Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2025, miðvikudaginn 7. maí, kl. 9:04 var haldinn 341. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Alexandra Briem, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Kjartan Magnússon og áheyrnarfulltrúarnir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Hildur Björnsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Brynjar Þór Jónasson, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á breytingu á leiðakerfi Strætó bs. á leið 4 og bættri pöntunarþjónustu á leiðum 25 og 29.
Ragnheiður Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040300
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fyrirhuguð breyting á leið 4, Skúlagata-Mjódd, mun hafa í för með sér verulega skerðingu á strætisvagnaþjónustu í Múlahverfi. Við breytinguna mun leiðin hætta að þjóna tíu biðstöðvum í þessu fjölsótta hverfi. Í hverfinu eru margir fjölmennir vinnustaðir, vinsælar verslanir og Fjölbrautaskólinn við Ármúla svo eitthvað sé nefnt. Fyrirhugaðar breytingar á leið 25 og 29 eru til bóta.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á áformaðri endurnýjun Veitna á Suðuræð I frá Elliðaám að Rauðavatni.
- Kl. 9:20 tekur Þórólfur Jónsson sæti á fundinum.
Kenneth Breiðfjörð, Brynjólfur Björnsson og Margrét María Leifsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040390
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Framsóknarflokksins:
Þökkum kynningu Veitna á breytingu hitaveitulagna við Rauðavatn. Breytingarnar helgast af nauðsynlegri tvöföldun hitaveitulagnar og fyrirhugaðri uppbyggingu Vegagerðarinnar á mislægum gatnamótum á mörkum Breiðholtsbrautar og Suðurlandsbrautar. Framkvæmdirnar munu valda raski á vinsælu útivistarsvæði. Mikilvægt er að vandað verði til verka svo óhjákvæmilegt rof í skóginum við Rauðavatn grói sem fyrst.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Svæðið við Rauðavatn er paradís í borgarlandinu og mikilvægt að gæta vel að þegar farið er í framkvæmdir á slíkum svæðum. Mikilvægt er að gæta þess að skila svæðinu í sem bestu ástandi eftir að framkvæmdum líkur og huga að kynningu til þeirra sem nýta svæðið hvað mest. Bindum við vonir við að sjá að tækifærið sé nýtt til að gefa þessari paradís upplyftingu þegar framkvæmdum er lokið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á nýjum hönnunarleiðbeiningum fyrir leiksvæði.
Bragi Bergsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:02 víkur Þórólfur Jónsson af fundi. USK25040393
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins:
Fulltrúar samstarfsflokkanna fagna þessum leiðbeiningum. Það er mjög mikilvægur þáttur í því að tryggja aðgengi allra barna að hafa skýrar leiðbeiningar um uppbyggingu leiksvæða og að þær séu staðlaðar yfir allar framkvæmdir. Það tryggir að hægt sé að taka til greina öll atriði snemma, og kemur í veg fyrir tafir og tvíverknað. Það er mikilvægt að líta til aðgengisþarfa vegna hreyfihömlunar, ofnæma eða astma, sjónskerðinga, heyrnarskerðinga, þroskaskerðinga og þeirra sem eru skynsegin, og því ber að fagna hversu vel og ítarlega þessar leiðbeiningar hafa verið undirbúnar og ígrundaðar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn fagnar gerð hönnunarleiðbeininga fyrir leiksvæði, mikilvægt er að tryggja að hugað sé að mismunandi þörfum allra barna- og ungmenna þegar kemur að aðgengi að leiksvæðum.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Virkilega ánægjulegt að fá kynningu á störfum aðgengisfulltrúa, leiðbeiningar fyrir leiksvæði til fyrirmyndar. Mörg góð verkefni kynnt sem búa til betri og aðgengilegri borg fyrir öll. Frábært væri að leiðbeiningar fyrir fleiri tegundir framkvæmda lægju fyrir hvað aðgengi varðar. Starf aðgengisfulltrúa er gífurlega mikilvægt hlutverk í framtíð betri borgar.
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir funda stjórnar Sorpu bs., dags. 2. apríl 2025 og 23. apríl 2025 ásamt fylgiskjali. USK23010167
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2025. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð fundargerðar afgreiðslufundar byggingarfulltrúadags. 29. apríl 2025. USK24070166
Fylgigögn
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Hlíðarenda ses, dags. 27. júní 2023, ásamt greinargerð Alark arkitekta ehf., dags. 16. september 2024, um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 3 við Arnarhlíð. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjölga íbúðum, fella niður göng undir Flugvallarveg, auka byggingarmagn á jarðhæð, auka hlutfall 5. hæðar af stærð 4. hæðar, koma fylgilóðum vegna djúpgáma fyrir í borgargötum, breyta lóðastærð, mörk skipulagssvæðis færast að lóðamörkum, útbyggingar eru ávarpaðar og leikskólahugmyndir á lóð eru felldar niður, samkvæmt deiliskipulags-, skýringar- og skuggvarpsuppdráttum Alark arkitekta, dags. 27. ágúst 2024 og 16. september 2024, br. 28. apríl 2025, og sólarljósaútreikningum af dvalarsvæði. Einnig er lagt minnisblað VSÓ ráðgjafar, dags. 18. september 2024, og samgöngumat VSÓ ráðgjafar, dags. í febrúar 2024. Tillagan var auglýst frá 17. október 2024 til og með 28. nóvember 2024. Ábendingar og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. apríl 2025. Lagt er til að tillagan sé samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Ingvar Jón Bates Gíslason tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:50 víkur Glóey Helgudóttir Finnsdóttir af fundi og Auðun Helgason tekur sæti á fundinum og jafnframt við fundarritun. USK23060353
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins:
Gildandi deiliskipulag á A-reit er frá árinu 2019. Breytingartillagan gerir ráð fyrir fækkun þjónusturýma en talsverðri fjölgun íbúða. Undirgöng við Flugvallarveg voru aflögð á skipulagi árið 2017. Það leiddi til þess að hægt var að auka lítillega við byggingarmagn á jarðhæð reitsins. Í gildandi deiliskipulagi var gert ráð fyrir nánast sama byggingarmagni og breytingartillagan gerir ráð fyrir. Breytingin gerir ráð fyrir inndreginni 5. hæð og að hún komi Arnarhliðarmegin. Sú breyting er tilkomin til þess að bæta birtu í inngarði hússins, og leiðir ekki til skuggamyndunar á nærliggjandi hús.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Ólíklegt er að umrædd lóð beri með góðu móti rúmlega hundrað íbúðir til viðbótar því sem þegar hefur verið samþykkt. Um er að ræða mikla aukningu á byggingarmagni íbúðarhúsnæðis frá núgildandi skipulagi, sem núverandi íbúar hverfisins gátu ekki séð fyrir þegar þeir fjárfestu í íbúðum sínum. Óheppilegt er að íbúar geti ekki treyst skipulagi þegar keyptar eru íbúðir í nýjum hverfum. Svo mikil þétting mun auka umferð í hverfinu, sem og bílastæðavanda, sem er ærinn fyrir. Uppfylling ganga undir Flugvallarveg var slæm aðgerð og væri æskilegt að opna þau að nýju í stað þess að festa slíkt óþurftarverk í sessi. Göngin gegndu mikilvægu hlutverki í þágu umferðaröryggis enda er mikil og hröð bílaumferð um Flugvallarveg en mikil umferð gangandi og hjólandi vegfarenda yfir veginn. Æskilegt væri að byggja leikskóla á lóðinni og flýta þeim fyrirætlunum í stað þess að hverfa frá enda er mikil og ört vaxandi þörf fyrir slíka þjónustu í hverfinu. Vegna umræðna á fundinum vilja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta þá skoðun að mikilvægt sé að allir leikskólar hafi yfir útisvæði að ráða í starfsemi sinni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúi Framsóknar hefur miklar áhyggjur á að þjónusturými sem fyrirhugað er á reit A muni bætast við það þjónusturými sem stendur nú þegar tómt í Hlíðarendahverfinu, betra væri ef þess rými væru nýtt undir íbúðir í stað þess að auka á tómleika jarðhæða bygginga sem fyrir er í hverfinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsókn Magneu Þóru Guðmundsdóttur, dags. 13. mars 2025, ásamt bréfi, dags. 11. mars 202, um breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis norðan Sundlaugavegar vegna lóðanna nr. 74A við Laugarnesveg og nr. 47 við Hrísateig. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að hækka húsin í þrjár hæðir ásamt því að byggja við Hrísateig 47, suðaustan megin, allt að þrjár hæðir, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Stiku, dags. 28. apríl 2025. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Valný Aðalsteinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25030163
Fylgigögn
-
Lögð fram í trúnaðarbók umhverfis- og skipulagsráðs tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2025, að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði árið 2025. Trúnaði verður aflétt að úthlutun lokinni.
Samþykkt og fært í trúnaðarbók. Trúnaði verður aflétt við úthlutun styrkja.
Vísað til borgarráðs.Sólveig Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25010158
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að setja viðgerðir á leikskólum í forgang, sbr. 35 liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. mars 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 28. apríl 2025.
Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísun málsins. USK24030171Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins:
Fulltrúar samstarfsflokkanna eru sammála um þessa áherslu og beina þeim tilmælum til skrifstofu framkvæmda og viðhalds að horfa áfram til þessa þegar kemur að viðhaldi. Í því ljósi að til staðar er verklag þar sem forgangsröðun viðhaldsverkefna er ákveðin, og þar sem áhersla er lögð á viðhald og endurnýjun leikskóla- og grunnskólabygginga, er réttast að vísa þessari tillögu frá að sinni í ljós þess sem fram kemur í svari með tillögunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um skipulag byggðar í Geldinganesi sbr. 5 liður fundargerðar borgarstjórnar 18. mars 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu skipulagsfulltrúa. MSS22100020Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Enn einu sinni er tillögu Sjálfstæðisflokksins, um að hafist verði handa við skipulagningu framtíðaríbúðasvæðis í Geldinganesi, vísað inn í rangala borgarkerfisins til skoðunar. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvetja til þess að í stað endalausrar skoðunar hefjist skipulagsvinna vegna íbúðarsvæðis þarna sem fyrst enda fer vel á því að hún verði í góðum tengslum við skipulagsvinnu Sundabrautar.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við göngu og hjólastíga, sbr. 26. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. apríl 2025.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK25040421
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um gangstéttaviðgerðir við Brekkugerði, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. apríl 2025.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK25040422
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um gangstéttaviðgerðir við Listabraut, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. apríl 2025.
Vísað til meðferðar, umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK25040423
-
Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um að hefja skipulagsferli vegna húsnæðisuppbyggingar á Geldinganesi sbr. 3. liður fundargerðar borgarstjórnar dags. 18. mars 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu skipulagsfulltrúa MSS25030067
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um umbætur á endastöð Strætó við Skeljanes, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. apríl 2025.
Vísað til mats og meðferðar, umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK25040411
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Þórsgötu 6, sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK25040414
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Klapparstíg 19, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK25040415
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Óðinsgötu 14 og 16, sbr. 30. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK25040416
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Borgartún 34, sbr. 29. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK25040418
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Laugaveg 73, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK25040419
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um hraðakstur við Flúðasel í 109 Reykjavík, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK25040420
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að hundagerði eða lausagöngugarði fyrir hunda verði komið fyrir á Klambratúni.
Frestað. USK25050080
- Kl. 11:19 víkur Brynjar Þór Jónasson af fundi.
- Kl. 11:25 víkur Ólöf Örvarsdóttir af fundi.
- Kl. 11:30 víkur Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir af fundi.
- Kl. 11:37 víkur Björn Axelsson af fundi.
Fundi slitið kl. 11:47
Hjálmar Sveinsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Alexandra Briem Andrea Helgadóttir
Einar Sveinbjörn Guðmundsson Hildur Björnsdóttir
Kjartan Magnússon
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 7. maí 2025