Stjórnkerfis- og lýðræðisráð - Fundur nr. 20

Stjórnkerfis- og lýðræðisráð

Ár 2015, 15. júní, var haldinn 20. fundur stjórnkerfis- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi og hófst kl. 13.30. Fundinn sátu Halldór Auðar Svansson, Eva Einarsdóttir, Hilmar Sigurðsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Björn Gíslason, Hildur Sverrisdóttir og áheyrnarfulltrúinn Eyrún Eyþórsdóttir.  Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ellý Katrín Guðmundsdóttir og Sonja Wiium.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á greinargerð um áhrif notkunar samfélagsmiðla á net- og upplýsingaöryggi. Jón Ingi Þorvaldsson, deildarstjóri upplýsingatæknideildar, tekur sæti undir þessum lið. (R15040116)

    Fylgigögn

  2. Kynntir eru áfangar við úrvinnslu tillagna starfshóps um umsjón með úrvinnslu upplýsinga, ábendinga og athugasemda úttektarnefndar borgarstjórnar um stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.

    Svavar Jósefsson, skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, tekur sæti undir þessum lið. (R14080018)

    Fylgigögn

  3. Lögð er fram hugmynd af samráðsvefnum Betri Reykjavík um lýðræðisbyltingu – hús fyrir alla til að hafa samskipti og handverk. (R15060013)Hafnað.

    Fylgigögn

  4. Lögð er fram að nýju hugmynd af samráðsvefnum Betri Reykjavík um að leggja niður leikskólaráð ásamt umsögn skóla og frístundasviðs um hugmyndina. (R15040229)
    Hafnað.

    Fylgigögn

  5. Lagt er fram til kynningar bréf frá mannréttindaskrifstofu þar sem kallað er eftir hugmyndum og ábendingum vegna aðgerðaáætlunar í jafnréttismálum 2015-2019.

    Fylgigögn

  6. Lögð er fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Pírata, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar ásamt greinargerð. (R15060135) Stjórnkerfis- og lýðræðisráð leggur til að kannaður verði grundvöllur fyrir breyttu fyrirkomulagi hverfisráða Reykjavíkurborgar. Erindreka gagnsæis og samráðs er falið að afla umsagna og álita um hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi þeirra sem nánar eru raktar í greinargerð. Skýrsla um niðurstöður samráðsferlisins skal lögð fyrir stjórnkerfis- og lýðræðisráð þegar þær liggja fyrir.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  7. Lögð er fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Pírata, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar ásamt greinargerð. (R15060136)

    Stjórnkerfis- og lýðræðisráð óskar eftir því að borgarráð feli Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að vinna úttekt á því hvernig til hefur tekist að ná skilgreindum markmiðum með stofnun þjónustumiðstöðva, sbr. tillögu sem samþykkt var í borgarstjórn þann 24. júní 2004. Sér í lagi skulu skoðuð áhrif þess að flytja þjónustumiðstöðvarnar undir stjórn velferðarsviðs, sbr. tillögu sem samþykkt var í borgarstjórn þann 29. mars 2007. Skýrsla um niðurstöður úttektarinnar verði kynnt fyrir stjórnkerfis- og lýðræðisráð þegar þær liggja fyrir.

    Samþykkt.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 15:15

Heiða Björg Hilmisdóttir