Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 138

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2016, miðvikudaginn 17. febrúar kl. 9:12 var haldinn 138. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gísli Garðarsson, Sverrir Bollason, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hildur Sverrisdóttir, Sigurður Ingi Jónsson og Sigurborg Ó Haraldsdóttir áheyrnarfulltrúi. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Sigurðsson, Björn Axelsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Stefán Finnsson og Marta Grettisdóttir.

Fundarritari er Erna Hrönn Geirsdóttir. 

Þetta gerðist:

(E) Umhverfis- og samgöngumál

1. Grettisgata 2A, bílastæði fyrir hreyfihamlaða (USK2016020041) Mál nr. US160040

Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngur dags. 11. febrúar 2016 þar sem lagt er til að afmarkað verði eitt almennt bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Grettisgötu 2A næst Klapparstíg.  

Samþykkt með fyrirvara um samþykki lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins.

2. Háaleitisbraut 66 og 70, stöðubann (USK2016020043) (01.727.101) Mál nr. US160041

Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngudeildar, dags. 12. febrúar 2016, þar sem lagt er til að sett verði stöðubann við suður- og norðurkant aðkomugötu að Háaleitisbraut 66 og 70, þ.e. að Grensáskirkju, leikskólanum Austuborg og Austurveri.

Samþykkt með fyrirvara um samþykki lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins.

3. Miðborgin, sleppistæði fyrir hópbifreiðar (USK2013020026) Mál nr. US140187

Kynning á vinnu um sleppistæði í miðborginni fyrir rútur.

Kynnt. 

4. Borgarlína og fluglest, kynning Mál nr. US160052

Kynning á vinnu við borgarlínu samanber stefnumörkun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins og hugmynd um svokallaða fluglest til Keflavíkur. 

Hrafnkell Proppe svæðisskipulagsstjóri kynnir. 

5. Miðborgin, framkvæmdir á götum. Mál nr. US160036

Kynning á framkvæmdum í miðborg Reykjavíkur.

Ámundi V. Brynjólfsson skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds kynnir. 

6. Samgöngu- og þróunarás, kynning Mál nr. US160043

Kynning á undirbúningi vinnu við skipulag á samgöngu- og þróunarás.

Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri kynnir. 

7. Strætó, forgangsreinar fyrir Strætó Mál nr. US160037

Kynning á forgangsreinum fyrir Strætó.  

Þorsteinn Hermannsson fagstjóri samgangna hjá Mannvit kynnir.

8. Miklabraut, Miklabraut í stokk Mál nr. US160038

Kynning á framkvæmd að færa Miklubraut í stokk. 

Baldvin Einarsson verkfræðingur hjá Eflu kynnir 

Fulltrúar Vegagerðarinnar Magnús Einarsson, Jónas Snæbjörnsson og Eiríkur Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

9. Strætó, leiðarkerfi Strætó Mál nr. US160042

Kynning á leiðarkerfi Strætó.

Ragnheiður Einarsdóttir sérfræðingur í samgönguskipulagi kynnir. 

(A) Skipulagsmál

10. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, dags. 12. febrúar 2016.

(B) Byggingarmál

11. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari eru fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 863 frá 16. febrúar 2016. 

(D) Ýmis mál

12. Borgargötur, starfshópur Mál nr. US160026

Lögð fram tillaga að starfshópi um borgargötur í Reykjavík. Einnig er lagt fram erindisbréf starfshópsins dags. í febrúar 2016. 

Samþykkt að skipa Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur, Sverrir Bollason, Herdísi Önnu Þorvaldsdóttur, Kristinn Jón Eysteinsson, Halldóru Hrólfsdóttur og Hildi Gunnlaugsdóttur í starfshópinn. 

13. Umhverfis- og skipulagssvið, yfirlit yfir innkaup Mál nr. US130118

Lagt fram yfirlit yfir innkaup umhverfis- og skipulagssviðs á verkum yfir milljón í desember 2015. 

14. Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Mál nr. US160053

Stór atvinnu- og iðnaðarsvæði verða tekin undir íbúðabyggð.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir leggja fram eftirfarandi fyrirspurn: 

Stór atvinnu- og iðnaðarsvæði verða tekin undir íbúðabyggð á þessu og næstu árum. Nægir að nefna Vogabyggð (Elliðaárvog), Höfðann, Skeifuna, Laugaveg og Múlana en á þessum reitum eru skráð mjög mörg og rótgróin fyrirtæki. Ljóst er að atvinnustarfsemi margra þessara félaga samræmist ekki fyrirhugaðri íbúðabyggð þannig að þau eiga ekki annarra kosta völ en að undirbúa flutning og  sækja um nýjar lóðir fyrir starfsemi sína á höfuðborgarsvæðinu. Hvaða atvinnusvæði innan borgarmarkanna hefur verið deiliskipulagt fyrir þessi fyrirtæki? Hver hefur undirbúningur á þeim svæðum verið og hvenær verður vegagerð og framkvæmdum við aðra grunnþjónustu lokið? Hvenær mun úthlutun atvinnulóða hefjast?

Frestað 

15. Reglur um framkvæmdir í miðborgum Evrópu, Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Mál nr. US160054

Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Júlíusar Vífils Ingvarssonar og Hildur Sverrisdóttur :

 Að undanförnu hafa íbúar og rekstraraðilar í miðborg Reykjavíkur og á svonefndum þéttingarreitum í eldri hverfum orðið að þola mikið ónæði vegna byggingarframkvæmda . Oft hafa skapast aðstæður sem ekki verður lýst öðruvísi en sem óþolandi fyrir þau sem næst eru byggingarstað.

Lagt er til að umhverfis- og skipulagssvið taki saman greinargerð um þær reglur sem gilda um framkvæmdir í miðborgum Evrópu. Einkanlega skal athyglinni beint að þeim borgum þar sem uppbygging í sögulegum miðborgum hefur verið mikil á undanförnum árum. Jafnframt verði gerð samantekt á þeirri tæknilegu þróun sem orðið hefur á tækjum sem notuð eru við jarðvinnu við þessar aðstæður. Þessar upplýsingar verði notaðar til að fara yfir og endurskoða reglur sem gilda um framkvæmdir í eldri íbúðahverfum og svæðið sem er innan Hringbrautar og Snorrabrautar en ýmislegt bendir til þess að þær séu of rúmar. Niðurstöður verði lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsráð sem mun taka ákvarðanir um endurskoðun og breytingar á reglum borgarinnar hvað þetta varðar í framhaldinu. Vegna mikillar uppbyggingar sem einkum tengist aukinni ferðaþjónustu er mikilvægt að hraða þessari vinnu. 

Frestað.

16. Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Rýmka reglur um hollustuhætti og matvæli Mál nr. US160055

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir leggja fram eftirfarandi fyrirspurn: 

Á fundi borgarstjórnar þann 19. maí 2015 var svohljóðandi tillaga samþykkt:  "Borgarstjórn samþykkir að beina þeim tilmælum til ríkisvaldsins að rýmka reglur um hollustuhætti og matvæli svo það sé hverju sveitarfélagi í sjálfsvald sett hvernig það kýs að haga reglum um á hvaða stöðum sé leyfilegt að hafa dýr, svo sem á kaffihúsum, veitingastöðum, líkamsræktarstöðvum, samkomuhúsum o.s.frv. Það er réttlætismál að sveitarfélög hafi svigrúm gagnvart eigendum slíkra staða að leyfa dýrahald ef þeir óska." Bréf þessa efnis var sent Umhverfisráðuneytinu í maí 2015. Óskað er upplýsinga um hvar þetta mál er statt og eftir atvikum að rekið sé á eftir viðbrögðum. 

Frestað. 

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 13:10

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð 

Hjálmar Sveinsson

Magnea Guðmundsdóttir Sverrir Bollason 

Gísli Garðarsson Júlíus Vífill Ingvarsson

Hildur Sverrisdóttir Sigurður Ingi Jónsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2016, þriðjudaginn 16. febrúar kl. 10:10 fyrir  hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 863. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björgvin Rafn Sigurðarson, Sigrún Reynisdóttir, Nikulás Úlfar Másson, Björn Kristleifsson, Óskar Torfi Þorvaldsson, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir

Fundarritari var Björgvin Rafn Sigurðarson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Bankastræti 11 (01.171.018) 101363 Mál nr. BN050620

Mósi ehf, Bankastræti 11, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta matvöruverslun í stað sérvöruverslunar í austur hluta 1. hæðar ásamt auglýsingaskilti fyrir ofan glugga á húsi á lóð nr. 11 við Bankastræti.

Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. febrúar 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2015.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Brautarholt 6 (01.241.204) 103022 Mál nr. BN050100

Karl Mikli ehf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að lyfta þaki til suðurs, innrétta 6 íbúðir og byggja tvennar svalir á norðurhlið og fernar á suðurhlið 4. hæðar skrifstofuhúss á lóð nr. 6 við Brautarholt.

Erindi var grenndarkynnt frá 28. desember 2015 til og með 25. janúar 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Gréta Gunnarsdóttir, dags. 8. janúar 2016.  Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. febrúar 2016.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. október 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. október 2015.

Einnig samþykki meðeigenda dags. 12. október 2015, greinargerð um algilda hönnun dags. 18. nóvember 2015 og ósk um grenndarkynningu dags. 25. nóvember.

Stækkun:  34,9 ferm., 56,5 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Faxafen 5 (01.463.301) 105673 Mál nr. BN050587

SRE-Fax5 ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja lyftu í lyftustokk sem er til staðar í atvinnuhúsi á lóð nr. 5 við Faxafen.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Frakkastígur 26A (01.182.317) 215204 Mál nr. BN050406

Taste ehf., Frakkastíg 26a, 101 Reykjavík

Live ehf., Laufásvegi 70, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir 16 gesti við útiveitingaborð, til að bæta við snyrtingu fyrir gesti, til annarra smærri breytinga innanhúss og til að breyta brunahönnun, sbr. erindi BN048943 samþ. 12.5. 2015, í veitingahúsi á lóð nr. 26A við Frakkastíg.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Flokkur og tegund veitingastaðar sem og heimild til útiveitinga skal koma fram í byggingarlýsingu.

5. Freyjugata 44 (01.196.102) 102643 Mál nr. BN050143

Brynjar Pétursson Young, Freyjugata 44, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta þakgluggum, byggja kvisti og svalir á rishæð, byggja anddyri með svölum á þaki á norðurhlið, breyta útitröppum og klæða með koparklæðningu þak fjölbýlishúss á lóð nr. 44 við Freyjugötu.

Erindi fylgir samþykki meðeiganda dags. 4. nóvember 2015 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. janúar 2016. Erindið var grenndarkynnt frá 25. nóvember til og með 23. desember 2015. Engar athugasemdir bárust.

Stækkun:  29,9 ferm., 61,9 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

6. Gnoðarvogur 43 (01.440.301) 219761 Mál nr. BN050572

Ríkissjóður Íslands, Vegmúla 3, 108 Reykjavík

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, sjá erindi BN045885 í Menntaskólanum við Sund á lóð nr. 43 við Gnoðarvog.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Grensásvegur 12 (01.295.406) 103853 Mál nr. BN050603

Karl Mikli ehf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka og breyta þaki og innrétta herbergi á 2. hæð í bakhúsi, mhl. 02, gististaður fl. 2, tegund B, gistiheimili, á lóð nr. 12 við Grensásveg.

Stærðir: xx ferm., xx rúmm. stækkun

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Grensásvegur 16A (01.295.407) 103854 Mál nr. BN050628

iborg ehf., Huldubraut 30, 200 Kópavogur

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Grensásvegur 16A ehf., Laugavegi 182, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa mhl. 03, fastanr. 201-5642 merkt 0101, bílastæðahús 541,2 ferm., einnig til að girða komandi athafnasvæði og reisa 25 m. háan byggingakrana á lóð nr. 16A við Grensásveg.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Umsækjandi hafi samband við embætti byggingarfulltrúa.

9. Grettisgata 5 (01.171.506) 101422 Mál nr. BN050611

Frón íbúðir ehf, Laugavegi 22a, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sbr. erindi BN049144 vegna íbúðar 0202 í húsi á lóð nr. 5 við Grettisgötu.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. 

Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. 

Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Gylfaflöt 1 (02.575.101) 173533 Mál nr. BN050544

Skeljungur hf., Borgartúni 26, 105 Reykjavík

S fasteignir ehf., Borgartúni 26, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta bensínstöð í söluskála í flokki I og komið er upp sjálfsafgreiðslukerfi fyrir bensíndælur sem eru enn til staðar á lóð nr. 1 við Gylfaflöt.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

11. Haukshólar 6 (04.643.006) 111921 Mál nr. BN050505

Benedikt Helgason, Sviss, Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN050009, breytingin er þegar gerð þannig að um reyndarteikningu er að ræða af húsi á lóð nr. 6 við Haukshóla.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.  

Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis.

Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. 

Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Hlíðarendi 6-10 (01.628.801) 106642 Mál nr. BN050522

Knattspyrnufélagið Valur, Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu sem tengir Fjósið gömlu íbúðarhúsi og  gamla íþróttahúsinu, sjá erindi BN045376, innrétta 11 gistieiningar í tengibyggingunni, innrétta minjasafn í Fjósinu og sameiginlega setustofu í gamla íbúðarhúsinu á lóð nr. 2-6 við Hlíðarenda.

Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 12. desember 2015 þar sem farið er fram á undanþágu frá kröfu um algilda hönnun sbr. grein 6.1.3, og 19. janúar 2016, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 21. febrúar 2011 og brunahönnun frá EFLU dags. 19. janúar 2016.

Viðbygging:  1. hæð 567,1 ferm., 2. hæð 246,4 ferm., 3. hæð 121,2 ferm.

2. áfangi samtals:  934,7 ferm., 2.879,7 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. 

13. Holtavegur 32 (01.393.---) 176082 Mál nr. BN050073

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Eggert Guðmundsson, Vesturhólar 1, 111 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja upp færanlega kennslustofu K-109F og tengja hana við m- hús sem fyrir er á staðnum og hýsir frístundaheimili fyrir börn í Langholtskóla á lóð nr. 32 við Holtaveg..

Stærðir: K-109-F er: 79,4 ferm., 220,6 rúmm.

Tengibygging 3,1 ferm. 7,1 rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

14. Hyrjarhöfði 3 (04.060.207) 110591 Mál nr. BN050606

Félagshús ehf., Lambhaga 3, 800 Selfoss

Sótt er um samþykki á þegar gerðum breytingum innanhúss á báðum hæðum í iðnaðarhúsi á lóð nr. 3 við Hyrjarhöfða.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Ingólfsstræti 2A (01.170.005) 101323 Mál nr. BN050061

Fjélagið - eignarhaldsfélag hf., Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fella niður skábraut innanhúss í anddyri og útbúa í staðinn skábraut utanhúss við syðsta innganginn og til að loka hliðarinngangi við lyftu á 1. hæð, sjá erindi BN046942, í Gamla Bíói á lóð nr. 2A við Ingólfsstræti.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. október 2015, bréf frá hönnuði dags. 22. október 2015, umsögn samgöngudeildar dags. 5. nóvember 2015 og umsögn SRU dags. 1. desember 2015.

Gjald kr. 9.823

Synjað.

Sýnt hefur verið fram á að hægt sé að leysa aðkomu hreyfihamlaðra innhúss og því skal leysa hæðarmismun innan lóðar/húss sbr. ákvæði byggingarreglugerðar.

16. Klapparstígur 38 (01.171.505) 101421 Mál nr. BN048409

Reykjavík Rent ehf, Hverfisgötu 105, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum innanhúss, sem felast í að færa stiga úr sal inn í glerskála, einnig er sótt um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III , tegund A og F á 2. hæð og í glerskála, við hús á lóð nr. 38 við Klapparstíg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. janúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2016., einnig bréf arkitekts dags. 10.2. 2016 og minnisblað við hljóðvistarskýrslu dags. 29.1. 2016.

Gjald kr. 9.500 + 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Laugavegur 103 (01.240.007) 102975 Mál nr. BN050470

Anh Thé Doung, Háaleitisbraut 153, 108 Reykjavík

Sinh Xuan Luu, Kleppsvegur 136, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta söluturn/veitingaverslun með skyndibita og ís í rými 0102 í húsi á lóð nr. 103 við Laugaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2016.

Ljósmyndir fylgja.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Laugavegur 107 (01.240.002) 102973 Mál nr. BN050623

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss fyrir Hlemm matarmarkað í strætóbiðstöð á lóð nr. 107 við Laugaveg.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

19. Laugavegur 23 (01.172.013) 101435 Mál nr. BN050624

Þingvangur ehf., Hlíðasmára 9, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu og svalir við stigahús Klapparstígs 31 og byggja viðbyggingu aftan við timburhús á Laugavegi 23, innrétta verslanir á jarðhæðum og skrifstofur og tvær íbúðir á efri hæðum húsa á lóð nr. 23 við Laugaveg.

Stækkun:  96,4 ferm., 366,9 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

20. Laugavegur 56 (01.173.112) 101529 Mál nr. BN050322

L56 ehf., Hlíðasmára 12, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja ofan á núverandi framhús ásamt því að reisa nýbyggingu á baklóð fyrir gistiheimili í flokki II, gestafjöldi 32 og fjórir starfsmenn, sbr. fyrirspurn BN050029 sem svarað var neitandi 20.10.2015 fyrir hús á lóð nr. 56 við Laugaveg.

Jafnframt er erindi BN048949 fellt úr gildi.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. janúar 2016 fylgir erindinu ásamt endurskoðaðri umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2016.

Meðfylgjandi er bréf lögfræðings dags. 26. nóvember 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Laugavegur 85 (01.174.124) 101599 Mál nr. BN050619

Calvi ehf, Laugavegi 85, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að færa handlaug á salerni fyrir fatlaða á 1. hæð, sjá erindi BN050292,  í húsi á lóð nr. 85 við Laugaveg.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

Þinglýsa skal yfirlýsingu þess efnis að jarðhæð hússins skuli vera opin almenning yfir daginn, að óheimilt sé að nota skyggt gler, filmur eða annað sem skyggir fyrir glugga.

22. Laugavegur 96 (01.174.308) 101643 Mál nr. BN050563

Neva ehf., Gunnarsbraut 46, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og minnka leyfilegan gestafjölda í 15 í veitingahúsi í flokki II á lóð nr. 96 við Laugaveg.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

23. Mjölnisholt 4 (01.241.012) 103007 Mál nr. BN050529

Borgarþvottahúsið ehf, Borgartúni 22, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja hæð og ris með kvisti á vestur og austur hlið, koma fyrir svölum á öllum hæðum og fjölga íbúðum úr tveimur í þrjár í húsinu á lóð nr. 4 við Mjölnisholt. 

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2016.

Varmatapsútreikningar dags. 8. jan. 2016 fylgir.

Borga þarf af einu bílastæðum.

Stækkun húss: mhl. 01 er 134,7 ferm., XX rúmm.

Mhl. 02:  15,1 ferm., XX rúmm. 

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2016.

24. Mýrargata 27 (01.130.228) 223065 Mál nr. BN050570

Arwen Holdings ehf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja raðhús, tvær hæðir og ris úr forsmíðuðum timbureiningum á lóð nr. 27 við Mýrargötu.

Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. í janúar 2016 og yfirlýsing um verkfræðihönnun frá Víðsjá dags. 12. febrúar 2016.

Stærð A-rými:  194,2 ferm., 647,1 rúmm.

B-rými:  xx ferm.

C-rými:  8,7 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

25. Mýrargata 29 (01.130.227) 223066 Mál nr. BN050567

Arwen Holdings ehf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja raðhús, tvær hæðir og ris úr forsmíðuðum timbureiningum á lóð nr. 27 við Mýrargötu.

Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. í janúar 2016 og yfirlýsing um verkfræðihönnun frá Víðsjá dags. 12. febrúar 2016.

Stærð A-rými:  194 ferm., 669,5 rúmm.

B-rými:  xx ferm.

C-rými:  8,7 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

26. Mýrargata 31 (01.130.226) 223067 Mál nr. BN050569

Arwen Holdings ehf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja fjögurra íbúða fjölbýlishús, tvær hæðir og ris úr forsmíðuðum timbureiningum og veitingahúsi í flokki II, teg. kaffihús á jarðhæð á lóð nr. 27 við Mýrargötu.

Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. í janúar 2016 og yfirlýsing um verkfræðihönnun frá Víðsjá dags. 12. febrúar 2016.

Stærð A-rými:  640 ferm., 2.151,2 rúmm.

B-rými:  xx ferm

C-rými:  20,3 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

27. Norðurgarður 1 (01.112.201) 100030 Mál nr. BN050561

HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýtt anddyri með útveggi úr gleri og þak pappaklætt og einangrað við húsið á lóð nr. 1 við Norðurgarð.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2016.

Stækkun: 88,3 ferm,. 459,2 rúmm. 

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2016.

28. Rauðalækur 32 (01.344.101) 104025 Mál nr. BN050599

Þórður Snær Skagfjörð Júlíusson, Stigahlíð 20, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjarlægja burðarvegg milli eldhúss og stofu og setja stálbita og súlur í staðinn á 2. hæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 32 við Rauðalæk.

Meðfylgjandi er bréf aðal- og burðarvirkishönnuðar dags. 3.2. 2016, samþykki meðeigenda dags. 1.2. 2016 og dagbókarfærður kaupsamningur dags. 25.1. 2016.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Seljavegur 1A (01.130.225) 223068 Mál nr. BN050568

Arwen Holdings ehf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja raðhús, tvær hæðir og ris úr forsmíðuðum timbureiningum á lóð nr. 27 við Mýrargötu.

Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. í janúar 2016 og yfirlýsing um verkfræðihönnun frá Víðsjá dags. 12. febrúar 2016.

Stærð A-rými:  195,9 ferm., 670,9 rúmm.

B-rými:  xx ferm.

C-rými:  11,3 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

30. Seljavegur 1B (01.130.224) 223069 Mál nr. BN050566

Arwen Holdings ehf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja raðhús, tvær hæðir og ris úr forsmíðuðum timbureiningum á lóð nr. 27 við Mýrargötu.

Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. í janúar 2016 og yfirlýsing um verkfræðihönnun frá Víðsjá dags. 12. febrúar 2016.

Stærð A-rými:  199,3 ferm., 662,1 rúmm.

B-rými:  xx ferm.

C-rými:  11,6 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

31. Snorrabraut 27-29 (01.240.011) 102978 Mál nr. BN050557

Alda fasteignafélag ehf, Snorrabraut 29, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og fjölga herbergjum um fimm á 2. hæð og þrjú á 4. hæð þannig að gestir geta verið 85 í gistiheimili á 2. og 4. hæð í húsi nr. 29 á lóð nr. 27-29 við Snorrabraut.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Sóltún 1 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN049895

Dverghamrar ehf., Lækjarbergi 46, 221 Hafnarfjörður

Sótt er um leyfi til að byggja 34 íbúða 8 hæða fjölbýlishús, Mánatún 1 sem verður mhl. 04 og tengist bílakjallara sem fyrir er á lóð nr. 1 við Sóltún.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. september 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2015.

Stærð A-rými:  4.287,2 ferm., 13.977,3 rúmm.

B-rými:  230 ferm.,

C-rými:  344,4 rúmm.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Sóltún 1 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN050633

Dverghamrar ehf., Lækjarbergi 46, 221 Hafnarfjörður

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi að Mánatúni 1 fyrir aðstöðusköpun, jarðvinnu, grunnlagna og undirstaða samhliða umsókn BN049895.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Starhagi 10 (01.555.108) 106631 Mál nr. BN050605

Ólafur Freyr Frímannsson, Starhagi 10, 107 Reykjavík

Erla Gísladóttir, Starhagi 10, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 1. hæð húss á lóð nr. 10 við Starhaga.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Stigahlíð 45-47 (01.712.101) 107208 Mál nr. BN050626

Suðurver ehf., Stigahlíð 45-47, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka vörulyftu milli hæða og láta hana þjóna kjallara einnig, setja hringstiga milli 1. hæðar og kjallara í húsnæði Bakarameistarans, endurinnrétta geymslu- og starfsmannaaðstöðu í suðurhluta hússins/kjallara, endurinnrétta skrifstofur í norðurhluta 2. hæðar og setja svalir á verslanakjarnann Suðurver á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.

Meðfylgjandi er brunahönnunarskýrsla Verkís dags. feb. 2016.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Suðurlandsbraut 8 (01.262.103) 103517 Mál nr. BN050622

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja þrjár hæðir ofaná og dýpka til suðurs verslunar- og skrifsstofuhús á lóð nr. 8 við Suðurlandsbraut.

Tengist bílastæðahúsi á þremur pöllum, sem verður sameiginlegt fyrir hús nr. 8 og 10.

Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 9. febrúar 2016 og kvöð um afnotarétt Suðurlandsbrautar 10 af hluta bílastæða á Suðurlandsbraut 8 dags. 16. febrúar 2016.

Mhl. 01 var:  1.694,1 ferm., 6.681,9 rúmm.

Mhl. 01 verður:  4.869,4 ferm., 18.668,1 rúmm.

Stækkun:  3.175,3 ferm., 11.986,2 rúmm.

Gjald kr. 10.100 

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Tunguháls 19 (04.327.002) 111052 Mál nr. BN050503

Húsfélagið Tunguhálsi 19, Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík

Hugvit hf, Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta eignaskiptum á 1. hæð þannig að flóttagangur fellur út og verður séreign 0101, tæknirými og snyrting á 2. hæð verður séreign 0101 og skjalageymsla verður kaffistofa, snyrting og hálfur gangur /stigi á 3. hæð verður séreign 0301 og snyrtingar og gangur/stigi verða séreign 0301 í húsinu á lóð nr. 19 við Tunguháls. 

Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir erindinu dags 15.jan. 2016. Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.    

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

38. Tunguháls 7 (04.327.203) 111058 Mál nr. BN050365

Garðlist ehf, Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi þannig að gerð er grein fyrir áður gerðum millipalli og einnig er sótt um samþykki fyrir brunavörnum fyrir húsið á lóð nr. 7 við Tunguháls.

Stækkun millipalls:  45,5 ferm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Úlfarsbraut 114 (02.698.508) 205752 Mál nr. BN050600

Bílheimar ehf., Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt níu íbúða fjölbýlishús, þrjár hæðir og kjallara með bílgeymslu á lóð nr. 114 við Úlfarsbraut.

Stærð A-rými:  1.300,9 ferm., 4.038,9 rúmm.

B-rými:  152,6 ferm.,

C-rými:  22 ferm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

40. Úlfarsbraut 122-124 (05.055.701) 205755 Mál nr. BN049765

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að færa tvær kennslustofur nr. K-107-F og K108-F og tengja þær við kennslustofur K97-E og K98-E  koma fyrir stálgám S-14-18 við H2 á byggingareit fyrir færanlegar kennslustofur innan lóðar nr. 122-124 við Úlfarsbraut.

Stærð kennslustofa er: K 107-F og K 108-F samtals  160,07 ferm., 552,0 rúmm.Stálgámar S-14 -18 stærð: 75,9 ferm., 285,5 rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

41. Úlfarsbraut 18-20 (02.698.403) 205711 Mál nr. BN050466

K16 ehf, Haukdælabraut 102, 113 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, svalir hafa verið stækkaðar og útitröppum og innra skipulagi hefur verið breytt í parhúsi á lóð nr. 18-20 við Úlfarsbraut.

Mhl. 01 minnkar um 6 ferm og 19,5 rúmm.

Mhl. 02 minnkar um 4,7 ferm., stækkar um 23,5 rúmm.

Gjald kr. 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. 

Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. 

Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

42. Vesturgata 41 (01.135.003) 100425 Mál nr. BN050521

Haraldur Johannessen, Vesturgata 41, 101 Reykjavík

Jóhannes Johannessen, Vesturgata 41, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum fyrirkomulagi stiga er breytt í rishæð tvíbýlishússins á lóð nr. 41 við Vesturgötu.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Lagfæra skráningu.

43. Vættaborgir 26-28 (02.346.202) 176324 Mál nr. BN050377

Heimir Morthens, Vættaborgir 26, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að taka í notkun óútgrafið rými í kjallara og innrétta snyrtingu og eldunaraðstöðu, koma fyrir hurð út á lóð á norðurhlið og glugga á austurhlið parhúss nr. 26 á lóð nr. 26-28 við Vættaborgir.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2016.

Samþykki meðlóðarhafa dags. 6. janúar 2016 og 10. janúar 2016 fylgir. Stækkun:  43,5 ferm., 161,6 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Öldugata 7A (01.136.405) 100580 Mál nr. BN050612

Ingvar Lundberg, Öldugata 7a, 101 Reykjavík

Gvarius ehf, Öldugötu 7a, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að klæða og einangra, lagfæra raflagnir og innrétta sem íbúð, bakhús/bílskúr á lóð nr. 7A við Öldugötu.

Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 5.1. 2016 og bréf sem sýna að skúrinn hefur gengið kaupum og sölum sem íbúð.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Ýmis mál

45. Heiðmerkurvegur 10 Mál nr. BN050634

Óskað er eftir samþykkt byggingarfulltrúans á nýjum Lóðauppdrætti 8.1--.-49, vegna nýrrar lóðar, Heiðmerkurvegar 10, undir spennistöð O.R eða eins og sýnt er á meðfylgjandi Lóðauppdrætti 8.1--.-49, dags. 11. 02. 2016.

Lóðin Heiðmerkurvegur 10 ( landnr. 223937, staðgr.  8.1--.-49 ) verður 16 m2 að stærð og kemur úr landi Elliðavatns  (landnr 113489). 

Lóðin/landið  Elliðavatn (landnr 113489) minnkar því sem því nemur.

Sjá samþykkt umhverfis- og skipulagsráð 16. 12. 2015 og samþykkt borgarráðs 07. 01. 2016.

Með fylgir tilvitnun í umsókn OR til skipulagsfulltrúa um stofnun lóðar.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

46. Lágmúli 5 (01.261.301) 103507 Mál nr. BN050637

Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á "Lóðauppdrætti 1.261.3"  þ.e. af lóðunum Lágmúla 5, Lágmúla 5 A, Lágmúla 7 og Lágmúla 9, eða eins og sýnt er á meðfylgandi uppdrætti Landupplýsingadeildar dagsettum 11.  2. 2016.

Lóðin Lágmúli 9 (staðgr. 1.261.303, landnr. 103509) er 4502 m², og verður óbreytt.

Lóðin Lágmúli 7 (staðgr. 1.261.302, landnr. 103508) er 4338 m², og verður óbreytt.

Lóðin Lágmúli 5 (staðgr. 1.261.301, landnr. 103507) er sögð 4410 m² í skrám (Þjóðskrá Íslands), en er nú orðin 4889 m² samanber lóðamarkabreytingu sem samþykkt var í byggingarnefnd 9. 6.1977 og þinglýsta yfirlýsingu  nr 411-I-37021 við lóðaleigusamning þinglýst skjal nr  411-F-16240, lóðin Lágmúli 5 verður  4889 m².

Ný lóð Lágmúli 5A (staðgr. 1.261.307, landnr. 223986), bílastæðalóð fyrir Lágmúla 5, verður 644 m², samanber lóðamarkabreytingu sem samþykkt var í byggingarnefnd   9. 6. 1977 og þinglýsta yfirlýsingu  nr 411-I-37021 við lóðaleigusamning þinglýst skjal nr  411-F-16240

Sjá deiliskipulag samþykkt í skipulagsráði þann 09. 03. 2005, og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 02. 05. 2005.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

47. Lágmúli 5A Mál nr. BN050638

48. Lágmúli 7 (01.261.302) 103508 Mál nr. BN050636

49. Lágmúli 9 (01.261.303) 103509 Mál nr. BN050635

Fundi slitið kl. 13:45

Nikulás Úlfar Másson

Björgvin Rafn Sigurðarson Björn Kristleifsson

Sigrún Reynisdóttir Jón Hafberg Björnsson

Óskar Torfi Þorvaldsson Eva Geirsdóttir