Stjórnkerfis- og lýðræðisráð
Ár 2016, 11. janúar, var haldinn 30. fundur stjórnkerfis- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi og hófst kl. 14.30. Fundinn sátu Halldór Auðar Svansson, Eva Einarsdóttir, Hilmar Sigurðsson, Björn Gíslason, Áslaug Friðriksdóttir og Jón Ingi Gíslason. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Helga Björg Ragnarsdóttir, Hreinn Hreinsson og Theódóra Sigurðardóttir.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram að nýju hugmynd af samráðsvefnum Betri Reykjavík „Flugfargjöld Reykjavíkurborgar og Vildarpunktar“ dags. 30. september 2015, sbr. 1. liður fundargerðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs 30. nóvember 2015 og 1. liður fundargerðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs 14. desember 2015.
- Kl. 14.40 tekur Eva Baldursdóttir sæti á fundinum.
Stjórnkerfis- og lýðræðisráð leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Lagt er til að listar yfir samþykktar ferðaheimildir sem eru lagðir fram ársfjórðungslega í samræmi við samþykkt borgarráðs frá 18. júní 2015, verði birtir á sérstöku svæði á vef Reykjavíkurborgar.
Greinargerð: Til þess að auka gagnsæi og eftirlit við ráðstöfun almannafjár samþykkti borgarráð á fundi sínum þann 18. júní 2015 að eftirfarandi skrefum yrði bætt inn í verkferil vegna ferðaheimilda í ferðum á vegum Reykjavíkurborgar: Fjármálastjórar fagsviða skulu senda ársfjórðungslega lista yfir allar samþykktar ferðaheimildir sem lagður verður fram á fundi viðkomandi fagráðs. Fjármálastjóri Ráðhúss skal senda ársfjórðungslega lista yfir allar samþykktar ferðaheimildir á vegum borgarráðs og borgarstjórnar sem lagður verður fram á fundi borgarráðs. Stjórnkerfis- og lýðræðisráð fagnar þessari viðbót við verkferilinn enda er hún til þess fallin að auka gagnsæi í stjórnsýslu borgarinnar. Til að bæta aðgengi að þessum listum er lagt til að þeir verði teknir saman á einum samræmdum stað á vef Reykjavíkurborgar.
Samþykkt.Fylgigögn
-
Lögð fram til kynningar eftirfarandi bókun hverfisráðs Grafarvogs dags. 15. desember 2015:
Hverfisráð Grafarvogs harmar samþykkt stjórnkerfis- og lýðræðisráðs frá 7. september sl. um breytingu á framkvæmd Betri hverfa fyrir árið 2016. Ljóst er að umrædd samþykkt veldur því að engar framkvæmdir í hverfum borgarinnar verða fjármagnaðar gegnum Betri hverfi á næsta ári og þar með minnka umtalsvert þau litlu áhrif sem íbúar borgarinnar geta haft á nærumhverfi sitt. Hverfisráð harmar að stjórnkerfis- og lýðræðisráð skuli á þennan hátt draga úr lýðræði í borginni. Það má vel vera að hægt sé að bæta verkefnið Betri hverfi og boðuð úttekt mun væntanlega leiða í ljós hvort svo sé. Hverfisráð telur að sú úttekt eigi samt ekki að hafa áhrif á framkvæmd verkefnisins árið 2016.Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stefnumiðum hverfisráðs Breiðholts.
Nichole Leigh Mosty og Óskar Dýrmundur Ólafsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fulltrúi Framsóknar- og flugvallarvina leggur fram eftirfarandi fyrirspurn:
Óskað er eftir að stjórnkerfis- og lýðræðisráð kanni hvers vegna svar fæst ekki við eftirfarandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina í hverfisráði Grafarvogs sem lögð var fram 28.10. 2014, ítrekuð 28.04.2015 og 15.12.2015 og hvort svo langur tími sé í samræmi við gagnsæja stjórnsýslu. "Framsókn og flugvallarvinir óska eftir upplýsingum um hverjar heildartekjur borgarsjóðs hafa verið úr Grafarvogi, þ.e. útsvar frá íbúum Grafarvogs, og fasteignagjöldum íbúa og fyrirtækja í hverfinu, póstnúmeri 112 á árinu 2011, 2012 og 2013. Einnig óskar framsókn og flugvallavinir eftir upplýsingum/yfirliti yfir stærstu útgjaldaliði borgarsjóðs sem snúa beint að hverfinu á sömu árum.“
Fundi slitið kl. 15:56