Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 176

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2017, miðvikudaginn 18. janúar kl. 9.02, var haldinn 176. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gísli Garðarsson, Sverrir Bollason , Halldór Halldórsson, Hildur Sverrisdóttir og Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Siguðrsson ,Björn Axelsson, Nikulás Úlfar Másson, Stefán Finnsson, Gunnar Már Jakobsson og Marta Grettisdóttir

Fundarritari er Björgvin Rafn Sigurðarson.

Þetta gerðist:

(E) Umhverfis- og samgöngumál

1. Aðgerðaáætlun stefnu um líffræðilega fjölbreytni.,    Mál nr. US170011

Kynntar tillögur umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 28. nóvember 2016 að aðgerðaáætlun 2016-2026  fyrir núgildandi stefnu Reykjavíkurborgar um líffræðilega fjölbreytni.

Kynnt.

Vísað til kynningar í borgarráði.

Snorri Sigurðsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(A) Skipulagsmál

2. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð   Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, dags. 13. janúar 2017.

3. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Elliðaárdalur-hjólastígur, breyting á aðalskipulagi   Mál nr. SN170031

Lögð fram verklýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. janúar 2017, vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem felst í að reiðstígur er aflagður milli Sprengisands og stíflu í Elliðaárdal og nýr hjólastígur kemur í stað reiðstígsins.

Verklýsing á skipulagsgerð samþykkt til kynningar og umsagna, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Verklýsingin verður aðgengileg á vef borgarinnar og send skilgreindum hagsmunaaðilum.

Vísað til borgarráðs

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

4. Víðidalur, Fákur, breyting á deiliskipulagi  (04.76) Mál nr. SN160932

Hestamannafélagið Fákur, Vatnsendav Víðivöllum, 110 Reykjavík

Landslag ehf, Skólavörðustíg 11, 101 Reykjavík

Lögð fram umsókn Finns Kristinssonar, mótt. 8. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Víðidals, Fáks. Í breytingunni felst m.a. að stækka byggingarreit norðan við félagsheimili, setja byggingarreiti fyrir hesthús austan við félagsheimili og norðan og sunnan við Ásból, stækka byggingarreit núverandi reiðhallar, útbúa lóð með byggingarreit fyrir fjölnota hús/reiðhöll fyrir austan og ofan Hvammsvöll o.fl., samkvæmt uppdr. Landslags ehf., dags. 5. janúar 2017.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr.  skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs.

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

5. Hafnarstrætisreitur 1.118.5, breyting á deiliskipulagi  (01.118.5) Mál nr. SN140356

Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs  varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna Hafnarstrætisreits 1.118.5. Í breytingunni felst að spennistöð á torgi er flutt yfir á horn Pósthússtrætis og Tryggvagötu, samkvæmt uppdr. Landmótunar sf. dags. 29. ágúst  2014. Einnig er lögð fram umsögn Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 9. október 2014. Tillagan var auglýst frá 26. október til og með 7. desember 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Reginn hf. dags. 6. desember 2016. Einnig er lagt fram bréf Veitna ohf., dags. 6. janúar 2017.

Frestað.

Margrét Þormar verkefnisstjóri og fulltrúar Veitna Rúnar Svavarsson og Anna Nielsen taka sæti á fundinum undir þessum lið.

6. Sogavegur 73-75 og 77, breyting á deiliskipulagi  (01.811) Mál nr. SN150500

THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík

Oddur Kristján Finnbjarnarson, Nökkvavogur 19, 104 Reykjavík

Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 14. október 2016, þar stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis deiliskipulagsbreytingarinnar fyrr en umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um deiliskipulagið liggur fyrir. Skipulagsstofnun bendir á að leiðrétta þarf fjölda bílastæða í skilmálakafla um Sogaveg 77. Einnig óskar Skipulagsstofnun eftir að fá sent til vörslu gildandi deiliskipulagi svæðisins ásamt síðari breytingu á því samþykktri 12. janúar 1999. Einnig er lögð fram hljóðvistarskýrsla Verkís ehf., dags. 21. desember 2016 með viðauka, deiliskipulagsuppdráttur, dags. 24. febrúar 2016, uppfærður dags. 20. desember 2016 og umsögn heilbrigðiseftirlits, dags. 22. desember 2016. Jafnframt er lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 28. desember 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2017.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2017 samþykkt.

Vísað til borgarráðs.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(B) Byggingarmál

7. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð   Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari eru fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 907 frá  17. janúar 2017.

(C) Fyrirspurnir

8. Thorvaldsensstræti 6, (fsp) niðurrif og endurbygging   Mál nr. SN160730

Lindarvatn ehf., Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík

Lögð fram  fyrirspurn Lindarvatns ehf., mótt. 26. september 2016, um að rífa niður húsið á lóð nr. 6 við Thorvaldsensstræti og endurbyggja samkvæmt drögum að aðaluppdráttum THG arkitekta, dags  7. desember 2016.  Einnig er lagt fram bréf Davíðs Þorlákssonar framkvæmdastjóra f.h. Lindarvatns ehf., dags. 23. september 2016, minnisblað verkfræðistofunnar Ferill, dags. 21. september 2016 og minnisblað verkfræðistofunnar Eflu, dags. 23. september 2016. Jafnframt er lögð fram "Jarðskjálftagreining T6" frá Ferli verkfræðistofu, dags. nóvember 2016 og minnisblað verkfræðiráðgjafar Conís, dags. 30. nóvember 2016. Einnig er lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2017.

Umhverfis og skipulagsráð tekur jákvætt í að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurnina, á eigin kostnað.

Fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Sverrir Bollason, fulltrúi Bjartrar framtíðar Magnea Guðmundsdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Halldór Halldórsson og Hildur Sverrisdóttir  og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Guðfinna J. Guðmundsdóttir bóka:

“Deiliskipulag Landsímareitsins byggir á þeirri grunnhugmynd að flétta skuli nýjar byggingar við þær sem fyrir eru. Við teljum mikilvægt að halda í þá hugmynd. Burðarvirki og hönnun hússins við Thorvalssenstræti 6 taka hins vegar mið af mjög sértækri starfsemi. Þær aðstæður virðast hamla vel heppnaðri umbreytingu þess til nýrra nota. Styrking burðarvirkis á jarðhæð er ekki til þess fallin að auka gæði byggingarinnar og dregur hugsanlega úr gildi jarðhæðarinnar sem almenningsrýmis.

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir reitinn er heimilt að breyta skipulagi og útliti hússins til þess að fá betri nýtingu. Hótelstarfsemi er einnig  leyfð. Með þessi atriði í huga samþykkir ráðið niðurrif á húsinu en hvetur uppbyggingaraðila til að halda í sérkenni gamla hússins í nýrri byggingu.”

Gísli Garðarsson situr hjá við afgreiðslu málsins

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

9. Hverfisgata 112 og 114 og Snorrabraut 27-29, (fsp) breyting á deiliskipulagi  (01.240.0) Mál nr. SN160955

R 4 ehf., Hrafnshöfða 25, 270 Mosfellsbær

Arkitektar Laugavegi 164 ehf, Laugavegi 164, 105 Reykjavík

Lögð fram fyrirspurn Arkitekta Laugavegi 164 ehf., mótt. 15. desember 2016, um að breyta notkun lóðanna nr. 112 og 114 við Hverfisgötu og nr. 27-29 við Snorrabraut í hótel, stækka byggingarreiti og auka byggingarmagn lóðanna nr. 112 og 114 við Hverfisgötu, sameina lóðir á reitnum eða breyta lóðarmörkum og rífa eldri hús og byggja ný í þeirra stað. Einnig er lögð fram greinargerð Silju Traustadóttur arkitekts frá Glámu-Kím, dags. 14. desember 2016.

Frestað.

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

10. Hallveigarstígur 7, (fsp) stækkun lóðar og rekstur gististaðar  (01.171.2) Mál nr. SN160946

Vesturbakki ehf., Ofanleiti 27, 103 Reykjavík

Lögð fram fyrirspurn Vesturbakka ehf., mótt. 9. desember 2016, varðandi stækkun lóðarinnar nr. 7 við Hallveigarstíg og rekstur gististaðar í húsinu. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 15. mars 2016.

Umhverfis og skipulagsráð tekur neikvætt í fyrirspurnina.

Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

11. Lóuhólar 2-6, (fsp) stækkun húss  (04.642.7) Mál nr. SN160902

THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík

Lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf., mótt. 29. nóvember 2016, varðandi breytingu á aðalskipulagi og stækkun hússins á lóð nr. 2-6 við Lóuhóla, samkvæmt tillögur THG Arkitekta ehf., dags. 2016. Einnig er lagt fram bréf THG Arkitekta ehf., dags. 19. nóvember 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. janúar 2017.

Umhverfis og skipulagsráð tekur jákvætt í að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurnina, á eigin kostnað.

Samhliða þarf að vinna breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030.

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(F) Framkvæmdir og frumathuganir

12. Klambratún, lýsing   Mál nr. US170010

Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. í janúar 2017 að framkvæmdum vegna endurnýjunar og aukinnar lýsingar á Klambratúni, áætlaður verktími og kostnaðaráætlun.

Tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. í janúar 2017 samþykkt. 

Jafnframt er óskað eftir að tillagan verði kynnt í Hverfisráði Hlíða. 

Vísað til borgarráðs.

Ólafur Ólafsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(D) Ýmis mál

14. Götuheiti, götu- og torganöfn.   Mál nr. SR170001

Lögð fram tillaga nafnanefndar dags.  18. janúar 2017 að nýjum götu- og torganöfnum  í Grafarvogi, Vogabyggð , Háskóla Íslands Vísindagarðar og torg á horni Pósthússtrætis og Tryggvagötu.

Frestað.

15. Húsverndarsjóður Reykjavíkur 2017, úthlutun styrkja 2017   Mál nr. US170008

Lögð fram tillaga formanns umhverfis- og skipulagsráðs um tilnefningu fulltrúa ráðsins í starfshóp um styrki úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur 2017.

Samþykkt að Torfi Hjartarson og Herdís Anna Þorvaldsdóttir verði fulltrúar umhverfis- og skipulagsráðs í starfshópnum.

Vísað til borgarráðs.

16. Rauðarárstígur 1, Kæra 152/2016, umsögn  (01.222.101) Mál nr. BN052239

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umherfis- og auðlindamála, dags. 21. nóvember 2016, ásamt kæru, dags. 19. nóvember 2016, þar sem kærð er ákvörðun um að hafna beiðni um að inrétta gististað í flokki II að Rauðarárstíg 1. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 19. desember 2016.

17. Breiðholtsbraut, deiliskipulag, göngubrú  (04.6) Mál nr. SN150224

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 5. desember 2016 vegna samþykkis borgarráðs dags. 1. desember 2016 að deiliskipulagi opins svæðis milli Seljahverfis og Efra Breiðholts.

18. Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Fyrirspurn vegna útleigu atvinnuhúsnæðis í Reykjavík til búsetu.   Mál nr. US170018

Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Halldórs Halldórssonar og Hildar Sverrisdóttur.

"Þann 15. janúar sl. kom upp eldur í atvinnuhúsnæði í Kópavogi þar sem bjuggu allt að 15 manns. Í samtölum við slökkviliðsstjóra og fleiri fulltrúa slökkviliðsins hefur ítrekað komið fram að brunavarnir eru í mjög mörgum tilfellum ófullnægjandi í svona atvinnuhúsnæði sem engan veginn er ætlað til íbúðar en er samt notað til þess. Til viðbótar við þetta búa margir í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í borginni.

Þetta tengist húsnæðisskorti í Reykjavík og því er mikilvægt að átta sig á hversu víðtækur vandinn er. Því óska fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Halldór Halldórsson og Hildur Sverrisdóttir, eftir upplýsingum um það hvað talið er að margir búi í atvinnuhúsnæði í Reykjavík."

Frestað.

19. Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Fyrirspurn vegna sorpkvarna í vaska á heimilum.   Mál nr. US170019

Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Halldórs Halldórssonar og Hildar Sverrisdóttur.

"Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Halldór Halldórsson og Hildur Sverrisdóttir óska eftir upplýsingum um hvort einhverjar reglur eru um notkun sorpkvarna á heimilum í Reykjavík. Slíkar kvarnir eru settar í eldhúsvaska og matarleifar hakkaðar niður í holræsakerfi borgarinnar. Haustið og veturinn 2016/2017 er skv. fréttum mikill músa- og rottugangur í borginni sem kemur til vegna veðurfarsins en reikna má með að hakkaðar matarleifar frá heimilum hjálpi stofninum líka."

Frestað.

20. Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Áskorun til borgarráðs um söluferli á Malbikunarstöðinni Höfða.   Mál nr. US170020

Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Halldórs Halldórssonar og Hildar Sverrisdóttur

"Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði, Hildur Sverrisdóttir og Halldór Halldórsson, leggja til að ráðið samþykki áskorun til borgarráðs um fara í söluferli á Malbikunarstöðinni Höfða, sem er að fullu í eigu Reykjavíkurborgar. Ástæðurnar eru tvær. Annars vegar að eignarhald borgarinnar á Höfða er ósamrýmanlegt sjónarmiðum um heilbrigða samkeppni og hagkvæma opinbera þjónustu og hins vegar að færa má lagarök fyrir því að eignarhaldið sé ólögmætt." Tillögunni fylgir greinargerð.

Frestað.

Fundi slitið kl. 12.20.

Hjálmar Sveinsson

Magnea Guðmundsdóttir Sverrir Bollason

Gísli Garðarsson Halldór Halldórsson

Hildur Sverrisdóttir Guðfinna J. Guðmundsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2017, þriðjudaginn 17. janúar kl. 10.16 fyrir  hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 907. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Sigrún Reynisdóttir, Skúli Þorkelsson, Björgvin Rafn Sigurðarson, Nikulás Úlfar Másson, Eva Geirsdóttir, Jón Hafberg Björnsson og Sigríður Maack

Fundarritari var Björgvin Rafn Sigurðarson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 6  (01.136.502) 100592 Mál nr. BN052186

Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf., Aðalstræti 6, 101 Reykjavík

LMK fasteignir ehf., Aðalstræti 6, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta hótelherbergi á 5. 6. og 7. hæð og fjölga þar með herbergjum Centerhotel um 54 herbergi fyrir 108 gesti, einnig að opna yfir lóðamörk á 5. og 6. hæð yfir á lóð nr. 4 í hóteli á lóð nr. 6 við Aðalstræti.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Bankastræti 11  (01.171.018) 101363 Mál nr. BN051797

Bankastræti 11,húsfélag, Bankastræti 11, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum í matshlutum 01 og 02 vegna gerðar eignaskiptasamnings fyrir fjöleignahús á lóð nr. 11 við Bankastræti.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.   

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Bíldshöfði 16  (04.065.001) 110671 Mál nr. BN052158

Ítalskur ís ehf, Vættaborgum 113, 112 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytinum á innra skipulagi í  mhl. 03 rými 0103 í húsi á lóð nr. 16 við Bíldshöfða.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Óska skal eftir húsnæðisskoðun.

4. Bíldshöfði 9  (04.062.001) 110629 Mál nr. BN052079

Opus fasteignafélag ehf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 1. og 2. hæð og innrétta heilsugæslu ásamt heilsutengdri verslun og þjónustu auk líkamsræktar, í húsi á lóð nr. 9 við Bíldshöfða.

Stækkun A-rými 24,3 ferm., 0 rúmm.

Samþykki eiganda dags. 27.09.2016 fylgir erindi ásamt bréfi arkitekts dags. 06.12.2016.

Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.10.2016 við fyrirspurn BN051741.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsing vegna lóðar sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

5. Borgartún 8-16A  (01.220.107) 199350 Mál nr. BN052193

HTO ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum sem orðið hafa á byggingartíma á kjöllurum, jarðhæð, 2. og 3. hæð og í glerskála, sjá erindi BN035574, BN037406, BN03748 og BN041025, vegna lokaúttektar á verslunar- og skrifstofuhúsinu Katrínartún 2, H1 og glerskála, G1 á lóð nr. 8-16A við Borgartún.

Erindi fylgir uppfærð brunahönnun frá EFLU dags. 20. desember 2016.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bókhlöðustígur 2  (01.183.107) 101929 Mál nr. BN052200

Þóra Sigurðardóttir, Bókhlöðustígur 2, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í því að útliti vesturhliðar kjallara hefur verið breytt, kjallaragluggar hafa verið stækkaðir og syðsti hluti kjallarans hefur verið dýpkaður í húsi á lóð nr. 2 við Bókhlöðustíg.

Stækkun: x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Eyjarslóð 1  (01.111.502) 100028 Mál nr. BN052195

GT 2 ehf., Fiskislóð 31, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýja inndregna 3. hæð yfir mhl. 01 og 02 úr stál iog timburgrind, fjölga eignum í báðum matashlutum, breyta innra skipulagi 2. hæðar í mhl. 2, koma fyrir burðarsúlum og nýrri steyptri loftplötu yfir 2. hæð í mhl. 01 og koma fyrir nýjum inngangi á 1. hæð í húsi á lóð nr. 1 við Eyjarslóð.

Stækkun mhl. 01:  169,9 ferm. XX. rúmm.

Mhl. 02: 326,0 ferm., XX rúmm.

Samtals stækkun: 495,9 ferm., XX rúmm

Gjadl kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Fiskakvísl 10-16  (04.236.102) 110931 Mál nr. BN048717

Jón Örn Jakobsson, Fiskakvísl 12, 110 Reykjavík

Erna Eiríksdóttir, Fiskakvísl 12, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum kjöllurum í raðhúsi á lóð nr. 10-16 við Fiskakvísl.

Stækkun:  Hús nr. 10, 104,4 ferm., nr. 12, 101,7 ferm., nr. 14, 101,7 ferm., nr. 16, 104,4 ferm.

Stækkun samtals:  412,2 ferm., 1.028,1 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Fiskislóð 1  (01.089.501) 203587 Mál nr. BN051969

DGV ehf., Höfðatúni 2, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka millipall, koma fyrir lyftu og rúllustiga sem tengir 1. hæð við millipall, færa aðalinngang, bæta við hurð úr nýju verslunarrými, gluggum á 2. hæð austurhlið, breyta skyggni í svalir og koma fyrir flóttastiga frá þeim og flóttastiga frá norðvesturhlið og koma fyrir veitingastað í flokki II, tegund kaffihús fyrir 70 gesti í húsi  á lóð nr. 1 við Fiskislóð .

Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir erindinu dags. 29. nóv. 2016 Greinargerð hönnuðar dags. 15. nóvember 2016 fylgir með erindi.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. janúar 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. desember 2016.

Stækkun millipalls: 844,7 ferm.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

10. Fiskislóð 31  (01.089.101) 209683 Mál nr. BN052135

Nova ehf., Lágmúla 9, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma upp fjarskiptabúnaði innandyra og farsímaloftnet frá NOVA á norðurgafl sem stendur  3 metra upp frá þakbrún hússins á lóð nr. 31 við Fiskislóð.

Samþykki eiganda fylgir dags. 14. desember 2016.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

11. Flétturimi 1-7  (02.584.301) 109526 Mál nr. BN052000

Flétturimi 1-7,húsfélag, Flétturima 1, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að styrkja burðarvirki loftaplötu bílakjallara undir íbúðum 106 og 103, sambærilegt við það sem gert var á plötu undir íbúð 104 árið 2003 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 1-7 við Flétturima.

Meðfylgjandi er samþykki eigenda og stjórnar húsfélags á teikningu ódagsett og verklýsing dags. 15.6. 2016.

Gjald kr. 10.100,-

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Flugvallarvegur 3-3A  (01.751.201) 107467 Mál nr. BN052076

HV 10 ehf., Laugavegi 7, 101 Reykjavík

Keiluhöllin ehf., Pósthólf 8500, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. og 2. hæðar þannig að keilusalur er fjarlægður og rýminu skipt upp í nokkra æfingasali , koma fyrir búningsklefum fyrir gesti og starfsfólk, kaffihús í fl. II F fyrir 95 gesti og innrétta verslun og hárgreiðslustofu í afgreiðslu á lóð nr. 3-3A við Flugvallarveg.

Greinagerð brunahönnuðar dags. 6. desember 2016 fylgir erindi.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

13. Flugvöllur  (01.68-.-99) 106930 Mál nr. BN052214

Flugfélagið Ernir ehf., Víðigrund 7, 200 Kópavogur

Sótt er um stöðuleyfi fyrir tveimur gámum stærð 2 x 20,7 ferm. sem verða notaðir undir aðstöðu flugvirkja, geymslu  tækja, íhluta og verkfæra og  staðsettir austan við innkeyrsludyr flugskýlis 6 á lóðinni  flugvöllur 106930.

Teikning á A4 og bréf frá umsækjanda dags. 3. janúar 2017 fylgja erindi.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Geirsgata 5-5C  (01.117.306) 100086 Mál nr. BN052119

Special Tours ehf., Pósthólf 92, 222 Hafnarfjörður

Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að opna tímabundið milli matshluta, sameina verslanir og innrétta kaffihús í flokki ll tegund c í húsi á lóð nr. 5b og 5C við Geirsgötu.

Minnisblað brunahönnuðar dags. 12.12.2016 fylgir erindi ásamt samþykki eigenda á teikningu.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Grettisgata 20A  (01.182.114) 101830 Mál nr. BN051103

Móóm ehf., Ármúla 18, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta og stækka kvisti á götuhlið í fjölbýlishúsi á lóð nr. 20A við Grettisgötu.

Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa um svipaða fyrirspurn dags. 20. ágúst 2015, þinglýstur eignaskiptasamningur dags. í ágúst 2000, samþykki meðeiganda dags. 17. ágúst 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 24. maí 2015.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. júlí fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2016.

Stækkun:  2,31 ferm., 11,9 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Grettisgata 20B  (01.182.115) 101831 Mál nr. BN051104

Móóm ehf., Ármúla 18, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta og sameina kvisti á götuhlið í fjölbýlishúsi á lóð nr. 20A við Grettisgötu.

Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa um svipaða fyrirspurn dags. 20. ágúst 2015, þinglýstur eignaskiptasamningur dags. í ágúst 2000 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 24. maí 2015.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. júlí 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2016.

Stækkun:  1,05 ferm., 6,1 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Hafnarstræti 19  (01.118.503) 100099 Mál nr. BN052127

Suðurhús ehf., Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík

Sótt er um breytingar á áður samþykktu erindi BN048059 sem felast í lokun á milli verslunar og hótels, færslu á vegg í tæknirými og breytingu á eldhúsi í kjallara, breytingu á  herbergjum í austurenda og gerð hringstiga úr herbergi á 3.h. upp á 4.hæð ásamt hurð þar út á þaksvalir í húsi á lóð nr. 19 við Hafnarstræti.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

SérSkilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

18. Háaleitisbraut 68  (01.727.301) 107329 Mál nr. BN052074

Íshamrar ehf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna lokaúttektar á erindi BN049120 vegna innréttingar á matvælavinnslu í kjallara rýmis 0003 í húsi á lóð nr. 68 við Háaleitisbraut.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

19. Hátún 6  (01.235.202) 102968 Mál nr. BN052224

Hátún 6,húsfélag, Pósthólf 8940, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta anddyri á jarðhæð þannig að B-rými verður A-rými  í húsi á lóð nr. 6 við Hátún.

Stækkun: XX ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Hlíðarendi 14  (01.628.802) 201420 Mál nr. BN052134

Valsmenn hf., Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma upp vinnubúðum með svefnskálum tveimur hæðum  fyrir 44 starfsmenn í sérhönnuðum svefngámum á lóð nr. 14 við Hlíðarenda.

Greinargerð brunahönnuðar dags. 26. október 2016 og bréf til sviðsstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur fylgja erindi.

Stærð svefnskála er:  753,0 ferm., 2.122,7 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

21. Hyrjarhöfði 8  (04.060.304) 110599 Mál nr. BN052222

Húsabær ehf, Berjarima 43, 112 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum sem eru að gerð hefur verið aksturshurð á norðurhlið inn í rými 0105, hluti af millilofti 0106 rifinn og byggt nýtt milliloft, 0107, í rými 0105 í húsi á lóð nr. 8 við Hyrjarhöfða.

Milliloft 0106 minnkar:  33,6 ferm.,

Milliloft 0107, nýtt: 83,0 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Jónsgeisli 61  (04.113.407) 189842 Mál nr. BN052042

Aðalsteina Gísladóttir, Berjarimi 34, 112 Reykjavík

Ingi Garðar Friðriksson, Stórholt 33, 105 Reykjavík

Árni Þór Hlynsson, Jónsgeisli 61, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN027833 vegna lokaúttektar sem felst í breytingum á innra skipulagi 2. hæðar og byggingu arins í einbýlishúsi á lóð nr. 61 við Jónsgeisla.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Kistumelur 18  (34.533.302) 206626 Mál nr. BN052190

K18 ehf., Kringlunni 4-6, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN051110 þannig að komið er fyrir salerni og ræstivaski í rými 0106 og í 0107 í húsinu á lóð nr. 18 við Kistumel.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Laugavegur 1  (01.171.016) 101361 Mál nr. BN052185

Eignarhaldsfélagið Arctic ehf, Suðurhrauni 12c, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum,  sjá erindi BN048918 sem eru breytingar í íbúð í kjallara þar sem ræstiskápur er færður til í rými í 0003 og fjarlægður í rými 0002 í húsi á lóð nr. 1 við Laugaveg.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Laugavegur 34A  (01.172.216) 101471 Mál nr. BN052077

Lantan ehf., Skólavörðustíg 18, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á móttökusvæði hótels og í veitingastað, færa ræstingu, innrétta snyrtingu og fundarherbergi og opna út á lóð nr. 34B, sjá erindi BN051541 á 1. hæð í Sandhótel á lóð nr. 34A við Laugaveg.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

26. Laugavegur 96  (01.174.308) 101643 Mál nr. BN051987

GILDI fasteignafélag ehf., Laugavegi 96, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN050897 þannig að komið er fyrir útblæstri sem er með Ozon hreinsibúnaði á suðvesturhlið hússins á lóð nr. 96 við Laugaveg.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 21. nóvember 2016.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

27. Listabraut 5-9  (01.726.103) 107325 Mál nr. BN052179

Hvassaleiti 153-157,húsfélag, Hvassaleiti 153, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja svalalokanir úr einföldu hertu gleri  á álkerfi á brautum  á mhl. 01, 02 og 03 samtals 27 íbúðir á húsinu á lóð nr. 5 - 9 við Listabraut.

Greinargerð um tegund svalalokunar frá 3. maí 2012 og greinargerð frá húsfundi húsfélagsins. fylgja erindi.

Stækkun XX rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Lyngháls 10  (04.327.001) 111051 Mál nr. BN050264

Leigumenn ehf., Hrísateigi 22, 105 Reykjavík

Gleraugnaverslunin Sjón ehf., Laugavegi 62, 101 Reykjavík

Lækjarstétt ehf., Aðalstræti 6, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 5 svalir á þakhæð, jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi á 3. hæð, innréttaðar hafa verið 17 vinnustofur í rishæð og eignir 0302 og 0303 eru sameinaðar í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 10 við Lyngháls.

Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 22. janúar 2016 og samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrætti.

Gjald kr. 9.823 + 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Lækjargata 2A  (01.140.505) 100865 Mál nr. BN052118

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um breytingu á áður samþykktu erindi BN051132 sem felst í að breyta veitingastað í kjallara í flokk lll - tegund b í húsi á lóð nr. 2A við Lækjargötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. janúar 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. janúar 2017.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Mosavegur 15  (02.376.101) 172445 Mál nr. BN052105

Ríkiseignir, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að aðstaða fyrir kennara hefur verið innréttuð innan fólksbílaverkstæðis á 1. hæð og millipallur gerður þar ofaná þar sem innréttaðar hafa verið vinnustöðvar fyrir 10 - 15 nemendur í rafgreinum í Borgarholtsskóla í húsi á lóð nr. 150 við Mosaveg.

Stækkun:  millipallur 78,3 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Naustabryggja 41-57  (04.023.203) 180619 Mál nr. BN052121

Lóðafélag Naustabryggju 41-57, Naustabryggju 55, 110 Reykjavík

Naustabryggja 21-29,húsfélag, Pósthólf 8940, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi  til að setja upp hlið með aðgangsstýringu að bílastæða- og aðkomulóð fjölbýlishúsa á lóð nr. 21-29, 35-53 og 55-57 við Naustabryggju.

Greinargerð frá stjórn lóðafélagsins Naustabryggju 41-57 óundirrituð  dags. 9. desember 2016 fylgir erindi.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Síðumúli 17  (01.293.205) 103812 Mál nr. BN051201

Bitter ehf., Dalvegi 10-14, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi fyrir áður uppsettri spónasugu og safngámi á norðanverðri lóð nr. 17 við Síðumúla.

Erindi var grenndarkynnt frá 15. september til og með 13. október 2016. 

Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Ólafur Þór Gylfason framkvæmdastjóri  f.h. Markaðs- og miðlarannsókna ehf., dags. 16. september 2016, Ólafur Stefán Sveinsson f.h. Nafir ehf. og Hávík ehf., dags. 29. september 2016, og Halldóra Hreggviðsdóttir f.h. Púpu ehf. og Þorgeir Björnsson f.h. Fjörtíu og sex ehf., dags. 29. september 2016.

Erindi fylgir umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ásamt hljóðvistarmælingu dags. 9. desember 2016, umsögn skipulagsfulltrúa  um grenndarkynningu dags. 4. janúar 2017 og ljósmyndir af spónasugu.

Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. júní 2016, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. júní 2016 og bréf frá húsfélagsfundi ódagsett.

Gjald kr. 10.100 + 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2017.

33. Skólavörðustígur 42  (01.181.417) 210269 Mál nr. BN051505

R. Guðmundsson ehf, Pósthólf 1143, 121 Reykjavík

Sótt er um samþykki á breyttri brunahönnun vegna athugasemda frá SHS og lokaúttektar á húsi á lóð nr.  42 við Skólavörðustíg/Lokastíg 23.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Sóltún 1  (01.230.003) 208475 Mál nr. BN052143

Mánatún hf., Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir breyttri aðkomu að íbúð 0902, sjá erindi BN045300, v/lokaúttektar í fjölbýlishúsinu Mánatún 7-17 á lóð nr. 1 við Sóltún.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Sóltún 6  (01.233.501) 211565 Mál nr. BN052163

Rafn Guðmundsson, Bárugata 30a, 101 Reykjavík

Waldorfleikskólinn Sólstafir, Grundarstíg 19, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áfangaskiptingu byggingaframkvæmda og jafnframt að hver áfangi fái sér fastanúmer á lóð nr. 6 við Sóltún .

Gjald kr. 10.100

Synjað.

Hver áfangi getur ekki staðið sem sjálfstæð eining.

36. Sturlugata 6  (01.631.305) 220421 Mál nr. BN051881

Sturlugata 6 ehf., Túngötu 5, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja fjögurra hæða verslunar- og skrifstofuhús sem hýsa mun frumkvöðlasetur sem tengir fyrirtæki og vísindasamfélag í Vísindagörðum á lóð nr. 6 við Sturlugötu.

Erindi fylgir skýrsla um byggingareðlisfræði og orkuramma, greinargerð með burðarvirkishönnun, greinargerðir um hönnunarforsendur lýsingar og lagnakerfa og greinargerðir um hljóðvist og brunahönnun allt frá verkfræðistofunni Eflu dags. í október 2016 ásamt greinargerð hönnuðar um aðgengi dags. í október 2016.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. desember 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2016.

Stærð, A+B rými:  8.683,2 ferm., 30.236 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Tryggvagata 19  (01.118.301) 100095 Mál nr. BN052148

Ríkiseignir, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að flytja mötuneyti af 2. hæð upp á 3. hæð og innrétta 2. hæð að hluta sem skrifstofurými í húsi á lóð nr. 19 við Tryggvagötu.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Vagnhöfði 17  (04.063.101) 110637 Mál nr. BN052172

Vagnhöfði 17 ehf., Hófgerði 2, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu til vesturs, einangra og klæða útveggi eldra húss og viðbyggingar með loftræstri aluzinkklæðningu, endurnýja þakjárn, breyta innra skipulagi og innrétta 14 sjálfstæð tveggja hæða rými fyrir atvinnurekstur í húsi á lóð nr. 17 við Vagnhöfða.

Stækkun:  674,6 ferm., 1.770,4 rúmm.

Eftir stækkun:  1.689,8 ferm., 5.931,4 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

39. Þarabakki 3  (04.603.702) 111729 Mál nr. BN052192

Frumherji hf., Hesthálsi 6-8, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0003 og 0102 og 0103 þannig að sagað er úr vegg í kjallara og endurinnréttuð er kaffiaðstaða og útbúið er fundarherbergi í kjallara og á 1. hæð er rýmin innréttuð í húsinu á lóð nr. 3 við Þarabakka.

Umsögn burðarvirkshönnuðar dags. 11. janúar 2017 fylgir.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Þingholtsstræti 30  (01.183.502) 101980 Mál nr. BN052203

Þingholtsstræti 30,húsfélag, Þingholtsstræti 30, 101 Reykjavík

Bjarni G Bjarnason, Þingholtsstræti 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049201 þannig að ??? á húsinu á lóð nr. 30 við Þingholtsstræti .

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Öldugata 2  (01.136.311) 100569 Mál nr. BN052238

Nordic Investment Services ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051615 sem felst í því að uppfæra skráningartöflu og stærðir á afstöðumynd í húsi á lóð nr. 2 við Öldugötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Lagfæra skráningu.

Ýmis mál

42. Bjargargata 3   Mál nr. BN052258

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

43. Dugguvogur 6  (01.454.001) 105617 Mál nr. BN052232

Öryggisfjarskipti ehf, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík

Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 30. nóvember 2016, vegna dagsekta varðandi tölvustýrt ljósaskilti á lóðinni nr. 6 við Dugguvog.

Lagt fram.

44. Fiskislóð 49-51  (01.087.602) 100012 Mál nr. BN052241

Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Faxflóahafnir sf. óska eftir samþykkt á meðfylgjandi mæliblaði fyrir lóðina Fiskislóð 49-51, um er að ræða uppfærslu mæliblaðs, samræmingu á blaðstærðum við önnur mæliblöð. Ekki eru gerðar neinar breytingar á lóðinni hvorki stærðum eða kvöðum á lóð.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

45. Grensásvegur 22  (01.801.215) 107636 Mál nr. BN052235

Olav Forum ehf, Grensásvegi 22, 108 Reykjavík

Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 30. nóvember 2016, vegna dagsekta varðandi tölvustýrt ljósaskilti á lóðinni nr. 22 við Grensásveg.

Lagt fram.

46. Ingunnargata 3A   Mál nr. BN052259

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

47. Ingunnargata 5   Mál nr. BN052257

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

48. Smiðshöfði 19  (04.061.401) 110620 Mál nr. BN052234

Breiðás ehf, Brúnastöðum 73, 112 Reykjavík

Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 30. nóvember 2016, vegna dagsekta varðandi tölvustýrt ljósaskilti á lóðinni nr. 19 við Smiðshöfða.

Lagt fram.

49. Sturlugata 2-4  (01.631.304) 220420 Mál nr. BN052254

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

50. Sturlugata 6  (01.631.305) 220421 Mál nr. BN052255

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

51. Sæmundargata 15-19  (01.631.303) 220416 Mál nr. BN052253

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

52. Sæmundargata 21  (01.631.302) 220417 Mál nr. BN052252

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

53. Sæmundargata 21A  (01.631.306) 220419 Mál nr. BN052256

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

54. Sæmundargata 23  (01.631.301) 220418 Mál nr. BN052250

Sjá fylgiskjal.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst

Fundi slitið kl. 12.43

Nikulás Úlfar Másson

Sigríður Maack Björgvin Rafn Sigurðarson

Sigrún Reynisdóttir Jón Hafberg Björnsson

Skúli Þorkelsson Eva Geirsdóttir