Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 266

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2023, miðvikudaginn 19. apríl, kl. 9:06 var haldinn 266. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Alexandra Briem, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Björn Gíslason, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Pawel Bartoszek og áheyrnarfulltrúarnir Einar Sveinbjörn Guðmundsson og Trausti Breiðfjörð Magnússon. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Borghildur Sölvey Sturludóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.

Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

 

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar leggur til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi tillögu: samþykki fyrirkomulag sbr. bréf dags. 30. mars 2023 á tímabundnum endastöðvum Strætó vegna framkvæmda á Hlemmi. Greinargerð fylgir tillögunni. Bjarni R. Ingvarsson deildarstjóri og Ragnheiður Einarsdóttir, Sólrún S. Skúladóttir og Valgerður G. Benediktsdóttir frá Strætó taka sæti á fundinum undir þessum lið.
    Samþykkt.
    Leiðrétt bókun frá fundi dags. 12. apríl 2023, sbr. liður 7.
    Leiðrétt bókun er:
    Frestað. USK22030182

  2. Lögð fram fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 13. apríl 2023. USK23010150

    Fylgigögn

  3. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Trípólí arkitekta, dags 8. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi fyrir Spöngina, einingu H, vegna hjúkrunarheimilis við Mosaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er ný lóð 9750 m2 að stærð. Heimildum til uppbyggingar á svæðinu er breytt þannig að í stað íþróttahúss og sundlaugar verði heimilt að byggja 3-5 hæða hjúkrunarheimili með allt að 145 rýmum og tengdri þjónustu. Settir eru sérskilmálar fyrir uppbygginguna. Tillagan var auglýst frá 9. febrúar 2023 til og með 24. mars 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Minjastofnun Íslands, dags. 13. febrúar 2023, íbúaráð Grafarvogs, dags. 16. mars 2023 og Veitur, dags. 21. mars 2023. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. apríl 2023. Lagt er til að tillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögninni. SN220067
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. apríl 2023. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Vísað til borgarráðs.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að hjúkrunarheimilum í Reykjavík verði fjölgað. Jafnframt skal minnt á að Borgarholtsskóli hefur lengi horft til lóðarinnar til framtíðaraukningar og þróunar. Mikilvægt er að Reykjavíkurborg tryggi eina framhaldsskóla Grafarvogs, sem jafnframt er einn fjölmennasti framhaldsskóli landsins, nægt byggingarland til framtíðar. Síaukin aðsókn er að verk- og listnámsbrautum skólans, sem kallar á sérútbúið kennslurými. Þar sem nemendur skólans koma hvaðanæva að af höfuðborgarsvæðinu er mikilvægt að hafa nægilegt framboð bílastæða við hann.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Því skal haldið til haga að þessi lóð var aldrei hugsuð til stækkunar Borgarholtsskóla, heldur skipulögð fyrir sundlaug á sínum tíma. Hún var síðan var byggð sunnar í hverfinu, einhverra hluta vegna. Bílastæðið við Borgarholtsskóla var haft stærra en þurfti til að samnýta með fyrirhugaðri sundlaug, en í ljósi þess að hún er ekki lengur á áætlun hefur skólinn horft til þess að byggja á hluta bílastæðisins, en ekki á umræddri lóð.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins fagnar því að hjúkrunarheimili rísi við Mosaveg í Reykjavík og ítrekar mikilvægi þess að ekki verði frekari tafir á því verkefni. Miðað við þann fjölda sem bíður á Landspítalanum eftir að komast á hjúkrunarheimili með samþykkt færni- og heilsumat, er mikilvægt að nýtt hjúkrunarheimili rísi í Reykjavík. Lýsing á breytingunni er skilgreind í gögnum. Heimildum til uppbyggingar á svæðinu er breytt þannig að í stað íþróttahús og sundlaugar verði heimilt að byggja 3-5 hæða hjúkrunarheimili með allt að 145 rýmum og tengdri þjónustu. Möguleg tenging inn á lóð Borgarholtsskóla úr norðri er færð til samhliða skilgreiningu lóða. Settir eru sérskilmálar fyrir uppbygginguna. Í þessu sambandi er vert að draga hér fram erindi íbúaráðs hverfisins þar sem vakin er athygli á nauðsyn þess að borgin tryggi til framtíðar eina framhaldsskóla Grafarvogs, nægt byggingarland. Sí aukin aðsókn er á námsbrautir skólanum í verk- og listnám sem um leið kallar á mikið sérútbúið kennslurými.
     

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, sbr. 7. liður fundargerðar 12. apríl 2023. Þar er lagt til að við Háskóla Íslands er lagt til að tímabundin endastöð fyrir leiðir 2 og 6 sé á bílastæðum innan lóðar HÍ við Stapa. Samkomulag við HÍ liggur fyrir. Við Skúlagötu er lagt til að endastöð fyrir leiðir 1, 4, 16, 17 og 18 sé á núverandi bílastæðaplani sem liggur að Sæbraut. Við breytinguna fækkar bílastæðum innan lóðar HÍ um 13, en um 62 stæði á borgarlandi við Skúlagötu. Við endastöðina á Skúlagötu er nauðsynlegt að bæta við gangstéttum, gönguþverunum og bæta lýsingu. Við endastöðina á svæði Háskóla Íslands verða núverandi innviðir nýttir að mestu, en gert er ráð fyrir að breikka þurfi göngusvæði meðfram nýjum vagnastæðum og að snjóbræðslu sé bætt við útkeyrslu. Greinargerð fylgir tillögunni. USK22030182
    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Skipulagsyfirvöld telja að vegna fyrirhugaðra breytinga á Hlemmi sé nauðsynlegt að útbúa tvær tímabundnar endastöðvar fyrir Strætó sem verða notaðar meðan á framkvæmdunum við Hlemm stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar taki fjögur ár. Þetta kann að vera nauðsynlegt, en hins vegar má deila um hvort þessi framkvæmd öll eigi ekki að bíða um sinn. Flokkur fólksins hefur bent á að sum stór og fjárfrek verkefni þurfi að fara á bið og kannski er þessi framkvæmd einmitt ein af þeim. Vissulega er mikilvægt að skilja ekki við framkvæmdina í óreiðu ef gera á hlé vegna þess að draga þarf saman seglin í ljósi efnahagsvanda. Finna þarf besta mögulega tímapunktinn í verkinu þar sem hagkvæmast er að setja verkefnið á bið. Það er ekki góð staða en eitthvað verður undan að láta í þeirri efnahagslegu óvissu sem nú ríkir.

    Ragnheiður Einarsdóttir og Sólrún Svava Skúladóttir frá Strætó taka sæti á fundinum undir þessum lið.
     

    Fylgigögn

  5. Lagt fram að nýju erindi Félags atvinnurekanda um samstarfsverkefni um nýtingu rafbíla við vörudreifingu í miðborg Reykjavíkur sbr. 10 liður fundar umhverfis- og skipulagsráðs þann 25. janúar 2023. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra dagsett 12. apríl 2023. MSS22100082

    Umhverfis- og skipulagsráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Umhverfis og skipulagsráð tekur undir umsögn sviðsins og vísar til frekari útfærslu. Ráðið fagnar notkun rafbíla við vörudreifingar en áréttar að vörubifreiðum verði ekki heimilt að aka eftir sérreinum sem eru ætlaðar almenningssamgöngum og neyðarakstri. Ráðið leggur ennfremur áherslu á að reglur um vörulosunartíma verði virtar. Á því hefur því miður orðið misbrestur.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins fagnar öllu samstarfi af þessu tagi. Samstarf við hagsmunafélög eru ávallt af hinu góða og leiða til betri og sanngjarnari útkomu. Fulltrúi Flokks fólksins hefði viljað sjá meirihlutann í borginni vera t.d. í meira samstarfi við Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), en þar liggur reynslan og sérþekkingin sem meirihlutinn gæti nýtt sér mun betur gert hefur hingað til.
     

    Fylgigögn

  6. Lagt fram afgreiðslubréf, dags. 30. mars 2023, vegna samþykktar borgarráðs s.d. auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. SN220797

    Fylgigögn

  7. Lagt fram afgreiðslubréf, dags. 30. mars 2023, vegna samþykktar borgarráðs s.d. auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 29 við Vagnhöfða. SN220544

    Fylgigögn

  8. Lagt fram afgreiðslubréf, dags. 30. mars 2023, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laugardals. USK23020087

    Fylgigögn

  9. Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra dags. 4. apríl 2023 til Innviðaráðuneytisins vegna áforma um vegvísi að vistvænum samgöngum til ársins 2023. USK23030348

    Umhverfis- og skipulagsráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ánægjulegt er að ákveðið hafi verið að ráðast í gerð vegvísis í vistvænum samgöngunum. Tekið er undir það að nauðsynlegt að hafa víðtækt samráð við sveitarfélög og svæðissamtök þeirra áframhaldandi vinnu vegvísins. Góðar, vistvænar samgöngur innan Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðis gegna lykilhlutverki í vistvænum samgöngum landsins alls.
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um stoppistöð Strætó við Esjuna, sbr. 28. lið fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 11. janúar 2023. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 12. apríl 2023. USK23010122
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Viðreisnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði með tillögunni. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að strætisvagnabiðstöð verði komið fyrir við Esjuna sem fyrst. Slík biðstöð var þar um langt skeið og skýtur skökku við að þetta vinsæla og fjölsótta útivistarsvæði sé ekki aðgengilegt fyrir strætisvagnafarþega.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Því skal haldið til haga að akstur á vegum pöntunarþjónustu Strætó er enn í boði við Esju, en það sem hefur hætt er akstur leiðar 57 á vegum landsbyggðarstrætó sem rekinn er af Vegagerðinni. Því skal einnig haldið til haga að sú breyting er fyrst og fremst af öryggisástæðum vegna beygju inn á Vesturlandsveg.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Lagt er til að hafa biðstöð Strætó við Esjuna. Fulltrúa Flokks fólksins telur það vera mjög gott mál. Það kemur fram í gögnum að “Landsbyggðarstrætó er rekinn af Vegagerðinni en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ekki á áætlun að gera biðstöð við Esjuna. Áður en biðstöð yrði opnuð þyrfti að bæta aðstæður verulega, bæði við stöðina sjálfa sem og við Vesturlandsveg”. Þetta snýr því að Vegagerðinni en fulltrúi Flokks fólksins telur að mjög líklega þyrfti borgin einnig að koma að málinu varðandi það að bæta aðstæður.
     

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Fálkabakka, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 25. janúar 2023. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett þann 12. apríl 2023. USK23010274
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Viðreisnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði með tillögunni. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar kjósi að fella tillögu, sem miðar að því að auka umferðaröryggi í Fálkabakka. Um er að ræða þekkt vandamál sem oft hefur verið bent á af strætisvagnastjórum sem og Breiðhyltingum. Við slæmar aðstæður getur alvarleg hætta skapast í hálli brekkunni og gerðist slíkt oftar en einu sinni í janúar síðastliðnum.
     

    Fylgigögn

  12. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lagfæringar á Hlemmi fyrir strætófarþega, sbr. 14. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. mars 2023. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 13. apríl 2023. USK23030007
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Viðreisnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði með tillögunni. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar kjósi að fella tillögur um bætta aðstöðu fyrir strætisvagnafarþega á Hlemmi. Auðvelt væri að hafa skiptistöðvarhúsið opið á morgnana á meðan strætisvagnar ganga og bjóða farþega velkomna þangað inn í stað þess að láta þá bíða úti í kulda og trekki. Einnig væri auðvelt að bæta merkingar á Hlemmi, innan dyra sem utan. Umræddar úrbætur myndu ekki hafa mikinn kostnað í för með sér en stórbæta aðstöðu farþega á Hlemmi.
     

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Vinstri grænna um stýrihóp fyrir aðgerðir til að bregðast við loftmengun á gulum og gráum dögum, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 18. janúar 2023. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 12. apríl 2023. USK23010211
    Samþykkt. Sviðsstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs, er falið að útbúa erindisbréf. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Umsögn liggur fyrir um tillögu fulltrúa Vinstri grænna um stýrihóp fyrir aðgerðir til að bregðast við loftmengun á gulum og gráum dögum. Auðvitað þarf að vinna að því að minnka loftmengun og sennilega eru fáir á móti því. Fulltrúa Flokks fólksins finnst hæpið að það þurfi sérstakan stýrihóp til þess. Loftslagsmál er rædd út um allt en kannski minna gert til að draga úr mengun. Það þarf því fyrst og fremst að koma þessu verkefni í réttan farveg innan borgarinnar og nýta þá þekkingu og þau úrræði sem þar eru væntanlega að finna.
     

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um rekstraráætlun borgarlínu, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. mars 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 12. apríl 2023. USK23030009

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um byggingarkostnað vegna íbúða fyrir Félagsbústaði, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 8. mars 2023. Einnig er lagt fram svar Félagsbústaða dags. 12. apríl 2023. USK23030092

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í fyrirspurn fulltrúa Sósíalista var beðið um upplýsingar um meðal byggingarkostnað á þeim íbúðum sem félagsbústaðir kaupa. Upplýsingar um slíkt komu ekki fram í svarinu.
     

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um eflingu almenningssamgangna, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. mars 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 12. apríl 2023 USK23030014

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Spurt var um eflingu almenningssamgangna í tengslum við fækkun bílastæða. Nú þegar hefur bílastæðum verið fækkað mikið í borginni. Þess vegna er fulltrúi Flokks fólksins sammála því að brýnt sé að efla einmitt almenningssamgöngur þegar þrengt hefur verið með þessum hætti að einkabílnum. Í svari kemur fram að ekki eigi að efla Strætó í tengslum við breytingarnar í Brautarholti því staðurinn sé vel tengdur við aðrar strætóleiðir. Engin afstaða virðist hafa verið tekin um það hvort efla eigi strætó almennt í kjölfar fækkunar bílastæða í borginni. Þess vegna þarf að huga enn betur að öðrum lausnum þegar gengið er á þær sem fyrir eru með þessum hætti.
     

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um það af hverju SORPA eða einstök sveitarfélög eru ekki búin að skipuleggja eða semja um að flytja út sorp til brennslu, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 8. febrúar 2023. Einnig er lagt fram svar frá Sorpu bs. dags. 11. apríl 2023. USK23020099

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um af hverju SORPA eða einstök sveitarfélög eru ekki búin að skipuleggja eða semja um að flytja út sorp til brennslu. Álfsnes er að verða fullnýtt sem urðunarstaður en er áfram er verið að nýta þann fullnýtta kost. Í Evrópu vantar orku og eftirspurn er orðin töluverð eftir úrgangi til brennslu. Félög eins og ÍGF og Terra geta auðveldlega bætt á sig því verkefni að flytja út sorp til brennslu. Svar liggur fyrir og segir að Sorpa ætli að bjóða út útflutning á sorpi til brennslu. Gert er ráð fyrir að opna þau tilboð sem berast þann 25. apríl næstkomandi. Á þeim grundvelli hyggst SORPA hefja útflutning á brennanlegum úrgangi eins fljótt og auðið er. Þetta hefur tekið allt of langan tíma að mati Flokks fólksins og mörgum spurningum er ósvarað t.d. hvenær var tekin ákvörðun um að bjóða þetta út og hversu langan tíma tók það ferli. Fulltrúi Flokks fólksins mun senda inn sér fyrirspurnir um þessi atriði
     

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um strætóstoppistöðina fyrir strætó númer 57 við Esjurætur í Kollafirði, sbr. 15. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 21. september 2022. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 12. apríl 2023. USK22090119

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirspurn varðandi stoppistöðina fyrir strætó númer 57 við Esjurætur í Kollafirði um hvenær biðstöðin verði opnuð aftur, var lögð fram í september 2022. Nú fyrst kemur svar. "Stoppistöðinni var lokað í vor því bílstjórunum þótti svo erfitt að komast aftur inn á Vesturlandsveginn. Næsta stöð er uppi á Esjumelum í 700-1000 metra fjarlægð." Fram kemur í svari að “Landsbyggðarleiðir Strætó líkt og leið nr. 57 eru reknar af Vegagerðinni sem og stoppistöðvar á þjóðveginum. Það var ákvörðun Vegagerðarinnar að loka stoppistöðinni með tilliti til umferðaröryggis. Það er því ekki á forræði Reykjavíkurborgar að ákveða hvort og þá hvenær stoppistöðin opnar aftur. Það er mat fulltrúa Flokks fólksins að hér beri Reykjavíkurborg að grípa inn í með því að bæta þarna allar aðstæður með tilliti til umferðaröryggis.
     

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um öryggismál á Laugarásvegi, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. febrúar 2023. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 13. apríl 2023. USK23020258

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um hvenær bæta á úr hraðamerkingum á Laugarásvegi? Hámarkshraði á Laugarásvegi var lækkaður í 30 km./klst. fyrir nokkru síðan. Það eru hins vegar engar merkingar um það, hvorki á skiltum né götu. Þrátt fyrir að hámarkshraði er merktur þar sem að 30 km svæði byrjar eða á mörkum þess, þá er algjörlega nauðsynlegt að hafa sýnilegar aukamerkingar á Laugarásvegi. Það þyrftu því bæði að vera hraða skilti og málað á götuna. Þetta er ein lengsta íbúðargata í hverfinu sem veldur því að bílar keyra iðulega mjög hratt og langt umfram leyfilegan hámarkshraða í götunni. Tímaspursmál er hvenær þarna verður alvarlegt slys. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bent á þetta enda berast ábendingar reglulega frá íbúum sem eru mjög áhyggjufullir. Fram kemur í svari að merkingar hafa verið málaðar í götu um 30 km/klst hámarkshraða. Viðurkennt er að merkingar eru orðnar máðar en samt á ekki að grípa til aðgerða fyrr en fara á í annað almennt viðhald. Er verið að bíða eftir að slys verði? Svarið ber með sér ákveðna viðurkenningu á því að merkingar um hámarkshraða eru ekki nægilega góðar. Merkingar þarf að bæta hið fyrsta áður en slys verður.
     

    Fylgigögn

  20. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um umferðamál, sbr. 40. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 11. janúar 2023. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 12. apríl 2023. USK23010147

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins spurði um umferðarmál. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt til undanfarin 4 ár, að farið verði yfir allar ljósastýringar í borginni og erfiðustu gatnamótin verði löguð með ýmsum þeim leiðum sem margoft hefur verið bent á undanfarin ár. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort skipulagsyfirvöld séu með einhverjar hugmyndir varðandi ljósastýringar sem létt gætu á umferðarþunga? Hvaða aðgerðir eru í gangi hjá borginni til að draga úr umferðarteppu? Í svari segir að sífellt sé verið að leita leiða til að auka umferðaröryggi og bæta flæði umferðar. Þegar hefur verið farið í nokkrar aðgerðir og má þar nefna að beygjuvasar hafa verið stækkaðir og lengdir. Minnst er á úttekt Sveco og samstarfshópi í ljósastýringum sem gerðu aðgerðaráætlun. Vonandi er það vísbending um að eitthvað sé farið að gerast. Fyrir akandi borgarbúa lítur hins vegar út sem ekkert sé verið að gera. Það eru alltaf sama umferðarteppa og sömu kvartanirnar og ábendingarnar sem fólk sendir inn. Hvernig má það vera að enginn verði var við þær úrbætur sem lýst er í svari? Það vantar ákveðinn kraft í þessa vinnu - bið og seinagangur er aldrei til góðs.
     

    Fylgigögn

  21. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um nagladekk, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. nóvember 2022. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dagsett 12. apríl 2023 USK22110069

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Rétt er sem kemur fram í svari að ný ónegld dekk eru góður kostur þegar velja á dekk undir bílinn. Þau eru góð á meðan þau eru ný. En hér þarf að miða við aðstæður í Reykjavík. Negld dekk komu betur út á ís en ónegld dekk í þeim prófunum sem vísað er til í svari - og það eru einmitt hættulegustu aðstæðurnar í umferðinni í Reykjavík. Svo er sagt að ,,Nagladekk hafa umtalsvert verri áhrif á heilsu fólks en ónegld vetrardekk”. Þessi fullyrðing hefur verið dregin í efa. Engar vísbendingar eru um að áhrifin séu mikil hér á landi. FÍB hefur ekkert á móti nagladekkjum. Þeir benda á að nagladekk eru öruggari í hálku, árekstrum fækkar og þeir sem eru á ferðinni um landið en eru búsettir í Reykjavík geti oft með engu móti verið án nagladekkja.
     

    Fylgigögn

  22. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fund á Kjalarnesinu, sbr. 18. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 12. apríl 2023.
    Samþykkt.

  23. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að hækka samgöngustyrk, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 12. apríl 2023.
    Tillögunni er vísað frá. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna greiða atkvæði gegn frávísun.

    Fylgigögn

  24. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að borgin hvetji handhafa stæðiskorta hreyfihamlaðra til að skila inn kvittunum, sbr. 19. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 12. apríl 2023.
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Viðreisnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði með tillögunni. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins tekur undir þá tillögu að handhafar stæðiskorta verði hvattir til að senda inn kvittanir svo þau fái endurgreiðslu vegna gjalda sem þeir hafa greitt í bílastæðahús. Árið 2019 voru ný umferðarlög samþykkt þar sem skýrt er kveðið á um að handhöfum stæðiskorta sé heimilt að leggja ökutæki í gjaldskylt bifreiðastæði án greiðslu. Nú hefur verið staðfest að slík innheimta var ólögleg. Borgarlögmaður telur Bílastæðasjóð Reykjavíkur hafa gerst brotlegan við umferðarlög, og þar með á réttindi fatlaðra með því að rukka handhafa stæðiskorta fyrir notkun bílastæða í bílastæðahúsum. Fallið hefur verið frá þessari gjaldheimtu. Ljós er að brotið hefur verið á þessum hópi árum saman og er því bæði sanngjarnt og eðlilegt að endurgreiða þeim sem rukkaðir voru að ósekju. Öryrkjabandalag Íslands hefur haldið málinu á lofti og meðal annars farið fram á að aðgengis og samráðsnefnd Reykjavíkurborgar álykti um að handhafar stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða skuli undanskildir gjaldskyldu í borgarlandinu, hvort sem er í bílastæðahúsum, bílskýlum eða undir beru lofti.
     

    Fylgigögn

  25. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um AldinBioDome í Elliðarárdalnum, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. mars 2023.
    Fyrirspurninni er vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu skipulagsfulltrúa.

  26. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um snjómokstur, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 12. apríl 2023.
    Vísað til umsagnar skrifstofu umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins.

  27. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fjarlægingu hringtorgs við JL húsið, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 15. mars 2023.
    Vísað til umsagnar skrifstofu umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.

  28. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um hreinsun í Gufunesi sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. mars 2023.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða.

  29. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um GAJU, sbr. 26. fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 15. mars 2023.
    Vísað til umsagnar skrifstofu umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða.

  30. Fulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Kallað er eftir upplýsingum og samanburði sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu við Reykjavík um tilhögun sumarstarfa ungs fólks frá aldrinum 13 ára og upp úr. Í þeirri samantekt skulu störf og verkefni talin upp sem og laun og kjör. USK23040154
     

  31. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Þann 8. mars lagði fulltrúi Sósíalista fram fyrirspurn um meðal byggingarkostnað keyptra íbúða hjá Félagsbústöðum. Hún hljóðaði svo: „Fram hefur komið að Félagsbústaðir borgi að meðaltali 583.000 kr. á hvern fermetra fyrir nýjar íbúðir. Mikilvægt að er að fram komi hver byggingarkostnaður íbúðanna sé hjá verktökunum. Því er spurt hver meðal byggingarkostnaður sé á hvern fermetra nýrra íbúða sem ætlaðar eru Félagsbústöðum? Mikilvægt er að upplýsingar um þetta liggi fyrir. Ef Félagsbústaðir í eigu Reykjavíkur eru að borga mun hærra verð fyrir íbúðir en sem nemur byggingarkostnaði þarf það að koma fram.” Þann 19. apríl barst svar frá framkvæmdastjóra Félagsbústaða vegna málsins. Í því komu hvergi fram þær upplýsingar sem kallað var eftir, þ.e. hver meðal byggingar kostnaður hjá verktökum sé. Upplýsingar voru veittar um aðra hluti en spurt var um. Fulltrúi Sósíalista ítrekar að upplýsingar séu veittar um það sem óskað var eftir. Eru félagsbústaðir með upplýsingar um byggingarkostnað verktaka á hvern fermetra við byggingu íbúða handa þeim? Það er mikilvægt að vita hversu mikla álagningu verktakar eru að leggja á hvern fermetra. Þeir fá greiddar 583.000 kr. frá Félagsbústöðum á hvern fermetra. Með því að fá upplýsingar um byggingarkostnað er hægt að sjá hversu mikið álag er lagt á byggingarkostnað. USK23040156
     

  32. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Sorpa hefur nú tekið við sér og ætlar að bjóða út útflutningi á sorpi til brennslu. Gert er ráð fyrir að opna þau boð sem berast þann 25. apríl næstkomandi eins og fram kemur í svari við fyrirspurn frá Flokki fólksins um þessi mál. Sorpa hyggst hefja útflutning á brennanlegum úrgangi eins fljótt og auðið er. Þetta hefur tekið allt of langan tíma. Borið er fyrir sig reglur um opinber innkaup og kröfu um evrópska efnahagssvæðið. Fulltrúi Flokks fólksins spyr, hvenær var tekin ákvörðun um að bjóða þetta út og hversu langan tíma þetta ferli tók? Einnig er spurt hversu mikið magn er enn urðað í Álfsnesi? Hvert er heildar magn sorps sem væri hægt að flytja út til brennslu og hversu mikið magn var boðið út til brennslu? USK23040147
     

Fundi slitið kl. 10:52

Alexandra Briem Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Björn Gíslason Hjálmar Sveinsson

Kjartan Magnússon Líf Magneudóttir

Pawel Bartoszek

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 19. apríl 2023