Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 189

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 9.05, var haldinn 189. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Brynjar Fransson, Torfi Hjartarson, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Bjarnason, Ágúst Jónsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Þormar, Lilja Grétarsdóttir, Björn Ingi Edvardsson og Bragi Bergsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 30. október 2009.

2. Klapparstígur 17, breyting á deiliskipulagi (01.152.4) Mál nr. SN090321
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson, Kjartansgata 10, 105 Reykjavík
Kjartan Ólafur Sigurðsson, Grundarhvarf 17, 203 Kópavogur
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Hafsteins Gunnars Hafsteinssonar dags. 10. september 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðarinnar nr. 17. við Klapparstíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit samkvæmt uppdrætti es Teiknistofunnar dags. 20. ágúst 2009. Tillagan var grenndarkynnt frá 18. sept. til og með 16. okt. 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Seth, dags, 17. sept. 2009, Guðmundur Pétursson og Jóna E. Jónsdóttir, dags. 16. okt. 2009 og Gyða Jónsdóttir, dags. mótt. 19. október 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 29. október 2009.

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra og með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók sæti á fundinum kl. 9:11

3. Húsahverfi svæði C, (02.84) Mál nr. SN090006
breyting á skilmálum vegna húsagerðar E8 og E9
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. janúar 2009 breytt 2. júní 2009 að breytingu á skilmálum deiliskipulags #GLHúsahverfi Grafarvogur III svæði C#GL, vegna húsagerðarinnar E8 og E9. Breytingin felst í því að hækkun heimildar vegna hámarks byggingarmagns og heimildum til útbygginga er breytt. Tillagan var auglýst frá 2. febrúar til og með 16. mars 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Lex Lögmannstofa f.h. eigenda að Suðurhúsum 2, dags. 17. febrúar 2009 og 12. mars, Björn Z. Ásgrímsson og Jónína Sóley Ólafsdóttir, dags. 16. mars 2009. Einnig er lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarsviðs dags. 10. ágúst 2009 og ný tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 10. ágúst 2009 að breytingu á skilmálum deiliskipulags #GLHúsahverfi Grafarvogur III svæði C#GL, vegna húsagerðarinnar E8 og E9.
Tillagan var auglýst frá 26. ágúst til og með 7. október 2009.
Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Björn A. Bjarnason og Sigurbjörg Hjörleifsdóttir dags. 3. október, Ólafur Bergmann, 3. október, Bryndís Helgadóttir og Baldur P. Erlingsson, dags. 4. október, Elvar M. Ríkharðsson og Valgerður Hilmarsdóttir, dags. 4. október, Lex lögmansstofa, dags. 5. október, Elísabet H. Einarsdóttir og Reynir Elíeserson, dags. 5. október, Bjarni Snorrason og Kristín L. Steingrímsdóttir, dags. 6. október, Guðjón Þorbjörnsson og Christine Savard, dags. 8. október 2009, Inga M. Guðmundsdóttir og Elvar Hallgrímsson, dags. 7. október 2009, einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 14. október 2009.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Júlíusi Vífli Ingvarssyni , Ragnari Sæ Ragnarssyni , og fulltrúum Framsóknarflokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Brynjari Franssyni.

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs; Torfi Hjartarson og fulltrúar Samfylkingarinnar Stefán Benediktsson, og Björk Vilhelmsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

4. Sólvallagata 67, breyting á deiliskipulagi v/ boltagerði(01.138.2) Mál nr. SN090382
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 28. október 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarskóla. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir boltagerði við Vesturbæjarskóla samkvæmt uppdrætti, dags. 28. október 2009.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

5. Nauthólsvík, breyting á deiliskipulagi svæði C (01.68) Mál nr. SN090383
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs dags. 29. október 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nauthólsvíkur vegna svæði C, stríðsminjasafns. Í breytingunni felst breyting á lóðarmörkum samkvæmt uppdrætti Landmótunar dags. 12. júní 2009.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð. Ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni Reykjavíkurborgar.

6. Öskjuhlíð, göngu- og hjólastígar (01.76) Mál nr. SN090381
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lögð fram umsókn Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur dags. 28. október 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Öskjuhlíðar vegna göngu- og hjólastíga frá Nauthólsvík til að Suðurhlíðum samkvæmt uppdrætti Landmótunar dags. 22. september 2009.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vék af fundi kl. 9:58 og tók Ásgeir Ásgeirsson sæti á fundinum í hans stað.

7. Urðarstígsreitir, (01.186) Mál nr. SN070727
tillaga að deiliskipulagi. Reitir 1.186.0 og 1.186.4
Adamsson ehf-arkitektastofa, Laugavegi 32b, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga ADAMSSON hf - teiknistofa að deiliskipulagi Urðarstígsreita, reitir 1.186.0 og 1.186.4, dags. 13. júlí 2009. Auglýsing stóð frá 14. ágúst til og með 25. september 2009. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Birna Eggertsdóttir og Rúnar H. Ingimarsson, dags. 22. september 2009, Jósef Halldórsson, dags. 25. september 2009. Einnig lagt fram bréf Hverfisráðs miðborgar dags. 23. september 2009 og umsögn skipulagsstjóra dags. 2. nóvember 2009. Einnig er lagt fram bréf skipulags- og byggingarsviðs til hverfisráðs miðborgar dags. 3. nóvember 2009.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

(B) Byggingarmál

8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN040635
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 561 frá 3. nóvember 2009.

9. Alþingisreitur, flutningur á húsi ofl. (01.141.106) Mál nr. BN039779
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að flytja hús af sökkli sínum á lóð nr. 12 við Vonarstræti yfir á nýjan, hærri sökkul á fornleifauppgreftri við Kirkjustræti nr. 4, Mhl. 03, að endurbyggja Skjaldbreið á lóð nr. 8 við Kirkjustræti Mhl. 04, til að byggja steinsteypta nýbyggingu Mhl.07 á milli þessara tveggja húsa og tengja öll húsin ásamt Kirkjustræti 8B og 10 við þjónustubyggingu Alþingis á Alþingisreit.
Jafnframt er erindi BN039619 dregið til baka.
Erindi fylgir fyrirspurn BN039505 dags. 24. febrúar 2009, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 2. mars 2009, Húsafriðunarnefndar dags. 3. mars 2009 og skýrsla um brunavarnir dags. 6. janúar 2009. Meðfylgjandi er bréf Fornleifaverndar ríkisins dags. 14. apríl 2009, einnig ný umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 26. mars 2009, einnig bréf hönnuða dags. 17. apríl 2009 og brunaskýrsla útgáfa 2 dags. 20. apríl 2009. Lagðir fram nýjir uppdrættir Batterísins dags. 20. október 2009, breytt 2. nóvember (útgáfa 7). Stærðir nýbyggingar, Mhl. 07: Kjallari 381,5 ferm., 1. hæð 212 ferm., 2. hæð 287,1 ferm., 3. hæð 162,7 ferm. Samtals 1.043,3 ferm., 3.844,8 rúmm.
Gjald kr: 7.700 + 296.050
Sigurður Einarsson arkitekt kynnti.

Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Áheyrnarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, Magnús Skúlason óskaði bókað #GLGeri alvarlegar athugasemdir við tillögur að innra skipulagi húsanna, hótel Skjaldbreiðar, Kirkjustrætis 8 og flutningshússins Vonarstrætis 12 sem verður Kirkjustræti 4, þar sem ekki er tekið nægilegt tillit til upphaflegrar gerðar húsanna. Má þar m.a. nefna að utan breyttrar herbergjaskipanar í báðum húsum, er lagt til að stigi í fyrrgreindu húsi verði fjarlægður og upphaflegur inngangur að Kirkjustræti lagður niður. Þá eru gerðar athugasemdir við væntanlegar tengingar við húsin sem leysa þarf betur. Á framlögðum teikningum er enn gert ráð fyrir byggingu meðfram suðurhlið hótel Skjaldbreið sem gerðar hafa verið ítrekað athugasemdir við. Má heita lítt skiljanlegt að ekki hafi orðið við óskum um breytingar þar á. Leggst því eindregið á móti því að málið verði afgreitt úr skipulagsráði við svo búið.”

(D) Ýmis mál

10. Kjalarnes, Norðurkot, framkvæmdaleyfi fyrir malarnám Mál nr. SN090205
Sigurbjörn Hjaltason, Kiðafell 2, 270 Mosfellsbær
Á fundi skipulagsstjóra 12. júní 2009 var lögð fram umsókn Sigurbjörns Hjaltasonar og Bergþóru Andrésdóttur, dags. 25. maí 2009, um framkvæmdaleyfi til efnistöku í landi Norðurkots á Kjalarnesi. Erindinu var vísað til umsagnar Umhverfisstofnunar og umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt umsögn umhverfis- og samgöngusviðs, dags. 19. júní 2009 og Umhverfisstofnunar dags. 26. október 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 2. nóvember 2009.
Synjað með vísan til framlagðra umsagna.

11. Aðalskipulag Reykjavíkur, kynnt staða Mál nr. SN090389
Kynnt staða vinnu við endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur
Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri kynnti stöðu vinnunar.

12. Ægisíða, Grímsstaðavör, kynning (01.53) Mál nr. SN090392
Kynnt tillaga að deiliskipulagi Grímsstaðavarar við Ægisíðu.
Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt kynnti.

13. Skipulagsráð, reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum Mál nr. SN090391
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 29. október 2009 ásamt reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar dags. 29. október 2009.

14. Láland 17-23, kæra, umsögn , úrskurður vegna nr. 21 (01.874.1) Mál nr. SN090231
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 29. október 2009 vegna kæru á samþykkt byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 26. maí 2009 um að veita leyfi til að byggja við húsið að Lálandi 21.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi samþykkt byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 26. maí 2009 um að veita leyfi til að byggja við húsið að Lálandi 21.

15. Laugavegur 87, dómur Hæstaréttar (01.174.1) Mál nr. SN090364
Lagður fram dómur Hæstaréttar frá 8. október 2009, vegna kvaðar í deiliskipulagi um umferð ökutækja um lóðina við hús nr. 87 við Laugaveg inn á lóð hússins nr. 85.

16. Skipulagsráð, fyrirspurn Mál nr. SN090378
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar Stefáns Benediktssonar og Bjarkar Vilhelmsdóttur og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs Sóleyjar Tómasdóttur.
#GLFrá því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var kosinn í skipulagsráð sem fulltrúi Framsóknarflokksins 21. ágúst á síðasta ári hefur hann lítið sést á fundum. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í skipulagsráði óska eftir upplýsingum um á hvaða fundi Sigmundur Davíð hefur mætt og á hvaða fundi ekki. Þá er óskað upplýsinga um launakjör hans fyrir umræddan tíma og kostnað við að kalla inn varamenn.#GL
Lagt fram svar skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 2. nóvember 2009.
Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs; Torfi Hjartarson og fulltrúar Samfylkingarinnar Stefán Benediktsson og Björk Vilhelmsdóttir óskuðu bókað: #GLNú er ljóst að Sigmundur Davíð hefur mætt á 19 fundi frá því í ágúst 2008, verið í leyfi frá fundarstörfum í 7 fundi og verið fjarverandi og kallað út varamann á 19 fundi á tímabilinu. Út frá upplýsingum um laun fyrir setu í skipulagsráði má reikna að Sigmundur Davíð hefur haft 1.006.276 í tekjur fyrir tímabilið. Þar sem hann hefur mætt á 19 fundi gerir það 52.962 kr. fyrir hvern fund. Viðbótar kostnaður Reykjavíkurborgar við að kalla út varamenn á sama tíma eru rétt tæpar 200 þúsund þar sem greitt er 10.140 - 11.240 fyrir hvern fund (mismunandi eftir tímabilum eins og sjá má í svari).

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Ragnar Sær Ragnarsson og fulltrúar Framsóknarflokksins Ásgeir Ásgeirsson og Brynjar Fransson óskuðu bókað: #GLEins og flestum er kunnugt hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nefndarmaður í Skipulagsráði Reykjavíkur tekið að sér formennsku í stjórnmálaflokki og hefur af þeim sökum mætt minna á fundi en efni stóðu til í upphafi. Það er hins vegar hefð fyrir því í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar að fulltrúar gegna trúnaðarstörfum víða og hafa ekki verið gerðar athugasemdir við það fyrr en núna. Nýjasta dæmið er án efa fjarvera oddvita Samfylkingarinnar, Dags B Eggertssonar síðastliðið ár þar sem hann hefur tekið virkan þátt í stjórn landsmála á meðan hann var á launum hjá borginni. Ef Samfylkingin er að leggja til að reglur verði skýrari en verið hefur er réttast að hún byrji á sjálfri sér.#GL

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs; Torfi Hjartarson og fulltrúar Samfylkingarinnar Stefán Benediktsson og Björk Vilhelmsdóttir óskuðu bókað: #GLFjarvera formanns Framsóknarflokksins í skipulagsráði er einsdæmi í borginni og full ástæða í framhaldi af því að endurskoða reglur borgarinnar. Fjarvera oddvita Samfylkingarinnar eru í engu samræmi við það sem til umræði er í máli Sigmundar Davíðs. #GL

Fundi slitið kl. 11.55

Júlíus Vífill Ingvarsson
Ragnar Sær Ragnarsson Ásgeir Ásgerisson
Brynjar Fransson Torfi Hjartarson
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 3. nóvember kl. 09:50 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 561. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Þórður Búason, Jón Hafberg Björnsson, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 6 (01.136.502) 100592 Mál nr. BN040569
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á erindi BN039321 samþ. 27. janúar 2009 með því að útbúa nýjan inngang á suðurhluta 1. hæðar og innrétta veitingastofu í flokki I (sem tengist matvörubúð í húsi nr. 8) á suðurhluta 1. hæðar nr. 6 við Aðalstræti.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 13. október 2009.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. október 2009 fylgir erindinu. Sömuleiðis samþykki eigenda dags. 13. okt. 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Aðalstræti 8 (01.136.503) 100593 Mál nr. BN040571
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á erindi BN039423 samþ. 27. janúar 2009 með því að breyta inngangi, koma fyrir markísum yfir gluggum 1. hæðar og innrétta matvöruverslun (sem tengist veitingastofu á 1. hæð húss nr. 6) á 1. hæð og í kjallara húss nr. 8 við Aðalstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. október 2009 fylgir erindinu og samþykki eigenda dags. 13. okt. 2009.
Gjöld kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Austurstræti 16 (01.140.501) 100861 Mál nr. BN040328
Toppmál ehf, Naustabryggju 27, 110 Reykjavík
A 16 fasteignafélag ehf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta í tvo hluta, annarsvegar skemmtistað með 250 gesti og í flokki III og hinsvegar bar með 90 gesti og í flokki III, með því að koma fyrir millivegg með hurð á milli eininga og bæta við tveimur snyrtingum í núverandi skemmtistað á jarðhæð verslunarhússins á lóð nr. 16 við Austurstræti.
Bréf frá eiganda dags. 14. sept. 2009 og 15. okt. 2007, bréf frá Húsafriðunarnefnd dags. 28. sept. 2009, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 5. október 2009 og hljóðvistarskýrsla dags. 14. sept. 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. sept. 2007.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Gestafjöldi á bar verði 80 í stað 90 sem sótt er um.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Bókun byggingarfulltrúa:
Með vísan til bókunar skipulagsráðs Reykjavíkur frá 14. nóvember 2007 er bókunin hér með ítrekuð sem fellst í því að borgaryfirvöld leggja þunga áherslu á að tryggt sé að veitingastarfsemi sé starfrækt að degi til auk þess sem trygg verði að útliti hússins verði ekki breytt á neinn hátt t.d. að byrgja glugga með gardínum, filmum eða öðrum tilfæringum, sbr. bréf dags. 15. október 2007.
Er samþykkt byggingarleyfis bundið þessum skilyrðum og brot á þeim getur leitt til neikvæðrar umsagnar byggingarfulltrúa til leyfadeildar LHS vegna veitingaleyfa.
Þá vekur byggingarfulltrúi athygli umsækjanda á þvi að veitingastaðurinn er tvískiptur. Komi til sölu á rekstri annars hvorts hlutans er óvíst að hægt sé að halda rekstrinum óbreyttum áfram m.a. vegna aðgengis að stoðrýmum.
Þá er skilyrt að eigandi hússins láti gera við skrautlista úr gifsi sem skert var við uppsetningu á þeim millivegg sem nú hefur verið samþykktur, þegar veggurinn verður fjarlægður skal hann staðfesta með yfirlýsingu sem þinglýst verður að svo verði gert.
Jafnframt skal þinglýsa yfirlýsingu vegna þeirra skilyrða sem hér koma fram að ofan.

4. Austurstræti 5 (01.140.212) 100833 Mál nr. BN040011
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að loka hurðargötum milli húsa á lóðum nr. 5 og 7 við Austurstræti.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Ásgarður 18-24 (01.834.203) 108607 Mál nr. BN040600
Guðfríður G Jónsdóttir, Vogaland 14, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum á suðurhlið 2. hæðar í íbúð 0204 mhl. 03, sbr. BN039585 dags. 21. apríl. 2009, á fjölbýlishúsinu nr. 22-24 á lóð nr. 18-24 við Ásgarð.
Erindi fylgir samþykki sumra meðeigenda.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

6. Bíldshöfði 20 (04.065.101) 110673 Mál nr. BN040614
Smáragarður ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að stækka og hólfa niður geymslur og koma fyrir vörumóttöku í kjallara á norðurhlið, undir palli 1. hæðar, koma fyrir vörumóttöku á palli 1. hæðar á norðurhlið í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 20 við Bíldshöfða.
Stækkun : ??? ferm. og ??? rúmm.
Gjald kr. 7.700 + ???
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

7. Borgartún 35-37 (01.219.102) 186012 Mál nr. BN040570
Nýherji hf, Borgartúni 37, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta afmörkun á rými varaaflsstöðvar í atvinnuhúsnæði á lóð nr. 37 við Borgartún.
Jafnframt er erindi BN040105 fellt úr gildi.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

8. Breiðhöfði 11 (04.028.401) 110506 Mál nr. BN040625
Ísaga ehf, Breiðhöfða 11, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta skrifstofurými í lager þar sem einungis verða geymd óeldfim efni, koma fyrir innkeyrsluhurð og inngangshurð á vesturhlið og breyta fyrirkomulagi snyrtingar og kaffistofu í atvinnuhúsinu á lóð nr. 11 við Breiðhöfða.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

9. Bæjarflöt 15 (02.576.203) 179498 Mál nr. BN039766
Spöng ehf, Bæjarflöt 15, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta klæðningu á aðalhúsi úr trapizulaga í báruformaða málmklæðningu, setja harðviðarklæðningu í stað forveðraðs kopars á hornbyggingu og breyta póstasetningu og opnalegum fögum í húsi á lóð nr.15 við Bæjarflöt. Sjá byggingaleyfi BN020930.
Samþykki meðeigenda fylgir dags. 2. mars 2009.
Bréf frá Verkfræðistofu Burður um eldvarnir
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

10. Dofraborgir 3 (02.344.802) 173229 Mál nr. BN040616
Jón Sigurður Pálsson, Dofraborgir 3, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála við vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 3 við Dofraborgir.
Jákvæð fyrirspurn BN039778 dags. 12. maí 2009 fylgir erindinu.
Stærð Garðskála: 36,8 ferm 114,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.786
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Elliðabraut 2 (04.772.101) 195947 Mál nr. BN040566
Umtak fasteignafélag ehf, Dalvegi 10-14, 200 Kópavogur
N1 hf, Dalvegi 10-14, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja eldsneytis-sjálfafgreiðslustöð með dæluskyggni, 8 dælum og sjálfvirkri þvottastöð á lóð nr. 2 við Elliðabraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. október 2009 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 26. október 2009 fylgir erindinu.
Stærð: 143,7 ferm. 689,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 53.107
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Freyjugata 24 (01.186.601) 102297 Mál nr. BN040576
Spur ehf, Freyjugötu 24, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir endurnýjun á byggingarleyfi BN033277 samþ. 11. apríl 2006, þar sem sótt er um leyfi til að lækka gólf í kjallara, og gera móttöku og eldhús þar. Fjölga herbergjum á 1. hæð og byggja sólstofu við suðvestur hlið hússins á lóð nr. 24 við Freyjugötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

13. Fróðengi 1-11 (02.378.502) 214766 Mál nr. BN040608
Eir,hjúkrunarheimili, Pósthólf 12096, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir 1. áfanga reyndarteikninga af öryggis- og þjónustuíbúðahúsi á lóð nr. 1-11 við Fróðengi.
Helstu breytingar frá samþykktum teikningum eru þessar: Gluggaútskotum á göngum fækkað, anddyri stækkuð og ytri hurðum breytt í rennihurðir, eldvörn breytt á hurð í vatnsinntaki í kjallara, sorphurðir lækkaðar, hurð út af gangi 1. hæðar lækkuð, gluggum þvottahúss breytt, reyklosun úr efsta glugga stigahúss verði min. 1 ferm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

14. Fróðengi 1-11 (02.378.502) 214766 Mál nr. BN040613
Eir,hjúkrunarheimili, Pósthólf 12096, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir 2. og jafnframt síðari áfanga reyndarteikninga af öryggis- og þjónustuhúsi á lóð nr. 1-11 við Fróðengi.
Helstu breytingar frá samþykktum teikningum eru þessar: Gluggar breytast á göngum, anddyri stækkuð og rennihurðir verða í ytri hurðum, sorphurðir og hurðir af göngum 1. hæðar lækkaðar, breyttir gluggar í þvottahúsum, reyklosun úr efsta glugga stigahúss verði minnst 1 ferm., læst álklæðning verður slétt og lokun inn í hjóla- og vagnageymslu fellur út.
Stækkun: 1 ferm., 1,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 108
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

15. Grenimelur 8 (01.541.308) 106338 Mál nr. BN040154
Ari Pétur Wendel, Grenimelur 8, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja þvottahús og breyta geymslum og stækka þegar gerða íbúð, sem tilheyrir íbúð 0101, í kjallara íbúðarhúss á lóð nr. 8 við Grenimel.
Meðfylgjandi er virðingargjörð frá 18. mars 1947 og samþykki meðeiganda dags. 17. apríl 2009.
Gjald kr 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

16. Gylfaflöt 9 (02.575.702) 109502 Mál nr. BN040619
Anna Sigríður Jóhannsdóttir, Miðstræti 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum sem fela í sér að byggja áhaldaskýli utan um kælibúnað og breyta innra skipulag á 1. 2. og 3. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 9 við Gylfaflöt.
Stærð áhaldaskýlis: XXX ferm. og XXX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XXX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

17. Háaleitisbraut 175 (01.84-.-93) 108676 Mál nr. BN040612
Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum í afgreiðslu, sbr. BN039615 dags. 31. mars 2009, á bráðasviði Landspítalans í Fossvogi á lóð nr. 175 við Háaleitisbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

18. Hraunbær 102B (04.343.301) 111081 Mál nr. BN040606
Greifynjan ehf, Hraunbæ 102c, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka og breyta innra fyrirkomulagi í snyrtistofu, koma fyrir heitum potti og gufubaði og reka samhliða kaffihús í flokki ???? í húsnæðinu nr. 102B
á lóð nr. 102 við Hraunbæ.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Hverafold 52 (02.862.306) 110225 Mál nr. BN040603
Birgir Másson, Hverafold 52, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038815 dags. 26. ágúst 2008 sem er að tengja með viðbyggingu bílskúr og einbýlishús á lóð nr. 52 við Hverafold.
Stækkun: 22,8 ferm., 136,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 10.503
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

20. Kleifarvegur 11 (01.380.215) 104753 Mál nr. BN040601
Ísleifur Ólafsson, Kleifarvegur 11, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta útveggjum í steinsteypta útveggi, úr forsteyptum einingum, sbr. BN039721 dags. 2. júní. 2009, á bílskúrnum á lóð nr. 11 við Kleifarveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Vottun eininga skal skila fyrir úttekt á botnplötu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Laugarnesvegur 48 (01.360.104) 104506 Mál nr. BN040531
Jón Trausti Jónsson, Laugarnesvegur 48, 105 Reykjavík
Vilhjálmur Auðunn Albertsson, Laugarnesvegur 48, 105 Reykjavík
Bjarni Helgason, Laugarnesvegur 48, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri viðbyggingu við suðurhlið bílskúrs á lóð fjölbýlishússins nr. 48 við Laugarnesveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. september 2009 fylgir erindinu.
Einnig tölvubréf frá Bjarna Helgasyni dags. 15. október 2009 og annað tölvubréf frá Bjarna Helgasyni dags. 22. okt. 2009.
Áður gerð stækkun: 3,2 ferm., 16,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 1.286
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

22. Laugavegur 40-40A (01.172.221) 101476 Mál nr. BN040486
Fíberstúdíó ehf, Laugavegi 40, 101 Reykjavík
Símon ehf, Ásholti 22, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta hárgreiðslustofu á 1. hæð í rými 01-01 og fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi 1. hæðar í atvinnuhúsinu á lóð nr. 40 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

23. Lyngháls 4 (04.326.402) 180304 Mál nr. BN040505
Innigarðar ehf, Laxakvísl 3, 110 Reykjavík
Grjótháls ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra fyrirkomulagi austasta hluta 2. hæðar, 0202, verslunar- og skrifstofuhússins á lóð nr. 4 við Lyngháls.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Lyngháls 4 (04.326.402) 180304 Mál nr. BN039432
Grjótháls ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta verslunarrými 0201 á 2. hæð í skrifstofurými í atvinnuhúsi á lóð nr. 4 við Lyngháls.
Gjald kr. 7.700 +7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

25. Móvað 9 (04.771.205) 195922 Mál nr. BN040623
Ráð og rekstur ehf, Síðumúla 33, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála úr timbri og gleri við einbýlishús á lóð nr. 9 við Móvað.
Stækkun: 13,3 ferm., 40,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.134
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Naustavogur 15 (01.456.201) 105648 Mál nr. BN040490
Snarfari,félag sportbátaeigenda, Naustavogi 15, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja niður geymslutjald úr PVC dúk á álramma fyrir báta til þriggja ára á lóð nr. 15 við Naustavog.
Erindi fylgir fsp. BN04392 dags. 15. september 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. sept. 2009. Meðfylgjandi er tölvupóstur frá Fasteignaskrá Íslands dags. 30. okt. 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Nesvegur 49 (01.531.101) 106142 Mál nr. BN039932
Nanna Gunnarsdóttir, Nesvegur 49, 107 Reykjavík
Vigfús Ingvarsson, Nesvegur 49, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. og 2. hæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 49 við Nesveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

28. Norðlingabraut 7 (04.733.101) 204838 Mál nr. BN040615
Olíuverslun Íslands hf, Pósthólf 310, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa opið vindfang undir þakskyggni úr gleri og stáli að austanverðu við bensínstöðina á lóð nr. 7 við Norðlingabraut.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

29. Pósthússtræti 17 (01.140.511) 100871 Mál nr. BN040604
ÞB veitingar ehf, Pósthússtræti 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038004 dags. 22. apríl 2008 sem fjallar um breytingu á innra skipulagi og útliti veitingahússins í flokki II á lóðinni nr. 1 við Skólabrú.
Rafrænt bréf frá eiganda dags. 29. okt. 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

30. Rofabær 32 (04.360.003) 111255 Mál nr. BN040605
Árbæjarkirkja, Rofabæ safnaðarheim, 110 Reykjavík
Sót erum leyfi til að byggja safnaðarheimili úr steinsteypu á þrem hæðum við Árbæjarkirkju á lóð nr. 32 við Rofabæ.
Meðfylgjandi er bréf burðarvirkjahönnuðar dags. 19. okt. 2009.
Stækkun 997,7 ferm., 3.893,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 299.792
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

31. Síðumúli 34 (01.295.201) 103840 Mál nr. BN040560
Steinnes sf, Síðumúla 34, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka, koma fyrir skrifstofuaðstöðu og íbúð á 5. hæð, einnig er sótt um reyndarteikningu af 1. - 4. hæð í atvinnuhúsinu á lóð nr. 34 við Síðumúla.
Samþykki meðeiganda lóðar dags. 22. okt. 2009
Neikvæð fyrirspurn BN039935 dags. 28. júlí 2009
Stækkun: ??? ferm. ???rúmm.
Gjald kr. 7.700 + ???
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Skógarás 13-17 (04.386.102) 111530 Mál nr. BN037400
Skógarás 13-17,lóðarfélag, Skógarási 13-17, 110 Reykjavík
Sótt er um breytingu á skráningu, 0101 verður 0102 og 0102 verður 0101 í fjölbýlishúsinu nr. 13 - 17 við Skógarás.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

33. Skógarás 21 (04.386.502) 111537 Mál nr. BN040618
Ágúst Alfreð Snæbjörnsson, Lækjasmári 21, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að fylla upp í glugga í sjónvarpsholi, sbr. BN039376 dags. 27. jan. 2009, á einbýlishúsinu á lóð nr. 21 við Skógarás.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Skólavörðustígur 25A (00.000.000) 101894 Mál nr. BN040622
Basalt ehf, Pósthólf 806, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta hárgreiðslustofu á 1. og 2. hæð í mhl. 02 í húsi nr. 25 A á lóð nr. 25 við Skólavörðustíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Spilda úr Vallá 216976 (00.078.004) 216976 Mál nr. BN040544
Silfurskin ehf, Vallá, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á nýsamþykktu erindi, BN039944 dags. 23. júní og breytt 7. júlí og 20. október 2009.
Breytingarnar felast í að vinnustofa 2 bætist við og stoðveggur við bílskúr 2 breytist.
Stækkun: 40,8 ferm., 126,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 9.741
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

36. Stuðlaháls 2 (04.325.401) 111050 Mál nr. BN040581
Áfengis-/tóbaksverslun ríkisins, Pósthólf 10120, 130 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir innanhúss breytingum á 1. og 2. hæð sem fela í sér að fjarlægja hringstiga, koma fyrir skrifstofu á 1. hæð, fundarherbergi og skjalageymslu á 2. hæð og breyta hluta af gluggum í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 2 við Stuðlaháls.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Suðurlandsbraut 66 (01.471.402) 201340 Mál nr. BN040563
Félagsmálaráðuneyti, Tryggvag Hafnarhúsi, 150 Reykjavík
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta hönnun lóðar og bílastæða við hjúkrunarheimilið á lóð nr. 66 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir samþykki eiganda Suðurlandsbrautar 58-64 dags. 12. október 2009. Sömuleiðis fylgja útskýringar arkitekts dags. 2. nóv. 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

38. Vitastígur 12 (01.173.119) 101536 Mál nr. BN040599
Búðarvík ehf, Vitastíg 12, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum í kjallara og á 1. hæð í framhúsi og atvinnuhúsnæði í íbúð í bakhúsi á lóð nr. 12 við Vitastíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Víðimelur 66 (01.524.006) 106003 Mál nr. BN040461
Guðberg Björnsson, Víðimelur 66, 107 Reykjavík
Hlín Árnadóttir, Víðimelur 66, 107 Reykjavík
Árni Zophoníasson, Víðimelur 66, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka hurðarop á milli vinnuherbergis og gangs í húsinu á lóð nr. 66 við Víðimel.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 25. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Fyrirspurnir

40. Bæjarháls, Réttarháls (04.309.601) 190769 Mál nr. BN040633
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Spurt er hvort breyta megi innréttingum á 2. og 3. hæð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls/Réttarháls samanber framlögð gögn.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

41. Hafnarstræti 18 (01.140.303) 100837 Mál nr. BN040617
Domingos Tavares Ferreira, Sæbólsbraut 40, 200 Kópavogur
Spurt er hvort innrétta megi eldhús í kjallara og koma fyrir matarlyftu upp á 1. hæð hússins á lóð nr. 18 við Hafnarstræti.
Frestað.
Ekki unnt að taka afstöðu til erindisins nema lofthæð sé gefin upp og fyrir liggi afstaða Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

42. Hjallavegur 31 (01.384.104) 104883 Mál nr. BN040620
Bríet Arna Bergrúnardóttir, Hjallavegur 31, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að bæta kvistum á fram og bakhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 31 við Hjallaveg. Samþykki meðeigenda fylgir dags. 21. okt. 2009
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

43. Klettháls 7 (04.342.601) 188540 Mál nr. BN040582
Ómar Sigurbergsson, Hólmgarður 64, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 52,6 ferm. viðbyggingu við suðurgafl húss og stækka geymslu um 100 ferm norðan megin á atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 7 við Klettháls.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. október 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 30. október 2009.
Jákvætt.
Með vísan til bókunar skipulagsstjóra um að fyrirspyrjandi láti vinna á eigin kostnað deiliskipulagstillögu sem grenndarkynnt verður berist hún.

44. Langagerði 48 (01.832.105) 108551 Mál nr. BN040577
Magdalena Elísabet Andrésdóttir, Langagerði 48, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja geymslu við bílskúr á lóð einbýlishússins á lóð nr. 48 við Langagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. október 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður berist umsókn.

45. Laufásvegur 58 (01.197.201) 102716 Mál nr. BN040568
Klettur-eignir ehf, Laufásvegi 49-51, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta þrjár íbúðir í fyrrum verslunarrými á jarðhæð fjölbýlishússins á lóð nr. 58 við Laufásveg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar og eiganda bæði dags. 12. október 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. október 2009 og umsögn skipulagsstjóra dags. 30. október 2009.
Neikvætt.
Að svo stöddu samanber umsögn skipulagsstjóra dags. 30. október 2009

46. Laugavegur 12B (01.171.402) 101411 Mál nr. BN040624
Linda Mjöll ehf, Laugavegi 11, 101 Reykjavík
Laugavegur 12b ehf, Pósthólf 8855, 128 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að opna verslun og veitingahús í flokki ???? í húsi á lóð nr. 12b við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

47. Skólavörðustígur 21A (01.182.245) 101897 Mál nr. BN040621
Charin Thaiprasert, Hlið, 225 Álftanes
Spurt er hvort leyfi fengist til að opna skyndibitastað í flokki ???? þar sem hægt verður að kaupa aðkeyptan mat sem verður hitaður upp á staðnum, einnig er ætlað að reka staðinn sem gallerí og hafa opnunartíma frá kl: 11 til 21:00 í húsinu á lóð nr. 21a við Skólavörðustíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 11.05

Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson Björn Kristleifsson
Þórður Búason Jón Hafberg Björnsson
Guðfinna ósk Erlingsdóttir Eva Geirsdóttir