Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 217

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2010, miðvikudaginn 29. september kl. 09:05, var haldinn 217. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Marta Guðjónsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Sóley Tómasdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal, Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Leifsdóttir og Margrét Þormar. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(D) Ýmis mál

1. Skipulagslög, ný skipulagslög Mál nr. SN100340
Lögð fram til kynningar skipulagslög samþykkt 9. september 2010.

(A) Skipulagsmál

2. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 17. og 24. september 2010.

3. Bergstaðastræti 20, breyting á deiliskipulagi (01.184.0) Mál nr. SN100349
Laug ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
KRADS ehf, Hafnarstræti 19, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi Laug ehf. dags. 23. september 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.0 vegna lóðarinnar nr. 20 við Bergstaðastræti. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit samkvæmt uppdrætti Krads arkitektúr dags. 23. september 2010.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að fella niður kynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.

4. Hverfisgata 28, breyting á deiliskipulagi reits 1.171.1 (01.171.1) Mál nr. SN100352
Arkitektur.is ehf, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Arkitektur.is dags. 24.september 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.1 vegna lóðar nr. 28 við Hverfisgötu, skv. uppdrætti dags. 24. september 2010. Breytingin felst í að heimilt verði að flytja núverandi hús við Hverfisgötu 28.

Gísli Marteinn Baldursson vék af fundi kl. 10:25 Hildur Sverrisdóttir tók sæti á fundinum í hans stað.

Frestað.

5. Klapparstígur 19, breyting á deiliskipulagi (01.152.4) Mál nr. SN100044
Arkís ehf, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík
Ottó ehf, Klettagörðum 23, 104 Reykjavík
Lögð fram umsókn Arkís fh. Ottó ehf. dags. 4. febrúar 2010 um breytingu á deiliskipulagi Skúlagötureits 1.152.4 vegna stækkunar byggingarreits á lóðinni nr. 19 við Klapparstíg samkvæmt uppdrætti dags. 29. september 2009 móttekin 4. febrúar 2010. Einnig lögð fram bréf Stefáns S. Guðjónssonar f.h. Ottó ehf. dags. 27. maí 2010 og 3. september 2010 og orðsending skrifstofu borgarstjórnar dags. 24. september 2010 ásamt ítrekun á fyrra erindi Ottó ehf. dags. 23. september 2010.
Synjað.
Skipulagsráð getur ekki fallist á að breyta gildandi deiliskipulagi á þann hátt sem lagt er til í framlagðri tillögu lóðarhafa. Embætti skipulagsstjóra er falið að vinna að því með lóðarhöfum að gera nýja tillögu þar sem kannað er hvort unnt er að fella steinbæ á lóðinni inn í uppbygginguna.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins; Júlíus Vífill Ingvarsson, Hildur Sverrisdóttir og Marta Guðjónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins

(B) Byggingarmál

6. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN042087
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 605 frá 28. september 2010.

7. Skólavörðustígur 40, niðurrif og nýbygging (01.181.404) Mál nr. BN041848
Samtímalist ehf, Skólavörðustíg 14, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa tvö eldri hús og byggja í þeirra stað steinsteypt íbúðar- og verslunarhús, fjórar hæðir og kjallara, fimm íbúðir, tvær verslanir og veitingastað á lóð nr. 40 við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. ágúst 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 6. ágúst 2010.
Einnig fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 5. ágúst og Húsafriðunarnefndar dags. 29. júlí 2010.
Stærð niðurrifs: Mhl. 01 fastanr. 200-6095, merkt 0101 íbúð: 87,2 ferm. Mhl. 02 fastanr. 200-6096 merkt 0101 geymsla 10,1 ferm. Mhl. 03 fastanr. 200-697 merkt 0101 bílskúr 21,6 ferm.Niðurrif samtals: 118,7 ferm.Stærð nýbyggingar: Kjallari 203,1 ferm., 1. hæð 187,8 ferm., 2. hæð 182,7 ferm., 3. hæð 179,9 ferm., 4. hæð 110,2 ferm.A-rými samtals: 863,7 ferm., 2.665,4 rúmm.B-rými á 1. hæð: 22,3 ferm.Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 205.236
Frestað.

(D) Ýmis mál

8. Ný götuheiti, Túnahverfi Mál nr. SR090003
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúans í Reykjavík dags. 9. nóvember 2009 þar sem gerð er tillaga að nýjum götuheitum í Túnahverfi. Einnig er lagt farm bréf skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur til borgarráðs dags. 16. desember 2009. Tillagan var samþykkt á fundi skipulagsráðs þann 16. desember 2009 og vísað til borgarráðs.
Kynnt.
Skipulagsráð óskar eftir því að fyrri afgreiðsla ráðsins verði lögð fram á fundi borgarráðs til afgreiðslu, eins skjótt og unnt er.

9. Göngustígar í Reykjavík, nafngiftir Mál nr. BN040807
Lögð fram að nýju tillögur nafnanefndar Reykjavíkur um nafngiftir aðalgöngustíga í Reykjavík, ásamt greinargerð, dags. 12. desember 2009.

Hildur Sverrisdóttir vék af fundi kl. 11:15, Gísli Marteinn Baldursson tók sæti á fundinum í hennar stað

Magnús Sædal Svavarsson byggingarfulltrúinn í Reykjavík, kynnti tillögurnar.

10. Skipulagsráð, Handbók skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur Mál nr. SN100316
Lögð fram til kynningar tillaga að handbók Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur.
Frestað.

11. Skipulagsráð, tillaga um kynningu á framkvæmdum Mál nr. SN100355
Lögð fram eftirfarandi tillaga. #GLSamfylkingin og Besti flokkurinn gera tillögu um að ítarleg kynning á framkvæmdum í borginni á framkvæmdarstað verði eitt af skilyrðum byggingarleyfis. Sérstök áhersla skal lögð á ítarlega myndræna kynningu og upplýsingatexta á byggingarstað þar sem byggt er í miðborginni. Slíkar upplýsingar skal setja upp á framkvæmdarstað um leið og framkvæmdir hefjast.#GL
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11:55.

Páll Hjalti Hjaltason
Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Marta Guðjónsdóttir
Sóley Tómasdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2010, þriðjudaginn 28. september kl. 10:12 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 605. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Eva Geirsdóttir
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalland 8 (01.841.303) 108692 Mál nr. BN042084
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að einangra og klæða með álklæðningu sem fest er á þar til gert undirkerfi úr áli á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 8 við Aðalland.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Aðalstræti 6 (01.136.502) 100592 Mál nr. BN042097
Miðjan hf,Reykjavík, Hlíðasmára 17, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi fyrir innanhúss breytingum á 5. hæð sem fela í sér innri opnun milli fram- og bakhúss, þannig að sérnotaflötur 0501er stækkaður en samnotaflötur 0504 er minnkaður og svalir verða sérnotasvæði 0501 í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Bréf frá hönnuði fylgir dags. 21. sept. 2010
Yfirlýsing frá Ellert Aðalsteinssyni fylgir dags. 20. sept. 2010
Samþykki meðeigenda fylgir ódags.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Almannadalur 25-29 (05.865.201) 208504 Mál nr. BN042074
Þorgeir Benediktsson, Sílakvísl 2, 110 Reykjavík
Brynja Viðarsdóttir, Lækjarvað 1, 110 Reykjavík
Auður Elísabet Guðmundsdóttir, Snekkjuvogur 11, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka gerði um 1,5 metra til norðausturs við hesthús nr. 25, þar sem reiðstígur sem átti að vera hefur verið lagður af vegna hæðarmunar í lóð nr. 25 - 29 við Almannadal.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Austurbakki 2 (01.119.801) 209357 Mál nr. BN042081
Eignarhaldsfélagið Portus ehf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir textabreytingu vegna eignarhalds bílastæða í bílahúsi (matshluta 02, sbr. erindi BN038930, norðan við tónlistarhúsið á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Gjald 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Austurv Thorvaldsenst (01.140.418) 100859 Mál nr. BN042086
Lindarvatn ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu mötuneytis á 3. hæð mhl. 04 í húsi Landsímahússins Thorvaldsenstræti 4 á lóð við Austurvöll.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

6. Ármúli 18 (01.292.003) 103786 Mál nr. BN042082
Advance ehf, Síðumúla 28, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningu af 2. hæð og leyfi til að koma fyrir gluggum á suðurhlið atvinnuhúsnæðis sem snýr út á lóð nr. 3 - 5 við Síðumúla og er á lóð nr. 18 við Ármúla.
Jákvæð fyrirspurn BN042082 dags. 14. sept. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Ármúli 5 (01.262.002) 103514 Mál nr. BN041990
Hallarmúli sf, Hallarmúla 1, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna sameiningar á matshluta 01 og 02 í matshluta 01 á lóð nr. 5 við Ármúla.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 9.9. 2010
Stækkun: 25,5 ferm., 59,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.574
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

8. Barónsstígur 61 (01.195.221) 102613 Mál nr. BN042088
Xin Liu, Barónsstígur 61, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að útbúa baðherbergi innan íbúðar og færa útgang úr kjallara þannig að hann liggi ekki í gegn um íbúð í kjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 61 við Barónsstíg.
Jákvæð fyrirspurn BN041676 dags. 15. júní 2010 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Bergstaðastræti 16 (01.184.010) 102005 Mál nr. BN041830
Laug ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á erindi BN037642, sem felast í að fjölga íbúðum úr þremur í fimm, fjölga svölum og fækka útitröppum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Bergstaðastræti.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. júlí 2010 fylgir erindinu sem og umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 21.9. 2010 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 28.9 2010
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Bergstaðastræti 24B (01.184.313) 102052 Mál nr. BN041959
Júlíana Rún Indriðadóttir, Bergstaðastræti 24b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til setja svalir ofan á anddyrisbyggingu með aðgengi frá kvisti á einbýlishúsinu á lóð nr. 24B við Bergstaðastræti. Sbr. erindið BN040178 dags. 13. okt. 2009.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. sept. 2010 fylgir erindinu Kynning stóð yfir frá 9. sept. 2010 til og með 7. okt. 2010 en þar sem samþykki hagsmundaraðila liggur fyrir mótt. 24. sept. 2010 er tillagan lögð fram að nýju.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

11. Blikastaðavegur 2-8 (02.496.101) 204782 Mál nr. BN042099
Stekkjarbrekkur ehf, Smáratorgi 3, 201 Kópavogur
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sem fela í sér að stækka lager P, sameina leigubil B og C, breyta lítillega innréttingum í öðrum bilum og breyta virkisrýmum við innganga í B rými í verslunarhúsi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 21.9. 2010, skiltabókhald dags. 21.9. 2010 og samanburðarskjal yfir breytingar á A3 blöðum.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Einarsnes 64 (01.673.003) 106820 Mál nr. BN042041
Guðbjörg Daníelsdóttir, Einarsnes 64, 101 Reykjavík
Snorri Gunnarsson, Einarsnes 64, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu með þaksvölum á einni hæð úr timbri á steyptum undirstöðum milli íbúðarhúss og bílskúrs og þrjá þakkvisti á einbýlishús á lóð nr. 64 við Einarsnes.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. sept. 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 24. sept. 2010.
Stærðir samtals á lóð fyrir stækkun: 268,8 ferm., 608,1 rúmm.
Stækkun: 17,6 ferm., 93,6 rúmm.
Samtals á lóð eftir stækkun: 286,4 ferm., 701,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.207
Frestað.
Vísað er til umsagnar skipulagstjóra frá 24. september vegna málsins.

13. Fremristekkur 1 (04.612.301) 111774 Mál nr. BN041700
Markús Alexandersson, Fremristekkur 1, 109 Reykjavík
Guðrún Eygló Guðmundsdóttir, Fremristekkur 1, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja nýtt valmaþak, loka innigarði, byggja kaldan gróðurskála og loka bílgeymslu á 1. hæð, einnig að stækka kjallara og koma þar fyrir bílskúr, loka inngangi í stigahús og steypa tröppur á lóðamörkum í og við einbýlishús á lóð nr. 1 við Fremristekk.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 2. júlí 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 2. júlí 2010 og samþykki eigenda Fremristekkjar 3 fyrir frágangi á lóðamörkum sömu leiðis samþykki eigenda Fst. 2, 3, 4 og Gilsárst. 1 og 2.
Stækkun 155,7 ferm., 625,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 48.187
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Fylkisvegur 6-8 (04.364.101) 111277 Mál nr. BN042095
Íþróttafélagið Fylkir,aðalstj, Fylkisvegi 6, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á fyrirkomulagi 3 (lokaball) til skemmtanahalds á 1. hæð í íþróttahúsi Fylkis á lóð nr. 6 við Fylkisveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Gnoðarvogur 84 (01.473.003) 105739 Mál nr. BN041954
Alexander H Depuydt, Gnoðarvogur 84, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka svalir á 1. hæð og byggja sólskála með útgangi í garð þar undir á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 84 við Gnoðarvog.
Jafnframt er erindi BN040324 dregið til baka.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt.
Stækkun: 11,4 ferm., 30,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.372
Frestað.
Lagfæra skráningu.

16. Hafnarstræti 1-3 (01.140.005) 100817 Mál nr. BN042037
BS10 ehf, Þangbakka 8, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss á 1. hæð, í veitingasal á 2. hæð, í kjallara og á útblástursröri frá háfi á 1. hæð í veitingahúsi á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. september 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Hamrahlíð 17 (01.714.101) 107254 Mál nr. BN042080
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að loka svölum á 5. hæð á austurhlið húss, þannig að biðrými við afgreiðslu stækkar í húsi Blindrafélagsins á lóð nr. 17 við Hamrahlíð.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Hlíðarhús 3-7 (02.845.102) 172492 Mál nr. BN041802
Eir,hjúkrunarheimili, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að loka svölum með póstalausum renniglerjum og þaki yfir svölum 0415 við íbúð 0405 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3 - 7 við Hlíðarhús.
Stærðir: 9,7 ferm., 26,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 2041
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Hverafold 1-5 (02.874.201) 110375 Mál nr. BN041980
K - 2 fasteignir ehf, Hörðukór 5, 203 Kópavogur
Gullöldin ehf, Hverafold 5, 112 Reykjavík
Sótt er um að loka milli rýma 0101 og 0102 í mhl. 02 með EI60 lokun sbr. fyrirspurn BN041828 á 1. hæð í verslunarhúsi nr. 5 á lóð nr. 1-5 við Hverafold.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Hverfisgata 18 (01.171.005) 101351 Mál nr. BN041587
Linda Mjöll ehf, Laugavegi 11, 101 Reykjavík
Hverfiseignir ehf, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir veitingastað í flokki III í kjallara og á 1. hæð í húsi á lóð nr. 18 við Hverfisgötu.
Bréf frá arkitekt dags. 26. maí 2010 fylgir, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. júní 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 4. júní 2010 og mótmælum dags. 31. maí 2010. Meðfylgjandi einnig mótmæli dags. 24. júní.2010. Meðfylgjandi er hljóðvistarskýrsla dags. 29. júní.2010, bréf heilbrigðisfulltrúa dags. 2. júlí 2010 og glugga- og glerskoðun byggingarfulltrúa dags. 5. júlí 2010, hljóðvistarskýrsla 2 dags. 7.7.2010
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 16. september 2010 skal umsækjandi leggja fram yfirlýsingar í samræmi við síðustu málsgrein framangr. umsagnar. Telji embætti byggingarfulltrúa yfirlýsinguna fullnægjandi verður að þinglýsa henni fyrir úrgáfu á skriflegu byggingarleyfi.

21. Hverfisgata 52 (01.172.101) 101439 Mál nr. BN036951
Húsfélagið Hverfisgötu 52, Hverfisgötu 52, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þes að setja upp svalir við suðurhlið á 2. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 52 við Hverfisgötu.
Samþykki eigenda Vatnsstígs 4, með skilyrðum, innfært 23. maí 2002 ásamt umsögn brunahönnuðar dags. 21. september 2007 fylgja erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. ágúst 2010 og 24. sept. 2010 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 21. sept. 2010.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsstjóra vegna málsins.
Þinglýsa skal kvöðum og samþykki á báðar lóðir, þ.e. Hverfisgötu 52 og Vatnsstíg 4 svo unnt sé að afgreiða málið.

22. Kjartansgata 9 (01.247.310) 103371 Mál nr. BN042092
Helgi Marinó Þórðarson, Kjartansgata 9, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að saga út gat í burðarvegg í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Kjartansgötu.
Umsögn burðarvirkishönnuða og teikning sem fylgiskjal dags. 16. sept. 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

23. Kleifarsel 26-28 (04.963.402) 113093 Mál nr. BN042091
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum í húsi 1. þar sem heimilisfræðistofa verður endurgerð og nýrri bætt við og breyting á brunahönnun í Seljaskóla á lóð nr. 28 við Kleifarsel.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 21. sept. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

24. Köllunarklettsvegur 8 (01.329.302) 199097 Mál nr. BN041620
Köllunarklettsvegur 8 ehf, Dalvegi 16d, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að koma fyrir átöppunarvél, opna á milli lagers og geymslurýmis, frystiklefi lagður niður og rýmið nýtt til framleiðslu (átöppunar) og settur er upp kolsýrutankur, mhl. 02 við suðvestur enda hússins á lóð nr. 8 við Köllunarklettsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. júní 2010 fylgir erindinu. Reykjavíkurhöfn gerir ekki athugasemd við erindið sbr. tölvupóst.
Stærð kolsýrutankur: 4,2 ferm., 40,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 3.088
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Samþykktin tekur ekki til kolsýrutanks, þar sem breytingu á deiliskipulagi v. hans er ekki lokið. Uppsetning hans er því óheimil fyrr en skipulagsþætti er lokið.

25. Laugarásvegur 13 (01.380.110) 104735 Mál nr. BN041337
Guðný Bjarnadóttir, Laugarásvegur 13, 104 Reykjavík
Helga Þórarinsdóttir, Laugarásvegur 13, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvöfaldan bílskúr við fjölbýlishúsið á lóð nr. 13 við Laugarásveg.
Erindi fylgir þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. í desember 1996 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. sept. 2010.
Bílskúr: 55,7 ferm., 185,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 14.261
Frestað.
Með vísan til bókunar skipulagsstjóra frá 24 sept. 2010 verðir málið sent í grenndarkynningu berist nýir, breyttir uppdrættir.

26. Laugavegur 11 (01.171.011) 101357 Mál nr. BN042069
Eignarhaldsfél Gerðuberg ehf, Bauganesi 30, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum og fyrirkomulagi innanhúss sem felst í að opna áður lokuðum götum milli verslunarrýma á 1. hæð og milli skrifstofurýma á 2. hæð í húsi á lóð nr. 11 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er brunahönnunarskýrsla dags. 14.9. 2010
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Laugavegur 166 (01.242.102) 103032 Mál nr. BN042093
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja anddyrir úr áli og gleri á norðurhlið mhl. 01 og fækka bílastæðum um tvö, og samhliða er bílastæðum fyrir hreyfihamlaða fjölgað um eitt í tvö stæði á lóð 166 við laugaveg.
Bréf frá hönnuði fylgir dags. 21. sept. 2010.
Samþykki meðeigenda fylgir dags. 21. sept. 2010
Stækkun: 14,1 ferm., XX rúmm.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað er til uppdráttar A1.01 - A1.02 dags. 21. sept. 2010.

28. Laugavegur 18B (01.171.502) 101418 Mál nr. BN042049
Laugaverk ehf, Tjarnastíg 20, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum sem sótt var um í erindi BN037148 dags. 6. nóvember 2007 og BN038491 dags. 9. júní 2009, ásamt minni háttar breytingum á innra fyrirkomulagi og flóttastiga sem breytt er úr pallastiga í hringstiga í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 18B við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Laugavegur 21 - Klapp (01.171.108) 101374 Mál nr. BN042059
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjölga gestum í 49 og bæta við salerni fyrir þá á 2. hæð í veitingahúsinu á lóð nr. 21 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

30. Laugavegur 23 (01.172.013) 101435 Mál nr. BN041969
Foldir fasteignaþróunarfél ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Villy Þór Ólafsson, Seljavegur 9, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta verslun og afgreiðslurými í kaffihús með veitingar í fl. II og kaffiveitingasvæði í leiksvæði á 1. hæð í húsi á lóð nr. 23 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 17. sept. 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 14. sept. 2010.Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Lindargata 7 (01.151.104) 100978 Mál nr. BN041136
Ríkissjóður Íslands, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss sem felast í að í kjallara er æfingasal breytt í sýningasal fyrir 96 gesti, á 1. hæð eru stólar fyrir 137 gesti fyrir starfsemi Þjóðleikhússins og fyrirhugaður flóttastigi á vesturhlið og hurð fellt út í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar á lóð nr. 7 við Lindargötu.
Meðfylgjandi er bréf eldvarnahönnuðar dags. 25.5. 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

32. Listabraut 3 (01.721.401) 107289 Mál nr. BN042078
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum sem fela í sér breytingar innandyra, þar á meðal búið til gat í gólfplötu, fjarlægja veggi og breyta salerni í Borgarleikhúsinu á lóð nr. 3 við Listabraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Melgerði 6 (01.815.501) 108023 Mál nr. BN042102
Elín Arndís Gunnarsdóttir, Melgerði 6, 108 Reykjavík
Einar Helgason, Melgerði 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN036577 dags. 10. júní 2008 þar sem samþykkt var að byggja anddyri, til að hækka þak, breyta kvistum og til að byggja bílskúr við einbýlishúsið á lóðinni nr. 6 við Melgerði.
Grenndarkynning stóð frá 23. ágúst til og með 20. september 2007. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir: Stækkun Mhl. 01 33 ferm. og 100,2 rúmm. Mhl. 02 (bílskúr og geymsla) 36 ferm. 86,4 rúmm.
Samtals 69 ferm., 186,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 14.368
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Norðlingabraut 5 (04.734.603) 198279 Mál nr. BN042072
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa stálmastur og byggja mælistöð úr ??? fyrir loftgæðamælingar á lóð fyrir dælustöðvar Orkuveitu Reykjavíkur nr. 5 við Norðlingabraut.
Veitt var stöðuleyfi til eins árs þ. 13.8. 2009 sbr. BN040259.
Stærðir: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Ofanleiti 11-13 (01.744.102) 107430 Mál nr. BN042083
Ágúst Ólafsson, Ofanleiti 13, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svalaskýli með glerþaki og 90#PR opnun á íbúð 0302 í fjölbýlishúsinu nr. 13 á lóð nr. 11-13 við Ofanleiti.
Jákvæð fyrirspurn BN041872 fylgir dags. 17. ágúst 2010.
Samþykki sumra meðeigenda fylgir dags. 30. mars 2010.
Stærðir: XX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Ofanleiti 11-13 (01.744.102) 107430 Mál nr. BN042053
Ingibjörg Pálsdóttir, Ofanleiti 13, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að saga burtu hluta af burðarvegg íbúðar 0102 í fjölbýlishúsinu nr. 13 á lóð nr. 11-13 við Ofanleiti.
Bréf frá burðarvirkishönnuði dags. 22. sept. 2010 fylgir erindinu
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Sigtún 42 (01.367.001) 174753 Mál nr. BN042089
SP Fjármögnun hf, Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfi BN038666 dags. 22. júlí 2008 þar sem farið var fram á að byggja skyggni og setja upp skilti við inngang á NA hlið húss á lóð nr. 42 við Sigtún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda.

38. Skildingatangi 1 (01.675.101) 106899 Mál nr. BN042079
Gunnar I Hafsteinsson, Skildinganes 58, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, einangrað að utan og múrhúðað með steindum mulningi, á einni hæð með geymslu og bílageymslu í kjallara, sbr. fyrirspurn BN040724 og erindi BN041695 sem var synjað 24.8. 2010, á lóð nr. 1 við Skildingatanga.
Stærðir: Kjallari, trappa og geymsla 50,3 ferm., bílgeymsla 56,9 ferm., bílskýli (B rými) 41,2 ferm., samtals kjallari 148,4 ferm. 1. hæð 251,3 ferm., samtals 399,7 ferm., 1.365,8 rúmm.
Nýting: 399,7 frem. - 17,9 (hálfur gluggalaus kjallari) = 381,8 ferm.
deilt með 932 ferm. lóð = nýtingarhlutfall 0,4
Gjald kr. 7.700 + 105.166
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

39. Smiðjustígur 4A (01.171.115) 101381 Mál nr. BN042100
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um tímabundið leyfi til að opna á báðum hæðum yfir í hús á lóð nr. 6 við Smiðjustíg úr húsi á lóð nr. 4A við Smiðjustíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Smiðjustígur 6 (01.171.117) 186664 Mál nr. BN042101
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um tímabundið leyfi til að opna á báðum hæðum yfir í hús á lóð nr. 4A við Smiðjustíg úr húsi á lóð nr. 6 við Smiðjustíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Stangarhylur 7 (04.232.204) 110849 Mál nr. BN042036
BFB ehf, Stangarhyl 7, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum í mhl. 02 af neyðarútgangi þ.e. björgunarop ásamt stálstiga af 2. hæð á suðurhlið hússins á lóð nr. 7 við Stangarhyl.
Ljósmynd af stálstiganum fylgir.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

42. Suðurgata 8A (01.161.105) 101200 Mál nr. BN042055
Valdimar Birgisson, Akrar, 271 Mosfellsbær
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna breytinga á skráningartöflu sem er forsenda fyrir nýjum eignaskiptasamningi fyrir tvíbýlishús á á lóð nr. 8A við Suðurgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Suðurlandsbraut 16 (01.263.102) 103523 Mál nr. BN042096
Vegmúli ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta skilti á austurhlið verslunarhúsnæðisins Vegmúla 2 á lóð nr. 16 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

44. Suðurlandsbraut 4-4A (01.262.001) 103513 Mál nr. BN041654
Hilmarsson ehf, Grensásvegi 26, 108 Reykjavík
Mænir Reykjavík ehf, Lyngási 11, 210 Garðabær
Sótt er um fyrirkomulagsbreytingar í verslunar- og veitingastað á 1. hæð (mhl. 01) í húsi á lóð nr. 4A við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Suðurlandsbraut 66 (01.471.402) 201340 Mál nr. BN042060
Félagsmálaráðuneyti, Tryggvag Hafnarhúsi, 150 Reykjavík
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningum af hjúkrunarheimilinu, sjá erindi BN035113 dags. 12. desember 2006, á lóð nr. 66 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir greinargerð yfir breytingar dags. 2. september 2010.
Leiðréttar stærðir: Minnkar um 1,4 ferm., stækkar um 86,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.691
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

46. Tjarnargata 12 (01.141.306) 100909 Mál nr. BN042094
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum af Tjarnarbíói, matshluta 02 og bakhúsi matshluta 01, sbr. erindi BN039237, á lóð nr. 12 við Tjarnargötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts, sem lýsir þeim breytingum, sem orðið hafa á byggingunni á byggingartímanum og brunahönnunarskýrsla dags. 21.9. 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

47. Torfufell 21-35 (04.686.101) 112342 Mál nr. BN041678
Torfufell 25-35, húsfélag, Torfufelli 33, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir svalalokun á öllum svölum, með þaki á efstu hæð og fyrir verönd á neðstu hæð fjölbýlishússins nr. 25-35 á lóð nr. 21-35 við Torfufell.
Meðfylgjandi er samþykki allra eigenda, nema bara munnlegt eins, sem er í útlöndum og fundargerð húsfélags dags. 28. apríl 2010. Einnig er meðfylgjandi úttektarskýrsla vegna brunavarna dags. 6.9. 2010.
Stærðir: Samtals: 405,2 ferm., 1.084,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 83.476
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

48. Tunguvegur 74 (01.835.103) 108617 Mál nr. BN041947
Gísli Steinar Sighvatsson, Tunguvegur 74, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðum breytingum, grafið út úr geymslu, þvottahús og geymsla fært þangað, komið fyrir nýrri snyrtingu, gluggi stækkaður á suðurhlið og nýr gluggi ásamt ljóskassa sett á norðurhlið í kjallara húss nr. 74 á lóð nr. 66 - 82 við Tunguveg.
Samþykki meðeigenda fylgir ódags.
Bréf frá eiganda fylgir ódags.
Stækkun: 20 ferm., 43 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.311
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

49. Vegbrekkur 9-15 (05.866.601) 216728 Mál nr. BN041956
Hestamannafélagið Fákur, Vatnsendav Víðivöllum, 110 Reykjavík
Harpa Kristjánsdóttir, Búrfell, 320 Reykholt
Sótt er um leyfi til að byggja hesthús úr staðsteypu á lóð nr. 9 við Vegbrekkur.
Stærðir: 1. hæð 272,2 ferm., milliloft 134,1 ferm.,
Samtals 406,3 ferm., 1.365,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 105.143
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Veghúsastígur 7 (01.152.419) 101064 Mál nr. BN042090
Gistiheimilið Dómus ehf, Laugavegi 182, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurskipuleggja gistiheimili á 1. hæð og tvær gistiíbúðir á 2. hæð í húsi á lóð nr. 7 við Veghúsastíg.
Starfsfólk, þjónusta og móttaka er sameiginleg með hóteli á lóð nr. 45 við Hverfisgötu enda í eigu sömu aðila.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Vesturgata 26C (01.132.006) 100196 Mál nr. BN037003
Haukur Ingi Jónsson, Vesturgata 26c, 101 Reykjavík
Hafdís Þorleifsdóttir, Vesturgata 26c, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 11. október 2005 til þess að byggja steinsteyptan kjallara og tvílyfta timburviðbyggingu við vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 26C við Vesturgötu.
Erindi fylgir þinglýst samþykki dags. 14. september 2005.
Stærð: Viðbygging samtals 51,6 ferm., 121,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 8.248
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Vættaborgir 27 (02.343.509) 176316 Mál nr. BN042052
Egill Hjartar, Vættaborgir 27, 112 Reykjavík
Sótt erum leyfi til að setja glugga og hurð á vesturhlið kjallara og innrétta þar fyrir innan í óuppfylltu rými kalda geymslu í einbýlishúsi á lóð nr. 27 við Vættaborgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 24. sept. 2010 fylgir erindinu.
Stærðir fyrir breytingu: 248,7 ferm., 854,2 rúmm.
Stækkun: 7,7 ferm., 20,8 rúmm.
Samtals eftir stækkun: 256,4 ferm., 875,2 rúmm.
Stærð lóðar 527,0 ferm., Nýtingarhlutfall 0,486
Gjald kr. 7.700 + 1.602
Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Lóð er þegar fullbyggð.

Ýmis mál

53. Seiðakvísl 15 (04.215.108) 110816 Mál nr. BN042111
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 21. sept. 2010 var samþykkt endurnýjun á byggingarleyfi vegna sólstofu á lóðinni nr. 15 við Seiðakvísl. Láðist að bóka að samþykkt frá 15. júlí, 1987 681/87, er felld úr gildi, leiðréttist það hér með.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Fyrirspurnir

54. Háagerði 22 (01.817.402) 108149 Mál nr. BN042077
Hannes Jónsson, Háagerði 22, 108 Reykjavík
Guðlaug Kristbjörg Jónsdóttir, Háagerði 22, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 22 við Háagerði.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

55. Hábær 41 (04.353.106) 111247 Mál nr. BN042022
Stefán B Thors, Hábær 41, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að reisa 6,12 ferm. tilbúið gróðurhús á lóð nr. 41 við Hábær. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. sept. 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 23. sept. 2010.
Jákvætt.
Samanber umsögn skipulagsstjóra.

56. Lágholtsvegur 11 (01.520.319) 105938 Mál nr. BN042075
Guðbjörg Gróa Guðmundsdóttir, Lágholtsvegur 11, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir áður gerðum svalapalli sem byggður var árið 1984 við einbýlishúsið á lóð nr. 11 við Lágholtsveg.
Samþykki sumra nágranna fylgir dags.15. sept. 2010
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

57. Norðlingabraut 6 (04.732.601) 204833 Mál nr. BN042034
Jón Hrafn Hlöðversson, Hraunbrún 30, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyft yrði að byggja aðstöðu fyrir rekstur langferðabíla á lóð nr. 6 við Norðlingabraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. sept. 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 20. sept. 2010.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi þar sem fullt tillit verður tekið til ábendinga skipulagsstjóra

58. Næfurás 13-17 (04.381.203) 111475 Mál nr. BN042071
Sigrún Inga Clariot, Næfurás 17, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja svalalokun á fjölbýlishúsnæðið nr. 17 á lóð nr. 13 - 17 við Næfurás.
Teikning af svalalokun fylgir dags. 25. okt. 1988.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi, og því fylgi samþykki allra meðeigenda.

59. Skipasund 39 (01.358.207) 104484 Mál nr. BN042076
Þorleifur Vagnsson, Skipasund 39, 104 Reykjavík
Spurt er hvort risíbúð sé samþykkt í fjölbýlishúsnæðinu á lóð nr. 39 við Skipasund.
Íbúðin var samþykkt sem áður gerð íbúð 10. mars 1988.

60. Skúlagata 28 (01.154.304) 101119 Mál nr. BN042070
Magnús Albert Jensson, Langagerði 88, 108 Reykjavík
Spurt er hvort innrétta megi iðnaðarhús í gistiskála, kaffihús og líkamsræktarstöð á 2., 3. og 4. hæð hússins á lóð nr. 28 við Skúlagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. sept. 2010 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi. Vakin er athygli á athugasemdum heilbrigðiseftirlits á fyrirspurnarblaði.

61. Sundaborg 8 (01.336.702) 172376 Mál nr. BN042010
Thomas Jan Stankiewicz, Blikanes 24, 210 Garðabær
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta félagsheimili í vörugeymslunni á lóð nr. 8 við Sundaborg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 24. sept. 2010 og umsögn skipulagsstjóra dags. 22. sept. 2010 fylgja erindinu.
Nei.
Með vísan til meðfylgjandi umsagna.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 12:15.
Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson
Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir
Jón Hafberg Björnsson
Þórður Búason
Guðfinna Ósk Erlingsdóttir
Eva Geirsdóttir