Umhverfis- og skipulagsráð - fundur nr. 369

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 04. febrúar, kl. 9:00 var haldinn 369. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Hjálmar Sveinsson, Magnús Davíð Nordahl og áheyrnarfulltrúinn Einar Sveinbjörn Guðmundsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Sunna Stefánsdóttir, Elísabet Dröfn Erlingsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2026. USK22120094

    Fylgigögn

  2. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 27. janúar 2026.

    -     Kl. 9.01 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum.
    -    Kl. 9.03 taka Hildur Björnsdóttir og Andrea Jóhanna Helgadóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK24070166

    Fylgigögn

  3. Lögð fram umsókn Helga Konráðs Thoroddsen, dags. 24. nóvember 2025, ásamt skipulagslýsingu, dags. í janúar 2026, vegna nýs deiliskipulags fyrir lóð nr. 9 við Brekkustíg og 44 við Öldugötu. Skipulagssvæðið afmarkast af Brekkustíg 7 til norðurs, leikskólalóðar við Drafnarstíg til austurs, Öldugötu til suðurs og Brekkustígs til vesturs. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna Brekkustígur 9 og Öldugata 44 ásamt stækkun lóðar til austurs að Drafnarstíg um u.þ.b. 50 fermetra. Á horni Brekkustígs og Öldugötu er gert ráð fyrir byggingu nýs íbúðarhúss með fjórum íbúðum á horni. Einnig stendur til að stækka núverandi íbúðarhús við Öldugötu 44 og fjölga íbúðum úr einni í tvær. Íbúðarhúsið að Brekkustíg 9 hefur þegar verið gert upp og þar verður áfram ein íbúð. Á hinni sameinuðu lóð verður komið fyrir útidvalarsvæðum og hjólaskýli fyrir íbúa auk bílastæða. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 6. og 13. febrúar 2017, skýrsla Fornleifastofunnar, dags. í júlí 2019, og Húsakannanir fyrir Brekkustíg 9 og Öldugötu 44.

    -     Kl. 9.09 tekur Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.
    -     Kl. 9.09 tekur Hjördís Sóley Sigurðardóttir sæti á fundinum.

    Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, umhverfis- og skipulagssviði, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.

    Þórhildur B. Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110362

    Fylgigögn

  4. Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram tillaga umhverfis- og skiplagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Korpúlfsstaða vegna lóðarinnar nr. 1 við Thorsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að reitur b er færður til vesturs í um tæpa 22 metra frá lóðarmörkum til austurs að Korpúlfsstöðum og frá göngustígnum norðan við skika 8, land nr. L213909, og að valinn er einn litur úr litatöflu og verður öll byggingin með lit RAL 7006, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdrætti Teiknistofunnar Storð, dags. 27. október 2025, br. 21. janúar 2026. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. nóvember 2025 til og með 9. desember 2025. Athugasemdir og umsögn bárust. Einnig er lagt fram bréfi Arkís arkitekta, dags. 15. desember 2025, umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 8. janúar 2026, og fornleifaskráningu Borgarsögusafns Reykjavíkur, skýrsla nr. 241, dags. árið 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. janúar 2026.

    -     Kl. 9.22 tekur Andrea Jóhanna Helgadóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.

    Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.

    Hildur Ýr Ottósdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110035

    Fylgigögn

  5. Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn PLAN Studio ehf., dags. 20. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða, vegna lóðarinnar nr. 3 við Kristínargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að hámarkshæð byggingar á lóð er hækkuð, heimiluðum A m2 ofanjarðar og neðanjarðar er fjölgað á kostnað B m2, byggingarreitur neðanjarðar stækkar út að Torfhildargötu til samræmis við kjallara Kristínargötu 1, samkvæmt deiliskipuskipulags- og skuggavarpsuppdráttum PLAN Studio ehf., dags. 20. október 2025, br. 26. janúar 2026. Tekið er fram að rampur Grósku og bílastæði verða samnýtt milli lóða og gögn um bílastæðabókhald lögð fram til stuðnings hinu síðarnefnda. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. nóvember 2025 til og með 2. desember 2025. Athugasemdir og umsögn bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. janúar 2026.
    Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.

    Óskar Örn Arnórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -     Kl. 9.45 Víkur Hjördís Sóley Sigurðardóttir af fundi. USK25100298

    Fylgigögn

  6. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 30. janúar 2026 þar sem óskað er eftir að umhverfis- og skipulagsráð samþykki drög að uppfærðum verklagsreglum vegna starfsemi stöðvalausra hjóla- og smáfaratækjaleiga á borgarlandi Reykjavík.
    Samþykkt. USK21120013

    Fylgigögn

  7. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um gangbraut við Arnarborg, sbr. 17. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2025.
    Vísað inn í vinnu við umferðaröryggisáætlun. USK26010433

    Fylgigögn

  8. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við Breiðholtslaug, sbr. 18. janúar 2026.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26010434

    Fylgigögn

  9. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við Hólagarð, sbr. 19. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2026.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26010435

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um snjallgangbrautir við grunnskóla, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 29. janúar 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK26010436

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ástand Höfða (Héðinshöfða) við Borgartún, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu. USK26010431

    Fylgigögn

  12. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um vinnuskólann, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, mannauðsskrifstofu. USK26010438

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um hálkuvarnir, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26010437

    Fylgigögn

  14. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í aðgerðir til að bæta almenningssamgöngur við hið ört vaxandi íbúðarhverfi í Gufunesi. Meðal annars verði skoðaðir möguleikar á því að koma á hringtengingu strætisvagna um hverfið með því að leggja svokallaða strætógötu úr Jöfursbási austur að Strandvegi. Einnig verði skoðaðir kostir þess að hefja tilraunaakstur með sjálfakandi strætisvagn í því skyni að koma á föstum strætisvagnaakstri um hverfið og auka þannig þjónustu við íbúa þess.

    Frestað. USK26020049

  15. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í aðgerðir til að auka umferðaröryggi við íþróttahúsið Fylkissel og félagsmiðstöðina Holtið við Norðlingabraut. Afmarka þarf merkta og upplýsta gönguleið yfir bifreiðastæði hússins, milli Norðlingabrautar og Helluvaðs, sem fjöldi skólabarna fer daglega um í tengslum við skóla-, íþrótta- og æskulýðsstarf. Bæta þarf lýsingu á bílastæðinu og laga tímastillingar svo tryggt verði að stæðið verði vel upplýst kvölds og morgna á meðan starfsemi fer fram í Fylkisseli.

    Frestað. USK26020050

  16. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í peruskipti/viðgerð á ljósastaurum við Langholtskirkju og á göngustígum, sem liggja frá kirkjunni niður á Langholtsveg, m.a. að biðstöð strætisvagna sem þar er.

    Frestað. USK26020051

  17. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í peruskipti/viðgerð á ljóskösturum við styttu af Jóni Sigurðssyni forseta á Austurvelli, sem hafa verið óvirkir um langt skeið.

    Frestað. USK26020052

Fundi slitið kl. 10:01

Líf Magneudóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Andrea Helgadóttir Hildur Björnsdóttir

Hjálmar Sveinsson Kjartan Magnússon

Magnús Davíð Norðdahl

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 04. febrúar 2026