Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 372

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 4. mars, kl. 9:00 var haldinn 372. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Kjartan Magnússon, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og áheyrnarfulltrúinn Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti: Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á verkefnum Loftlagssjóðs ungs fólks árið 2025.

    -    Kl. 9:02 tekur Hildur Björnsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.

    Benedikt Traustason tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24030270
     

    Fylgigögn

  2. Lögð fram fundargerð afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 24. febrúar 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  4. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 23. febrúar 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
     

    Fylgigögn

  5. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602015, dags. 6. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 13.8. 2025, að veita byggingarheimild fyrir breytingu á notkun bílskúranna og útliti þeirra að Hjarðarhaga 13. USK26020126
     

    Fylgigögn

  6. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602024, dags. 22. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúi um útgáfu á byggingarleyfi, samþykktu 2. desember 2025, einnig hverfisskipulag Árbæjar, auglýst 31. október 2019. USK26020398
     

    Fylgigögn

  7. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602025, dags. 22. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa um útgáfu á byggingarleyfi, samþykktu 2. desember 2025, einnig hverfisskipulag Árbæjar, auglýst 31. október 2019. USK26020399
     

    Fylgigögn

  8. Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir Lambhagaland við Vesturlandsveg. Deiliskipulagssvæðið, Lambhagareitur, er staðsett austan við Vesturlandsveg. Með nýju deiliskipulagi verður afmörkun deiliskipulags samsíða Úlfarsá endurskoðuð. Sérstaða svæðisins skal varðveitast sem mest í borgarmyndinni, góð ræktunarskilyrði eru á svæðinu og rík hefð hefur verið fyrir ræktun og skal það endurspegla hugmyndafræðina að breyttu deiliskipulagi. Lýsingin var í kynningu frá 18. desember 2025 til og með 29. janúar 2026. Umsagnir bárust.
    Kynnt.

    Valný Aðalsteinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120007
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf., dags. 6. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna Skarfagarða 6-8. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðamörk Skarfagarða 6 færast 12 m frá hafnarbakka og verða eftir breytingu í 30 m fjarlægð frá honum, byggingarreitur minnkar í samræmi við það. Ný lóð, Skarfagarðar 8, er stofnuð á nýrri landfyllingu fyrir farþegamiðstöð, samkvæmt uppdr. ARKÍS, dags. 4. nóvember 2025.

    -    Kl. 9:32 víkur Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir af fundi.

    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Valný Aðalsteinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110089
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á hverfisskipulagi Árbæjar, hverfi 7.3 Selás. Í breytingunni sem lögð er til felst að mörk skipulagssvæðisins er breytt og sá hluti sem áður tilheyrði skipulaginu verður eftir breytingu hluti af deiliskipulagi Suðurlandsvegar, frá Bæjarhálsi að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá. Afmörkun hverfisskipulagsins minnkar um nokkra metra til austurs í vegstæði Suðurlandsvegar, auk þess sem skipulagssvæðið minnkar til suðausturs við gatnamót Suðurlandsvegar og Breiðholtsbrautar, samkvæmt uppdrætti Eflu, dags. 12. janúar 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Helga Rún Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24060174
     

    Fylgigögn

  11. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. júní 2025, br. 24. febrúar 2026, að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholt, hluti 6.3 og skilmálaeining 6.3.3., vegna lóðar við Krummahóla, ný íbúðalóð án heimilisfangs. Uppbyggingarheimildir á lóðinni við Krummahóla voru skilgreindar í hverfisskipulagi Breiðholts sem unnið var í miklu samráði við íbúa. Nýjar tillögur að uppbyggingu á reitnum hafa nú verið felldar betur að nærumhverfinu með vönduðum arkitektúr. M.a. hefur verið létt verulega á byggingamagni lóðarinnar, grænt yfirbragð hennar skýrt og gæði íbúða útfærð nánar. Í tillögunni eru 6 fjölskylduíbúðir með 3-5 herbergjum í raðhúsum og parhúsi og voru breytingar gerðar eftir samtöl við íbúa og greiningu um hverskonar íbúðir vantar í hverfinu. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2025 til og með 28. ágúst 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026.
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2026. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
    Vísað til borgarráðs.

    Sindri Þórhallsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040244

    Fylgigögn

  12. Lögð fram umsókn Lónseyrar ehf., dags. 5. desember 2025, ásamt bréfi Storðar teiknistofu, dags. 4. desember 2025, vegna breytingar á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2 við Grjótháls. Í breytingunni sem lögð er til felst m.a. að lóðin er stækkuð um 30 m til vesturs, bætt er inn viðbótar inn- og útkeyrslu, byggingarreitur er stækkaður fyrir vetnisstöð og vetnisframleiðslu þannig að innan hans er hægt að reisa töflu- og spennahús, áfyllingarstöðvar bifreiða og stórra ökutækja verða staðsettar innan afmarkaðs reits á lóðinni o.fl., samkvæmt, samkvæmt uppdr. Storðar teiknistofu, dags. 24. febrúar 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120098
     

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað við rekstur og viðgerðir á smáhýsum í borginni, sbr. 29. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 19. nóvember 2025. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu dags. 25. febrúar 2026. USK25110301
     

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um hálkuvarnir, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2026. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins, dags. 23. febrúar 2026. USK26010437
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 10:01

Líf Magneudóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Andrea Helgadóttir Einar Sveinbjörn Guðmundsson

Hildur Björnsdóttir Kjartan Magnússon

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 4. mars 2026