Stjórnkerfis- og lýðræðisráð
Ár 2017, mánudaginn 12. júní, var haldinn 60. fundur Stjórnkerfis- og lýðræðisráð. Fundurinn var haldinn í Tjarnabúð og hófst klukkan 14:00. Viðstödd voru Halldór Auðar Svansson, Eva H. Baldursdóttir, Björn Gíslason, Jón Ingi Gíslason, Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Gísli Garðarsson. Eftirtaldir gestir sátu fundinn: Arnar Jónsson, Arnar Pálsson, Ingibjörg Stefánsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Stefán Eiríksson, Óskar J. Sandholt, Helga Björg Ragnarsdóttir og Sandra Dröfn Gylfadóttir sem ritaði fundargerð
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á niðurstöðum vinnustofu um framtíð hverfisráða.
Arnar Jónsson og Arnar Pálsson taka sæti undir þessum lið.
Umræða fer fram.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um næstu skref í opnun fjármála í samræmi við tillögu stjórnkerfis- og lýðræðisráðs til fjármálaskrifstofu um tímasetta áætlun vegna opinna fjármála sbr. 1. lið 52. fundar.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina um að fram fari íbúakosninga í Reykjavík samhliða borgarstjórnarkosningum 2018, sbr. 5. lið fundargerðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs frá 23. janúar 2017, ásamt umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. apríl 2017:
Stjórnkerfis- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar samþykkir að leggja til við Borgarstjórn Reykjavíkur að fram fari íbúakosning í Reykjavík samhliða borgarstjórnarkosningum 2018. Stjórnkerfis- og lýðræðisráði verði falin undirbúningur og að leggja fram tillögur að spurningum sem lagðar yrðu fyrir borgarbúa í kosningunum.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga stjórnkerfis- og lýðræðisráðs:
Stjórnkerfis- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar samþykkir að ráðist verði í mat á kostnaði vegna rafrænnar íbúakosningar í samræmi við bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, þannig að framkvæma megi slíka kosningu í aðdraganda næstu borgarstjórnarkosninga. Inni í því mati verði atriði sem bæði snúa að framkvæmd kosningar, en einnig kostnaður vegna undirbúnings kosningar, þar með talið vegna kynningar á því málefni eða málefnum sem kosið er um. Jafnframt verði settar saman leiðbeiningar um framkvæmd slíkrar kosningar, þar á meðal hvernig standa skuli að vali á því sem kjósa skal um og hvernig standa skuli að kynningu á þeim sjónarmiðum sem til grundvallar liggja.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lögð fram samantekt upplýsinga um samninga Reykjavíkurborgar við íslenska ríkið.
Fylgigögn
-
Lögð fram ábending frá stjórn Íbúasamtaka Miðborgar vegna tillögu um að gera fjármál einstakra hverfa aðgengileg á netinu. Samþykkt að vísa erindinu til fjármálaskrifstofu.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning um menntun og þátttökulýðræði.
Ingibjörg Stefánsdóttir tekur sæti undir þessum lið.
Kl. 14.46 víkur Björn Gíslason sæti af fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram fundadagatal stjórnkerfis- og lýðræðisráðs fyrir 2017-2018.
Fylgigögn
Fundi slitið klukkan :