Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 340

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2025, miðvikudaginn 30. apríl, kl. 9:00 var haldinn 340. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon og áheyrnarfulltrúarnir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundarheimild: Andrea Helgadóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Sunna Stefánsdóttir og Hólmfríður Frostadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 10. apríl 2025. USK22120094

    Fylgigögn

  2. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa, dags. 8. apríl 2025 og 15. apríl 2025. USK24070166

    Fylgigögn

  3. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda samgöngustjóra dags. 8. apríl 2025 og 22. apríl 2025 ásamt fylgigögnum. USK25010025

    Fylgigögn

  4. Tillaga fulltrúa ÖBÍ um uppsetningu og útbreiðslu nýs umferðarmerkis - 2025
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar MSS25030044

    Fylgigögn

  5. Fært úr trúnaðarbók, úthlutun styrkja úr loftslagssjóði ungs fólks í Reykjavík. USK24030270

    Fylgigögn

  6. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 3. apríl 2025, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna lóðar nr. 4 við Rafstöðvarveg, Toppstöðvarinnar. USK25030204

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf frá nemendum í Breiðholti, dags. 11. mars 2024 ásamt svari frá skipulagsfulltrúa, dags. 14. mars 2025. USK24030341

    Fylgigögn

  8. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um innheimtu hjá Bílastæðasjóði, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 18. desember 2024. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 8. apríl 2025. USK24120184

    Fylgigögn

  9. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um endurnýjun íbúakorta bílastæðasjóðs, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 29. janúar 2025. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 8. apríl 2025. USK25010311

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju fyrirspurn Sósíalistaflokks Íslands um viðhald gangstétta við Kringlumýrarbraut, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 4. september 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 3. apríl 2025. USK24090048

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að stemma stigu við hraðakstri bifhjóla á göngustígum sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. apríl 2025.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK25040162

    Fylgigögn

  12. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um framkvæmdir við göngu- og hjólastíg í Grafarholti sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. apríl 2025.
    Vísað til mats og meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds USK25040160

  13. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa framsóknarflokksins um nýja skiltareglugerð, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. apríl 2025.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa USK25040157

  14.     Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um íbúakort, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 5. febrúar 2025. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 8. apríl 2025. USK25020057

    Fylgigögn

  15. Laugardalur, breytt landnotkun - Skilgreining samfélagsþjónustu við Reykjaveg.

    Samþykkt að auglýsa í samræmi við 3. mgr. 30. gr., sbr. 31 gr., sbr. 1 mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Vísað til borgarráðs.

    Margrét Lára Baldursdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25030005

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ráðast þarf í viðgerðir og endurbætur á grunnskólunum í Laugardal: Langholtsskóla, Laugalækjarskóla og Laugarnesskóla. Vel ætti að vera unnt að ráðast í þær framkvæmdir í umræddum skólum án svo mikillar röskunar á skólastarfi, sem fyrirliggjandi tillaga felur í sér, t.d. með notkun færanlegra skólastofa. Var sá kostur talinn vera vel raunhæfur árið 2022 þegar samkomulag náðist milli borgarinnar og foreldrafélaga skólanna um lausn á húsnæðisvanda þeirra samkvæmt svonefndri sviðsmynd 1. Nú hefur meirihluti borgarstjórnar hins vegar rofið það samkomulag og hyggst fara aðra leið, sem mætt hefur mikilli andstöðu meðal foreldra og annarra íbúa í Laugardal. Ljóst er að enn frekari fækkun bílastæða við Laugardalsvöll getur leitt til þess að vallargestir og hallargestir leggi bifreiðum sínum í ríkari mæli en þegar er raunin í nálægu íbúahverfi. Þá er ekki ljóst hvernig aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra að Laugardalsvelli verður tryggt miðað við fyrirliggjandi tillögu.

    Fylgigögn

  16. Fram fer kynning á niðurstöðum samráðsfundar barna, ungmenna og Strætó og kjörinna fulltrúa sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu þann 1. febrúar 2025.
    Salvör Norðdal, Stef Jón Aðalsteinsson og Indriði Nökkvi Þóreyjarson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25020050

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Virkilega gagnleg og góð kynning frá fundi ungmenna varðandi Strætó. Frásagnir um takmarkað öryggi ungra farþega í vögnum er mikið áhyggjuefni og gera má ráð fyrir að það eigi við um alla farþegar. Er málið alvarlegt og von um að farið verði strax í að kanna mögulegar lausnir til að tryggja öryggi og bættar boðleiðir farþega ungra sem aldna til Strætó BS.

    Fylgigögn

  17. Að lokinni grenndarkynningu skipulagsfulltrúa er lagt fram að erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. nóvember 2024 þar sem sótt er um leyfi til að breyta, endurgera og byggja ofaná mhl. 02 og innrétta þar þrjár íbúðir og til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum, mhl. 03 á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 19. ágúst 2024 og 16. desember 2024. Erindið var grenndarkynnt frá 30. janúar 2025 til og með 27. febrúar 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram ábending Veitna, dags. 10. febrúar 2025. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. apríl 2025.

    Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa og vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

    Valný Aðalsteinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 10:22 tekur Andrea Helgadóttir sæti á fundinum á fundarstað USK24070192
     

    Fylgigögn

  18. Lögð fram tillaga skóla- og frístundasviðs að breytingu á deiliskipulagi Laugardals vegna skólaþorps við Reykjaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að áður skilgreind lóð fyrir Ævintýraborg, tímabundið leikskólaúrræði Reykjavíkurborgar, er breytt í lóð fyrir skólaþorp, tímabundið grunnskólaúrræði Reykjavíkurborgar. Auk þess er lóðin stækkuð út fyrir mörk núverandi bílastæða og yfir aðliggjandi stíg, byggingarheimildir auknar og umferðarfyrirkomulagi breytt á bílastæðum milli Reykjavegar og Laugardalsvallar ásamt því að syðri innkeyrslu á stæðin frá Reykjavegi verður lokað, samkvæmt uppdr. Landslags, dags. 23. janúar 2025. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 10. janúar 2025.

    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Vísað til borgarráðs. USK24100252

    Fylgigögn

  19. Lögð fram umsókn Gunnars Bjarnasonar ehf., dags. 20. desember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness 1. áfanga vegna lóðarinnar nr. 36 við Gufunesveg og 3 við Þengilsbás. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóðanna ásamt breytingu á hæðum hússins, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Praxis arkitektúr, dags. 20. desember 2024. Einnig er lögð fram tillaga/kynning Praxis arkitektúr, dags. 2024.

    Frestað

  20. Lagt fram málskot Jónasar A. Jónssonar lögfræðings f.h. Vogunar ehf., dags. 3. apríl 2025, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 27. mars 2025, um rekstur gististaðar í flokki II á 2. hæð hússins á lóð nr. 2-6 við Eddufell. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. mars 2025.

    Niðurstaða skipulagsfulltrúa sbr. umsögn, dags. 27. mars 2025, staðfest. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK25040083

    Fylgigögn

  21. Lagt fram málskot Ástu Sigríðar Fjeldsted, dags. 3. júlí 2024, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 4. apríl 2024, um að setja bílastæði á lóð nr. 7 við Fjólugötu, samkvæmt tillögu Landslags, dags. í febrúar 2024. Einnig er lagt fram bréf sendiráðs Slóveníu, dags. 2. júlí 2024, ásamt viðauka. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. apríl 2024. Jafnframt er lagt fram minnisblað um áhrif Vínarsamningsins, dags. 4. apríl 2025.

    Niðurstaða skipulagsfulltrúa sbr. umsögn, dags. 4. apríl 2024, staðfest með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og einu atkvæði Framsóknarflokksins USK24120180

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja rétt að heimila viðkomandi húseiganda að leggja bifreiðastæði á lóð sinni, líkt og fjölmörg fordæmi eru fyrir í götunni og öðrum nærliggjandi götum.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn vill benda á að afgreiðsla ráðsins á málskoti varðandi Fjólugötu 7 skortir rökstuðning.  Tæplega er hægt að vísa í venjur um að banna gerð bílastæða inn á einkalóð út frá þeim rökum að bílar þurfi að aka yfir gangstéttar til komast í eða úr stæðum. Það fyrirkomulag að bílar aki í og úr stæðum yfir skilgreindar gangstéttir fyrirfinnst um alla borg. Það virkar handahófskennt að hafna beiðni íbúa á Fjólugötu 7 út frá þeim rökum.

    Fylgigögn

  22. Fram fer kynning skrifstofu framkvæmda og viðhalds á viðgerðum gangstétta og göngustíga í Reykjavík.

    Anna Kristín Sigursteinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 11:20 víkur Brynjar Þór Jónsson af fundi
    -    Kl. 11:53 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi
    -    Kl. 11:53 víkur Glóey Helgudóttir Finnsdóttir af fundi
    -    Kl. 11:53 tekur Auðun Helgason sæti á fundinum
    -    Kl. 11:53 Víkur Hildur Björnsdóttir af fundi USK25040156

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir kynningu á vinnu við ástandsmat gangstétta og gönguleiða. Verið er að leggja grunn að stefnu um gönguvæna borg og áætlun um uppbyggingu og viðhald gangstétta og gönguleiða um alla borg. Ástandsmat gangstétta og gönguleiða er hluti af því verkefni og mun það leggja grunn að viðhaldsátaki næstu ára í þessu efni. Þetta snýst um öryggi og aðgengi gangandi vegfarenda og barna á leið til skóla og frístunda sem einnig nýtist fólki með skerta hreyfifærni. Við fögnum þessari vinnu og teljum brýnt að viðhaldsátaki gönguleiða verði forgangsraðað í fjárfestingu til næstu ára.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir kynningu á fyrirkomulagi viðhalds gangstétta og göngustíga í Reykjavík. Ljóst er að slíkt viðhald hefur verið stórlega vanrækt í borginni mörg undanfarin ár. Afar brýnt er að auka þetta viðhald verulega enda veldur lélegt ástand gangstétta víða óþægindum og hættu. Óskað er eftir því að fá fyrirliggjandi ástandsmat afhent. Einnig er óskað eftir því að upplýsingar um ástandsmat þeirra gangstétta, sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, hafa lagt til á kjörtímabilinu að verði lagfærðar. Upplýst var á fundinum að þær tillögur hafa verið metnar með tölulegum hætti á skrifstofu framkvæmda og viðhalds.

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fögnum því að horft sé í auknu mæli til ástands gangstétta í borgarlandinu. Sorglegt er hversu illa gangstéttum hefur verið haldið við. Í borg fjölbreyttra fararmáta eru gangstéttir ekki síður mikilvægar en götur í borgarlandinu. Mikilvægt er að ástandsmatið sé sýnilegt íbúum til dæmis í Borgarvefsjá svo auðveldlega megi koma inn með ábendingar. Gott væri að sjá fjármagn í þetta verkefni sem samræmist mikilvægi þess fyrir íbúa okkar en þetta eru helstu samgönguleiðir stórs hluta íbúa.

    Fylgigögn

  23. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Framsókn leggur til að umhverfi við enda Skeljanes, þar sem m.a. er endastöð Strætó, verði bætt til muna. Mikið af stórri lausamöl er á þessu svæði ásamt illa merktum tengingum gangandi- og hjólandi vegfarenda frá göngu- og hjólastíg inn á Skeljanes. Hér getur skapast hætta þar sem stór möl er erfið yfirferðar fyrir hjólandi, auk þess er nauðsynlegt að vel merkt tenging inn á Skeljanes vel lögð til að skilgreina umferðina betur.

    Frestað USK25040411

  24. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í viðgerðir á gangstéttum við Listabraut. Gangstétt við götuna er víða eydd, sprungin og ójöfn.

    Frestað USK25040423

  25. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í viðgerðir á gangstéttum við Brekkugerði. Gangstétt við götuna er víða eydd, sprungin og ójöfn.

    Frestað USK25040422

  26. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að úrbætur verði gerðar á götulömpum við göngu- og hjólastíga í borginni. Mikill meirihluti ljósastaura á stíg milli Kringlumýrarbrautar og Skeljaness (Sólarleið), er óvirkur. Þá liggur lýsing niðri á alllöngum kafla á stíg við vestanverða Öskjuhlíð (Bæjarleið).

    Frestað USK25040421

  27. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúa Viðreisnar hefur borist töluverður fjöldi tilkynninga um hraðakstur við Flúðasel í 109 Reykjavík eftir að breytingar voru gerðar við götuna fyrir nokkru með þeim afleiðingum að hraði hefur aukist töluvert. Miklar umræður hafa verið í hverfahópum um hraðahindranir eða þrengingar. Liggja fyrir einhverjar áætlanir til að taka á þessari stöðu, fjöldi barna gengur um svæðið á leið í skóla og almenn umgengni töluverð. USK25040420

  28. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Staða húsnæðis við Laugarvegi 73 er í mjög slæmu ástandi, stendur í dag á góðum stað aðeins grunnur að húsi, eru áform um uppbyggingu á reitnum á dagskrá ef svo hver er staða slíkra framkvæmda. USK25040419

  29. heyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Staða húsnæðis við Borgartún 34 er í mjög slæmu ástandi, stendur í dag í töluverðri niðurníðslu og vanrækt. Er staða málsins á borði umhverfis og skipulagssviðs og hvaða kosti hefur borginn á að bregðast við stöðunni þegar eignir eru íbúum í nágrenni bein ógn við öryggi sem og slæm áhrif á borgarmyndina? Húsnæðið er gífurlega stórt og sýnilegt frá stórri umferðaæð og því sýnilegt mörgum í sínum dagsdaglegu ferðum um borgina. USK25040418

  30. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Staða húsnæðis við Óðinsgötu 14 og 16 er í mjög slæmu ástandi, stendur í dag í töluverðri niðurníðslu og vanrækt. Er staða málsins á borði umhverfis og skipulagssviðs og hvaða kosti hefur borginn á að bregðast við stöðunni þegar eignir eru íbúum í nágrenni bein ógn við öryggi sem og slæm áhrif á borgarmyndina? USK25040416

  31. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Staða húsnæðis við Klapparstíg 19, gjarnan nefnt Klukkuhúsið er í mjög slæmu ástandi, stendur í dag í töluverðri niðurníðslu og vanrækt. Er staða málsins á borði umhverfis og skipulagssviðs og hvaða kosti hefur borginn á að bregðast við stöðunni þegar eignir standa í svo slæmu ástandi til lengri tíma? USK25040415

  32. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Staða húsnæðis við Þórsgötu 6 er í mjög slæmu ástandi, stendur í dag í töluverðri niðurníðslu og vanrækt. Er staða málsins á borði umhverfis og skipulagssviðs og hvaða kosti hefur borginn á að bregðast við stöðunni þegar eignir eru íbúum í nágrenni bein ógn við öryggi sem og slæm áhrif á borgarmyndina? USK25040414

  33. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fjöldi leikskóla er að virðist fast á framkvæmdarstigi í viðgerðum og hefur ekki verið mikil hreyfing á mörgum þeirra í langan tíma, svo sem Hálsaborg við Hálsasel í 109 Reykjavík hefur ekki verið opin fyrir börn í mjög langan tíma, getur ráðið fengið upplýsingar um stöðu leikskóla á framkvæmdastigi og hvenær má vænta þess að þeir verði opnir fyrir börn í borginni. USK25040413

Fundi slitið kl. 12:00

Dóra Björt Guðjónsdóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Andrea Helgadóttir Einar Sveinbjörn Guðmundsson

Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 30. apríl 2025