Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 270

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2023, miðvikudaginn 17. maí, kl. 09:07 var haldinn 270. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Alexandra Briem, Birkir Ingibjartsson, Hjálmar Sveinsson og áheyrnarfulltrúinn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Hildur Björnsdóttir, Líf Magneudóttir, Unnur Þöll Benediktsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Trausti Breiðfjörð Magnússon. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir og Dagný Alma Jónasdóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram í trúnaðarbók umhverfis- og skipulagsráðs tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 18. apríl 2023 að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði árið 2023. Trúnaði verður aflétt að úthlutun lokinni.
    Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 3. maí 2023, sbr. 5. liður.
    Rétt bókun er: Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
    Vísað til borgarráðs. USK23010048

  2. Lögð fram fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2023.

    -    Kl. 9:10 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum. USK23010150

    Fylgigögn

  3. Lögð fram umsókn Byggingarfélag Gylfa/Gunnars hf., dags. 7. mars 2023, vegna breytinga á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, Halla vegna lóðarinnar nr. 33 við Lambhagaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst aukning á hámarks byggingarmagni neðanjarðar, samkvæmt uppdr. Archus arkitekta, dags. 13. desember 2022. Einnig eru lagðir fram uppdr. vegna lóðarhönnunar, dags. í nóvember og desember 2021 og í mars 2023. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs. USK23030121

    Fylgigögn

  4. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Landakotsreits, reita U og L. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind eru stærri svæði innan núverandi útivistarsvæðis sem leik-, íþrótta- og dvalarsvæði, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 4. maí 2023. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs. USK23020126

    Fylgigögn

  5. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa, dags. 9. maí 2023. USK22120096

    Fylgigögn

  6. Lagt fram afgreiðslubréf, dags. 4. maí 2023, vegna samþykktar borgarstjórnar þann 2. maí 2023 á 9 lið fundargerðar borgarráðs frá 27. apríl 2023 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Nýja Skerjafjarðar. SN210810

    Fylgigögn

  7. Lögð fram umsókn Nýs Landspítala ohf., dags. 30. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Álmgerðis 1 - Grensásdeildar vegna lóðarinnar nr. 1 við Álmgerði. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun á byggingarreit, aukning á byggingarmagn og hækkun á hámarkskóta, samkvæmt uppdr. Arkþing-Nordic ódags. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs. USK23030387

    Fylgigögn

  8. Lögð fram umsókn Páls Kristjáns Svanssonar dags. 13. apríl 2022 um nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar nr. 10 og 12 við Holtsgötu og 16 við Brekkustíg. Í breytingunni sem lögð er til felst uppbygging íbúðarhúsnæðis á lóðunum ásamt heimild til niðurrifs húsa að Holtsgötu 10 og Brekkustíg 16, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum Axels Kaaber, dags. 24. mars 2023. Einnig er lögð fram Fornleifaskrá og húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur, skýrsla nr. 214, umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 11. júní 2019 og 25. apríl 2022, og samgöngumati verkfræðistofunnar Eflu, dags. 16. ágúst 2022. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
    Frestað. SN220212

  9. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Vinstri grænna um framfylgd stefnumörkunar um fækkun bílastæða í borgarlandinu, sbr. 37. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 11. janúar 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 10. maí 2023. USK23010146

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um ósvaraðar fyrirspurnir og tillögur, sbr. 15. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 8. febrúar 2023, ásamt svari umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 11. maí 2023. USK23020098

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Svarið ber með sér að ekki er mikil skilvirkni í kerfinu og ekki er gott að segja hver sé meginástæðan fyrir því. Enn og aftur er staðfest hvernig skjalamálum er háttað í borginni. Hlaðan skjalavinnslukerfið tók við af Erindreka í upphafi árs. Mál frá síðasta kjörtímabili voru ekki færð milli kerfa. Leiða má líkum að því að vandamál með Hlöðuna sem hafa verið umfangsmiklar sé um að kenna. Flokki fólksins finnst málum minnihlutans ekki mikil virðing sýnd með þessu. Breytingar eru notaðar til að láta málin hverfa. Einnig má gagnrýna hversu langan tíma tekur að fá viðbrögð frá sviðinu. Dæmi eru um að svör komi mörgum mánuðum eftir að fyrirspurnin er lögð fram. Í kerfinu liggja óafgreidd mál frá þessu kjörtímabili og kallað er eftir svörum við eftirfarandi fyrirspurnum hið fyrsta sem eru m.a. eftirfarandi: Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um söfnun matarleifa við heimili á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni. Fyrirspurn(ir) um: -Ráðstafanir til að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra samhliða innleiðingu flokkunarkerfis sorpu. -Ákvörðun um útboð á sorpi til brennslu, tímalengd ferlisins og urðun í Álfsnesi. -Hreinsun á tjörninni í Reykjavík. -Hver beri ábyrgð á seinkun stafrænnar umbreytingar á umhverfis- og skipulagssviði. -Strætókort og kostnað. -Breytingar á gatnamótunum Kleppsmýrarvegar/Skeiðarvogs og Sæbrautar. -Hreinsun í Gufunesi. -Niðurfellingu aukagjalds vegna sorphirðu

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fjarlægingu hringtorgs við JL húsið, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 15. mars 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 5. maí 2023. USK23030208

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Gott er að heyra að engin ákvörðun hefur verið tekin um að fjarlægja hringtorgið við JL húsið. Rétt er að málið var í fjölmiðlum og var bókun meirihlutans tilefni til þess að ugg setti að mörgum að fjarlægja ætti torgið án þess að skipulagsyfirvöld ræddu við kóng eða prest. Flokkur fólksins kvittar upp á allt sem eykur öryggi og umferðarflæði því umferðaröngþveiti skapar ekki aðeins hættur heldur einnig mengun. Stórbæta þarf ljósastýringar víðs vegar um borgina. Fulltrúi Flokks fólksins leggur einnig til í þessu sambandi að meirihlutinn vandi sig betur í hvað hann lætur frá sér í bókunum. Ef bókun hans er skoðuð frá 8. mars þar sem segir orðrétt að: “Hringtorgið og næsta nágrenni þess er afleitt og beinlínis hættulegt fyrir fótgangandi vegfarendur" má vel draga þá ályktun að til standi að fjarlæga hringtorgið. Segir ennfremur í bókun meirihlutans að æskilegt sé að fækka akreinum með fram ströndinni og breyta hringtorginu í klassísk ljósastýrð T-gatnamót.” Ekki skal að undra að fólk hafi talið að þarna væri komin ákvörðun að fjarlægja torgið tafarlaust. 

    Fylgigögn

  12. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um blómaker í borginni, fjölda, kostnað og umfangi almennt í kringum þau, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. febrúar 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu borgarlandsins, dags. 10. maí 2023. USK23020264

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Spurt var um fjölda blómakerja sem sprottið hafa upp í borgarlandinu eins og gorkúlur og kostnað við kerin. Um þessar mundir eru 211 blómaker í borgarlandinu. Heildarkostnaður vegna blómakerja frá árinu 2015 er ríflega 62 m.kr. á verðlagi hvers árs. Samkvæmt svari virðist kostnaður vegna blómakera vera um 10 milljónir á ári. Hvort það er mikið eða lítið ræðst af því hver tilgangurinn er með notkun þeirra. Eins mikið og borgarfulltrúi Flokks fólksins finnst gaman að blómum þá eru takmörk fyrir öllu. Í einhverjum tilfellum hafa ker verið sett þar sem áður voru bílastæði. Sannarlega er prýði af blómum en tilfelli eru einnig um að fólk hafi ýmist dottið um blómaker sem eru á gönguleiðum eða hjólað á þau. Fram kemur að ekki eru skráð slys sem tengjast blómakerjum. Það þarf að gera. Tölfræði skiptir máli til að hægt sé að vega og meta hvort ákvarðanir séu farsælar og eða árangursríkar.

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um veggjakrot, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 8. mars 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu borgarlandsins, dags. 10. maí 2023. USK23030094

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins spurði um veggjakrot sem eru áberandi í miðborginni, hver sé staðan á þeim málum, hver kostnaður sé við að hreinsa veggjakrot og hversu hratt sé gengið í að hreinsa veggjakrot þegar tilkynnt er um slíkt. Fram kemur í svari að allt sé í gangi í þessum efnum en borgin þrífur aðeins krot af byggingum og öðru sem er í eigu borgarinnar en ekki öðru. Sagt er að virkt eftirlit sé í gangi. Mörgum finnst það kannski ekki alveg trúverðugt því mikið er af kroti. Kostnaður borgarinnar vegna veggjakrots var um 13,5 m.kr. árið 2022. Eins má spyrja hvort það komi ekki til greina að hafa háar sektir við veggjakroti? Kostnaður við að þrífa veggjakrot er verulegur og stundum illgerlegt er að þrífa. Líklega er ekki um mjög marga sem stunda þessi skemmdarverk og með háum sektum má líklega draga úr þeim.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kynningu fyrir almenning vegna breytinga á bílastæðum við Öldugötu, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 10. maí 2023
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. USK23050128

  15. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um gönguljós á Miklubraut á móts við Klambratún/Kjarvalsstaði, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 10. maí 2023.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. USK23050126

  16. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um skýrslu innviðaráðuneytisins um áhrif nýjar byggðar í Skerjarfirði á flug- og rekrstaröryggi Reykjavíkurflugvallar. Fyrirspurnin var fyrst lögð fram á fundi Borgarráðs, dags. 27. apríl 2023 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa. USK23040041

  17. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um greiðslukerfi Strætó, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 10. maí 2023.
    Vísað til umsagnar Strætó bs. USK23050124

    -    Kl. 9:40 víkur Líf Magneudóttir af fundi. 
    -    Kl. 9:42 víkja Hildur Björnsdóttir og Unnur Þöll Benediktsdóttir af fundi. 

  18. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hve stór hluti af íbúðarhúsnæði borgarinnar er ekki nýttur til búsetu? Átt er við þau íbúðarhúsnæði sem staðið hafa auð lengur en 6 mánuði. Hve margar þeirra íbúða sem standa auðar eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina íbúð, og hve margar í eigu aðila með fleiri en tvær eignir? Fram komi hvort um einstaklinga eða lögaðila er að ræða. Í svari frá innviðarráðherra 15. maí kom fram að 9.060 íbúðir, eða 20%, væru í eigu einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð. 9.966 íbúðir af 11.498 eignum lögaðila séu í eign aðila með fleiri en tvær íbúðir, eða 87%. Mikilvægt er að gera úttekt á hvort Reykjavík glími við og þá hve víðtækt vandamálið sé að íbúðarhúsnæði sé látið standa autt á meðan mikill skortur er á íbúðum fyrir fólk í borginni. Einnig að kortleggja hvernig mismunandi eigendur koma út með tilliti til þess að bæta framboð íbúðarhúsnæðis en ekki minnka það, og þá sömuleiðis hvers konar húsnæði er líklegast til þess að vera ekki í nýtingu. USK23050212

Fundi slitið kl. 09:49

Alexandra Briem Birkir Ingibjartsson

Hjálmar Sveinsson Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 17. maí 2023