gegnir því lykilhlutverki í dag að dreifa umferð inn í Laugardal og tengja umferð sem er á leið í og úr miðbænum og mun þessi breyting koma til með valda aukinni töf á umferð sem mun hafa ruðningsáhrif á samgöngukerfið í heild með neikvæðri þróun. Framsókn hefur bent á leiðir til að útfæra deiliskipulagstillöguna með hliðsjón af ólíkum hagsmunum. Óþarfi er að ráðast í þessar framkvæmdir í svo mikilli andstöðu við borgarbúa. Framkvæmdirnar munu hafa gríðarleg áhrif á fyrirtæki, þúsundir starfsmanna og viðskiptavina sem þangað fara á hverjum degi. Framsókn styður forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur en telur að útfæra verði Borgarlínuframkvæmdir í meiri sátt.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 30-34 og Ármúla 29-31 (Orkureitur). Í breytingunni sem lögð er til felst að skipulagsmörk eru færð og samræmd nýju deiliskipulagi Suðurlandsbrautar. Jafnframt er framsetning bílastæða samræmd þannig að nákvæm útfærsla þeirra verði ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin á síðari stigum. Að öðru leyti haldast gildandi skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdr. VSB verkfræðistofu, dags. 25. febrúar 2026.
Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir og Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030099
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun sé ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn telur alvarlegt að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda rekstraraðila við Suðurlandsbraut. Suðurlandsbraut gegnir því lykilhlutverki í dag að dreifa umferð inn í Laugardal og tengja umferð sem er á leið í og úr miðbænum og mun þessi breyting koma til með valda aukinni töf á umferð sem mun hafa ruðningsáhrif á samgöngukerfið í heild með neikvæðri þróun. Framsókn hefur bent á leiðir til að útfæra deiliskipulagstillöguna með hliðsjón af ólíkum hagsmunum. Óþarfi er að ráðast í þessar framkvæmdir í svo mikilli andstöðu við borgarbúa. Framkvæmdirnar munu hafa gríðarleg áhrif á fyrirtæki, þúsundir starfsmanna og viðskiptavina sem þangað fara á hverjum degi. Framsókn styður forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur en telur að útfæra verði Borgarlínuframkvæmdir í meiri sátt.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla. Í breytingunni sem lögð er til felst að skipulagsmörk eru færð og samræmd nýju deiliskipulagi Suðurlandsbrautar. Jafnframt er framsetning bílastæða samræmd þannig að nákvæm útfærsla þeirra verði ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin á síðari stigum. Að öðru leyti haldast gildandi skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdr. VSB verkfræðistofu, dags. 25. febrúar 2026.
Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir og Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030101
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun sé ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn telur alvarlegt að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda rekstraraðila við Suðurlandsbraut. Suðurlandsbraut gegnir því lykilhlutverki í dag að dreifa umferð inn í Laugardal og tengja umferð sem er á leið í og úr miðbænum og mun þessi breyting koma til með valda aukinni töf á umferð sem mun hafa ruðningsáhrif á samgöngukerfið í heild með neikvæðri þróun. Framsókn hefur bent á leiðir til að útfæra deiliskipulagstillöguna með hliðsjón af ólíkum hagsmunum. Óþarfi er að ráðast í þessar framkvæmdir í svo mikilli andstöðu við borgarbúa. Framkvæmdirnar munu hafa gríðarleg áhrif á fyrirtæki, þúsundir starfsmanna og viðskiptavina sem þangað fara á hverjum degi. Framsókn styður forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur en telur að útfæra verði Borgarlínuframkvæmdir í meiri sátt.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Sigtúnreits. Í breytingunni sem lögð er til felst samræming skipulagsmarka að nýrri afmörkun deiliskipulags Suðurlandsbrautar. Jafnframt er gerð breyting á lóðarmörkum Engjateigs 10A og götutengingu frá Suðurlandsbraut að Engjateig er lokað. Breytingin felur ekki í sér breytingu á byggingarmagni eða öðrum gildandi skilmálum. Að öðru leyti haldast skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdr. VSB verkfræðistofu, dags. 25. febrúar 2026. Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir og Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030103
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun sé ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 17. mars 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. desember 2025 ásamt kæru nr. UUA2512013, dags. 22. desember 2025, þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar frá 16. október sl. um breytingu á deiliskipulagi vegna borgarlínu og frekari uppbyggingu á svæðunum Menntasveig 1a og 1b. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 13. mars 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 16. október 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík vegna Borgarlínu og frekari uppbyggingar á svæðum 1a og 1b. USK26010174
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 12. mars 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi Árbæjar, hverfi 7.3 Selás. USK24060174
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 12. mars 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2 við Grjótháls. USK25120098
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 12. mars 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluti 6.3 og skilmálaeining 6.3.3., vegna lóðar við Krummahóla. USK25040244
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 12. mars 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna Skarfagarða 6-8. USK25110089
Fylgigögn
-
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. nóvember 2025 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Erindið var grenndarkynnt frá 28. nóvember 2025 til og með 5. janúar 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. febrúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.Hrafnhildur Sverrisdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25100211
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Útgáfa byggingarleyfis til innanhúss breytinga fyrir veitingastað í flokki I á Grensásvegi 46 samræmist að öllu leyti gildandi aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Í ljósi þess er umsókn umsækjanda vísað aftur til byggingarfulltrúa til fullnaðarafgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsráð starfar samkvæmt samþykktum borgarstjórnar og er í umboði borgarráðs og fer eftir skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. 6. gr. laganna og eftir því sem lög mæla fyrir um s.s. sveitarstjórnarlög nr. 138/2011. Það myndi ekki teljast góð stjórnsýsla að synja frjálsum félagasamtökum um leyfi til að breyta húsnæði eins og aðalskipulag gerir ráð fyrir. Eftir byggingaleyfisveitingu og framkvæmdir þarf að fara fram lokaúttekt byggingarfulltrúa og að henni lokinni er það Heilbrigðiseftirlitið sem gefur út starfsleyfi og sýslumaður gefur út rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki I. Málið kemur því ekki aftur til afgreiðslu í umhverfis- og skipulagsráði.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lýsir stuðningi við mikilvægt og faglegt starf Samhjálpar, sem er dýrmæt stoð fyrir marga. Hins vegar vekur áhyggjur að ekki hafi tekist að ná nægilegri sátt við íbúa í nágrenni og að fyrirhuguð starfsemi falli illa að umhverfi þar sem mikið er um börn. Þá er ljóst að staðsetningin er utan þess svæðis þar sem gestir Samhjálpar halda sig að jafnaði, sem getur torveldað aðgengi þeirra. Mikilvægt er að finna lausnir sem þjóna bæði nærumhverfi og notendum betur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn harmar það að meirihlutinn hunsi áhyggjur íbúa í nágrenni Grensásvegar 46 vegna fyrirhugaðrar opnunar á kaffistofu Samhjálpar. í grenndarkynningarferlinu bárust hátt í 40 athugasemdir frá íbúum. Í athugasemdunum koma bersýnilega í ljós að nágrannar hafa miklar áhyggjur af þessari þróun sérstaklega m.t.t. hagsmuna barna og að þessi starfsemi samrýmist því ekki umhverfinu. Grensásvegur 46 er sannarlega staðsettur inn í miðju íbúahverfi ólíkt fyrri staðsetningu kaffistofunnar sem hingað til hefur verið miðsvæðis í borginni þar sem það þjónar hagsmunum skjólstæðinga betur vegna nálægðar. Einnig má benda á að ekki er leyfi í aðalskipulagi fyrir veitingahús í flokki III á þessum stað nema með breytingu í deiliskipulagi eða hverfisskipulagi. Þung rök liggja fyrir því að kaffistofa Samhjálpar falli undir skilgreiningu veitingahús í flokki III þar sem um er að ræða starfsemi sem kallar á meira eftirlit og/eða aðkomu löggæslu og erum við því ósammála mati skipulagsfulltrúa. Hvað sem því líður þá kemur það á óvart að þeir flokkar sem mynda núverandi meirihluta og tala hve hæst um aðkomu íbúa að sínu umhverfi og að þörf sé á meira íbúalýðræði, kjósa að hlusta ekki á áhyggjur íbúa sem bæði hafa haldið fjölmennan fund og eins komið hefur fram áður sent inn gríðarlegan fjölda af athugasemdum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Málefni er varða Grensásvegi 46 snertir á mörgum og margar hliðar að rýna. Hafa íbúar lýst áhyggjum af því að hafa móttöku eldhúsið í nágrenni við fjölda barna á grunnskólaaldri daglega. Mikilvægt er að breytingar sem þessar séu gerðar í sátt við nærumhverfi þykir fulltrúa Viðreisnar því miður ekki hafa farið vel á þeirri sátt. Þess ber að geta að starf Samhjálpar er faglegt og mikilvæg stoð í samfélagsþjónustu og virkilega ánægjulegt að sjá þeirra faglega starf. Einnig er vert að huga að þörfum þeirra sem koma til með að nýta eldhúsið en er staðsetningin í verulegri fjarlægð frá þeirra dvalarstöðum og er miður að borgin hafi ekki stigið inn og leitað allra leiða við að finna staðsetningu sem þjónustar hópinn betur þrátt fyrir ósk Samhjálpar. En samkvæmt upplýsingum umsækjenda er staða væntra gesta sú að þeir fá ekki að nota almenningssamgöngur og því ljóst að fjarlægðin er veruleg og því stór galli á þessari samfélagsþjónustu. Ástæða þess að fulltrúinn kýs gegn þessari aðgerð er að þörfum þjónustuþegar sé illa mætt með þessari aðgerð, staðsetning hentar þeim illa og ber að huga að því að þess má vænta að notenda hópurinn sé ekki virkur í samráðsferli vegna stöðu sinnar.
Fylgigögn
-
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn BASALT arkitekta ehf., dags. 20. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 42 við Vesturgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að einni hæð verður bætt ofan á húsið og verður hin nýja hæð sjálfstæð íbúð í séreign, á þriðju hæð verður bætt við þaksvölum á norðvesturhorni hússins, bílastæðum á lóð verður fækkað úr 5 í 4 og verður eitt stæðanna sérstaklega ætlað hreyfihömluðum, á norðausturhluta lóðarinnar verður komið fyrir 5 hjólastæðum og verður staðsetning sorps á norðausturhluta lóðar í sorptunnuskýlum, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum BASALT arkitekta ehf., dags. 20. nóvember 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. desember 2025 til og með 16. janúar 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. mars 2026.
Synjað er beiðni um breytingu á deiliskipulagi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. mars 2026. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110316
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 18. mars 2026 þar sem óskað er eftir að umhverfis- og skipulagsráð samþykki breytingartillögur um reglur um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi breytingar á reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík og feli umhverfis- og skipulagssviði að útfæra þær nánar. Drög að uppfærðum reglum verði lögð fyrir umhverfis- og skipulagsráð til afgreiðslu áður en þær eru lagðar fyrir borgarráð til endanlegrar meðferðar. 1. Hámarksfjöldi bílastæða verði afnuminn. Ekki verði lengur sett efri mörk á fjölda bílastæða við uppbyggingu. 2. Lágmarksviðmið verði einföld og skýr: a. Miða skal við að almennt sé gert ráð fyrir að lágmarki einu bílastæði á hverja íbúð. b. Fyrir íbúðir með þrjú herbergi eða fleiri skal almennt miða við að lágmarki 1,5 bílastæði á íbúð. 3. Svæðaskipting verði felld niður. Ekki verði lengur gerður greinarmunur á svæði I og II við ákvörðun bílastæðafjölda. 4. Sveigjanleiki verði aukinn: Byggingaraðilum verði heimilt, á eigin ábyrgð og með rökstuðningi, að víkja frá framangreindum viðmiðum um fjölda bílastæða ef þeir telja forsendur til. Greinargerð fylgir breytingartillögu.
Breytingartillaga felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Upphafleg tillaga afgreidd.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs. USK26010446Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins harmar að breytingartillaga Sjálfstæðisflokksins um einföldun og skýrari viðmið í reglum um fjölda bílastæða hafi verið felld. Tillagan miðaði að því að auka gagnsæi, draga úr flækjustigi og færa ákvarðanatöku nær raunverulegum þörfum íbúa og uppbyggingar. Núgildandi kerfi byggir á flóknum viðmiðum, svæðaskiptingu og takmörkunum sem hafa í framkvæmd aukið óvissu, tafir og kostnað við uppbyggingu. Með því að hafna tillögunni er áfram haldið í fyrirkomulag sem hefur ekki reynst nægilega skilvirkt. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur mikilvægt að reglur um bílastæði taki mið af raunverulegum þörfum, ekki síst fjölskyldna í stærri íbúðum, og að ákvarðanir um slíka grunnþætti í skipulagi séu settar fram með skýrum og gagnsæjum hætti. Þrátt fyrir það studdi fulltrúinn tillögu sviðsins þar sem hún er skref í rétta átt. Mikilvægt er að halda áfram að einfalda regluverk og bæta fyrirsjáanleika í þágu íbúa og uppbyggingar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn styður að sjálfsögðu tillögu sem gengur út á það að leiðrétta þær ranghugmyndir sem hafa verið við lýði í bílastæðastefnu borgarinnar. Þessi tillaga hefði mátt ganga lengra og tryggja eitt bílastæði per íbúð sem eru sjálfsögð réttindi íbúðaeigenda. Þessi breyting á stefnu meirihlutans ber vott um kosningaskjálfta, en batnandi fólki er besta að lifa.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Ánægjulegt er að sjá breytingartillögu um bílastæðareglur. Að horft sé til gestastæða er stórbót sem og aukning á viðmiðum. Er það von fulltrúa Viðreisnar að rýmkunin komi til með að veita betra aðgengi að nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 16. mars 2026 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna upphækkaðrar gönguþverunar yfir Skipholt, í samræmi við meðfylgjandi teikningu.
Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK26020438
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 20. mars 2026 um aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030, ásamt fylgigögnum.
Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins
Vísað til borgarráðs.Benedikt Traustason og Þórólfur Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK24120039
- Kl. 11:35 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga fulltrúa í ungmennaráði Grafarvogs um að unglingum í 9. og 10. bekk bjóðist hlutastörf yfir vetrartímann. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar, sbr. 9 liður, dags. 10. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 17. mars 2026.
Frestað.- Kl. 11:35 víkur Guðmundur Benedikt Friðriksson af fundi.
- Kl. 11:37 víkur Ólöf Örvarsdóttir af fundi.Þorvaldur Guðjónsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26020047
-
Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. mars 2026 um mótun stefnu í málaflokki fatlaðs fólks. VEL25090041
Lögð fram svohljóðandi bókun umhverfis- og skipulagsráðs:
Umhverfis- og skipulagsráðs tekur undir umsögn aðgengisfulltrúa Reykjavíkur um drög að stefnu í málaflokki fatlaðs fólks 2026-2030. Ráðið vill undirstrika mikilvægi samtals og samvinnu þvert á svið og að hugað sé að aðgengismálum snemma í skipulags- og framkvæmdaferli.
- Kl. 11:44 víkur Brynjar Þór Jónasson af fundi.
- Kl. 11:50 víkur Sunna Stefánsdóttir af fundi.
Fundi slitið kl. 12:02
Líf Magneudóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Andrea Helgadóttir Friðjón R. Friðjónsson
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Stefán Pálsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 25. mars 2026