Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 371
Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 18. febrúar, kl. 9:00 var haldinn 371. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Birkir Ingibjartsson, Kjartan Magnússon, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og áheyrnarfulltrúarnir Einar Sveinbjörn Guðmundsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Andrea Jóhanna Helgadóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Sunna Stefánsdóttir, Elísabet Dröfn Erlingsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á nagladekkjakönnun.
- Kl. 9:03 tekur Þorvaldur Daníelsson sæti á fundinum.
- Kl. 9:05 tekur Hildur Björnsdóttir sæti á fundinum.Þóra Ásgeirsdóttir, Svava Svanborg Steinarsdóttir og Karl Eðvaldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020326
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 16. febrúar 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á lýsingarhönnun á Austurvelli.
Guðrún Birna Sigmarsdóttir tekur sæti á fundinum undur þessum lið. USK26020150
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Ljóskastarar við styttu af Jóni Sigurðssyni forseta á Austurvelli hafa verið óvirkir um langt skeið, sem er óviðunandi. Á sama tíma og peruskipti/viðgerð umræddra ljóskastara hefur verið vanrækt, hefur verulegu fé og fyrirhöfn verið varið í svokallaða lýsingarhönnun svæðisins. Slík vinnubrögð vekja furðu. Betur hefði farið á því að hluta orkunnar hefði verið varið í að gera við ljóskastarana og er óskað eftir því að það verði gert sem fyrst. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um kostnaðinn við áðurnefnda vinnu.
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 10. febrúar 2026 og 17. febrúar 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa dags. 10. febrúar 2026 og 17. febrúar 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, vegna nýs deiliskipulags fyrir Hátún 10-14 (Hátúnsreitur). Tilgangur skipulagslýsingarinnar er að greina frá svæðinu, áherslum og markmiðum við skipulagsgerðina, forsendum sem liggja að baki og fyrirhuguðu skipulagsferli. Lýsingin tekur til ofangreindra lóða þar sem til stendur að fara í uppbyggingu á lóðunum í kring um núverandi byggingar á u.þ.b. 43.000 m2 sem aðallega fara undir nýjar íbúðir en einnig skrifstofur, námsmannaíbúðir, þjónustu og skóla. Lýsingin var kynnt frá 8. janúar 2026 til og með 5. febrúar 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust.
Kynnt.Þórhildur B. Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120135
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks taka undir sjónarmið Íbúasamtaka Laugardals og skóla- og frístundasviðs hvað innviði varðar sem komnir eru að þolmörkum. Hvorki grunnskólar né leikskólar hverfisins rúma aukinn íbúafjölda svo mikilvægt verður að huga að innviðum samhliða frekari uppbyggingu. Þá hefur Laugarnesskóli haft afnot af íþróttahúsnæði á svæðinu sem ekki má skerða án þess að annað komi í staðinn.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Borgarfulltrúi Viðreisnar fagnar uppbyggingu og þéttingu á reitnum. Mikilvægt er að taka tillit til umsagna íbúasamtaka hvað varðar skóla og leikskóla innviði og því fagnar Viðreisn hugmyndum um uppbyggingar leikskóla og fallegu innsvæði innan reitsins. Huga verður hins vegar að fjárhagshlið verkefnisins hvað varðar að lóðarhafar hafa að öllum líkindum fengið reitinn á niðurgreiddu verði á sínum tíma og ekki eðlilegt að slík samtök geti í nútímanum hagnast mikið við breytta notkun reitsins og sölu til einkaréttarlegra uppbyggingaraðila. Borgarfulltrúi Viðreisnar bendir á að mikilvægt er að þegar samið verði við lóðarhafa að þá sé tryggt borgin verði ekki af mögulegum tekjum eða innviðagjöldum hvað þetta hverfi varðar.
Fylgigögn
-
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í febrúar 2026, vegna breytingu á deiliskipulagi sem nær til lóðanna Suðurlandsbraut 2, Hallarmúla 2 og Ármúla 3 og afmarkast af Suðurlandsbraut til norðurs, Hallarmúla til norðausturs, Ármúla til suðausturs og lóðanna Lágmúla 5A, Lágmúla 5 og Ármúla 1A suðvesturs. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu blandaðrar byggðar, með verslun og þjónustu á jarðhæðum og íbúðum á efri hæðum, ásamt bílakjallara, auk útidvalarsvæða, göngu- og hjólastíga fyrir íbúa og almenning.
Samþykkt er að kynna lýsingu deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og umhverfis- og skipulagssviði og kynna hana fyrir almenningi.Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120299
Fylgigögn
-
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn Þorkels Magnússonar, dags. 12. desember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Fossaleynismýrar vegna lóðarinnar nr. 17 við Fossaleyni. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðarinnar til norðurs um 2.414 m2 og verður lóð eftir breytingu 6.193 m2. Núverandi bráðabirgðahúsnæði á lóð verður fjarlægt en grunnflötur aðalbyggingar stækkar lítillega og byggð lagna- og tæknihæð ofan á hluta hússins. Byggingarreitir fyrir hjólageymslu og sorpskýli eru skilgreindir á uppdrætti. Nýtingarhlutfall eftir breytingar verður 0,29. Innkeyrslum á lóðina verður fjölgað úr einni í tvær en bílastæðum fækkar um tvö á lóðinni. Heimilt verður að reisa 3 m. háa girðingu á lóðamörkum, samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta, dags. 12. desember 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. janúar 2026 til og með 4. febrúar 2026. Athugasemdir og ábendingar bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. febrúar 2026.
Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. febrúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.Ólafur Ingibergsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120213
Fylgigögn
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluta 6.3 og skilmálaeining 6.3.27, vegna lóðar við Austurberg/Hraunberg. Uppbyggingarheimildir á lóðinni við Austurberg/Hraunberg voru skilgreindar í hverfisskipulagi Breiðholts sem unnið var í miklu samráði við íbúa. Nýjar tillögur að uppbyggingu á reitnum hafa nú verið felldar betur að nærumhverfinu með vönduðum arkitektúr. M.a. hefur verið létt verulega á byggingamagni lóðarinnar, grænt yfirbragð hennar skýrt og gæði íbúða útfærð nánar. Í tillögunni eru tveir íbúðakjarnar, annars vegar einn með 4-6 íbúðum og annar með 12-16 íbúðum með þjónustu-, verslunar- eða samfélagsrými, ásamt bílastæðum á jarðhæð, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdrætti, dags. 20. júní 2025, br. 8. febrúar 2026. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2025 til og með 28. ágúst 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn/ábending Veitna, dags. 27. ágúst 2025. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2026.
Samþykkt sbr. 1. mgr. 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði á móti tillögunni.
Vísað til borgarráðs.Þorlákur Jón Ingólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 11:03 víkur Hjördís Sóley Sigurðardóttir af fundi. USK25040246
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga fulltrúa í ungmennaráði Grafarvogs um að unglingum í 9. og 10. bekk bjóðist hlutastörf yfir vetrartímann. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar, sbr. 9 liður, dags. 10. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, mannauðsskrifstofu. MSS26020047
Fylgigögn
-
Lögð fram bókun frá fundi mannréttindaráðs, sbr. 3. liður, dags. 12. febrúar 2026, vegna frávísunar á tillögu um almenningsbekki. MSS25100004
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar ítrekar bókun sína frá fundi ráðsins þann 28. janúar sl. Viðreisn hefði fagnað því ef undirtektir um hugmyndir um minningarbekki hefði verið jákvæð. Að gefa bekkjum í borgarlandinu dýpri og sterkari merkingu er fagnaðarefni og vel hægt að hanna í kringum það bæði skemmtilega og menningarlega umgjörð. Það að heyra hversu flókið verkferli er við uppsetningu á einum bekk er gefur vísbendingu um mikilvægt sé að einfalda kerfið til að auka hagkvæmni rekstur borgarinnar. Borgarfulltrúa Viðreisnar er það alveg óskiljanlegt hvers vegna er ekki hægt að taka vel í svona tillögur og virðist sem frasinn “computer says no” eigi hér við, við þessa frávísun ráðsins.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. janúar 2026 ásamt kæru nr. 2601002, dags. 2. janúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun borgarskipulags að breyta deiliskipulagi fyrir reitinn Háteigsveg 35 án þess að ákvörðunin sé sett í lögbundið ferli. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. febrúar 2026. USK26010038
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 26. janúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2601013, dags. 24. janúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun borgarinnar um útgáfu á byggingarleyfi í mars 2025 og varðar framkvæmdir á húsnæðinu að Þverholti 18. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður umhverfis- og auðlindamála dags. 17. febrúar 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. USK26010382
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 5. febrúar 2026, vegna samþykktar borgarstjórnar frá 3. febrúar 2026 á tillögu að breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 varðandi skilgreiningu nýs svæðis fyrir samfélagsþjónustu í Laugardal, við Reykjaveg. USK25030005
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 5. febrúar 2026, vegna samþykktar borgarstjórnar frá 3. febrúar 2026 á tillögu að breyting á deiliskipulagi Laugardals vegna skólaþorps við Reykjaveg. USK24100252
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við Tjörnina, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 11. febrúar 2026.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK26020164Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Augljóst er að lýsingu við norðurbakka Tjarnarinnar er mjög ábótavant. Öll ljósker á gönguleið milli Ráðhúss Reykjavíkur og Lækjargötu eru óvirk, um fjörutíu talsins. Með því að samþykkja ekki fyrirliggjandi tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úrbætur heldur vísa henni orðalaust til meðferðar í kerfinu, kemur meirihlutinn sér undan því að taka afstöðu til málsins. Með því að samþykkja tillöguna, væru skýr skilaboð send til umhverfis- og skipulagssviðs um að bregðast eigi við biluninni og koma áðurnefndum ljóskerjum í lag. Með því að vísa tillögunni til sviðsins orðalaust og án nokkurra skilaboða um úrbætur sýnir vinstri meirihlutinn að hann lætur langvarandi ljósleysi á umræddri gönguleið sér í léttu rúmi liggja. Slík vinnubrögð afhjúpa slaka verkstjórn meirihlutans.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um átak við að bæta merkingar á biðstöðvum og skiptistöðvum strætisvagna í Reykjavík, sbr. 17. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 11. febrúar 2026.
Vísað til meðferðar Strætó bs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK26020165Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Augljóst er að merkingum á biðstöðvum og skiptistöðvum strætisvagna í Reykjavík er mjög ábótavant. Leiðakort vantar í flest biðskýli, farþegum til upplýsingar og glöggvunar. Leiðakort í skýlum hafa smám saman týnt tölunni án þess að hirt hafi verið um að setja önnur upp í staðinn. Ótrúlegt er að víða í þeim biðskýlum, þar sem enn er að finna leiðakort, skuli vera um að ræða úrelt kort, sem prentuð voru fyrir breytingar á leiðakerfinu, í júní 2024. Þá er ámælisvert að ekki skuli hafa verið brugðist við ítrekuðum tillögum og ábendingum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úrbætur á merkingum á Lækjartorgi, sem í raun eru þrjár aðskildar biðstöðvar, A, B og C. Nú eru slíkar merkingar ekki áberandi, sem hefur augljósa ókosti í för með sér fyrir farþega, ekki síst erlenda ferðamenn með takmarkaða þekkingu á strætisvagnakerfinu. Með því að samþykkja ekki fyrirliggjandi tillögu, heldur vísa henni orðalaust til Strætó bs., kemur meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs sér undan því að taka afstöðu til þeirra nauðsynlegu úrbóta sem hún felur í sér. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna slíka afgreiðslu enda er að lágmarki hægt að ætlast til þess að fulltrúar meirihlutans taki afstöðu til slíkra tillagna í stað þess að vísa þeim orðalaust annað.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:21
Líf Magneudóttir Andrea Helgadóttir
Birkir Ingibjartsson Hildur Björnsdóttir
Kjartan Magnússon Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Þorvaldur Daníelsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 25. febrúar 2026