Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 130

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2015, miðvikudaginn 16. desember kl. 9:12, var haldinn 130. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal eða Vindheimar. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gísli Garðarsson, Stefán Benediktsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigurður Ingi Jónsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Sigurðsson, Björn Axelsson, Nikulás Úlfar Másson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Bjarnason, Oddrún Helga Oddsdóttir  og Marta Grettisdóttir

Fundarritari var Harri Ormarsson. 

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, dags. 11. desember 2015.

2. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, reitur 1.154.3, Barónsreitur, breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur (01.154.3) Mál nr. SN150391

Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna Barónsreits, dags. október 2015. Breytingin gengur út á stefnu um hæðir húsa og fjölda íbúða á reitnum. Tillagan var auglýst frá 29. október til og með 10. desember 2015. Eftirtaldir aðilar sendi inn athugasemdir: Páll Ólafur Eggerz, dags. 3. desember 2015 og Kristinn Vilbergsson f.h. Kex hostel ehf., dags. 10. desember 2015. Einnig er lagt fram bréf Hvalfjarðarsveitar, dags. 25. nóvember 2015 og umsögn svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins, dags. 1. desember 2015, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við tillögu. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. desember 2015 og uppfærð tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. desember 2015.

Samþykkt með vísan til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. desember 2015.

Vísað til borgarráðs. 

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og fulltrúi Framsóknar- og flugvallarvina Sigurður Ingi Jónsson sitja hjá við afgreiðsluna. 

Kl. 9:17 tekur Sigurborg Ó. Haraldsdóttir sæti á fundinum. 

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

3. Reitur 1.154.3, Barónsreitur, breyting á deiliskipulagi (01.154.3) Mál nr. SN150370

Halldór Eiríksson, Fífusel 26, 109 Reykjavík

Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Halldórs Eiríkssonar arkitekts fh lóðarhafa, dags. 29. júní 2015, um breytingu á deiliskipulagi staðgreinireits 1.154.3, Barónsreits, skv. uppdráttum Tark, dags. 6. júlí 2015, síðast breyttir 24. ágúst 2015. Reiturinn afmarkast af lóðarmörkum Hverfisgötu 83 og Vitastíg í vestri, Skúlagötu til norðurs, lóðarmörkum Skúlagötu 32-34 og Barónsstíg 2-4 í austur og Hverfisgötu til suðurs. Í breytingunni felst talsverð breyting á vesturhluta reitsins. Meðal annars breytist fyrirkomulag bygginga við Skúlagötu úr þremur turnbyggingum yfir í 5-8 hæða randbyggð og eina turnbyggingu. Fyrirkomulag bygginga við Hverfisgötu breytist úr tveimur 4-5 hæða samsíða byggingum yfir í 4-5 hæða randbyggð. Tillagan var auglýst frá 29. október til og með 10. desember 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Páll Ólafur Eggerz, dags. 3. desember 2015 og Kristinn Vilbergsson framkvæmdastjóri f.h. Kex hostel ehf., dags. 10. desember 2015. Einnig er lagt fram bréf Hverfisráðs Miðbæjar, dags. 20. nóvember 2015, þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2015. 

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2015. 

Vísað til borgarráðs. 

Kl. 9:20 tekur Hildur Sverrisdóttir sæti á fundinum. 

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir, fulltrúi Framsóknar- og flugvallarvina Sigurður Ingi Jónsson og fulltrúi Bjartrar framtíðar Magnea Guðmundsdóttir sitja hjá við afgreiðsluna. 

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

4. Suðurlandsbraut 18, breyting á deiliskipulagi (01.264.0) Mál nr. SN150652

ASK Arkitektar ehf., Geirsgötu 9, 101 Reykjavík

ASK Arkitektar ehf., Geirsgötu 9, 101 Reykjavík

Lögð fram umsókn ASK arkitekta ehf., mótt. 28. október 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar - Ármúla vegna lóðarinnar nr. 18 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit bakhússins svo hann nái yfir núverandi bílageymslu, fjarlægja bílastæði á 2. hæð bílageymslu, byggja allt að þriggja hæða byggingu á suðausturhluta lóðar o.fl., samkvæmt uppdr. ASK arkitekta ehf., dags. 22. október 2015. 

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs. 

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

5. Engjateigur 7, breyting á deiliskipulagi (01.366.5) Mál nr. SN150687

Arkís arkitektar ehf., Kleppsvegi 152, 104 Reykjavík

Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf., mótt. 11. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits vegna lóðarinnar nr. 7 við Engjateig. Í breytingunni felst að innkeyrsla á lóðina er færð, afmarkaður er nýr einnar hæðar byggingarreitur fyrir hliðhús á lóðinni, bílastæðum á lóðinni er fækkað úr 57 í 12 og komið er fyrir tæknirýmum og geymslum í bílakjallara. Jafnframt er sett inn heimild fyrir allt að 4,5 m hárri öryggisgirðingu á lóðinni, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf., dags. 30. október 2015. Einnig er lagt fram bréf Arkís Arkitekta ehf., dags. 11. nóvember 2015.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að auglýsa framlagða tillögu með vísan til 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu að kvöð verði sett um að girðingin umhverfis lóðina verði fjarlægð á kostnað lóðarhafa verði starfsemi breytt eða hætt, skal girðingin fjarlægð innann 3 mánaða frá starfsemisbreytingu eða lokun starfssemi og henni þinglýst fyrir útgáfu byggingarleyfis.

Vísað til borgarráðs.“

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

6. Grensásvegur 16A og Síðumúli 37-39, deiliskipulag (01.295.4) Mál nr. SN150628

iborg ehf., Huldubraut 30, 200 Kópavogur

ALARK arkitektar ehf, Dalvegi 18, 201 Kópavogur

Lögð fram umsókn Jakobs Emils Líndal, mótt. 15. október 2015, ásamt tillögu að deiliskipulagi lóðarinnar nr. 16A við Grensásveg og 37-39 við Síðumúla. Í tillögunni felst að byggja við og breyta nýtingu núverandi húsnæðis á lóðinni. Húsnæðið verður nýtt fyrir íbúðir, hótel, skrifstofu- og þjónustustarfssemi, samkvæmt uppdr. Alark arkitekta ehf. dags. 27. nóvember 2015. Einnig er lagt fram bréf Alark arkitekta ehf. dags. 27. nóvember 2015. 

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs. 

Borghildur Sölvey Sturludóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

7. Borgartún 18-24, Nóatún 2-4, trúnaðarmál (01.221.0) Mál nr. SN140313

Erindið skráð í trúnaðarmálabók umhverfis- og skipulagsráðs.

8. Efstaleiti 1, drög að deiliskipulagi (01.745.4) Mál nr. SN150752

Að lokinni samkeppni eru nú lagðar fram til kynningar drög að deiliskipulagi  unnar af Arkþing fyrir lóðina að Efstaleiti 1 - RÚV lóð.

Farið yfir helstu breytingar frá samkeppninni.

Kynnt. 

Fulltrúi Arkþing Helgi Már Hallgrímsson og Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

9. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 Kirkjugarður í Úlfarsfelli, breyting á aðalskipulagi og umhverfismat Mál nr. SN150141

Kynnt drög að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, dags. 14. desember 2015 og drög að umhverfismati, dags. desember 2015 vegna nýs kirkjugarðs í Úlfarsfelli.

Samþykkt að kynna framlögð drög sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

10. Úlfarsfell, kirkjugarður, deiliskipulag (02.6) Mál nr. SN150753

Landmótun sf., Hamraborg 12, 200 Kópavogur

Lögð fram umsókn Landmótunar sf., mótt. 11. nóvember 2015, um drög að  deiliskipulagi fyrir kirkjugarð undir hlíðum Úlfarsfells, samkvæmt uppdrætti Landmótunar sf., dags. 14. desember 2015. Einnig er lögð fram greinargerð, dags. 14. desember 2015.

Kynnt.

Fulltrúar Landmótunar  Þórhildur Þórhallsdóttir og Óskar Örn Gunnarsson og Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið. .

11. Kjalarnes, Esjumelar, nýtt deiliskipulag Mál nr. SN150253

Lögð fram tillaga Landmótunar sf., dags. 2. desember 2015, að nýju deiliskipulagi athafnasvæðis Esjumela við Vesturlandsveg, þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttu framboði athafnalóða af mismunandi stærðum og gerðum í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. 

Samþykkt að kynna framlagða deiliskipulagstillögu fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

Fulltrúi Landmótunar Óskar Örn Gunnarsson og Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.

12. Elliðavatnsland 113489, afmörkun lóðar (08.1) Mál nr. SN150747

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur, mótt. 8. desember 2015, varðandi afmörkun lóðar fyrir dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðavatnslandi, samkvæmt uppdr. Lukr og Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 17. september 2015. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 30. nóvember 2015.  

Samþykkt. 

Vísað til borgarráðs. 

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið

13. Hverfisskipulag, Háaleiti-Bústaðir 5.1 Háaleiti-Múlar, skipulags- og matslýsing (05.1) Mál nr. SN150743

Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulags- og matslýsingu fyrir Háaleiti-Bústaðir hverfi 5.1 Háaleiti-Múlar dags. 14. desember 2015. 

Kynnt. 

Fulltrúi Hornsteina Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, fulltrúi Urban arkitekta Guðmundur Gunnarsson, fulltrúi Landlínu Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir og Ævar Harðarson og Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið.

14. Hverfisskipulag, Háaleiti-Bústaðir 5.2 Kringlan-Leiti-Gerði, skipulags- og matslýsing (05.2) Mál nr. SN150744

Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulags- og matslýsingu fyrir Háaleiti-Bústaðir hverfi 5.2 Kringlan-Leiti-Gerði dags. 14. desember 2015. 

Kynnt. 

Fulltrúi Hornsteina Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, fulltrúi Urban arkitekta Guðmundur Gunnarsson, fulltrúi Landlínu Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir og Ævar Harðarson og Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið.

15. Hverfisskipulag, Háaleiti-Bústaðir 5.3 Bústaða-og Smáíbúðahverfi, skipulags- og matslýsing (05.3) Mál nr. SN150745

Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulags- og matslýsingu fyrir Háaleiti-Bústaðir hverfi 5.3 Bústaða-og Smáíbúðahverfi dags. 15. desember 2015.

Kynnt. 

Fulltrúi Hornsteina Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, fulltrúi Urban arkitekta Guðmundur Gunnarsson, fulltrúi Landlínu Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir og Ævar Harðarson og Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið.

16. Hverfisskipulag, Háaleiti-Bústaðir 5.4 Fossvogshverfi-Blesugróf, skipulags- og matslýsing Mál nr. SN150746

Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulags- og matslýsingu fyrir Háaleiti-Bústaðir hverfi 5.4 Fossvogshverfi-Blesugróf dags. 15. desember 2015.

Kynnt. 

Fulltrúi Hornsteina Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, fulltrúi Urban arkitekta Guðmundur Gunnarsson, fulltrúi Landlínu Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir og Ævar Harðarson og Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið.

17. Vogabyggð svæði 1, lýsing, deiliskipulag, Gelgjutangi Mál nr. SN140215

Lögð fram drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs og Hamla ehf., dags. 27. október 2014, vegna gerðs deiliskipulags Vogabyggðar svæði 1 fyrir Gelgjutanga. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar, dags. 27. október 2014, og umhverfisskýrsla, dags. júní 2015. Jafnframt er lögð fram byggðakönnun, fornleifaskrá og húsakönnun, dags. 2015.

Kynnt.

Fulltrúar Teiknistofunnar Traðar Sigríður Magnúsdóttir og Hans-Olav Andersen og fulltrúar Borgarsögusafns Reykjavíkur Drífa Kristín Þrastardóttir og María Karen Sigurðardóttir. 

18. Vogabyggð svæði 2, lýsing, deiliskipulag, norðursvæði milli Tranavogar og Kleppsmýrarvegar Mál nr. SN140217

Lögð fram drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs og Hamla ehf., dags. 27. október 2014, vegna gerðs deiliskipulags Vogabyggðar svæði 2 fyrir svæðið sem afmarkast milli Tranavogar og að Kleppsmýrarveg. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar, dags. 27. október 2014, og umhverfisskýrsla, dags. júní 2015. Jafnframt er lögð fram byggðakönnun, fornleifaskrá og húsakönnun, dags. 2015.

Kynnt.

Fulltrúar Teiknistofunnar Traðar Sigríður Magnúsdóttir og Hans-Olav Andersen og fulltrúar Borgarsögusafns Reykjavíkur Drífa Kristín Þrastardóttir og María Karen Sigurðardóttir. 

19. Vogabyggð svæði 3, lýsing, deiliskipulag miðsvæði sunnan Tranavogar og norðan Súðarvogar að Sæbraut Mál nr. SN140216

Lögð fram drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs og Hamla ehf., dags. 27. október 2014, vegna gerðs deiliskipulags Vogabyggðar svæði 3 fyrir miðsvæði sem afmarkast af svæðinu sunnan Tranavogar og norðan súðarvogar að Sæbraut. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar, dags. 27. október 2014, og umhverfisskýrla, dags. júní 2015. Jafnframt er lögð fram byggðakönnun, fornleifaskrá og húsakönnun, dags. 2015.

Kynnt.

Fulltrúar Teiknistofunnar Traðar Sigríður Magnúsdóttir og Hans-Olav Andersen og fulltrúar Borgarsögusafns Reykjavíkur Drífa Kristín Þrastardóttir og María Karen Sigurðardóttir. 

Kl. 13:40 víkur Júlíus Vífill Ingvarsson af fundi. 

(B) Byggingarmál

20. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari eru fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 855 frá 15. desember 2015. 

(E) Umhverfis- og samgöngumál

21. Matarsóun í Reykjavík, kynning Mál nr. US150264

Kynning á forrannsókn um matarsóun í Reykjavík. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Rannveig Magnúsdóttir fulltrúar Landverndar og Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið

Kl. 14:30 víkur Hildur Sverrisdóttir af fundi. 

22. Aðgerðaráætlun í úrgangmálum í Reykjavík til 2020., Mál nr. US150068

Lögð fram Aðgerðaáætlun í úrgangsmálum í Reykjavík 2015-2020. Einnig er lögð fram samantekt og meðferð umhverfis- og skipulagssviðs, umhverfisgæða á athugasemdum og ábendingum. 

Samþykkt. 

Vísað til borgarráðs. 

Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

23. Kjalarnes, hættumat vegna ofanflóða Mál nr. US140149

Lagt fram bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 23. nóvember 2015, um staðfestingu umhverfisráðherra þann 22. maí 2015 tillögur hættumatsnefndar Reykjavíkurborgar að hættumati vegna ofanflóða fyrir Kjalarnes neðan Esjuhlíða.

(D) Ýmis mál

24. Umhverfis- og skipulagssvið, yfirlit yfir innkaup Mál nr. US130118

Lagt fram yfirlit yfir innkaup umhverfis- og skipulagssviðs á verkum yfir milljón í október 2015. 

25. Umhverfis- og skipulagssvið, mánaðaruppgjör janúar til október 2015 Mál nr. US130185

Kynnt uppgjör umhverfis- og skipulagssviðs ES og RK fyrir janúar til október 2015. 

Kl. 15:20 víkur Sigurborg Ó. Haraldsdóttir af fundi. 

26. Óðinsgata 8b, Fyrirspurn fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina 

Mál nr. US150275

Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina 

"Framsókn og flugvallarvinir fyrirspurn: Mál nr. BN050167. Óskað er eftir upplýsingum um það hvort það sé almenn stefna að breyta íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði á þessu svæði, hvort hefð sé fyrir því að veita undanþágu frá ákvæðum um aðgengi fyrir alla í nýju verslunarhúsnæði og hvernig samræmist málsmeðferðin hæfisreglum stjórnsýslulaga þar sem um er að ræða umsókn frá æðsta embættismanni borgarinnar sem afgreidd er með undanþágu." Einnig lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs dags. 14. desember 2016. 

27. Köllunarklettur, Þ47, bréf Faxaflóahafna Mál nr. SN150701

Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf Faxaflóahafna sf., dags. 13. nóvember 2015, þar sem óskað er eftir við umhverfis- og skipulagsráð að unnin verði forsögn að deiliskipulagi fyrir lóðir við Köllunarklettsveg og Héðinsgötu, Köllunarklettur Þ47. Einnig er lögð fram samantekt á núverandi stöðu og skipulagslegum upplýsingum um svæðið. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. desember 2015.

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. desember 2015 samþykkt. 

28. Fríkirkjuvegur 11, kæra 84/2015, afturköllun kæru Mál nr. SN150640

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 2. október 2015 ásamt kæru þar sem kærð er synjun á byggingarleyfisumsókn vegna lóðar nr. 11 við Fríkirkjuveg. Lögð fram tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 10. desember 2015 um að kæran hafi verið afturkölluð og málið látið niður falla.

29. Suður Mjódd, kæra 94/2015, umsögn (04.91) Mál nr. SN150653

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 28. október 2015, ásamt kæru, dags. 27. október 2015, þar sem kærð breyting á deiliskipulagi fyrir Suður Mjódd.  Lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 30. nóvember 2015.

30. Sjafnargata 3, kæra 80/2015, umsögn (01.196) Mál nr. SN150580

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 28. september 2015 ásamt kæru þar sem kærð synjun á útgáfu byggingarleyfis fyrir lóð nr. 3 við Sjafnargötu. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 7. desember 2015.

31. Grettisgata 41, kæra 81/2015, úrskurður (01.173.1) Mál nr. SN150581

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 25. september 2015 ásamt kæru þar sem kært er byggingarleyfi fyrir Grettisgötu 41. Í kærunni er gerð krafa um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 10. desember 2015. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa frá 9. júní 2015 um að veita byggingarleyfi fyrir hækkun húss að Grettisgötu 41 og staðsteyptri tveggja hæða viðbyggingu.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 15:35

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð. 

Hjálmar Sveinsson

Magnea Guðmundsdóttir Stefán Benediktsson

Gísli Garðarsson Sigurður Ingi Jónsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2015, þriðjudaginn 15. desember kl. 10:30 fyrir  hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 855. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Óskar Torfi Þorvaldsson, Sigrún Reynisdóttir, Nikulás Úlfar Másson, Björn Kristleifsson, Karólína Gunnarsdóttir, Harri Ormarsson og Eva Geirsdóttir.

Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 2 (01.136.101) 100527 Mál nr. BN050306

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að lækka jarðveg framan við norðurvegg kjallara, setja nýja glugga og nýjar útidyr á vegginn og koma fyrir nýjum tröppum niður í gryfjuna sem myndast framan við húsið á lóð nr. 2 við Aðalstræti.

Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 24. nóvember 2015 og umsögn verkefnastjóra Minjastofnunar Íslands dags. 11.12. 2015.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Vakin er athygli á umsögnum  Minjastofnunar Íslands dags .24. nóvember og 11. desember 2015.

2. Ármúli 5 (01.262.002) 103514 Mál nr. BN050326

F3 ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að einangra og klæða að utan með sléttum álplötum, breyta innra skipulagi, byggja flóttastiga á austurgafli og innrétta gististað í flokki ?? teg. ?? með 60 herbergjum í mhl. 01 á lóð nr. 5 við Ármúla.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. desember 2015.

Erindi fylgir orkurammi dags.. 21. nóvember 2015.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. desember 2015.

3. Bárugata 30 (01.135.219) 100468 Mál nr. BN048813

María Elísabet Pallé, Bárugata 30, 101 Reykjavík

Ásgeir Westergren, Bárugata 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja hæð ofaná og klæða með bárujárni einbýlishús á lóð nr. 30 við Bárugötu.

Erindi var grenndarkynnt frá 12. maí til og með 9. júní 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jón Gunnar S. húseigandi dags. 14. maí 2015, Hildur S. Pálsdóttir f.h. húseigenda að Stýrimannastíg 6 dags. 7. júní 2015, Friðleifur  Egill Guðmundsson f.h. Black sheep ehf dags. 8. júní 2015,  Ingvi Óttarsson  og Dagrún Hálfdánardóttir dags.  8. júní 2015 og  Gunnar Gunnarsson og  Valva Árnadóttir dags. 8. júní 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2015.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. febrúar 2015 og fsp. BN048834 dags. 17. febrúar 2015.

Stækkun: 134 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

4. Borgartún 8-16A (01.220.107) 199350 Mál nr. BN050387

Höfðavík ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

Eykt ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu og undirstöður (fyrsta áfanga byggingarleyfis af þremur) að Borgartúni 8-16 sbr. erindi BN049912.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Borgartún 8-16A (01.220.107) 199350 Mál nr. BN050349

HTO ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki á breytingum á erindi BN050141 sem var samþykkt 10. nóvember 2015 og felast í að breyta uppröðun hreinlætistækja í votrýmiskjörnum í hóteli á 19. hæð í húsinu Katrínartún 2 á lóð nr. 8-16A við Borgartún.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

6. Bragagata 34 (01.186.633) 102328 Mál nr. BN050359

KTF ehf, Laugavegi 2, 101 Reykjavík

Einar Sturla Möinichen, Stigahlíð 82, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta einbýlishúsi í tvíbýlishús með því að gera nýja íbúð á 1. hæð, breyta stiga á bakhlið, endurnýja geymsluskúr á bakhlið, setja svalir á bakhlið (suðurhlið) ,stækka svalir á 2. hæð og setja svalir á rishæð í húsi á lóð nr. 34 við Bragagötu.

Jafnframt er erindi BN049369 dregið til baka og erindi BN048845 fellt úr gildi.

Gjald kr. 9.923

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

7. Frakkastígur 9 (01.173.029) 101516 Mál nr. BN050367

Rakel Steinarsdóttir, Frakkastígur 9, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka bíslag og opna eldri gluggagöt í hlöðnum sökkli einbýlishúss á lóð nr. 9 við Frakkastíg.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Friggjarbrunnur 28-30 (05.053.303) 205955 Mál nr. BN050355

Piotr Jan Mrozek, Andrésbrunnur 3, 113 Reykjavík

Sótt er um aðskilið byggingarleyfi, sjá erindi BN035906 á parhús nr. 28 á loð nr. 28-30 við Friggjarbrunn.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Grettisgata 18A (01.182.113) 101829 Mál nr. BN050321

Charles William Crosland Palmer, Grettisgata 18a, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjarlægja efri hæð og endurbyggja, sbr. erindi BN049363 samþ. dags. 9.6. 2015, breyta inngangi, pöllum og tröppum, setja nýja glugga og breyta fyrirkomulagi innanhúss í einbýlishúsi á lóð nr. 18a við Grettisgötu.

Stærðir:  stækkun

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Hagatorg Hótel Saga (01.55-.-97) 106504 Mál nr. BN050368

Átthagasalur ehf., Hagatorgi 1, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta skrifstofum og mötuneyti í norðurbyggingu í hótelherbergi og sameina eignirnar 0302 og 0303 og skrifstofur 0202 (í eigu 0301) við eignina hótel 0101, einnig er sótt um minni háttar breytingar á skrifstofum eldri hluta hússins svo sem nýja snyrtingu fyrir hreyfihamlaða í  hótel Sögu á lóð nr. 1 við Hagatorg.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

11. Haukdælabraut 74 (05.114.301) 214813 Mál nr. BN050231

Ólafur Gunnþór Höskuldsson, Ólafsgeisli 7, 113 Reykjavík

Þórunn Kristín Snorradóttir, Ólafsgeisli 7, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr forsteyptum einingum með flötu þaki, sbr. fyrispurn BN049862, svar dags. 20.8. 2015, á lóð nr. 74 við Haukdælabraut.

Stærðir 321,5 ferm., 1.145,7 rúmm.

Lóðarstærð 750 ferm., nýtingarhlutfall 0.43

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Hljómalindarreitur - Tengigangur Mál nr. BN050046

Þingvangur ehf., Hlíðasmára 9, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja skábraut frá Smiðjustíg inná Hljómalindartorg, stoðveggi og sorpgeymslu sem mynda aðgengi að kjöllurum á Laugavegi 13 og 19 og til að byggja tengigang frá kjallara Klapparstígs 30 og Laugavegs 17 undir torgið að neðanjarðarbílageymslu á Smiðjustíg 4.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. október 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. október 2015.

Stærð:  57,1 ferm., 162,8 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Hringbraut Landsp. (01.198.901) 102752 Mál nr. BN050370

Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja hús fyrir jáeindaskanna og starfsemi tengda honum sem verður mhl. 45 á lóð Landsspítalans við Hringbraut.

Erindi fylgir brunahönnun frá Verkís dags. í desember 2015.

Stærð:  375,4 ferm., 1.379,6 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Hverfisgata 123 (01.222.117) 102853 Mál nr. BN050269

Tómas & Dúna ehf, Bergholti 2, 270 Mosfellsbær

Sótt er um leyfi til að breyta íbúð á 1. hæð í borðsal fyrir skyndibitastað og koma fyrir aukasalerni í rými 0101 í húsinu á lóð nr. 123 við Hverfisgötu.

Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 1. desember 2015 fylgir.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

15. Hverfisgata 54 (01.172.102) 101440 Mál nr. BN050218

Karl Mikli ehf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir pallalyftum og innrétta snyrtingu fyrir hreyfihamlaða ásamt palli fyrir hjólastóla í sal 1 í bíó Paradís á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 3.11. 2015.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

16. Ingólfsstræti 2A (01.170.005) 101323 Mál nr. BN050061

Fjélagið - eignarhaldsfélag hf., Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fella niður skábraut innanhúss í anddyri og útbúa í staðinn skábraut utanhúss við syðsta innganginn og til að loka hliðarinngangi við lyftu á 1. hæð, sjá erindi BN046942, í Gamla Bíói á lóð nr. 2A við Ingólfsstræti.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. október 2015, bréf frá hönnuði dags. 22. október 2015, umsögn samgöngudeildar dags. 5. nóvember 2015 og umsögn SRU dags. 1. desember 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Ísleifsgata 20-26 (05.113.104) 214835 Mál nr. BN050366

Búseti húsnæðissamvinnufélag, Síðumúla 10, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta texta um brunavarnir í nýsamþykktu, sjá erindi BN049612, raðhúsi á lóð nr. 20-26 við Haukdælabraut.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

18. Klapparstígur 38 (01.171.505) 101421 Mál nr. BN048409

Reykjavík Rent ehf, Hverfisgötu 105, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum innanhúss, sem felast í að færa stiga úr sal inn í glerskála, einnig er sótt um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III , tegund A og F á 2. hæð og í glerskála, við hús á lóð nr. 38 við Klapparstíg.

Gjald kr. 9.599

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

19. Klettháls 15 (04.346.801) 188544 Mál nr. BN050362

Eyja ehf., Kletthálsi 15, 110 Reykjavík

Jón Bergsson ehf., Kletthálsi 15, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á atvinnuhúsi á lóð nr. 15 við Klettháls.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Laugavegur 103 (01.240.007) 102975 Mál nr. BN050313

Sinh Xuan Luu, Kleppsvegur 136, 104 Reykjavík

Anh Thé Doung, Háaleitisbraut 153, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir kæli, innrétta ísbúð og breyta í flokk II  veitingastað í rými 0102 í húsi á lóð nr. 103 við Laugaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2015.

Gjald kr. 9.823

Synjað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2015.

21. Laugavegur 17 (01.171.111) 101377 Mál nr. BN050369

Þingvangur ehf., Hlíðasmára 9, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi i kjallara og lagfæra skráningu, sjá erindi BN047129, í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 17 við Laugaveg.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

22. Laugavegur 85 (01.174.124) 101599 Mál nr. BN050292

Calvi ehf, Laugavegi 85, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II fyrir 30 gesti í rými 0101 í húsi á lóð nr. 85 við Laugaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

23. Lautarvegur 4 (01.794.304) 213569 Mál nr. BN050275

KH hús ehf., Drekavöllum 51, 221 Hafnarfjörður

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús með þremur íbúðum og tvöfaldri bílgeymslu á lóð nr. 4 við Lautarveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. nóvember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. nóvember 2015.

Stærð A-rými:  552 ferm., 1.895,1 rúmm.

B-rými:  69,1 ferm.

C-rými:  91,3 ferm.

Gjald kr. 9.823 

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Lóuhólar 2-6 (04.642.701) 111914 Mál nr. BN050364

Reginn atvinnuhúsnæði ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rýmum 0109, 0110 og 0111 í verslunarhúsi á lóð nr. 2-6 við Lóuhóla.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Mímisvegur 4 (01.196.109) 102650 Mál nr. BN049682

Elín Valdís Þorsteinsdóttir, Mímisvegur 4, 101 Reykjavík

Rögnvaldur Guðmundsson, Mímisvegur 4, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæð og ris, innrétta nýja íbúð í risi, byggja svalir á suðurgafli 1. 2. 3. hæðar, gera nýjan inngang og innrétta íbúðarherbergi í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 4 við Mímisveg.

Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa v/fsp. um sama erindi dags. 5. mars 2014.

Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. desember 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2015.

Lagt er fram samþykki Bergljótar Halldórsdóttur, dags. 3. nóvember 2015.

Erindi var grenndarkynnt frá 6. nóvember til og með 4. desember 2015. Engar athugasemdir bárust. Greiða þarf bílastæðagjald vegna fjölgunar eigna.

Stækkun:  100,8 ferm., 241,8 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Nauthólsvegur 50 (01.619.601) 106641 Mál nr. BN050315

Iceeignir ehf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að leiðrétta eignarhald á rými 0411 í húsinu á lóð nr. 50-52 við Nauthólsveg.

Greiðslukvittun dags. 4. desember 2015 fylgir erindi. 

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.    

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

27. Njálsgata 34B (01.190.207) 102410 Mál nr. BN050358

Sönke Marko Korries, Njálsgata 34b, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á nýjum og breyttum gluggum sbr. erindi BN047869 samþykkt 16.9. 2015 á húsi á lóð nr. 34B við Njálsgötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Norðlingabraut 8 (04.732.301) 204834 Mál nr. BN050395

Wurth á Íslandi ehf, Vesturhrauni 5, 210 Garðabær

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu á lóðinni nr. 8 við  Norðlingabraut, sbr. erindi BN050213.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. 

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Norðurgarður 1 (01.112.201) 100030 Mál nr. BN050320

HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048201 þannig að texti í brunavörnum er uppfærður í húsinu á lóð nr. 1 við Norðurgarð.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

30. Skúlagata 14-16 (01.152.301) 101036 Mál nr. BN050374

Birna Antonsdóttir, Lindargata 37, 101 Reykjavík

Sveinbjörn Brandsson, Lindargata 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að loka tvennum svölum með póstalausu glerjunarkerfi  í íbúð 0701 í fjölbýlishúsinu Lindargata 37 á lóð nr. 14-16 við Skúlagötu.

Stærð svalalokana:  18,6 ferm., 55,8 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Stangarholt 28 (01.246.204) 103311 Mál nr. BN050021

Gunnar Óskarsson, Noregur, Sótt er um leyfi til að endurnýja áformin á erindi BN023544 dags. 14. nóv. 2001 þar sem samþykkt var að byggja steinsteyptan bílskúr 0102 á lóð nr. 28 við Stangarholt. 

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. október 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. október 2015. Samþykki fylgir frá Stangarholti 26, 28, 30, 37, 39 og tölvupóstur sem staðfestir samþykki fyrir 39 dags. 16. okt. 2015.

Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. desember 2015.

Erindi var grenndarkynnt frá 6. nóvember til og með 4. desember 2015. Engar athugasemdir bárust.

Stærð: 29,8 ferm., 65,3 rúmm. 

Gjald kr. 9.823 

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

32. Stórhöfði 33 (04.085.701) 179555 Mál nr. BN050356

Skúli Skúlason ehf, Stangarhyl 6, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjarlægja léttan stiga og skilja milli eigna 0102 og 0203 í atvinnuhúsi á lóð nr. 33 við Stórhöfða.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Suðurlandsbraut 4-4A (01.262.001) 103513 Mál nr. BN050308

LHF ehf., Laugavegi 170-172, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breyta innra skipulagi í mhl. 03;  innrétta kaffiaðstöðu og salerni í rými 0401 húsi á lóð nr. 4A við Suðurlandsbraut.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. 

34. Sægarðar 15 (01.402.303) 223695 Mál nr. BN050318

Stólpi-gámar ehf, Klettagörðum 5, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja úr samlokueiningum stálgrindarhús  á einni hæð á lóð nr. 15 við Sægarða. 

Bréf hönnuðar dags. 8. desember 2015, varmaútreikningar dags. 8. desember og vottun á byggingahlutum fylgja erindinu.

Stærð: 1.446,4 ferm., 9.371,9 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

35. Tunguháls 7 (04.327.203) 111058 Mál nr. BN050365

Garðlist ehf, Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi þannig að gerð er grein fyrir áður gerðum millipalli og einnig er sótt um samþykki fyrir brunavörnum fyrir húsið á lóð nr. 7 við Tunguháls.

Stækkun millipalls: XX ferm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Úthlíð 9 (01.270.111) 103573 Mál nr. BN049991

Úthlíð 9,húsfélag, Úthlíð 9, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum v/gerðar eignaskiptayfirlýsingar fyrir húsið á lóð nr. 9 við Úthlíð.

Samþykki meðeigenda ódags. og dags. 15. okt. 2015 og bréf hönnuðar dags. 8. des. 2015 fylgir 

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Lagfæra skráningu.

37. Vatnsstígur 19 (00.000.000) 101021 Mál nr. BN050373

Alfreð Hauksson, Vatnsstígur 19, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að loka með póstalausri glerlokun svölum á íbúð 0103 á lóð nr. 19 við Vatnsstíg.

Stærð:  8,4 ferm., 24,9 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Vesturgata 4 (01.132.107) 100215 Mál nr. BN050375

Haraldur Olgeirsson, Einilundur 9, 210 Garðabær

Drífa ehf., Miðhrauni 4, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að gera nýjan glugga á austurhlið verslunarhúss á lóð nr. 4 við Vesturgötu.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. október 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Ægisgata 26 (01.137.207) 100660 Mál nr. BN050372

Æ 26 ehf., Askalind 5, 201 Kópavogur

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á tvíbýlishúsi á lóð nr. 26 við Ægisgötu.

Erindi fylgir samþykki meðeiganda áritað á uppdrátt.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Öldugata 2 (01.136.311) 100569 Mál nr. BN050273

Nordic Investment Services ehf., Amtmannsstíg 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss, innrétta fjórar íbúðir, eina á hverri hæð, og til að bæta við þrennum svölum og breyta bílgeymslu í geymslur fyrir íbúðir í húsi á lóð nr. 2 við Öldugötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2015.

41. Öldugrandi  1-9 (01.511.002) 105746 Mál nr. BN050357

Eggert Sigurjón Birgisson, Öldugrandi 9, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN039544, þar sem veitt var leyfi til að innrétta geymslu í rishæð, setja þakglugga á rýmið og fellistiga úr íbúðum 0301, 0302, 0303 og 0304 í fjölbýlishúsi nr. 9,  á lóð nr. 1-9 við Öldugranda.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

42. Hof 125689 (00.030.000) 125689 Mál nr. BN050399

Óskað er eftir  samþykki byggingarfulltrúans til að stofna tvær nýjar lóðir í landi Hofs á Kjalarnesi samanber meðfylgjandi lóðauppdrátt landupplýsingardeildar  32.465.2, dagsettur 14.12.2015.

Lóðin Bjóla 1 ( 32.465.202, landnr. 223815)  er tekin úr  landi Hofs (landnr. 223815)  og verður 1800 m2.

Lóðin Bjóla 2 ( 32.465.201, landnr. 223814)  er tekin úr  landi Hofs (landnr. 223815)  og verður 1800 m2.

Sjá samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 11.11.2015 og borgarráðs þann 19.11.2015.

Sjá meðfylgjandi útskrift úr gerðabók umhverfis- og skipulagsráðs frá 11.nóvember 2015.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Fyrirspurnir

43. Barónsstígur 28 (01.190.314) 102447 Mál nr. BN050371

Leiguþjónustan ehf., Lækjarfit 21, 210 Garðabær

Spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili í flokki II í fjölbýlishúsi á lóð nr. 28 við Barónsstíg.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

44. Skeiðarvogur 20 (01.441.016) 105422 Mál nr. BN050361

B13 ehf., Skútuvogi 11a, 104 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr í suðvesturhorni lóðar nr. 20 við Skeiðarvog.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

45. Skólavörðustígur 8 (01.171.206) 101387 Mál nr. BN050363

Arnar Haukur Ottesen Arnarson, Hrauntunga 33, 200 Kópavogur

Spurt er hvort leyft yrði að breyta starfsemi veitingahúss á lóð nr. 8 við Skólavörðustíg.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar heilbrigðiseftirlits.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 12:30

Nikulás Úlfar Másson

Harri Ormarsson Sigrún Reynisdóttir

Björn Kristleifsson Óskar Torfi Þorvaldsson

Karólína Gunnarsdóttir Eva Geirsdóttir