Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 114

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2015, miðvikudaginn 12. ágúst, kl. 09:13, var haldinn 114. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð Vindheimum. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Páll Hjaltason, Júlíus Vífill Ingvarsson, Áslaug María Friðriksdóttir,  Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir . Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Sigurðsson, Ólafur Bjarnason, og Marta Grettisdóttir.

Fundarritari var Erna Hrönn Geirsdóttir.

Þetta gerðist:

(D) Ýmis mál

1. Lækjargata, fornleifauppgröftur (01.1) Mál nr. SN150446

Kynning á fornleifauppgreftri við Lækjargötu.

Lísabet Guðmundsdóttir kynnir.

Gísli Garðarsson tekur sæti á fundinum kl. 9:21.

2. Austurhöfn, fornleifauppgröftur (01.11) Mál nr. SN150445

Kynning á fornleifauppgreftri  á svæði Austurhafnar.

Sólrún Inga Traustadóttir kynnir.

3. Umhverfis- og skipulagsráð, tillaga um ráðgjafanefnd vegna fornleifa Mál nr. SN150454

Lagt er til að borgarráð skipi sérstaka ráðgjafanefnd um þær merku fornleifar frá upphafi byggðar sem fundist hafa við Lækjargötu og hafnarmannvirki við Tryggvagötu frá 19. og 20. öld sem komið hafa í ljós við byggingarframkvæmdir. 

Ráðgjafanefndin verði menningar- og ferðamálaráði, umhverfis- og skipulagsráði og borgarráði til fulltingis og mótar tillögur að því með hvaða hætti ofangreindar fornleifar verði best varðveittar til framtíðar og gerðar almenningi sýnilegar. 

Með stofnun ráðgjafanefndar verði komið á formlegri samvinnu á milli Minjastofnunar og Reykjavíkurborgar um það mikilvæga verkefni að vernda umræddar fornleifar. Minjastofnun verði boðið að tilnefna sérfræðing í nefndina en auk hans sitji í nefndinni tveir fulltrúar frá Reykjavíkurborg á þessu sérfræðisviði.  Tveir kjörnir fulltrúar sitji einnig í nefndinni og annar þeirra verði formaður. Nefndina má stækka eftir því sem þurfa þykir.

Borgarráð geri erindisbréf fyrir nefndina sem vinnur að nánari útfærslu og leitar til viðkomandi sviða og ráða eftir hugmyndum og tilnefningum. 

Ráðgjafanefndin vinni eins hratt og auðið er og geri tímaáætlun á sínum fyrsta fundi sem lögð verður fram í viðkomandi ráðum.

Samþykkt 

Vísað til borgarráðs. 

4. Kirkjutorgsreitur, reitur 1.141.2, hugmyndasamkeppni (01.141.2) Mál nr. SN140484

Lagðar fram til kynningar samkeppnistillögur sem bárust í lokaðri hugmyndasamkeppni.

Kynnt. 

Fulltrúar minjaverndar Þorsteinn Bergsson og Þröstur Ólafsson, fulltrúi Íslandshótels Davíð Torfi Ólafsson, fulltrúar Glámu Kím Birna Fróðadóttir, Jóhannes Þórðarson, og Sigurbjörn Kjartansson, Þorkell Erlingsson ráðgjafi og fulltrúi TÓ arkitekta Helgi Hjálmarsson. 

(A) Skipulagsmál

5. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070

Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 10. 17.  31. júlí og 7. ágúst 2015. 

6. Reitur 1.154.3, Barónsreitur, breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur (01.154.3) Mál nr. SN150391

Lögð fram verklýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 - 2030 vegna Barónsreits, dags. ágúst 2015. Breytingin gengur út á stefnu um hæðir húsa og fjölda íbúða á reitnum. Einnig lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 23. júlí 2015.

Frestað. 

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri aðalskipulags tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(B) Byggingarmál

7. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa nr. 835 frá 14. júlí ,  nr. 836 frá 28. júlí og nr. 837 frá 11. ágúst  2015.  

8. Laugavegur 4, Nýbygging/viðbygging (01.171.302) Mál nr. BN049191

Laugastígur ehf., Borgartúni 29, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja byggingu sem tengir Laugaveg 4 og 6 og Skólavörðustíg 1A, kjallara og tvær hæðir, að mestu úr gleri og verður mhl. 02 á sameinaðri lóð nr. 4 Laugaveg. Einnig er lögð fram umsögn byggingarfulltrúa ódags. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands tvisvar dags. 26. mars 2015. Brunahönnunarskýrsla dags. 31.3. 2015. Nýbygging:  884,1 ferm., 3.989,4 ferm. Gjald kr. 9.823

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir umsögn byggingarfulltrúa. 

Nikulás Úlfar Másson byggingarfulltrúi tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

9. Bárugata 30, Ofanábygging (01.135.219) Mál nr. BN048813

Ásgeir Westergren, Bárugata 30, 101 Reykjavík

María Elísabet Pallé, Bárugata 30, 101 Reykjavík

Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. mars 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð ofaná og klæða með bárujárni einbýlishús á lóð nr. 30 við Bárugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 12. maí til og með 9. júní 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jón Gunnar S. húseigandi dags. 14. maí 2015, Hildur S. Pálsdóttir f.h. húseigenda að Stýrimannastíg 6 dags. 7. júní 2015, Friðleifur Egill Guðmundsson f.h. Black sheep ehf. dags. 8. júní 2015, Ingvi Óttarsson og Dagrún Hálfdánardóttir dags. 8. júní 2015 og Gunnar Gunnarsson og Valva Árnadóttir dags. 8. júní 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2015.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. febrúar 2015 og fsp. BN048834 dags. 17. febrúar 2015. Stækkun:  xx ferm., xxx rúmm. Gjald kr. 9.823

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2015 samþykkt. 

Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.  

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

(C) Fyrirspurnir

10. Bragagata 35 og Freyjugata 16, (fsp) niðurrif og uppbygging (01.186.2) Mál nr. SN150131

Thomas Möller, Ljósakur 7, 210 Garðabær

Einar Karl Haraldsson, Þórsgata 18, 101 Reykjavík

Lögð fram fyrirspurn Thomasar Möllers og Einars Karls Haraldssonar dags. 6. mars 2015 

varðandi niðurrif og uppbyggingu á lóðunum nr. 35 við Bragagötu og 16 við Freyjugötu, samkvæmt tillögu Arkþings ehf. dags 4. mars 2015. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar dags. 31. mars 2015, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. apríl 2015 og bréf Thomasar Möllers og Einars Karls Haraldssonar dags. 7. maí 2015 ásamt ástandsskoðun frá 28. apríl 2015 á húseignum að Bragagötu 35 og Freyjugötu 16. Þrívíddarmyndir.

Frestað. 

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

(D) Ýmis mál

11. Umhverfis- og skipulagssvið, mánaðaruppgjör janúar til október  2014 Mál nr. US130185

Kynnt uppgjör umhverfis- og skipulagssviðs ES og RK fyrir janúar til maí 2015. 

12. Umhverfis- og skipulagssvið, yfirlit yfir innkaup Mál nr. US130118

Lagt fram yfirlit yfir innkaup umhverfis- og skipulagssviðs á verkum yfir milljón í júlí  2015. 

13. Víðimelur 35, málskot (01.540.1) Mál nr. SN150418

Tiris ehf., Neðstabergi 7, 111 Reykjavík

Lagt fram málskot Ómars Guðmundssonar f.h. Tiris ehf. dags. 21. júlí 2015 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 10. janúar 2014 á fyrirspurn um breytingu á iðnaðarhúsnæði á lóð nr. 35 við Víðimel í íbúðarhúsnæði.

Frestað. 

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

14. Laufásvegur 70, orðsending skrifstofu borgarstjórnar R15060210 (01.197.3) Mál nr. SN150399

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar R15060210, dags. 30. júní 2015 ásamt bréfi íbúa að Smáragötu 13, dags. 23. júní 2015 vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna máls 75/2012 er varðaði framkvæmdir á lóð að Laufásvegi 70. Erindið var sent umhverfis- og skipulagssviði til umsagnar. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags.  15. júlí 2015.

Umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 15. júlí samþykkt. 

15. Ingólfstorg og Miðbakki, tímabundið leyfi fyrir tjöldum (01.140) Mál nr. SN150400

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. júlí 2014 ásamt erindi framkvæmdastjóra IA tónlistarhátíðar, dags. 8. júlí 2015 varðandi tímabundið leyfi fyrir tjöldum á Ingólfstorgi og Miðbakka í tengslum við tónlistarhátíð Iceland Airwaves 3. - 8. nóvember 2015. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 10. ágúst 2015. 

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 10. ágúst 2015 samþykkt. 

Valný Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti fundinum undir þessum lið. 

16. Háaleitisskóli, endurbætur á skólalóð Mál nr. US150163

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindi hverfisráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis, dags. 18. júní 2015 varðandi endurbætur á skólalóð Háaleitisskóla. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 14. júlí 2015.

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 14. júlí 2015 samþykkt.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Áslaug María Friðriksdóttir og fulltrúi Framsóknarflokksins og flugvallarvina Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Ámundi V.Brynjólfsson skrifstofustjóri og Ólafur Ólafsson deildarstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

17. Fegrunarnefnd, tilnefningar 2015 Mál nr. US150167

Kynntar tillögur Fegrunarnefndar Reykjavíkur dags. ágúst 2015 að tilnefningum til viðurkenninga fyrir árið 2015 vegna lóða fjölbýlishúsa og stofnana og vegna endurbóta á eldri húsum.

Samþykkt.

Vísað til borgarráðs.

Margrét Þormar og Valný Aðalsteinsdóttir verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

18. Sumargötur 2015, framlenging á sumargötum yfir samgönguviku Mál nr. US150168

Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 10. ágúst 2015 varðandi leyfi til að sumargötur á Laugavegi, Skólavörðustíg og í Kvosinni verði framlengdar til  22. september 2015.

Frestað. 

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

19. Betri Reykjavík, fleiri bekki í hverfi borgarinnar (USK2015060083) Mál nr. US150161

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið „bekkir" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. júní 2015. Erindið var efsta hugmynd júnímánaðar í málaflokknum framkvæmdir. 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, framkvæmdir og viðhald. 

20. Betri Reykjavík, litlar íbúðir (USK2015060085) Mál nr. US150162

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið „litlar íbúðir" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. júní 2015. Erindið var efsta hugmynd júnímánaðar í málaflokknum skipulag. 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs,skipulagsfulltrúa.  

21. Betri Reykjavík, nýta hluta breiðra gangstétta sem hjólastíga (USK2015060084) Mál nr. US150160

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið  „Nýta hluta breiðra gangstétta sem hjólastíga þar sem við á." sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. júní 2015. Erindið var  fimmta efsta hugmynd júnímánaðar á samráðsvefnum og kemur úr málaflokknum samgöngur. 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs,samgöngur. 

22. Betri Reykjavík, kortleggja hvar niðurföll í Rvk eru, aðgengilegt á netinu (USK2015070038) Mál nr. US150164

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lögð fram efsta hugmynd júnímánaðar úr flokknum ýmislegt "kortleggja hvar niðurföll í Rvk eru, aðgengilegt á netinu" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 16. júlí 2015 ásamt samantekt af umræðum og rökum.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs,skrifstofu sviðsstjóra. 

23. Betri Reykjavík, setja hringtorg á gatnamót Hraunbæ og Bæjarbraut (USK2015060079) Mál nr. US150158

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið „Setja hringtorg á gatnamót Hraunbæ og Bæjarbraut" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. júní 2015. Erindið var þriðja efsta hugmynd júnímánaðar á samráðsvefnum og kemur úr málaflokknum samgöngur. 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs,samgöngur. 

24. Betri Reykjavík, gangbrautarljós í Borgartún (USK2015060082) Mál nr. US150159

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið „gangbrautarljós í Borgartún" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. júní 2015. Erindið var önnur efsta hugmynd júnímánaðar á samráðsvefnum og jafnframt efsta hugmyndin í málaflokknum samgöngur. 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs,samgöngur. 

25. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, auglýsing á tillögu Mál nr. SN140462

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Samtök sveitarfél höfuðborgarsv, Hamraborg 9, 200 Kópavogur

Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu dags. 17. júlí 2015 varðandi gildistöku svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins þann 14. júlí sl. og innleiðingu stefnu svæðisskipulagsins í aðalskipulag Reykjavíkur.

26. Kvosin, kæra 55/2015 (01.1) Mál nr. SN150412

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 16. júlí 2015 ásamt kæru dags. 15. júlí 2015 þar sem kærð er breyting á skilmálum deiliskipulags Kvosarinnar.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.  

27. Ingólfsstræti 2A, kæra 56/2015 (01.170) Mál nr. SN150431

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 22. júlí 2015 ásamt kæru þar sem kærð er höfnun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 23. júní sl. að hafna beiðni um leyfi fyrir auknum hljóðstyrk við tónleikahald þ. 8. ágúst nk. Enn fremur er kærð sú ákvörðun Heilbrigðiseftirlitsins að skerða gildandi starfsleyfi kæranda.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.  

28. Neshagi 16, kæra 35/2015, umsögn (01.542.2) Mál nr. SN150295

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 15. maí 2015 ásamt kæru vegna ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 14. apríl 2015 um að gefa út byggingarleyfi fyrir kælibúnað og varaaflstöð við norðurhlið húss á lóð nr. 16 við Neshaga. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 16. júlí 2015.

29. Laugavegur 12B og 16, kæra 38/2015, umsögn (01.171.4) Mál nr. SN150308

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 26. maí 2015 ásamt kæru dags. 24. maí 2015 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi vegna lóða nr. 12B og 16 við Laugaveg. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 6. júlí 2015.

30. Borgartún 28, kæra 46/2015, umsögn (01.230.1) Mál nr. SN150345

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 15. júní 2015 ásamt kæru vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 28 við Borgartún. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 15. júlí 2015.

31. Suðurhlíð 9, Klettaskóli, kæra 57/2015, umsögn (01.780.4) Mál nr. SN150430

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. júlí 2015 ásamt kæru þar sem kærð er útgáfa takmarkaðs byggingarleyfis til framkvæmda á lóðinni nr. 9 við Suðurhlíð (Klettaskóla). Í kærunni er gerð krafa um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 28. júlí 2015.

32. Hólmsheiði, Fisfélag Reykjavíkur, kæra 18/2011, umsögn, úrskurður (05.18) Mál nr. SN110108

Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 4. mars 2011 ásamt kæru dags. 28. febrúar 2011 á samþykkt skipulagsráðs frá 1. desember 2010 á deiliskipulagi athafnasvæðis Fisfélags Reykjavíkur á Hólmsheiði vegna tímabundinnar starfsemi Fisfélagsins. Í kærunni er auk þess krafist stöðvunar framkvæmda. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 29. maí 2013. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 30. júlí 2015. 

Úrskurðarorð: 

Hafnað er kröfu kæranda.

33. Almannadalur, kæra 43/2014, umsögn, úrskurður (05.8) Mál nr. SN140260

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 22. maí 2014 ásamt kæru, dags. 21. maí 2014 þar sem kærð er málsmeðferð og synjun skráningu lögheimilis á efri hæðum hesthúsa í Almannadal. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 20. júlí 2014. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 9. júlí 2015. 

Úrskurðarorð: 

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

34. Sóltún 1, kæra 30/2015, umsögn, úrskurður (01.230.2) Mál nr. SN150250

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 5. maí 2015 ásamt kæru dags. 29. apríl 2015 þar sem kært er byggingarleyfi vegna fækkunar á bílastæðum á sameiginlegri lóð og vegna akstursleiðar inn og úr bílageymslu fyrir fjölbýlishúsið að Sóltúni 1-3. Í kærunni er gerð Krafa um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 24. júní 2015. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 9. júlí 2015. 

Úrskurðarorð: 

Hafnað er kröfu kæranda.

35. Laufásvegur 2, kæra 98/2014, umsögn, afturköllun (01.183.0) Mál nr. SN140472

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 2. september 2014 ásamt kæru, dags. 1. september 2014 þar sem kærð er synjun byggingarfulltrúa 26. ágúst 2014 á umsókn um byggingarleyfi til að innrétta gististað í flokki I að Laufásvegi 2. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. september 2014. Lögð fram tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 14. júlí 2015 um að kæran hafi verið afturkölluð.

36. Miklabraut/Rauðagerði, breyting á deiliskipulagi (01.82) Mál nr. SN150188

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. júlí 2015 um samþykki borgarráðs dags. 9. júlí 2015 um breytingu á deiliskipulagi norðan Rauðagerðis, við Miklubraut.

37. Vegamótastígur 7 og 9, breyting á deiliskipulagi (01.171.5) Mál nr. SN150286

Reir ehf, Frostaskjóli 9a, 107 Reykjavík

Arkþing ehf, Bolholti 8, 105 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. júlí 2015 um samþykki borgarráðs dags. 9. júlí 2015 um auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5 vegna lóðanna nr. 7 og 9 við Vegamótastíg.

38. Örfirisey, deiliskipulag (01.1) Mál nr. SN140611

Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. júlí 2015 um samþykki borgarráðs dags. 9. júlí 2015 um endurauglýsingu á tillögu að deiliskipulagi Örfiriseyjar.

39. Hafnarstræti 19, breyting á deiliskipulagi (01.118.5) Mál nr. SN150192

THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík

Sjöstjarnan ehf., Rafstöðvarvegi 9, 110 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs s.d. varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðar nr. 19 við Hafnarstræti. 

40. Háteigsvegur 1 og 3, breyting á deiliskipulagi (01.244.2) Mál nr. SN140621

Bakkastaðir eignarhaldsfél ehf., Pósthólf 17, 121 Reykjavík

Teiknistofan Tröð ehf, Hávallagötu 21, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs s.d. varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Egilsborgarreits vegna lóðar nr. 1-3 við Háteigsveg.

41. Skipholt 70, breyting á deiliskipulagi (01.255.2) Mál nr. SN150087

Rok ehf., Lágmúla 7, 108 Reykjavík

Teiknistofan Arkitektar ehf, Brautarholti 6, 105 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs s.d. varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Bólstaðarhlíðar vegna lóðar nr. 70 við Skipholt.

42. Reitur 1.154.3, Barónsreitur, breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur (01.154.3) Mál nr. SN150391

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs s.d. varðandi óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030  vegna Barónsreits.

43. Laugavegur 120, breyting á deiliskipulagi (01.240.2) Mál nr. SN140584

Mannverk ehf., Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur

Gláma/Kím ehf, Laugavegi 164, 105 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. júlí 2015 um samþykki borgarráðs dags. 9. júlí 2015 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.240.2, Bankareits, vegna lóðarinnar nr. 120 við Laugaveg.

44. Suðurlandsbraut 8 og 10, breyting á deiliskipulagi (01.262.1) Mál nr. SN150314

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Arkís arkitektar ehf., Kleppsvegi 152, 104 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs 16. júlí 2015 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 8 og 10 við Suðurlandsbraut.

45. 1.172.0 Brynjureitur, allur reiturinn, breyting á deiliskipulagi (01.172.0) Mál nr. SN150207

Þingvangur ehf., Hlíðasmára 9, 201 Kópavogur

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs 16. júlí 2015 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.0, Brynjureits.

46. Reitur 1.174.0, Landsbankareitur, breyting á deiliskipulagi (01.174.0) Mál nr. SN150371

Halldór Eiríksson, Fífusel 26, 109 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs 16. júlí 2015 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.0.

47. Reitur 1.154.3, Barónsreitur, breyting á deiliskipulagi (01.154.3) Mál nr. SN150370

Halldór Eiríksson, Fífusel 26, 109 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs 16. júlí 2015 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.154.3, Barónsreits.

48. Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna Klettaskóla, Mál nr. US150171

Með hvaða hætti voru íbúar Suðurhlíða upplýstir um sprengingar á lóð Klettaskóla? Hefur verið unnið samkvæmt þeirri áætlun um sprengingar sem lagt var upp með? Með hvaða hætti er reynt að lágmarka þau óþægindi sem hlotist hafa af sprengingum og jarðvegsframkvæmdum? Með hvaða hætti verður tjón á nærliggjandi íbúðarhúsum metið og bætt? Hefur verið komið á samráðsvettvangi borgar, skóla, framkvæmdaaðila og íbúa? Óskað er eftir því að svör verði unnin svo hratt sem kostur er og send í tölvupóstum til ráðsmanna. Þau verði svo lögð fram formlega á næsta fundi ráðsins.

49. Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna lóðar Landsbankans við Austurhöfn Mál nr. US150172

Við fögnum því að stjórnendur Landsbankans hafi ákveðið að staldra við og endurskoða áform um uppbyggingu 16.000 fermetra höfuðstöðva á Hörpureitnum. Austurbakki er lykilsvæði í þróun miðborgarinnar og því mikilvægt að hugsa vandlega öll þau skref sem þar eru stigin. Sem betur fer hafa grunnhugmyndir að deiliskipulagi svæðisins þroskast frá því að það var unnið árið 2005 og ýmsar breytingar verið gerðar á skipulaginu. Upphaflega var t.d. skoðað að nýta umrædda lóð Landsbankans fyrir nýbyggingar Listaháskólans og náttúruvísindasafn. Þær skipulagsbreytingar sem gerðar hafa verið hafa aðallega miðast við samgöngumannvirki eða einstakar lóðir án þess að því hafi fylgt heildarmat á áhrifum breytinganna á miðborgarsvæðið.

Lagt er til að það svigrúm sem skapast hefur með ákvörðun stjórnenda bankans verði nýtt til að vinna með Landsbankanum að því að finna viðunandi framtíðarstaðsetningu í borginni fyrir höfuðstöðvar bankans. 

Skipulag lóðar bankans á Austurbakka verði endurskoðað. Efnt verði til samkeppni um nýtingu lóðar Landsbankans og leitað eftir hugmyndum frá fagfólki og almenningi um það hvernig lóðin muni best nýtast í heildarsamhengi miðborgarinnar. 

Frestað

Fleira gerðist ekki.

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð 

Fundi slitið kl. 14:55

Hjálmar Sveinsson

Magnea Guðmundsdóttir Páll Hjaltason

Gísli Garðarsson Júlíus Vífill Ingvarsson

Áslaug María Friðriksdóttir Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2015, þriðjudaginn 28. júlí kl. 10:00 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 836. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Bjarni Þór Jónsson, Skúli Þorkelsson, Nikulás Úlfar Másson, Björn Kristleifsson, Olga Hrund Sverrisdóttir, Karólína Gunnarsdóttir og Jón Hafberg Björnsson.

Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Arnarholt 221217 (32.161.101) 221217 Mál nr. BN048436

Fylkir ehf., Dugguvogi 4, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta 14 einstaklingsherbergjum í starfsmannahúsi í sjö íbúðir í mhl. 04, en fyrir eru fjórar íbúðir þannig að byggingin verður fjölbýlishús með 11 íbúðum, mhl. 04, einnig er sótt um að byggja sorpgerði og hjóla- og vagnageymslu, mhl. 10 og mhl. 11, við fjölbýlishúsið  á Arnarholti með landnúmer 221217.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. febrúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2015.

Mhl. 11:  20,3 ferm., 52,8 rúmm.

Mhl. 10:  20,3 ferm., 52,8 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað. Lagfæra skráningartöflu.

2. Auðarstræti 15 (01.247.101) 103333 Mál nr. BN049665

Ás styrktarfélag, Skipholti 50c, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að gera nýtt baðherbergi í kjallara í húsi á lóð nr. 15 við Auðarstræti

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Austurbakki 2 (01.119.801) 209357 Mál nr. BN049755

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til að hefja jarðvegsframkvæmdir á byggingareit nr. 5 á lóðinni Austurbakki 2.  Tilgangurinn er að kanna hvort þar sé að finna olíumengaðan jarðveg í byggingarstæðinu, sbr. vísbendingar um slíkt í tilraunaborholum frá árinu 2006.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

4. Austurbrún 2 (01.381.001) 104771 Mál nr. BN049570

Páll Kristinsson, Lækjasmári 96, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að loka svölum á íbúð 0401 með 8 mm öryggisgleri á brautum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Austurbrún.

Bréf frá húsfélagi og samþykki meðeigenda húss ódags. fylgir. 

Stærð brúttórúmm: 11,3 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Austurv Thorvaldsenss (01.140.418) 100859 Mál nr. BN049495

NS Holding ehf., Vesturbrún 16, 104 Reykjavík

Lindarvatn ehf., Fossaleyni 21, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi í veitingasal á efri hæð og í tónlistar/dansstað sem báðir verða í flokki III fyrir samtals 400 gesti í húsi á lóð nr. 2 við Thorvaldsenstræti.

Meðfylgjandi er brunahönnun Eflu dags. 18. júní 2015, hljóðvistarskýrsla Eflu dags. júlí 2015, samningur um staðsetningu sorpíláta á lóð nr. 7 við Aðalstræti, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10.7. 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Ármúli 5 (01.262.002) 103514 Mál nr. BN049537

F3 ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

Hallarmúli ehf., Hallarmúla 1, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta húsnæði úr verslun og þjónustu í hótel í flokki II, tegund b, og breyta gluggum að hluta í norðurálmu húss, mhl. 1, á lóð nr. 5 við Ármúla.

Meðfylgjandi er fyrirspurn BN047973 sem fékk jákvæða umfjöllun 29. júlí 2015 og samþykki frá tveimur meðeigendum dags. 18. maí 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lagfæra skráningartöflu.

7. Ásgarður  34-40 (01.834.205) 108609 Mál nr. BN049736

Hulda Sigmarsdóttir, Ásgarður 38, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurbyggja skjólvegg sem hljóðmön að Bústaðavegi og hækka úr 1500 mm í 1835 mm og byggja einnig 1200 mm grindverk að vestan við raðhús á lóð nr. 34-40 við Ásgarð.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

8. Birkimelur 3 (01.550.102) 106506 Mál nr. BN049524

Blómatorgið ehf, Hringbraut 33, 107 Reykjavík

Sigurður Þórir Sigurðsson, Stakkhamrar 19, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi BN049055 frá 24.3.2015 sem felst í að færa sorpgeymslu, síkka glugga við inngang niður í gólf og fækka opnanlegum gluggarömmum í blómabúð á lóð nr. 3 við Birkimel.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Blómvallagata 11 (01.162.340) 101313 Mál nr. BN049006

Blómvallagata 11,húsfélag, Blómvallagötu 11, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein, byggja kvist á götuhlið og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.

Erindi fylgir greinargerð um ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011, samþykki meðeigenda ódagsett og bréf hönnuðar dags. 27. maí 2015.

Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. júlí 2015.

Erindið var grenndarkynnt frá 11. júní til og með 9. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Bogahlíð  2-6 (01.714.003) 107252 Mál nr. BN049545

Gunnar Hermannsson, Bogahlíð 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir heitum potti á þaksvölum íbúðar 0302 í fjölbýlishúsinu nr. 4  á lóð nr. 2-6 við Bogahlíð 

Samþykki meðeigenda fylgir ódags. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 4. júní 2015.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Borgartún 8-16A (01.220.107) 199350 Mál nr. BN049640

Höfðavík ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

Pétur Guðmundsson, Brúnastaðir 63, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 6. og næstsíðasta áfanga bílakjallara á lóð nr. 8-16 við Borgartún.

Stærð þessa áfanga:  5.417 ferm. br. 23.953 rúmm. br.

Samtals eftir þennan áfanga:  28.698 ferm. br., 108.534 rúmm. br.

Fjöldi stæða í þessum áfanga 217.

Erindi fylgir skýrsla um brunahönnun frá Eflu dags. í júní 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Bólstaðarhlíð 47 (01.271.201) 186659 Mál nr. BN049763

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja upp færanlega kennslustofu K-114F og tengja hana við kennslustofu sem er fyrir K-47 við Háteigsskóla á lóð nr. 47 við Bólstaðarhlíð.

Stærðir: K-114-F er: 79,1 ferm., 222,8 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Brautarholt 2 (01.241.201) 103019 Mál nr. BN049741

Centrum fjárfestingar slhf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta gerð innveggjar, sjá erindi BN048262, í kaffihúsi á lóð nr. 2 við Brautarholt.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

14. Brautarholt 22 (01.250.101) 103421 Mál nr. BN049302

Skeifan ehf., Tjarnargötu 40, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á þegar gerðum breytingum sbr. erindi BN020225 dags. 24.2. 2000, breytingarnar felast aðallega í að anddyri hefur verið breytt og þar bætt við skrifstofu í hóteli á lóð nr. 22 við Brautarholt.

Meðfylgjandi er minnisblað dags. 20.3. 2015, úttekt á brunaviðvörunarkerfi 7.1. 2015, yfirlýsing vegna neyðarlýsingar dags. 4.3. 2015.

Gjald kr. 9.823 

Frestað.Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

15. Brautarholt 7 (01.242.004) 103029 Mál nr. BN049574

Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi Sæmundar, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja stúdentagarða, tvær steinsteyptar þriggja hæða byggingar með 102 íbúðareiningum sem umlykja inngarð á bílakjallara fyrir 19 bíla á lóð nr. 7 við Brautarholt.

Stærð A-rými:  4.858 ferm.,  14.196 rúmm.

Gjald kr. 9.823,-

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Brávallagata 26 (01.162.338) 101311 Mál nr. BN049235

Gunnar Sigurðsson, Brávallagata 26, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 26 við Brávallagötu.

Erindi fylgir jákvæð fsp. BN049007 dags. 17. mars 2015 og samþykki meðeigenda dags. 14. apríl 2015.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.Gjald kr. 9.823Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. júli 2015 fylgir erindinu.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Brúnavegur 3-5 (01.350.502) 104151 Mál nr. BN049724

Helena Gunnarsdóttir, Brúnavegur 3, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi vegna gerðar eignaskiptasamnings í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3-5 við Brúnaveg.

Erindi fylgir samþykki eigenda dags. 11. febrúar 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Eddufell 2-8 (04.683.009) 112308 Mál nr. BN049713

Rok ehf., Lágmúla 7, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta lýsingu á brunavörnum í byggingarlýsingu í erindi BN047326, í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2-8 við Eddufell.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Eggertsgata 2-34 (01.634.-99) 106682 Mál nr. BN049710

Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi Sæmundar, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að gera breytingum á 1. og 2. hæð þannig að geymslur verða færðar og endurbyggðar,  afmörkuð verða svæði fyrir kerrur og vagna og anddyri  á 1. hæð verður stækkað í fjölbýlishúsinu hjá Félagsstofnun Stúdenta á lóð nr. 2-4 við Eggertsgötu. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Einarsnes 62 (01.673.015) 188233 Mál nr. BN049610

Leiguíbúðir ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Blómaþing ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að steypa kjallara og koma þar fyrir tveggja hæða timburhúsi, áður Hverfisgata 58A , endurbyggja það og innrétta íbúð og til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóð nr. 62 við Einarsnes.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. júní og 6. júlí 2015.

Stærð mhl. 01:  193,4 ferm., 552,4 rúmm.

Stærð mhl. 02:  28 ferm., 79,8 rúmm.

Samtals 221,4 ferm., 637,8 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Einarsnes 76 (01.673.103) 106830 Mál nr. BN049613

Elín Björk Jónasdóttir, Einarsnes 76, 101 Reykjavík

Daníel Brandur Sigurgeirsson, Einarsnes 76, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja rishæð, stækka útbyggingu á vesturgafli, gera nýjan inngang á norðurhlið og byggja svalir á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 76 við Einarsnes.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Fellsmúli 13-19 (01.294.201) 103823 Mál nr. BN049416

Anna Sigríður Kristjánsdóttir, Svíþjóð, Sótt er um samþykki á þegar gerðum breytingum sem felast í að innréttuð er baðherbergi í íbúð 04-0001 í kjallara fjölbýlishúss nr. 19 á lóð nr. 13 - 19 við Fellsmúla.

Samþykki meðeiganda fyrir salerni fylgir erindinu. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

23. Fiskislóð 23-25 (01.089.202) 209680 Mál nr. BN049141

VSP ehf, Klapparstíg 3, 101 Reykjavík

FF 11 ehf., Fiskislóð 11, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja upp geymslukerfi ofan á núverandi geymslur þannig að komið verður fyrir nýju millilofti í húsinu á lóð nr. 23 til 25 við Fiskislóð.

Stækkun millilofts : XX ferm. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Fossaleynir 1 (02.456.101) 190899 Mál nr. BN049742

Kvikmyndahöllin ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi þannig að nýju anddyri er komið fyrir á suðurhlið í rými sem hýsir keilustað í Egilshöll á lóð nr. 1 við Fossaleyni.

Bréf frá hönnuði dags. 14. júlí 2015. Brunaskýrsla dags 16. júlí  2015 fylgir. 

Gjald kr. 9.823 

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

25. Fríkirkjuvegur 11 (01.183.413) 101973 Mál nr. BN049604

Novator F11 ehf, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitinga- og ráðstefnusal fyrir 160 gesti þar sem sótt verður um tækifærisleyfi fyrir hvern viðburð í kjallara og á 1. hæð, lækkuð verður gólfplata í hliðarsal, taka niður svið í sal í sömu hæð og gólfplatan, koma fyrir salernum, koma fyrir matarlyftu/þjónustulyftu við eldhús og fólkslyftu frá kjallara upp á 1. hæð ásamt öðrum breytingum sem nefndar eru í byggingalýsingu á teikningu og sótt er um leyfi til að innréttuð verður íbúð á 2. hæð og í risi, fjarlægður verður stigi á milli 1. og 2 hæðar og hann geymdur, breyta núverandi útitröppum við suðurgafl, koma fyrir lyftu vegna aðkomu hreyfihamlaða og fjölga þakgluggum á austanverðu úr 2 í 6 stykki í húsinu á lóð nr. 11 við Fríkirkjuveg.

Bréf frá hönnuði dags. 16. júní 2015 og aftur 15. júlí 2015, umsögn burðarvirkishönnuðar  dags. 9. júní 2015, bréf frá Forsætisráðuneytinu dags. 12 maí 2015 og Greinargerð hönnuðarstjóra dags. 16. júní 2015 fylgir erindinu.  Umsögn Minjastofnunar Íslands dags.. 9. júlí 2015 fylgir erindinu.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Milli funda.

26. Gefjunarbrunnur 1-3 (02.695.201) 205968 Mál nr. BN049620

Bívar Byggir ehf., Stararima 7, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða parhús með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 1-3 við Gefjunarbrunn.

Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 3. júlí 2015.

Stærð mhl. 01, 230,7 ferm., mhl. 02, 230,7 ferm.

Samtals:  461,4 ferm., 1.565,6 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Gnoðarvogur 66 (01.444.206) 105539 Mál nr. BN049627

Kristín Stefánsdóttir, Laugarásvegur 29a, 104 Reykjavík

Jón Þrándur Stefánsson, Gnoðarvogur 66, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara, íbúð stækkar á kostnað sameignar og inntaksrými er gert aðgengilegt utanfrá í fjölbýlishúsi á lóð nr. 66 við Gnoðarvog.

Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 22. júní 2015, kaupsamningur dags. 28. mars 2015 og samþykki meðeigenda dags. 17. júní 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lagfæra skráningartöflu.

28. Grandagarður 20 (01.112.501) 100033 Mál nr. BN049728

HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum sbr. erindi BN048200 þannig að veiðarfæraport verður stækkað til norð-austurs, stoðveggur færður við olíutank vegna legu hans, þykkt stoðveggjar breytt, breytingar á hliðum og hurðum inn á plan og breytingar á gólfkóta í sorpflokkun eftir reyndarmælingum  á mhl. 11 í húsinu á lóð nr. 20 við Grandagarð.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lágmarksgjald ógreitt.

29. Grandagarður 8 (01.115.101) 100046 Mál nr. BN049240

Elvar Ingimarsson, Barðastaðir 41, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að bæta við starfsmannainngangi á suðurhlið og innrétta veitingahús í flokki III fyrir 280 gesti og brugghús í skrifstofuhúsi á lóð nr. 8 við Grandagarð.

Erindi fylgir jákvæð umsögn skipulagsfulltrúa vegna fsp. um sams konar erindi dags. 30. janúar 2015, greinargerð um brunavarnir dags. 13. apríl 2015 og samþykki eins eiganda dags. 13. júlí 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Grensásvegur 12 (01.295.406) 103853 Mál nr. BN048915

Hraunbrekka ehf., Fýlshólum 6, 111 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja inndregna hæð ofan á mhl. 01 og innrétta 24 íbúðir og innrétta 6 íbúðir í mhl. 02 á lóð nr. 12 við Grensásveg.

Meðfylgjandi eru skýringar sem sendar voru í tölvupósti 24. júlí 2015.

Stækkun:  717,8 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Grensásvegur 24 (01.801.214) 107635 Mál nr. BN049754

Samasem ehf, Grensásvegi 22-24, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á erindi BN046421 þar sem koma fram innri breytingar í kjallara, 1. hæð og 2. hæð í húsinu á lóð nr. 24 við Grensásveg.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

32. Grettisgata 16 (01.182.110) 101826 Mál nr. BN049756

Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, Grettisgata 16, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að sameina og stækka kvisti,sbr. erindi BN049405, á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 16 við Grettisgötu.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 21.7. 2015.

Stækkun 3,4 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lagfæra skráningartöflu.

33. Grettisgata 36 (01.190.008) 102346 Mál nr. BN049690

Orri Vésteinsson, Grettisgata 36, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN046987, þannig að viðbygging breikkar og hækkar á einbýlishúsi á lóð nr. 36 við Grettisgötu.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 7. júlí 2015.

Stækkun frá fyrra erindi:  28 ferm., 80,9 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

34. Guðrúnartún 8 (01.216.303) 102760 Mál nr. BN049646

Þórsgarður hf., Kirkjutorgi 6, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta brunahólfun í skrifstofuhúsi á lóð nr. 8 við Guðrúnartún sbr. erindi BN048869.

Gjald kr. 9.8238

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Hagamelur 67 (01.525.007) 106064 Mál nr. BN049632

Úlló ehf., Aflagranda 35, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta kaffi/veitingastað í flokki II í rými sem er með sölu á ritföngum og bókum í húsinu á lóð nr. 67 við Hagamel.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. júlí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2015.

Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. júlí 2015 fylgir.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

36. Hraunbær 113 (04.333.301) 111073 Mál nr. BN049744

Vottar Jehóva, Sogavegi 71, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjölga bílastæðum við hús Votta Jehóva á lóð nr. 113 við Hraunbæ.

Meðfylgjandi er bréf rekstrarnefndar dags. 14.7. 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Hverfisgata 113-115 (01.222.001) 102836 Mál nr. BN049661

Ríkissjóður Íslands, Vegmúla 3, 108 Reykjavík

Ríkiseignir, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja glugga í hábyggingu og koma fyrir álklæðningu milli glugga sem og byggja skábraut að inngangi lægri byggingar Lögreglustöðvar á lóð nr. 113-115 við Hverfisgötu.

Meðfylgjandi er bréf Minjastofnunar Íslands dags. 2.10. 2014.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

38. Hverfisgata 61 (01.152.515) 101087 Mál nr. BN049762

Hverfill ehf., Helluvaði 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta samþykktum teikningum og innrétta geymslur í suðurenda en vinnustofur í norðurenda kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 61 við Hverfisgötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Ingólfsstræti 2A (01.170.005) 101323 Mál nr. BN049733

Fjélagið - eignarhaldsfélag hf., Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík

Síminn hf., Ármúla 25, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir uppsetningu á loftnetum fyrir Símann hf. á reykháf Gamla Bíós á lóð nr. 2A við Ingólfsstræti.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 14.7. 2015, yfirlýsing húseiganda dags. 26.7. 2015, tölvupóstur frá Minjastofnun Íslands og formanni Húsafriðunarnefndar dags. 18. og 19.5 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lágmarksgjald ógreitt.

40. Klapparstígur 26 (01.171.106) 101372 Mál nr. BN049732

Fasteignafélagið Höfn ehf, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík

Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf., Aðalstræti 6, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka kjallara til vesturs að lóðarmörkum og stækka þannig salinn, komið verður fyrir verönd á þaki kjallaraviðbyggingar og komið er fyrir sorpgeymslu í rými 0104 sem er undirgöng með kvöð um gönguleið í húsinu á lóð nr. 26 við Klapparstíg.

Óundirritað samþykki lóðahafa fyrir breytingu á gönguleiðum í undirgangi Klapparstígs 26 dags. 10. júlí 2015 fylgir. 

Stækkun húss er: XX ferm., XX rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

41. Klapparstígur 30 (01.171.108) 101374 Mál nr. BN049577

Þingvangur ehf., Hlíðasmára 9, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að fjölga íbúðum í nýsamþykktu fjölbýlishúsi, sjá erindi BN048637, á lóð nr. 30 við Klapparstíg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. júlí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2015.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

42. Kleppsvegur 92 (01.353.003) 104214 Mál nr. BN049701

Þorbjörn Ragnar Guðjónsson, Kleppsvegur 92, 104 Reykjavík

Ivon Stefán Cilia, Kleppsvegur 92, 104 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, þar sem gerð er grein fyrir íbúð 0102 í mhl. 01 þannig að þar verða tvær íbúðir í parhúsi á lóð nr. 92 við Kleppsveg.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 7.7. 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa með fyrirspurn dags. 21.7. 2014.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Klettagarðar 6 (01.322.301) 188794 Mál nr. BN049753

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Drangasker ehf., Lágmúla 9, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049635 þannig að komið verður fyrir frysti í lagerhlutanum millipallur stækkaður og komið er fyrir skrifstofurými og flóttaleið frá millilofti út á hringstiga komið fyrir á norðurhlið á húsinu á lóð nr. 6 við Klettagarða.

Bréf frá eigendum húss ódags. og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 17. júlí 2015 fylgir.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Kringlan  4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN049702

Reitir VII ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í einingu 108 í Kringlunni á lóð nr. 4-12 við Kringluna.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

45. Kristnibraut 2-12 (04.122.501) 186848 Mál nr. BN049730

Kristnibraut 2-12,húsfélag, Kristnibraut 6, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta uppbyggingu á þaki, einangrun, þakhalla, pappalögn og niðurföllum sbr. erindi BN021538 samþ. 9.12. 2000, á fjölbýlishúsi á lóð nr. 2-12 við Kristnibraut,

Gjald kr. 9.923

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Langagerði 64 (01.832.202) 108559 Mál nr. BN049760

Snæbjörn Marinó Reynisson, Langagerði 64, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049301 þannig að leiðréttar eru stærðir og stækkun hússins á lóð nr. 64 við Langagerði. 

Stækkunin er : 19,9 ferm., 88,9 rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Laugateigur 32 (01.365.105) 104672 Mál nr. BN049575

Guðlax ehf, Hólmaslóð 2, 101 Reykjavík

Tobias Klose, Laugateigur 32, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjarlægja núverandi þak og kvist og byggja nýtt þak og fjölga kvistum, breyta innra skipulagi íbúðar á 2. og 1. hæð og samþykki fyrir íbúð í kjallara í húsinu á lóð nr. 32 við Laugateig.

Umsögn skipulagsfulltrúa frá 6. júlí 2015 fylgir. Íbúðarskoðun dags.24. júní 2015 fylgir Matsvottorð frá 31 des. 2000 fylgir Ljósritt frá fasteingarskrá Ísland um leigusamning af íbúð. Yfirlýsing frá Þorvaldi Björnssyni að Sigurður Einarsson er aðalhönnuður dags. 23. júlí 2015

Stækkun: 22,5 ferm., 39,6 rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Frestað.Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

48. Laugavegur 170-174 (01.250.201) 103431 Mál nr. BN049757

Hekla fasteignir ehf., Laugavegi 174, 105 Reykjavík

Hekla hf., Pósthólf 5310, 125 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi í söludeild á 1. hæð og setja nýjar inngangsdyr á norðurhlið húss Heklu hf. nr. 174  á lóð nr. 170-174 við Laugaveg.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Laugavegur 28B (01.172.207) 101462 Mál nr. BN049200

Laugavegur 28b ehf, Laugavegi 28b, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýtt skjólþak fyrir hluta af þaksvölum á húsi á lóð nr. 28B við Laugaveg.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Laugavegur 32 (01.172.213) 101468 Mál nr. BN049631

Paul Newton, Klapparstígur 44, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja upp svalir úr stáli og timbri og glugga við svalirnar á húsinu á lóð nr. 32 við Laugaveg.

Samþykki meðlóðarhafa ódags. Minjastofnun Íslands dags. 8. júlí 2015 fylgir.

Jákvæð fyrirspurn dags. 5. maí 2015 fylgir. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.

51. Lofnarbrunnur 6-8 (02.695.804) 206086 Mál nr. BN049743

Haukur Óskarsson, Gvendargeisli 96, 113 Reykjavík

Spennt ehf, Gvendargeisla 96, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN036388, sem er parhús á lóð nr. 6-8 við Lofnarbrunn.

Erindi fylgir kaupsamningur dags. 25. júní 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lagfæra skráningatöflu.

52. Mjölnisholt 12-14 (01.241.104) 211626 Mál nr. BN049694

Mjölnisholt ehf, Ögurhvarf 6, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að fella niður bílageymslu í neðri kjallara og bílalyftu, fylgirými í neðri kjallara stækkar sem því nemur,  endurskipuleggja notarými í neðri kjallara, endurskipuleggja innkeyrslubraut í efri kjallara og endurskoða aðalstiga að kjöllurum í hóteli á lóð nr. 12-14 við Mjölnisholt.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Norðurgarður 1 (01.112.201) 100030 Mál nr. BN049729

HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum frá  áður samþykktu erindi BN048201 þannig að reyklosunarlúgur eru stækkaðar, þakefndum breytt í byggingarlýsingu, nýir gluggar og loftrist komi á frystivélahúsið ásamt breytingum innandyra í húsi á lóð nr. 1 við Norðurgarð.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lágmarksgjald ógreitt.

54. Nönnugata 7 (01.186.615) 102311 Mál nr. BN049761

Magnhús ehf., Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjölga íbúðum úr einni í tvær á 1. hæð og breyta skipulagi geymslna í rishæð í fjöleignahúsi á lóð nr. 7 við Nönnugötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

55. Reykjavíkurvegur 35 (01.635.506) 106690 Mál nr. BN049249

Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, Reykjavíkurvegur 35, 101 Reykjavík

Þórarinn Guðnason, Reykjavíkurvegur 35, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á erindi BN047765 þannig að bogaveggur frá bílskúr var framlengdur, komið fyrir útisturtu, útfærslu þaks breytt, steyptur veggur á lóðamörkum og heitum potti og palli komið fyrir sunnan einbýlishúss á lóð nr. 35 við Reykjavíkurveg. 

Samþykki lóðarhafa nr. 33 og nr. 31 Reykjavíkurvegi og Hörpugötu 1 ódags. fylgir.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

56. Safamýri 95 (01.284.308) 103733 Mál nr. BN049513

Brynjar Kristjánsson, Safamýri 59, 108 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum í kjallara, þar sem gerð er grein fyrir tveimur íbúðum í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 95 við Safamýri.

Gjald kr. 9.823

Synjað.Með vísan til athugasemda byggingarfulltrúa á umsóknarblaði.

57. Saltvík 125744 (00.064.000) 125744 Mál nr. BN049747

Stjörnugrís hf., Vallá, 116 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048095 þannig að komið verður fyrir þremur  nýjum viðbyggingum sem nota á sem geymslur, þaki yfir loftpressur og kælidælu við vestur og ausur hlið hússins  á lóðinni Saltvík 125744 

Stækkun rými 0118, 0119 og 0120:  123,5 ferm., 432,0 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

58. Silungakvísl 19 (04.212.704) 110789 Mál nr. BN049404

Hulda Hauksdóttir, Silungakvísl 19, 110 Reykjavík

Gylfi Magnús Jónasson, Silungakvísl 19, 110 Reykjavík

Þór Kristinsson, Silungakvísl 19, Sótt er um samþykki á þegar framkvæmdum breytingum sem felast í að teknar eru í notkun geymslur í kjallara og undir bílgeymslu, gluggar hafa verið settir á geymslur í kjallara, verönd og skjólveggir eru á baklóð og þar er sótt um leyfi fyrir heitum potti við íbúðarhús á lóð nr. 19 við Silungakvísl. Stærðir stækkunar: 10 ferm., 64 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.    

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

59. Síðumúli 17 (01.293.205) 103812 Mál nr. BN049174

Ís-spor ehf, Síðumúla 17, 108 Reykjavík

DAP ehf, Litlu-Tungu, 270 Mosfellsbær

Sótt er um leyfi til að stækka veitingastað í flokki I  í rými 0101 með því að taka hluta af rými 0105, koma fyrir tveimur salernum annað með aðgengi fyrir alla og fjölga gestum um 12 þannig að gestafjöldinn verður 30 gestir í húsinu á lóð nr. 17 við Síðumúla.

Samþykki meðeigenda dags 16. júní 2015 fylgja 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lagfæra skráningartöflu.

60. Skipholt 35 (01.251.104) 103438 Mál nr. BN049738

Alviðruhóll ehf., Skipholti 35, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka söludeild á götuhæð og endurinnrétta, loka hringstiga á milli söludeildar og skrifstofurýmis á 2. hæð og lagerhúsnæðið á götuhæð verður endurskipulagt og komið fyrir hringstiga milli þess og kjallara í húsinu á lóð nr. 35 við Skipholt. 

Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 3 júlí 2015 og Bréf hönnuðar dags. 14. júlí 2015 fylgir. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

61. Skólavörðustígur 8 (01.171.206) 101387 Mál nr. BN049726

OAK ehf., Árakri 33, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049314 þannig að komið er fyrir útblástursstokk frá eldunar-steikingu meðfram suðurvegg og upp vesturhlið hússins á lóð nr. 8 við Skólavörðustíg.

Samþykki sumra fylgir á A3 teikningu.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vantar samþykki sumra meðeigenda.

62. Sólvallagata 67 (01.138.201) 100729 Mál nr. BN049746

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta mhl. 08, 09, 10 í einn mhl. 08, breyta innra skipulagi þannig að núverandi stigar verða fjarlægðir og nýr steyptur stigi og lyfta kemur í staðinn, kjallaragólf í viðbyggingu er lækkað og tveir gluggar ásamt flóttahurð komi á vesturhlið, komið verður fyrir flóttasvölum og nýrri flóttahurð út á þær, komið verður fyrir nýjum snyrtingum og ræstingum í kjallara og snyrtingar verða endurgerðar í húsinu á lóð nr. 67 við Sólvallagötu.

Umsögn burðarvirkishönnuðar  dags. 8. júlí 2015 fylgir.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

63. Sólvallagata 67 (01.138.201) 100729 Mál nr. BN049768

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir aðstöðusköpun og jarðvinnu vegna viðbyggingar við Vesturbæjarskólann á lóðinni nr. 67 við Sólvallagötu, sbr. nýsamþykktu erindi  BN049593.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

64. Stuðlasel 14 (04.923.501) 112630 Mál nr. BN049642

Arnbjörg Guðbjörnsdóttir, Stuðlasel 14, 109 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta einbýlishúsi þannig að lokað verður á milli íbúðar og útbúnar verða tvær sjálfstæðar íbúðir á lóð nr. 14 við Stuðlasel.

Ósamþykktur eignaskiptasamningur frá 28. okt. 2015 fylgir. Umboð frá hönnuði hússins um að breytingar á teikningum séu leyfðar dags. 17. júlí 2015 fylgir. 

Gjald kr. 9.823

Frestað. Lagfæra skráningartöflu.

65. Suðurlandsbraut 46-54 (01.463.101) 105671 Mál nr. BN049739

Svanhildur Eva Stefánsdóttir, Langholtsvegur 144, 104 Reykjavík

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um samþykki á innréttingum fyrir söluturnsleyfi í spilaverslun á 1. hæð í húsi á lóð nr. 48 við Suðurlandsbraut.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Aðalhönnuður ekki með réttindi.

66. Sundagarðar 2 (01.335.304) 103906 Mál nr. BN049111

Sundaboginn slhf., Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum á jarðhæð, byggja skyggni yfir bakinngang úr stálplötum og með hertu gleri á suðausturhlið og koma fyrir fjórum skiltum á suðausturgafl sem gefur til kynna fyrirtækin í húsinu á lóð nr. 2 við Sundagarða.

Gjald kr. 9.823

Frestað.Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

67. Sævarhöfði 2-2A (04.054.501) 110556 Mál nr. BN049179

EGG fasteignir ehf., Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík

BL ehf., Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta lagerhúsnæði í sýningarsal, mátlínur 1-6 og f-j, og til að koma fyrir skiltum við bílasölu á lóð nr. 2 við Sævarhöfða.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

68. Tangabryggja 2-4 (04.023.401) 216248 Mál nr. BN049759

Arcus ehf, Lágmúla 7, 108 Reykjavík

Sótt er erum leyfi til að byggja fjölbýlishús með 42 íbúðum ásamt bílageymslu á lóð nr. 2-4 við Tangabryggju.

Meðfylgjandi eru varmatapsútreikningar dags. 20.7. 2015.

Stærðir: xxxxxx.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

69. Tjarnargata 28 (01.142.002) 100923 Mál nr. BN049725

Feier ehf., Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja kvist á austurhlið og breyta innra skipulagi efri hæðar einbýlishúss á lóð nr. 28 við Tjarnargötu.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags, 9. júlí 2015, samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða dags. 8. júlí 2015, samþykki lóðarhafa Tjarnargötu 26 vegna breytinga á lóðamörkum og kaupsamningur dags. 22. maí 2015.

Stækkun:  1,76 ferm., 5,76 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

70. Tryggvagata 19 (01.118.301) 100095 Mál nr. BN049536

Ríkiseignir, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN045618 þannig að fækkað er um eina tunnuhurð, hin færð um tvö súlubil og útbúið er rými að innanverðu fyrir ker og endurvinnslusvæði í húsinu á lóð nr. 19 við Tryggvagötu. 

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

71. Úlfarsbraut 122-124 (05.055.701) 205755 Mál nr. BN049765

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að færa tvær færanlegar kennslustofur nr. K-107-F og K108-F og tengja þær við kennslustofur K97-E og K98-E á byggingareit fyrir færanlegar kennslustofur innan lóðar nr. 122-124 við Úlfarsbraut.

Stærð kennslustofa er: XX ferm.,  XX rúmm

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

72. Veghúsastígur 7 (01.152.419) 101064 Mál nr. BN049737

RR hótel ehf., Laugavegi 182, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta nýjan veitingastað í bakhúsi með aðgengi

frá Veghúsastig 9 og breyta notkun veitingahússins í flokk II í rými 0105

á lóð nr. 7 við Veghúsastíg.

Samþykki meðlóðarhafa nr. 9 og 9A við Veghúsastíg dags. 14. júlí 2014 fylgir erindinu.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

73. Veltusund 3B (01.140.420) 100860 Mál nr. BN048747

Arkís arkitektar ehf., Kleppsvegi 152, 104 Reykjavík

Balance ehf, Viðarási 26, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, innrétta fimm íbúðir á 2. og 3. hæð, innrétta aðstöðu fyrir veitingahús 1. hæðar á 2. hæð, til að dýpka kjallara um 30 cm í húsi á lóð nr. 3B við Veltusund.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. febrúar 2015, þinglýst afsal dags. 10. október 2007, samningur um afnot af sorpgeymslum í Austurstræti 3 dags. 4. júní 2015 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 10. júní 2015.

Stækkun:  xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

74. Vesturbrún 6 (01.380.203) 104741 Mál nr. BN049669

Eiríka Guðrún Ásgrímsdóttir, Vesturbrún 6, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu vestan við einbýlishús á lóð nr. 6 við Vesturbrún.

Jafnframt er erindi BN045470 fellt úr gildi.

Stærð viðbyggingar:  22,5 ferm., 68 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Erindið er i grenndarkynningu.

75. Vesturhlíð 7 (01.768.401) 107477 Mál nr. BN049758

Jón Pétursson ehf, Bjarkargötu 4, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áðurgerðum millipalli rými 0112 í húsinu á lóð nr. 7 við Vesturhlíð.

Stærð millipalls er: 68,3 ferm.

Gjald kr. 9.823

Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

76. Víðimelur 63 (01.524.106) 106021 Mál nr. BN048879

V63 ehf., Víðimel 63, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka ris, byggja kvisti, koma fyrir nýjum stiga milli hæða, stækka svalir og breikka inngangströppur og útbúa nýjan inngang fyrir íbúðir 0101 og 0201 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 63 við Víðmel.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. júní 2015. Erindið var grenndarkynnt frá 22. maí til og með 19. júní 2015. Engar athugasemdir bárust.

Jákvæðar fyrirspurnir BN048310 dags. 14. október 2014 og BN048437 dags. 28. október 2014 fylgja erindinu, einnig samþykki meðlóðarhafa á A4 teikningum dags. 15 jan. 2015 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 6. júlí 2015.

Stækkun:  168,5 ferm., 523,6 rúmm.

Gjald kr. 9.823 + 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

77. Völvufell 13-21 (04.683.005) 112304 Mál nr. BN049603

Hólabraut ehf, Víðivangi 22, 220 Hafnarfjörður

Sótt er um leyfi til að innrétta í mhl. 01 rými 0101 og í rými 0001 listasafn og geymslu fyrir safneign í húsi nr.13 til 21 við Völvufell. 

Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

78. Þingvað 19 (04.773.802) 198726 Mál nr. BN049750

Auður Ögn Árnadóttir, Þingvað 9, 110 Reykjavík

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu, uppsteypu á undirstöðum og botnplötu ásamt lögnum í jörð sbr. erindi BN046719 sem samþykkt var 3. des. 2013 og síðari breytingum í erindi BN049085 sem samþykkt var 5. maí 2015.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

79. Bergþórugata 23 (01.190.326) 102458 Mál nr. BN049740

Óskað er eftir  samþykki byggingarfulltrúans á Lóðauppdrætti staðgreinir 1.190.3 vegna lóðarinnar Bergþórugötu 23 (staðgr. 1.190.326, landnr. 102458), eða eins og sýnt er á meðfylgandi uppdrætti Landupplýsingadeildar dagsettum 09.07. 2015.

Lóðin Bergþórugata 23 (staðgr. 1.190.326, landnr. 102458), er talin 423.2 m2, lóðin reynist 423 m2. Nú hnitsetur Landupplýsingadeild lóðamörkin, en við það geta stærðir breyst lítillega. 

Sjá deiliskipulag samþykkt í skipulagsráði þann 18. 09. 2013, samþykkt í borgarráði þann 26. 09. 2013 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 07. 11. 2013 um gildistöku deiliskipulagsins, sbr. og mælingar og rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar á staðnum.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

80. Hringbraut 28 (01.143.106) 100954 Mál nr. BN049712

Helga Jóhanna Stefánsdóttir, Hringbraut 28, 101 Reykjavík

Ingibjörg Betty Bustillo, Þingás 7, 110 Reykjavík

Guðrún Stefanía Kristinsdóttir, Stíflisdalur, 801 Selfoss

Eigendur fasteigna að Hringbraut 28, landnúmer 100954, óska hér með eftir því að heiti lóðar verði breytt úr Hringbraut 28 í Tjarnargata 49.

Synjað.Húsið er í húsaröð við Hringbraut og aðalinngangur er frá Hringbraut.

81. Tjarnargata 26 (01.142.003) 100924 Mál nr. BN049717

Heimir Sigurðsson, Vesturgata 39, 101 Reykjavík

Þóra Kristjánsdóttir, Tjarnargata 26, 101 Reykjavík

Sveinn Einarsson, Tjarnargata 26, 101 Reykjavík

Óskað er eftir samþykki byggingafulltrúans fyrir breytingu á lóðamörkum  og útgáfu á hnitsettum uppdrætti fyrir lóðirnar  Tjarnargata 26 ( landnr. 100924, staðgr.nr. 1.142.003) og Tjarnargata 28 ( landnr. 100923, staðgr.nr. 1.142.002). Sjá meðfylgjandi uppdrátt, Hluti úr lóðauppdrætti 1.142.0.

Lóðin Tjarnargata 26 (staðgr. 1.142.003, landnr. 100924) er talin  908,4 m².

Lóðin reynist 913 m².

Teknir 33 m² af lóðinni og bætt við Tjarnargötu 28.

Lóðin verður  880 m².

Lóðin Tjarnargata 28 (staðgr. 1.142.002, landnr. 100923) er talin 947,2 m²

Lóðin reynist 955 m²

Bætt við lóðina 33 m² frá Tjarnargötu 26

Leiðrétt um 1 m² vegna fermetrabrota

Lóðin verður 989 m².

Sjá kaupsamning lóðahafa Tjarnargötu 26 og Tjarnargötu 28, dags. 22. 05. 2015.

Sjá samþykkt Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur 11. 06. 2015.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

82. Tjarnargata 28 (01.142.002) 100923 Mál nr. BN049718

Fyrirspurnir

83. Austurv Thorvaldsenss (01.140.418) 100859 Mál nr. BN049731

NS Holding ehf., Vesturbrún 16, 104 Reykjavík

Lúther Ólason, Ásbraut 21, 200 Kópavogur

Spurt er hvort áfangaskipta megi framkvæmd við endurgerð og lagfæringar húss á lóð nr. 2 við Thorvalsenstræti, erindi BN049495.

Jákvætt. Þegar byggingaráform hafa verið samþykkt. 

84. Fornhagi 22 (01.543.306) 106444 Mál nr. BN049727

Sólveig Ólafsdóttir, Fornhagi 22, 107 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi  fengist til að gera baðherbergi í rými  og stækka það á kostnað sameignar inna af eldhúsi, færa þvottahúsi inn þar sem baðherbergið var í húsinu á lóð nr. 22 við Fornhaga.  

Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum. Sækja þarf um byggingarleyfi.

85. Grensásvegur 13 (01.465.001) 105680 Mál nr. BN049687

PFAFF hf., Grensásvegi 13, 108 Reykjavík

Spurt er hvort breyta megi skrifstofu í eignarhluta 0204 í íbúð og hvort hafa megi þvottavél inn á baði og stórir skápar dugi sem geymsla í húsi á lóð nr. 13 við Grensásveg.

Nei. Samanber umsögn byggingarfulltrúa á fyrirspurnarblaði. 

86. Heiðargerði 53 (01.801.206) 107627 Mál nr. BN049748

Brynjar Harðarson, Heiðargerði 53, 108 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta gluggum í anddyri hússins á lóð nr. 53 við Heiðargerði. 

Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum.

87. Langholtsvegur 155 (01.442.115) 105502 Mál nr. BN049752

Gerður Jónsdóttir, Langholtsvegur 155, 104 Reykjavík

Spurt er hvort setja megi tvo þakglugga á þak tvíbýlishúss á lóð nr. 155 við Langholtsveg.

Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum.

88. Leifsgata 30 (01.195.304) 102618 Mál nr. BN049581

Erla Stefánsdóttir, Leifsgata 30, 101 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja ofan á viðbyggingu á húsi á lóð nr. 30 við Leifsgötu.

Neikvætt erindi BN049095 dags. 21. apríl 2015 fylgir. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. júlí 2015 fylgir erindinu, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. júlí 2015.

Afgreitt. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. 

89. Lokastígur 18 (01.181.302) 101772 Mál nr. BN049751

Vignir Guðjónsson, Arnarsmári 16, 201 Kópavogur

Fyrirspurn framsend til skipulagsfulltrúa. 

Afgreitt.

90. Rauðagerði 40 (01.823.006) 108337 Mál nr. BN049721

Aðalheiður Guðmundsdóttir, Rauðagerði 40, 108 Reykjavík

Sigurjón Guðmundsson, Rauðagerði 40, 108 Reykjavík

Fyrirspurn framsend til skipulagsfulltrúa.

Afgreitt.

91. Síðumúli 10 (01.292.301) 103798 Mál nr. BN049749

Arney Þórarinsdóttir, Suðurtún 2, 225 Álftanes

Spurt er hvort breyta megi verslunarhúsnæði í fæðingaraðstöðu og -fræðslu á 1. hæð í húsi á lóð nr. 10 við Síðumúla.

Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

92. Skipholt 9-Stúfh 1-3 (01.241.210) 103028 Mál nr. BN049704

Fylkir ehf., Dugguvogi 4, 104 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að innrétta tvær íbúðir til skammtímaleigu í verslun 0102 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Skipholt.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. júlí 2015 fylgir erindinu, með vísan til eldri umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2014.

Nei.Sambanber umsögn skipulagsfulltrúa.

93. Vífilsgata 6 (01.243.403) 103130 Mál nr. BN049734

Stefán Gunnarsson, Vífilsgata 6, 105 Reykjavík

Spurt er hvort útbúa megi sérstakt 20 ferm. leigurými, innangengt að utan, í kjallara íbúðarhúss á lóð nr. 6 við Vífilsgötu.

Nei.Samanber umsögn byggingarfulltrúa á fyrirspurnarblaði.

94. Þrastargata 1-11 (01.553.110) 106536 Mál nr. BN049745

Óskar Þór Óskarsson, Reykjavegur 74, 270 Mosfellsbær

Fyrirspurn framsent til skipulagsfulltrúa. 

Afgreitt.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 15:05

Nikulás Úlfar Másson

Björn Kristleifsson

Jón Hafberg Björnsson

Skúli Þorkelsson

Karólína Gunnarsdóttir

Olga Hrund Sverrisdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2015, þriðjudaginn 11. ágúst kl. 10:12 fyrir  hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 837. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Sigurbjartur Halldórsson, Nikulás Úlfar Másson, Björn Kristleifsson, Erna Hrönn Geirsdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Eva Geirsdóttir og Óskar Torfi Þorvaldsson

Fundarritari var Erna Hrönn Geirsdóttir

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurv Thorvaldsenss (01.140.418) 100859 Mál nr. BN049495

NS Holding ehf., Vesturbrún 16, 104 Reykjavík

Lindarvatn ehf., Fossaleyni 21, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi í veitingasal á efri hæð og í tónlistar/dansstað sem báðir verða í flokki III fyrir samtals 400 gesti í húsi á lóð nr. 2 við Thorvaldsenstræti.

Meðfylgjandi er brunahönnun Eflu dags. 18. júní 2015, hljóðvistarskýrsla Eflu dags. júlí 2015, samningur um staðsetningu sorpíláta á lóð nr. 7 við Aðalstræti, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10.7. 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Baldursgata 30 (01.186.212) 102241 Mál nr. BN049578

Auður Gná Ingvarsdóttir, Baldursgata 30, 101 Reykjavík

Þorlákur Hilmar Morthens, Baldursgata 30, 101 Reykjavík

Hulda Dúa Árdal, Svíþjóð, Sótt er um leyfi til að lengja svalir á 2, 3, og 4. hæð og núverandi glugga og hurð á íbúð á 3. hæð verður skipt út og rennihurð sett í staðinn í mhl. 03 í húsinu á lóð nr. 30 við Baldursgötu.

Samþykki meðlóðarhafa ódags. fylgir erindinu.

Jákvæð fyrirspurn  BN048921 dags. 10. mars 2015 fylgir.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 25. júní til og með 23. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Barónsstígur 53 (01.195.020) 102578 Mál nr. BN049781

Jóhann Kröyer Halldórsson, Vallarhús 55, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar þar sem sýnd er geymsla 0003 sem hefur stækkað á kostnað hitarýmis 0006 sem er sameign hússins á lóð nr. 53 við Barónsstíg.

Samþykki meðeigenda dags. 21. júlí 2015 fylgir. 

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.    

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Bergstaðastræti 4 (01.171.307) 101407 Mál nr. BN049633

Gamma ehf, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta mhl. 01 þannig að loka á stigagangi 0006 inn í rými 0001, flytja geymslur, koma fyrir hurð frá rými 0104 inn í rými 0103 og breikka útidyrahurð suð-vesturhorns á  húsinu á lóð nr. 4 við Bergstaðastræti.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bergstaðastræti 44 (01.185.204) 102158 Mál nr. BN049791

BLUE Car Rental ehf., Blikavöllum 3, 235 Keflavíkurflugvöllu

Sótt er um leyfi til að koma  fyrir sjálfvirkt bruna og öryggiskerfi sem verður vaktað af öryggiskerfi og breyta notkunarflokk íbúða 0101, 0102, 0201,  0202, 0301, 0302 og 0401 úr flokk 3 í flokk 4 í húsinu á lóð nr. 44 við Bergstaðastræti .

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bergstaðastræti 86 (01.197.107) 102709 Mál nr. BN049705

Birgir Örn Arnarson, Bergstaðastræti 86, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja við bílskúr, síkka kjallaraglugga og grafa frá kjallara einbýlishúss á lóð nr. 86 við Bergstaðastræti.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júlí 2015. 

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Brekkugerði 4 (01.804.404) 107752 Mál nr. BN049668

Hjalti Gylfason, Brekkugerði 4, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýjan steinsteyptan bílskúr að vestanverðu, koma fyrir geymslukjallara undir verönd 0102 og steypa lágan stoðvegg á lóðamörkum nr. 6 og 8 við Brekkugerði á  lóð nr. 4 við Brekkugerði.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst 2015.

Bílskúr stærð: 33,4 ferm., 84,9 rúmm. 

Geymslukjallari: 36,3 ferm., 98,0 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst 2015.

8. Bugðulækur 6 (01.344.301) 104034 Mál nr. BN049391

Steindór Eiríksson, Bugðulækur 6, 105 Reykjavík

Lilja Ásgeirsdóttir, Bugðulækur 6, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr úr plastkubbum frá Varmamót með 150 mm steypukjarna, múrhúðað að utan og innan með loftuðu, sléttu, pappaklæddu timburþaki á lóð nr. 6 við Bugðulæk.

Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð. dags. 10. júlí 2014 og samþykki eigenda á Bugðulæk 8, dags. 13. júlí 2014.

Stærð: 38,7 ferm., 134,9 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Skipulagsferli ólokið.

9. Bústaðavegur 130 (01.871.004) 108822 Mál nr. BN049785

Grill 111 ehf., Réttarholtsvegi 1, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka söluskála  í flokki ? til vesturs og suðurs úr steinsteypu, timbri og stáli, koma fyrir veitingasal og salernum fyrir 30 gesti í húsinu á lóð nr. 130 við Bústaðaveg. 

Fyrirspurn  BN049399 dags. 9. júní 2015 fylgir. 

Stækkun:  40,0 ferm., 102,3 rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Bæjarháls 1 (04.309.601) 190769 Mál nr. BN049662

Orkuveita Reykjav - Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Foss Fasteignafélag slhf., Borgartúni 25, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að útbúa geymslu vestan við mhl. 08 og gerð er grein fyrir endurnýjun á inntaks- og  útsogsventlum á þaki mhl. 03 á lóð nr. 1 við Bæjarháls.

Stækkun:  78,2 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Drápuhlíð 4 (01.704.202) 107082 Mál nr. BN049784

Elín Sigurvinsdóttir, Drápuhlíð 4, 105 Reykjavík

Sigurður Eggertsson, Drápuhlíð 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta svölum, lengja þær og hækka handrið með handlista á 1. og 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Drápuhlíð.

Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda.

Gjald kr 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Einarsnes 76 (01.673.103) 106830 Mál nr. BN049613

Daníel Brandur Sigurgeirsson, Einarsnes 76, 101 Reykjavík

Elín Björk Jónasdóttir, Einarsnes 76, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja rishæð, stækka útbyggingu á vesturgafli, gera nýjan inngang á norðurhlið og byggja svalir á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 76 við Einarsnes.

Stækkun:  14,6 ferm., 157 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

13. Eiríksgata 17 (01.195.214) 102606 Mál nr. BN049684

Eclipse fjárfestingar slhf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á allar hæðir á austurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 17 við Eiríksgötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Er til umfjöllunar hjá skipulagsfulltrúa.

14. Fáfnisnes 14 (01.675.108) 106906 Mál nr. BN049597

Benedikt Stefánsson, Fáfnisnes 14, 101 Reykjavík

Björg Kjartansdóttir, Fáfnisnes 14, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja skála við suðurhlið og koma fyrir eldstæði með reykröri við einbýlishús á lóð nr. 14 við Fáfnisnes.

Stækkun vegna skála verður 28,8 ferm., 78,0 rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Fellsmúli 13-19 (01.294.201) 103823 Mál nr. BN049416

Anna Sigríður Kristjánsdóttir, Svíþjóð, Sótt er um samþykki á þegar gerðum breytingum sem felast í að innréttað er baðherbergi í íbúð 04-0001 í kjallara fjölbýlishúss nr. 19 á lóð nr. 13 - 19 við Fellsmúla.

Samþykki meðeiganda fylgir erindinu. 

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Flókagata 67 (01.270.018) 103561 Mál nr. BN049628

Sveinn Skúlason, Flókagata 67, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja við og hækka þakið á bílskúrnum á lóð nr. 67 við Flókagötu.

Bréf frá umsækjanda ódags. Grenndarkynning frá 13. júlí 2005 til 10 ágúst 2005 og bréf frá Byggingafulltrúa vegna grenndarkynningar frá 13 okt. 2005.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júlí 2015.

Stækkun: 18.3 ferm., 76,2 rúmm. 

Gjald kr. 9.000

Synjað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. júlí 2015.

17. Frakkastígur 8 (01.172.109) 101446 Mál nr. BN049788

Blómaþing ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa hluta af steinsteyptri byggingu á horn Hverfisgötu og Frakkastígs eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir og sem byggð var 1988, húsið er í samfelldu bygginga sem mynda matshluta 01 á lóð nr. 8 við Frakkastíg.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 28.7. 2015.

Niðurrifsstærðir: 488,7 ferm., 1.532,9 rúmm.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

18. Friggjarbrunnur 17-19 (02.693.504) 205773 Mál nr. BN049769

Sveinn Óskar Þorsteinsson, Brúnastaðir 59, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, BN048225, breytt er innra skipulagi í kjallara parhúss á lóð nr. 17-19 við Friggjarbrunn. Sbr. BN046749.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Friggjarbrunnur 42-44 (05.053.201) 205962 Mál nr. BN048498

Bygg Ben ehf., Vesturlbr Fífilbrekku, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús, þrjár til fimm hæðir með 52 íbúðum, og bílakjallara fyrir 53 bíla á lóð nr. 42-44 við Friggjarbrunn.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. febrúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. febrúar 2015, ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst 2015.

Stærð A-rými:  6.178,2 ferm., 18.365,5 rúmm.

B-rými:  1.953,2 ferm., 4.346,1 rúmm., þ.a. bílgeymsla 1.472,5 ferm.

C-rými:  286,6 ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst  2015. 

20. Gnoðarvogur 66 (01.444.206) 105539 Mál nr. BN049627

Jón Þrándur Stefánsson, Gnoðarvogur 66, 104 Reykjavík

Kristín Stefánsdóttir, Laugarásvegur 29a, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara, íbúð stækkar á kostnað sameignar og inntaksrými er gert aðgengilegt utanfrá í fjölbýlishúsi á lóð nr. 66 við Gnoðarvog.

Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 22. júní 2015, kaupsamningur dags. 28. mars 2015 og samþykki meðeigenda dags. 17. júní 2015.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Grandagarður 15-37 (01.115.001) 100045 Mál nr. BN049692

Tilefni ehf., Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta kökuhús í flokki I í verbúð nr. 19 á lóð nr. 15-37 við Grandagarð.

Erindi fylgir leigusamningur við Faxaflóahafnir dags. í maí 2015, óundirritaður.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

22. Grandagarður 20 (01.112.501) 100033 Mál nr. BN049728

HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum sbr. erindi BN048200 þannig að veiðarfæraport verður stækkað til norð-austurs, stoðveggur færður við olíutank vegna legu hans, þykkt stoðveggjar breytt, breytingar á hliðum og hurðum inn á plan og breytingar á gólfkóta í sorpflokkun eftir reyndarmælingum  á mhl. 11 í húsinu á lóð nr. 20 við Grandagarð.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

23. Grensásvegur 12 (01.295.406) 103853 Mál nr. BN048915

Hraunbrekka ehf., Fýlshólum 6, 111 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja inndregna hæð ofan á mhl. 01 og innrétta 24 íbúðir og innrétta 6 íbúðir í mhl. 02 á lóð nr. 12 við Grensásveg.

Meðfylgjandi eru skýringar sem sendar voru í tölvupósti 24. júlí 2015.

Meðfylgjandi eru umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 15.8. 2014 og 22.1. 2015.

Stækkun:  717,8 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Grettisgata 16 (01.182.110) 101826 Mál nr. BN049756

Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, Grettisgata 16, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að sameina og stækka kvisti,sbr. erindi BN049405, á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 16 við Grettisgötu.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 21.7. 2015 og samþykki meðeigenda í íbúð 0102 og 0201.

Stækkun 3,4 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Guðrúnargata 8 (01.247.704) 103400 Mál nr. BN049780

Sigrún Svava Aradóttir, Guðrúnargata 8, 105 Reykjavík

Daði Róbertsson, Hlíðarvegur 41, 625 Ólafsfjörður

Sótt er um leyfi fyrir sérafnotaflöt fyrir eign 0101 mhl. 01 á lóð nr. 8 við Guðrúnargötu.

Meðlóðarhafar eru umsækjendur. 

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Hagamelur 67 (01.525.007) 106064 Mál nr. BN049632

Úlló ehf., Aflagranda 35, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta kaffi/veitingastað í flokki II í rými sem er með sölu á ritföngum og bókum í húsinu á lóð nr. 67 við Hagamel.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. júlí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2015.

Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. júlí 2015 fylgir.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

27. Haukdælabraut 66 (05.114.802) 214809 Mál nr. BN049798

Gunnar Ás Vilhjálmsson, Bakkastaðir 57, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN045084, þannig að klæðningarefni verður flísar, múr, timbur og komið verður fyrir staðsteyptum stoðvegg á lóðarmörkum norðanmegin við húsið á lóð nr. 66 við Haukdælabraut.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

28. Háagerði 22 (01.817.402) 108149 Mál nr. BN049805

Hafsteinn Snorri Halldórsson, Háagerði 22, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048337, þar sem sótt var um leyfi til að byggja bílskúr úr timbri en inn fór teikning af steyptum bílskúr í staðinn og nú er verið að koma með teikningar af bílskúr úr timbri á lóð nr. 22 við Háagerði.

fyrirspurn BN049531 dags. fylgir. 

Samþykki eigenda á nr. 20 við Háagerði fylgir dags. 25. maí 2015

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Hrannarstígur 3 (01.137.305) 100665 Mál nr. BN049786

Herdís Ellen Gunnarsdóttir, Þjórsárgata 9a, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja svalir á vestur hlið, flytja eldhús á vesturhlið, fjarlægja veggi í íbúð 0101 og  breikka hurð út í garð og síkka glugga undir svölum á íbúð 0001 í húsinu á lóð nr. 3 við Hrannarstíg.

Samþykki meðeigenda fylgir dags. 2. júlí 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Hraunbær 113 (04.333.301) 111073 Mál nr. BN049744

Vottar Jehóva, Sogavegi 71, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjölga bílastæðum úr 41 stæði í 63 stæði við hús Votta Jehóva á lóð nr. 113 við Hraunbæ.

Meðfylgjandi er bréf rekstrarnefndar dags. 14.7. 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Hrísateigur 14 (01.360.204) 104519 Mál nr. BN049651

Norðurey ehf., Fjarðarási 10, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa einbýlishús á lóð nr. 14 við Hrísateig.

Niðurrif, fastanr. 201-8750 mhl. 01 merkt 0101 einbýlishús 244,5 ferm., 668 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

32. Hrísateigur 14 (01.360.204) 104519 Mál nr. BN049812

Norðurey ehf., Fjarðarási 10, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu á þrem hæðum gistiheimili á lóð nr. 14 við Hrísateig.

Stærðir brúttó: 1. hæð 196,3 ferm., 2. hæð 187,1 ferm., 3. hæð 185,1 ferm., Samtals 568,5 ferm., 1.734 rúmm.,

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Hverafold 49 (02.866.004) 110280 Mál nr. BN049444

Ingibjörg H Harðardóttir, Hverafold 49, 112 Reykjavík

Brynja Harðardóttir, Hverafold 49, 112 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, innréttuð hefur verið íbúð í neðri kjallara og sökkulrýmum og efri kjallari hefur verið stækkaður inn í sökkulrúmi í parhúsi nr. 49A á lóð nr. 49 við Hverafold.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skiplagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júlí 2015.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. júlí 2015.

34. Hverfisgata 54 (01.172.102) 101440 Mál nr. BN049766

Heimili kvikmyndanna-Bíó P ses., Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir salerni, aðgengilegu fyrir fatlaða, fækka stólum í sal um sjö og setja pall fyrir hjólastóla í staðinn og setja upp stigalyftur í Bíó Paradís á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Jónsgeisli 37 (04.113.701) 189818 Mál nr. BN049708

Ólafur Kárason, Jónsgeisli 37, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja stoðveggi, tröppur og pall við einbýlishús á lóð nr. 37 við Jónsgeisla.

Útskrift ur gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Vísað til umsagnar skipulagafulltrúa dags. 27. júlí 2015.

36. Klettagarðar 6 (01.322.301) 188794 Mál nr. BN049753

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Drangasker ehf., Lágmúla 9, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049635 þannig að komið verður fyrir frysti í lagerhlutanum, millipallur nýttur undir skrifstofurými og flóttaleið frá millilofti út á hringstiga komið fyrir á norðurhlið á húsinu á lóð nr. 6 við Klettagarða.

Bréf frá eigendum húss ódags. og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 17. júlí 2015 fylgir.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Lambasel 8 (04.998.104) 200758 Mál nr. BN049779

Þórdís Jóhannsdóttir Wathne, Austurkór 94, 203 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta útliti þannig að flísar og klæðning verði fjarlægt en í stað komi 85 mm einangrun og ímúrpússning utan á einbýlishúsið á lóð nr. 8 við Lambasel.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

38. Laufásvegur 27 (01.183.505) 101982 Mál nr. BN049334

Kristján Pétur Guðnason, Rafstöðvarvegur 23, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishúsi á lóð nr. 27 við Laufásveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 18. júní til og með 16. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.

Stækkun:  29,8 ferm., 85 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

39. Laugateigur 32 (01.365.105) 104672 Mál nr. BN049575

Guðlax ehf, Hólmaslóð 2, 101 Reykjavík

Tobias Klose, Laugateigur 32, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjarlægja núverandi þak og kvist og byggja nýtt þak og fjölga kvistum, breyta innra skipulagi íbúðar á 2. og 1. hæð og samþykki fyrir íbúð í kjallara í húsinu á lóð nr. 32 við Laugateig.

Umsögn skipulagsfulltrúa frá 6. júlí 2015 fylgir. Íbúðarskoðun dags.24. júní 2015 fylgir Matsvottorð frá 31 des. 2000 fylgir Ljósrit frá fasteignarskrá Ísland um leigusamning af íbúð. Yfirlýsing frá Þorvaldi Björnssyni að Sigurður Einarsson er aðalhönnuður dags. 23. júlí 2015

Stækkun: 22,5 ferm., 39,6 rúmm. 

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Laugavegur 120 (01.240.203) 102986 Mál nr. BN049580

L120 ehf., Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, sjá erindi BN048554, fimm hæðir og kjallara og innrétta 127 herbergi fyrir 263 gesti í flokki V teg. hótel á lóð nr. 120 við Laugaveg.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 9. júní 2015, greinargerð vegna hljóðvistar, rýni vegna burðarvirkja dags. 9. júní 2015 og orkurammi dags. 6. júní 2015. Bílastæðabókhald: 6.619 ferm. er 50,9 bílastæði mínus 19 á staðnum er borga 31,9 stæði.

Viðbygging:  4.186,4 ferm., 13.507,1 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um sameiningu eigna eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

41. Laugavegur 170-174 (01.250.201) 103431 Mál nr. BN049757

Hekla hf., Pósthólf 5310, 125 Reykjavík

Hekla fasteignir ehf., Laugavegi 174, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi í söludeild á 1. hæð og setja nýjar inngangsdyr á norðurhlið húss Heklu hf. nr. 174  á lóð nr. 170-174 við Laugaveg.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

42. Laugavegur 180-182 (01.252.001) 103443 Mál nr. BN049783

Reitir III ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja upp baklýst ljósaskilti á austur- og vesturgafl 3. hæðar byggingar á lóð nr. 182 við Laugaveg.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

43. Laugavegur 82 (01.174.301) 101637 Mál nr. BN049614

Berglind Björk Halldórsdóttir, Haukdælabraut 102, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðvesturhorni 4. hæðar á íbúð 0402, einnig er gerð grein fyrir áður gerðum breytingum 3. og 4. hæðar í húsi á lóð nr. 82 við Laugaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júlí 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Laugavegur 84 (01.174.302) 101638 Mál nr. BN049707

Arnar Moubarak, Kjartansgata 9, 105 Reykjavík

GEK ehf., Köldulind 4, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki II fyrir 20 gesti á 1. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 84 við Laugaveg.

Erindi fylgir leigusamningur dags. 6. desember 2014, óundirritaður.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

45. Nönnugata 7 (01.186.615) 102311 Mál nr. BN049761

Magnhús ehf., Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjölga íbúðum úr einni í tvær á 1. hæð og breyta skipulagi geymslna í rishæð í fjöleignahúsi á lóð nr. 7 við Nönnugötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Óðinsgata 1 (01.181.003) 101727 Mál nr. BN049806

Þuríður Ottesen, Óðinsgata 1, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á breytingum á áður samþykktu erindi BN048347 sem fjallar um ýmsar breytingar utanhúss svo sem nýjum þakglugga, tröppum, gluggum og hurðum og innanhúss í íbúðum 0201 og 0301 í fjöleignahúsi á lóð nr. 1 við Óðinsgötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Rafstöðvarvegur 20 (04.26-.-85) 110965 Mál nr. BN049700

Orkuveita Reykjav - Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, m. a. hefur fyrirkomulagi í eldhúsi verið breytt, bar færður og hringstigi í kjallara hefur verið fjarlægður í félagsheimili OR á lóð nr. 20 við Rafstöðvarveg.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Ránargata 29A (01.135.207) 100456 Mál nr. BN049696

Black Sheep ehf., Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjarlægja kvist sem fyrir er, byggja nýjan stærri og svalir á vesturhlið og nýjar tröppur og pall við aðalinngang einbýlishúss á lóð nr. 29A við Ránargötu.

Stækkun:  6,27 rúmm.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2015 einnig fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2015.

49. Ránargata 9A (01.136.204) 100540 Mál nr. BN049409

Sólveig Guðmundsdóttir Karlsson, Ránargata 9a, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðri íbúð á 1. hæð/jarðhæð og til að stækka garðskýli þar sem verða geymslur fyrir íbúðir hússins, einnig að gera nýjan glugga á 1. hæð norðurhliðar á fjölbýlishúsi á lóð nr. 9A við Ránargötu.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu  Vísað er til uppdrátta nr. A1 og A2 dags. 13. júní 2015 breytt 30. júlí 2015.

50. Skaftahlíð 38 (01.274.203) 103641 Mál nr. BN049772

Þórir Jósef Einarsson, Skaftahlíð 38, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki á íbúð í risi og á þegar gerðum breytingum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 38 við Skaftahlíð.

Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Skildinganes 2 (01.671.211) 213787 Mál nr. BN049789

Columbus Classis ehf., Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús klætt með lerki á tveimur hæðum með innbyggðan bílageymslu á lóð nr. 2 við Skildinganes.

Stærð hús:  170,3 ferm., 567,1 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

52. Skipasund 18 (01.355.310) 104363 Mál nr. BN049775

Ásgeir Blöndal Ásgeirsson, Skipasund 18, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN041014 þar sem sótt var um að byggja við, úr staðsteypu og trégrind, klætt utan með bárujárni, á suðurhlið kjallara og 1. hæðar og koma fyrir þaksvölum á þakhæð á húsið á lóð nr. 18 við Skipasund.

Stækkun: 31 ferm., 82,3 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

53. Skólavörðustígur 8 (01.171.206) 101387 Mál nr. BN049726

OAK ehf., Árakri 33, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049314 þannig að komið er fyrir útblástursstokk frá eldunarsteikingu meðfram suðurvegg og upp vesturhlið hússins á lóð nr. 8 við Skólavörðustíg.

Samþykki fylgir á A3 teikningu.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

54. Sóltún 1 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN049787

Mánatún hf., Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að gera op í burðarvegg og sameina íbúðir 0807 og 0808 í eina íbúð, 0807, á 8. hæð í fjölbýlishúsinu Mánatún 13 á lóð nr. 1-3 við Sóltún/1-17 við Mánatún.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 27.7. 2015, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28.7. 2015 og hljóðvistargreinargerð dags. júní 2015.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

55. Sóltún 6 (01.233.501) 211565 Mál nr. BN049782

Waldorfleikskólinn Sólstafir, Grundarstíg 19, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja Waldorf leik- og grunnskólann Sólstafi úr steinsteypu á einni hæð með timburþaki á lóð nr. 6 við Sóltún.

Stærðir:

Núverandi færanlegar kennslustofur brúttó, 378 ferm., 1.190,9 rúmm.

Nýbygging brúttó, 333,3 ferm., 1.306,7 rúmm.

Samtals á lóð: 711,3 ferm., 2.497,6 rúmm.

Lóð 11.235 ferm., nhl. 0,06

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

56. Sóltún 6 (01.233.501) 211565 Mál nr. BN049815

Waldorfleikskólinn Sólstafir, Grundarstíg 19, 101 Reykjavík

Sótt er um aðskilið byggingarleyfi vegna umsóknar BN049782 um tilfærslu á færanlegum kennslustofum innan lóðar vegna fyrirhugaðra framkvæmda nýbyggingar.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

57. Stigahlíð 45-47 (01.712.101) 107208 Mál nr. BN049801

Suðurver ehf., Stigahlíð 45-47, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049187 þannig að komið er fyrir rafdrifinni rennihurð inn í apótek á 1. hæð í húsinu á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

58. Suðurlandsbraut 46-54 (01.463.101) 105671 Mál nr. BN049672

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II teg. C fyrir 68 gesti í húsi nr. 48 á lóð nr. 46-54 við Suðurlandsbraut.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

59. Tjarnargata 28 (01.142.002) 100923 Mál nr. BN049725

Feier ehf., Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja kvist á austurhlið og breyta innra skipulagi efri hæðar einbýlishúss á lóð nr. 28 við Tjarnargötu.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags, 9. júlí 2015, samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða dags. 8. júlí 2015, samþykki lóðarhafa Tjarnargötu 26 vegna breytinga á lóðamörkum og kaupsamningur dags. 22. maí 2015.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. ágúst 2015.

Stækkun:  1,76 ferm., 5,76 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda skipulagsfulltrúa dags. 7. ágúst 2015.

60. Úlfarsbraut 122-124 (05.055.701) 205755 Mál nr. BN049807

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu 1. áfanga mhl. 01 sem er leikskólahluti fyrir 120 börn í Dalskóla á lóð nr. 122-124 við Úlfarsbraut.

Bréf frá hönnuði dags. 4. ágúst 2015 fylgir. 

Stærðir: 819 ferm., 3.684,6 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Skipulagsferli ólokið.

61. Úlfarsbraut 16 (02.698.303) 205710 Mál nr. BN049804

Jónas Guðgeir Hauksson, Þorláksgeisli 11, 113 Reykjavík

Sigrún Guðmundsdóttir, Þorláksgeisli 11, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og útliti sem felst í að bæta við útidyrahurð á þvottahús í einbýlishúsi á lóð nr. 16 við Úlfarsbraut.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

62. Vatnagarðar 38 (01.407.902) 104958 Mál nr. BN049803

ALP hf., Vatnsmýrarvegi 10, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja þjónustubygginu úr samlokueiningum úr stáli á tveimur hæðum með kjallara sem hýsa á móttöku bílaleigu, skrifstofur, þvottastöð, viðgerðarverkstæði og geymslur í húsinu á lóð nr. 38 við Vatnagarða.

Stærðir húss er: 984,2 ferm. 4439,7 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

63. Veltusund 3B (01.140.420) 100860 Mál nr. BN048747

Arkís arkitektar ehf., Kleppsvegi 152, 104 Reykjavík

Balance ehf, Viðarási 26, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, innrétta fimm íbúðir á 2. og 3. hæð, innrétta aðstöðu fyrir veitingahús 1. hæðar á 2. hæð, til að dýpka kjallara um 30 cm í húsi á lóð nr. 3B við Veltusund.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. febrúar 2015, þinglýst afsal dags. 10. október 2007, samningur um afnot af sorpgeymslum í Austurstræti 3 dags. 4. júní 2015 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 10. júní 2015.

Stækkun:  4,6 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

64. Vesturhlíð 7 (01.768.401) 107477 Mál nr. BN049758

Jón Pétursson ehf, Bjarkargötu 4, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áðurgerðum millipalli rými 0112 í húsinu á lóð nr. 7 við Vesturhlíð.

Stærð millipalls er: 29,6 ferm.

Gjald kr. 9.823

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

65. Þingholtsstræti 29A (01.183.605) 101989 Mál nr. BN049496

Aztiq Pharma ehf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja timburskúr á steyptum sökkli í suðurhorni garðs við einbýlishús á lóð nr. 29A við Þingholtsstræti.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 18. júní til og með 16. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.

Stærð:  5,8 ferm., 13,5 rúmm.

Gjald kr. 9.823

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

66. Skrauthólar 125752 (00.070.000) 125752 Mál nr. BN049794

Nýborg ehf, Súlunesi 19, 210 Garðabær

Óskað er eftir  samþykki byggingarfulltrúans til að deila lóðinni Skrauthólar 1 í fjórar lóðir, eða eins og sýnt er meðfylgjandi uppdráttum Landupplýsinga-deildar dags. 27. 07. 2015. 

Lóðin Skrauthólar 1 (staðgr. 32.551.101, landnr. 125752): er talin 0.0 m², lóðin reynist 312603 m², teknir eru  50002 m² af lóðinni og bætt við nýja lóð Skrauthóla 4, teknir eru 58127 m² af lóðinni og bætt við nýja lóð Skrauthóla 5, teknir eru 51744 m² af lóðinni og bætt við nýja lóð Skrauthóla 6, lóðin verður 152729  m². 

Skrauthólar 4 (staðgr. 32.551.102, landnr. 223455): lagt er 50002 m² við lóðina frá Skrauthólum 1, lóðin verður  50002 m²  (NB eldri lóð  er sýnd á deiliskipulagi en finnst  ekki í skrám svo litið er á hana hér sem nýja). 

Skrauthólar 5 (staðgr. 32.551.106, landnr. 223456): lagt er 58127 m² við lóðina frá Skrauthólum 1, lóðin verður  58127 m².  Skrauthólar 6 (staðgr. 32.551.105, landnr. 223457): lagt er 51744 m² við lóðina frá Skrauthólum 1, lóðin verður  51744 m². sbr. uppdrátt verkfræðistofunnar Ráðgjafar s.f . frá okt. 1993. sbr. deiliskipulag samþykkt á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúadags. 12. 06. 2015 og sem auglýst var í B-deild Stjórnartíðinda þann 02. 07. 2015.

Umsækjandi:

Sjá meðsent afrit af bréfi til Skipulagsfulltrúa nefnt:

"Umsókn / Breyting á lóð/skipting lóðar", dagsett 22.10.2014

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

67. Strípsvegur 80 Mál nr. BN049793

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Óskað er eftir því í fyrsta lagi að samþykkt byggingarfulltrúans dags. 14. júlí 2015 á Lóðauppdrætti 8.1--.-50 og 51, dags. 07.07.2015, vegna tveggja nýrra lóða, Strípsvegur 90 og Strípsvegur 80, verði dregin til baka og í öðru lagi er óskað eftir samþykkt byggingarfulltrúans á nýjum Lóðauppdrætti af sömu lóðum þ.e. óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á Lóðauppdrættinum 8.1--.-50 og 51, vegna tveggja nýrra lóða, Strípsvegur 90 og Strípsvegur 80, undir dreifistöðvar O.R eða eins og sýnt er á meðfylgjandi Lóðauppdrætti 8.1--.-50 og 51, dags. 29. 07. 2015.

Lóðin Strípsvegur 90 ( landnr. 223407, staðgr.  8.1--.-50 ) verður 84 m2 að stærð og kemur úr lóðinni Vatnsendakrika 2 (landnr 220815).

Lóðin Strípsvegur 80 ( landnr. 223406, staðgr.  8.1--.-51 ) verður 84 m2 að stærð og kemur úr lóðinni Vatnsendakrika 2 (landnr 220815). 

Lóðin Vatnsendakriki 2 (landnr 220815) minnkar því sem því nemur.

Sjá samþykkt umhverfis- og skipulagsráð 27. 05. 2015 og samþykkt borgarráðs 28.05.2015.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

68. Strípsvegur 90 Mál nr. BN049792

69. Barónsstígur 25 (01.174.326) 101661 Mál nr. BN049808

Guðríður Hjaltadóttir, Sóltún 2, 105 Reykjavík

Fyrirspurn framsent til skipulagsfulltrúa. 

70. Dalhús 2 (02.841.201) 109707 Mál nr. BN049774

Ungmennafélagið Fjölnir, Fossaleyni 1, 112 Reykjavík

Spurt er hvort setja megi auglýsingaskilti á þá hlið sem út snýr að götu á girðingu umhverfis íþróttavöll Fjölnis á lóð nr. 2 við Dalhús.

Frestað.

Kynna formanni umhverfis- og skipulagssviðs.

71. Fífusel  2-18 (04.970.601) 113158 Mál nr. BN049650

Mihajlo Zivojinovic, Fífusel 12, 109 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að innrétta tvær litlar íbúðir þar sem nú er ósamþykkt íbúð og tvö stök íbúðarherbergi í kjallara fjölbýlishúss nr. 12 á lóð nr. 2-18 við Fífusel.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2015.

Nei.

Samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2015.

72. Framnesvegur 12 (01.133.228) 100257 Mál nr. BN049800

Ingi Rafn Sigurðsson, Öldugata 41, 101 Reykjavík

Fyrirspurn framsent til skipulagsfulltrúa. 

73. Framnesvegur 14 (01.133.229) 100258 Mál nr. BN049809

Guðrún Lilja Kristinsdóttir, Framnesvegur 14, 101 Reykjavík

Spurt er hvort samþykki fáist á íbúð í risi fjölbýlishúss á lóð nr. 14 við Framnesveg.

Meðfylgjandi eru bréf dags. 18.7. 2015, 23.7. 2015 og eignaskiptasamningur dags. 8.8. 2015.

Frestað.

Samanber athugasemdir á fyrirspurnarblaði.

74. Grettisgata 13 (01.172.231) 101485 Mál nr. BN049796

Brynja Dögg Friðriksdóttir, Grettisgata 13, 101 Reykjavík

Fyrirspurn framsent til skipulagsfulltrúa. 

75. Hólaberg 80 (04.673.406) 112189 Mál nr. BN049790

Sigursteinn Sigurðsson, Hólaberg 80, 111 Reykjavík

Fyrirspurn framsent til skipulagsfulltrúa. 

76. Kambasel 23-27 (04.975.703) 113270 Mál nr. BN049647

Silja Arnarsdóttir, Kambasel 23, 109 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að innrétta fótaaðgerðastofu í bílskúr við raðhús nr. 23 á lóð nr. 23-27 við Kambasel.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2015.

Nei.

Samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2015.

77. Mjölnisholt 12-14 (01.241.104) 211626 Mál nr. BN049594

Mjölnisholt ehf, Ögurhvarf 6, 201 Kópavogur

Spurt er hvort leyft yrði að fella niður bílgeymslu í neðri kjallara og útbúa skábraut í efri kjallara í stað bílalyftu, við þetta fækkar bílastæðum um 12 í hóteli á lóð nr. 12-14 við Mjölnisholt.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. ágúst 2015.

Engin gjöld

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

78. Næfurás 13-17 (04.381.203) 111475 Mál nr. BN049802

Georgeta Liana Bora, Næfurás 15, 110 Reykjavík

Fyrirspurn framsent til skipulagsfulltrúa. 

79. Síðumúli 33 (01.295.402) 103849 Mál nr. BN049797

Reykjaprent ehf., Síðumúla 14, 108 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að skipta út innkeyrsluhurð og gönguhurð fyrir glugga og hurð á húsinu á lóð nr. 33 við Síðumúla. 

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

80. Vesturgata 55 (01.133.220) 100250 Mál nr. BN049799

Atli Davíð Smárason, Klukkuvellir 7, 221 Hafnarfjörður

Spurt er hvort fyrirspurn BN029032 sem tekin var fyrir 30 mars 2004 og fjallaði um hvor hvort leyfi fengist til að samþykkja íbúð í suðausturhluta  merkt 01 0101 og fékk jákvæða umfjöllun um að samþykkja sem íbúð, nú er spurt er hvort svarið við þessari fyrirspurn standi enn og hvaða gagna sé krafist til að fá íbúðina samþykkta í húsinu á lóð nr. 55 við Vesturgötu. 

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 14:10

Nikulás Úlfar Másson

Erna Hrönn Geirsdóttir

Björn Kristleifsson

Jón Hafberg Björnsson

Óskar Torfi Þorvaldsson

Sigurbjartur Halldórsson

Eva Geirsdóttir