Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2024, miðvikudaginn 18. desember, kl. 9:02 var haldinn 329. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Pawel Bartoszek og áheyrnarfulltrúarnir Andrea Helgadóttir og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Borghildur Sölvey Sturludóttir, Brynjar Þór Jónsson, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Björgvin Rafn Sigurðarson.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2024. USK22120094
Fylgigögn
-
Lagt fram til afgreiðslu ráðsins Þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands - Samvinnuverkefni Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar um heildarsýn fyrir framtíð svæðis Háskóla Íslands, dags. 7. nóvember 2024, bæði unnið af JVST og Jurrlink+Geluk. Sett er fram heildarsýn fyrir svæði Háskóla Íslands sem þróunaráætlun er byggir á samspili umhverfis, borgarskipulags, samgangna og bygginga. Svæðinu er ætlað að bera skýr auðkenni og vera aðlaðandi, fjölbreytt og til fyrirmyndar sem sjálfbært staðbundið samfélag. Fólk og mannlíf verður í forgrunni. Skerpt verður á séreinkennum svæðisins og staðarandi nýttur til að draga fram þau umhverfisverðmæti sem fyrir eru. Enn fremur er stuðst við meginmarkmið og leiðarljós Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, AR2040: að stuðla að kröftugum og sjálfbærum vexti borgar sem styður við markmið um kolefnishlutleysi, vernd náttúrusvæða, líffræðilega fjölbreytni og samkeppnishæft, lífvænlegt, réttlátt og fjölbreytt borgarsamfélag. Vistvænar samgöngur verða í forgangi og grunnþjónusta í göngufæri. Einnig er lagt fram samgöngumat unnið af verkfræðistofunni EFLA, dags. 7. nóvember 2024 sem ber heitið: Samgöngumat - Háskólakampus HÍ - Heildarsýn á ferðavenjur og samgöngukosti - Framtíðarsýn á uppbyggingu háskólasvæðis Háskóla Íslands og samþættingu við Borgarlínu, unnið fyrir umhverfis- og skipulagssvið. Við vinnslu samgöngumats var þróunaráætlun Háskóla Íslands rýnd og önnur uppbyggingaráform á háskólasvæðinu, lagt mat á framtíðaráhrif áætlunarinnar og hvernig byggja mætti undir breyttar ferðavenjur. Sýnt er fram á að samgöngur munu leika lykilhlutverk í þróun háskólasvæðisins til framtíðar. Eins er talið nauðsynlegt að stórefla fjölbreyttar og vistvænar samgöngur innan háskólasvæðisins og höfuðborgarsvæðisins alls og stærsti áhrifavaldurinn í því sambandi er Borgarlínan sem hágæða almenningssamgöngukerfi. Lagt er til að ráðið samþykki að unnið verði áfram að gerð deiliskipulagsáætlana á grundvelli þróunaráætlunarinnar.
- Kl. 9:05 tekur Hildur Björnsdóttir sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK24010247
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar:
Við fögnum vandlega unninni þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands. Um er að ræða samvinnuverkefni Háskólans og Reykjavíkurborgar. Háskólasvæðið hefur lengi einkennst af dreifðum stakstæðum byggingum með stórum bílastæðaflæmum. Áætlunin felur í sér þá framtíðarsýn að háskólasvæðið verði hluti af borgarvefnum en um leið verði sérkenni svæðisins nýtt til að draga fram þau umhverfisverðmæti sem fyrir eru. Svæðinu er ætlað að bera skýr einkenni, vera aðlaðandi og til fyrirmyndar sem sjálfbært staðbundið samfélag. Áhersla er lögð á eflingu vistvænna samgangna meðal annars með tilkomu Borgarlínunnar og grænum tengingum innan svæðisins. Það er líka fagnaðarefni að nýtt er hugmynd úr gamalli samkeppni og gert ráð fyrir undirgöngum fyrir fótgangandi undir Hringbraut við hlið lækjarins sem fellur úr Vatnsmýri í Skothústjörn í Hljómskálagarði.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Margar góðar og metnaðarfullar hugmyndir koma fram í fyrirliggjandi þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands en aðrar vekja spurningar og jafnvel efasemdir. HÍ er líklega stærsti vinnustaður landsins með um fjórtán þúsund nemendur og tvö þúsund starfsmenn, auk fjölda stundakennara. Stór hluti nemenda og starfsmanna sækir skólann langt að, t.d. úr eystri hverfum borgarinnar, nágrannasveitarfélögum og jafnvel utan af landi. Mikilvægt er að huga vel að greiðum aðgangi ólíkra hópa að svæðinu en margir sækja jafnframt skólann meðfram annarri vinnu og eiga því mikið undir því að komast greiðlega til og frá háskólasvæðinu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á ríkt samráð við Stúdentaráð Háskóla Íslands og samtök starfsmanna við frekari útfærslu fyrirliggjandi þróunaráætlunar.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Flokkur fólksins telur að aðgengi virkra ferðamáta (gangandi og hjólandi) verði klárlega betra á svæðinu eftir því sem fram kemur í gögnum. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvernig almenningssamgöngur muni virka. Flokkur fólksins er einnig mjög óviss um hvernig deilifararmátum á eftir að vegna í íslensku samfélagi. Fram kemur að núverandi fjöldi bílastæða sé í hámarki. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að gengið hafi verið of harkalega á bílastæði á sama tíma og bílum fer fjölgandi. Skortur á bílastæðum er víða áþreifanlegur og hefur skapað mikil vandamál. Fram kemur að bílastæðahús verði byggð úr vistvænum efnum til að lágmarka kolefnisspor og með stöðluðum einingum sem geta þannig verið stækkuð eða minnkuð eftir því sem eftirspurn þróast. Það er jákvætt, sveigjanleiki eykur hagkvæmni og notagildi húsanna og lengir líftíma þeirra. Fulltrúa Flokks fólksins finnst jákvætt að heyra að slík bílastæðahús byggja á erlendri fyrirmynd og hafa reynst vel.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu deiliskipulagstillögunnar fyrir Ártúnshöfða svæði 2B. Svæðið afmarkast af Ártúnshöfða svæði 2A til suðurs, Elliðaárvogi til vesturs og norðurs og til austurs af Ártúnshöfðanum.
- Kl. 9:10 tekur Friðjón R. Friðjónsson sæti á fundinum.
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri, Björn Guðbrandsson frá Arkís og Þráinn Hauksson frá Landslagi taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK24120120
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fram fer kynning á stöðu deiliskipulagstillögunnar fyrir Ártúnshöfða svæði 2B. Svæðið afmarkast af Ártúnshöfða svæði 2A til suðurs, Elliðaárvogi til vesturs og norðurs og til austurs af Ártúnshöfðanum. Byggja á bílastæðahús með leikvelli á þaki hússins að danskri fyrirmynd. Reynsla af bílastæðahúsum almennt séð hér í borg er misjöfn og oft ólík því sem sjá má í nágrannalöndum. Mörg bílastæðahús eru illa nýtt. Há bílastæðagjöld í húsunum hefur fælingarmátt sem og slæmt aðgengi og þrengsli. Ekki allir eru þess utan tilbúnir til að ganga langt frá bílastæðahúsi og að áfangastað t.d. fjölskyldur með börn og heimilisvörur. Leiksvæði á þaki bílastæðahús er ekki óskemmtileg hugmynd en útilokað er að átta sig á hvort notkun verði mikil á slíkum velli. Fara á í landfyllingu á svæði 2 D Norðurhluti svæðis D í viðbót við þá landfyllingu sem fyrir er. Athyglisvert er að ekkert er minnst á skerðingu á líffræðilegum fjölbreytileika sem samkvæmt venju meirihlutans og skipulagsyfirvalda ætti að gera. Hér er verið að eyðileggja svæði sem er mikilvægt fyrir lífríkið sem verður ekki bætt með því að setja upp nokkra blómapotta í byggðinni.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á umsókn Freys Frostasonar, dags. 6. desember 2024, um nýtt deiliskipulag fyrir Ártúnshöfða, Svæði 7A sem staðsett er við Breiðhöfða 3-5. Í nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir íbúðum og valkvæðri atvinnustarfsæmi á jarðhæðum við Breiðhöfða, einnig er gert ráð fyrir varðveislu Fornalundar sem er gróðursælt útivistarsvæði í samræmi við kvöð um varðveislu hans, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum THG arkitekta, dags. 6. desember 2024. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð, dags. 6. desember 2024, Húsakönnun, dags. í febrúar 2023, Hljóðvistarskýrsla Cowi, dags. 18. júní 2024, Samgöngumat Verkís, dags. 21. júní 2024, og Umhverfismatsskýrsla Verkís, dags. 15. ágúst 2024.
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri og Tinna Stefánsdóttir teymisstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:31 víkur Borghildur Sölvey Sturludóttir af fundi. USK24120060
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Hér er um mikið byggingarmagn að ræða. Bílastæði eru ekki i samræmi við það. Horft er til samnýtingar og deilibíla sem alveg er óvíst hvort verði eftirsótt úrræði. Gera þyrfti könnun á nýtingu deilibíla og samnýtingar bíla hér í borg áður en haldið er áfram með slíkar tillögur. Gera má ráð fyrir að eignir þarna verði mjög dýrar. Byggingarform er víða flókið, hvöss horn og kantar, gluggar standa ýmist út í ramma eða eru inngreyptir eða innfallnir í húsin. Mikill halli er á sumum þökum, grös eru á þökum sem kallar væntanlega á eitthvað viðhald og er einfaldlega óvíst hvernig muni virka í óveðrum, regni, roki og snjó. Myndir minna um margt á byggingar, hótelraðir á Tenerife, hvítar byggingar og á flestum kynningarmyndum er bæði sól og mikill trjágróður sem er vissulega ekki beint hinn íslenski raunveruleiki. Lýsing á ofanvatnslausnum virkar smá barnaleg og yfirborðskennd. Hér er um ofmat að ræða á blágrænum ofanvatnslausnum að mati fulltrúa Flokks fólksins.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir göturými á Ártúnshöfða 2 en um er að ræða svæði sem verður neðsti hluta Stórhöfða og tengist við Sævarhöfða. Tillagan er hluti af 1. lotu Borgarlínu og afmarkast af gatnamótum Sævarhöfða og Stórhöfða til vesturs, deiliskipulagsmörkum Ártúnshöfða við Elliðaárvog svæðis 1 til austurs og deiliskipulagsmörkum Ártúnshöfða við Elliðaárvog svæðis 2A til norðurs. Til suðurs afmarkast svæðið af lóðamörkum sunnan Stórhöfða og deiliskipulagsmörkum Elliðaárvogs við Ártúnshöfða svæði 2C. Með tilkomu nýs deiliskipulags verður bætt við nýju göturými fyrir Borgarlínu frá Sævarhöfða að Krossamýrartorgi ásamt einni stöð, Sævarhöfða. Hjóla- og göngustígum er bætt við beggja vegna Borgarlínubrauta og þannig er tryggt aðgengi virkra ferðamáta við götuna. Akreinar fyrir almenna bílaumferð verða að mestu leyti einbreiðar, nema við gatnamót Sævarhöfða og Stórhöfða. Þá er grænni ásýnd gatnanna aukin með skilgreindum svæðum fyrir gróður og regnvatnslausnum ofanjarðar, samkvæmt uppdrætti og greinargerð frá Arkís arkitektum, dags. 10. desember 2024. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Þórður Már Sigfússon verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:43 víkur Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi. USK24120106
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta deiliskipulagsmörkum til austurs og suðurs. Eru mörkin færð í núverandi staðsetningu öryggisgirðingar flugvallarins sem er dregin samkvæmt hnitum í samningi Reykjavíkurborgar og ríkisins er undirritaður var í ágúst 2016. Markmið breytingarinnar er að koma til móts við þegar gerðar breytingar á aðlægum deiliskipulagsáætlunum, þ.e. Háskólans í Reykjavík, Nauthólsvíkur og Brúar yfir Fossvog. Þar hafa verið gerðar breytingar er lúta að breyttri legu Borgarlínu um svæðið og hún verið uppfærð til samræmis við forhönnunargögn. Sú lega er utan deiliskipulags og er leiðbeinandi. Að öðru leyti haldast gildandi skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdrætti teiknistofunnar T.ark, dags. 9. desember 2024. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Þórður Már Sigfússon verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24120041
Fylgigögn
-
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Hjalta Brynjarssonar, dags. 14. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.3, Lokastígsreits 4, vegna lóðarinnar nr. 61 við Njarðargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst heimild til að lengja áðurheimila viðbyggingu, uppá 3 hæðir og ris, um 2 m til suðvesturs, í samræmi við gildandi mæliblað. Núverandi stigahús víkur, ásamt geymsluskúr á lóð, og nýtt stigahús með lyftu er fellt inn í kropp hússins sem telur að hámarki 8 íbúðir, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum Nordic, dags. 5. mars 2024, felur breytingin í sér aukningu á byggingarmagni um 95 m2 og nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 1,61 í 2,07. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 24. apríl 2023 og 16. ágúst 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. október 2024 til og með 10. desember 2024. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. desember 2024. Lagt er til að tillagan verði samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Sigríður Maack verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23070148
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Í ljósi þessa alvarlega máls í Álfabakka þar sem heimildir voru allt of rúmar, mál sem við flest erum í miklu uppnámi yfir, er það mat Flokks fólksins að það er oft sama hvað fólk gerir athugasemdir við, jafnvel sendir inn alvarlega kvörtun um að verið sé að skerða eignir þeirra, birtumagn, aðgengi, þrengja að bílastæðum o.s.frv. þá er bara bent á gildandi deiliskipulag og þar við látið sitja. Svoleiðis er einmitt í þessu máli, varðandi athugasemdir sem eiga við fyrirliggjandi erindi að Njarðargötu 61 þá er viðkvæðið að þetta sé í gildandi deiliskipulagi og fyrir þessu séu heimildir. Eitthvað hlýtur að vera hægt að gera í málum af þessu tagi s.s. bæta í skilmálana. Fulltrúi Flokks fólksins vill að hlustað verði á þá sem fyrir eru, það er óboðlegt að gera breytingar - viðbætur sem dregur úr gæðum eigna sem fyrir eru.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 10. desember 2024. USK24070166
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 9. desember 2024 ásamt fylgigögnum. USK24010019
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka enn og aftur tillögu sína um að fallvörn verði sett upp meðfram lágum bryggjukanti við Naustabryggju í því skyni að draga úr slysahættu þar. Athygli skal vakin á því að þarna hafa orðið slys, þar af a.m.k. eitt alvarlegt. Ekki verður séð að þær takmörkuðu breytingar, sem gerðar voru á svæðinu á síðasta ári, dragi úr slysahættu svo nokkru nemi.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf starfshóps íbúaráðs Grafarvogs, dags. 4. desember 2024, ásamt erindisbréfi dags. 8. janúar 2024 og skýrslu: Staða umferðaröryggismála í Grafarvogi nóvember 2024, Ábendingar um mögulegar úrbætur dags. ódags. sbr. 5. liður fundargerðar íbúaráðsins dags. 4. desember 2024. Íbúaráð Grafarvogs samþykkti að vísa skýrslu til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.Árni Guðmundsson, Fanný Gunnarsdóttir og Ingimar Þór Friðriksson frá íbúaráði Grafarvogs taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS23100025
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir ánægju og þakklæti með vandaða úttekt íbúaráðs Grafarvogs á umferðaröryggismálum í hverfinu. Í úttektinni er að finna fjölmargar gagnlegar ábendingar og tillögur um hvernig megi auka umferðaröryggi í hverfinu. Margar ábendinganna eiga fullt erindi víðar í borginni.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Nú liggur fyrir skýrsla starfshóps íbúaráðs Grafarvogs. Starfshópurinn hafði það hlutverk að gera úttekt á umferðaröryggismálum í hverfinu. Nú liggur fyrir að alvarlegum slysum Í Grafarvogi hefur fjölgað um 5% ef borinn er saman fjölda alvarlegra slysa sl. fimm ár samanborið við fimm ár fyrir 10 árum síðan. Á sama tíma hefur öðrum slysum, sem ekki teljast alvarleg, fjölgað um 27%. Starfshópurinn leggur fram fjölmargar ábendingar um bætt umferðaröryggi í hverfinu. Flokkur fólksins tekur undir með íbúaráði Grafarvogs um mikilvægi þess að farið verði yfir tillögur starfshópsins og þeim forgangsraðað eftir mikilvægi aðgerða.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á aðgengisbætandi aðgerðum við strætóstöðvar.
Grétar Mar Hreggviðsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23100163
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar:
Undanfarin ár hafa 70 strætóbiðskýli verið endurgerð í borginni. Vel hefur tekist til tekist til við gerð nýrra skýla með leiðilínum, bættu yfirborði, betri ruslastömpum og þægilegri staðsetningu skilta. Afar mikilvægt er að aðgengi að skýlunum og þar með strætó henti öllum. Fjölmörg skýli verða endurbætt á næstunni. Stefnt er að því að ljúka hönnun á endurgerð þeirra 148 skýla sem eftir standa. Framkvæmdum ætti að ljúka innan fárra ára.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir ánægju með yfirstandandi vinnu við að bæta aðgang að biðstöðvum strætisvagna í Reykjavík. Jafnframt er minnt á tillögu Sjálfstæðisflokksins frá mars 2023 um að ráðist verði í uppsetningu skjólgóðra og upphitaðra biðskýla fyrir strætisvagnafarþega í Reykjavík. Slíkum biðskýlum verði komið fyrir á fjölförnum biðstöðvum í öllum hverfum borgarinnar í því skyni að bæta aðstæður farþega og fjölga viðskiptavinum Strætó.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Varla er með þessu yfirliti verið að segja að búið sé að “dekka” allar þær biðstöðvar sem þarfnast endurgerðar og eða lagfæringar þ.e. þær sem halda áfram að vera í notkun. Um er að ræða 546 stöðvar í heild. Af þeim hafa aðeins verið endurgerðar 35 og aðrar 35 sem hluti af útboði án frekari skýringa. Tæplega 100 eru innan “sérrýmis s.s. borgarlínu eða hafnarsvæðis” hvað svo sem það þýðir. Verða þær biðstöðvar ekki lagaðar? Einar 32 eru sagðar þjóna áfram borgarlínuleiðum sem þýðir hvað, verða þær endurgerðar/lagfærðar? Rúmlega fjörutíu tengjast öðrum verkefnum og það sem þó er skýrt er að 124 detta út í nýju leiðarneti og aðeins 6 þurfa ekki endurgerð. Hvað með restina af þessum 546 stöðvum? Málið er að allt of hægt hefur gengið að endurgera biðstöðvar. Árið 2020 var gerð úttekt á aðgengi að biðstöðvum. Skoðað var yfirborð. Þá kom í ljós að 546 stöðvar voru metnar ófullnægjandi. Fram til þessa dags hafa aðeins verið lagfærðar þær sem eru allra verst farnar bæði aðgengi og yfirborð. Fjölmargar aðrar eru hættulegar vegna viðhaldsskorts. Tafir hafa orðið á borgarlínu og mikilvægt er að allar stöðvar verði þannig úr garði gerðar að þær skapi ekki slysahættu og að fólk, einnig þeir sem er hreyfihamlaðir hafi aðgengi að þeim.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. ágúst 2024 ásamt kæru nr. 84/2024, dags. 8. ágúst 2024, þar sem kært er samþykkt byggingarleyfi fyrir Sólvallagötu 14. Einnig er lagt fram uppfært erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 14. ágúst 2024 ásamt uppfærðri kæru í máli nr. 84/2024, dags. 8. ágúst 2024. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 25. september 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK24080058
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 12. ágúst 2024 ásamt kæru nr. 85/2024, dags. 10. ágúst 2024, þar sem kærð er samþykkt byggingarfulltrúans í Reykjavík 9. júlí 2024 á byggingarleyfi fyrir framkvæmdum á Sólvallagötu 14 í Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 25. september 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK24080091
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 2. september 2024 ásamt kæru nr. 93/2024, dags. 30. ágúst 2024, þar sem kærð er ákvörðun um breytingu á deiliskipulagi lóðanna að Holtsgötu 10 og 12 og Brekkustígs 16. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 7. október 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur frá 2. apríl 2024 um að samþykkja deiliskipulag Holtsgötu nr. 10 og 12 og Brekkustígs nr. 16 í Reykjavík. USK24090013
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. september 2024 ásamt kæru nr. 95/2024, dags. 4. september 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 15. ágúst 2024 um að fella niður áfallnar dagsektir og aðhafast ekki frekar vegna óleyfisframkvæmdar að Grænlandsleið 25. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 9. október 2024. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 19. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 15. ágúst 2024 um að fella niður áfallnar dagsektir og aðhafast ekki frekar vegna framkvæmda á þaki bílskúrs að Grænlandsleið 25. USK24090064
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 14. október 2024 ásamt kæru nr. 120/2024, dags. 11. október 2024, þar sem kærð er ákvörðun um útgáfu byggingarleyfis fyrir Haðarstíg 14, 101 Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 21. október 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 4. júní 2024 um að samþykkja umsókn um leyfi til að hækka þak, byggja kvisti á báðum hliðum, lækka gólf í kjallara og grafa frá parhúsi nr. 14 við Haðarstíg. USK24100141
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 3. desember 2024 ásamt kæru nr. 167/2024, dags. 2. desember 2024, þar sem kærandi fer fram á að Sorphirða Reykjavíkur fjarlægi sorptunnur við hús hans að Langholtsvegi 135. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. desember 2024. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK24120014
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. desember 2024 ásamt kæru nr. 165/2024, dags. 29. nóvember 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa í Reykjavík að aðhafast ekki vegna ábendinga húsfélags Nönnugötu 16 vegna nýrra glugga í íbúð 202 á 2. hæð hússins. USK24120050
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. desember 2024 ásamt kæru nr. 170/2024, dags. 4. desember 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um beitingu þvingunarúrræðis vegna smáhýsis á lóð Hagasel 2. USK24120049
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úrbætur á lýsingu við Rimaskóla, sbr. 29. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 13. nóvember 2024. Einnig er lagður fram tölvupóstur með svari, dags. 11. desember 2024.
Samþykkt. USK24110152
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um friðlýsingarmörk í Grafarvogi, sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 13. nóvember 2024.
Vísað til umsagnar umhverfis og skipulagssviðs skrifstofu umhverfisgæða, deildar náttúru og garða. USK24110150
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um grundvallar endurskoðun á uppbyggingaráformum í Grafarvogi, sbr. 33. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. nóvember 2024. Greinargerð fylgir tillögu.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu Aðalskipulags og loftslagsmál, húsnæðisátakshóps. USK24110156
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um endastöð Strætó við Skúlagötu, sbr. 30 liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 11. desember 2024. Greinargerð fylgir fyrirspurn.
Vísað til umsagnar Strætó bs. USK24120099
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um uppbyggingu við Suður-Mjódd. USK24120135
- Kl. 12:28 víkur Guðmundur Benedikt Friðriksson af fundi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa megnum vonbrigðum með atburðarásina í Suður-Mjódd, sem hafði ömurlegar afleiðingar í för með sér fyrir íbúa að Árskógum. Þegar borgarráð veitti heimildir fyrir uppbyggingunni þann 15. júní 2023 lá skýrt fyrir í gögnum málsins að um þjónustu- og verslunarlóð væri að ræða. Án fyrirvara reis hins vegar á lóðinni stærðarinnar vöruhús sem vitanlega ætti betur heima á athafnasvæði. Ekki síst í ljósi þess að starfseminni munu fylgja hávaðasamir vöruflutningar, að líkindum á öllum tímum sólarhringsins, með tilheyrandi ama fyrir íbúa að Árskógum. Framgangur uppbyggingarinnar í kjölfar lóðaúthlutunar var á engu stigi máls kynntur skipulagsráði eða borgarráði. Málið var unnið áfram á skrifstofu borgarstjóra í samstarfi við byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja verulega ámælisvert að borgarstjóri taki til sín einhliða ákvörðunarvald með þessum hætti. Ljóst er að hver sem lausn málsins verður, mun niðurstaðan hafa verulegan kostnað í för með sér fyrir borgarsjóð, enda ber borgin óskipta ábyrgð á skipulagsslysinu. Málið allt er falleinkunn fyrir bæði stjórnsýslu borgarinnar og borgarstjóra.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Stórt vöruhús hefur nú verið reist steinsnar frá fjölbýlishúsi í Breiðholti. Íbúar í húsinu eru eðlilega miður sín með nýbygginguna því við þeim blasir 13 metra hár stálveggur vöruhúss sem blasir við sé horft út um stofuglugga íbúa blokkarinnar. Þetta mál þarf að rannsaka ofan í kjölinn af óháðum aðilum. Fulltrúi Flokks fólksins vill að húsið verði rifið eða breytt þannig að íbúar blokkarinnar verði sáttir. Ljóst er að hér mun borgarsjóður eiga eftir að blæða. Þetta mál eru mistök fyrst og fremst borgarinnar sem hefur skipulagsvaldið og getur sett inn í samninga kvaðir sem tryggja að svona lagað geti ekki gerst. Málið var ekki lagt fyrir borgarfulltrúa minnihlutans eftir því sem það tók breytingum og kom þessi útkoma því eins og reiðarslag. Lóðarhafar skipulögðu lóðina í friði og ró frá afskiptum borgaryfirvalda. Lóðin hefur gengið kaupum og sölum frá úthlutun á föstu verði, var upphaflega íbúðalóð með 7 litlum íbúðablokkum, síðan 4 lóðir með litlum þjónustu og verslunareiningum en er nú ein löng lóð með vöruhúsi og hefur lóðarhafi getað gert allt sem þeim sýndist án minnstu gagnrýnnar hugsunar eða að gæta hagsmuna nágranna enda skipulagsheimildir óvenju víðar. Íbúar voru grunlausir um hvernig endaniðurstaðan yrði.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að gert verði við svonefnda snjallgangbraut yfir Neshaga við Melaskóla. Búnaður gangbrautarinnar hefur ekki virkað sem skyldi um skeið.
Frestað. USK24120186
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir því að úrbætur verði gerðar á lýsingu á göngustíg milli Úlfarsbrautar og Gerðarbrunns. Á þessum stað liggur stígurinn um tröppur í brattri brekku og er því full þörf á góðri lýsingu þar. Ljósastaur er við stíginn í brekkunni en á honum er enginn lampi og hann því óvirkur.
Frestað. USK24120185
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir greinargerð um fyrirkomulag innheimtu hjá Bílastæðasjóði. Eiga þær kvartanir við rök að styðjast að ef greiðandi stöðugjalds hafi ekki aðgang að heimabanka, sé honum ekki gefinn kostur á að ljúka málinu með því að greiða höfuðstól (byrjunarupphæð) umræddrar kröfu, heldur sé krafan send til innheimtufyrirtækis, sem sendi þá greiðandanum innheimtukröfu með álagi? USK24120184
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að umhverfis- og skipulagssvið leitist við að afgreiða óafgreidd mál Flokks fólksins á umhverfis og skipulagssviði eins og unnt er í janúar þar sem fulltrúi Flokks fólksins mun halda brátt til annarra starfa. USK24120176
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um eftirfarandi atriði um mál vöruhússins í Álfabakka 2, Suður – Mjódd: Lýsingu á ákvarðanatökuferli málsins frá upphafi, Tímalínu málsins, frá upphafi til loka. Upplýsingar um regluverkið og framkvæmd þess, með áherslu á hvort farið hafi verið eftir gildandi lögum og reglum. Upplýsingar um eftirlitsferla, með sérstakri áherslu á hvernig staðið var að eftirliti við byggingu skemmunnar. Athugasemda íbúa og hvernig unnið var úr þeim athugasemdum. Einnig er spurt hvort umferðarmál hafi verið skoðuð í kringum byggingu vöruhússins, t.d. hvernig flutningum að og frá húsinu yrði háttað? Greinargerð fylgir fyrirspurn USK24120175
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Áheyrnarfulltrúi Flokks Fólksins leggur fram eftirfarandi fyrirspurn varðandi fyrirhugaða uppbyggingu húsnæðisbyggðar í Grafarvogi: Hvernig hefur samráði við íbúa í Grafarvogi verið háttað? Hvar er raunverulegt samráð? Borgin státar sig af íbúalýðræði í fjölmiðlum, en metfjöldi athugasemda í Skipulagsgátt og fjölmennasti íbúafundur í manna minnum benda til annars. Hefur Esja verið beðin um að vinna áfram tillögur að Sóleyjatúni? Hvernig er það eðlilegt þegar ekki hefur verið tekið ákvörðun um deiliskipulag? Esja arkitektar leggja til byggingu á ýmis konar almannarýmum? Hver verður rekstraraðili að þeim? sbr. býflugnabú, samkomuhús og smíðaverkstæði? Gengið á græn svæði: Telur borgin það forsvaranlegt að ganga á græn svæði þvert á viðvaranir sérfræðinga um heilsufarslegar afleiðingar og áhrif á líðan íbúa? Brot á fyrri loforðum: Árið 2003 var lofað að skilja eftir grænt útivistarsvæði á Sóleyjatúni. Hvað varð um það loforð? Af hverju hefur svæðið ekki verið gert að aðlaðandi útivistarsvæði? Kostnaðarmat vegna stofnlagna: Er borgin meðvitað um stofnlagnir undir Sóleyjatúni og þann kostnað sem fylgir flutningi þeirra ef áform um uppbyggingu verða að veruleika? Staða Sóleyjartúns: Hvar er málið statt í ferlinu? Öryggi barna: Hvernig á að tryggja öryggi skólabarna með framkvæmdum sem liggja þétt upp við einn fjölmennasta grunnskóla landsins? Einnig er spurt hvort hægt sé að réttlæta svo fá bílastæði miða við íbúðir í ljósi þess að víst má telja að bílastæðavandi muni skapa mögulega hættu fyrir gangandi vegfarendur? Notkun á húsnæði Isavia: Þegar Isavia flytur út úr húsnæðinu við túnið, er spurt hvort ekki verði þá skynsamlegt að nýta það sem félagsmiðstöð fyrir unglinga eða leikskóla? Þannig mætti nýta túnið betur sem útivistarsvæði og koma til móts við þarfir barna í hverfinu. Isavia húsið verður friðað á næstu 2-3 árum. Skuggavarp og áhrif á íbúa: Skuggavarp á Sóleyjatúni er þegar mikið og hefur áhrif á útsýni og sól í görðum íbúa hinum megin við götuna. Ætti ekki aðeins að leyfa lágreista byggð á svæðinu ef byggja á yfirhöfuð? Hvernig ætlar borgin að tryggja jafnvægi milli þróunar í miðborg og úthverfum? Af hverju þarf að vera sama þéttingarstefnan í úthverfum og í miðborginni? Íbúar hafa lýst sig andsnúna svo mikilli þéttingu vegna skuggavarps og umferðarþunga sem af henni leiðir. Upplýsingagjöf: Óskað er upplýsinga um af hverju íbúar hafa ekki verið upplýstir meira en raun ber vitni. Það er mat íbúa að upplýsingagjöf hafi verið léleg og vinnubrögð óskýr. Þetta kom berlega í ljós þegar ný tillaga að deiliskipulagi fyrir Mjódd var kynnt? Hvernig áttu íbúar að geta áttað sig á svona ferlum? Greinargerð fylgir fyrirspurn. USK24120177
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:01
Dóra Björt Guðjónsdóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Friðjón R. Friðjónsson Hjálmar Sveinsson
Hildur Björnsdóttir Kjartan Magnússon
Pawel Bartoszek
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 18. desember 2024