Stjórnkerfis- og lýðræðisráð - Fundur nr. 25

Stjórnkerfis- og lýðræðisráð

Ár 2015, 19. október, var haldinn 25. fundur stjórnkerfis- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi og hófst kl. 13.30. Fundinn sátu Halldór Auðar Svansson, Eva Einarsdóttir, Hilmar Sigurðsson, Eva Baldursdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Marta Guðjónsdóttir, og Jón Ingi Gíslason og áheyrnarfulltrúinn Eyrún Eyþórsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Helga Björg Ragnarsdóttir, Hreinn Hreinsson, Óskar J. Sandholt og Svavar Jósefsson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara við fyrirspurn stjórnkerfis- og lýðræðisráðs dags. 18. maí 2015 um könnun á afgreiðslutíma fagráða.

    Fylgigögn

  2. Lögð er fram að nýju svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks, sbr. 3. liður fundargerðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs 5. október 2015:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að stjórnkerfis- og lýðræðisráð verði lagt niður.

    Greinargerð fylgir tillögunni. (R15100031)

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja til eftirfarandi breytingartillögu:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að stjórnkerfis- og lýðræðisráð beini því til forsætisnefndar að ráðið verði lagt niður.

    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar og Pírata -gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks. Fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  3. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata leggja fram að nýju eftirfarandi tillögu, sbr. 4. liður fundargerðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs 15. september 2015:

    Lagt er til að óskað verði eftir því við forsætisnefnd að hún endurskoði samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg með það fyrir augum að ráðið færist úr flokki I í flokk II í 13. grein samþykktarinnar. Þess er óskað í því skyni að spara rekstrarkostnað Reykjavíkurborgar vegna stjórnkerfis- og lýðræðisráðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. (R15090113)
    Tillagan er samþykkt með sex atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Sjálfstæðisflokks. Fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina situr hjá við afgreiðslu málsin

    Fylgigögn

  4. Lagt fram svar skrifstofustjóra borgarstjóra og borgarritara dags. 19. október 2015 við fyrirspurn fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina dags. 21. september sl. um áhættumat vegna tillögu um sniðgöngu á ísraelskum vörum.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á framkvæmd almennra kosninga í Reykjavík.
    Helga Björk Laxdal tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  6. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja fram eftirfarandi fyrirspurn:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórnkerfis- og lýðræðisráði furða sig á að skrifstofa borgarstjóra hafi ekki svarað fyrirspurn um tölvupóstsamskipti borgarstjóra sem fulltrúarnir lögðu fram á fundi fyrir hálfum mánuði síðan og spyrja hvað valdi töf á svörum og óska eftir þeim sem fyrst.

Fundi slitið kl. 15:05

Marta Guðjónsdóttir