Stjórnkerfis- og lýðræðisráð
Ár 2018, mánudaginn 26. febrúar, var haldinn 73. fundur Stjórnkerfis- og lýðræðisráð. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð og hófst klukkan 10:34. Viðstödd voru Halldór Auðar Svansson, Skúli Helgason, Eva Einarsdóttir, Eva Baldursdóttir, Björn Gíslason, Gústav Adolf B. Sigurbjörnsson, Jón Ingi Gíslason. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Óskar J. Sandholt, Dagbjört Hákonardóttir og Sandra Dröfn Gylfadóttir sem ritaði fundargerð
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga verkefnastjóra Hverfisins míns, dags. 23.02.2018, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að uppfærð tímalína fyrir Hverfið mitt 2018 verði samþykkt. R18020097.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju nýju drög að lýðræðisstefnu Reykjavíkurborgar sbr. 2. lið fundargerðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs frá 30. október 2017, ásamt umsögnum fagráða, hverfisráða, öldungaráðs, fjölmenningarráðs og forsætisnefndar. R18010207.
Fylgigögn
-
Lögð fram samantekt á gögnum vegna væntanlegs vinnufundar með hverfisráðum.
Samþykkt að halda vinnufund með fulltrúum hverfisráða þann 12. mars nk. Lagt verður fram upplegg um skipun í hverfisráð og hlutverk þeirra til vinnslu með hverfisráðum.
Kl. 13.49 tekur Herdís Anna Þorvaldsdóttir sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lagðar fram umsagnir skóla- og frístundasviðs, Reykjavíkurráðs ungmenna og SAMFOK vegna breytinga á aldursmörkum vegna kosninga í Hverfið mitt, dags. 22. febrúar 2018. R18010392.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsagnarbeiðni borgarráðs til stjórnkerfis- og lýðræðisráðs, dags. 22. febrúar 2018, þar sem óskað er eftir umsögn um stefnu um nýtingu upplýsingatækni hjá Reykjavíkurborg 2018-2022. R17020072.
Fylgigögn
Fundi slitið klukkan 13:59
Skúli Helgason