Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 297

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2024, miðvikudaginn 7. febrúar, kl. 9:10 var haldinn 297. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Friðjón R. Friðjónsson, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Pawel Bartoszek og áheyrnarfulltrúarnir Halldóra Hafsteinsdóttir og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Borghildur Sölvey Sturludóttir, Brynjar Þór Jónsson, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 2. febrúar 2024 þar sem samþykkt var að Halldóra Hafsteinsdóttir taki sæti sem áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og skipulagsráði í stað Ástu Þórdísar Skjalddal Guðjónsdóttur. MSS22060046

    Fylgigögn

  2. Lagðar fram til upplýsinga, verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar. MSS23090170

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins var með athugasemdir við tillöguna sem sneru að 3. gr. þar sem fram kom að ekki mætti hafa lengur formála að fyrirspurnum. Flokki fólksins finnst það ómögulegt enda er stundum nauðsynlegt að hafa nokkur orð um af hverju verið er að leggja fram ákveðna fyrirspurn. Mikilvægt er að hafa sveigjanleika en ekki njörva niður hvert einasta atriði. Með því að loka fyrir möguleika á stuttum útskýringum með fyrirspurnum eða tillögum er ekki verið að einfalda neitt. Rök meirihlutans eru veikburða og er vísað til skýrleika.  Stuttur formáli er einmitt liður í að gera fyrirspurn skýra  og kalla varla á miklar tafir á afgreiðslu málsins eins og meirihlutinn fullyrðir.  Ef horft er sérstaklega til umhverfis- og skipulagsráð eru reglur um verklag mála ekki alltaf í samræmi við sambærilegar reglur í öðrum málum. Í umhverfis- og skipulagsráði er meiri ferköntun ef svo má að orði komast. Bókanir eru frekar ritskoðaðar og jafnvel er minnihlutafulltrúum meinað að bóka þar sem það er leyft í öðrum ráðum. Dæmi um þetta er að minnihlutafulltrúum er bannað að bóka við mál sem er framvísað en slíkt bann  á ekki við í öðrum ráðum.
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 1. febrúar 2024. USK23010150

    Fylgigögn

  4. Lögð fram drög að yfirliti verkefnis og hlutverks vinnuhóps um yfirferð umsókna til Húsverndarsjóðs Reykjavíkurborgar 2024. Þar kemur fram að Sigrún Reynisdóttir frá embætti byggingarfulltrúa, Sólveig Sigurðardóttir frá embætti skipulagsfulltrúa og Bjarki Þór Wíum frá embætti borgarminjavarðar skipi vinnuhópinn auk tveggja fulltrúa umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig eru lögð fram drög að auglýsingatexta um styrk úr Húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar 2024. Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð skipi tvo fulltrúa í hópinn.
    Samþykkt að Aðalsteinn Haukur Sverrisson og Kjartan Magnússon séu skipaðir í vinnuhópinn. USK24020007

  5. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingafulltrúa, dags. 30. janúar 2024, ásamt leiðréttri fundargerð, dags. 16. janúar 2024. USK22120096

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á skýrslu um félagslegt landslag í Reykjavík.

    Kolbeinn Stefánsson hjá Háskóla Íslands og Ævar Harðarson deildarstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22020030

    Umhverfis- og skipulagsráð ásamt áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Umhverfis- og skipulagssviði er falið að greina og koma með tillögur um hvernig við náum enn frekar fram félagslegri sjálfbærni með skýrsluna um félagslegt landslag í Reykjavík að leiðarljósi, sér í lagi við gerð hverfisskipulags.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi skýrsla staðfestir að ójöfnuður og fátækt hefur aukist í Reykjavík. Um 100 manns eru heimilislausir. Þetta sýna einnig nýlegar niðurstöður Gallup. Um 14% landsmanna áttu að eigin sögn ekki fyrir jólahaldinu og eru það 5% fleiri en árið áður. Hér er um ungt fólks að ræða, barnafjölskyldur. Staðan er misjöfn eftir hverfum. Aðskilnaður í búsetu hátekjufólks og lágtekjufólks hefur þannig aukist innan Reykjavíkur. Í Efra Breiðholti, Fellahverfi sem dæmi, búa langflestir innflytjendur og fólk sem glímir við erfiðan fjárhag, fátækt fólk. Þessi þróun hófst fyrir mörgum árum. Félagsleg blöndun mistókst í þessum hverfum. Til stóð hjá síðasta meirihluta að blanda saman húsnæði og atvinnumöguleikum. Það hefur ekki tekist sem skyldi. Langt er á milli heimilis og atvinnu hjá flestum sem skapar mikla umferð í borginni. Ef borið er niður í skýrsluna þá eru fimm hverfi sem standa verr hvað varðar lágtekjuhlutföll eða vægi hópa sem búa við auknar líkur á fátækt. Lágtekjuhlutföllin eru hæst í skólahverfum Austur- og Vesturbæjarskóla en Fellaskólahverfi, Hólabrekkuskólahverfi, Breiðholts- skólahverfi eru með há hlutföll barna með lögheimili hjá einstæðum foreldrum.
     

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á ársskýrslu byggingarfulltrúa 2023. USK24010350

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í ársskýrslunni er það staðfest að ekki nóg hafi verið byggt síðustu ár. Mest var byggt 2018 þegar bygging hófst á 1.417 nýjum íbúðum.  Verulegur samdráttur er í útgáfu byggingarleyfa síðustu ár. Fæst voru byggingarleyfin árið 2023 og hafa þau ekki verið færri síðan  2013. Þetta staðfestir að ekki hefur verið nægjanlega vel haldið á spilunum þegar kemur að byggingu nýrra íbúða. Þetta staðfestir einnig að mikill íbúðaskortur er fyrirsjáanlegur á næstunni. Fjölbýlishús eru ríkjandi og sýnt er að aðferðin,  að fólk geti byggi sjálft yfir sig er hverfandi. Þar með hverfur einn þáttur úr kerfinu sem gat haldið niðri fasteignaverði. Nú ráða verktakafyrirtæki verði á húsum. Mikilvægt er að  lóðarhafar undirgangist skilyrði um að byggja á lóðum innan ákveðins tíma ella skili þeim. Því miður hafa einhverjir lóðareigendur litið  á lóðirnar sem fjárfestingu og eina takmark þeirra er að bíða þar til þeir fá hærra verð fyrir lóðina. Slíkt atferli gengur ekki nú þegar svo erfitt árar á húsnæðismarkaði auk þess að ekki gengur að líta á lóðir sem einhvers konar fjárfestingarvöru því það fer beint út  í verðlag íbúða og veldur miklum kostnaði í samfélaginu. Uppbyggingu húsnæðis verður að taka alvarlega í þessum mikla húsnæðisskorti sem  nú ríkir í borginni.  
     

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á áætluðum framkvæmdum við Hlemm 2024.

    Bjarni Rúnar Ingvarsson og Edda Ívarsdóttir, deildarstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK22030182

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirhugaðar framkvæmdir á Hlemmi sem eru framhald af vellukkaðri endurgerð svæðisins sem hófst með endurgerð Laugarvegar milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs sem og nyrsta hluta Rauðarárstígs. Styttan Klyfjahestur er færð til innan svæðis og fær aukinn sess. Allt yfirborð fær andlitslyftingu sem mun nýtast hinum fjölmörgum gangandi vegfarendum sem heimsækja Hlemm á degi hverjum. Stefnt er að gróðursetningu stærri trjáa til að gefa torginu grænna yfirbragð. Gera á sögunni um þvottakonurnar og Rauðarárlækinn sem hlemmurinn var settur ofan á hátt undir höfði í hönnun. Um er að ræða lykilframkvæmd sem undirbýr komu Borgarlínu á svæðið. Við þökkum fyrir kynninguna og hlökkum til þess að sjá þessi áform verða að veruleika.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikil vinna er eftir með tilheyrandi ónæði  fyrir íbúa við Hlemm. Bílar munu verða bannaðir á þessu svæði í óþökk margra. Íbúar við Hlemm hafa átt erfitt með að finna bílum sínum stað yfir nóttina. Flokkur fólksins lagði til fyrir skemmstu að íbúar geti fengið að nota bílastæði fyrir enda lögreglustöðvarinnar, Rauðarárstígmegin  utan vinnutíma á meðan á framkvæmdum stendur enda standa þau stæði ella auð. Þetta var áður leyft.  Hér gætu skipulagsyfirvöld beitt sér.  Ef hægt er liðka fyrir íbúum ætti að sjálfsögðu að gera það. Öll hönnun miðar við borgarlínu sem nú liggur fyrir að mun tefjast um nokkur ár. Í kringum þetta svæði eru fáar stórar matvöruverslanir og hafa íbúar við Hlemm kvartað yfir að geta ekki ekið matvælum sínum og stærri vörum upp að híbýlum sínum. Flokki fólksins finnst of lítið tillit tekið til íbúa í nágrenninu og einnig er þeim sem óska eftir að koma akandi gert mjög erfitt fyrir. Óttast er að afar einsleitur hópur mun sækja þennan blett, kannski helst ferðamenn. Áhyggjur eru af kostnaði við þessa framkvæmd. Svolítið er eins og ekkert sé til sparað sem ekki er skynsamlegt ef horft er á fjárhagsstöðu borgarinnar.
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram tillaga skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar þar sem lagt er til að umhverfis- og samgönguráð samþykki eftirfarandi breytingar á strætóstöðvum í nágrenni Hlemms;
    • Að strætóstöð á Laugavegi á leið vestur við Katrínartún verði færð austur fyrir aðrein að Katrínartúni.
    • Að tvær nýjar strætóstöðvar, ein í hvora akstursátt, verði settar upp í Borgartúni nálægt gatnamótum við Bríetartún.
    • Að tvær nýjar strætóstöðvar, ein í hvora akstursátt, verði settar upp á Snorrabraut nálægt gatnamótum við Laugaveg.
    • Að ein ný strætóstöð verði sett upp á Sóleyjargötu til norðurs, nálægt gatnamótum við Njarðargötu.
    Einnig lögð fram kynning á breytingu á leiðarneti Strætó í tengslum við framkvæmdir á Hlemmi.
    Samþykkt.

    Ragnheiður Einarsdóttir og Sólrún Svava Skúladóttir frá Strætó og Bjarni Rúnar Ingvarsson og Edda Ívarsdóttir, deildarstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK22030182

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Skipulagsyfirvöld leggja til tímabundna endastöð Strætó við Skúlagötu vegna flutnings frá Hlemmi. Legið hefur fyrir að finna þurfi nýjan stað fyrir endastöð strætisvagna í staðinn fyrir núverandi endastöð og skiptistöð við Hlemm. Fyrirliggjandi staðsetning við Skúlagötu mun hafa ónæði í för með sér fyrir nærliggjandi íbúa. Óheppilegt er að mikil óvissa ríki um hversu lengi umrædd endastöð muni vera við Skúlagötu. Hér gætu verið um nokkur ár að ræða eða þar til fyrsti áfangi borgarlínu er kominn í gagnið. Fjöldi athugasemda hefur borist, einna helst er bent á óæskilega staðsetningu fyrir strætóstöð í íbúðahverfi og nálægð við svefnherbergi íbúa. Mikil umferð strætisvagna með hljóð og loftmengun hlýtur að teljast ógn við heilsu og friðhelgi íbúa. Bílastæðið sé einnig fullnýtt alla daga. Æskilegra væri að finna annan stað fjær íbúðabyggð, til dæmis vestasta hluta Miðbakkans. Flokkur fólksins tekur undir þetta. Mótvægisaðgerðir mega sín lítils því erfitt er t.d. að koma upp frekari hljóðvörnum umfram þær sem eru í dag án þess að ganga á útsýni íbúa til norðurs. Fulltrúa Flokks fólksins finnst ekki duga að hafa samráð aðeins með því að auglýsa tillöguna heldur væri nær að hafa íbúafund og hlusta á það sem fólkið segir. 
     

    Fylgigögn

  10. Lagt fram málskot Soffíu Halldórsdóttur, dags. 20. janúar 2023, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 16. nóvember 2023 um að setja tvö timburhús og tvo bílskúra á lóð nr. 10 við Bústaðablett. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. nóvember 2023.
    Frestað.

    Hrönn Valdimarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24010312
     

  11. Lögð fram fundargerð frá fundi stjórnar Reykjanesfólkvangs, dags. 22. janúar 2024.

    Þórólfur Jónsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24020008

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúa Flokks fólksins finnst vanta rökstuðning fyrir af hverju Reykjavík vill segja sig úr Reykjanesfólkvanginum. Það er svo sem kannski engin ástæða fyrir Reykjavík að taka þátt í þessu samstarfi þar sem fólkvangurinn er fjarri Reykjavík en Reykjanesfólkvangur er á sunnanverðum Reykjanesskaga, nær milli Vesturháls í vestri og að sýslumörkum Árnessýslu í austri og niður að sjó. Norðan megin liggja mörk hans meðfram Heiðmörk og Bláfjallafólkvangi. Að honum standa 7 sveitarfélög; Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Grindavík og Reykjanesbær.
     

    Fylgigögn

  12. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 17. nóvember 2023 ásamt kæru nr. 130/2023, dags. 16. nóvember 2023, þar sem kærð er ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna lóðarinnar nr. 30 við Hraunteig. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 2. janúar 2024. USK23110206

    Fylgigögn

  13. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 11. janúar 2024 ásamt kæru nr. 3/2024 ,dags. 5. janúar 2024, þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar vegna umferðarréttar íbúa hússins að Bergþórugötu 33 um stíg sem liggur meðfram húsinu. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 2. febrúar 2024. USK24010123

    Fylgigögn

  14. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 19. janúar 2024 ásamt kæru nr. 8/2024, dags. 19. janúar 2024, þar sem kærð er deiliskipulagsbreyting að Almannadal 9, snúningur á húsi innan sameiginlegrar lóðar húsa nr. 9-15. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 29. janúar 2024. USK24010201

    Fylgigögn

  15. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 26. janúar 2024 ásamt kæru nr. 10/2024, dags. 19. janúar 2024. þar sem kærð er álagning hluta fasteignagjalds fyrir Móvað 15, gjald vegna sorptunnu fyrir lífúrgang (matarleifar) þ.s. kærandi er með jarðgerðartunnu (moltutunnu) í garðinu fyrir þann úrgang. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 1. febrúar 2024. USK24010292

    Fylgigögn

  16. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 30. nóvember 2022 ásamt kæru nr. 133/2022 ódags. þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dagsett 15. nóvember 2022, um að borgaryfirvöld muni ekki aðhafast í máli er varðar kvartanir kæranda vegna aðgengismála og brota varðandi algilda hönnun í byggingu að Kugguvogi 15, á lóð nr. 1 við Trilluvog. Einnig er lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar dags. 22. nóvember 2023 ásamt úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 30. janúar 2024. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. SN220799

    Fylgigögn

  17. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 18. október 2023 ásamt kæru nr. 122/2023, dags. 17. október 2023, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa í Reykjavík um drátt á afgreiðslu máls kæranda fyrir nefndinni til fullnustu úrskurðar ÚUA frá 22. mars 2023 og varðar Gefjunarbrunn 12. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 14. nóvember 2023 sem og úrskurður umhverfis- og auðlindamála dags. 30. janúar 2024. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. USK23100348

    Fylgigögn

  18. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 25. janúar 2024, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi, Breiðholts, hverfi 6.2 Seljahverfi, vegna lóðarinnar nr. 17 við Öldusel, Ölduselsskóli. USK23080222

    Fylgigögn

  19. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 25. janúar 2024 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis fyrir tímabundna skiptistöð Strætó að Skúlagötu. USK23090029

    Fylgigögn

  20. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 25. janúar 2024 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 fyrir skotæfingasvæði á Álfsnesi. USK23030130

    Fylgigögn

  21. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sbr. 11 liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 2024 um endurgjaldslausa poka undir umframúrgang meðan tafir á sorphirðu standa yfir.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða. USK24010351

  22. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 12. lið fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 31. janúar 2024 um ítrekun á umsögn um tillögu sem var vísað 13. desember 2023
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa. USK24010344

  23. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 13. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 31. janúar 2024 um mál 2 í fundargerð skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2024.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa. USK24010345

  24. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 14. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 31. janúar 2024 um útistandandi mál Flokks fólksins hjá umhverfis- og skipulagsráði.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK24010346

  25. Lögð fram svohljóðandi tillaga umhverfis- og skipulagsráðs: Lagt er til að stofnaður verði starfshópur sem vinni drög að verklagsreglum um álagningu gjalda vegna stöðubrota í Reykjavík. Huga skal sérstaklega að fræðslu, upplýsingagjöf og góðri þjónustu. Líta skal til markmiða umferðarlaga um umferðaröryggi með sérstakri áherslu á öryggi þeirra sem nýta virka ferðamáta og annarra viðkvæmra hópa í umferðinni. Tryggja skal jafnræði og gæta þess að sambærileg mál séu meðhöndluð með sambærilegum hætti. Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. USK24020064
     

    Fylgigögn

  26. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að gripið verði til aðgerða í því skyni að auka umferðaröryggi og greiða fyrir umferð við gatnamót Víkurvegar, Þúsaldar og Reynisvatnsvegar. Meðal annars verði skoðað hvort tvöfalt hringtorg á þessum gatnamótum geti aukið umferðaröryggi og bætt umferðarflæði. Einnig verði skoðað hvort unnt sé að breikka Víkurveg yfir Vesturlandsveg til að ná þessum markmiðum. 
    Frestað. USK24020058
     

  27. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um kostnað Reykjavíkurborgar við smíði og rekstur smáhýsa, sem starfrækt eru af velferðarsviði. Óskað er eftir upplýsingum um allan kostnað við fjárfestingu og rekstur; þ.e. hönnun, jarðvinnu byggingarkostnað o.s.frv. Óskað er eftir upplýsingum um kostnað við hvert smáhýsi, sem og heildarkostnað. USK24020059
     

  28. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvaða áhrif það er líklegt til að hafa á fjárfesta sem hyggjast byggja Nýja Skerjafjörð nú þegar vitað er að flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýrinni. Einnig er spurt um hvaða áhrif þetta hafi á kaupendur íbúða ef þeir vita að þeir þurfi að búa “ofan í flugvelli“ til framtíðar? Nú liggur fyrir að Reykjavíkurflugvöllur mun verða áfram á sínum stað næstu áratugi samkvæmt orðum samgönguráðherra, vegna óvissu um hvort Hvassahraun verði nokkurn tíma örugg staðsetning fyrir nýjan flugvöll vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga. USK24020056
     

  29. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: Hvers vegna fór Reykjavíkurborg í landslagshækkun í Gufunesi? Lóðarhafi við Gufunesveg 34 telur að ekki sé búið að tryggja aðkomu að núverandi húsum við Gufunesveg 34, á sama tíma og tryggða hafi verið aðkoma að öðrum húsum á svæðinu. Er þetta rétt og ef svo er brýtur það ekki gegn eignarétti og jafnaðarreglu? Af hverju lagði lögfræðingur skipulagsins fram til úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála bréf þess efnis að búið væri að tryggja aðkomu? USK24020065
     

  30. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: Fulltrúa Flokks fólksins hafa borist ýmsar spurningar frá íbúum í Gufunes sem óskað er eftir að berist formleg svör við. Fulltrúi Flokks fólksins telur það vera skyldu sína sem borgarfulltrúa. Hvernig stendur á því að Reykjavíkurborg hefur ítrekað frestað kynningum á 2. áfanga Gufuness? Er það rétt að stækka eigi kvikmyndaþorp á kostnað 400 íbúða uppbyggingu? Hefur verið ákveðið að víkja frá verðlaunatillögu vegna Gufuness? Hvernig stendur á því að Reykjavíkurborg hefur ekki samband við aðila í Gufunesi áður en farið er í að grafa upp rafmagnsstrengi? Í mörgum málum er samráð ekki neitt að mati íbúa Gufuness og er því spurt af hverju samráð er ekki meira en raun ber vitni? Einnig er spurt hvernig stendur á því að tilkynningar barst aðeins þremur klukkutímum áður en hús er gert rafmagnslaus í Gufunesi. Eitt hús, Loftkastalinn, var skilinn eftir rafmagnslaus í 19 tíma, einmitt þegar 15 nemendur í meistaranámi í kvikmyndagerð í Listaháskóla íslands voru  að taka upp í Loftkastalanum. Er rétt að gerður hafi verið bráðabirgðavegur fyrir einn aðila í Gufunesi og ef svo hver er skýringin á því? USK24020066

    -    Kl. 11:57 víkur Hildur Björnsdóttir af fundi.
     

Fundi slitið kl. 12:07

Dóra Björt Guðjónsdóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Friðjón R. Friðjónsson Hjálmar Sveinsson

Kjartan Magnússon Pawel Bartoszek

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 7. febrúar 2024