Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 319

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2024, miðvikudaginn 18. september, kl. 9:08 var haldinn 319. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Dóra Björt Guðjónsdóttir Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Friðjón R Friðjónsson, Pawel Bartoszek og áheyrnarfulltrúinn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Aðalsteinn Haukur Sverrisson og  áheyrnarfulltrúinn Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Borghildur Sölvey Sturludóttir, Brynjar Þór Jónasson, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson og Björg Ósk Gunnarsdóttir, Hólmfríður Frostadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á kjarnasamfélagi- Cohousing
    Simon Joscha Flender frá Kjarnasamfélagi Reykjavíkur tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 09.24 tekur Björn GÍslasson sæti á fundinum
    -    Kl. 9.45 víkur Aðalsteinn Haukur Sverrisson af fundi
    -    Kl. 9.45 tekur Unnur Þöll Benediktsdóttir USK22120084

    Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við þökkum áhugaverða kynningu á kjarnasamfélögum, eða "co-living" sem hafa verið talsvert til umræðu að undanförnu og eru dæmi um athyglisverða lausn sem gæti aukið fjölbreytnina á húsnæðismarkaðnum.

  2. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 10. september 2024. USK24070166

    Fylgigögn

  3. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 12. september 2024. USK22120094

    Fylgigögn

  4. Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigríðar S. Sigþórsdóttur, dags. 4. janúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 42 við Vesturgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að hækka húsið um eina hæð, stækka byggingarreit vegna byggingu lyftuhúss á austurhlið, bæta við svölum á vesturhlið hússins á 2. og 3. hæð og koma fyrir leik- og dvalarsvæði fyrir íbúa á lóð, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Basalt arkitekta, dags. 27. júní 2024. Erindinu var grenndarkynnt frá 23. júlí 2024 til og með 21. ágúst 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Ólafur Baldvin Jónsson, Guðlaug Erla Jónsdóttir og Jón Páll Baldvinsson, dags. 8. ágúst 2024, og Húsfélagið Vesturgötu 40 f.h. íbúa, dags. 21. ágúst 2024. Einnig er lögð fram ábending Veitna, dags. 31. júlí 2024. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. september 2024.
    frestað USK24010044

  5. Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn A arkitekta ehf., dags. 14. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Starhaga-Þormóðsstaðavegar vegna lóðar nr. 11 við Starhaga. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er rýmkaður og stækkaður, en gert er ráð fyrir að byggingar rúmi átta deilda leikskóla, lágmarksbyggingarmagn er hækkað, lóð er stækkuð til suðausturs til að auka við útileiksvæði og lóðamörk eru dregin til baka frá hjólastíg um 1 m, samkvæmt uppdr. A arkitekta, dags. 12. apríl 2024. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. júní 2024 til og með 26. júlí 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Álfrún Petra Baldursdóttir og Árni Freyr Magnússon, dags. 24. júlí 2024, Baldur Þórhallsson og Felix Bergsson, dags. 25. júlí 2024, og Guðrún Halla Jóhannsdóttir, dags. 27. júlí 2024. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. september 2024.
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.

    Valný Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24050167

    Fylgigögn

  6. Lagt fram málskot Gísla Þrastarsonar, framkvæmdarstjóra, f.h. Eddufells 2-6, fasteignafélags ehf., dags. 31. ágúst 2024, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 16. maí 2024 á fyrirspurn um breytingu á notkun 2. hæðar hússins á lóð nr. 2-6 við Eddufell úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir og útlitsmyndir. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. maí 2024.
    Niðurstaða skipulagsfulltrúa sbr. umsögn, dags. 16. maí 2024, staðfest með 4 atkvæðum Samfylkingar, Viðreisnar, Framsóknar og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins

    -    Kl. 9.59 tekur Ólöf Örvarsdóttir sviðstjóri sæti á fundinum. USK24090093

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á húsnæðisátaki á lóðum í Grafarvogi.
    Hjördís Sóley Sigurðardóttir teymisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram bókun sem hefur verið færð í trúnaðarbók
    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram bókun sem hefur verið færð í trúnaðarbók

    -    Kl. 11.02 víkur Brynjar Þór Jónasson af fundi. USK24090078

  8. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. september 2024 ásamt kæru nr. 95/2024, dags. 4. september 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 15. ágúst 2024 um að fella niður áfallnar dagsektir og aðhafast ekki frekar vegna óleyfisframkvæmdar að Grænlandsleið 25. USK24090064

    Fylgigögn

  9. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. september 2024 ásamt kæru nr. 96/2024, dags. 2. september 2024, þar sem kærð er ákvörðun um breytingu á deiliskipulagi Laugavegar 1. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 10. september 2024. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK24090075

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sbr. 17. liður fundargerðar borgarráðs 22. ágúst 2024. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 9. september 2024.
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn þremur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins. MSS24080080

    Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillagan er felld enda eru ákvarðanir um gjaldskyldu að jafnaði teknar með vísan í verklag sem varðar talningu og aðgengi að bílastæðum. Ber auk þess að nefna að gjaldsvæði P4 er eingöngu notað innan lóða, þar sem Bílastæðasjóður sér um innheimtu á gjaldi fyrir hönd þriðja aðila.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um gangstéttaviðgerðir við Laugarnesveg, sbr. 25 liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 10. apríl 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 9. september 2024.
    Vísað inn í vinnu við gerð ástandsmats skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK24040026

    Fylgigögn

  12. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks um gangstéttaviðgerðir við Kleppsveg, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 10. apríl 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 9. september 2024.
    Vísað inn í vinnu við gerð ástandsmats skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK24040025

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 49. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 9. september 2024 USK24080125

    Áheyrnarfulltrúi flokkfólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskað upplýsinga um hvers vegna hægri aðrein til vesturs á gatnamótum Háaleitisbrautar og Bústaðavegar hafi verið fjarlægð. Einnig hvort fleiri aðreinar hafi verið fjarlægðar og hvort það sé á stefnuskránni að fjarlægja fleiri aðreinar í borgarlandinu? Í svari kemur fram að farið var í umræddar aðgerðir samhliða framkvæmdum á hjólastíg og eiga þær að stytta leiðir og auka öryggi. Í svari má lesa að hér sé um öryggismál að ræða. Flokkur fólksins styður allt sem eykur öryggi en hefur ákveðnar efasemdir um að þetta sé leiðin. Réttast hefði verið að byrja á því að kanna hvaða áhrif slíkar aðgerðir hafa á flæði umferðar. Skoða mætti í fleiri tilvikum umfangsminni lagfæringar sem  bæta aðstæður gangandi og hjólandi vegfarenda.  

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 56. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 10. september 2024. USK24080112

    Áheyrnarfulltrúi flokkfólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Öryggisatriði er svar skipulagsyfirvalda við öllum fyrirspurnum Flokks fólksins um hraðahindranir en spurt var af hverju skipulagsyfirvöld hafa sett hraðahindranir rétt þegar komið er að þverun þar sem hringtorg er í beinu framhaldi og því ekki annað hægt en að draga úr hraða.  Einnig af hverju hraðahindranir eru settar strax í kjölfar gönguþverunar en varla hafa þær hraðahindranir mikið vægi  (sbr. á Borgarvegi og á Sundlaugavegi og á Ánanaustum)? Loks, af hverju hraðahindranir (nokkrar) á Strandveg, 50 km gata sem liggur í sveigjum sem veldur því óhjákvæmilega að ökumenn verða að draga úr hraða.  Hraðahindrun er vissulega öryggisatriði en velja þarf staðsetningu þeirra af skynsemi og setja þar sem þær hafa tilgang og eru rökréttar.  Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta svar fyrirsláttur. Það kemur meira að segja fram að markmiðið sé að minnka umferð og umfang.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 50. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 6. september 2024. USK24080122

    Áheyrnarfulltrúi flokkfólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Málið varðar Brákarborg. Spurt var hvort verið sé með skipulögðum hætti að tefja rennsli vatns af þökum niður í frárennsliskerfi með því að setja torfþak á mannvirki. Benda má á  að það að setja torfþak þyngir þakið mikið og ekki er að sjá að hönnuðir geri sér grein fyrir því. Regnvatn er einnig þungt og það flæðir ekki hratt eftir láréttu torfi. Torfþök verða því að mýri ef þau eru stór og með sára lítinn þakhalla. Því mætti ætla að hugsanlegur tilgangur væri að hægja á rennsli regnvatns í fráveitu. Þessu er ekki svarað. Hér má benda á að torfþök fyrri alda lágu yfir leitt  á þriggja ása þaki þar sem mikill halli var á hliðum. Þau losuðu sig við regnvatnið. Torfþakið á Brákarborg er vonandi víti til varnaðar. Það skiptir máli að hugsa fyrst og framkvæma svo. Einnig var spurt:  ,,,Eru einhverjar sérstakar ástæður fyrir því að skipulagsyfirvöld hafa talið torfþök eftirsóknarverð? “  Því er ekki svarað. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram ákveðnar fyrirspurnir og væntir þess að fá svör við þeim. Of oft er svar bara eitthvað út í loftið.

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 53. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 6. september 2024. USK24080117

    Áheyrnarfulltrúi flokkfólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Svarið við fyrirspurn Flokks fólksins um malbik er ekki beint svar heldur er Verklýsing vegna gatnagerðar og lagna á Ártúnshöfða þar sem fulltrúa Flokks fólksins er bent á hvaða kröfur borgin gerir til undirlagsmalbiks og yfirlagsmalbiks”. Svona verklýsing segir auðvitað ekki neitt ef ekki er farið eftir henni eða ef eftirlit með verkinu er ófullnægjandi. Öll vitum við að margt hefur farið úrskeiðis í þessum efnum í Reykjavík og ættu skipulagsyfirvöld að reyna að fóta sig í hvernig hægt er að bæta ástandið. Kannski þarf að auka kröfur til verktaka og hressa upp á eftirlitið? Í það minnsta er víst að ekki hjálpar að kenna nagladekkjum um allt þar sem þau eru kannski ekki eins stór skaðvaldur og látið er að liggja. Benda má á það sem kemur fram í fyrirspurninni: ,,Dæmi hafa einnig verið um að malbikið sé of þunnt en þegar bæði undirlag og malbik eru of þunn þá skríður malbikið hreinlega undan þunganum. Þetta má vel sjá á sérreinum strætó og ekki eru strætisvagnar á nagladekkjum”  Aðrir bílar aka ekki um sérreinarnar.

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 54. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 27. ágúst 2024. USK24080111

    Áheyrnarfulltrúi flokkfólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskaði skýringa á mistökum sem gerð voru á þaki leikskólans Brákarborgar en þar var lagt torfþak sem reyndist þyngra en reiknað var með og tilgreint var á teikningum og leiddi til þess að torfþakið varð eiginlega að mýri. Fyrirspurnin var lögð fram áður en samþykkt var í borgarráði að að fela Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar að ráðast í heildarúttekt á ferlinu í kringum byggingu leikskólans Brákaborgar í ljósi mögulegra hönnunar- og eða framkvæmdagalla. Það hefur auðvitað vakið athygli að enginn sem að þessu máli kom virðist vita hver ber ábyrgðina. Hver höndin var upp á móti annarri ef svo má segja. Það kemur á óvart  hversu mikið reiðileysi er í þessum málum og vandræðagangur þegar eitthvað fer úrskeiðis. Til að fá einhvern botn í þetta mál dugar ekkert minna en  heildarúttekt á ferlinu.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram tillaga íbúaráðs um umferðaröryggi við Dalbraut og Sæbraut, sbr. 5. liður fundargerðar íbúaráðs Laugardals dags. 9. september 2024.
    Vísað til mats og meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar MSS24090009

    Áheyrnarfulltrúi flokkfólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins vill vekja athygli á samþykkt  íbúaráðs Laugardals um umferðaröryggi við Dalbraut og Sæbraut - 2024 sbr. 5. liður fundargerðar íbúaráðs Laugardals dags. 9. september 2024. Kallað er eftir “að umhverfis- og skipulagsráðs bæti umferðaröryggi bíla með beygjuljósi þegar keyrt er upp Dalbraut að Sundagörðum og beygt til vinstri inn á Sæbraut. Þarna hefur fólk oft komist í krappan þegar stór ökutæki byrgja ökumönnum sýn á umferð úr gagnstæðri átt. Ökumenn sem keyra frá Sundagörðum til suðurs yfir gatnamótin og inn á Dalbraut hindra sýn á aðra sem koma samsíða og eru á leið beint yfir, stundum á töluverðum hraða sem gerir fyrrgreinda vinstri beygju hættulega” eins og segir í samþykktinni.

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju tillaga Sjálfstæðisflokksins um lagfæringu og endurnýjun gangstétta í Vogahverfi, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 11. september 2024.
    Vísað til mats og meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds USK24090131

     

  20. Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði um gangbraut við Síðumúla, sbr. 8. liður fundargerðar skóla- og frístundaráðs 9. september 2024.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK24090151

    Fylgigögn

  21. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um byggingarmagn skv. deiliskipulagi Hlíðarenda sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 11. september 2024.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa USK24090133

  22. Lögð fram fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um afgreiðslu byggingarleyfis við Jöfursbás 1, sbr. 25. liður fundargerðar borgarráðs 9. 5. september 2024.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, byggingarfulltrúa. MSS24090023

    -    Kl. 11:12 víkur Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir af fundi
    -    Kl. 11:12 víkur Guðmundur Benedikt Friðriksson af fundi
    -    Kl. 11:12 víkur Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir af fundi 

    Fylgigögn

  23. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkir að skipulagsvinnu og öðrum undirbúningi við endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar verði hraðað í því skyni að auka umferðaröryggi, bæta umferðarflæði og draga úr mengun. Með flýtingunni verði stefnt að því að framkvæmdum verði lokið við gatnamótin árið 2026 í stað 2030 eins og nú er miðað við.

    Frestað USK24090229

  24. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að Reykjavíkurborg gangi til samninga við Vegagerðina um að vinstri beygju, inn á og út af Reykjanesbraut við Bústaðaveg, verði lokað fyrir almennri bílaumferð á álagstímum að strætisvögnum undanskildum. Árangur af tilrauninni verði metinn næsta vor.

    Frestað USK24090230

  25. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að ráðist verði í lagfæringu og/eða endurnýjun gangstétta á köflum í Stekkjahverfi. Víða í hverfinu eru gangstéttir og göngustígar eyddar, sprungnar og ójafnar. Meðal annars er um að ræða kafla við Skriðustekk, Lambastekk, Urðarstekk, Fremristekk, Gilsárstekk, Geitastekk, Fornastekk og Grænastekk.

    Frestað USK24090232

  26. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að úrbætur verði gerðar á gatnalýsingu við Hringbraut. Ljós logar nú ekki á um sextíu ljósastaurum á kaflanum milli Melatorgs og Hlíðarfótar. Er bæði um að ræða ljósastaura við götuna og göngu- og hjólastíga meðfram henni.

    Frestað USK24090231

  27. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að farið verði í sérstakar aðgerðir í samráði við Veitur og Íslandshótel við að tryggja gönguleið barna fram hjá byggingarsvæði á Sigtúnsreit. Þar keyra þungavinnuvélar og börnin þurfa að ganga/hjóla að tón- og dansskólunum að Engjateigi 1. Enda þótt Íslandshótel og Veitur standi fyrir mestum framkvæmdum þarna stendur upp á borgina að tryggja gönguleið yfir Sigtún, bæði vestan- og austanmegin við byggingasvæðið. Við austur-endann er upphækkuð hraðahindrun yfir götuna sem er tilvalið að breyta í gangbraut með takmörkuðum tilkostnaði.  Gönguleiðin er í dag hættuleg en þegar skammdegið fellur á stóreykst hættan fyrir börnin að ganga að skólunum að Engjateigi 1.

    Frestað USK24090228

  28. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að farið verði í gangstéttarviðgerðir í Jafnaseli og víðar í efra Breiðholti. Á köflum er gangstéttin í Jafnaseli hættuleg, öll sprungin og holótt og má telja mildi að enginn hafi slasað sig á göngu, hvað hlaupum eða á hjóli. Gangstéttabútar í Jafnaseli eru sumir eins og torfæra. Fulltrúa Flokks fólksins finnst reyndar stórskrýtið að það þurfi að koma með tillögur um viðhald einstakra gangstétta? Á ekki að vera  stöðugt viðhald í gangi?

    Frestað USK24090227

Fundi slitið kl. 11:08

Dóra Björt Guðjónsdóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Hjálmar Sveinsson Kjartan Magnússon

Friðjón R. Friðjónsson Unnur Þöll Benediktsdóttir

Pawel Bartoszek

PDF útgáfa fundargerðar
Umhverfis- og skipulagsráð 18.09.2024 - prentvæn útgáfa