Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 203

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2017, miðvikudaginn 13. september kl. 9.07, var haldinn 203. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Kerhólar.Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Sigurborg Ó Haraldsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Sævar Þór Jónsson áheyrnarfulltrúi. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Sigurðsson, Þorsteinn Hermannsson, Kolbrún Jónatansdóttir, Stefán Finnsson, Kristinn Jón Eysteinsson, Þorgeir Þorbjörnsson, Björg Helgadóttir, Ólafur Ingibergsson, Nils Schwarzkopp, Auður Ólafsdóttir Hrefna Þórsdóttir og Marta Grettisdóttir.

Fundarritari er Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerðir   Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, dags.  8. september 2017.

(B) Byggingarmál

2. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerðir   Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð,

afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 940 frá 12. september 2017.

(E) Umhverfis- og samgöngumál

3. Yfirlitskynning, staða verkefna   Mál nr. US170262

Lagt fram og kynnt minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra dags. 17. maí 2017 varðandi helstu samgönguverkefni verkefni sviðsins sem eru í vinnslu og helstu verkefni næstu missera.

Kynnt.

- Kl. 9.16 tekur Torfi Hjartarson sæti á fundinum. 

- Kl. 9.18 tekur Sverrir Bollason sæti á fundinum.

4. Framkvæmdayfirlit,    Mál nr. US170263

Kynnt staða mála sem eru í vinnslu hjá skrifstofu framkvæmda og viðhalds,  einnig er kynnt staða útboðsmála haustið 2017

Kynnt.

Ámundi V. Brynjólfsson skrifstofustjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.

5. Umferðaröryggi gangandi og hjólandi umferðar í nágrenni gatnamóta Kring, öryggi gangandi vegfarenda   Mál nr. US170265

Lögð fram og kynnt skýrsla  VHS dags. 25. júlí 2017 varðandi öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda  í nágrenni gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.

Kynnt.

Haraldur Sigþórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

6. Sundlaugarvegur, hjólastígar   Mál nr. US170266

Kynntar mögulegar útfærslur á hjólastíg við Sundlaugarveg. 

Kynnt.

Guðbjörg Lilja Erlendadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

7. Hjólahraðbraut í Reykjavík,    Mál nr. US170268

Lögð fram skýrsla og kynnt rannsóknarverkefni Verkís dags. ágúst 2017 varðandi hjólahraðbraut á höfuðborgarsvæðinu. 

Kynnt.

Berglind Hallgrímsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

8. Fluglestin, kynning   Mál nr. US170207

Kynnt staða vinnu vegna undirbúnings fluglestarinnar til Keflavíkurflugvallar.

Kynnt.

Runólfur Ágústsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

9. Bílastæðasjóður, kynning, stefnumótun   Mál nr. US170259

Kynnt starfsemi bílastæðasjóðs. 

Kynnt.

Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

10. Ástandsgreining umferðar á höfuðborgarsvæðinu, ástandsgreining   Mál nr. US170271

Kynnt drög að niðurstöðum ástandsgreiningar umferðar á höfuðborgarsvæðinu.

Kynnt.

Lilja Karlsdóttir og Anna Guðrún Stefánsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

11. Umferðarspár vegna breytinga á svæðiskipulagi höfuðborgarsvæðisins,    Mál nr. US170272

Kynnt umferðarspá  til 2030 vegna breytinga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

Kynnt.

Smári Ólafsson  tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

12. Sundabraut,    Mál nr. US170283

Yfirlitskynning

Kynnt.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

13. Sundabraut í botngöngum,    Mál nr. US170274

Lögð fram og kynnt skýrsla Mannvits dags. 31. ágúst 2017 sem er samantekt á heimildum um botngöng og fyrri hugmyndum um þverun Kleppsvíkur.

Kynnt.

Ólöf Kristjánsdóttir og Einar Ragnarsson tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

14. Hjólateljarar í Reykjavík,    Mál nr. US170267

Kynntir nýjir hjólateljarar í Reykjavík og tölfræði.

Frestað.

15. Umferðaröryggi í borginni, slysatölfræði   Mál nr. US170282

Kynnt slysatölfræði og þróun mála er varðar umferðaröryggi í borginni.

Frestað.

16. Viðskiptamódel og þjónustulíkan fyrir rafhleðslustöðva uppbyggingu,    Mál nr. US170276

Lögð fram og kynnt skýrsla rannsóknarhóps Snjallborgarinnar Reykjavík dags. ágúst 2017 varðandi viðskiptamódel fyrir rafhleðslustöðvar.

Kynnt.

Kristinn Jón Ólafsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

17. Viðmið fyrir rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla.,    Mál nr. US170277

Lögð fram og kynnt tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða dags. 11. september 2017 að viðmiðum fyrir rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla.

Samþykkt

Vísað til borgarráðs.

Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

18. Uppbygging innviða fyrir rafbíla í Reykjavík,    Mál nr. US170290

Lögð fram og kynnt tillaga umhverfis- og skipulagssviðs,  skrifstofu umhverfisgæða dags. 11. september 2017 varðandi næstu skref við uppbyggingu innviða fyrir rafbíla í Reykjavík.

Samþykkt

Vísað til borgarráðs.

Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

19. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, heimsókn   Mál nr. US170278

Fulltrúar Félags Íslenskra bifreiðaeigenda kynna starfsemi FÍB. 

Kynnt.

Runólfur Ólafsson og Bogi Auðarson taka sæti á fundinum undir þessum lið .

20. Moving Reykjavik,    Mál nr. US170279

Kynning á verkefninu  Moving Reykjavík

Frestað.

Fundi slitið kl. 14.45

Hjálmar Sveinsson

Magnea GuðmundsdóttirSverrir Bollason

Torfi Hjartarson Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Áslaug María Friðriksdóttir Herdís Anna Þorvaldsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2017, þriðjudaginn 12. september kl. 10:00 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 940. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Harri Ormarsson, Nikulás Úlfar Másson, Olga Hrund Sverrisdóttir, Karólína Gunnarsdóttir, Óskar Torfi Þorvaldsson og Jón Hafberg Björnsson

Fundarritari var Harri Ormarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Akrasel 17  (04.943.012) 113012 Mál nr. BN053456

Sæmundur Stefánsson, Akrasel 17, 109 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að steypa verönd við suðvesturhlið einbýlishúss á lóð nr. 17 við Akrasel.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Álfab. 12-16/Þönglab.  (04.603.503) 111722 Mál nr. BN053422

Arnar ehf., Smiðjuvegi 40d, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að skipta kjallara upp í tvær eignir og breyta að hluta til sameignarrýmum í séreignarrými í húsi á lóð nr. 14 við Álfabakka.

Samþykki meðeigenda dags. 31.08.2017 fylgir erindi.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Álfheimar 74  (01.434.301) 105290 Mál nr. BN053444

Húsfélagið Glæsibæ, Pósthólf 8940, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að klæða að utan eldri hluta Glæsibæjar, mhl.01, en búið er að klæða aðra hluta hússins, á lóð nr. 74 við Álfheima.

Samþykki húsfélagsfundar dags. 15.09.2016 fylgir erindi ásamt umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 04.09.2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Bíldshöfði 9  (04.062.001) 110629 Mál nr. BN053491

Opus fasteignafélag ehf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta verslun og breyta inngangi milli módulína W og T í rými 0101 í húsi á lóð nr. 9 við Bíldshöfða.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Dragháls 18-26  (04.304.304) 111022 Mál nr. BN053473

Lóuþing ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050004, 3. hæð er breytt í fjögur rými, útliti norðurhliðar breytt, byggð milliloft í rýmum 0301 og 0304, sprinklerrými stækkað og flóttaleiðum og brunavörnum breytt í atvinnuhúsi á lóð nr. 18-26 við Dragháls.

Stækkun:  milliloft 152,5 ferm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

6. Efstaleiti 4  (01.745.301) 224637 Mál nr. BN053226

Skuggi 4 ehf., Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja 2 fjölbýlishús, mhl. 01 og 04, með alls 78 íbúðum á lóð nr. 4 við Efstaleiti.

Stærðir:

Mhl. 01 A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Mhl. 04 A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Erindi fylgja varmatapsútreikningar dags. 25.08.2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Efstaleiti 4  (01.745.301) 224637 Mál nr. BN053223

Skuggi 4 ehf., Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja 2 fjölbýlishús, mhl. 02 og 03 með alls 50 íbúðum, ásamt bílakjallara, mhl. 05 með 82 bílastæðum, á lóð nr. 4 við Efstaleiti.

Stærðir:

Mhl. 02 A-rými 2.988,9 ferm., 9.502,5 rúmm. B-rými 124,6 ferm., 361,3 rúmm.

Mhl. 03 A-rými 1.231,2 ferm., 3.962,6 rúmm. B-rými 33,9 ferm., x rúmm.

Mhl. 05 A-rými 2.876,0 ferm., 8.729,7 rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Fannafold 223  (02.852.206) 109995 Mál nr. BN053483

Hrönn Norðdahl, Fannafold 223, 112 Reykjavík

Elís Rúnar Víglundsson, Fannafold 223, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem eru í samræmi við eldra erindi BN040311 í húsi á lóð nr. 223 við Fannafold.

Samþykki meðeigenda er áritað á byggingarleyfisumsókn.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Faxafen 5  (01.463.301) 105673 Mál nr. BN053406

Reitir - verslun ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta í rými norðurhluta 2. hæðar úr skrifstofum í snyrtistofu og eru breytingar tilgreindar í byggingarlýsingu á teikningum fyrir húsið á lóð nr. 5 við Faxafen.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

10. Fiskislóð 23-25  (01.089.202) 209680 Mál nr. BN053472

FF 11 ehf., Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík

VSP ehf, Klapparstíg 3, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja upp geymslukerfi ofan á núverandi geymslur 1. hæðar ásamt því að koma fyrir öðrum flóttahringstiga á gafli og gera nýjan glugga á vesturhlið í húsi á lóð nr. 23-25 við Fiskislóð.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Fossaleynir 1  (02.456.101) 190899 Mál nr. BN053440

Knatthöllin ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

Sótt er um breytingar á erindi BN052523 sem felast í því að byggð er 380 ferm. viðbygging við norðurhlið áfanga 6 ásamt 100 ferm. tæknirými á 2. hæð, nýr inngangur gerður á tengigang og íþróttasalur hannaður fyrir 2500 manna samkomur auk þess sem stálburðarvirki þaks í sal er breytt í íþróttahúsinu Egilshöll á lóð nr. 1 við Fossaleyni.

Stækkun A-rými 522,4 ferm. , 3.551,1 rúmm.

Erindi fylgja greinargerð um brunahönnun dags. ágúst 2017, minnispunktar brunahönnuðar varðandi tækifærisskemmtanir dags. 22.08.2017 og bréf hönnuðar dags. 22.08.2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

12. Frakkastígur 9  (01.173.029) 101516 Mál nr. BN053119

STS ISLAND ehf., Laugavegi 51, 101 Reykjavík

Aurora Arctica ehf., Mýrarseli 6, 109 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III tegund C í kjallara, til að lækka hluta gólfs um 70 cm til að ná löglegri hæð og verður þar komið fyrir eldhúsi og snyrtingum, veitingastaður og opið eldhús verður á fyrstu hæð og geymslur og skrifstofur á annarri hæð í einbýlishúsi á lóð nr. 9 við Frakkastíg.

Umboð frá eiganda dags. 27. júní 2017, umsögn skipulags dags. 28. október 2017, bréf hönnuðar  um breytingar dags. 29. ágúst 2017, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. ágúst 2017 og hljóðvistaskýrsla dags. 28. ágúst 2017 fylgja erindi.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. september 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2017.

Stækkun: xx rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Freyjubrunnur 13  (02.695.705) 205729 Mál nr. BN053435

Þver ehf., Skipholti 50B, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða steinsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 13 við Freyjubrunn.

Stærð, A-rými:  237,5 ferm., 732 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Freyjubrunnur 33  (02.693.805) 205736 Mál nr. BN053503

Fagmót ehf., Laufbrekku 3, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN051256 er varðar byggingalýsingu, brunatexta, innri breytingar og hætt er við op við aðalinngang í hús á lóð nr. 33 við Freyjubrunn.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Grandagarður 11  (01.115.206) 100053 Mál nr. BN053449

Reykjavík Napólí ehf., Hverfisgötu 50, 101 Reykjavík

Grandagarður ehf., Sæviðarsundi 96, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN052968 þannig að breytt er staðsetning á handlaug, ræstiskáp í eldhúsi og brunaslöngu á jarðhæð, starfsmannaherbergi og lagerrými stækkað og grafið verður frá björgunaropi í staðinn fyrir að steypa tröppur á húsinu á lóð nr. 11 við Grandagarð.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

16. Grenimelur 8  (01.541.308) 106338 Mál nr. BN053153

Hrefna Ólafsdóttir, Grenimelur 8, 107 Reykjavík

Stefán Sigurðsson, Grenimelur 8, 107 Reykjavík

ASK Arkitektar ehf., Geirsgötu 9, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka og endurgera þakhæð ásamt því að setja nýjar svalir á 1. og 2. hæð í húsi á lóð nr. 8 við Grenimel.

Sjá erindi BN052433.

Stækkun: 80,2 ferm., 145,8 rúmm.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. mars 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. mars 2017.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. september 2017 fylgir erindinu. Erindi var grenndarkynnt frá 3. ágúst 2017 til og með 31. ágúst 2017 fyrir hagsmunaaðilum að Grenimel 5, 6, 7, 9, 10 og Reynimel 25, 27, 29. Engar athugasemdir bárust.

Gjald kr. 0

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Grettisgata 53B  (01.174.227) 101630 Mál nr. BN053099

Aurora ehf, Sunnuvegi 11, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem gerð er grein fyrir íbúð í kjallara og íbúðum þannig fjölgað úr fimm í sex og til að innrétta gististað í flokki II, teg. g í húsi á lóð nr. 53B við Grettisgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. september 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Hafnarstræti 19  (01.118.503) 100099 Mál nr. BN053494

Suðurhús ehf., Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048059 þannig að verslunarrými 0101 er skipt upp, salernum fjölgað, útihurðum á suðurvestur hlið er víxlað og fjölgað er útihurðum á norðausturhlið hússins á lóð nr. 19 við Hafnarstræti.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Hagatorg 3  (01.552.401) 106511 Mál nr. BN053498

Háskólabíó, Hagatorgi, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja rekstrarleyfi fyrir veitingasölu í flokki II í anddyri Háskólabíós á lóð nr. 3 við Hagatorg.

Bréf hönnuðar dags. 5. sept. 2017, bréf frá skrifstofustjóra borgarstjórnar dags. 22. ágúst 2017, áður gefið leyfi til áfengisveitinga frá 6. júní 2007 og leyfisbréf frá frá 6. júní 2007 með gildistíma til 1. maí 2009 fylgja með erindinu .

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Haukdælabraut 118  (05.113.303) 214828 Mál nr. BN053496

Hilmar Karlsson, Bakkastaðir 61, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr forsteyptum einingum, hæð með innbyggðri bílgeymslu og kjallara undir hluta á lóð nr. 118 við Haukdælabraut.

Stærð, A-rými:  329,5 ferm., 1.280,3 rúmm.

B-rými:  20,5 ferm.

Samtals:  350 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Haukdælabraut 68  (05.114.803) 214810 Mál nr. BN053067

Hrafnkell Markússon, Marteinslaug 7, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, neðri hæð er steinsteypt og efri hæð úr Ytong kubbum, á lóð nr. 68 við Haukdælabraut.

Stærðir: A-rými 333,5 ferm., 1.999,8 rúmm. B-rými 4,2 ferm., 12,3 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Hólmgarður 14  (01.818.207) 108195 Mál nr. BN051616

Birkir Hrafn Jóakimsson, Hólmgarður 14, 108 Reykjavík

Jóhanna Vilborg Ingvarsdóttir, Hólmgarður 14, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til hækka ris, gera kvisti á norður og suðurhlið risíbúðar og svalir á suðurhlið ásamt því að opna út í garð frá íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 14 við Hólmgarð.

Stækkun: A-rými x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

23. Hraunteigur 3  (01.360.205) 104520 Mál nr. BN053466

Stefán Jökull Sveinsson, Furuhjalli 1, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða einbýlishús með sambyggðri bílgeymslu á lóð nr. 3 við Hraunteig.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. september 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2017.

Stærð, A-rými:  361 ferm., 1.221,4 rúmm.

B-rými:  44,3 ferm., xx rúmm.

Samtals:  405,3 ferm. xx rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2017.

24. Hverfisgata 71  (01.153.211) 101107 Mál nr. BN053481

Sigurgeir Sigurjónsson, Bárugata 18, 101 Reykjavík

Sigurgeir Sigurjónsson ehf., Hverfisgötu 71, 101 Reykjavík

Sótt er um breytingar á erindi BN044092 vegna lokaúttektar í húsi á lóð nr. 71 við Hverfisgötu.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Kirkjustétt 2-6  (04.132.201) 188525 Mál nr. BN053479

Ellert Róbertsson, Vogatunga 23, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, fjölga eignum, innrétta  fjórar sjálfstæðar vinnustofur með kaffi- og salernisaðstöðu sbr. áður samþykkt erindi BN049598  í húsi á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.

Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 30. ágúst 2017 og samþykki meðeigenda í mhl. 03 dags. 5. september 2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Langholtsvegur 138  (01.441.104) 105426 Mál nr. BN053138

Jón Benjamín Einarsson, Langholtsvegur 138, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýtt anddyri úr tré klætt með stálklæðningu  á norðurhlið og byggja sólskála á suðurhlið hússins og einnig er gerð grein fyrir gróðurhúsi, pöllum og heitum potti á lóð nr. 138 við Langholtsveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. september 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2017.

Stækkun anddyri og sólstofu: 30,8 fem., 87,9 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Synjað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2017.

27. Laugavegur 38  (01.172.219) 101474 Mál nr. BN052973

Grjótagata ehf., Pósthólf 738, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður gerðum íbúðum 0201 og 0301 í gististað í fl. II tegund e í húsi á lóð nr. 38 við Laugaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. maí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2917.

Erindi BN052669 er dregið til baka.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Lokastígur 13  (01.181.416) 101806 Mál nr. BN053390

Jón Gunnar Jónsson, Tjarnargata 10a, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á suðvesturhorn þaks og koma fyrir tveimur þakgluggum, sbr. áður samþykkt erindi BN049021 þann 28. apríl 2015, í tvíbýlishúsi á lóð nr. 13 við Lokastíg.

Erindi fylgir samþykki meðeiganda dags. 6. september 2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Nýlendugata 19C  (01.131.206) 100175 Mál nr. BN053490

Þórður Bragi Jónsson, Vogsholt 11, 675 Raufarhöfn

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN051682 þannig að hætt er við baðherbergi á annarri hæð og það rými breytt í geymslu, salerni og sturta flutt á fyrstu hæð og hætt er við glugga á vesturhlið og gluggi settur á norðurhlið á húsi á lóð nr. 19C við Nýlendugötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Nönnugata 10  (01.186.501) 102286 Mál nr. BN053489

Aðalsteinn Jörundsson, Nönnugata 10, 101 Reykjavík

Catharine Alexandria Fulton, Nönnugata 10, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að færa inngang og gera glugga á horn einbýlishúss, mhl. 01 á lóð nr. 10 við Nönnugötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Sogavegur 73-75  (01.811.201) 107823 Mál nr. BN052684

S73-77 ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

SV737 ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 3ja hæða fjölbýlishús, auk kjallara, með 19 íbúðum á lóð nr. 73-75 við Sogaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. ágúst 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2017.

Stærðir:

A-rými: 2.526,9 ferm., 8.692,2 rúmm.

B-rými: 16,2 ferm., 51,9 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Sólvallagata 2  (01.160.314) 101176 Mál nr. BN053169

Andri Már Ingólfsson, Sviss, Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða viðbyggingu með þaksvölum á bakhlið, nýjan kvist einnig á bakhlið, skýli fyrir reiðhjól við bílskúr, breikka kjallaraglugga og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 2 við Sólvallagötu.

Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 4. júlí 2017, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. apríl 2017 og bréf hönnuðar dags. 5. júlí 2017.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. ágúst 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2017.

Stækkun:   37,6 ferm., 107,5 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Spóahólar 12-20  (04.648.101) 111997 Mál nr. BN053475

Spóahólar 16-20,húsfélag, Pósthólf 8940, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN050465 þannig að hætt er við að setja upp svalaskýli sem átti að koma fyrir í fjórum íbúðum 0302 og 0303 í mhl. 03, á íbúð 0202 í mhl. 04 og á íbúðum 0101, 0201, 0202 og 0301 í mhl. 05 í fjölbýlishúsinu nr. 16-20 á lóð nr. 12-20 við Spóahóla.

Bréf frá fundi stjórna húsfélags Spóahóla 16 til 18 ódags.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Stigahlíð 81  (01.732.203) 107375 Mál nr. BN053497

Dóra Hjálmarsdóttir, Stigahlíð 81, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja sólskála á suðurhlið húss, koma fyrir glugga og hurð á suðurhlið, byggja sólpall og koma fyrir heitum potti og skyggni fyrir ofan skála verður fjarlægt á húsinu á lóð nr. 81 við Stigahlíð.

Samþykki frá eigendum húsa Stigahlíð nr. 79, nr. 83, nr. 91 og  nr. 93 fylgir erindinu dags. 31. ágúst  2017.

Stækkun : 16,1 ferm., 43,5 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

35. Tryggvagata 22  (01.140.004) 100816 Mál nr. BN053426

Starri Hauksson, Túngata 42, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, innrétta matsölustað í flokki l - tegund c (auk veitingastaðar í flokki lll - tegund b sem fyrir er), færa til flóttadyr út á svalir, gera útigasgeymslu og útblástursrör frá háfi í húsi á lóð nr. 22 við Tryggvagötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Tunguháls 19  (04.327.002) 111052 Mál nr. BN053405

Húsfélagið Tunguhálsi 19, Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050503 v/lokaúttektar þar sem fram kemur lítilsháttar breyting á innra skipulagi fyrstu hæðar og breytingar á texta um brunavarnir í húsi á lóð nr. 19 við Tunguháls.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Víðimelur 32  (01.540.027) 106244 Mál nr. BN053389

Jóhanna Jónsdóttir, Dyngjuvegur 6, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 32 við Víðimel.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

38. Víðimelur 56  (01.540.015) 106232 Mál nr. BN052857

Karen Lind Ólafsdóttir, Víðimelur 56, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr á lóð, lækka gólf í kjallara og byggja þar anddyri ásamt því að breyta innra fyrirkomulagi í húsi á lóð nr. 56 við Víðimel sem meðal annars fellst í gerð íbúðar í kjallara.

Stækkun A-rými 49,7 ferm., 163,6 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Vínlandsleið 16  (04.111.602) 208324 Mál nr. BN053493

Vínlandsleið ehf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta mötuneyti á þriðju hæð, mötuneyti og sýningarsal á annarri hæð er breytt í skrifstofur og verkstæði, lager breytt í skrifstofurými, bílastæðum fatlaðra fækkað, breyta lager í  aðstöðu fyrir hjálpatæki og koma fyrir starfsmannaðstöðu í húsinu á lóð nr. 16 við Vínlandsleið.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Vættaborgir 31  (02.343.511) 176320 Mál nr. BN051440

Þórður Þórisson, Vættaborgir 31, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka eldhús til suðurs á inngönguhæð einbýlishússins á lóð nr. 31 við Vættaborgir.

Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 7. nóv. 2016 og samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða dags. 26. okt. 2016 fylgir.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. nóvember 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2016.

Stækkun : 7,7 ferm., 17,7 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

Ýmis mál

41. Bæjarflöt 9   Mál nr. BN053515

Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna tvær nýjar lóðir, Bæjarflöt 9 (staðgr. 2.576.004, landnr. 225815) og Gylfaflöt 15 (staðgr. 2.576.005, landnr. 225816).

Lóðin Bæjarflöt 9 er stofnuð með því að taka 1615 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221447).

Lóðin Bæjarflöt 9 (staðgr. 2.576.004, landnr. 225815) verður 1615 m2.

Lóðin Gylfaflöt 15 er stofnuð með því að taka 1615 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221447).

Lóðin Gylfaflöt 15 (staðgr. 2.576.005, landnr. 225816) verður 1615 m2.

Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í borgarráði þann 08.12.2016, og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 27.01.2017.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.

42. Efstaleiti 2  (01.745.201) 224636 Mál nr. BN053514

Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin sem nú er skráð sem Efstaleiti 2, landnúmer 224636 verði tölusett sem Efstaleiti 16.

Jafnframt er lagt til að staðföng á lóðinni verði sem hér segir:

Staðfang matshluta 01 verði Efstaleiti 16.

Staðföng matshluta 02 verði Efstaleiti 18, 20, 22 og 24.

Staðfang matshluta 03 verði Vörðuleiti 2.

Staðföng matshluta 04 verði Lágaleiti 6, 8 og 10.

Staðföng matshluta 05 verði Lágaleiti 2 og 4.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

43. Efstaleiti 2A  (01.745.204) 224642 Mál nr. BN053517

Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin Efstaleiti 2A, landnúmer 224642 verði tölusett sem Efstaleiti 16A.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

44. Efstaleiti 2B  (01.745.205) 224643 Mál nr. BN053518

Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin Efstaleiti 2B, landnúmer 224643 verði tölusett sem Efstaleiti 16B.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

45. Efstaleiti 2C  (01.745.202) 224639 Mál nr. BN053519

Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin Efstaleiti 2C, landnúmer 224639 verði tölusett sem Efstaleiti 16C.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

46. Efstaleiti 2D  (01.745.203) 224640 Mál nr. BN053520

Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin Efstaleiti 2D, landnúmer 224640 verði tölusett sem Efstaleiti 16D.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

47. Geirsgata 9  (01.117.309) 100088 Mál nr. BN053510

Kaldidalur ehf., Stangarhyl 5, 110 Reykjavík

Elding veitingar ehf., Geirsgötu 9, 101 Reykjavík

Lagfærð bókun, veitingastaður í flokki III.

Við samþykkt á byggingarleyfisumsókn BN049228 að Geirsgötu 9 var tilgreint að veitingastaður væri í flokki II en ekki í flokki III sbr. byggingarlýsingu og umsögn skipulagsfulltrúa. Rétt bókun með erindi er:

Sótt er um leyfi til að stækka veitingastað í flokki III og að bæta rými 0102 sem áður var verslun við og innrétta þar bar og koma fyrir útipalli fyrir útiveitingar og betrumbæta ræstingu í kjallara í húsinu á lóð nr. 9 við Geirsgötu.

Afgreitt.

48. Gylfaflöt 15   Mál nr. BN053516

Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna tvær nýjar lóðir, Bæjarflöt 9 (staðgr. 2.576.004, landnr. 225815) og Gylfaflöt 15 (staðgr. 2.576.005, landnr. 225816).

Lóðin Bæjarflöt 9 er stofnuð með því að taka 1615 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221447).

Lóðin Bæjarflöt 9 (staðgr. 2.576.004, landnr. 225815) verður 1615 m2.

Lóðin Gylfaflöt 15 er stofnuð með því að taka 1615 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221447).

Lóðin Gylfaflöt 15 (staðgr. 2.576.005, landnr. 225816) verður 1615 m2.

Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í borgarráði þann 08.12.2016, og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 27.01.2017.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.

49. Nauthólsvegur 79   Mál nr. BN053508

Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna tvær nýjar lóðir, Nauthólsveg 79 (staðgr. 1.754.201, landnr. 225876) og Nauthólsveg 81 (staðgr. 1.754.202, landnr. 225877).

Lóðin Nauthólsvegur 79 er stofnuð með því að taka 5164 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221488).

Lóðin Nauthólsvegur 79 (staðgr. 1.754.201, landnr. 225876) verður 5164 m2.

Lóðin Nauthólsvegur 81 er stofnuð með því að taka 4953 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221488).

Lóðin Nauthólsvegur 81 (staðgr. 1.754.202, landnr. 225877) verður 4953 m2.

Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 30.01.2017, samþykkt í borgarráði þann 09.02.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 27. 03. 2017.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.

50. Nauthólsvegur 81   Mál nr. BN053509

Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna tvær nýjar lóðir, Nauthólsveg 79 (staðgr. 1.754.201, landnr. 225876) og Nauthólsveg 81 (staðgr. 1.754.202, landnr. 225877).

Lóðin Nauthólsvegur 79 er stofnuð með því að taka 5164 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221488).

Lóðin Nauthólsvegur 79 (staðgr. 1.754.201, landnr. 225876) verður 5164 m2.

Lóðin Nauthólsvegur 81 er stofnuð með því að taka 4953 m2 úr óútvísaða landinu (landnr. 221488).

Lóðin Nauthólsvegur 81 (staðgr. 1.754.202, landnr. 225877) verður 4953 m2.

Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 30.01.2017, samþykkt í borgarráði þann 09.02.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 27. 03. 2017.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.

Fyrirspurnir

51. Vesturgata 52  (01.130.211) 100134 Mál nr. BN053453

Vignir Már Lýðsson, Tungubakki 10, 109 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að fá samþykkta áður gerða íbúð í kjallara sem er í fasteignaskrá Þjóðskrár skráð sem geymsla í húsinu á lóð nr. 52 við Vesturgötu.

Frestað.

Óska skal eftir íbúðaskoðun hjá embætti byggingarfulltrúa.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 11.50

Harri Ormarsson

Nikulás Úlfar Másson Jón Hafberg Björnsson

Óskar Torfi Þorvaldsson Karólína Gunnarsdóttir

Olga Hrund Sverrisdóttir