Umhverfis- og heilbrigðisráð
Ár 2019, miðvikudaginn 18. desember kl. 10:07 var haldinn 32. fundur umhverfis- og heilbrigðisráð Reykjavíkur, ásamt skipulags- og samgönguráði Reykjavíkur og var það 58. fundur þess. Fundurinn var haldinn í Hofi að Borgartúni 12 – 14. Viðstödd voru: Líf Magneudóttir, Sabine Leskopf, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, Sara Sigurðardóttir, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Björn Gíslason, Vigdís Hauksdóttir og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins Ólafur Jónsson. Auk þeirra sátu eftirtaldir fulltrúar skipulags- og samgönguráðs fundinn: Pawel Bartoszek, Aron Leví Beck, Eyþór Laxdal Arnalds, Hildur Björnsdóttir, Ólafur Kr. Guðmundsson, og áheyrnarfulltrúarnir Daníel Örn Arnarsson, Baldur Borgþórsson og Ásgerður Jóna Flosadóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson, Árný Sigurðardóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Guðjón Ingi Eggertsson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Sigurjóna Guðnadóttir og Gréta Mar Jósepsdóttir. Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Kosning í umhverfis- og heilbrigðisráð Mál nr. US190026
Lagt er fram bréf dags. 17. október 2019, frá fundi borgarstjórnar 15. október 2019 þar sem var samþykkt að Björn Gíslason taki sæti í umhverfis- og heilbrigðisráði í stað Jórunnar Pálu Jónasdóttur.
Lagt framFylgigögn
-
Skipulags- og samgönguráð og umhverfis- og heilbrigðisráð 2018-2022, fundadagatal 2020 Mál nr. SN130008
Lagt fram drög að fundadagatali skipulags- og samgönguráðs og umhverfis- og heilbrigðisráðs fyrir árið 2020.
Lagt fram. -
Mathallir, kynning Mál nr. US190025
Kynning á mathöllum.
Anna Jóhannesdóttir heilbrigðisfulltrúi tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Hermannaveiki, kynning Mál nr. US190025
Kynning á hermannaveiki í Reykjavík
Rán Sturlaugsdóttir heilbrigðisfulltrúi tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Saga bílastæðasjóðs, Kynning Mál nr. US190413
,,...jeg bið því að hestunum verði strax komið inn í portið..."
Albert Svanur Heimisson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
(E) Umhverfis- og samgöngumál
-
Árangur deilihjólaleigu, kynning Mál nr. US190410
Kynnt er reynslan af fyrstu vikunum eftir að deilihjólaleiga hófst í Reykjavík.
Eyþór Máni Steinarsson frá Framúrskarandi ehf. tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Loftlagsmælir Festu, Kynning Mál nr. US190409
Kynnt er reiknivél fyrir kolefnisspor fyrirtækja.
Eyþór Máni Steinarsson frá Festu taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Kolefnisreiknir OR og EFLU, Kynning Mál nr. US190412
Kynning frá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á kolefnisreikni.
Helga Jóhanna Bjarnadóttir frá Eflu og Hólmfríður Sigurðardóttir frá Orkuveitu Reykjavíkur taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 12:14 víkur Vigdís Hauksdóttir af fundi.
- Kl. 12:15 víkur Daníel Örn Arnarsson af fundi. -
Ljósmyndaverkefni hjá fagráðum USK, kynning Mál nr. US190414
Kynning á ljósmyndaverkefni hjá fagráði umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.
Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Minjasafns Reykjavíkur og Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnastjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.
PDF útgáfa fundargerðar
umhverfis_og_heilbrigdisrad_1612.pdf