Stafrænt ráð
Ár 2026, miðvikudaginn 22. apríl, var haldinn 72. fundur stafræns ráðs. Fundurinn var haldinn á Höfðatorgi og hófst kl. 13:33. Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Einar S. Guðmundsson og Þorkell Sigurlaugsson. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Kristinn Jón Ólafsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Óskar J. Sandholt.
Fundarritari var Eva Pandora Baldursdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram að nýju tillaga forsætisnefndar, dags. 30. janúar 2026, um tillögur til að bregðast við þegar brot á trúnaði á sér stað sbr. 8. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. janúar 2026, ásamt fylgiskjölum. MSS25030124.
Vísað til meðferðar þjónustu- og nýsköpunarsviðs.
Fylgigögn
- Tilkynning um afgreiðslu - forsætisnefnd 13. mars 2026 - Þjónustu- og nýsköpunarsvið
- Umsögn skrifstofu borgarstjórnar um tillögu forsætisnefndaruk tilllögur til að bregðast við þegar brot á trúnaði á sér stað frá 30. janúar 2026
- FORSÆTISNEFND 30. janúar 2026: Tillaga forsætisnefndar um tillögur til að bregðast við þegar brot á trúnaði á sér stað - MSS25030124
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. apríl 2026, um verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum. MSS23090170.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. apríl 2026, við fyrirspurn Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins um kostnað á aðkeyptri þjónustu. ÞON26010024.
Fylgigögn
-
Lagt fram í trúnaði 12 mánaða uppgjör þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025. ÞON26040085.
Trúnaður er um efni framlagningarinnar þangað til eftir að umræðu um ársreikning Reykjavíkurborgar 2025 er lokið í borgarstjórn.María Björk Hermannsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 17. apríl 2026, um heimild til að hefja verkefnið „Nýtt fjárhagskerfi. Útboð og innleiðing“ ásamt trúnaðarmerktri heimildarbeiðni og fylgiskjölum. ÞON25080011.
Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi.
Samþykkt.
Trúnaður er um efni heimildarbeiðnarinnar þangað til útboð hefur farið fram.
Hörður Hilmarsson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 17. apríl 2026, um heimild til að hefja þriðja fasa verkefnisins “Stafræn sorphirða” ásamt trúnaðarmerktri heimildarbeiðni og fylgiskjölum. ÞON25070230.
Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi.
Samþykkt.
Trúnaður er um efni heimildarbeiðnarinnar þangað til útboð hefur farið fram.
Guðmundur Benedikt Friðriksson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram heimildarbeiðni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. apríl 2026, til að hefja vinnu við framþróun SkólaBúa 2026, ásamt fylgiskjölum. ÞON25040036.
Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi.
Samþykkt.
Arna Ýr Sævarsdóttir, Bragi Freyr Gunnarsson og Hákon Sigursteinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram heimildarbeiðni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. apríl 2026, til að setja upp miðlægt mælaborð fyrir þjónustuver Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum. ÞON26040037.
Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi.
Samþykkt.
Arna Ýr Sævarsdóttir og Bragi Freyr Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram heimildarbeiðni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. apríl 2026, til að hefja vinnu við uppbyggingu gagnalandslags ÞON, ásamt fylgiskjölum. ÞON26040084.
Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi.
Samþykkt.
Arna Ýr Sævarsdóttir og Bragi Freyr Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 17. apríl 2026, um heimild til að hefja vinnu á útboði og innleiðingu á nýrri DAM lausn Reykjavíkurborgar ásamt trúnaðarmerktri heimildarbeiðni og fylgiskjölum. ÞON25100026.
Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi.
Samþykkt.
Trúnaður er um efni heimildarbeiðnarinnar þangað til útboð hefur farið fram.
Óskar Þór Þráinsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- kl. 15:29 víkur Einar S. Guðmundsson af fundinum og Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum í hans stað með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lögð fram aðgerðaáætlun stafrænnar stefnu Reykjavíkurborgar 2026 – 2030. ÞON24090056.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að málinu verði frestað.
Hafnað með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá.
Aðgerðaáætlunin er samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Framsóknarflokksins gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að þjónustu- og nýsköpunarsvið hafi samráð við og taki þátt í þróun gervigreindarseturs með Vísindagörðum Háskóla Íslands. ÞON26040093.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 15:47
Dóra Björt Guðjónsdóttir Andrea Helgadóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Kristinn Jón Ólafsson Þorkell Sigurlaugsson
PDF útgáfa fundargerðar
Stafrænt ráð fundargerð nr. 72